Lögberg - 07.02.1952, Page 1
65. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. FEBRÚAR, 1952
PHONE 21 374
.„,4 V*??*
.ner*
A Complele
Cleaning
Insiitutíon
NÚMER 6
Hans Hátign, George Bretakonungur, lézt í svefni aðfaranótt miðvikudagsins
Hinn ástsæli konungur bfezka
heimsveldisins, George hinn
sjölii, lézt í svefni aðfaranóti
miðvikudagsins í Sandringham
höll, 56 ára að aldri. Hann virtist
hafa að fullu náð sér eftir hinn
stóra uppskurð, sem á honum
var gerður í haust sem leið, og
hafði, að því er virtist gengið
heill til hvílu um kvöldið.
Elizabeth ríkisarfi, sem var
nýlega komin til Afríku ásamt
manni sínum, þar sem þau höfðu
áæílað að verja næstu fimm
mánuðum í heimsókn til hinna
ýmsu brezku þjóðlanda, kemur
heim á morgun, og hefir tekið
við ríkiserfðum af íöður sínum.
Þessi miklu tíðindi bárust á öld-
um ljósvakans út um heim allan
snemma á miðvikudagsmorgun-
inn.
Hans Hátign, George Bretakonungur, látinn
Hennar Hátign, Elizabeth Breladrotning
Sæmdur riddarakrossi hinnar
íslenzku Fálkaorðu
Velmegun í
British Columbia
í Saturday Night, 2. febrúar,
er löng grein um British Colum-
bia og þá miklu^velmegun, sem
nú kvað ríkja í því fylki, sér-
staklega síðan þar tók við völd-
um Byron Johnson forsætisráð-
herra. Fyrir hans atbeina hafa
stór auðfélög tekið að sér að
vinna úr náttúruauðlindum á
svæðum, sem ekki hafa verið
snert áður, eins og aluminium
námurnar og raforkuverið í
Kenano—Kitimat 400 mílur fyr-
ir norðan Vancouver. Á þessu
ári er ráðgert meðal annars að
reisa 65 miljón dollara pappírs-
mylnu og leggja olíuleiðslu alla
leið frá Edmontön til Vancouver
og mun það kosta um 83 miljón-
ir dollara. Er sagt í þessari grein
að British Columbiafylkið sé
með auðugustu landsvæðum í
heimi. íbúatalan hefir hækkað
)
um 41 prósent á síðustu tíu árum J
og er nú 1,165.000.
Johnson forsætisráðherra er
maður stórhuga og lætur ó-
gjarnan segja sér fyrir yerkum.
Eins og skýrt var frá í Lögbergi
fyrir skömmu, átti hann í erj-
um nýlega við forustumenn
íhaldsflokksins, sem lauk með
því að íhaldsmönnum var vikið
úr stjórninni. Einnig var ósam-
lyndi milli hans og nokkurra af
hans eigin flokksmönnum, er
vildu halda flokksþingið í
febrúar. Er sagt frá þessu í
nefndri grein: „Þegar sígur í
hann, þá er Boss Johnson áhrifa-
mikill maður. Hann kom á vett-
vang í bardagahug og gaf and-
stæðingum sínum ekkert eftir.
Þegar birti til eftir hríðina var
búið að ákveða að þingið yrði í
júní, forsætisráðherrann hafði
rutt sér leið til baka í foringja-
sess; jafnvel þeir, sem voru á
móti honum, töluðu nú með að-
dáum um „hinn nýja Boss John-
son .
Síðastliðið sunnudagskveld, að
aflokinni guðsþjónustu í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg,
kunngerði Grettir L. Jóhanns-
son, ræðismaður íslands í Vest-
ur-Canada, að forseti íslands
hefði sæmt séra Philip M. Pét-
ursson riddarakrossi hinnar ís-
lenzku Fálkaorðu, og fórust
rscðismanninum við afhendingu
heiðursmerkisins orð á þessa
leið:
Séra Philip M. Pélursson
Séra Philip Markús Pétursson,
forseti Þjóðræknisfélags Islend-
inga í Vesturheimi; forseti hins
Sameinaða kirkjufélags íslend-
inga í Vesturheimi; prestur
Sambandssafnaðar í Winnipeg!
Kæru vinir!
Mér er það sérstakt ánægju-
efni að vera staddur hér í kveld
og framkvæma starf sem mér
er ljúft að inna hf hendi.
