Lögberg - 21.02.1952, Síða 7

Lögberg - 21.02.1952, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 21. FEBRÚAR, 1952 7 Fallegur ævintýra-sjónleikur Eftir PRÓFESSOR RICHARD BECK Helgi Valtýsson: Jónsmessunótt Ævintýrasjónleikur í tveimur þáttum. Bókaútgáfan Norðri, Akureyri, 1951. 36th Annual Report of the Jon Sigurdson Chapter, I.O.D.E. í seinni þætti þessa fallega leiks lætur höfundurinn æsku- manninn Aðalstein segja: „Að vera ungur, ó Guð minn góður, og geta verið það lengi, lengi! Og eiga sólskin í hug og hjarta með þreimþýtt bergmál á þúsund strengi af lífsins ónumdu undra-lögum, sem óma-samhreimi geyminn fylla. — Þau seiða hugann, — þau töfra og trylla. Þau titra í blóði og hjarta- slögum! Þá hljóma fagnqndi hundrað tungur: Ó, hvílík sæla að vera ungur!“ Helgi Valtýsson sendir þetta æskuglaða og vorhlýja leikrit sitt frá sér, þegar hann er nærri hálf-áttræður (hann verður það, endist honum líf og heilsa, í október næstkomandi), og ber ritið því órækastan vottinn, að hann hefir þegar fengið bæn- heyrzlu þeirrar heitu óskar sinnar, að mega halda áfram að vera ungur í anda, „eiga sólskin í hug og hjarta“, óskertan næm- leikann til að heyra lífsins „ónumdu undra-lög“, er „óma- samhreimi geyminn fylla“. Því að sá einn, sem þannig er skapi farinn, getur túlkað eins vel og hér er gert hið skáldlega við- fangsefni, er höfundurinn hefir færst í fang, en þannig lýsir hann því í inngangsorðum sín- um: „Aðalefni þessa litla ævintýra- leiks er auðvitað fyrst og fremst að lýsa undramætti og töfrum Jónsmessunæturinnar í íslenzkri þjóðtrú, og jafnframt geðhrifum þeim, sem hásumardýrð hinnar „nóttlausu veraldar“ hlýtur að vekja í hverri hrifnæmri sál og velvakandi“. Sanngjarnt er að dæma rit- verk hvert í ljósi tilgangs þess, og skal sá mælikvarði lagður á sjónleik þennan; ber þá jafn- framt að hafa það á minni, að hann gerist í heimi ævintýranna, þar sem eigi ráða sömu lögmál og í þeirri veröld, er vér köllum venjulega heim raunveruleik- ans, þó að vitanlega séu skiptar skoðanir um merkingu þess hugtaks. Leikurinn, sem er að eigi litlu leyti í óbundnu máli, hefst með fögrum forleik í ljóðum, og eru þetta upphafserindin: „í nótt eru heiðblá hvolfsins þil, og himininn brosir jarðar til. Og blessun Guðs drýpur sem daggarflóð á dreymna, lífþyrsta gróðrar- slóð: Og frjómoldin ilmar, og grasið grær, og gróska foldar við náttsól hlær, og friður Guðs ríkir fjær og nær. Nú falla í arma saman himinn og jörð — taka höndum saman. í nótt opnar Guð sín himinhlið og heiminum sendir þráðan frið. Hann hrynur sem glitrandi geislabál í gullnum dropum á þyrsta sál. — Svo verði hver dagur oss dýrðlegt svið með Drottins blessun og vinnu- klið, og fegurð og list vort mark og mið í mannlífi starfsglaðra handa! — í almætti anda og handa!“ Fæ ég eigi betur séð, en að hér sé fimlega slegið á streng- ina með það fyrir augum að vekja hjá lesendum, og þá sér- staklega hjá væntanlegum á- horfendum leiksins á leiksviði, þá hugarafstöðu, er gerir þá móttækilegasta fyrir áhrifum Jónsmessunæturinnar í allri sinni dýrð. Leikritið er, sem þegar getur, í tveim þáttum, og gerist fyrri þátturinn á „Krossgötum lífs- ins“; fer höfundur þessum orðum um hann í formála sín- um: „í stað þess er erlendir ævin- týraleikir beita „bófum“ og „ræningjum“ til leikrænna á- hrifa, er hér í fyrra þætti sýnd ranghverfa ævintýrsins í per- sónugervingum hversdagsleik- ans. Er þeim brugðið upp í smá- leiftrum á broslegan hátt, svo að hvergi gætir „prédikunar“ um of. — Þulurinn gamli er al- vara lífsins og lífsreynslan sjálf í heilbrigðu jafnvægi, sáttur við Guð og menn að lokum langrar ævi“. Auk Þularins koma fram á sjónarsviðið í fyrra þætti þessir