Lögberg - 21.02.1952, Blaðsíða 3
Eggert Erlendson
1873 — 1950
Þess var getið í blöðunum ís-
lenzku í Winnipeg og í fleiri
blöðum, að Eggert Erlendson,
sem lengi bjó í Grafton, N. D.,
hefði andast á sjúkrahúsi í Mil-
waukee, Wisc., 13. ágúst 1950.
En mig langar nú til að minn-
ast hans nokkru nánar, en þá
var gjört. Finst mér að hann
sjálfur og börn hans eigi það
skilið af mér; því að það voru
ávalt bönd mikillar vináttu, sem
tengdu hugi okkar bræðranna
saman.
Eggert Erlendson fæddist að
Jökli í Eyjafjarðarsýslu 1. júní
1873 og var því rúmlega 77 ára
að aldri, þegar hann andaðist.
Foreldrar hans voru Jóhann
Erlendson, Ólafssonar, bók-
bindara frá Kaupangi í Eyja-
firði og kona hans, Sigurbjörg
Guðlaugsdóttir Eiríkssonar frá
Steinkirkju í Fnjóskadal í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Árið 1882
brugðu Jóhann og Sigurbjörg
búi og fluttu til Akureyrar. En
ári síðar, þegar Eggert var 10
ára og ég 7 ára að aldri, flutt-
umst við bræðurnir til Ame-
ríku. Á þeirri ferð vorum við í
fylgd með Elínu móðursystur
okkar og manni henrtar, Vigfúsi
Hallssyni, og fjölskyldu þeirra.
Tvær aðrar móðursystur okkar,
þær Friðbjörg, kona Þorsteins
Jónssonar, og Rósa, kona Magn-
úsar Jónssonar, voru áður komn-
ar til Ameríku fyrir nokkrum
árum. Bjó þetta skyldfólk okk-
ar þá allt í grend við Hamilton
í Pembinasýslu í Norður Dakota.
Höfðu þessar móðursystur okk-
ar boðið okkur til sín. Og báðir
settumst við að hjá þeim Rósu
og Magnúsi Jónssyni, þegar við
komum vestur, og dvöldum þar
fyrst um sinn. En árið 1886 komu
foreldrar okkar með fimm börn
sín, er heima höfðu verið, til
Ameríku. Settist fjölskyldan að
á Gardar, N. D. En fjórum ár-
um síðar fluttu þau á búgarð, er
faðir minn hafði keypt af Arn-
grími Jónssyni, þrjár mílur suð-
ur af Akra, N. D. En Eggert var
áfram hjá fósturforeldrum sín-
um, Rósu og Magnúsi, þangað
til hann flutti til Edinburg,,
N. D. árið 1897. Þar vann hann
við verzlun í tvö ár. Þá bauðst
honum staða í Park River, N. D.,
sem aðstoðar póstafgreiðslumað-
ur, og um svipað l©yti var hann
kosinn bæjarritari þar líka. Hélt
hann þessum störfum þar áfram
þangað til árið 1907. En þá flutti
hann aftur til Edinburg. Og
keypti hann þá vikublaðið,
Edinburg Tribune, sem Kol-
beinn S. Thordarson hafði stofn-
að og starfrækt nokkur ár. Þetta
blað gaf Eggert út til ársins
1915, en þá var hann útnefndur
aðstoðar yfirskoðunarmaður
skjala (Deputy County Auditor)
í Walsh County. Og seldi hann
þá blaðið og flutti til Grafton,
N. D. í þessari stöðu starfaði
hann 7 ár. En þá var hann
útnefndur innköllunarmaður
skatta (Collector of Internal
Revenue) í Walsh, Pembina og
Cavalier sýslum. Sú staða út-
heimti mikil ferðalög, og einnig
varð hann oft að vera að heim-
an bæði nætur og daga. Var
hann þá líka farinn að kenna
lasleil^a, er smátt og smátt á-
gerðist. Lagði hann því niður
þessi störf eftir þrjú ár. Var
hann þá útnefndur af borgar-
stjóranum í Grafton virðinga-
maður (City Assessor) og á
sama tíma kjörinn friðdómari
þar. Þessum störfum hélt hann
til ársins 1940. En þá var heilsa
hans svo biluð, að hann varð að
leggja niður öll störf.
