Lögberg - 06.12.1951, Síða 7

Lögberg - 06.12.1951, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. DESEMBER, 1951 7 Fréttabrot frá Elliheimilinu Betel, á Gimli, sneriandi siörf þess fyrir árið 1950—1951. Svo óheppilega vildi til að ársskýrsla heimilisins, sem lesin var upp og viðtekin af síðasta kirkjuþingi hefir glatast. í stað hennar birtast hér fréttir af heimilinu og starfsrækslu þess á umliðnu ári. Það sem að gerði starfrækslu heimilisins sérstak lega erfiða á árinu voru óvenjulega mikil veikindi er þar geysuðu, og hin mörgu dauðsföll meðal vistfólksins. Þó má fullyrða að starfið gekk yfirleitt vel. Á húsmóðirin, Mrs. Tallman, alúðarþakkir skilið fyrir gott starf, er hún hefir af hendi leyst, oft undir örðugum kringumstæðum; hún hefir áunnið sér traust samverkafólks síns ekki síður en vistfólksins, en heimilinu vinsælda út í frá. Um starfsfólk heimilisins má með sanni segja að það hefir einnig góða þjónustu af hendi leyst. Dr. Geo. Johnson, læknir heimilis- ins, hefir áunnið sér álit fyrir hjálpsemi sína og ljúfa fram- komu meðal vistfólksins. — Meðan að prestlaust var í Gimli-prestakalli innti séra Sigurður Ólafsson í Selkirk nokkra þjónustu á heimilinu og lauk henni í aprílmánuði. Með byrjun maímánaðar hóf séra H. S. Sigmar þjónustu í Gimli-prestakalli; vænta allir er hlut eiga að máli blessunar af starfi hans á Betel, jafnt og í öllu prestakallinu. Ýmsar umbætur og viðgerðir áttu sér stað á heimilinu á umliðnu starfsári; m. a. viðgerð á þaki hússins; „Kentile“ gólfdúkur var lagður í samkomusalnum; vandaðir stólar keyptir til notkunar í matsal heimilisins; göngubrúin fyrir framan heimilið breikkuð; einnig áttu aðrar smá umbætur sér stað, bæði á heimilinu sjálfu og á dvalarstað þjónustu- kvenna heimilisins. Eitt af því sem var ærið áhyggjuefni fólksins á Gimli, en einnig allra er Betel unna, og þá ekki sízt stjórnarnefnd- ar heimilisins, voru skemdir af áflæði Winnipegvatns, er áttu sér stað í síðari tíð. Gleðiefni er það því öllum, er hlut eiga að máli, að Canadastjórn í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs hefir ráð- gert að leggja fram $65.000 til byggingar og viðgerðar flóð- garði á Gimli. Hefir verið unnið að þessu verki á umliðnu sumri. — Má það mikið mannvirki teljast — og væntanlega trygging gegn áflæðishættunni, er yfir vofði. — Nokkrar dánargjafir (“bequests”) hafa heimilinu hlotn- ast á árinu, eins og fjárhagsskýrsla heimilisins með sér fcer. Slíkar dánargjafir smáar og stórar hafa reynst heimilinu hin mestu bjargráð. Leiðir Betel stjórnarnefndin athygli safnaða Kirkjufélags vors og almennings að nauðsyn og þörf þeirra; enda fátt betur viðeigahdi en að styrkja þannig hið ágæta og sérstaka verk í þágu hinna öldruðu, sem Betel og öll elliheimilin meðal vor Vestur-íslendinga eru af hendi að inna; — en fyrir starf þeirra allra þökkum ' vér Guði af heitum og hrifnum huga. Reksturskostnaður Betel á umliðnu ári var $30.167.65, er nemur til jafnaðar $42.60 á mánuði fyrir hvern einstakan vistmann. Sökum stöðugrar verðhækkunar á öllum hlutum, sér stjórnarnefndin engin önnur ráð, en að biðja alla vist- menn, sem þess eru megnugir, að borga $45.00 á mánuði að lágmarki, frá 1. júní 1951 að telja. Af samanlögðum reksturskostnaði Betel, 630.167.65 (fyr- greindum) greiddi vistfólkið alls $27.667.48; varð því tekju- halli er nam $2.500.17. Almennar gjafir til heimilisins á árinu námu $1.830.80 Rentur og dividends ......................... 413.27 Tillag (grant) Manitobafylkis ............... 