Lögberg - 01.11.1951, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
t j u*»'w
,Tvers
A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
i u^'e
rvru Cle^eTS
1.awr10 S‘ A Complele
Cleaning
Inslitulion
64. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. NÓVEMBER, 1951
NÚMER 44
Hann muldrar ekki í barm sér
X-VL’OGS^X-------------'\X
Winsfon Churchill tekur viö völdum á Bretlandi
Úrslit brezku kosninganna, sem fram fóru á Bretlandi
síðastliðinn fimtudag, féllu á þann veg, að í haldsflokkur-
inn undir forustu hins víðfræga bardagamanns, Mr.
Churchills, gekk sigrandi af hólmi og hefir þegar tekið við
völdum; en ekki varð þó fylgismunur verkamanna-
flokksins og íhaldsflokksins meiri en það, að hin nýja
stjórn nýtur af eigin ramleik aðeins átján þingsæta meiri-
hluta; þessu til viðbótar, veita sex Liberalar stjórninni
stuðning í meginmálum, og ef til vill þrír utanflokkaþing-
menn. Svo fljótvirkt er brezkt þingræði, að eigi hafði fyr
orðið kunnugt um fullnaðarúrslit, en Mr. Attlee gekk á
fund konungs og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt;
að því búnu gerði konungur þegar boð eftir Mr. Churchill
og fól honum á hendur myndun nýs ráðuneytið, er hann
varð fúslega við. — Ráðuneytið er enn eigi að fullu skipað,
en Anthony Eden hefir tekið að sér forustu utanríkis-
ráðuneytisins, jafnframt því sem hann verður varafor-
sætisráðherra og framsögumaður stjórnarflokksins í
neðri málstofunni.
Skipaður í mikilvæga stöðu
Sennilegt er, að eitt hið fyrsta,
sem Winston Churchill tekur
sér fyrir hendur sem forsætis-
ráðherra Bretlands er, að heim-
sækja Harry Truman, Banda-
ríkjaforseta, og er talið að hann
muni hafa ólíkt meiri áhrif á
hann persónulega heldur en
fyrirrennari hans, Clement
Attlee. I því sambandi er sögð
sönn saga, sem er alvarleg en
þó óneitanlega spaugileg:
OÞað var fyrir mörgum mán-
uðum síðan, þegar Mr. Attlee
hraðaði sér til Washington til
þess að telja Mr. Truman af því
Úrslit kosninga
Viclor B. Anderson
Endurkosinn í 2. kjördeild
Bæjarstjórnarkosningar, sem
fram fóru þann 24. október síð-
astliðinn, breyttu að litlu til
um samsetning eða flokka-
skipun bæjarráðs að öðru leyti
en því, að Mr. Forkin, er lengi
hefir setið í bæjarstjórn fyrir
hönd kommúnista, tapaði með
fjögurra atkvæða mun fyrir Mr.
Frank Wagner, er bauð sig fram
af hálfu borgaraneíndarinnar;
líklegt þykir, að Mr. Forkin
krefjist endurtalningar.
I 2. kjördeild voru endur-
kosnir í bæjarráð þeir Jack St.
John, er eins og á undanförnum
árum fékk langhæzt atkvæða-
magn, James Black og Victor B.
Anderson.
Jack Sl. John
Endurkosinn í 2. kjördeild
Kosinn forseti
Kennarasamband Winnipeg-
borgar hefir á nýlega afstöðnu
ársþingi sínu, kosið Axel Vopn-
fjord kennara við Technical
Vocationalskólann hér í borg til
forseta fyrir næsta starfsár; er
þetta .verðug sæmd, því Mr.
Vopnfjord nýtur almennrar
hylli sem valmenni og hinn hæf-
asti maður í sinni stétt; fyrir fá-
um árum hlaut hann Bachelor
of Education mentastig við
Manitobaháskólann; um tólf
hundruð kennarar sóttu þingið.
að láta varpa atomsprengjum af
handahófi. Það var fljótlega
gengið frá því atriði, því Mr.
