Lögberg - 01.03.1951, Blaðsíða 2

Lögberg - 01.03.1951, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. MARZ, 1951 Nákvæmt eftirrit af allri guðspjallabók Ólafs Hjaltasonar fundið Handril af þýðingu Jóns biskups Vídalíns af Nýja Testamentinu komið í leilirnar. — Rætt við Mganús Má Lárusson prófessor. Þótt íslenzku handritin séu geymd og grafin í Kaupmanna- höfn og öðrum söfnum ýmissa borga í álfunni, eru hér á landi nokkrir íslenzkir fræðimenn, sem vinna af kappi að rannsókn íslenzkra handrita og njóta til þess lána á handritum og Ijósmyndum af handritum úr erlendum söfnum. Einn þeirra manna, er ötullega vinnur á þessum vettvangi við hinar erfiðu aðstæður, er Magnús Már Lárusson prófessor, og á hann þegar á margan hátt merki- legum árangri að fagna. Tíðindamaður Tímans hitti Magnús að máli í gær og ræddi lítið eitt við hann um þessar rannsóknir" hans og fékk hjá honum nokkrar upplýsingar um árangur starfsins. Yfirlitsrannsóknir um biblíuþýðingar. Völlur sá, sem Magnús hefir haslað sér á þessum vettvangi um sinn, er að gera allsherjar yfirlit um biblíuþýðingar hér á landi og samanburð á þeim. Hef- ir það rannsóknarefni legið að mestu í láginni síðan Hannes Finnsson, biskup, safnaði orða- mun þeirra og samdi um mikið rit, sem geymt er í handriti. Til rannsókna sinna hefir Magnús fengið handrit og ljós- myndir þeirra úr söfnum í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Bretlandi og alla leið sunnan frá Vín. Guðspjallabók Ólafs Hjaltasonar. Meðal þeirra handrita, sem Magnúsi hafa borizt í hendur, er kálfsskinnshandrit, er geym- ir nákvæmt og mjög vel gert eftirrit af Guðspjallabók Ólafs Hjaltasonar, fyrsta lúterska biskupsins á Hólum. Guðspjalla bók Ólafs var gefin út á Hólum 1562, að því er margir telja, en getur þó hafa verið litlu síðar. Öll eintök þessarar útgáfu voru glötuð nema eitt, sem var í eigu PUBLIC NOTICE AUCTION SALES of SCHOOL LANDS PUBLIC NOTICE is hereby given that certain School Lands in the Province of Manitoba will be offered for sale by PUBLIC AUCTION at the places and on the dates here- after mentioned: TEULON—March 20, 1951 76 parcels. VITA—March 29, 1951— 90 parcels. STEINBACH — March 31, 1951—66 parcels. MANITOU—April 4, 1951 —55 parcels. BOISSEVAIN — April 6, 1951—67 parcels. VIRDEN—April 9, 1951— 89 parcels. SHOAL LAKE—April 11, 1951—100 parcels. GLADSTONE — April 13, 1951—112 parcels. * Lists of Lands, reserve price, terms and conditions of sale may be secured on application to the Lands Branch, Depart- ment of Mines and Natural Resources, Room 18, 469 Broad- way Ave., Winnipeg. Dated at Winnipeg, in Mani- toba, this 12th day of February, A.D. 1951. R. W. GYLES, Director of Lands. Harboes og komst þaðan í kon- unglegu bókhlöðuna í Höfn. 1 það eintak vantaði þó átta blöð í miðja bókina og niðurlag hennar. Eftir þessu eintaki, er var tal- ið það eina, sem til værij var gefin út ljósprentuð útgáfa 1933. Kálfskinnshandril í Sfokkhólmi. Kálfsskinnshandrit það, sem Magnúsi barst í hendur, var í safni í Stokkhólmi og hefir ver- ið komið þangað 1693. Þessi kálfsskinnsbók hefir upphaflega verið kaþólsk guðsorðabók, skreytt upphafsstöfum af mik- illi list. Síðan hefir meginmálið verið skafið af blaðsíðunum og eftirrit guðspjallabókarinnar verið skráð í staðinn. Skraut- stafirnir á spássíunum standa þó enn. Bókin er því „uppskafning- ur“ eins og menn kalla slík handrit. Þarna er að finna Guðspjalla- bókina í heilu lagi og kemur í ljós, að niðurlag það, sem vant- aði, er tvö blöð. Höfum . við þannig fengið í heilu lagi þetta merka rit. Biblíuþýðing Jóns Vídalíns. Það hefir verið vitað eftir ýmsum heimildum, að Jón bisk- up Vídalín þýddi Nýja Testa- mentið á íslenzku, en sú þýðing virtist alveg glötuð nema Páls- bréfin. Handritið