Lögberg - 07.12.1950, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. DESEMBER, 1950
5
Án i < v'tvi
KVCNNA
\ \ll\ / Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Merk bók um grundvallarlögmól dróttlistar
DESIGN FUNDAMENTALS. Höfundur: Carol J. Feldsled, B.A.E.,
B.F.A., M.F.A. Úlgefendur: Sir Isaac Piiman & Sons Lid., 1950.
Nýlega er komin út bók um
undirstöðuatriði dráttlistarinn-
ar, eftir Carol J. Feldsted; hefir
þessi unga listakona leyst af
hendi mikið afrek með útgáfu
þessarar bókar. Ennþá kemur
hið íslenzka sérkenni í ljós, að
hafa löngun til að rita um á-
hugamál sín, og vera ekki feim-
in við að gefa út bækur. Hér
kemur fram á sjónarsviðið ung
canadísk stúlka, íslenzk í báðar
ættir; hún ritar bók um drátt-
list, og gerir það svo vel, að
jafnvel þeir, sem eru ólærðir í
þeirri grein, hafa bæði ánægju
og gagn af lestrinum. En það,
sem meir er um vert, er það, að
bókin hefir hlotið meðmæli sér-
fræðinga í þessari grein; stórt
útgáfufélag 1 Bandaríkjunum
tók að sér að prenta bókina, eft-
ir að hafa leitað álits ýmissa
dráttlistarfræðinga á handrit-
inu.
Bókin er 164 blaðsíður, í stóru
broti, prentuð á gljápappír; frá-
gangur er allur vandaður og
smekklegur. í bókinni er mikill
fjöldi teikninga og mynda, sum-
ar í litum.
í síðastliðin þrjú ár var Miss
Feldsted kennari í dráttlist við
Manitobaháskólann, en þegar
hún tók við því starfi, hafði hún
við þá örðugleika að stríða, að
engin hæf kennslubók var fyrir
hendi. Hún skipulagði sjálf
kennsluskrána og kennsluað-
ferðirnar og útbjó lexíurnar.
Hún sá að hér var brýn þörf á
fullnægjandi kennslubók, og á-
kvað að reyna að semja slíka
bók.
Fyrsti kaflinn í bókinni og sá
lengsti eru tuttugu lexíur og
verkefnin, sem hún gaf nemend-
um sínum. Er þar sýnt greini-
lega fram á, að í dráttlist, eins
og í öðrum listum, verður að
vera samstilling, jafnvægi og
hrynjandi í línum og litum, ann-
ars verður myndin óskapnaður.
Með hverri lexíu er listi yfir
öll þau efni og tæki, sem nota
þarf við teikninguna. Þá eru
teikningar með hverri lexíu,
gerðar af nemendum, sem sýna
hvernig þeim tókst að leysa
verkefnin af hendi, og svo gagn-
rýnir kennarinn, höfundur bók-
arinnar, teikningar nemendanna,
og bendir á hvernig þeim hafi
tekist að fylgja grundvallar-
reglum dráttlistarinnar.
Allar útskýringar eru svo
ljósar, að hver og einn, sem hef-
ir nokkra tilhneigingu til drátt-
listar, getur haft hið mesta gagn
af lexíunum; það er eins og
kennarinn sé við hliðina á nem-
andanum, svo nákvæmlega fer
hún út í alt, sem kann að vera
honum ráðgáta, og leiðir hann
stig af stígi í tæknikunnáttu
dráttlistar. Þessum kafla lýkur
með teikningu af brjóstnál, er
höfundurinn gerði fyrir skraut-
muna-fyrirtæki í New York; er
teikningin gerð af mikilli list,
enda seldust nálar, sem gerðar
Voru eftir henni, fyrir offjár. —
Annar kafli bókarinnar fjall-
ar um teikningar fyrir kjólaefni,
dúka og ýmsa aðra hluti. Er þar
^ieðal annars mynd af kjólefni
^eð afar fallegu munstri, er
Miss Feldsted gerði fyrir vefn-
aðarvörufélag í Chicago.
Þá er þriðji kaflinn um aug-
^ýsinga teikningar, en á þessum
auglýsingatímum er mikil eftir-
sókn eftir þeim í viðskiptalífinu.