Svo er mál með vexti að for-
Fylkisþing kemur
saman
Á þriðjudaginn kom fylkis-
þingið í Manitoba saman til
funda, og var sett með venju-
legum hátíðabrigðum af fylkis-
stjóranum, Hon. R. F. McWil-
liams, er flutti þinginu stjórn-
arboðskapinn. Búist er við löng-
um og ströngum ræðum um
raforkumál fylkisins, sem nú
eru mjög á dagskrá; gert er ráð
fyrir all ríflega aukinni fjár-
veitingu til mentamálanna.
seti íslands hefir sæmt þig, séra
Philip, riddarakrossi hinnar ís-
lenzku Fálkaorðu í viðurkenn-
ingarskyni fyrir starf þitt í þágu
íslenzkra menningarmála meðal
okkar Vestur-íslendinga; með
þessu hefir einu sinni enn hlý
bróðurhönd venð rétt yfir hafið
til eflingar hinu andlega sam-
bandi milli Islendinga austan
hafs og vestan.
Ég tel mér það mikla sæmd
að mega nú afhenda þér í um-
boði forseta Islands riddarakross
hinnar íslenzku Fálkaorðu, sem
ég vona að þú njótir vel og lengi.
Svo bið ég þér blessunar í
framtíð allri.
Að loknu máli ræðismanns,
þakkaði séra Philip með hlýjum
orðum þá sæmd, er íslenzk
stjórnarvöld hefðu veitt sér, um
leið og hann þakkaði Gretti
ræðismanni hlý orð í sinn garð.
Að því loknu var gestum boð-
ið til rausnarlegra veitinga í
samkomusal kirkjunnar.
The National
Good Templar
Þetta rit er allsherjar mál-
gagn Good Templara í Banda-
ríkjunum og fer því víða um
álfuna; það er gefið út í Minne-
apolis, Minn. 1 janúarhefti rits-
ins skipar öndvegi hin ágæta
ræða um Good Templara regl-
una, sem Dr. Richard Beck
flutti á hátíðarsamkomu ís-
lenzku stúknanna í Winnipeg í
fyrra vor, og prentuð var á sín-
um tíma í Lögbergi; einnig er
í umræddu hefti hlýlega minnst
Arinbjarnar heitins Bárdals og
segir meðal annars að hann hafi
verið driffjöðrin í Good Templ-
ara starfseminni í Manitoba í
meir en 50 ár, og er þess einnig
minnst hve ánægjulegt var að
kynnast þessum lífsglaða manni
síðastliðið sumar, þegar hann
sótti hundrað ára afmælishátíða-
höld reglunnar í Minneapolis,
sem fulltrúi reglunnar í Mani-
toba.
Minningarguðs-
þjónustur
Ríkisstjórnar George konungs
VI. og æfistarfs verður minnst
við báðar guðsþjónusturnar í
Fyrstu lútersku kirkju á sunnu-
daginn kemur, 10. febrúar, kl.
11 f. h. og kl. 7 að kvöldi.
Skipaður í óbyrgð-
armikla stöðu
Maurice C. Eyjólfsson
Þessi efnilegi ungi maður
hefir verið starfsmaður hjá
Moore Buisness Forms, Western
Ltd. í undanfarin sex ár við vax-
andi orðstír og vinsældir; hafa
honum verið falin æ vandasam-
ari störf svo að segja með ári
hverju og nú hefir hann verið
skipaður sölu-umboðsmaður fyr-
ir félag sitt í Regina, Moose
Jaw og umhverfi þessara borga.
Skrifstofur hans verða í Moose
Jaw. Hann fór vestur í gær.
Maurice er sonur frú Arn-
heiðar Eyjólfsson og látins
manns hennar, Friðriks Eyjólfs-
sonar frá Riverton.
Sjaldgæft slys
Á mánudaginn vildi það slys
til, að flugvél með þrjá menn
innanborðs, rakst á útvarps-
turn, sem Canadian Broadcast-
ing félagið starfrækir í grend
við bæinn Carman hér í fylkinu
og létu allir mennirnir líf sitt;
þetta var æfingaflugvél, er
taldist til canadíska loftflotans;
turninn var 590 fet á hæð; um
kvöldið fórust einnig á þessum
stöðvum þrír menn aðrir, er
sendir höfðu verið þangað til
þess að gera við turninn, er þá
hrundi til grunna.
Miðsvetrarmót „Fróns"
1 síðastliðin þrjátíu ár hefir
Frón efnt til Islendingamóts í
þriðju viku febrúarmánaðar,
enda er þetta orðinn svo fastur
vani að deildinni fanst óhugs-
andi að breyta til með tímann
þó nú sé svo komið, að næsta
þjóðræknisþing verði ekki hald-
ið fyr en einhverntíma næsta
sumar.
