Lögberg - 15.02.1951, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. FEBRÚAR, 1951
5
Ati K4HVI
rVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
KONUR RÆNDAR HEIMILISHAMINGJUNNI
Nýlega birtist í þessum dálk-
um grein eftir Mrs. Elinor
Roosevelt, er fjallaði um hina
miklu breytingu, sem hefir orð-
ið á stöðu konunnar í þjóðfé-
laginu á síðustu áratugum. Eng-
inn efi er á því að nauðsyn var
á miklum umbótum — að það
var kominn tími til, að konur
ættu kost á meiri mentun og
auknum mannréttindum. Hins
vegar virðist nú svo komið, að
þessi kvenfrelsishreyfing sé að
fara út í öfgar —- að vopnið sé að
snúast í höndum kvenna og
svifti þær mörgum þeim hlunn-
indum og réttindum er þær
hafa, sem konur, notið frá alda
öðli. I kapphlaupinu við karl-
mennina um atvinnu og stöður
— vegna löngunar til að sýna
þeim, að þær séu jafnokar
þeirra á öllum sviðum, virðast
margar hverjar hafa gleymt
þeirri staðreynd, að konur eru
ekki karlar. í>að virðist sem
þær hafi mist sjónar á því, að
þeim hafi verið áskapaður
verkahringur, er þær einar geta
rækt, sem eiginkonur, húsmæð-
ur og andlegir leiðtogar barna
sinna.
Það er hverri heilbrigðri konu
eðlilegt að vilja fram yfir alla
hluti, giftast, eignast heimili og
afkvæmi. Það er henni og eðli-
legt, eins og öllum mæðrum í
dýraríkinu, að hlynna sjálf að
afkvæmum sínum og ala þau
upp þar til þau eru sjálfbjarga.
Öllum uppeldisfræðingum kem-
ur og saman um, að börnin
þarfnist ástríkis og umönnunar
móðurinnar og að hún hafi bezta
aðstöðu allra til að móta skap-
gerð þeirra.
En eftirsóknin eftir hinu svo
kallaða „frelsi“ er orðin svo mik-
ú að fjöldi kvenna varpar frá
sér þeim „réttindum“ að ala
sjálfar upp börnin sín í þeim
tilgangi, að taka að sér stöðu
utan heimilisins. Vitaskuld eru
því miður margar mæður þann-
ig staddar, að þær eru nauð-
öeygðar efnahagsins vegna, að
ganga út í vinnu. Kvenfrelsis
konur ættu fremur að beita sér
fyrir því, að sem flestar konur
fái »frelsi“ til að sinna sínum
asköpuðu verkefnum innan
hoimilisveggjanna, heldur en að
e§gja þær á að skilja að miklu
leyti við heimilið til að taka
að sér stöðu utan þess.
Kommúnistar hafa algerlega
svift konuna frelsi sínu — rétt-
mdum hennar sem húsmóður og
uppfræðara barna sinna, og eins
eg vænta mátti af þeim, gera
þeir það undir því yfirskyni að
Þeir séu að veita henni aukið
frelsi. Kvenfrelsishreyfinguna,
sem var réttmæt að vissu tak-
juarki, hafa þeir tekið í sína
Pjónustu og ranghverft henni
Pannig að hún er orðin refsi-
vöndur á kvenþjóðina. Með sí-
feldum áróðri reyna þeir að telja
°num trú um, að verksvið kon-
unnar innan heimilisins sé lítils
virði og mannskemmandi. Þessu
fil sönnunar fer hér á eftir kafli
úr grein, sem birtist í kommún-
istablaði, um stöðu konunnar á
Eússlandi:
„Maðurinn hefir ékki lengur
húsbóndarétt yfir konunni. Hún
er nú jafnrétthár aðili. Lenin
skildist að það var nauðsynlegt,
að konan tæki þátt í almennum
framleiðslustörfum ef hún ætti
að geta notið jafnréttis. Til þess
þurfti að koma upp fjölda mörg-
Um opinberum stofnunum, svo
sem veitingahúsum, vöggustof-
um, dagheimilum o. s. frv., til
þess að losa konurnar við heim-
ilisstörfin.
