Lögberg - 07.02.1952, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. FEBRÚAR, 1952
Listrænt skáld og vaxandi
Eftir prófessor RICHARD BECK
Guðmundur Frímann: Svört verða sólskin.
Bókaforlag Þorsteins M. Jónssonar, Akureyri 1951.
I.
GUÐMUNDUR FRÍMANN eff'
fjarri því að vera nýliði í
skáldahópnum, því að þetta er
fjórða kvæðabók hans; jafn-
framt hefir hann verið vaxandi
maður í ljóðmenntinni, og sjást
þess hvergi betur merki heldur
en í þessari nýjustu bók hans,
er skipar honum hiklaust innar-
lega á bekk íslenzkra samtíðar-
skálda.
Áður en lengra er farið mun
þó réttast að segja vestur-ís-
lenzkum lesendum nokkur frek-
ari deili á Guðmundi skáldi, því
að fæstir þeirra munu hafa átt
þess kost að fylgjast með ferli
hans. Fæ ég eigi betur gert í
þeim efnum, en tekið upp eftir-
farandi gagnort æviágrip hans,
er birtist nýlega í tímaritinu
„VIKUNNI“ í Reykjavík í sam-
bandi við útkomu ofannefndrar
ljóðabókar hans:
„Hann er Austur-Húnvetning-
ur, fæddur að Hvammi í Langa-
dal 1903, sonur Guðmundar Frí-
mannssonar, bónda þar og konu
hans, Valgerðar Guðmundsdótt-
ur, bónda í Mörk í Laxárdal
Guðmundssonar. Ólst Guðmund-
ur Frímann upp með foreldrum
sinum til tvítugs. Réðst hann þá
í listnám, til Einars myndhöggv-
ara Jónssonar frá Galtafelli, einn
vetur, en hvarf frá því; líkaði
ekki leirsmíðið. Síðan hefir Guð-
mundur lagt á margt gjörva
hönd: Vegagerð, húsgagnasmíði
(rak vinnustofu í 10 ár), um átta
ára skeið var hann verkstjóri í
vélabókbandi á Akureyri. Bóka-
verzlun rak hann þar í tvö ár og
var önnur tvö kennari í Reyk-
holtsskóla.. Hann hefir fengist
_JVíð._tei)criipg.ijL_pg» ýjpiglegt list-
föndur og haft yndi af því. En
framar öllu öðru hefir hann tek-
ið ljóðagerðina. Nú mun í ráði,
að hann taki við kennslu í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar“.
II.
Fyrsta bók Guðmundar Frí-
manns, „Náttsólir“, kom út 1922,
er höfundurinn var aðeins 19
ára gamall; eru þessi æskuljóð
hans, eins og vænta mátti, æði
ungæðisleg um margt, en yfir-
leitt ort af lipurð og smekkvísi,
og þar bregður fyrir leiftrum,
sem vekja vonir um meiri afrek
í ljóðagerðinni, er fram líði
stundir.
Næsta bók skáldsins, kvæða-
safnið „Úlfablóð", undir dul-
nefninu „Álfur frá Klettastíu“,
kom út ellefu árum síðar (1933).
Hér er stórum þroskaðra skáld á
ferð, margt góðra náttúrulýs-
inga, formfestan og bragsnilldin
meiri, einkum í vali frumlegra
og persónulegra bragarhátta.
Kvæðin eru ljóðræn að blæ, með
undirstraum mildrar saknaðar-
kenndar.
Á sama strenginn er einnig
slegið í þriðju og fram að þeim
tíma beztu bók hans, „Störin
syngur“ (1937), er bergmálar
djúpa þrá hans eftir æskudaln-
um hans fagra í Húnaþingi, en
hann er efni margra þessara
kvæða. í svipuðum anda eru
aðrar náttúrulýsingar skáldsins,
Ijóðrænar sem áður og oft ortar
undir sérstæðum og vel völdum
bragarháttum. Gildir hið sama
um önnur kvæði í þessu safni,
bæði um hugþekktar sveitalýs-
ingarnar og svipmyndirnar af
olnbogabörnum lífsins, sem tala
til samúðar skáldsins. Mest
kveður samt að sumum mannlýs-
ingunum í bókinni; einkum er
kvæðið „Drukkinn bóndi úr
Skyttudal“ bæði hressilegt og
bráðskemmtilegt, bregður upp
rauntrúrri og eftirminnilegri
mynd af ölkærum bóndanum og
farandskáldinu.
