Lögberg - 24.05.1951, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. MAÍ, 1951
Bandaríkjaher kominn til Islands
Fyrsta sveitin kom flugleiðis
til Keflavikur 7. bessa mónaðar
Þessar skilinerkileffu fréttir af komu amerísks varnarliðs til fslands
og þar að lútandi síimninffi milli rikisstjórnar íslands og Banda-
ríkjastjórnar, á Ix^berj?. eins og svo margt annað, að þakka liinum
virðulega sendiherra fslands í Canada og Bandaríkjunum, Hon.
Thor Thors, er sendi ritstjóra blaðsins með flugpósti eftirgreindar
upplýsingar. —Ritstj.
Hermennirnir, sem komu til landsins frá Bandaríkjunum
snemma í gærmorgun, eru að heita má allir úr land-
hernum, og hafa allan nauðsynlegan búnað. Er þessi her-
- manna-hópur fyrsta liðið, sem kemur hingað til að annast
varnir landsins, samkvæmt sérstökum samningi, sem
skýrt er frá á öðrum stað hér í blaðinu. Blaðamaður frá
Tímanum fór til Keflavíkurflugvallar í gær eftir hádegið,
strax og völlurinn var opnaður aftur.
Komu í þretián flugvélum.
Það mun hafa verið nokkru
fyrir klukkan fimm í gærmorg-
un, sem fyrstu flutningavélarn-
ar lentu með hermenn á Kefla-
víkurflugvelli. Síðan lentu vél-
arnar hver af annari fram undir
klukkan sex, en alls voru þær
13 að tölu.
Aðalhlið vallarins var lokað
fyrir allri umferð meðan á þess-
um liðsfluíningum stóð, og stóð
svo fram undir hádegi, þar til
flutningavélarnar voru a 11 a r
farnar af vellinum. Hermenn-
imir eru komnir í herskála og
gistihús vallarins, og farangur
þeirra kominn í geymslu.
Starfsfólk vallarins, sem bú-
sett er í Keflavík og þurfti að
fara inn um hliðið, varð að gera
ýtarlega grein fyrir ferðum
sínum, áður en því var hleypt
inn.
Nokkru eftir hádegið var völl-
urinn svo aftur opinn eins og
venjulega, og þá gátu þeir, sem
komu þangað, varla merkt ann-
að en um væri að ræða ósköp
venjulegan dag á Keflavíkur-
flugvelli.
Engin svipbreyting enn.
Þegar tíðindamaður Tímans
kom þangað um fjögur leytið í.
gær, var ekki hægt að sjá að
her væri kominn til landsins.
Tvær flutningaflugvélar hersins
voru að vísu á hlaði flugstöðvar-
innar, en farþegar þeirra, her-
menn úr öilum deildum Banda-
ríkjahers, dreifðir víðs vegar
um veitingasali og biðskála
flugstöðvarinnar. Þessir menn
voru á leið milli hernámssvæðis
Bandaríkjanna í Þýzkalandi og
heimalandsins, að fara heim í
leyfi eða koma þaðan aftur og
hverfa til fyrri skyldustarfa í
Evrópu. Blaðamenn frá Þjóð-
viljanum og Morgunblaðinu,
sem voru þama um leið og blaða
maður Tímans, gengu um flug-
stöðina að vild, töluðu við starfs
menn og skoðuðu flugvélarnar
á hlaðinu, þar sem verið var að
búa þær undir næsta áfangann.
Búið að rýma skálahverfi.
Hermönnum, sem komu, mun
hafa verið komið fyr'ir í gisti-
húsum flugstöðvarinnar, en auk
þess munu nokkrir hafa setzt að
í herskálahverfi, sem búið er
algerlega að rýma, og mun her
sá, sem búizt er við næstu daga,
taka þar bólfestu. Er hér um
að ræða stórt skálahverfi, þar
sem byggingarverkamenn höfðu
aðsetur, er byggingarfram-
kvæmdir voru mestar á vellin-
um.
Fyrr en búizt var við.
Yfirleitt kom herinn fólki á
Keflavíkurflugvelli á óvart. All-
ir höfðu þó á meðvitundinni, að
her væri væntanlegur og er
nokkuð langt síðan fólk þóttist
fyrst sjá merki þess, að hers
væri von.