50.00 Samtals $2.294.07 Raunverulegur tekjuhalli því ................$206.10 Langt inn í viðlagssjóð, “The Pioneer Memorial Fund”, dánargjafir að upphæð ................$2.372.68 Meðfylgjandi eru nöfn vistfólks, er látist hefir frá 1. júní 1950 til 31. maí 1951: — Jón S. Johnson Stefán S. Johnson Guðni Brynjólfsson James Simpson Ásmundur Einarsson Guðbjörg Johnson Lýður Johnson Soffía K. Thordarson Lilja S. Alfred Margrét Árnadóttir Þorbjörg Friðgeirsson Petrína Gottskálksson Steinunn Magnússon Jón Stefánsson Vilhjálmur Vilhjálmsson Kristjana L. Johnson Stefanía Magnússon Sveinn Á Skaptfeld Karólína Ásbjörnsson. Meðfylgjandi eru einnig nöfn vistfólks, er á heimilið hefir komið frá 1. júní 1950 til 31. maí 1951: — Olgeir Jóhannesson Vilborg Thordarson Guðrún (Rúna) Johnson (Leslie, Sask) Lýður Johnson Gestur Felsted % Ásmundur Einarsson Swain Swainson (fyrverandi vistmaður) Ása Laventure Guðrún Johnson (Winnipeg, Man.) Halldór Guðjónsson Steinunn Magnússon Sigrún Thorsteinson Oadur Anderson Florence Stuart Henrietta Johnson Laugi Lyngholt. Þann 31. maí s.l. voru á heimilinu konur að tölu 31 og karlmenn að tölu 28, samtals 59, en fleiri vistmenn rúmar heimilið ekki. — Þannig er hin ytri og fjárhagslega saga Betel á um- liðnu ári. Endurnýjuð kynning af starfi heimilisins á téðu tímabili af hálfu þess er þetta ritar, fyllir hugann af að- dáun á því góða*starfi, sem þar er af hendi leyst, kærleiks- og þjóðræknisstarf í sönnustu merkingu, í þágu hinna aldur- hnignu og þreyttu á ævikvöldi þeirra. — Fyrir hönd Stjórnarnefndar Betel, S. Ólafsson - IN MEMORIAM: Gunnlaugur Guðmundsson Martin Born March 6, 1875 — Died April 3, 1951 Olher men have labored and ye are entered inlo their labors.— John 4:38 Jesus, in speaking to his dis- ciples about sowing and reap- ing, uses symbolic language and paints a picture with a deep spiritual meaning. The master is here speaking of efforts and labors for the kingdom of God. The disciples had been deeply concerned about the slow prog- ress—the slow growth of the kingdom. It is then that Jesus said unto them: “Other men have 1 a b o r e d and ye have entered into their labors.” These words were a revelation to his disciples and may well be that to some of us. Usually we think of the disciples as pioneers in the work for the kingdom. But Jesus reminds them that they have entered into the labors of those who had served God in generations p a s t. They had sown while others were reaping This reminds us of the onward march of the generations of men. How each, in its turn, has contributed its share, and by its labors made the faith easier for I those who follow. In a par- ticular way, this thought comes home to us as we, today, think of the labors of those who went before us—loved ones who shel- tered us in our youth, who gave so freely of their strength, and lovingly sacrificed for us in order that our faith might be easier because of their labors. This thought comes home to- day in a personal way when we think of the homecoming of your father, brother and friend. His earthly remains are to be laid to rest beside ’his loved ones in the community he loved, where he labored many bygone years; while his soul returns home to be united with those gone on before. The most precious possession left us is an honored name, a noble example of a faithful worker true to life’s duties. That possession belongs to you, his children. It will not tarnish nor lose its value as the years