Kvæðin í þessari bók Guð-
mundar báru því órækan vott,
að honum voru óðum að vaxa
vængir í skáldskapnum, bæði
um val persónulegra og frum-
legra yrkisefna og meðferð
þeirra. Hlaut þetta kvaéðasafn
hans einnig, að verðleikum, á-
gæta dóma. Fór séra Benjamín
Kristjánsson, meðal annars, þess-
um orðum um bókina í ritdómi
í „Nýja Dagblaðinu":
„Höfundurinn er skilgetinn
„sonur langholts og lyngmós“ og
„sif ji árfoss og hvers“. — í kvæð-
um hans rís landið í sumardýrð
sinni og vorfegurð. Guðmundur
má nú teljast með góðskáldum
vorum. Kvæði hans eru hljóm-
þýð og áferðarfögur, og minnir
geðblærinn stundum á Omar
Khayyam. Þó fer höfundurinn
mjög sínar leiðir og verður ekki
vart að hann stæli aðra“.
Ljóðavinir biðu því næstu
bókar Guðmundar með nokkurri
eftirvæntingu, og nú, eftir fjór-
tán ár, hefir hann rofið þögnina
með bók sinni „Svört verða sól-
skin“, sem þegar hefir hlotið ó-
■venjulega lofsamlega dóma
gagnrýnenda heima á ættjörð-
inni.
III.
Öndvegi í þessari nýju bók
skipar eitt af fegurstu kvæðum
hennar og um margt sérkenn-
andi fyrir skáldið, „Haust við
Blöndu“; bera eftirfarandi er-
indi því fagurt vitni, hversu fim-
lega og mjúklega þar er farið
höndum um strengi ljóðahöj^-
unnar:
Ég leynislóð úr fjarlægð finn
á fund þinn, stör í mýri.
Hvort blundar ekki b: c6ur þinn
í blóðL^aínu unn?
Þau heilla ennþá huga minn
þín hljóðu ævintýri,
er dyngir mjöll
á draumafjöll
og dimma tekur senn.
----0----
Hér voru byggð mín bernsku
skip, >
hér börðust þau við flauminn.
Þau fluttu margan góðan grip
og gjafir til mín heim.
Einn harmleik enn ég sé í svip:
Þau sukku og hurfu í strauminn.
Úr óðaröst,
með iðuköst t
fékk ekkert borgið þeim.
----0----
Ég heyri kjörrinn kveðast á
af kappi í heiðarásnum
við felulæki, er læðast hjá
um laundyr allt í kring.
Ó, heiðavindur, viltu strá
á veg minn haustsins djásnum?
Lát kliða dátt
úr hverri átt
þín kvæði, söngvalyng!
Hér sést það, svo eigi verður
um villst, hve nánum böndum
skáldið er tengt átthögunum,
æskudalnum fríða við Blöndu;
hér lýsir sér ást skáldsins á nátt-
úrunni, næmleiki hans á raddir
hennar, sem er meginþáttur í
ljóðum hans; og hér finnur les-
andinn grípa hug sinn þann
trega og- þá djúpu saknaðar-
kennd, sem er hin þunga undir-
alda margra annarra kvæðanna
í bókinni. Skáldið harmar sokkin
sólskins- og draumalönd æsku-
áranna, og því er æði dimmt í
heimi ljóða hans, eins og í kvæð-
inu „Svört verða sólskin“, sam-
nefndu bókinni, og í ýmsum öðr-
um kvæðum hennar, svo að
stundum þykir manni nóg um
bölsýnið. En óvenjulega listræn
eru þessi kvæði, bæði um fagurt
málfar, snjallar og skáldlegar
samlíkingar, og kliðmjúka ljóða-
hætti, sem falla vel að efninu.
Það eru í þessum kvæðum seið-
andi töfrar ljóðrænnar fegurð-
ar, sem auðveldara er að skynja
en lýsa. Ágætt dæmi þess eru
lokaerindin úr kvæðinu „Vísur
um vetrarkvíða“:
En það er eins og lækirnir og
fljótin séu á flótta,
þau falda hvítu um sandinn, þar
sem eyrarrósin grær.
Á tjarnaraugu mýrarinnar
haustsins ugg og ótta
og eilífblindu slær.
Ó, sjáðu, hvernig eyðingarundrin
miklu gerast,
hve allar gjafir sumarsins hverfa
viðnámslaust,
er kveðjuljóð og torrek milli
bergmálsfjalla berast,
sem boða nótt og haust.