Eitt það fyrsta, sem starfslið
flugvallarins varð vart við, er
benti áþreifanlega til þessa, var
að eiginkonur bandarískra starfs
manna, er voru í leyfi fyrir
vestan, gátu ekki fengið far
hingað aftur og mönnum þeirra
tilkynnt að breytt viðhorf yllu
því.
Almennt voru menn síðustu
dagana farnir að búast við hern-
um um miðjan þennan mánuð
eða síðast í mánuðinum.
Hafa unnið að fcæflri sambúð.
Þegar herinn kom í gærmorg-
un gerði flugvallarstjórinn í
Keflavík, D. J. Gribbon, grein.
fyrir komu hans og skrifaði
greinargerð með upplýsingum
til starfsfólks vallarins, sem
birt var í hinni daglegu frétta-
tilkynningu, er liggur frammi í
flugstöðinni. Beindi hann máli
sínu til allra starfsmanna Lock-
heed-félagsins, sem eins og kunn
ugt er annast rekstur vallarins
fyrir Bandaríkjastjórn sam-
kvæmt flugvallarsamningnum.
Er það mál allra, sem til
þekkja, að þessu félagi hafi tek-
izt rekstur vallarins betur en
nokkrum öðrum aðila, sem það
starf hefir annazt. Undir þess
stjórn hefir orðið gerbreyting á
sambúð flugvallarliðsins og Is-
lendinga, enda hafa þeir D. J.
Gribbon flugvallarstjóri og
Glenn Werring skrifstofustjóri
lagt á það ríka áherzlu og gert
mikið til, að svo mætti verða,
og verið vel studdir í því af á-
gsétum samstarfsmönnum, Bill
Short og Jónasi Kristinssyni,
starfsmönnum félagsins í deild
Werrings.
Keflavíkurflugvöllur mun nú
vera orðinn vinsælasti áningar-
staður farþegaflugvéla á leið
þeirra yfir Atlantshafið, sakir
öruggrar og liðlegrar afgreiðslu
þar.
Herinn komur á næstu
íjórum mánuðum.
í fréttatilkynningu flugvallar
stjórans er gerð grein fyrir hin-
um breyttu viðhorfum, þar sem
starfssemi Lockheed-félagsins
lýkur nú fyrr á Keflavíkurflug-
velli en gert hafði verið ráð
fyrir. Starfsemi félagsins varð-
andi rekstur vallarins lýkur nú
31. ág. Hermn kemur svo vænt-
anlega á næstu fjórum mánuð-
um, og bendir flugvallarstjórinn
♦ -f
Þegar íslendingar gerðust að-
ilar Norður-Atlantshafssamn-
ingsins ákváðu þeir þar með að
verða a ð i 1 a r varnarsamtaka
Norður-Atlantshafsríkjanna. Um
það segir m. a. í inngangsorðum
samningsins, að aðilar hans hafi
ákveðið að taka höndum sam-
an um sameiginlegar varnir og
varðveizlu friðar og öryggis.
Ennfremur skuldbundu aðilar
sig í 3. gr. samningsins til þess,
hver um sig og í sameiningu,
með stöðugum og virkum eigin
átökum og gagnkvæmri aðstoð,
að varðveita og efla möguleika
hvers um sig og allra í senn, til
þess að standast vopnaða árás.
Vegna sérstöðu Islendinga var
það hins vegar viðurkennt, að
ísland hefði engan her og ætl-
aði ekki að stofna her og að ekki
kæmi til mála að erlendur her
eða herstöðvar yrðu á íslandi á
friðartímum. Hins vegar var það
fastmælum bundið, að ef til ó-
friðar kæmi mundi bandalags-
þjóðunum veitt svipuð aðstaða
og var í síðasta stríði, og yrði
það þó algerlega á valdi Islands
sjálfs, hvenær sú aðstaða yrði
látin í té.
íslendingar verða því sjálfir
að meta, hvenær ástand í al-
þjóðamálum er slíkt, að sérstak-
á, að í þessum mánuði bíði auk-
ið erfiði alls hins borgaralega
starfsliðs vallarins og áríðandi
sé, að góð samvinna takist með
borgurum hins unga samfélags
þorpsins á Keflavíkurflugvelli
og aðkomumönnunum, og svo
geti farið, að fólk verði að
þrengja að sér meira en áður um
húsnæði..