Árið 1915 giftist Eggert, Mar-
gréti Gillis. Var hún dóttir Jó-
hannesar Gíslasonar frá Máfa-
stöðum í Vatnsdal og konu hans,
Valgerðar Stefánsdóttur Bjarna-
sonar frá Stað á Reykjanesi.
Þau Margrét og Eggert eign-
uðust 6 börn: Joyce, Mrs. H. P.
Peoples, í Park River, N. D.;
Elizabeth, Mrs. Verne Rotherud,
Eggert Erlendson
Milwaukee, Wisc.; Lois, Mrs.
Cronston, New York, N. Y.;
Donna, Mrs. Gördon Stark,
Grafton, N. D.; Marvin, kvænt-
ur, útskrifaður frá Benjamin
Franklin háskólanum í Wásh-
ington, D. C., gegnir ábyrgðar-
stöðu við hermáladeildina í
Washington, D. C.; Bertel, kvænt
ur og útskrifaður af Layson
listaskólanum í Milwaukee,
Wisc.
Eiginkonu sína misti Eggert
árið 1933. Var sá atburður heim-
ilinu þungt reiðarslag, og olli
djúpri sorg bæði á heimilinu og
víðar. Hafði hún reynst manni
sínum góð og göfug kona, og
börnum sínum ástrík og um-
hyggjusöm móðir. Joyce, elzta
dóttir þeirra hjóna var þá 17 ára
að aldri. En með hjálp föður
síns og aðstoð systkina sinna,
stjórnaði hún heimilinu með fá-
gætum myndarskap. Var það
eftirtektarvert hvað börn þeirra
Eggerts og Margrétar voru hátt-
prúð og siðprúð, þar sem sjáan-
lega hafði þó verið um örðug-
leika að ræða við uppeldi þeirra.
Og ber það ljósan vott þess,
meðal annars, hversu foreldrin
höfðu af fremsta megni vandað
uppeldi þeirra.
Árið 1946 varð það óhjá-
kvæmilegt að uppleysa heimilið
þeirra í Grafton. Flutti Eggert
þá til Joyce dóttur sinnar, sem
þá var gift, og var hann þar á
annað ár. En þá flutti hann til
Elizabeth dóttur sinnar og
manns hennar, sem þá voru bú-
sett í Milwaukee, Wisc. Skömmu
eftir að hann kom þangað varð
hann með öllu rúmfastur. Naut
hann þá allrar alúðar og um-
hyggju, sem dóttir hans gat
veitt honum. En 13. júlí 1950 var
hann lagður inrr í sjúkrahús þar
í borginni; og þar dó hann mán-
uði síðar, 13. ágúst 1950.
Banamein Eggerts var „Park-
insons disease“. Útför hans fór
fram frá Zwaska útfararstof-
unni þar í borg, og var henni
stjórnað af Rev. V. C. French,
sem þjónar við Sherman Park
lútersku kirkjuna. — Samkvæmt
hans eigin ósk var lík hans
brent.
Eggert sál. var sérstaklega
fríður sýnum. Hann var vel vax-
inn og tígulegur á velli. Hann
var sviphreinn og góðmannleg-
ur. Hann hafði næman smekk
fyrir allri fegurð og hreinlæti.
Kom það glöggt í ljós í klæða-
burði hans, og allri umgengni
hans, bæði á heimilinu, i skrif-
stofunni og annars staðar.
Þrátt fyrir það þó æðri skóla-
mentun, er Eggert hlaut, væri
mjög takmörkuð, var hann fram-
arlega í röð sjálf-mentaðra
manna. Hann las mjög mikið og
mundi sérlega vel það sem hann
las. Hann var vel að sér í flest-
um þeim málum, sem urðu að
umtalsefni manna á milli.