Frón veit það vel, að þeir
utanbæjarmenn, sem þingið
sækja að jafnaði, eiga ekki lítinn
þátt í því hvað mótið er vana-
lega vel sótt og var það því ekki
að ástæðulausu að deildinni
fanst að nú yrði að -vanda til
þessarar helztu vetrarsamkomu
Islendinga jafnvel betur en að
undanförnu. Þetta held ég að
hafi tekist vonum betur. Ræðu-
maðurinn verður Finnbogi Guð-
mundsson prófessor, sem þegar
hefir fengið orð á sig sem af-
burða ræðumaður; en höfuð-
skáld okkar Vestmanna, Gutt-
ormur J. Guttormsson, les upp
kvæðaflokk eftir sig, alveg nýjan
af nálinni. Ræðu og kvæði eru
okkur Vestur-Islendingum að
vísu bæði matur og drykkur, en
ekki er „söngsins englamál“
síður kærkomið. Til þess að
ekkert skorti á að samkoma
þessi verði sem skemtilegust
höfum við fengið þær Mrs. Lilju
Thorvaldson og Evelyn dóttur
hennar til að syngja tvísöng
o. fl. Karlakór til þess að syngja
íslenzk og önnur skandinavisk
lög. Kór þessi er undir stjórn
Mr. A. Hoines, söngstjóra
Norwegion Glee Club, og mun
hann láta syngja ýms góðkunn
lög svo sem „Olav Tryggvason"
sem Norðmenn syngja manna
bezt.
Víst er um það, að Frónsmót
þetta, sem haldið verður í G. T.
húsinu á mánudaginn, 18. febrú-
ar n.k., verður í alla staði fyrir-
myndar samkoma. Inngangur-
inn verður einn dollar og er þá
dansinn talinn með. Auk þess
geta allir, sem það vilja, fengið
sér kaffi og hvers kyns góðgerðir
fyrir 35 cent.
Takið eftir rtánari auglýsing-
um í næstu blöðum.
H. Thorgrímsson.
ritari Fróns
GULLBRÚÐKAUP
Á langardaginn, i’*"'. coruar,
söfnuðust um þrjátíu nánustu
ættingjar þeirra Mr. og Mrs.
Magnús Brandson, 1021 Clifton
Street, hér í borginni, saman í
Homestead veizlusalnum, til að
minnast fimmtíu ára hjúskapar-
afmælis þeirra hjóna. Þann dag,
fyrir hálfri öld, voru þau gefin
saman í Ólafsvík, af séra Helga
Árnasyni. Árið 1910 fluttust þau
vestur um haf, ásamt þremur
börnum sínum ungum. Hafði
Magnús lært trésmíðaiðn á ís-
landi, og hafði stundað þá vinnu
lepgst ævinnar, að undan-
teknum tíu árum, er hann fékst-
uð búskap og fiskiveiðar við
Manitobavatn; áttu fjölskyldan
þá heima við Oak View og Sig-
lunes. En í Winnipeg hafa þau
átt heima samfleytt síðan 1926.
Magnús hefir verið iðjumaður
mikill og reglusamur um alt,
enda hefir honum farnast vel, og
verið vel látinn af öllum,. Þau
hjón eiga átta börn á lífi; eru
þau: Þarkell; Hrefna, Mrs. Matt-
hías Johnson, Vancouver; Ellis
Gunnar; Sigurður; Vilhjálmur;
Gestur; Ágústa, Mrs. Fred
Nelson, og Herbert. Barna-
börnin eru nú orðin átján; og alt
er þetta hið myndarlegasta fólk,
og vel gefið. Er því barnalán
þeirra mikið. Dvelja gömlu hjón-
in nú í mjög snotru og þægilegu
húsi, ásamt Herbert, yngsta syni
sínum; en aðrir synir þeirra,
giftir fjölskyldumenn, búa á
sama strætinu í næstu húsum.
Tveir bræður Magnúsar, Oddur
og Hjörtur, eru einnig búsettir
hér í borginni, og voru þeir við-
staddir á þessari fagnaðarsam-
komu fjölskyldunnar. Ávarpaði
Hjörtur gullbrúðhjónin, en hann
er sem kunnugt er, vel máli far-
inn og hagyrðingur góður. Heilla
óskaskeyti bárust þeim frá ætt-
ingjum á íslandi.
Magnús er fæddur að Vatna-
búðum í Eyrasveit, í Snæfells-
nessýslu. Foreldar hans voru
Guðbrandur Guðbrandsson, og
Guðbjörg Magnúsdóttir, búend-
ur þar. Guðrún, kona hans er
dóttir Guðbrandar Þorkellsson-
ar, prests, Eyjólfssonar frá Búð-
um í Staðarsveit; þjónaði hann
Ásum í Skaptártungu, 1843, og
síðar Borg í Borgarfirði, 1859.
Móðir Guðrúnar var Guðbjörg
Vigfúsdóttir, kona Guðbrandar.
Bróðir Guðrúnar er Vigfús Guð-
brandsson, klæðskeri, Austur-
stræti 10, í Reykjavík.
Hinir mörgu vinir þeirra Mr.
og Mrs. Brandson, í Winnipeg og
víðar, óska þessum sæmdarhjón-
um allrar blessunar á þessu
merkisafmæli þeirra.
V. J. E.
Mr. and Mrs. Magnús Brandson