—TÍMINN, 8. maí
☆
Tiíkynning
hershöfðingjans
Yfirforingi hins bandaríska
liðs á íslandi sendi í gær út svo-
látandi tilkynningu um komu
sína:
„Ég er E. J. McGaw, herdeild-
arforingi í her Bandaríkjanna.
Ég stjórna öryggisliðinu á ís-
landi.sem kom í dag. Við erum
hér samkvæmt gagnkvæmum
samningi hinna tveggja ríkis-
stjórna okkar til þess að starfa
með ykkur að uppfyllingu sam-
eiginlegrar skuldbindingar okk-
ar í Norður-Atlantshafsbanda-
laginu. Her okkar er því alþjóð-
legur að tilgangi og ábyrgð.
Mér er föst í minni sú stað-
reynd, að þið eruð húsráðendur
og við erum gestir ykkar. Eins
og þið getið séð, er herinn sam-
ansettur af þremur einingum
úr herliði Bandaríkjanna —
landher, sjóher og lofther. Við
ætlum að vera sú tegynd gesta,
sem þið munuð alltaf taka opn-
um örmum. Þetta mun tryggja
gagnkvæma vinsemd, sem mun
hæglega leysa hvern vanda, sem
við stöndum andspænis saman.
Við þekRjum allir hina stoltu
sögu Islands og erfðir. Við öf-
undum ykkur af aldafriði. 1 dag
ógnar sameiginlegur árásaraðili
frelsinu, sem við allir njótum.
Sameiginlegur tilgangur okkar
er að vernda frið og öryggi ís-
lands og Norður-Atlantshafs-
svæðisins gegn þessari hættu.
Frelsið verður ekki varðveitt
án fórna. Beri vanda að hönd-
um, getið þið treyst fullum
stuðningi herstjórnar minnar til
þess að leysa hann. í staðinn
bið ég ykkur um vinsamlega
samvinpu.
Það gleður mig, að ég er hér.
Ég fagna þessu fyrsta tækifæri
til að heilsa ykkur. í mínu nafni
og manna minna segi ég, að við
allir í Keflavík hlökkum til þess
að kynnast ykkur nánar per-
sónulega.
ísland — ég heilsa þér“.
—TIMINN, 8. maí
♦ ♦
ar ráðstafanir þurfi að gera til
að tryggja öryggi og frelsi
landsins. Aðild íslands að Norð-
ur-Atlantshafssamningnum legg
ur þessa skyldu á ríkisstjórn Is-
lands.
Nú hefir svo skipazt, að á síð-
ustu mánuðum hefir tvísýna í
alþjóðamálum og öryggisleysi
mjög aukizt. Þó að eigi séu blóð-
ugir bardagar í þessum hluta
heims, hafa Sameinuðu þjóðirn-
ar orðið að grípa til vopna ann-
ars staðar til varnar gegn til-
efnislausri árás. Islendingar eru
ein hinna Sameinuðu þjóða, og
þótt við getum ekki styrkt sam-
tök þeirra með vopnavaldi, kom-
umst við ekki hjá að viður-
kenna, að friðleysi og tvísýna
ríkir nú í alþjóðamálum. Hinar
friðsömu, frjálsu lýðræðisþjóðir
reyna mað öllu móti að komast
hjá allsherjarófriði, en friðar-
tímum er því miður ekki að
fagna um sinn.
Atburðir síðustu tíma hafa
sannað, að varnarleysi lands
eykur mjög hættuna á því, að
á það verði ráðizt og um það
barizt. Hinar frjálsu, friðsömu
þjóðir hafa því allar aukið mjög
vígbúnað sinn, og telja helztu
vonina til þess að hindra nýjar
árásir og allsherjarófrið þá, að
koma upp sterkum samfelldum
vörnum. Hafa flestar þjóðir í
þessu skyni tekið á sig mjög
þungar byrðar í þeirri von, að
þá megi frekar afstýra allsherj-
arófriði og koma á fullum friði.