Þrátt fyrir öll lög til frelsun-
ar konunni heldur hún áfram
að vera heimilisþræll af því að
lítilsvirt húsverk krækla, bækla,
heimska og lítillækka hana,
binda hana við eldhúsið og
barnaherbergið og eyða kröftum
hennar í smánarlega óarðbæran,
leiðinlegan, taugaveiklandi og
andlega niðurdrepandi þræl-
dóm.
Því hefir verið settur á stofn
mikill fjöldi opinberra stofnana
um öll Sovétríkin, svo sem
þvottahús, vöggustofur, dag-
heimili o. s. frv. Þannig hefir
konan í Sovétríkjunum verið
losuð við heimilisstörfin til þess
að hún geti tekið þátt í fram-
leiðslunni og öðrum opinberum
störfum (sjötti hver meðlimur
æðstaráðsins er kona). Þannig
eru fyrir hendi í samskiptum
kvenna og karla hin nauðsyn-
legustu skilyrði til myndunar
fjölskyldu sem byggir á félags-
skap, virðingu og frelsi kon-
unnar. Konan nýtur, eins og
áður segir, fullkomins jafnréttis
á við manninn. Fær sömu laun
og hann fyrir sömu vinnu og
hefir því t. d. sömu möguleika
til mentunar. Ríkið verndar
réttindi mæðra og barna, og
samkvæmt lögum er refsivert
að neita konu um vinnu vegna
þess að hún sé kona, og einnig
er refsivert að segja konu upp
vinnu vegna þess að hún eigi
von á barni. Hún á rétt á fríi í
fimm vikur fyrir og fjórar vik-
ur eftir barnsburð. Hún má
ekki vinna eftirvinnu eða nætur-
vinnu og ef þörf krefur verður
að láta hana fá léttari vinnu um
meðgöngutímann. Þannig er tek-
ið fullt tillit til sérstöðu konunn-
ar sem móður“.
Þessi greinarkafli lýsir skýrt
hinni takmarkalausu fyrirlitn-
ingu, sem kommúnistar hafa
fyrir konunni og hlutverki því,
sem henni er áskapað og hún
hefir ávalt leyst af hendi. í stað
þess að hún fái að skapa fallegt
og notalegt heimili fyrir sig og
fjölskyldu sína, í stað þess að
hún njóti samvista barna sinna
daglega, er hún nú nauðbeygð
til þess að takast á hendur störf
utan heimilis jafnt á við karl-
menn. Henni er engin miskun
sýnd þótt hún sé líkamlega
þróttminni en karlmaðurinn. —
Hún vinnur í kolanámum, sópar
strætin og mokar skurði. Þegar
erlend skip hafa komið í rúss-
neskar hafnir, hefir sjómönnum
fundist það furðulegt að sjá kon-
ur vinna við * uppskipun, og
undrast þá fúlmensku, er leggur
konum slíka stritvinnu á herðar.
I fyrrnefndri grein er komm-
únistum hrósað fyrir það, að
þeir gefi konum rétt á fríi í
fimm vikur fyrir og fjórar vikur
eftir barnsburð, og ef þörf kref-
ur verði að láta þær fá léttari
vinnu um meðgöngutímann. —
Þetta eru nú meiri hlunnindin!
í stað heimilisins eru veitinga-
húsin, vöggustofurnar, dagheim-
ilin og aðrar slíkar opinberar
stofnanir, og til alls þessa hefir
verið stofnað af „virðingu fyrir
frelsi konunnar“ segja stjórnar-
völdin, en ekki svo sem til að
notfæra sér vinnuorku kvenna
við hina miklu vopnaframleiðslu
og stríðsundirbúning þar í
landi! Þannig hafa konur í
kommúnistaríkjunum v e r i ð
rændar heimilishamingju sinni.
Þegar konur í lýðræðisríkjun-
um gera sér fyllilega grein fyr-
ir því hve systur þeirra í komm-
únistalöndunum hafa verið stór-
kostlega blektar með ímynduðu
frelsi, munu þær gera tilraun
til að stöðva hinn óheillavænlega
flótta kvenna hér, frá heimilum
sínum, og standa vörð um þau
réttindi, sem konan hefir notið
í aldaraðir, sem eiginkona, hús-
móðir og uppfræðari barna
sinna.
