Lögberg - 12.04.1951, Page 3

Lögberg - 12.04.1951, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. APRÍL, 1951 3 VIÐTAL VIÐ Dr. Sigurgeir Sigurðsson biskup nýkominn heim úr Ameríkuför Ejtir SIGURÐ BALDVINSSON póstmeistara í Reykjavík 27. marz (Samið einungis fyrir Lögberg) Biskup íslands hr. Sigurgeir Sigurðsson nýtur, sem kunnugt er, mikilla vinsælda, bæði í heimalandinu og meðal Vestur- íslandinga, og hefir m. a. gerzt forvígismaður Þjóðræknisfé- lagsins hér heima og jafnframt vináttu- og menningartengsla rnilli Islendinga austan hafs og vestan. Og með því að hann er nú nýlega heim kominn úr ferð vestur um haf, þykir rétt að stuðla að því, að íslendingum vestra gefist kostur á að kynn- ast enn hugarþeli biskupsíns að ferðalokum. — Ég leyfi mér því að berja að dyrum á biskups skrifstofunni í fullri vissu um sðlúðlegar viðtökur, eins og æ- tíð má vænta, þar sem biskup- inum er að mæta, enda þótt jafnan eigi mjög annríkt. Ég finn sólarhlýjuna í handtakinu °g vissan um góða úrlausn er- indis míns er fullkomin. — En auðvitað grunar biskupinn ekki að ég sé í blaðamannshugleið- ingum, enda er ég víst ekki þess legur orðinn, og kirkjumál vor víst flestir líklegri til að láta sig varða. Jæja: „En það eru ekki mörg málefni, sem ekki geta varðað kirkjuna“, segir biskup: „Allt, sem hefir góðar verkanir á hug mannanna er kirkjunni til heilla“. Og Ame- n’kuferðin líka? „Já, vissulega“. Viltu þá gera „Lögbergi11 og les- endum þess þann greiða að segja okkur eitthvað frá nýafstaðinni Ameríkuferð þinni? „Já, það er mer sannarlega mikil ánægja. ^ið hjónin lögðum af stað í vesturförina hinn 20. nóv. f. á. með „Dettifossi“. Var för mín aðallega ráðin vegna lasleika er eg hefi kent um skeið og á- formað að ég leitaði til hinnar beimskunnu lækningastofnunar 1 Rochester og nefnd er „Mayo Clinic“. Ferðin með Dettifossi §ekk að óskum, að undantek- lnni lítilsháttar sjóveiki eins og §engur og gerist. Á 9. degi var k°mið til New York. Tók langan lítna að komast að bryggju því follþjónum sóttist seint 'rann- sokn farangurs okkar þessara varhugaverðu gesta. Að vísu slapp ég auðveldlega vegna Vegabréfs míns er utanríkisráðu- neytið lét mér í té. En hafnsögu- n'aðurinn var ræðinn og hafði sitthvað að segja um Kóreu- styrjöld, atomsprengjur og Tru- rnan forseta, allt til dægrastytt- ingar. — Er að bryggju kom ittum við brátt nokkrá íslend- ^Sa s. s. aðalræðismanninn annes Kjartansson. o. fl., sem Pegar voru albúnir að veita okkur góða fyrirgreiðslu. En við nsum að dvelja til morguns n®sta dags á skipinu. Við land- g0ngu daginn eftir átti ég tal Urn íslenzka fiskinn við ame- riskan verkamann, sem auðvit- n vissi engin deili á mér. Spurði fg bann til gamans um hvort Pað væri góður fiskur, sem kæmi þessu skipi. — „ó, þú færð e i betri fisk í heiminum. Hann ^ íslandi‘‘ P’ótti mér gott a heyra þetta um fiskinn okkar. ‘ Dvölduð þið lengi í New iork? Nei, aðeins fáa daga. Við yfir- gafum þá borg og alla hennar josadýrð eftir að hafa litast um ?g n°tið gestrisni margra góðra anda, og komið á fund Sam- o^nuðu þjóðanna í Flushing eadows, og varð mér nú ljós- fra en fyrr hversu mikilvægt i ella Þln§ er- Svo var haldið á- ei is til Rochester. í járnbraut- ar estinni tók ég svartan þjón- s umann tali og hann spurði nvaðan ég væri. Frá íslandi. — “leeland“ hrópaði hann upp í nurunar og meðaumkunar tón, en sýndi mér þó mikla ástúð og vinsemd í þjónustu sinni. 