En eftir þ\i sem aðrir efla varn-
ir sínar, verður meiri hættan á
árás á þann eða þá, sem engar
varnir haia, því að árásarmenn
ráðast yfirleitt ekki á garðinn,
þar sem hann er hæstur, heldur
þar sem hann er lægstur.
Allt hefir þetta orðið til þess
að íslenzka ríkisstjórnin hefir
komizt á þa skoðun, að varnar-
leysi Islands stefni, eins og nú
er ástatt í alþjóðamálum, bæði
landinu sjálfu og friðsömum
nágrönnum þess í óbærilega
hættu.
Af þessum ástæðum hefir ver-
ið fallizt á að taka upp samn-
inga við Bandaríkin fyrir
hönd Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins um varnir íslands á
grundvelli Norður-Atlantshafs-
samningsins. Þeir samningar
hafa nú staðið yfir undanfarið.
Ríkisstjórnin hefir talið sjálf-
sagt að leita samþykkis þing-
manna lýðræðis - flokkanna
þriggja um samningsgerðina.
Hins vegar hefir ríkisstjórnin
ekki talið rétt að hafa samráð
við þingmenn Sameiningar-
flokks alþýðu — sósíalistaflokk-
inn, um öryggismál íslands.
Samningsgerðinni er nú lokið
og höfðu allir þingmenn lýðræð-
isflokkanna þriggja, 43 að tölu,
áður lýst sig samþykka samn-
ingnum svo sem hann nú hefir
verið gerður. Utanríkisráðherra
íslands hefir þess vegna í um-
boði ríkisstjórnarinnar, undirrit-
að samninginn af hálfu íslands
hinn 5. maí s.l. og var samning-
urinn sama dag staðfestur í ríkis
ráði af handhöfum valds forseta
íslands svo sem lög standa til.
Samningur þessi er gerður
með það fyrir augum, að á slík-
um hættu- og óvissutímum, sem
nú eru, sé séð fyrir vörnum ís-
lands, þannig að algert varnar-
leysi leiði ekki hættur bæði yfir
íslenzku þjóðina og friðsama ná-
granna hennar. Jafnframt er
það tryggt, að íslendingar geta,
með hæfilegum fyrirvara sagt
samningnum upp, þannig að við
getum látið varnarliðið hverfa
úr landinu, er við viljum og telj-
um það fært af öryggisástæðum.
Ef íslendingar sjálfir vilja og
treysta sér að einhverju leyti til
að taka varnirnar í eigin hend-
ur, er það á okkar valdi, en enga
skyldu tökum við á okkur til
þess.
Eftir samningnum er gert ráð
fyrir, að Bandaríkin taki að sér
að sjá fyrir nauðsynlegum ráð-
stöfunum til varnar landinu.
Það er komið undir ákvörðun
íslenzkra stjórnarvalda, hver
aðstaða þeim verður veitt í því
skyni. Samkvæmt samningnum
er ætlast til, að Keflavíkurflug-
völlur verði notaður í þágu
varna landsins, en ísland mun
taka í sínar hendur stjórn og á-
byrgð á almennri flugstarfsemi
á flugvellinum, enda fellur
samningurmn frá 7. október
1946 úr gildi við gildistöku þessa
samnings.
. Fjöldi liðsmanna er einnig
háður samþykki íslenzku ríkis-
stjórnarinnar.
Bandaríkin heita því að fram-
kvæma skyldur sínar skv. samn-
ingnum þannig, að stuðlað sé
svo sem frekast má verða að ör-
yggi íslenzku þjóðarinnar og
skal ávalt haft í huga, hve fá-
mennir íslendingar eru svo og
það, að þeir hafa ekki öldum
saman vanizt vopnaburði.
Berum orðum er tekið fram,
að ekkert ákvæði samningsins
megi skýra þannig, að það raski
úrslitayfirraðum Islands yfir ís-
lenzkum málum.
Um framkvæmdaatriði samn-
ingsins náðist í höfuðatriðum
samkomulag jafnframt samn-
ingsgerðinni, og verða samning-
ar um þau efni undirritaðir
bráðlega, og eru þar sum atriði
þess eðlis að aðgerða Alþingis
þarf við, enda mun málið á sín-
um tíma verða lagt fyrir Al-
þingi.
