Lögberg - 12.04.1951, Side 8

Lögberg - 12.04.1951, Side 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. APRÍL, 1951 Good Templora Reglan 100 óra Úr borg og bygð Upplýsinga er óskað. — Árið 1887 (?) fluttist Grímur Pétursson, bóndi í Brekkukoti í Hjaltadal í Skagafirði til Vestur- heims. Samtímis honum fóru vestur systkinin Sigurbjörn Friðbjarnarson og Monika Frið- bjarnardóttir (bæði fædd fyrir 1865), en Grímur var föðurbróð- ir þeirra. Eigi er mér kunnugt hvar þetta fólk settist að vestra. Væri mér mikil þökk á ef ein- hver af lesendum Lögbergs, gæti eitthvað frætt mig um æviferil Sigurbjörns og Moniku vestra, og þó einkum afkomendur þeirra. ef einhverjir eru og kunnugt um þá, svo og um af- komendur Gríms frá Brekku- koti. Vinsamlegast, Árni G. Eylands, st j órnarráðsf ulltrúi, Sóleyjargötu 35, Reykjavík. ☆ Mr. Jakob Sigvaldason frá Víðir P.O., Man., var staddur í borginni í fyrri viku. ☆ Dánarjregn. Mrs. Guðleif Árnadóttir Horn- fjörð, ekkja Jóns heit. Jónsson- ar Hornfjörðs, andaðist að heim- ili sínu, 6 mílur fyrir norðan Leslie, 14. marz. Þrjú börn og tveir fóstursynir lifa móður sína. Börnin eru: Bergþóra (Mrs. Pell) í heimahúsum; Helgi, bóndi í Elfros-bygðinni; og Sesselja (Mrs. Mercer) bú- sett í Flassmoor, 111. Uppeldis- synirnir eru: Emil Sigurdson, bóndi í Leslie-bygð og Björgvin Sigurdson, verkfræðingur, í þjónustu sambandsstjórnarinn- ar í Ottawa. Einnig eru tvær systur á lífi: Mrs. Sigurdson í Foam Lake, Sask. og Mrs. Th. Johnson, Blaine, Wash. Níu barnabörn og 4 barna-barna- börn lifa ömmu sína. Útför Guðleifar fór fram frá Elfros-kirkjunni 19. marz. Séra Skúli Sigurgeirsson jarðsöng. ☆ Mrs. Jóhanna Kristjana Maass andaðist þann 11. marz að 170 Lenore St Winnipeg. Hún var fædd að Sandy Hook, Man. 26. ágúst 1901, dóttir Mr. og Mrs. Skapti Halldórsson, Skapti er nú látinn en kona hans er enn á lífi. Mrs. Maass ólst upp með foreldrum sínum í Sandy Hook og í grend við Nes P. O. í Árnes- bygð sunnanverðri. Þann 1. des. 1919 giftist hún eftirlifandi eig- inmanni, Benedict William Maass; bjuggu þau lengst af við Nes P. O. Man. Þeim varð þriggja barna auðið: Benedict Herold, Wallace og Margrét Júlíana. Tvær systur og sex bræður hinnar látríu eru á lífi, er syrgja hana, auk móður henn- ar, eiginmanns og barna. Útförin fór fram frá kirkju Víðinessafnaðar við Husavik, Man., þann 16. marz, að mörgu fólki viðstöddu. Séra Sigurður Ólafsson þjónaði við útförina. ☆ Þeir Mr. Park, annar forstjóri og eigandi Park-Hannesson veið- arfæraverzlunarinnar, J. B. Johnson og Norman Stevens frá Gimli, og T. L. Hallgrímsson og Leifur lögfræðistúdent sonur hans, lögðu af stað í skemtiferð suður um Bandaríki á sunnu- daginn var. Varð þessi skemtifararhópur samferða til Chicago, en þaðan ætluðu hinir þrír fyrnefndu til Detroit, en þeir Hallgrímsson- feðgar til New York. ☆ Gjafir til Betel: Mrs. Hansína Olson, Winni- peg, afmælisgjöf, $5.00; Mr. og Mrs. Paul S. Johnson, Glenboro', Man., í minningu um Benediktu Helgadóttir Helgason, er dó á Sumarstöðum 11. okt. 1950, ná- lægt Hnausa, Man., $5.00; Mr. og Mrs. G. F. Jónasson, Winni- peg, $100.00; vinkona á Betel $5.00; Daníel Halldorson og Sig- ríður Goodman, Hnausa, Man., $17.00; Daníel og Thóra Peterson á Betel $6.00; Matthildur