Snemma á árum byrjaði
Eggert að safna að sér bókum,.
og átti að lokum eitt allra bezta
bókasafn, er var í eigu nokkurs
einstaklings í Walsh-sýslu. Virt-
ist hugur hans hneigjast hvað
mest að sagnritum og ævisögum
merkra manna og kvenna. En
hann hafði líka ákaflega miklar
mætur á Ijóðum, og kunni mjög
mikið af ljóðum utan bókar.
Haustið áður en hann dó, sagði
hann mér að hann hefði kunnað
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 21. FEBRÚAR, 1952
Göfug orð og Jón Sigurðsson
Orð mannlegs máls geta verið
göfug og ógöfug, eins og menn-
irnir, sem smíða þau. Orðhagasti
maður, sem uppi hefir verið í
heiminum, W i 11 i a m Shake-
speare, segir um göfug orð:
„Jewels
that, on the stretched
forefinger of all Time
Sparkle forever“.
„Gimsteinar,
sem á uppréttum vísifingri
tímans
glitra, sí og æ“.
Orðaforði Shakespeares var
langtum meiri en orðaforði
nokkurs annars höfundar, á
ensku máli. Hann hefir skapað
fjölda af göfugum orðum, og
auðgað ensku svo mjög, að hún
er allt annað mál eftir hans
daga.
íslenzkan er auðug af göfug-
um orðum. í Landnámu og sög-
unum eru ætíbornir menn kall-
aðir göfugir menn. Þessir menn
sköpuðu slík orð, í víking og í
mannraunum á sjó og landi.
Elztu göfug orð eru í Eddukvið-
unum. í Islendingasögum lykur
hin óhlutdræga frásögn höfund-
arins um atburðina eins og
hanzki um hönd. Aðeins á stöku
stað brjótast göfug orð, þrungin
þrótti? fram úr hugarfylgsnum
hans. Sagan er eins og straum-
þungt fljót, sem rennur tignar-
lega til sjávar. AUt í einu steyp-
ist það fram af hamri og fellur í
fossi ofan í sjóðandi og vellandi
hringiðu.
Göfug orð bregða stundum
birtu um allt eins og elding.
Guðrún ósvífsdóttir segir í
Laxdælu: Þeim var ek ve(r)st,
er ek unna mest. Islendingar
hafa borið þá verst fram r-laust
eins og mest.
„Mínar eru sorgirnar þungar
sem blý“, kvað Þórðr Andrés-
son við raust og hrakti hestinn
undir sér. Gissur jarð hafði af-
ráðið að taka hann af lífi, því
hann var sá maður af Odda-
verjaætt, er Gissur taldi sér
hættulegastan (Sturlunga).
í íslendingasögum leyna menn
því, sem þeim býr í brjósti.
Þegar það loksins' brýzt út, er
það orðið magnað og máttugt.
Höfundurinn stíflar og skorðar
ímyndunarafl sitt. Þegar hann,
einstöku sinnum, leyfir því að
brjóta stíflurnar — það er há-
tindur listarinnar að segja sögu.
Egill segir hógværlega um
Sonatorrek:
„era nú hógdrægt
úr hugarfylgsnum“.
Hann legst fyrir í lokrekkju,
á banabeð, að hyggju sinni. Þor-
gerður, dóttir hans, bjargar
honum, biður hann yrkja um
sonamissinn. Nú á dögum mundi
íslendingur ekki fara svo hóg-
yfir 250 kvæði og sálma utan
bókar Hann hafði sérstakt dá-
læti á íslenzku sálmabókinni,
sem hann taldi að geymdi eitt
hið fegursta úiwal velortra
sálma, er til væri.
Eggert sál. var laus við hleypi-
dóma, og hafði heilbrigða skoð-
un á þeim málum, sem voru al-
menningi til hags og heilla.