persónugervingar ólíkra mann- tegunda: Flækingur, Gull-leitar- maður, Ung glæsimey, Kald- rifjaður náungi, og Þreytt móð- ir með veikt barn. Hitta lýsing- arnar á þessum persónugerving- um löngum vel í mark, og eru þeir sýnilega gripnir beint út úr samtímalífinu umhverfis höfundinn; andspænis græðgi og heimtufrekju Gull-leitarmanns- ins, yfirborðsmennsku Glæsi- meyjarinnar, eigingirni og nautnasýki Kaldrifjaðs, verður fórnfýsi Móðurinnar ennþá á- hrifameiri, enda sér hún rætast draum síns fátæka hjarta, með undraverðri lækningu barns síns. Eins og sæmir jafn lífs- reyndum spekingi og Þulurinn er, lætur höfundurinn hann segja margt spaklega, svo sem í þessum orðræðum við Gull- leitarmannirm: „Þulurinn (alvarlegur): Tilgangur lífs vors er þjón- usta. Frelsi til að rækja skyldur vorar og þjóna lífinu. Þá fyrst eignumst vér lífið og njótum ávaxta þess. — Þetta skilja ekki kröfugöngumenn lífsins. — Þess vegna koma þeir ætíð síðastir að marki, — þar sem sönn ham- ingja bíður vor. Gull-leiiarmaðurinn (borgin- mannlegur): Hamingju lífsins skömmtum við okkur sjálfir, tökum hana, hvar sem hún fyrirfinnst! Og það er nú ekki langt á milli á- fanganna á þeirri leið, nú á dögum! Þulurinn (með alvöruþunga): Þér skjátlast, ungi maður. .— Hamingja lífsins liggur ekki á glámbekk né í búðargluggum. Og eigi heldur í veizluhöndum og gildaskálum. — Hana er að- eins að finna í anna-unun hins daglega lífs — og friði góðrar samvizku við Guð sinn“. Seinni þætti leiksins lýsir höf- undur á þessa leið í formálan- um: „Síðari þáttur er ævintýrið sjálft: íslenzk sumarsæla og un- aður á mörkum tveggja heima. Álfameyjarnar éru persónu- gervingar náilúrufegurðarinnar, skrautlegur hluti hinnar lifandi náttúru og rödd hennar áS,helgri stund\“ Gerist þessi síðari þáttur í Álfalundi, og auk Álfameyjanna, er meðal annars syngja skemmti lega Blómaþulu um leið og þær stíga léttan dans sinn, koma hér fram á sviðið Una álf- kona, og af mennskum mönnum Móðirin og litla stúlkan hennar, Þulurinn og Aðalsteinn og Dísa, sem eru aðalpersónurnar og sjá ástardraum sinn rætast, en það eru leikslokin. í þessum hluta leiksins njóta hugarflug skáldsins og ljóðræn skáldgáfa hans sín ágætlega; fagur og léttstígur er t. d. þessi söngur, er Álfameyjarnar syngja við sólnætur-dansinn: „Nú stígum við sviflétt og hvíslum svo hljótt, senn hnígur hin sólroðna Jóns- messunótt. — Á silfurstreng huldumey leikur í lundi. — Allt lífið er draumþrungið dásemdarspil, hve dýrðlegt og alsælt að vera nú til! í nótt kvaka álftir á sólbláu sundi. Og álfabörn dansa í laufgrænum lund, þau leika og hlægja um sól- næturstund við ilmbjarka-unað og álfheima- gaman. — En uppheima-börn dreymir ástir og vor, — Þá eru ekki talin hin þráhröðu spor, er senn tengja hjörtun og hendurnar saman!“ 1 heild sinni hefir höfundi, að mínum dómi, tekist mjög vel í þessum ævintýraleik sínum að lýsa mætti og töfrum Jóns- messunæturinnar, eins og hún hefir lifað í íslenzkri þjóðtrú, og þá eigi síður þeim ógleyman- legu hughrifum, sem hin ís- lenzka „nóttlausa voraldar ver- öld“ vekur í tilfinninganæmum brjóstum. En þá fyrst nýtur slíkur ævintýraleikur sín til fulls, þegar hann er sýndur á leiksviði, með skrautsýningum, söng og dansi, enda gefur höf- undurinn margar bendingar um leiksviðssettningu hans. Ágætlega er vandað til ytri búnings leikritsins af hálfu út- gáfunnar, enda hefði það verið illa farið ,ef svo fallegt rit að efni hefði verið tötrum klætt. „Big Ben" átti 100 ára afmæli nýlega Sigurverk klukkunnar var 7 ár í smíðum London (UP). — Þekktasti „borgari“ Lundúnaborgar átti fyrir nokkru 100 ára afmæli, sem jafnframt var 93 ára starfsafmæli. Þetta var „Big Ben“ — klukk- an