1 Chicago hitti ég vin minn Dr. Árna Helgason. Dvöldum við næturlangt á heimili hans, en héldum síðan til Minneapolis. Hittum þar þegar góða vini Valdimar Björnsson og Gunnar föður hans. Dvöldum við tvo daga á heimili Valdimars og konu hans Guðrúnar Jónsdótt- ur. Þá komum við og á heimili Hjálmars Björnssonar. Þarna kyntumst við ágætri starfsemi þeirra feðga og komum m. a. á fund í líknarfélagi íslenzkra kvenna. Hjálmar starfar m. a. mikið fyrir lútersku kirkjuna í Minneapolis. Trúarlífið er þar í miklum blóma. — Valdimar Björnsson vinnur mikið og merkilegt kynningarstarf fynr Island. 1 Rochester er unnið mikið og merkilegt starf á sviði lækna- vísinda og lækninga. 1 „Mayo Clinic“ starfa óteljandi deildir, sem rannsaka líkamann og starf líffæranna með hinum fullkomn- ustu tækjum. Rannsóknirnar eru á margan hátt erfiðar fyrir þá sem í gegnum þær ganga. S.l. ár komu þangað 200.000 manns til þess að láta rannsaka heilsu- far sitt. Nokkrir íslenzkir lækn- ar hafa dvalið við „Mayo Clinic“. — Er ég hafði gegnum gengið heilsufarsrannsókn í Rochester héldum við áleiðis til Winnipeg, þangað vissi ég að við vorum velkomnir gestir. Á leiðinni fór- um við um Grand Forks, þar sem hinn ágæti íslendingur og sí- vakandi áhugamaður prófessor Richard Beck starfar. Viðtökur þeirra hjóna voru með ágætum og ber heimili þeirra fallegan íslenzkan svip. I Winnipeg var góðum vinum að mæta þó komið væri nær miðnætti. Biðu okkar þar á stöð- inni m. a. Séra Valdimar Ey- lands, Grettir Jóhannsson, Einar Páll Jónsson og konur þeirra, séra Philip Pétursson og Guð- mundur Jónasson. Dvölin í Win- nipeg var hin ánægjulegasta þar ríkir æ mikill áhugi hjá Islend- ingum fyrir velferðarmálum ís- lands. — Ég ræddi þar við flesta aðalmenn Þjóðræknisfélagsins um samstarf í framtíðinni. For- seti er séra Philip Pétursson. Þá átti ég og tal við ýmsa um ís- lenzka kennarastólinn við Mani- tobaháskólann. Hafa þegar safn- ast um 155 þúsund dollarar til styrktar því fremdarmálefni og hóf Ásmundur P. Jóhannsson þá söfnun með þvi að gefa sjálf- ur 50 þúsund dollara. — Hvað ætli verði gert af hálfu íslands í þessu mikilsverða mál- efni? Ekki verður um það sagt með fullvissu en væntanlega hjálpar Alþingi íslendinga eitthvað til, og minna mætti ekki vera en að sýnd sé þökk og virðing af hálfu íslands. — Vestur-íslenzku blöðin munu hafa getið allrækilega um ferða- lag ykkar hjónanna, dvölina í Winnipeg o. s. frv.? Já, það hafa þau gert með mikilli vinsemd, sem vænta mátti af þeim eins og Vestur- íslendingum yfirleitt, og yrði af langt mál að rekja alla þá góðu fyrirgreiðslu, ástúð og um- hyggju, sem við hjónin mættum og nutum alls staðar þar sem við hittum landa fyrir. Ég veit að þú gætir frá mörgu sagt, sem fróðlegt og skemti- legt væri að heyra en hér yrði of langt mál. Já, vera má, en ég hefi ákveð- ið að rita niður helztu atriði um vesturförina og e. t. v. flyt ég þær ferðaminningar í ríkis- útvarpinu. Eigi að síður væri mér kært að heyra nokkur aðalatriði um ferðina. Þið hjónin fóruð lengra en til Winnipeg, að ég hefi heyrt sagt. Já, við konmm m. a. til Gimli, þar er hið prýðilega elliheimili, þar sem allt er gert til þess að láta fólkinu líða vel í ellinni. Árni Helgason í Chicago bauð okkur hjónunum með sér suður að Mexicoflóa á milli jóla og nýárs. Lögðum við af stað 2. jóladag frá Winnipeg í 35 stiga frosti á Celcius. En svo smá- hlýnaði þegar sunnar dró og þegar til New Orleans kom var þar 16 stiga hiti. — í Gulfport vorum við í kirkju og hlýddum lúterskri messu hjá séra Eric P. Know- block. Gat hann þess að lokinni stólræðu að íslendingar væru í kirkju hjá sér í fyrsta skipti og bað okkur góðra heilla. — Við komum aftur til Chicago 5. janú- ar þ. á. Þá hitti ég prestinn Dr. Bradley, var í kirkju hjá honum og prédikaði þar, var messunni útvarpað. Dr. Bradley mintist á Island af miklum hlýleik og komst m. a. svo að orði: „ísland er merkilegasta land í heimi“. Guðsþjónustu þessari lauk með því að ég tónaði blessunarorðin á íslenzku. 