Borg- fjord, Betel, $1.00; Jóhanna Thordarson, Betel, $1.00; María Stefánsson, Betel, $2.00; Luth- eran Ladies Aid, Selkirk, $25.00; Mr. og Mrs. Ingólfur Bjarnason, Gimli, in memory of Elenora Julius, former matron at Betel and Sigvaldi Gíslason, who died at Betel, Set of Records of Gimli Nýja-íslands choir —- songs rendered at 75th Anniversary Celebration. Kærar þakkir fyrir allar þess- ar gjafir. J. J. Swanson, féhirðir 308 Avenue Bldg. Winnipeg. ☆ Heimilisiðnaðarfélagið heldur næsta fund sinn á heimili Mrs. C. S. Johnson. 16A. The Curtis, 111 — 113 Smith Street, 17. þ. m. kl. 8 að kvöldi. ☆ Katrín Friðrika Goodman, 83 ára ekkja eftir Carl Goodman, lézt að heimili sínu, 668 Victor St., 2. apríl, og var jarðsungin frá Fyrstu lútersku* kirkju á miðvikudaginn 4. s.m., að við- stöddum stórum hópi vina og aettingja. Hún lætur eftir sig þrjár dætur: Karolínu, Mrs. B. Baldwinson í Saskatoon, Sask.; Lily, Mrs. R. W. Wright; og Auroru, Mrs. Sidney Bowley, og einn son, Carl, sem öll eiga heima í Winnipeg. Séra Valdi- mar J. Eylands flutti kveðjumál, fyrst í útfararstofu Bardals, og svo í kirkjunni. ☆ Hanna Sylvia Jónasson, 28 ára að aldri, kona Boga Jónas- son að Lundar, var jarðsungin frá kirkjunni að Lundar á laug- ardaginn var, 7. apríl. Auk eigin- manns síns lætur hún eftir sig tvo unga sonu, aldraða foreldra og þrjú systkini. Jarðarförin, sem fór fram und- ir umsjón sóknarprestsins, séra Jóhanns Friðrikssonar, með að- stoð séra Valdimars J. Eylands, var afar fjölmenn. Þær Mrs. Jens Johnson og Mrs. W. J. Benson frá Mikley, hafa dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. ☆ — Dánarfregn — 23. marz síðasliðinn ahdaðist á heimili sínu, að Blaine, Wash., Teódór Jóhannesson, 66 ára að aldri. Hann var bóndi nálægt Sin- clair, Man. um langt skeið, og búnaðist þar vel, þó á unga aldri sætti hann fátækt og erfiðleik- um nýlendulífsins. Árið 1921 flutti hann vestur á Kyrrahafsströnd. Síðustu 22 árin stundaði hann alifuglarækt. Hann var maður drenglyndur og trúr og stóðu orð hans eins og stafur á bók. Hann syrgja eiginkona hans Dóra Josephson og tveir drengir, Theodore í sjó- her Bandaríkjanna, Eugene í Tacoma, Wash.; ein systir, Aðal- björg Kristjánsson, Seattle, Wash., lifir bróður sinn. Útförin fór fram 28. marz frá McKinneys útfararstofunni, að viðstöddu fjölmenni miklu. ☆ — DÁNARMINNING — Mrs. Lilja Sesselja Jónsdóttir Alfred andaðist á Elliheimilinu Betel á Gimli, Man., þann 31. marz, eftir stutta sjúkdómslegu. Hún var fædd 15. ágúst, 1860, að Saurbæ í Tungusveit í Skaga- fjarðarsýslu; foreldrar hennar voru Jón Símonarson og Sigur- veig Jónsdóttir. Hún flutti vest- ur um haf 1891, og dvaldi um hríð í Mountain, N. Dak. Eftir tveggja ára dvöl þar fluttist hún til Winnipeg og þar giftist hún árið 1894 Karli Thorkelssyni. Þau dvöldu í Winnipeg til árs- ins 1900, en flutti þá til Marsh- lands-bygðar og bjuggu þar. — Mann sinn misti hún árið 1912. Þeim varð tveggja barna auðið: Karl, umsjónarmaður skóla (School Inspector) í Virden, Man., kvæntur Rose Hedges, og Sigurlaug Snót, er dó tveggja ára að aldri. Lilja giftist á ný Jóni Alfred ekkjumanni, — ættuðúm frá Reykjavík. Þau bjuggu í Marsh- land, en síðar í Langruth, Man. Ein dætra Jóns af fyrra hjóna- bandi ólst upp með þeim, frá 