í aðalatriðum fylgdi hann
„Republican“-flokknum í stjórn-
málum. Þau ár, sem hann gaf út
blaðið Edinburg Tribune, skrif-
aði. hann sjálfur talsvert af les-
máli blaðsins. Voru greinar hans
þar iðulega teknar upp í öðrum
blöðum.
Enginn getur betur reist sér
minnisvarða, en með sínum eig
in afkvæmum. Börn þeirra
Margrétar og Eggerts eru ein-
mitt að sýna það með siðprúðu
líferni sínu og góðri framkomu
í hvívetna, að í þeim höfðu þau
hjón reist sér fagran minnis
varða.
J. J. Erlendson
værum orðum um kvæði, sem
varð honum lífgjöf og er ort á
takmörkum lífs og dauða.
Kynslóðin á miðri 20. öld
hefir fengið mörg göfug orð í
vöggugjöf. Hvert þeirra felur í
sér raunverulega h u g s j ó n.
Drenglyndi var í fornöld því
meira, sem maðurinn var sterk-
ari.
Nú vega menn ekki með vopn-
um á íslandi. Þeir vega með orð-
um og með prentsvertu. Ræðu-
menn hlaða niður göfugum orð-
um í ræðu. Dynjandi lófaklapp.
Svo drekka þeir skál hver ann-
ars, og þykjast hafa unnið af-
reksverk. Meðan þeir hafa í eitt-
hvað í kollinum, sjá þeir glætu
af hugsjónum í göfugu orðun-
um, en hún hverfur strax og þeir
eru orðnir ófullir.
Þannig rýra þeir gildi gögugra
orða. Orðaglamur þeirra gleym-
ist. Ef staglast er oft á slíkum
orðum, verða þau smám saman
lítils virði. Hannesi Hafstein
datt þetta í hug, er hann orti:
Slrikum yfir stóru orðin.
Síra Matthías segir um al-
þingismenrt: #
Þinginu sín þjáning nægir,
þar eru reyndar garpar frægir,
Ljótur, Gauti, Grímur, ægir
glymja líkt og brim við sker —
blása norðanbyljirner.
Þá má ekki vera að stönglast
og staglast svo oft á göfugum
orðum, að þau slitni og sljóvgist
og missi mátt sinn. Þau mega
ekki verða orðagjálfur, sem eng-
inn tekur mark á.
Ég var við hina mikilfenglegu
jarðarför Jóns Sigurðssonar í
Reykjavík. Mest af öllu dáðumst
við latínuskólapiltar að áletrun
eftir Benedikt Gröndal, skáldið:
Ástmögur íslands, sómi þess,
sverð og skjöldur.
Hún er horfin af leiði hans
fyrir löngu. Ef hún er til mun
hún vera geymd í herbergi hans
í Alþingishúsinu.
Ég vil leggja til að þessi sanna
og fagra áletrun verði sett aftur
leiði hans, replica, eftirmynd
af henni, svo hún geti hrifið
unglinga hverrar kynslóðar á ó-
bornum öldum eins og hún hreif
mína kynslóð.
Jón Sigurðsson stækkar með
hverri kynslóð. Hann er eins og
fjall, sem maður sér ekki nálægt,
hvað hátt það er. Snæfellsjökull
er langtum mikilfenglegri séður
J:rá Arnarhóli í Reykjavík en á
sjálfu Snæfellsnesi.
Hann steypti göfug orð í um-
gjörð, sem átti við þau. Hann
rakti til rótar og út í æsar allt,
sem hann athugaði. Þau vopn,
sem hann smíðaði í sjálfstæðis-
baráttu okkar, hafa reynzt
tryggari og bíta betur en öll
önnur vopn. Samninganefndin
sem gerði upp við Dani 1918, tók
ekki á vopnum hans eins og átti
að gera og heimtaði minna en
hann mundi hafa gert í skulda-
skiptunum við Dani. Ég vona, að
einhver íslendingur reisi honum
minnisvarða í ævisögu, sem sýn-
ir hann eins glæsilegan og hann
var í lifanda lífi — fyrir 200 ára
afmæli hans. ísland á enn eftir að
sýna ástmegi sínum þann sóma,
sem hin einstæða sókn — sverð
og vörn — skjöldur — hans
verðskuldar. Leita má vandlega
í veraldarsögunni. Jafnoki hans
er ekki til hjá nokkurri þjóð.