British Designer Creates
"Museum Piece"
A new Museum of Costume
being formed in London in time
for the 1951 Festival of Britain
will contain a model evening
gown designed to represent
modern fashions.
Our picture shows an “after
dai'k” gown which is destined to
become a “museum piece” for
future generations to admire.
The gown, designed by Victor
Stiebel, at Jacqmar, London, is
to be given tö the new Museum
of Costume, due to be opened in
London in 1951, in time for the
Festival of Britain. The fitted
black bodice of the gown has a
rounded yoke cut high at the
neck and heavily embroidered
with bronze and jet beads. The
spiral skirt is in cigar-coloured
crepe, which is swathed at the
waist and ends in a wide sash-
scarf; this can be worn round
the shoulders as an attractive
alternative.
Séra Sigurbjörn Á. Gíslason 75 éra
Amœhsgrein pcssi er birt að tilmœlum Dr. Rúnólfs Marteinssonar og
ýmsra annara vina séra tUgurbjöms Á. Gíslasonar. Scra Sigurbjörn er
mikilhœfur maður og hcfir mjög komið við sögu islcnzku pjóðarinnar
mcð fjölpœttu starfi sínu; hann heimsótti oss Vestur-tslendinga fyrir
mörgum árum og eignaðist mikinn fjölda vina. —Ritstj.
SEEDTIME
. CtAtcC *
HARVEST
By
Dr. F. J. Greaney
Director,
Line Elevators Farm Service,
Winnipeg, Manitoba.
The New Stem Rusi Invasion
(The Red Raider Raids Again!)
Stem rust of wheat, known
to the older farmers of Western
Canada as “The Red Raider” or
“The Red Peril” is on the march
again. In 1950, after it had been
under practical control for more
than 10 years, stem rust invaded
the fields of North Dakota,
South Dakota and Minnesota,
and stole at least 8 million
bushels of wheat from the
farmers of North Dakota alone.
The Cause. Why all this alarm
about stem raust? Well, in 1950,
for the first time, a new kind
or race of stem rust, identified
by plant pathologists as Race
15B, became widespread and
prevalent throughout the “one
giant wheat field” that extends
from Mexico to Canada. Race
15B is the most virulent
(vicious) race of stem rust ever
found in North America. It can
attack and destroy all of the
varieties of common wheat and
durum wheat now commonly
grown in Canada and the United
States. The varieties Thatcher,
Regent, Apex and Redman,
cannot withstand the wither-
ing and killing effects of Race
15B.
The Problem. The immediate
problem is that of developing
a variety of wheat that will
stand up against Race 15B of
stem rust. If western grain
growers are to be protected
from the scourge of rust, it is
imperative that our plant
scientists be given the neces-
sary tools to do the job—more
money for fundamental re-
search, more trained help, more
greenhouses and more land. In
plain words, increased approp-
riations for rust research.
A Responsibility. It is up to
Séra Sigurbjórn er af Ásgeirs-
brekkuætt. •— Faðir hans var
ágætur búhöldur, Gísli í Neðra-
Ási í Hjaltadal. Faðir Gísla var
Sigurður á Miðgrund, en móðir
hans Sigríður Þorláksdóttir
bónda á Hólum í Hjaltadal
Höskuldssonar. Pétur á Una-
stöðum, afi sr. Friðriks Frið-
rikssonar dr. theol., og Sigríður
voru systkin. Eitt þeirra syst-
kina var Þorbjörg, kona Stefáns
í Keflavík, móðir Stefáns á
Heiði, föður Stefáns skólameist-
ara og þeirra systkina. — En
bróðir Gísla í Ási var Guð-
mundur í Ytra-Vallholti, faðir
hinna kunnu Vallholtsbræðra.
Fæddur er sr. Sigurbjörn í
Glæsibæ í Víkurtorfu á nýárs-
dag 1876. — Móðir hans var.
Kristín Björnsdóttir bónda á
Syðri-Brekkum Ingimundarson-
ar bónda á Miklahóli Þorgríms-
sonar. Þeir voru systrasynir
þeir Sviðningsbræður og sr.