í þjnghústurninum, en seint á árinu 1851 var samþykkt á fundi í þingi Breta ályktun um, að turnklukkan skyldi „taka öllum öðrum fram um ná- kvæmni, stærð og mikilvægi". Áætlanir voru gerðar og þær lagðar fyrir fjölda þekktra úr- smiða, og loks féllst konungleg- ur hirðúrsmiður Vulliamy á að taka að sér starfið, en í samn- ingnum var m. a. tekið fram, að verkið ætti að vega fimm lestir, það ætti að ganga í átta sólarhringa, án þess að það væri dregið upp, og það mætti ekki seinka eða flýta sér um meira en tvær sekúndur á sólarhring. Vulliamy tók til starfa, en hann var sjö ár að ljúka verk- inu, og það var ekki fyrr en um mitt sumar 1858, sem óhemju- manngrúi safnaðist saman við þinghúsbygginguna, til að sjá og heyra, er klukkan slægi í fyrsta sinn — tólf á hádegi. Menn sáu vísana þokast undurhægt áfram, standa á tólf, fara fram hjá, en ekkert gerðist. Klukkan sló ekki. Við nánari athugun kom í ljós, að hamrarnir voru of þung- ir. Skipt var á þeim, en enn liðu vikur og mánuðir, áður en „Big Ben“ gerði skyldu sína í einu og öllu. Síðan hafa milljón- ir manna hagað lífi sínu eftir „Big Ben“ að einhverju leyti. Síðan 1923 hefir BBC látið „rödd“ Big Ben heyrast um víða veröld, og af því leiðir, að hún er orðin tímamerki .hundraða milljóna útvarpshlustenda í öll- um heimsálfum, enda þótt vísar tímamæla þar, sýni ekki sömu stundir. Madam Regent, members and guests: It is with a sense of apology that I rise to present this 36th annual report. I feel that I have been in office too long, longer than any other member 'of the chapter, with the exception of Mrs. Skaptason, who gave the chapter so many years of excel- lent service as regent. But our chapter is small in numbers and there are many offices to be filled. We, all of us, feel that we must carry on to the best of our ability so that the Jon Sigurdson chapter may hold its place as one of the splendid units of the I.O.D.E., as a worthy cóm- munity organization, and as an example of true co-operation and unselfish service. The Icelandic Chair A year ago the chapter had fulfilled its pledge of raising a thousand dollars for the endow- ment fund. The pageant, “The Symbol of Iceland”, on whose showing the chapter realized over $600.00, was filmed, and duplicate copies made of the films and recording, for deposit- ing in the University of Mani- toba archives as had been re- quested. We had the pleasure of par- ticipating in the festivities and reception March 30th, when Dr. Gillson announced the establish- ment of the chair, and also at the receptions given to welcome the new professor of the Department of Icelandic, Finnbogi Gud- mundsson. Financial Report Mrs. H. G. Henrickson re- ported that the balance on hand January 15, 1952, is $169.24, total receipts for the year being $39 1.79, and disbursements $366.79. Of this, $240.94 were contributions to various I.O.D.E. propects. Fifty-six dollars was expended on scholarships and aid to a music student. Standard Bearer Mrs. W. S. Jonasson reported that the standard had been car- ried at all important I.O.D.E. functions and at all meetings of the chapter. At Founder’s Day service at Young United church, February llth, there were 21 standards on parade, and 24 standards at Remembrance Day service, November 11, at Augus- tine Church. At the annual con- vention in April, at the Royal Alexandra Hotel a full comple- ment of municipal standards was displayed, and at the semi- annual convention at Souris, the standard was carried by the secretary, who was the chapter’s delegate. Empire and World Ajfairs Five informative talks have been given at meetings, reported Mrs. E. W. Perry, with general discussions