Jón Slefánsson
—VISIR, 7. jan.
Business and Professional Cards
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET Selkirk, Man.
Offlce Houra 2.30 - 6 p.m.
Phones Office 26 —Res. 230
V ilborgar kelda
heita mýrardrög allmikil
Mosfellsheiði, skamt austan við
þar sem mætast gamli og nýi
vegurinn. Var þar fyrrum sjálf-
sagður áningarstaður þegar
menn fóru ríðandi yfir Mosfells-
heiði. Sagt er að keldan beri
nafn af konu nokkurri, sem fórst
þar voveiflega, og þótti síðan
vera þar á sveimi er skyggja tók
og gera ferðamönnum glett-
ingar.
PHONE 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE »—«52 HOME ST.
Vi&talstími 3—5 eftir hádegi
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ct.
vega peningalán og eldsábyrgC,
bifrei^aábyrgö o. s. frv.
Phone 927 538
SARGENT TAXI
PHONE 204 845
PHONE 722 401
FOR QUICK. RELIABLE
SERVICE
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOingar
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Phone 928 29Í
CANADiAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Dlstributors of Fresh and
Frozen Flsh.
311 CHAMBERS STREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
HAGBORG FUEL/^i
>51 J-- !
PHOME 21551
Offlce Phone
924 762
Res. Phone
726 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m. - 6 p.m.
and by appolntment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Bherörook Street
Selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaSur sá bezU.
Stofnaö 1894
STími 27 324
Phone 23 998 70« Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavillion,
General Hospital.
Nell’s Flower Shop
Weddlng Bouquets. Cut Flowers,
Funeral Deslgns, Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson
Res. Phone 27 482
Offlce 933 587 Rea. 444 389
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOLICTTORS
4th Floor — Crown Trust Bldg.
364 Main Street
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viC/heldur hita frá aö rjúka út
meö reyknum.—SkrifiÖ, slmið til
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street Winnipcg
Just North of Portage Ave.
Símar: 33 744 — 34 431
DR. H. W. TWEED
Tannlœknir
508 TORONTO GENERAL TRUSTS
BlftLDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 926 952 WTNNTPEG
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
PHONE 924 624
Phone 21101
ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Inaulated
Slding — Repalrs
Country Orders Attended To
832 Slmcoe St.
Wlnnipeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
51 First Avenue
Ný útfararstofa með þeim full-
komnasta útbúnaði, sem völ er
á, annast virtSulega um útfarir,
selur likkistur, minnlsvarða og
legsteina.
Alan Couch, Funeral Director
Phone—Business 32
Residence 59
DR. A. V. JOHNSON
Dentiat
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephonpe 202 398
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœöingur i augna, eyma, nef
og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 923 815
Heimasími 403 794
ÍEDDSiral
JEWELLERS
447 Portage Ave.
Branch
Store at
123
TENTH ST.
BRAND0N
Ph. 926 885
GUNDRY PYMORE
Limited
British Qualitg Fish Nettino
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
Phone 928 211
Manager T. R. TIlOItVA T.DSON
Your patronage wlli be appredated
Minnist afmælisdags
BETELf
1. Marz
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary's and Vaughan. Wlnnipeg
PHONE 928 441
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON * CO.
Chartered Acconntanta
505 Confederatlon Llfe Bldg.
WTNNIPEG MANITOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barristers - Solicilors
Ben C. Parker. K.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kristjanuon
508 Canadian Bank of Commerce
Chambera
Winnlpeg, Man. Phono 8S3 981
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BLK, Sími 925 227
Rovatzos Flower Shop
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151
Our Specialttes:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mlss 1. Chrlstle, Proprietreaa
Formerly with Robinson & Co.
t