go by. Both your parents gave you their best, never counting the cost. The spirit of their home— your childhood home, where cheerfulness and optimism lifted you above the difficulties that crossed your path—was beauti- ful. An abiding bond of love was c r e a t e d that will e n d u r e through the years. Though the records of our lives may vary, Iife is a struggle for most of us common folks— even mors so in former years than today. Your father looked on that struggle as sacred. He gave his best and never held back. The burden was made heavier by his feeble health through many years and ' pro- longed sickness in early man- hood. This he bore with great fortitude. He had the will to live and overcome difficulties. Life was always sweet to him and he had much to live for. As life imposes its many tests, we show what we are and show the cour- age we have to meet life. In this test, your father was not found wanting. For the homesteader of forty and fifty years ago, the struggle for mere existence was an unremitting toil with meagre results. Your father, though never rich in worldly goods, was to you a loving father who al- ways supplied his family with a good home, food and clothing. In that, as in everything else, he had the wonderful cooperation of a splendid wife, your mother. He was deeply interested in the betterment of the commun- ity. From childhood he was a member of this church in Breiðu Gunrilaugur Guðmundsson Martin vík. He helped to build it. His hand was ever outstretched to help those in need wherever and whenever he could. And you, his children, will enter into the labors of your loved o,nes gone before. You will take up their banner; you will pass on to your children the best you have as they also passed that on to you. The good and beauti- ful they tried to sow in your minds, you will pass on to others. Being an Icelaqder, the blood of seafaring men ran in your father’s veins. He loved the lake, and was a builder of boats. Dur- ing his last illness, at his daugh- ter’s home in Portage la Prairie, he often spoke of coming back to the shores of the lake to build another boat. From these shores, the shores of time, he has now been allowed to steer his craft and enter the eternal haven in the nearer presence of God. When I go down to the sea hy ship And Death unfurls her sail, Weep not for me, for there will ' be ' A living host on the other coast To beckon and cry “all hail.” ☆ GUNNLAUGUR Guðmundsson ]\Iartin var fæddur 6. marz 1875, að Flögu í Breiðdal, í Eydala- sókn í Suður-Múlasýslu. Faðir hans, Guðmundur Marteinsson, (síðar landnemi og bóndi að Garði í Hnausabygð í Nýja- íslandi) var sonur Marteins Jóns sonar og Guðbjargar Marteins- dóttur. Móðir Gunnlaugs en mið- kona Guðmundar föður hans, var Kristín Gunnlaugsdóttir Bjarnasonar og Helgu konu hans Þorvarðardóttur. Systkini Gunnlaugs voru: — Jóhanna, hálfsystir, er dó ung á íslandi; Helga, ekkja Bjarna Marteinssonar, bónda að Hofi í Breiðuvík, nú nýlátin; Sigrún, gift O. Oddleifssyni, Árborg, Man.; Kristborg, Mrs. McGilvary Minneapolis, Minn.; Einar, bóndi að Litla-Garði, Hnausa, lájinn; Antoníus, bóndi við Árnes, Man.; Marteinn, búsettur við Baldur, Man. Síðasta kona Guðmundar föð- ur Gunnlaugs var Ingibjörg Helgadóttir. Hálfsystkini af því hjónabandi eru: Guðlaug, dáin fárra mánaða; Helgi Daníel, bú- settur í Winnipeg, Man.; og Jón Edwin, búsettur í Langruth, Man. Gunnlaugur fluttist ásamt for- eldrum sínum vestur um haf árið 1878, þá