Ritar höfundurinn fyrst um aug-
lýsingateikningar yfirleitt;
hvaða aðferðum eigi að beita til
að grípa athyglina um leið og
horft er á myndina. Fjöldi
^ynda þessu til útskýringar
Miss Carol J. Feldsied
fylgja. Meðal þeirra eru tvær
myndir af jólakortum, er höf-
undur gerði fyrir tvö málarar-
fyrirtæki í Chicago. Sýna þau
bæði hugkvæmni og mikinn
listasmekk. í þessum kafla eru
og mörg sýnishorn af mismun-
andi letri og leiðbeiningar um
stafagerð og að síðustu ýmsaf
aðferðir við að gera eftirlíkingar
af myndum.
Síðasti kaflinn finst mér
skemtilegastur, og hann kemur
leikmönnum einna mest að
gagni, því þótt fólk yfirleitt
leggi ekki fyrir sig dráttlist, þá
langar flesta til að skilja mál-
verk og vita í hverju listagildi
þeirra er fólgið. í þessum kafla
er fjöldi mynda af frægum mál-
verkum. Var það feikna verk út
af fyrir sig, að skrifa í allar áttir
til þess að fá leyfi hjá eigendun-
um til að birta myndir af frum-
myndunum, en þær eru niður-
komnar víðsvegar um allan
heim.
Þessar myndir brýtur höfund-
urinn til mergjar, ef svo mætti
að orði komast, bæði með teikn-
ingum og útskýringum. Hún
sýnir fram á að öll listaverk,
hversu ólík sem þau eru að öðru
leyti, fylgja ávalt listalögmál-
inu í samstillingu, jafnvægi og
hrynjanda. En listamaðurinn
verður að reyna að skilja sam-
tíð sína og vera henni samstíga.
„Að mála eftirlíkingu af Rem-
brandt nú, eða jafnvel að mála
mynd í hans stíl, er líkt því að
sftrifa skáldsögu nú í stíl Dick-
ens“.
Hinar einkennilegu myndir
eftir nútíma-málaranna, Picasso,
Kandinsky, Dali og fleiri, verða
miklu skiljanlegri og opnast fyr-
ir manni eftir lestur þessarar
bókar.
Ég hafði svo mikla ánægju af
þessari bók að ég get ekki stilt
mig um að benda á, að hún er
tilvalin jólagjöf. I borgum og
byggðum er margt ungt fólk,
sem er gætt góðri dráttlistar-
gáfu, en á ekki kost á því, að
sækja dráttlistarskóla. Ekki
gæti það eignast betri bók sér til
stuðnings í að þroska gáfu sína.
Bókin fæst hjá Björnsons Book
Store, 702 Sargent Ave., Verð
ið er $5.00.
Höfundurinn.
Carol Feldsted á ekki langt að
sækja listhæfileika sína; faðir
hennar, Eggert Feldsted, er
löngu kunnur fyrir listfengi sína
í skrautmunagerð; móðir henn-
ar, frú Jónína Feldsted, hefir
málað fallegar myndir, en afi
hennar, Guðjón Thomas, var
listagullsmiður.
Snemma komu listrænir hæfi-
leikar Carol Feldsted í ljós; hún
var aðeins tólf ára þegar hún
mótaði úr mjúkum leir —
plasticene — höfuð stúlkubarns.
Faðir hennar hefir séð að hér
var um nokkuð óvenjulegt að
ræða; hann steypti myndina úr
varanlegu efni — bronz. Það er
eins og hinum kornunga lista-
manni hafi tekist að miðla leirn-
um neista af sinni eigin sál;
þetta litla líkan er ímynd barns-
legrar gleði og sakleysis.
Annað eftirtektarvert líkan
mótaði hún, 17 ára, af konu, sem
krýpur á bæn; hefir hún náð vel
tilbeiðslu og lotningarsvipnum.
Frá barnsaldri hefir hugur þess-
arar stúlku jafnan verið í heimi
listarinnar. Hún er óvenju fjöl-
hæf og leggur gjörfa hönd á
margt: mótar myndir úr leir,
heggur myndir úr marmara, mál
ar myndir, teiknar frummyndir
af skrautmunum og munstur
fyrir vefnað, dúka, kjólefni og
fjölmargt annað. Hún er auð-
sjáanlega gædd frjórri sköpun-
argáfu.
Tvisvar hefir Carol hlotið
námsverðlaun, sem aðeins þeim
veitast, er fram úr skara; hið
fyrra við Art Institute of Chi-
cago, þar sem hún lauk námi
með Bachelor of Fine Arts gráðu
og svo þrjú ár við New York
háskóla; þar hlaut hún Master
of Fine Arts gráðu. Þar að auki
hefir hún stundað nám tvö sum-
ur við Columbia University. Þar
hjó hún úr marmara yndislega
failegt stúlkuhöfuð. Hún og
einn annar nemandi voru þau
einu af námsfólkinu, sem völdu
það efni, enda er írámunalega
vandasamt og erfitt, að höggva
myndir úr marmara. Carol hlaut
þá hæstu einkunn, sem hægt er
að gefa fyrir það verk.