Á mörk og víðivöllum standa
bjarkir allar bleikar,
og bráðum heyrist hvinurinn í
dauðans veltiplóg. —
Sjá skuggalega flakkarann —
ræningjann, sem reikar
um riðusjúkan skóg.
Ekkert af þessum ómrænu og
huglægu kvæðum skáldsins er
þó gert af meiri list eða heil-
steyptara heldur en smákvæðið
,,Blóm“:
í hljóðri dýrð um fjarska^is
villuvegu
berst vetrarmjöllin yfir sæ og
lönd.
Það er sem liljublómum björtum
dreifi
um byggðir allar gjöful
vinarhönd.
í hverju blómi er helspá,
sorgarsaga
um sumardraumsins rænda
helgidóm. —
Hve undurhljóð og móðurmild
þau falla
á mýrka jörð, hin hvítu dauðans
blóm.
Ó, björtu liljur, gróður hvítrar
kyngi!
Þið hverju blómi öðm veitið
skjól,
'r jórðin leggst í eyði, allt um
þrýtur,
og yfir valinn starir harmasól.
Hvert blað, sem haustsins
stormur greip af greinum
og gleðireifur elti um mörk og
skóg,
á náðir ykkar flýr, og fyrr en
varir,
það finnur hvíld í djúpum
vetrarsnjó.
Hér er djúpur treginn aftur
hinn þ u n g i undirstraumur.
Skáldið hefir, eins og hann segir
í hjnni eftirtektarverðu játningu
sinni „1 hofi Efa konungs“, kom-
ist í kynni við þann kaldrifjaða
konung og dætur hans, og kennt
kulda af þeirra ráðum; þær hafa
rænt hann innri gleði og æsku-
minningum, von og trú; en hann
er leitandi sál, þráir að losna úr
hlekkjunum, vera eigi lengur
„bandingi blindra valda“. Og
þrátt fyrir efasemdirnar, treg-
ann og bölsýnið, er hann enn í
innsta hjarta sínu vorsins barn;
þess vegna segir hann með gleði-
hreim og hrifningu í kvæðinu
„Sunnanátt“:
Að vitum mínum berðu
barkarremmu,
blóðbergsþef og lyngsins
anganföng.
Ó, kveddu vorsins vatns-
dælingastemmu,
verði drápan eilíflöng.
Af heiðum leystu martröð hvítra
mjalla,
lát mikil vötn í drottins nafni
falla
til sævar fram með söng!
Þessvegna bendir einnig margt
til þess, að skáldið sé á leiðinni
upp úr skuggadal efans á sólfjöll
og heiðlönd nýrrar trúar og von-
ar, svo að næst, þegar hann
kveður sér hljóðs, hafi hann
hlotið langþráð svar við bæninni
gegn vetrarkvíðanum í „Sumar-
málavísum“, lokakvæðinu í bók-
inni, ort á síðasta vetrardag í
fyrra:
Ó, vík úr mínum draumi,
vetrarkvíði,
og verði spásögn þín að engu
gjörð.
Kom vorsins dís með flúr og
furðusmíði
og fagurblóm og klið um alla
jörð.
„Kom heitur til míns hjarta,
blærinn blíði“.
Og því er þess einnig að vænta,
að skáldið eigi eftir að flytja
þjóð sinni jákvæðan boðskap
færðan í jafn listrænan búning
skáldlegrar fegurðar og honum
hefir tekist að klæða þessi sakn-
aðar- og tregaþrungnu ljóð sín.
Það eru önnur ágætiskvæði í
þessari bók en persónulegu hug-
lægu ljóðin, sem lýst hefir verið
að nokkuru. Hér eru atburða-
og mannlýsingar í ætt fyrri
kvæða skáldsins af því tagi,
þrungin samúð hans og skilningi
á mannlegum kjörum, kvæði
eins og „Síðustu dagar Smyrla-
bergs-Kobba“ og „Fiðlarinn í
Vagnbrekku“, sem bæði eru með
snilldar handbragði, að málfari
og lýsingu á söguhetjunni, og
þykir mér þó hið síðartalda bera
af hinu; í því er þetta gullfallega
erindi:
Mörg var för í regni og roki
raunaþung og efnin .smá.
Breytti þá í gull- og glitskóg
gráa hversdagsleikans þytskóg
fiðlan fagurgljá.
Og í hverju strengjastroki
straumar bláir kváðust á.
Vor með gliti og glóðafoki
geymt í strengjum lá.