hafði verið í eigu Árna Magnússonar en talið að það hefði brunnið ásamt öðr- um handritum 1728. Nú hefir Magnús fengið í hendur handrit að Nýja Testamentinu úr Kon ungsbókhlöðu í Kaupmanna höfn, og við rithandar- og papp- írssamanburð við handrit Páls- bréfanna hér heima, kemur í ljós, að hér er um að ræða hrein- skrift af Nýja Testamentisþýð- ingu Jóns Vídalíns. í þýðingu sinni hefir Jón stuðzt við þýðingu Páls frænda síns Bjarnasonar í Selárdal. Nýja Testamentisþýðing Jóns Vídalíns, sem talin var glötuð INFLÚENSAN KOMIN TIL LANDSINS: Helmingur Norðfjarðarbúa sjúkur Tíu sjúkir á Keflavíkurflugvelli, þar sem veikinnar varð fyrst vart á fimmtudaginn. Inflúensan, sem geisað hefir í nágrannalöndunum, er komin til Neskaupstaðar, og hafa á annað hundrað inflú- ensusjúklingar verið skráðir, en læknirinn þar telur, að meira en helmingur bæjarbúa sé þegar búinn að fá veik- ina eða snert af henni, þótt læknis hafi ekki verið vitjað. 1 fyrradag kom veikin upp á Keflavíkurflugvelli, og voru tíu orðnir veikir í gærkvöldi. Fyrst vart fyrir jól. Tíðindamaður frá Tímanum átti í gær tal við Pál Gíslason lækni í Neskaupstað. — Fórust lækninum orð á þessa leið: — Fyrsta inflúensutilfellið kom hér rétt fyrir jólin, og álít ég að veikin hafi borizt hingað frá Færeyjum með bátum, sem höfðu þar viðkomu. Fyrst fór veikin hægt yfir, og enn hefir hún ekki borizt hér út í sveit- inni eða yfirleitt út fyrir kaup- staðinn. En nú er ég búinn að skrá talsvert á annað hundrað sjúklinga hér í bænum, og svo margir munu ekki hafa vitjað mín af þeim, sem veikzt hafa, að mér þykir sennilegt, að meira en helmingur bæjarbúa sé bú- inn að fá veikina. Þó verður enn ekki séð, að hún sé í rénun, og bætast stundum við tuttugu nýir sjúklingar á dag, þótt auðvitað sé mikill dagamunur á því, hve margar kvaðningar ég fæ. Töluverf af erfiðum lilfellum. Yfirleitt er inflúensan væg, þótt margir fái mikinn hita, og unga fólkið hristir hana af sér fljótlega, en á aldrað fólk leggst hún mun þyngra. Er töluvert af erfiðari tilfellum, og nokkuð um fylgikvilla, einkum lungna- bólgu. En enginn hefir látizt af Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business TraimngImmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21804 695 SARGENT AV *. WINNIPEG völdum inflúensunnar eða fylgi- kvilla hennar. — Kom upp á Keflavíkur- flugvelli í fyrradag. Talið er, að inflúensan hafi borizt á Keflavíkurflugvöll með farþega einum á millilandaflug- vél, sem hafði viðkomu á vell- inum á miðvikudagskvöldv Var einn maður í vélinni veikur af eftirstöðvum inflúensunnar, sem hann hafði legið í heima í Bret- landi, en var samt ekki veikari en það, að hann hélt ferð sinni áfram til Bandaríkjanna á mið- vikudagskvöldið. Daginn eftir eða í fyrradag, varð ljóst, að starfsmenn vallarins voru farnir að taka inflúensuna, og þann dag og í gær fengu 10 manns veikina. Yfirleili heldur væg. Inflúensutilfellin, sem enn hefir orðið vart á Keflavíkur- flugvelli, eru yfirleitt heldur væg. Fólk fær þó háan hita, og búast má við, að flestir verði að liggja rúmfastir eða vera við rúmið í nokkra daga. Af þeim 10, sem tekið höfðu veikina á vellinum síðdegis í gær voru þrír komnir í sjúkra- hús. — Ekki enn orðið vari í Reykjavík. í Reykjavík hefir veikinnar ekki orðið vart, svo að skrif- stofu borgarlæknis sé kunnugt um. En vitaskuld er mjög hætt við því, að hún berist og til fleiri staða á landinu, áður en langt um Kður. TÍMINN, 13. jan. að öðru en Pálsbréfunum, er því komin í leitirnar heil á húfi, og er það hinn mesti fengur: Kem- ur þá einnig í ljós, að Jón hefir notað orðalag þýðingar sinnar í Vídalínspostillu á tilvitnunum. Má því segja, að örlög þessa þýðingarhandrits séu allkynleg. Það týnist sjálft, en mælskuorð