Sigurbjörn. Kristín í Ási var
mikilhæf kona.
Neðri-Ás er mikil jörð, hæst
metin jarða í Hólahreppi 1861
næst Hólastað. Það var að Ási,
sem Þorvarður Spak-Böðvars-
son lét reisa kirkju, án efa hina
fyrstu, sem smíðuð var hér á
landi eftir það að kristniboð
hófst hér (árið 984). — Og þarna
'var Sigurbjörn alinn upp.
Séra Sigurbjörn lærði undir
skóla hjá Zophoníasi prófasti
Halldórssyni í Viðvík. — Það
voru hæg heimatökin, örstutt
milli Áss og Viðvíkur. Læri-
sveinninn var samboðinn kenn-
aranum. Sr. Z. H. var afbragðs
kennari og S. Á. G. námsgarp-
ur mikill. Lauk hann inntöku-
prófi til 1. bekkjar Lærðaskól-
ans vorið 1891, en stúdent varð
hann vorið 1897 með mjög hárri
I. einkunn. Hann var hinn þriðji
í röð af 20, hlaut 103 stig. —
Fyrir ofan hann voru Jón Þor-
láksson, síðar landverkfræðing-
ur, og Sigurjón Jónsson, síðar
læknir, en þeir hlutu báðir á-
gætiseinkunn.
Sigurbjörn lauk guðfræði-
prófi með hárri I. einkunn úr
Prestaskólanum vorið 1900. —
Upp úr því dvaldist hann á ann-
að ár í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð til náms, og varð hann
fyrir sterkum áhrifum af heima-
trúboðsstefnunni í Danmörku í
þessari ferð.
Á fyrsta ári hinnar 20. aldar
hóf Sigurbjörn Irúboð hér á
landi, ferðaðist víða og hélt sam-
komur. Var þá dauft yfir trúar-
og kirkjulífi hér á landi. Vant-
aði ekki að deilt væri allhart á
Sigurbjörn á þessum árum, því
að vantrúin óð uppi og hin
tízkubundna, ' frjálslynda guð-
fræði undi illa kenningum Sig-
urbjarnar. En ekki lét hann,
hvorki þá né síðar, aðkast á sig
fá.
Það er skemmst frá að segja,
að sr. Sigurbjörn hefir síðast-
liðna hálfa öld verið einn af á-
hugamestu foringjum evan-
gelisk-lúterskrar Guðs kristni á
íslandi. Nærfellt 30 ár ferðaðist
hann um landið í trúboðserind-
um, ritaði kynstrin öll um krist'
indóms-, siðgæðis- og mannúð-
armál, en hann lét ekki siija við
orðin ióm. Athafnir fylgdu orð-
um. — Þau félög, sem sr. Sigur-
björn hefir einkum unnið fyrir,
eru K.F.U.M. og K., Kristniboðs-
félagið, Góðtemplarareglan og
ýmis líknarfélög.
Það sem heldur nafni hans
lengst á lofti býst ég við að verði
elliheimilið Grund í Reykjavík,
hin mikla stofnun, sem risin er
upp úr „Samverjanum“, er var
matarfélag handa nauðstöddum.
Var séra Sigurbjörn formaður
þess félags, og íærði það síðan
út kvíarnar jafnt og þétt og er
orðið að Elliheimilinu. Margir
góðir menn hafa staðið að þeirri
stofnun, en ég held, að ég segi
ekki of mikið, þó að ég fullyrði,
að án forustu og hygginda sr.
Sigurbjarnar hefði þeirri stofn-
un ekki vaxið svo fiskur um
hrygg, sem raun ber nú vitni
um.
Formaður sóknarnefndar Dóm
kirkjusafnaðarins hefir hann
verið um aldarþriðjung, Sjó-
mannastofu Reykjavíkur um 8
ár og sunnudagaskólanefndar
þjóðkirkjunnar frá 1943. I fram-
kvæmdanefnd Stórstúku ís-
lands átti hann sæti 1914—1915
og 1926—1927. Mér var mikil á-
nægja að vinna með honum í
Stórstúkunni á sinni tíð, og enn
í dag hefir hann brennandi á-
huga á málum Reglunnar. Um
30 ár var hann í ritnefnd og rit-
stjóri „Bjarma“ og nú síðustu
árin formaður almennra kirkju-
funda.