Carol Feldsted hefir ok lokið
námi við Kennaraskólann með
Bachelor of Education gráðu.
Síðan kenndi hún fagrar listir
við Yorkton College Institute og
nú síðustu þrjú árin við Mani-
tobaháskólann eins og fyr er
sagt. Nú hefir hún fengið eins
árs burtfararleyfi frá háskólan-
um, til þess að stunda framhalds-
nám í sinni grein við Californiu
University í Berkley.
Jafnframt námi sínu hefir
þessi unga stúlka iðkað list sína
á mörgum sviðum, því hún er
frábær að iðjusemi og atorku.
Meðan hún Var í Chicago kenndi
hún dráttlist við miðskóla þar,
og var í þjónustu World En-
cyclopedia, sem teiknari. I New
York var hún teiknari fyrir
skrautmunafyrirtæki. Þá hefir
hún gert mörg fögur málverk á
þessum árum. Þykja sumum
beztar þær myndir, sem hún
málaði á Gimli, þegar hún hafði
dráttlistarskóla þar eitt sumarið.
Nú síðast hefir hún hlotið mikið
lof fyrir eirtöflu með upp-
hleyptri mynd af frumbyggja
móðurinni og umhverfi hennar
— The Pioneer Mother.
Carol Felsted hefir þegar unn-
ið mikla sigra á listabraut sinni
og á vafalaust eftir að vekja
mikla athygli hjá listunnandi
fólki, vegna frábærra hæfileika
og framtaks. Mun það sjaldgæft,
að ung stúlka semur bók um
mikilvæga listagrein, sem viður-
kenningu hlýtur sem kennslu-
bók (text book) við háskóla.
Minningar Eggerts Stefáns-
sonar um lífið og listina
Fyrsia bindið er nýlega komið út
Eggert Stefánsson söngvari
sýndi það með Óðnum til ársins
1944, að hann er prýðilega ritfær
og kann vel að velja hugsunum
sínum sérkennilegan og fágaðan
búning. Sú fregn mun því gleðja
marga, að hann er fyrir nokkru
byrjaður að skrifa endurminn-
ingar sínar og er prentun fyrsta
bindisins þegar lokið. Von er á
tveimur bindum til viðbótar.
Eggert kallar fyrsta bindi
endurminningu sína „Lífið og
ég“ og kemst hann svo að orði í
eftirmála, sem fylgir því:
Hinn þúsund ára íslendingur.
— fslendingur, sem fæddur er
fyrir eða um síðustu aldamót,
eins og ég — er þúsund ára gam-
all — og svo þrjátíu eða fjöru-
tíu ára, eftir því hvenær við
reiknum að framfarirnar og þar
með breytingarnar byrjuðu.
Mikið af því, sem hugsað er
í þessari bók, er frá hinum þús-
und ára fslendingi, þessum, sem
var og er ávallt hinn sami, þó
formið breytist. Hinn frum-
stæði, sterki og djúpi, — óhagg-
anlegi.
Hann hefir reynslu kynstofns-
ins — endurminningar um þján-
ingar og vonir, í blóði sínu. Ég
reyni að hlusta á hann í gegnum
klið dagsins er líður, reyni að
halda mér að honum og njóta
hans handleiðslu í lífinu. Það er
þessi þúsund ára íslendingur,
sem ég trúi á og sem ég reyni að
fylgja, og sem ég virði — og
verður alltaf frjáls.
„Lífið og þú".
Ég hefi stutt mig við dagbæk-
ur, sem ég byrjaði að færa í
Stokkhólmi 1916 og hefi ég hald-
ið þeim vana síðan. Þess vegna
er oft blær hvers tímabils jafn-
vel í stíl þess, með hraða og
hægð lífsins þá og kannske oft
framandi nútíðinni, en gefur
tímabilinu betur sín einkenni,
líka í hugsunarhætti þess og
skoðunum. í næstu bók verður
meira af samtíðinni og gæti hún
þá eins vel heitið „Lífið og þú“.
Sumt af efni þessarar bókar
talar eðlilega mest til söngvara
og tónlistarmanna. Vekur það
máske hjá þeim líkar kendir og
endurminningar úr eigin lífi,
þótt niðurstöðurnar verði aðrar.