14 ára aldri. — Jón dó fyrir ná- lægt 10 árum síðan. Lilja kom til vistar á Betel 19. ág. 1942. Hún var þrekkona, er innt hafði stórt dagsverk af hendi. Kveðjuathöfn var haldin á Betel þann 2. apríl. — Degi, síðar fór greftrun hinnar látnu fram í Gladstone, Man., var hún vígð til moldar af presti United kirkjunnar þar. S. Ólafsson ☆ Skólaslitasamkoma. Síðastliðið laugardagskvöld fór fram skólaslitasamkoma Laugardagsskóla Þjóðræknisfé- lagsins í Sambandskirkjunni hér í borg við ágæta aðsókn og mikla hrifningu samkomugesta; skólastjórinn, frú Ingibjörg Jóns son, hafði samkomustjórn með höndum; meðkennarar hennar voru frú Ragnhildur Guttorms- son og ungfrú Salome Halldórs- son, er annaðist um söngstjórn, er tókst með ágætum; það var regluleg unun að horfa á börnin, og hlusta á þau í leiksýningum og söng. Frú Ragnhildur hafði annast um leikbúninga, er fóru börn- unum hið bezta, auk þess sem frú Kristín Johnson lagði ^itt og annað til slíkrar tegundar. Þökk sé þeim öllum, er að þessari yndislegu kvöldskemtun stóðu. ☆ Frónsfundur verður haldinn á mánudags- kveldið 23. apríl. Nánar auglýst í næsta blaði. ☆ Mr. A. J. Vopni frá Kenville, Man., dvelur í borginni um þessar mundir hjá syni sínum. ☆ Gefið til Sunrise Lutheran Camp. Vinur í Mozart $10.00 (pr. Mrs. Sigurgeirsson). John Ein- arsson Petersfield $5.00. Móttekið með innilegu þakk- læti. Anna Magnússon, Box 296, Selkirk, Man. ☆ Ungfrú Helga Sigurdson frá New York hélt heimleiðis dag- inn eftir samkomuna miklu í Playhouse Theatre, þar sem hún með snild sinni í píanóleik hreif bugi hins mikla mannfjölda. Við Good Templarar í Mani- toba erum að undirbúa sam- komu, sem verður haldin í Good Templarahúsinu á mánudaginn þann 30. apríl, til þess að minn- ast 100 ára afmælis okkar bræðra og systra félags, sem var stofnað með þeim eina ásetn- ingi, að bjarga almenningi frá böli áfengis. Útrýma áfengi úr heiminum, Stofnskráin var byggð á biblíunni, sem hefir inn- an sinna vébanda 311 aðvaranir gagnvart áfengi, áhrifum þess og afleiðingum. Good Templara Reglan hafði ekkert annað augnamið en að vernda einstaklinginn, heimilin, konur og börn frá áfengisbölinu, hverrar þjóðar sem var, eða hvaða hörundslit eða hvaða tungumái það talaði. Þetta hef- ir tekizt um allan heim. T. d. Icelandic Canadian Club Meeiing. The public is cordially in- vited to attend the next meet- ing of the Icelandic Canadian club, to be held in the First Federated church parlors, Mon- day evening, April 16, at 8.15 p.m., and enjoy what promises to be an educational and enter- taining evening. Dr. Edward Johnson, super- intendent of the Manitoba Hospital will be guest speaker. His topic will be: Mental Health. Dr. Johnson graduated from tha University of Manitoba in 1928 and was appointed to the staff of the Manitoba Hospital the ,same year. He did post- graduate work at the Boston Psychopathic Hospital and Johns Hopkins Hospital in 1936, and is well known for his use of the Insulin Shock treatment for a certain type of mental disease. He was one of the first 'to introduce this in Canada and it is recognized as representing a distinct andvance in the treat- ment of diseases formerly con- sidered hopeless. Dr. Johnson, born in Winni- peg 1902, is the son of Katrin and