Truman hafði engan slíkan á-
setning í huga, en það voru önn-
ur mál sem þurftu að koma til
umræðu.
Mr. Attlee hafði verið vendi-
lega undirbúinn af ráðuneyti
sínu, til að sýna Mr. Truman
fram á, að skortur af hráefnum
væri orðinn hættulegur brezka
viðskiptakerfinu.
Hann talaði lengi við Mr.
Truman og benti honum á, að
ef ekki væri hægt að stöðva
hækkunina á verði hráefna, gæti
alt farið í kalda kol á Bretlandi.
Þegar hann hafði lokið þessari
dapurlegu ræðu ^sinni, urðu
menn steinhissa að sjá Mr.
Truman brosa ánægjulega.
„Þetta er fyrirtak, herra for-
sætisráðherra“, sagði h a n n.
„Þetta er ágætt, þessu fagna ég
að heyra“.
Mr. Attlee hafði muldrað í
barm sér, eins og hans er venja,
og það, ásamt hinum ókunnug-
lega brezka framburði, olli því,
að Mr. Truman hafði ekki skilið
eitt einasta orð, sem hann sagði.
Mr. Churchill muldrar ekki í
barm sér, og hann er aldrei
myrkur í máli.
Úr borg og bygð
The November meeting of the
Jón Sigurdson Chapter I.O.D.E.
will be held in the home of Mrs.
J. F. Kristjanson, 788 Ingersoll
St. on Friday, Nov. 2, at 8 o’clock.
☆
Mr. Lincoln Sveinsson, lyfja-
fræðingur og frú, frá Saskatoon,
ásamt ungum syni sínum eru
nýkomin til borgarinnar. Mr.
Sveinsson er starfsmaður Horner
Pharmaceuticals og hann hefir
nú tekið að sér ábyrgðarstöðu
fyrir þetta félag .hér í borginni.
Lincoln er sonur Mrs. Minnie
Sveinson, 11. Acadia Apts. hér
í borg, og fagna margir vinir
hans og fjölskyldunnar heim-
komu hans til Winnipeg.
☆
Þann 1. september síðastliðinn
voru gefin saman í hjónaband
að Santa Monica, California,
þau Mr. Frederick Friðgeirsson,
1235 Granville Avenue, og Mrs
Helga Orton frá Culver City.
Brúðguminn er sonur þeirra Mr.
og Mrs. Asgeir Friðgeirsson, sem
um langt skeið áttu heima að
Árborg, Man., en brúðurin er
dóttir Jónasar heitins Jónasson-
ar, sem mörgum er að góðu
kunnur frá all-langri dvöl í Sel-
kirk og Winnipeg, en lézt í höfuð
stað íslands; brúðurin er systir
hins þjóðkunna athafnamanns,
Sigurðar Jónassonar lögfræðings
og forstjóra í Reykjavík, en
stjúpmóðir hennar, frú Jóhanna
Jónasson, er búsett í Winnipeg.
Heimili þeirra Mr. og Mrs.
Friðgeirsson verður að 9708
National Bouleward, Culver
City, Cal.
☆
Mrs. J. T. Johannson —
Thelma, dóttir Árna heitins
Eggertssonar — kom til borgar-
innar um miðjan október. Héð-
an fór hún til Montreal, dvaldi
þar í tvær vikur hjá stjúpsyni
sínum, og lagði af stað flugleiðis
síðastliðinn laugardag til Wales
á Bretlandi í heimsókn til dótt-
ur sinnar, Mrs. Harold Williams,
sem þar er búsett. Hún gerir ráð
fyrir að dvelja þar í vetur og,
ef til vill, að heimsækja Island
áður en hún kemur til baka.