á þriðja aldursári Fjölskyldan dvaldi um hríð á Sandy-Bar,* en síðar nam faðir hans land að Garði, og þar ólst Gunnlaugur upp með foreldr- um sínum. Þann 7. nóv. 1899 kvæntist hann Sigríði Kristjóns- dóttur Finnssonar kaupmanns, hún andaðist að heimili dóttur sinhar og tengdasOnar, Mt. og Mrs. Charles Harkess í Portage la Prairie, Man. 21. febr. 1949. Börn þeirra hjóna eru: Frances Willard, Mrs. G. F. Bergman, Gimli, Man.; Friðrikka Margrét, Mrs. S. S. Bergman, Árnes, Man.; Ingunn Kristín, Mrs. Wil- liam Charles Harkess, Charles- wood, Man.; Herbert Arnold, Hnausa, Man., kvæntur Ragn- heiði Vídalín; Alfred Robert, Víðir, Man., kvæntur Beatrice Kristjánsson; Gunnlaugur Sig- urður, Winnipeg, kvæntur Guð- rúnu Sigmudsson; Halldór Egill, Hnausa, Man., kvæntur Lilju Pálsson; Emily Sigurrós, dó 13 ára gömul; og tvíburar, sem dóu í bernsku. Barnabörn e^u 24. Gunnlaugur andaðist 3. apríl s.l. að heimili Kristínar dóttur sinnar, Mrs. William Charles Harkess, þá til heimilis í Portage la Prairie, Man. Það streyma hlýjar hugsanir ástvina og samferðafólks um minningu landnámshjónanna, — Gunnlaugs og Sigríðar á Lauga- landi. S. Ólafsson menningu og málefni frænda okkar í Færeyjum. En ekki væri vansalaust, ef rétt skyldi vera, það sem einstaka illkvittnar sál- ir hafa haldið fram, að við lið- um af „stórveldiskompleksi" gagnvart þeim þjóðum, sem minni eru en við! En það er einmitt smæð hinnar færeysku þjóðar, sem verður til þess, að það gengur kraftaverki næst, áð henni tókst að halda tungu sinni og sérstæðri menningu gegnum aldirnar. Færeyingar áttu engar skráðar bókmenntir á máli sínu. Kirkjumálið var danska, laga- málið sömuleiðis, og kennslan í skólunum fór mestmegnis fram á dönsku fram á næst síðasta áratug. Færeyskt ritmál varð í raun réttri ekki til fyrr en á nítjándu öld. Húr voru því öll skilyrði til staðar, til þess að þessi fámenna þjóð glataði þjóð- erni sínu. Hvað var það þá, sem fleytti henni yfir alla þessa örð- uðleika? Því’er fljótsvarað. Það eru hinar þjóðlegu bókmenntir, sem lifðu á vöruruf fólksins öld fram af öld — danskvæðin. Þar Jón Björnsson skrifar um: BÓKMENNTIR Færeyskar^ sagnir og ævinlýri. Pálmi Hannesson og Theodóra Thoroddsen sneru á íslenzku. Bókaútgáfan Norðri. FÆREYINGAR eru sú af nor- rænu frændþjóðunum, sem okk- ur er næst og nákomnust. Ætla mætti því að náin samskipti hefðu jafnan verið milli þessara þjóða, þar sem svo margt er líkt með þeim í atvinnuháttum og menningu. Því fer þó fjarri, að svo hafi verið. Allur almenning^ ur hér á landi hefir haft sára- lítil kynni af þessum frændum okkar. Þeirra er sjaldan getið í blöðunum, og þeir eru víst telj- andi, sem hafa nokkra hugmynd um hvernig stjórnarháttum í Færeyjum er varið. Þá sjaldan blöðin hafa flutt fregnir þaðan, hafa þær venjulega komið frá Danmörku, og að því er stjórn- málum viðvíkur, hafa þeir oftast verið mótaðar af dönskum við- horfum. Svipuðu máli gegnir um þekkingu okkar á færeysk- um bókmenntum. Að vísu hafa tvær eða þrjár skáldsögur eftir Færeyinga komið út í íslenzkum þýðingum á síðustu árum. En það er hvergi nærri nóg. Færeying- ar hafa átt mörg góð ljóðskáld, ,pg nægir að nefna bræðurna Djurhuus, sem báðir eru í röð beztu ljóðskálda. Eins og kunn- ugt er líkist færeyskan íslenzku svo mjög, að hver meðalgreindur maður skilur hana á bók. Það er því undarlegra að ekki skuli vera unnt að ná í eina einustu færeyska bók í bókabúðum hér^ En það tæplega va/isalaust fyrir aðra eins bókmenntaþjóð og við erum. Færeyingar