Stórfagurt kvæði og samfellt
er móðurminningin „Mamma“,
og má hið sama segja um minn-
ingarkvæðið „í fylgd með far-
andskáldi" (Steindóri Sigurðs-
syni), en þannig eru upphafs- og
þriðja erindi þessa áhrifamikla
kvæðis:
Að tregans fljóti ég fylgi þér á
leið,
þú farandskáld og draums.
Þitt líf er kvatt, þú hverfur einn
á vald
hins kalda flugastraums.
Að koma og fara — hjartans
ljóðaljóð
skal loksins enda taka:
Að þessu sinni áttu ei
afturkvæmt
og enga leið til baka.
Sem þrotlaus leið, sem flótti um
fenjaskóg
þín för um heiminn var.
Frá sumarveröld þinni, sjálfum
þér,
þig sífellt lengra bar.
Hví gátu óskir þínar aðeins
rætzt
í æskudraumum þínum,
er söngflúð hjartans vökúl varði
þig
gegn villu og óráðssýnum?
Hér hefir engin tilraun verið
til þess gerð að telja upp öll
kvæðin (þrjátíu talsins) í þessari
ljóðabók Guðmundar, enda eru
þau þannig vaxin um ljóðræna
fegurð og listræna efnismeðferð,
að menn verða að lesa þau vel,
til þess að njóta þeirra til fulls.
Og þau þola gaumgæfan lestur;
að vísu eru þau misjöfn að gæð-
um og snilld, sum mættu vera
samanþjappaðri, en ekkert
þeirra kysi ég utan spjalda bók-
arinnar.
Þar eru einnig þessi þrjú þýdd
kvæði, „DauðimT* og „Jarðarför
Fiðlu-Óla“ eftir Dan Andersson
og „Áköllun“ eftir Bertil Gripen-
berg, og eru þau með sama prýði-
lega handbragðinu eins og frum-
kveðnu kvæðin. Bera þessi tvö
fyrstu erindi úr „Jarðarför
Fiðlu-Óla“ því órækastan vott-
inn, hversu snilldarlega þar er
þýtt:
Meðan næturmyrkrið hylur
ennþá Hreimsstaða-fjöll,
stefnir hnípin líkfylgd út frá
Klettabæ.
Og burðamenn hljóðir troða
vorgróinn völl,
í vormorguns raka, svala blæ.
Þeir stíga þungt til jarðar, merja
grös í grænum rann,
ganga lotnir, sem við þögla
bænagjörð.
Þeir flytja burt frá auðn og
skorti dauðan draumamann
yfir döggvota, en fagurgræna
jörð.
Hann var einrænn og dulur,
segja fjórir fylgdarmenn,
og fátæktin var eina brúður
hans.
En rósirnar á engjunum kalla
hann konung enn,
þótt kveðji dauðinn hann til
grafar-ranns.
En burðarmönnum finnst hún
vera þrotlaus þessi för,
og þorstinn kvelur, — sól af
mildi snauð.
Gangið hægt og hafið lágt,
syngur selja og stör,
því sennilega er einhver rósin
dauð.
En Guðmundi Frímann er
fleira til lista lagt en snilldin í
ljóðagerð; hann er maður fram-
úrskarandi drátthagur og hefir
skreytt þessa bók sína teikning-
um, sem falla yfirleitt ágætlega
að efni kvæðanna. Að öðru leyti
er frá gangur bókarinnar einnig
hinn prýðilegasti.
Kaupið Lögberg
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
Thé derriSnd for Business ColTege EHuca-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business TraimngImmediately!
/
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21 804 695 SARGENT AV *. WlNNIPEG
NYR VINNUTIMI
í þeim tilgangi að veita starfsfólki 5 daga vinnutíma á viku
verður öllum bankaútibúum á eftirgreindum stöðum
/
lokað á laugardaginn, 16. febrúar,
og hvern laugardag þar á eftir
City of Winnipeg St. Boniface
East Kildonan St. James
West Kildonan St. Vital
Norwood Transcona
Til þæginda fyrir viðskiptavini verða öll þessi útibú
opin í lengri tíma á föstudögum
fró kl. 4:30 e. h. til 6:00 e. h.
sérstaklega til þess að skipta peningaávísunum og leggja inn fé.
Við æskjum aðstoðar og samvinnu viðskiptavina okkar í þess-
ari nýbreytni að láta starfsfólk okkar verða aðnjótandi sömu
hlunninda við atvinnu, sem viðgengst á mörgum öðrum sviðum
í viðskiptalífinu.
THE CHARTERED BANKS OF CANADA