Eins til hinna mörgu listamanna
og listunnenda, sem hrifist hafa
af listum Evrópu eins og ég, og
magnast af fyllingu töfra þeirra.
— Rifjast þá máske upp margar
geymdar endurminningar frá
listaverkum, er þeir sáu og fór
eins og mér, að þau urðu meira
ráðandi þroska en nokkuð ann-
að, er mætti þeim í lífinu.
Gamla Reykjavík.
Ég hefi átt ýmsar yndislegar
endurminningar frá g ö m 1 u
Reykjavík, sem í einverunni
„Jón Arason" og „Jörð" eftir
Gunnar Gunnarsson komnar
Níunda bindið í heildarút-
gáfu Landnámu af bókum
Gunnars skálds Gunnars-
sonar er „Jörð“ í íslenzkri
Þýðingu eftir séra Sigurð
Einarsson, og er hún í flokki
þeirra skáldsagna Gunnars,
er hófst með Fóstbræðrum
og átti að kallast einu heiti
Landnám, en honum hefir
höfundurinn ekki lokið. Sjö-
unda og áttunda bindið í
heildarútgáfunni er>u „Jón
Arason“ og „Svartfugl“.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
„Jörð“ og „Jón Arason“ koma
út hér í heimalandi höfundarins,
en „Svartfugl“ kom upphaflega
út í íslenzkri þýðingu á vegum
Menningar- og fræðslusambands
' alþýðu, og var hún fyrsta félags-
bók þess. Þýðandi að „Jóni Ara-
syni“ er ekki tilgreindur, en þýð-
ingin mun gerð af höfundinum
sjálfum, enda las hann söguna
upp í útvarpinu fyrir skömmu.
„Jóni Arasyni“ fylgir stuttur
eftirmáli, þar sem gerð er grein
fyrir því, hvernig sagan varð til;
en „Jörð“ fylgir ýtarlegur eftir-
máli, þar sem sér í lagi er rak-
inn aðdragandinn að „Svart-
fugli“, en einnig minnzt á, hvern
ig sögurnar „Fóstbræður“, „Sæl-
ir eru einfaldir" og „Jörð“ urðu
til.
„Jón Arason“ er 434 blaðsíður
að stærð, en „Jörð“ 297 blaðsíð-
ur. Er það margra manna mál,
að af sögulegum skáldsögum
Gunnars Gunnarssonar komi
„Jörð“ næst „Svartfugli", dæmd
frá bókmenntalegu sjónarmiði.
hafa komið til mín, kveikt bros
í huganum þegar ég hefi gengið
á sögustöðunum, þar sem þær
hafa gerzt. Hafa þær þá komið
mér til gamans og til yndis, þeg-
ar andinn sveif yfir orðna hluti
og leitaði að því, sem urðu undir-
stöður lífsins, skoðananna, lynd-
iseinkunarinnar og skapgerðar-
innar.
Frá hesiinum lil
flugvélarinnar.
Það hefði verið hægt að skrifa
heilar bækur um nokkur tímabil,
sem ég aðeins stikla á hér, en
sem takmarkast í þessari bók við
þann litla heim, er ég lifði í á ís
landi þá.
Er það vissa mín að margir
mér meiri fræðimenn og rithöf-
undar muni finna efni sín og
skrifa ýtarlega um þetta tíma-
bil — þegar ísland hélt hér uppi
menningu í þúsund ára einangr-
un og tók svo — stökk inn í nú-
tímann, frá hestinum til flugvél-
arinnar — sem eru einhver
mestu átök og breytingar, á
stuttum tíma, sem nokkur þjpð
hefir tekið.
Mér hefir fundist það eitt hið
mesta hnoss, að þekkja bæði
þessi tímabil, — einnig hið ein-
angraða og símalausa fsland —
reikna ég það mitt Gullaldar-
tímabil. —
Góður íslendingur.
Fyrsta bindið nær yfir endur-
minningar Eggerts frá Reykja-
vík 1890—1910, frá Hull og
Kaupmannahöfn 1910—’15 Stokk
hólmi 1915—’19, London 1919—
20 og Mílanó 1920—’21. Margir
frægir menn koma hér við sögu,
eins og Jóhann Sigurjónsson og
Guðmundur Kamban á Hafnar-
árum Eggerts.