J. F. Krisljánsson
Síðastliðinn laugardag gerði
Mr. Fred J. W. White umsjónar-
maður atvinnumála, sem skrif-
stofu hefir í Winnipeg, kunnugt
að Mr. J. F. Kristjánsson hefði
verið skipaður af sambands-
stjórn nýr Regional Employ-
ment Officer fyrir norðvestur
Ontario, Sléttufylkin þrjú og
Peace River bygðarlögin í
British Columbia; er hér um að
ræða mikla virðingar- og ábyrgð-
arstöðu, sem er talandi vottur
þess hvers álits og trausts Mr.
Kristjánsson hvarvetna nýtur;
hann er maður frábærlega
skyldurækinn um störf og býr
yfir þeim hyggindum, sem í hag
koma.
Mr. Kristjánsson var um langt
skeið í þjónustu Canadian
National Railways, og starfaði
þar í þjónustu nýbygða- og land-
búnaðardeildarinnar, og er því
manna kunnugastur staðháttum;
um tíu ára skeið var hann ráðu-
nautur þeirrar nefndar, >er um
endurskipulagningu b ú n a ð a r
fjallaði og átti í fimm ár sæti í
þeirri nefnd.
Árið 1943 gekk Mr. Kristjáns-
son í þjónustu sambandsstjórn-
ar, er farið hafði fram á það við
Canadian National Railways að
mega verða aðnjótandi starfs-
krafta hans. Mr. Kristjánsson
var í fimm ár umboðsmaður
Canadian National Land Settle-
ment samtakanna, en í fimtán
ár féhirðir Scandinavian Colo-
nization-félagsskaparins; og nú
er hann ábyrgur fyrir þrjátíu
atvinnuskrifstofum í áminstu
umdæmi; hann á heima að 788
Ingersoll Street; hann er kvænt-
ur Steinunni Hallsson frá Lund-
ar, hinni ágætustu konu; þau
eiga þrjú mannvænleg börn, og
er elzt þeirra Friðrik, sem unnið
hefir margvíslega sigra á erfiðri
mentabraut.
Gestkvæm!1 á
prestssetri
, Á föstudaginn og laugardag-
inn í vikunni, sem leið, var gest-
kvæmt á hinu nýja og vin-
gjarnlega heimili þeirra séra
Valdimars J. Eylands og frú
Lilju Eylands, að 686 Banning
Street.
Eins og auglýst hafði verið í
vikunni á undan, buðu kvenfé-
lög Fyrsta lúterska safnaðar í
samvinnu við djáknanefndina,
meðlimum og vinum safnaðar-
ins, að kojna og skoða hið nýja
prestssetur og þiggja þar beina;
um hálft fjórða hundrað manns
notuðu sér þetta tækifæri; voru
veitingar hinar rausnarlegustu
og alúð prestshjónanna rómuð.
Sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar
Forseti íslands, herra Sveinn
Björnsson hefir sæmt Barney
Egilsson T)æjarstjóra á Gimli
riddarakrossi hinnar íslenzku
Fálkaorðu. Mr. Egilsson hefir
gegnt bæjarstjórasýslan sinni
um allmörg ár við góðan orð-
stír, enda ér hann vinsæll mað-
ur og greinargóður; með þessu
hefir hann eigi aðeins þegið
persónulega sæmd, heldur og
engu síður íslenzka landnámið
á Gimli, er í fyrra hélt hátíðlegt
75 ára afmæli sitt.
Við afhending orðunnar, sem
fram fór við kvöldmessu í lút-
ersku kirkjunni á Gimli á sunnu-
dagskvöldið var, mælti ræðis-
maður íslands á þessa leið:
Ávarp flult af Gretti Leo
Jóhannson raeðismanni íslands
í Sléttufylkjunum.
Kæru vinir!