Ekki varð Sigurbirni auðsótt
kosning til prestsþjónustu. Var
sífellt hamrað á því, að hann
væri þröngsýnn í trúmálum og
þar fram eftir götunum. — En
honum varð þetta og allri þjóð-
inni líklega til góðs. Með því að
vera heimilisfastur í höfuðstaðn
um fékk hann víðara verksvið
en ef hann hefði verið prestur
í dreifbýlinu. En honum opnuð-
ust þegar á unga aldri „víðar
dyr og verkmiklar“, og enn í
dag er verksviðið vítt og mikið.
Flettið upp Guðfræðingatalinu
og sjáið langa listann um rit-
verk hans og hin margháttuðu
trúnaðarstörf.
Sr. Sigurbjörn var kennari í
Vélstjóraskólanum nær 30 ár og
víðar í reikningi og stærðfræði.
Hann samdi kennslubók í reikn-
ingi, og glöggur skólamaður hef-
ir sagt mér, að hún væri bezl
allra þeirra reikningskennslu-
bóka, sem hann þekkti. Mér er
sagt, að sr. S. Á. G. hafi verið
afbragðs kennari.
Prestsvígslu tók hann 23. óg.
1942,, ráðinn til prestsþjónustu
við Elliheimilið. Var hann þá 66
ára gamall. Hygg ég hann elztan
íslendinga, er tekið hafa prests-
vígslu. Mun herra biskupinn
hafa viljað veita Sigurbirm
verðuga viðurkenningu fyrir
hin fjölþættu störf hans í þjón-
ustu kirkjunnar með vígslunni.
Eftir heimsstyrjöldina síðari
vann sr. Sigurbjörn að líknar-
málum í Noregi og Finnlandi.
Hann er maður víðförull, hefir
mörgum sinnum farið utan,
mætt á fjölda þinga í útlöndum
og kynnt sér starf og starfsað-
ferðir erlendis á vettvangi krist-
indómsins, líknarmála og sið-
gæðis.
Sr. Sigurbjörn var kvæntur
Guðrúnu Lárusdóttur, alþm. og
bæjarfulltrúa, stórmerkri gáfu-
og gæðakonu og rithöfundi.
Voru þau samherjar í þess orðs
fyllstu og beztu merkingu. Hús
þeirra í Reykjavík, er hann
nefndi ÁS eftir æskuheimili
sínu í Hjaltadalnum, var sann-
kallað andlegt höfuðból í ís-
lenzku þjóðlífi. ÁS, það orð var
oft notað eins og stefnuskrá, eins
og þjóðlífsstefna.
Sr. Sigurbjörn Á. Gíslason
hefir verið umsvifamikill í ís-
lenzku þjóðlífi. Hans dagsverk
er mikið orðið og gott.
Árnum vér hinum skagfirska
merkismanni alls góðs farnaðar
hálfáttræðum.
Brynleifur Tobíasson
—Mbl. 21. des
JUMBO KAL
Stærsta kál, sem þekkist 30 og
Jatnvel 40 pund. OviSJafnalegt viC
margskonar borðhald. Ánægjulegt
a6 sjá þennan griðar ávöxt þrosk-
ast, Sala Jumbo Káls t fyrra settl
algerlegt met. (Pk. lOc) (eCa 80c)
pöst frttt.
the farmers, the grain merc-
hants, the business men and
the people of Western Canada
to see to it that the necessary
financial support is forthcom-
ing. Up to the present, Canadian
plant scientists have fought a
winning battle against rust. But
a new invasion threatens! Given
adequate financial support and
time they can, and will, control
stem rust.
EATON'a ny)Q
VOR- OG SUMAR ’l
VERÐSKRÁ
Til taks að búa yður
undir hlýrri mánuði framundan
Verðskrá ókeypis gegn beiðni
^T. EATON C?,™
WINNIPEG CANADA