Yfirlitið hér að framan sýnir,
að Eggert hefir víða farið og
margt kannað, en það hefir ekki
veikt íslendingseðli hans, heldur
eflt það og styrkt. Á því hafa
hvorki erlend áhrif né tómlæti
landa hans getað unnið. Það eitt
væri ærin ástæða til þess, að
endurminningar Eggerts hlytu
miklar vinsældir, En því til við-
bótar kemur svo, að þessi víð-
förli og fjölfróði íslendingur er
sérstæður og hugmyndaríkur rit
höfundur, er lætur það eitt, sem
er fagurt og göfugt, frá sér fara.
ísafoldarprentsmiðja hefir séð
um útgáfuna og gert það af mik-
illi snyrtimennsku og myndar-
brag.
—TÍMINN, 31. okt.
Einkarjettindi:
Prófessor:- „Eruð þér kennari
í þessum bekk, ungi maður?“
Stúdent: „Nei.“
Prófessor: „Talið þér þá ekki
eins og asni“.
☆
Tvær ungur manneskjur geng
u eftir skógarstig. Tunglið skein
í heiði.
Hún: „Hvað veistu um hann?
Hann er dauður.“
Hún: „Já, það er það, sem ég
veit.“
Skemtilegt
silfurbrúðkaup
Að kvöldi hins 28. nóv. var
haldinn hér í Vancouver, B.C.
allmikill mannfagnaður í tilefni
af því, að þá höfðu þau hjónin
Carl byggingameistari Finn-
bogason og María kona hans
verið gift í 25 ár. Eða að réttu
25 ár og viku betur, því að vegna
ófyrirsjáanlegra atvika, varð
eigi komið við að hafa samsætið
fyr. Á að giska 140 samkvæmis-
gestir voru þar, auk fjölskyld-
unnar og tengdabarna þeirra
hjóna. Samsætinu stjórnaði
Guðm. F. Gíslason og gegndi
hann hlutverki sínu með hinum
alkunna skörungskap og lipurð.
Hafði Sig. (Sam) múrari Torfa-
son safnað að sér góðri hljóm-
sveit, og lék Miss Sigurbjörg
Stefánsson (Kaldbak) giftingar-
marsinn. Þá bauð samkvæmis-
stjóri alla velkomna og bað sam-
kvæmisgesti að syngja: „Hvað
er svo glatt“. Þar næst ávarp-
aði hann silfurbrúðhjónin, en
e i n k u m brúðgumann með
snjöllu erindi, en Carl er sem
kunnugt er vinmargur og hefir
verið athafnasamur hér sem
austur frá, einkum í bygginga-
list og fleiru.
Þá flutti Mrs. Lanigan (hún
er íslenzk) fallegt ávarp til silf-
urbrúðarinnar.
Nokkrir aðrir tóku til máls,
þar á meðal Einar Haralds, og
sá er þetta ritar, mælti nokkur
orð og flutti þeim stutt kvæði.
Næst las forseti upp heillaóska
skeyti, er borizt höfðu frá vin-
um í Winnipeg, ásamt gjöfum,
þar á meðal Mrs. Jóh. Th. Beck,
Pálssons og Vigfússon á Bever-
ley, Steve og Toby Johnson, og
bræðrum og mágafólki Maríu og
fleirum.
Á samkomunni voru einnig
stödd Mr. og Mrs. Burch frá
Wpg., er færðu þeim heillaóska-
skeyti og gjöf. Þá afhenti for-
seti þeim frá samkvæmisgestum
að gjöf fallegt „Silverplated"
borð-sett, og frá börnum þeirra
mjög fallega klukku í vandaðri
skipsumgjörð. Næst töluðu silf-
urbrúðhjónin og þökkuðu öll
vinahót og gjafir, og sagðist Carl
virða það við þá, er mælt hefðu
til sín, einkum samkvæmis-
stjóra, að hann hefði ekki ver-
ið um of lotulangur og ausið á
sig oflofi, eins og oft ætti sér
stað. Var gerður góður rómur
að máli hans. Þá voru bornar
fram ágætar veitingar, og er ó-
þarfi að lýsa risnu íslenzkra
kvenna.
Næst tók hljómsveitin til
starfa og var dans stiginn til kl.
eitt um nóttina. Virtust allir
skemta sér hið bezta, og hygg ég,
að öllum hafi þótt betur komið
en heima setið.
Vancouver, B.C. þ. 2. des. 1950
G. Slefánsson.
Minnist
BETEL
Jóla og Nýársgjöfum yðar
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business Traimnglmmediately
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21804
695 SARGENT AVT. WINNIPEG