Jóns Vídalíns lifði um aldir og flutti hinar gleymdu þýðingar í eyra og hjarta þjóðarinnar, þar sem þær mótuðu guðsorðamál seinni tíma. Gamalt handrit að Davíðssálmum. Meðal þeirra gripa, sem Magn ús Lárusson hefir fengið undir hendur í handritaleit sinni, er ljósmyndaeintak af ágætu hand- riti af Davíðssálmum, sem geymt er í safni í Vín. Þar ,er það komið 1746 — keypt frá Kaupmannahöfn. Handrit þetta er fagurlega ritað á latínu um 1400. Á 16. öld hefir einhver tekið sér fyrir hendur að rita íslenzka þýðingu inn í handrit- ið, og er hún skrifuð smærri skrift milli línanna. Var þetta altítt í Bretlandi á miðöldum, en fátítt hér, og er þetta eina ís- lenzka handritið, sem fundizt hefir af þeirri gerð. Handritið er ekki heilt, fallið bæði aftan og framan af því. Það, sem til er, hefst á 16. Davíðssálmi, 8. versi, og endar á 103. sálmi, 6. versi, eða um tveir þriðju hlutar sálmanna. Magnús Már Lárusson hefir gert nána grein fvrir þýðingu Jóns Vídalíns í grein, sem birt- ist í næsta Skírni, og um hand- ritið að Guðspjallabók Ólafs biskups mun hann rita ýtarlega grein er birtist innan tíðar. Geta þá þeir, sem hug hafa á, kynnt sér þessi mál nánar. Þau litlu dæmi, sem hér hafa verið nefnd um árangur hand- ritarannsókna, sýna, að þar er nó/g óunnið, og íslenzku handrit- in frá öllum öldum verða ekki rannsökuð til neinnar hlítar af öðrum en íslenzkum fræðimönn- um. En meðan þau eru dreifð um mörg lönd, hljóta rannsókn- ir þeirra að verða harla tor- veldt og meira eða minna sund- urlaust brotastarf. Heimkoma íslenzkra handrita er því frum- skilyrði þess að þau verði rann- sökuð svo sem menningarleg skylda býður. —TÍMINN, 18. janúar Fundur áhugamanna um öryggi og landvarnir Áskorun lil ríkissljórnarinnar og fundarsamþykkt um málin. Auðkýfingur nokkur styrkti söfnuð með fjárlögum. Einu sinni sagði hann við prestinn: — Ég kem aldrei í kirkju. Hafið þér tekið eftir því? — Já, ég hefi tekið eftir því, sagði prestur alvarlega. — Ástæðan til þess að ég fer ekki í kirkju er sú, að þar eru svo margir hræsnarar. — Ekki skuluð þér setja það fyrir yður, sagði prestur og brosti nú. Það er alltaf hægt að bæta einum við. Síðastliðinn föstudag var haldinn fundur í Breiðfirð- ingabúð um öryggismál Is- lands. Á fundinum mættu 37 manns, aðllega flugmenn og áhugamenn um flug. Á fundinum var samþykkt og undirrituð áskorun til ríkis- stjórnarinnar þess efnis, að hefja nú þegar aðgerðir í öryggismálunum og fundar- samþykkt gerð í málinu. Áskorunin var á þessa leið.: Vegna hins ískyggilega á- stands, sem ríkir í heiminum, álítum við undirritaðir það ó- eðlilegt, að ísland liggi opið og varnarlaust fyrir ofbeldi og yfir gangi erlendis frá. Við viljum því eindregið bjóða fram þjónustu okkar til varnar landinu, til dæmis með því að mynda flugsveit, er starfaði við hlið þess erlenda hers, er hing- að kann að verða fenginn til varnar landinu frá bandalags- þjóðum okkar 1 Atlantshafs- bandalaginu og erum reiðubún- ir að leggja á okkur þá þjálfun, þær skyldur og þær skuld- bindingar, er af okkur yrði kraf- ist. Virðingarfyllst. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt á fundinum: Eins og kunnugt er hafa Rúss- ar um ára skeið unnið mark- visst að því að koma í veg fyrir að óskir mannkynsins um frið geti ræzt. Hafa þeir lagt undir sig hvert landið á fætur öðru, komið af stað óeirðum og innan- landsstyrjöldum og látið lepp- ríki sín ráðast á friðsamar þjóð- ir, og er árásin á Kóreu síðasta og hryllilegasta dæmið um þessa stefnu. Augljóst er, að með þessari stefnu hyggjast þeir ná heimsyfirráðum. Hafa þeir og notað óspart 5. herdeild sína, kommúnistaflokka hinna ýmsu landa, til þess að hrinda þessu í framkvæmd. Til þess að sporna við þessari þróun hafa lýðræðisþjóðir Vest- ur-Evrópu