following the talks. These included: “The Life of Winston Churchill”, and “ATrip from Windsor to London”, by Mrs. K. Freeman, an English war bride married to an Ice- landic service man; and two talks by Mrs. Perry: “Through Knowledge to Understanding”, and “The Spirit of Britain”. Under the convenership of Mrs. Henrickson, t w o educational films were shown. At the Nov. meeting, the secretary gave a full report on the Souris conven- tion, which was the largest semi- annual ever held, with the na- tional president, Mrs. John H. Chipman, present as speaker, and partaking in all discussions. Educational Mrs. J. B. Skaptason, secre- tary, reported that I. O. D. E. scholarships had been supported and fifty dollars contributed to a promising music student. A flag and flag-staff were pre- sented to Sunrise Lutheran Camp, when several members motored down for the ceremony, with Mrs. B. S. Benson, regent, making the presentation, which was accepted by Mrs. H. A. Gray, president, Luth. Women’s League. Mrs. Skaptason reported two Icelandic War memorial books sold, and 25 I.O.D.E. calen- dars bought and distributed. General Services Mrs. Bertha Nicholson has visited regularly, patients at the Princess Elizabeth hospital and St. V i t a 1 Sanatorium, with special treats, and individually wrapped gifts at Christmas time. She has sent flowers, cards and cheery messages to the sick and bereaved. Floral tributes in memory of the fallen were placed in both churches Nov. 11, and all m e m b e r s attended special services. Mrs. Nicholson has the knack of stretching the chapter’s allowance for hospital visiting by making and baking all kinds of goodies herself, which she includes in her dainty parcels for the patients. Mrs. J. S. Gillies and Miss Vala Jonasson again looked after dispensing Christmas and Easter cheer to some 12-14 persons, many of whom are old age pen- sioners, and all of them lonely and in need of personal contact and a cheery word. Our chapter also shared in the I.O.D.E. gift to the Academy Road Veterans’ Home. Miss Vala Jonasson, who took over welfare convenership when Mrs. Baldwinson moved to Van- couver, reported sending a large box of excellent children’s and adults’ clothing to an ex-service man,’s family, and also financial aid. The clothing was donated by Mrs. B. Thorpe. Mrs. Sivertson reported six- teen articles knitted for unor- ganized territories. Mrs. J. Han- nesson and her helpers knitted and sewed 41 articles for Post War work, including two large afghans, knitted by Mrs. J. Nordal. The unselfish work of all these members in the welfare field has earned for the chapter the warm and lasting friendship of many persons. Miscellaneous Several members attended the annual convention in April, at which your secretary was re- elected to the Provincial execu- tive, and she has also served during the past year on the all- important project committee. I would urge all members to make themselves f u 11 y acquainted with the projects that are under consideration by the Provincial chapter and also to follow close- ly all resolutions that reach us from national headquarters of the Order, so that we may be full participants in the work of the Order, not only in contribut- ing our quota financially, but also making ourselves felt as a vital part of that spiritual force which is our hope and aim for the Imperial Order Daughters of the Empire. Members have given innumer- able personal services to the Order and to other community efforts. They assisted with the tea for the blind, the Red Cross canvass, sold tickets for the cook- ing school sponsored by the municipal chapter, at the