40-—50 íslendingar voru við messuna. — Frá Chicago héldum við aftur til New York. Dvöldum við þar hjá íslenzkri konu, sem hefir nokkur herbergi til leigu handa gestum. Komum enn á nokkur íslenzk heimili. Við fórum einn daginn til Washington og heim- sóttum sendiherrahjónin, Thor Thors og frú hans. — Þá heimsóttum við Vilhjálm Stefánsson og konu hans í þeirra yfirlætislausu íbúð. — Vil- hjálmur ræddi við mig mál, sem vekja mun mikla athygli Islend- inga. Var það um- ráðstöfun bókasafns hans og mun ég nán- ar koma að því málefni síðar. Minnist máske á það í útvarp- inu? Já, það hefi ég ákveðið. — Jæja, ég er víst búinn að tefja hr. biskupinn meira en góðu hófi gegnir; en hvernig gekk svo heimferðin? Við Jengum ágæta ferð heim með „Goðafossi“ og það var yndislegt að koma heim og heyra íslenzkuna aftur hljóma allt um kring í fegurð sinni og tign. — Og þrátt fyrir allt er heima bezt.. Og heilsufarið? „Miklu betra. Árangur vestur- afararinnar í alla staði hinn bezti“. Er nokkuð sérstakt, sem ég mætti segja „Lögbergi“? Mér er hjartanlega ljúft að Vestur-lslendingum séu fluttar kveðjur okkar hjónanna og hjartans þakkir fyrir alla þá á- gætu vinsemd sem við nutum í ferðalagi okkar og meðan við dvöldum vestra. Allt þetta verð- ur okkur ógleymanlegt og mér ný hvöt til þess að vinna eftir föngum í framtíðinni að vin- áttu og menningartengslum Is- lendinga, austan hafs og vestan. Áhugi og starf Vestur-íslendinga í Þjóðræknismálunum er dá- samlegt. Mér virtist íslenzkan, hvar sem ég hitti landa, vera í heiðri höfð, ættjarðarástin á djúpar og traustar rætur í hjört- unum og áhuginn fyrir aukinni íslenzkri menningu brennandi. Vér hér heima eigum ekki að láta vorn hlut eftir liggja. — Þá var mér það mikil gleði að kynnast því enn af eigin raun, að trúaráhugi og trúarstyrkur Vestur-íslendinga er yfirleitt mikill og vel vakandi. Annars er það svo margt og mikið, sem mér kemur í hug og finnst ég þurfi að segja þegar um landana vestra er að ræða, að ég býst við að þér þætti það of langt mál, enda hefi ég hugs- að mér að koma nánar að því efni síðar. Og biskupinn sýnir mér allþykkan og þéttskrifaðan blaðabunka: — Þetta eru ferða- minningar utanfararinnar í vet- ur. — Ég sé að gott er í vændum. — Biskupinn fylgir mér til dyra. Konur og karlar bíða viðtals við hann. Hver veit hvað þeim kann að liggja á hjarta? — S. B. P.S. Síðan ég ritaði niður samtal mitt við hr. biskupinn, hefir hann nú flutt ferðaminningar sínar í Ríkisútvarpið í þrem mjög skemtilegum og fróðleg- um erindum og minnst nánar og betur manna og málefna vestan hafs en við varð komið í við- tali okkar. Ég er sannfærður um að Islendingum beggja megin hafsins þætti góður fengur í að fá erindi þessi gefin út á prenti, og vonandi að það verði þeim ekki ofvaxið. Erindi biskups hafa hlotið einróma góða dóma útvarpshlustenda að því er til spyrst. S. B. Mr. Justice Grímson Congratulates Chair Committee Miss M. Petursson, Secretary, The Foundation Committee 45 Home St. Winnipeg, Manitoba, Canada. Dear Margaret: I wish to express my hearty congratulations to the Founda- tion Committee for the excellent work it has done in the estab- lishment of the Chair of Ice- landic Language and Literature in the University of Manitoba. While the initial movement was due to the forésight and gener- osity of Asmundur Johansson