og Norður-Ameríku stofnað með sér öflugt varnar- bandalag, Atlantshafsbandalag- ið. FESTIVAL OF BRITAIN 1951 This map shows the official Festival centres in England, Scotland and Wales and Northern Ireland. Marking the centenary of the historic Crystal Palace Exhibition of 1851, the Festival will put the whole of the British Isles on show to its own people and to the world, and will be the greatest national event ever conceived. It will mirror the vitality of Great Britain in the fields of Discovery, Exploration, Industry, Transport, Farming, the Home and Sea, Sport, Music and the Arts. Although London will be the focal point, hundreds of towns and villages throughout the land will celebrate in their own traditional way for the five Festival months, May to September 1951, Britain will be at home to the world. Vegna heimsyfirráðastefnu Rússa má búast við að til frið- slita komi og mun ekkert land komast hjá þeim átökum. Vegna legu sinnar er ísland eitt af lang þýðingarmestu lönd- um Atlantshafsbandalagsins, í átökunum milli Austurs og Vesturs, og Rússum brýn nauð- syn að hernema landið. ísland er varnarlaust land og opið fyrir árásum landræningja. Því vill fundur áhugamanna um öryggismál íslands, sem haldinn var þann 12. jan. 1951 í Breið- firðingabúð, eindregið skora á alla sanna Islendinga að hefja nú þegar ötula baráttu fyrir því, að hingað verði fenginn svo öfl- ugur her frá bandalagsþjóðum okkar í Atlantshafsbandalag- inu, að öryggi landsins verði tryggt og að stofnað verði öfl- ugt heimavarnarlið, er starfi við hlið hins erlenda hers til varnar landinu. Fundurinn telur, að beztum árangri verði náð með fundasamþykktum, undirskrifta söfnunum og áskorunum á Al- þingi og ríkisstjórn þess efnis, að hefjast nú þegar handa um framkvæmdir í þessum málum. The Viking Club New Executive At the first meeting of the newly elected executive of The Viking Club, held Thursday night, Mrs. Martha Norlen was elected president for 1951, and S. R. Rodvik vice-president. H. A. Brodahl was re-elected secre- tary for the ninth year, and Mrs. E. J. Hallonquist treasurer for the third term. H. Jacob Hansen becomes immediate past president. Honorary members are: Dr. Richard Beck, professor of Scand. languages and literature, Grand Forks, N.D., Dr. Watson Kirkconnell, president, Acadia University, N.S., Dr. Alfred Klieforth, American consul general, Vancouver, B.C. and Dr. Henry Goddard Leach, president emeritus, American Scand. Foundation, N.Y. At the annual meeting, held last week, at the Empire Hotel, in addition the following were elected to the executive: Arthur A. Anderson, Asgeir Asgeirsson, A. J. Bjornson, Mrs. E. Erick- son, Mrs. A. Gretsinger, W. Jacobsen, Miss A. Klinkenberg, Gudman Levy, Sverre Roed, and Mrs. I. Silvenius. Members of the executive ex- officio are: H. P. A. Herman- son, consul for Sweden, G. L. Johannson, concul for Denmark and Iceland, Carl T. Kummen, consul for Norway, and Dr. C. C. S. Fremming. Elected to the programme committee were: Mrs, E. J. Hallonquist, Gudman Levy, chairman, S. R. Rodvik, Mrs. I. Silvenius, and H. A. Brodahl. The Ninth Annual Viking Ban- quet and Ball has been set for Thursday, March 15th, at 6.30 p.m. in the Marlborough Hotel. Tickets are: $2,10 for dinner and dance, and 75 cents for dance only. They should be reserved early, and may be had from the members of the executive. Greetings an best ’wishes for early recovery, together with flowers, were sent to Ald. E. E. Hallonquist, a former member of the executive, who is still confined to his home.' Rev. V. J. Eylands, minister of The First Lutheran Church, has been secured ast the guest speaker at the banquet.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.