Winni- peg Auditorium, in May; sup- ported the Winnipeg Symphony orchestra, the Winnipeg Ballet, worked at the municipal chap- ter’s tag day in April and ushered at the music festival. Under the convenership of Mrs. W. S. Jonasson and Mrs. E. W. Perry, a parade of 19th cen- tury fashions was featured at the annual fall tea, through the cour- tesy of the provincial chapter and Mrs. J. A. Argue, the presi- dent, who jointly loaned the costumes. The chapter held nine general meetings during the year. Three new members were welcomed, and we were happy to welcome back Mrs. Baldwinson on her return from Vancouver, but in- effably saddened at the passing of two members, Mrs. Jona Wright and Mrs. B. B. Jonsson. The members also wish to ex- tend their sympathy to those whb have sustained prolonged illness and bereavement during the year. We have had the pleasure of entertaining many guests at our meeting, and wish to welcome at this dinner meet- ing our special guests, Mrs. G. Gunlaugson, Mrs. K. Freeman, Mrs. W. A. Trott, municipal regent, and Miss Margret Peturs- son representing her mother, Mrs. R. Petursson, who gives such generous and loyal support to the chapter, We regret that some of the honorary regents honorary vice-regents could not accept the invitation to be our guest this evening. During the year Mrs. J. F. Kristjanson has efficiently acted as telephone convener, t h e secretary has looked after the chapter’s publicity and Mrs. P. S. Palsson convened the very enjoyable birthday bridge in March. Officers and conveners elected for the next year are: Mrs. B. J. Brandson, Mrs. R. Petursson and Mrs. J. B. Skaptason, honorary regents; Mrs. V. J. Eylands, Mrs. P. M. Petursson and Mrs. F. Stephenson, honorary vice- regents; Mrs. B. S. Benson, re- gent; Mrs. E. A. Isfeld, Mrs. O. Stephensen a n d Mrs. P. J. Sivertson, vice-regents; Mrs. H. F. Danielson, secretary; Mrs. H. G. Henrickson, treasurer; Mrs. W. S. Jonasson, standard bearer; Mrs. J. B. Skaptason, educational secretary; Mrs. E. W. Perry, Em- pire and world affairs convener; Mrs. T. E. Thorsteinson, Echoes secretary. Elected to serve on the com- mittee for services at home and abroad were Mrs. G. H. Nichol- son, Mrs. V. Baldwinson, Mrs. T. Hannesson, Mrs. P. J. Sivertson and Miss V. Jonasson. The members wish to thank all those who have so generously supported our work and given us encouragement. We wish to' thank individuals, business firms and the press for co-operation and generous space in their col- umns. Special thanks must go to Mrs. Albert Johnson, of Nell’s Flower Shop, who sent a beauti- ful floral centre piece for the fall tea and a letter of good wishes; and to Mr. S. O. Bjerring and Mr. S. Palmagon for their valuable assistance in preparing and installing the flag - staff at Sunrise Lutheran Camp. We wish to thank the provincial and municipal officers for co- operation and assistance. With the fine aid of all these public spirited citizens we hope to con- tinue the work of the chapter in furthering good community en- terprises. Holmfridur Danielson, Secretary. t Sagnablöðum reynir Finnur Magnússon að lýsa gufuskipi fyrir löndum sín- um, sem aldrei höfðu þvílíkt undur séð, og segist honum svo frá: Á árinu 1819 fluttist það fyrsta svokallaða dampskip til Danmerkur. Eins og önnur af sama kyni þarf það hvorki segla né ára til að komast áfram, held- ur hjól og slíkar margbrotnar tilfæringar, hverjum gufu af kyntum eldi heldur ávalt í hreyfingu. I masturs stað hafa slík skip ógna hávan stromp af járni, úr hverjum reykur og svæla ávalt gjósa eins og úr eldfjalli. —Lesbók Mbl.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.