that would not have been suf- ficient had it not been for the faithful and energetic work of the Committee and the support it secured from the public. Great credit is due to the members of the committee for the personal sacrifices and time spent in be- half of this project. To them and to everyone who has lent sup- port to this movement the Ice- landers owe a debt oít gratitude. Thus is established the means by which our heritage through Icelandic language, literature and historical background can continue to contribute to the Canadian and American nation- alities. Here is established the place where our descendants can always refresh themselves in the study of their heritage from the Mother Country. We all rejoice in that accomplish- ment. bincerely yours, G. GRIMSON. Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business TraintngImmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21804 695 SARGENT AV \ WINNIPEG Business and Professional Cards PHONE 724 944 Dr. S. J. Jóharmesson SUITE 6—652 HOME ST. Vi&talsMmi 3—5 eftir hádegi S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 924 624 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ct. vega peningalán og eldsábyrgð, bifreiðaábyrgð o s. frv. Phone 927 538 Phone 21101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON < Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnlpeg, Man. SARGENT TAXI DR. A. V. JOHNSON Dentist PHONE 722 401 506 SO.MERSET BUILDING FOR QUICK, RELIABLE Telephone 97 932 SERVICE Home Telephonpe 202 398 Talsími 925 826 Heimilis 404 630 DR. E. JOHNSON DR. K. J. AUSTMANN 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Sérfræðingur i augna, eyrna, nef og kverka sjukdómum Office Hours 2.30 - 6 p.m. 209 Medical Arts Áldg. Phones: Office 26 — Res. 230 Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h. Andrews, Andrews, DR. ROBERT BLACK Thorvaldson and Sérfrceðingur í augna, eyma, nef Eggertson og hálssjúkdómum. Ijöcrfrœðvngar 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 Heimaslmi 403 794 C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 Branch e= - s store at fMElLDOTEWl 123 SMmvlLz? TENTH ST‘ BRANOON 447 Portage Ave. Ph. 926 885 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Settino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wiU be appreclated Ahagborg fuel/^I PHUNI 21531 J. [ Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appointment. Gunnar Erlendsson Pianist and Teacher Studio — 636 Home Street Telephone 725 448 A. S. BARDAL 843 SHERBROOK STREET Selur líkkistur og annast um öt- farir. Allur útbúnaður sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi 27 324 Heimilis talsími 26 444 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 926 441 Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just West of New Maternity Hospital Nell’s Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON tt CO. Chartered Accountants 505 Coníederatlon Life Bldg. WINNIPEG MANITOBA Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrislers - Solicitors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 561 SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá. að rjúka út með reyknum.—Skrifið, slmið til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Símar: 33 744 — 34 431 JOHN A. HILLSMAN, M.D., Ch. M. 332 MEDICAL ARTS BLDG. Office 929 349 Rei. 4S3 288 DR. H. W. TWEED Tannlœknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEG G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BLK, Slmi 925 227

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.