Þar sem ísland var með öllu
varnarlaust taldi ríkisstjórnin
það sjálfsagða varúðarráðstöfun,
að jafnskjott og samningurinn
yrði birtur yrði séð fyrir vörn-
um í landinu og hefir því 1 dag
lið komið til Keflavíkurflug-
vallar og setzt þar að.
Ráðstafanir þessar eru gerðar
af ríkri nauðsyn. Auðvitað hefðu
menn kosið að komast hjá þeim,
á sama veg og allar aðrar frið-
samar þjóðir vilja sleppa við
þungann og óþægindin af nauð-
synlegum varnaraðgerðum. En
þær meta þó á sama hátt og við
meira möguleikann til að kom-
ast hjá ófnði, eða a. m. k. draga
úr árásarhættunni.
I sjálfri samningsgerðinni
hafa Bandaríkin sýnt góðan
skilning á sjónarmiðum íslend-
inga og þörfum íslenzku þjóðar-
innar. Menn vita, að ýmiskonar
vandkvæði eru samfara slíkri
dvöl erlends herliðs í landinu.
íslendingar þekkja þau af eigin
raun, en úr því að slíkar varn-
aðarráðstafanir eru nauðsynleg-
ar, er það íullvíst, að eigi var á
betra kosið en að semja á grund-
velli Norður-Atlantshafssamn-
ingsins um þau efni við Banda-
ríkin, sem íslendingar hafa áður
haft slík skipti við og ætíð hafa
sýnt íslandi velvilja og stuðlað
að sjálfstæði og velfarnaði ís-
lenzku þjóðarinnar.
Óþarft er að taka það fram,
svo sjálfsagt sem það er, að ráð-
stafanir þessar eru eingöngu
varnaðarráðstafanir. A ð i 1 a r
samningsins eru sammála um,
að ætlunin er ekki að koma hér
upp mannvirkjum til árása á
aðra, heldur eingöngu til varnar.
Ráðstafanir þessar mótast af
þeirri ósk samningsaðilanna að
mega lifa í friði við allar þjóðir
og allar ríkisstjórnir og eru því
einn liðurinn í þeirri viðleitni
Sameinuðu þjóðanna að efla lík-
urnar fyrir varanlegum friði og
vaxandi farsæld í heiminum.
☆
Varnarsamningurinn
Þar sem íslendingar geta ekki
sjálfir varið land sitt, en reynsl-
an hefir sýnt, að varnarleysi
lands stofnar öryggi þess sjálfs
og friðsamra nágranna þess í
voða, og þar sem tvísýnt er um
alþjóðamál, hefir Norður-At-
lantshafsbandalagið farið þess á
leit við Island og Bandaríkin,
að þau geri ráðstafanir til, að
látin verði í té aðstaða á Islandi
til varnar landinu og þar með
einnig til varnar svæði því,
sem Norður-Atlantshafssamning,
urinn tekur til, með sameigin-
lega viðleitni aðila Norður-
Atlantshafssamningsins til að
varðveita frið og öryggi á því
svæði fyrir augum. Samningur
sá, sem hér fer á eftir, hefir ver-
ið gerður samkvæmt þessum
tilmælum.
I. GREIN.
Bandaríkin munu fyrir
hönd Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins og samkvæmt skuld-
bindingum þeim, sem þau hafa
tekizt á hendur með Norður-
Atlantshafssamningnum, g e r a
ráðstafanir til varnar Islandi
með þeim skilyrðum, sem grein-
ir í samningi þessum. I þessu
skyni og með varnir á svæði því,
sem Norður-Atlantshafssamn-
ingurinn tekur til, fyrir augum,
lætur Island í té þá aðstöðu í
landinu, sem báðir aðilar eru
ásáttir um, að sé nauðsynleg.
II. GREIN.
ísland mun afla heimildar á
landssvæðum og gera aðrar
nauðsynlegar ráðstafanir til
þess, að í té verði látin aðstaða
sú, sem veitt er með samningi
þessum, og ber Bandaríkjunum
eigi skylda til að greiða Islandi,
íslenzkum þegnum eða öðrum
mönnum gjald fyrir það.