Gudmundur Johnson, and spent his youth in East Kil- donan, Manitoba. The Icelandic Canadian club is proud to pre- sent this eminent doctor as the speaker of the evening. A group of specially trained singers will come from the Pro- vincial Normal school to enter- tain at the meeting. Ther will be a male quartet and a ladies’ trio. Jon K. Laxdal is in charge af the group and Sigrid Bardal will be accompanist. Refreshments will be served and there will be a silver coL lection to defray expenses of the lunch. Come and bring your friends. H. F. D. (Publicity) ☆ Á laugardagskvöld, 24. marz, voru gefin saman í Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg, Hólmfríður María Jónasson hjúkrunarkona, dóttir Mr. og Mrs. Björns Jónas- sonar að Silver Bay og Jón Sig- urðsson, sonur Mr. og Mrs. Sig. Sigurðssonar, Ashern, Manitoba. Foreldrar beggja brúðhjónanna og margt skyldmenna þeirra úr Norðurbygðum Manitoba var viðstatt giftinguna. Að giftingu lokinni var vegleg veizla hald- in að 693 Banning St., hjá J. Jónasson og þeim systkinum, en þau eru skyldmenni brúðarinn- ar. Norðan frá Ashern var og Geirfinnur Pétursson við gift- inguna. Séra Valdimar J. Ey- lands gifti. Hélt hann og ræðu í veizlunni. Frá íslandi bárust brúðhjónunum fimm heillaóska- skeyti, frá fornum Vestur-ls- lendingum (R. H. Ragnar, H. Thorberssyni, Dr. Jakobsson og frúm þeirra). ☆ Frú María Markan östlund lagði af stað á aðfaranótt síð- astliðins fimtudags áleiðis til heimilis síns í New York. bróðir Raghavan, Grand Secra- fékk ég bréf í dag, 5. apríl, frá tary, Hyderabad Deccan, South India, skrifað 1. febr. ’51. Hann biður um bréf, sem hann geti lesið á þeirra hátíðarhaldi, sem þeir séu að minnast í tilefni af 10 ára afmæli Reglunnar. Þetta er bara eitt af mörgum bræðra og systra bréfum sem koma á þessum tíma. Bræðrabandið er sterkt, þar sem það hefir náð haldi, ekki sízt þar sem líknar- starfið hefir náð tilgangi sínum, þar sem mönnum og konum hef- ir verið bjargað frá eyðileggingu Bakkusar. Okkar föðurland, ísland, var það fyrsta land í heimi, sem út- rýmdi áfengi með lögum og vín- banni. Kanada og Bandaríkin tóku í sama strenginn og settu á vínbann. En nú er auðvaldið búið að sigra í öllum þessum löndum; svo voðalegt er það, að í síðustu ársskýrslu Kanada hafði þjóðin eytt $1,500,000 á hverjum virk- um degi yfir árið, aðeins liðlega 12,000.000 manns, hvert manns- barn talið. Um ágóðann af vín- sölunni hér í Manitoba árið sem leið, — sem var $8,000.000 — langar mig til að spyrja, hvað kosta afleiðingarnar af þeirri á- fengisnautn hér í fylkinu? Ef einhver vildi eða gæti gefið fylkisbúum þá upphæð, þá yrði hin hverfandi. Ég má ekki rúmsins vegna fara meira út í þetta, ég vona bara að prestarnir okkar gefi á- heyrendum sínum einhverja á-* minningu um nauðsyn bind- indis. Okkar leiðtogi, Dr. Jón Bjarna son, barðist mikið fyrir bind- indi bæði á kirkjuþingum og í kirkjublaðinu, Sameiningunni, áður eru-hann gekk í Regluna. En þá fanst honum að bindind- ismálinu væri borgið undir stjórn Good Templara; en nú er þeim að fækka hér, svo að prest- arnir verða að taka við, enda eru þeir að gera það. Ég hefi al- drei í þessi 60 ár, séð eins marga presta í þessu landi taka þátt í iokkar bindindisstarfi, eins og á þessum síðustu 2 til 3 árum; þeir eru sannarlega vakandi, og sjá eyðilegginguna, sem áfengið leiðir af sér. Meira að segja ka- MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands. Heimili 776 Victor Street. Sími 29017.— Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóla kl. 12.15 e. h. Allir ævinlega velkomnir. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 15. apríl. En§k messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 Ensk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir! S. Ólafsson ☆ — Argyle Prestakall — Sunnudaginn, 15. apríl. Sameiginleg guðsþjónusta: Grund kl. 1:30 e. h. (Eftir messu, fundur alls prestakallsins). Glenboro kl. 7:00. Eric H. Sigmar þólskir prestar í Quebec eru farnir að sjá bölið og hafa verið að vinna á móti því í síðastliðin 2 til 3 ár, opinberlega. Gleymið ekki tíma og stað! Fyrst að koma til kirkju þann 29. apríl og hlusta á prestana í báðum kirkjunum. Þeir munu minnast 100 ára hátíðarinnar ogi gefa ykkur eitthvað, sem er heilbrigt að taka heim með ykk- ur. Svo komið þið öll í Good Templarahúsið á mánudags- kveldið, þar verður góð skemt- un: Dr. R. Beck; Hreyfimyndir o. m. fl. Ókeypis aðgangur, eins og vant er hjá Good Templurum. SUMARMÁLASAMKOMA unriir umxjón Kvenfélags Fyrsta Lúterska safnaðar verður haldin í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJUNNI á Victor Ht. Fimtudaginn 19. apríl 1951.-Kl. 8.15 e.h. Séra V. J. Eylands 1. ÁVARP FORSETA - 2. SÁLMUR 3. BÆN 4. SAMSPIL - Guitar og Píanó 5. EINSÖNGUR - En8k lög 6. ÁVARP - 7. SAMSKOT 8. VIOLINCELLO SLO 9. EINSÖNGUR - tslenzk lög Undirspil Mrs. W. Kristjanson Mr. N. O. Bardal og sonur hans Neil Bardal Mr. Albert Halldorson Frú Ragnhildur Guttormson Mr. Harold Jonasson Mr. Albert Halldorson Að lokinni skemtiskrá er öllum boðið í neðri sol kirkjunnar, þar verður veitt súkkulaði, pönnukökur og kleinur. — Komið nllir! A. S. Bardal, S.T. FUNDARBOÐ TIL VESTUR-ÍSLENZKRA HLUTHAFA í H.F. EIMSKIPAFÉLAGI ÍSLANDS Útnefningarfundur verður haldinn að 910 Palmerston Avenue, 19. apríl, 1951 kl. 7.30 e. h. Fundufinn útnefnir tvo menn til að vera í vali, sem kjósa á um á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður í Reykjavík í júnímánuði næstkomandi, í stað hr. A. G. Eggertsonar, K.C., sem þá verður búinn að útenda sitt tveggja ára kjörtímabil. Winnipeg, 10. apríl, 1951. Ásmundur P. Jóhannsson Árni G. Eggertson, K.C. ANNOUNCING... 4 cu. ft. model Dimensions: Height — 41" Width — 23'/»" Depth — 21 ” THE NEW, 1951 DE FEHR "SANITARY" 4 AND 6 CVBIC FOOT ELECTRIC REFRIGERATORS The last word in Style — Compactness — Pertormance — Economy Designed to do a big job where space is limited. Ideal for small homes, apartments, hospitals, moteli, professional of- fices, etc. * Custom factory built steel wrap-around cabinets. * Latest features incorporated. * Scaled quiet-Tecumseh unit. * Fully guaranteed. Dollar for Dollar — its the Biggest Refrigerator Value. 4 CUBIC FOOT SIZE — $235.00 6 CUBIC FOOT SIZE — 279.50 6 cu. ft, model Dimensicns: Height — 51V4-’ Width — 24" Depth — 21" IMMEDIATE DELIVERY Factory Distributor C. A. DE FEHR <5c SONS LTD. 78 Princess St., Winnipeg, Man. Phone 933 612 — 934 154 (Dealer enquiries invited)

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.