efu sjötta nor^ena þjóðin, þó að þeir hafi verið amt í Danmörku fram á síðustu ár, er þeir fengu takmarkaða heimastjórn. Þeir eiga ekkert sameiginlegt með Dönum fram- aí- öðrum Norðurlandaþjóðun- um. Þetta hafa ýmsir víðsýnir menn í Danmörku skilið, og tal- að drengilega máli þeirra hjá þjóð sinni. En því minnist ég á þetta, að méf kom í hug dag- skrá Norrænu félaganna í út- varpinu á dögunum, þar sem Færeyingar voru ekki nefndir á nafn, fremur en þeir væru alls ekki til. Hvers eiga þeir að gjalda? Er það ekki einmitt aðal hlutverk þessa félagsskapar, að stuðla að gagnkvæmum kynnum Norðurlandaþjóðanna? Ríkis- tengsl ættu ekki að skipta máli í því sambandi. Manni kemur rétt sem snöggvast til hugar, að eitthv^ð muni kannske vera hæft í tali þeirra svartsýnu manna, sem svo mjög var deilt á í útvarpsdagskrá þessari, að fullmikið bæri á skálaræðum í þessum félagsskap! Hér er ekki tækifæri til að rekja prsakir þess áhugaleysis, sem ríkjandi er hér á landi um sem Færeyingar koma saman til gleðskapar þykir sjálfsagt að dansa. Og þjóðdans Færeyinga er alveg einstakur í sinni röð. Færeyingar >eiga ósköpin öll af danskvæðum. Sum þeirra eru meira að segja um íslenzk efni, svo sem Gunnarskvæði, o. fl. Ljómur Jóns biskups Arasonar hefir borizt til Færeyja tiltölu- lega snemma, og er notaður þar sem danskvæði. Mörg af kvæð- um þessum voru gefin út af Jó- hannresi Patursson. Flest þeirra eru geysilöng, mörg hundruð er- indi, en eigi að síður kunnu margir þau utanbókar. — Auk þjóðkvæðanna lifði urmull af þjóðsögnum á vörum fólksins. Sagnirnar eru flestar tengdar við menn og viðburði fyr»alda, en sumt eru ævintýri af erlend- um uppruna. Hinn góðkunni færeyski fræðimaður, dr. Jakob Jakobsson, safnaði þjóðsögnum úr eyjunum og gaf þær út á diigsku um aldamótin. Nú hafa þau Pálmi Hannesson rektor og frú Theodóra Thoroddsen valið um 70 sögur úr safni Jakobsens og þýtt a íslenzku. Bókin er ný- lega komin á markaðinn og er um 200 síður í stóru broti. Henni er skipt í tvo höfuðhluta. í hin- um fyrri eru þjóðsögurnar, og fer langsamlega mest fyrir þeim. Seinni hlutinn er sbfn af ævin- týrum. Framan við bókina er ítarlegur formáli ^tir Pálma Hannesson. Er þar gerð grein fyrir helztu einkennum í þjóð- lífi Færeyinga, sögu þeirra og bókmenntum. Formálinn er hinn fróðlegasti, eins og vænta mátti, og allur frágangur bókarinnar til fyrirmyndar. Eins og getið er í formála, má segja, að hinar færeysku þjóð- sagnir séu fremur fábreyttar í samanburði við íslenzkar þjóð- sögur. Þar vantar í raun og veru heila flokka af sögum, sem al- gengar eru hér á landi. Flestar sögurnar eru um afreksmenn og konur, sem vissu lengra nefi sínu. Þarna eru nokkrar sögur frá Tyrkjaráninu í Færeyjum. í þessu safni mun vera að finna sögnina, sem Jörgen Frants Jakobsen notaði sem uppistöðu í hina frægu skáldsögu sína Barbara, sem út kom á dönsku 1938 og varð þegar ein víðlesn- asta skáldsaga á Norðurlöndum. Það er fengur að því, að hafa fengið úrval þetta á íslenzku. Sögurnar gefa góða mynd af lífi færeysku þjóðarinnar, eins og það var fyrrum, og ég trúi ekki öðru, en að íslenzkir lesendur, hafi ánægju af að kynna sér þennan þátt í menningarlífi þess arar nánustu frændþjóðar okkar. AÐ VESTN, Sagnaþæilir og þjóðsögur I. Árni Bjarnason bjó til prent- unar. Bókaútg. Norðri. ÞAÐ ER ORÐIÐ mikið að vöxt- um, sem Vestur-íslendingar hafa lagt til íslenzkra bókmennta. En hér heima munu ljóðskáldin Framhald á bls. 8

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.