III. GREIN.
Það skal vera háð samþykki
íslands, hverrar þjóðar menn
eru í varnarliðinu svo og með
hverjum hætti það tekur við og
hagnýtir þá aðstöðu á Islandi,
sem veitt er með samningi
þessum.
IV. GREIN.
Það skal háð samþykki ís-
1 e n z k u r íkisst j órnarinnar,
hversu margir menn hafa setu
á íslandi samkvæmt samningi
þessum.
V. GREIN.
Bandaríkin skulu framkvæma
skyldur sínar samkvæmt samn-
ingi þessum þannig, að stuðlað
sé svo sem frekast má verða að
öryggi íslenzku þjóðarinnar, og
skal ávallt haft í huga, hve fá-
mennir íslendingar eru svo og
það, að þeir hafa ekki öldum
saman vanizt vopnaburði. Ekk-
ert ákvæði þessa samnings skal
skýrt þannig, að það raski úr-
slitayfirráðum íslands yfir ís-
lenzkum málefnum. —
VI. GREIN.
Samningur sá, er gerður var
hinn 7. október 1946 milli ís-
lands og Bandaríkjanna um
bráðabyrgða-afnot af Keflavík-
urflugvelli, fellur úr gildi við
gildistöku samnings þessa, og
mun ísland þá taka í sínar hend-
ur stjórn og ábyrgð á almennri
flugstarfsemi á Keflavíkurflug-
velli. — Island og Bandaríkin
,munu koma sér saman um við-
eigandi ráðstafanir varðandi
skipulag á rekstri flugvallarins
til þess að samræma starfsemi
þar því, að hann er jafnfarmt
notaður í þagu varna íslands.
VII. GREIN.
Hvor ríkisstjórnin getur, hve-
nær sem er, að undanfarinni til-
kynningu til hinnar ríkisstjórn-
arinnar, farið þess á leit við
ráð Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins, að það endurskoði, hvort
lengur þurfi á að halda framan-
greindri aðstöðu, og geri tillög-
ur til beggja ríkisstjórnanna um
það, hvort samningur þessi skuli
gilda áfram. Ef slík málaleitan
um 'endurskoðun leiðir ekki til
þess, að ríkisstjórnirnar verði á-
sáttar innan sex mánaða frá því
að málaleitunin var borin fram,
getur hvor ríkisstjórnin, hve-
nær sem er eftir það, sagt samn-
ingnum upp, og skal hann þá
falla úr gildi tólf mánuðum síð-
ar. Hvenær sem atburðir þeir
verða, sem 5. og 6. gr. Norður-
Atlantshafssamningsins tekur
til, skal aðstaða sú, sem veitt er
með samnmgi þessum, látin í té
á sama hátt. Meðan aðstaðan er
eigi notuö til hernaðarþarfa,
mun ísland annað hvort sjálft
sjá um nauðsynlegt viðhald á
mannvirkjum og útbúnaði eða
heimila Bandaríkjunum að ann-
ast það.
VIII. GREIN.
Samningur þessi er gerður á
íslenzku og ensku, og eru báðir
textar jafngildir. Hann gengur
í gildi, er hann hefir verið undir-
ritaður af réttum yfirvöldum ís-
lands og Bandaríkjanna og ríkis
stjórn íslands hefir afhent ríkis-
stjórn Bandaríkja Ameríku til-
kynningu um, að samningurinn
hafi verið fullgiltur af íslands
hálfu.
Gert í Reykjavík, hinn 5. maí
1951.
Fyrir hönd Ríkisstjórnar ís-
lands: (sign) Bjarni Benedikts-
son, Utanríkisráðherra íslands.
Fyrir hönd Ríkisstjórnar
Bandaríkja Ameríku: (sign)
Edward B. Lawson, Sérlegur
sendiherra og ráðherra með um-
boði fyrir Bandaríki Ameríku á
íslandi.
—TÍMINN, 8. maí
Rovatzos Flower Shop
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
Bns. Ptaone 27 989—Res. Phone 36 151
Our SpecialUes:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQtTETS
FUNERAL DESK5NS
Ml*l I. ChrUtie, Proprletreu
Formerly with Robinson & Co.
Minnist
í erfðaskrám yðar.
Tilkynning ríkisstjórnarinnar um samn-
inginn milli íslands og Bandaríkjanna