Ég er hingað kominn í kveld
til að inna af hendi verk sem
vekur hjá mér sérstakan fögnuð;
ég minnist þess, og við minnumst
þess öll, er hin sögulega land-
námshájjð ykkar og okkar í til-
efni af 75 ára landnáminu var
hátíðleg haldin í þessum bæ í
fyrra sumar. Á þennan stað
komu umkomulitlir innflytjend-
ur frá íslandi um haustið 1875;
það var því vel til fallið og í
Hlýtur
doktorsgráðu
Á miðvikudaginn í vikunni,
isem leið, hlaut I. Gilbert Árna-
son, skólastjóri við Mulvey
gagnfræðaskólann hér í borginni
doktorsgráðu í heimspeki við
Manitobaháskólann fyrir frá-
bærar og mikijvægar rannsókn-
ir í dýrafræði; hefir nokkur
hluti doktorsritgerðarinnar ver-
ið birtur í Elisha Mitchell
Scientific Society’s Journal
Hinn nýi doktor er ágætur fræði-
maður með glæsilegan námsferil
að baki.
Dr. Árnason er sonur Svein-
bjarnar Árnasonar trésmíða-
meistara, sem ættaður var úr
Borgarfirði hinum syðra, er var
kunnur hagyrðingur, sem lézt í
Chicago, og eftirlifandi ekkju
hans, frú Maríu Bjarnadóttur,
ættaðri úr Árnessýslu.
Dr. Árnason naut alþýðu-
skólamentunar í Winnipeg, út-
skrifaðist af Manitobaháskólan-
um sem Bachelor of Arts 1926,
en hlaut meistaragráðu við sömu
mentastofnun 1929. Hann stund-
aði framhaldsnám um hríð við
háskólann í Chicago, en skóla-
kenslu í Winnipeg hóf hann árið
1924.
Barney Egilson
rauninni sjálfsagt að minningar-
hátíðin færi hér fram.
Ættþjóð okkar á Islandi sýndi
landnáminu í Manitoba, og þá
ekki sízt við Winnipegvatn, þann
sóma að send£ á hátíðina sér-
stakan erindreka ríkisstjórnar-
innar, herra Pálma Hannesson
rektor við Menntaskólann í
Reykjavík, og var komu hans og
frúar almennt mjög fagnað.
Ríkisstjórn íslands hefir ekki
viljað láta þennan sögulega at-
burð fram hjá sér fara án þess
að Gimlibæ væri sérstakur heið-
ur sýndur og hún valdi þann
kost, að heiðra Gimlibæ með því,
að sæma bæjarstjóra hans, er í
hátíðinni tók þátt, herra Bjarna
Egilsson riddarakrossi íslenzku
fálkaorðunnar.
Mr. Bjarni Egilsson!
I deem it, Sir, an honor and
privilege to be able, on behalf
of the, President and Govern-
ment of Iceland, to invest you
with the Knight Cross of the
Order of the Falcon, which I
know is well deserved by you
and honor to the community as
well.
Viðræður um
vopnahlé
Síðastliðna viku og fram að
þessum tíma, hafa staðið yfir
viðræður milli umboðsmanna
Sameinuðu þjóðanna annars
vegar og kommúnista hins veg-
ar, varðandi vopnahlé í Kóreu;
fram að þessu hefir lítið áunnist,
þó ekki vonlaust um árangur;
nú snýst deilan um það, hvar
og hve stórt hið friðlýsta svæði
skuli vera, þar sem lína skuli
dregin milli beggja aliðja.
Snarpar orustur eru háðar á
öllum vígstöðvum, og veitir
herjum Sameinuðu þjóðanna
jafnaðarlegast nokkru betur en
kommúnistum.
DR. PÁLL ÍSÓLFSSON DÓMKIRKJUORGANISTI
er heldur orgelhljómleika í Westminsterkirkjunni hér í borginni
á föstudagskvöldið þann 9. þ. m., kl. 8.30.
Frá æviferli og tónlistarstarfsemi þessa merka manns og kær-
komna gests, var allýtarlega skýrt hér í blaðinu í fyrri viku, og er
þess, að vænta, að eins margir íslendingar og vetlingi geta valdið,
sæki áminsta hljómleika.