Lögberg - 28.02.1952, Page 8
8
LÖGBEHG, FIMTUDAGINN, 28 FEBRÚAR, 1951
Einkennilegur draumur
Atburður sá er hér verður frá
skýrt, gerðist á írlandi á öldinni
sem leið og er talinn vera sann-
ur.
Maður nokkur að nafni Adam
Rogers, trúverðugur og heiðar-
legur, rak veitingasölu í Port-
law, sem er lítið þorp nálægt
Waterford 1 írlandi. Eina nótt
dreymdi Rogers, að hann sæi tvo
menn á stað einum er hann kann
aðist við í hálendi skammt frá
þorpinu. Annar þeirra var lítill
maður, veiklulegar útlits. Hinn
var stór og sterklegur. Hann sá
hinn síðarnefnda myrða litla
manninn og við það i vaknað
hann.
Draumurinn var svo raunveru
legur að Rogers varð mjög órótt.
Hann sagði konu sinni draum-
inn næsta morgunn og einnig
nokkrum nágrönnum sínum.
Nokkru síðar fór hann á veið-
ar með hunda sína og voru
nokkrir í fylgd með honum, þar
á meðal kaþólskur p r e s t u r,
Browne að nafni. Hann kom á
stað þann í hálendinu, er honum
hafði birst í draumnum, vísaði
prestinum á hann og sagði hon-
um frá draumnum.
Næsta morgunn varð hann
bæði skelfdur og undrandi er
hann sá tvo ókunna menn koma
inn í veitingastofuna um klukk-
an ellefu.. Hann gekk strax til
konu sinnar og bað hana að
veita þessum mönnum sérstaka
athygli, því að þeir væri einmitt
mennirnir sem hann sá í draum-
num.
Eftir að mennirnir höfðu feng-
ið sér hressingu ætluðu þeir á
brott. Rogers brá þá litla mann-
inum á einmæli og bað hann um
að skilja við félaga sinn. Full-
vissaði hann manninn um að ef
hann vildi bíða til næsta morg-
uns ,skyldi hann sjálfur fylgja
honum yfir fjallið til Carrick, en
það var staðurinn sem mennirn-
ir ætluðu til. Hann sagði þó ekki
ástæðunafyrir þessari b e i ð n i
sini og litli maðurinn, sem hét
Hickey, taldi ástæðulaust að
skilja við félaga sinn. Rogers tók
eftir að Hickey var með tals-
verða peninga og óttaðist nú enn
meira að einhver örlagaríkur at
burður mundi gerast. Fortölur
hans höfðu þó engin áhrif.
Stærri maðurinn hét Caulfield.
Hann talaði um fyrir félaga sín-
um og leiddi honum fyrir sjónir
að eðlilegast vær iað þeir væri
samferða þessa stuttu leið sem
eftir væri. Þeir fáru síðan l&iðar
sinnar.
Nokkru síðar um daginn
fannst Hickey myrtur á stað
þeim í hálendinu sem Rogers
hafði séð í draumnum. Fragnin
um morðið komst brátt til Port-
law. Rogers og kona hans fóru
þegar á morðstaðinn og þekktu
lík Hickeys. Þau létu þegar í ljós
grun sinn um það að Caulfield
væri morðinginn og var hann
tekinn fastur í Waterford dag-
inn eftir.
Það kom fram í réttarhöldun-
um, meðal annars, að á leiðinni
til Carrick hafði hann fengið lán-
aðan hest og dreng til að vísa
honum leið til Waterford því að
þar ætlaði hann að taka sér far
með skipi til Nýfundnalands.
Drengurinn tók eftir að blóð var
á skyrtu hans. Caulfield gaf
drengnum krónu fyrir að segja
ekki frá því. Við réttarhöldin
gaf Rogers ýmsar upplýsingar
v a r ð a n d i ferðafélagana sem
sýndi að hann hafði veitt þeim
sérstaka athygli. Hann var að
því spurður hvers vegna hann
hefði veitt þeim slíka athygli og
komst hann því ekki hjá því að
segja frá draumnum. Prestur-
inn, Browne staðfesti frásögn
hans, sem endaði á því að kona
hans hafði þunglega ásakað hann
fyrir að láta Hickey fara á braut
þótt hann væri sannfærður um
að mikil hætta vofði yfir honum.
Caulfield var dæmdar eftir lík
um. En eftir dóminn gerði hann
játningu sína. Hann hafði myrt
Hickey til fjár. VÍSIR
Kröpp kjör stúdenta við þýzka háskóla
Bréf til Dags frá íslenzkum námsmanni í Kiel
Úr borg og bygð
Matreiðslubók, sem Dorcasfé-
lag Fyrsta lúterska safnaðar lét
undirbúa og gaf út; þegar þess
er gætt, hve bókin er frábærlega
vönduð að efni og ytri frágangi,
er það undrunarefni hve ódýr
hún er; kostar aðeins $1.50 að
viðbættu 15 centa burðargjaldi.
Pantanir, ásamt andvirði,
sendist:
,*Mrs. R. G. Pollock,
708 Banning St.
Winnipeg,
Sími 36 603
Miss Ruth BárdaL
5 — 54 Donald St.
Winnipeg.
Sími 929 037'
☆
A meeting of the Jon Sigurd-
son Chapter I. O. D. E. will be
held at the home of Mrs. P. J.
Sivertson 497 Telfer St. on
Friday Eve., March 7th at
8 O’clock.
☆
VEITIÐ ATHYGLI
auglýsingunni um afmælis-
samkomu Betels, sem haldin
verður í Fyrstu lútersku kirkju
á þriðjudaginn 4. marz. Betel
hefir verið óskabarn Vestur-
íslendinga síðan það var stofn-
að fyrir 38 árum, og er það enn,
eins og maklegt er; samkomur
þess eru því ávalt fjölsóttar,
enda vandað til þeirra eftir
föngum, og svo hefir verið gert
í þetta skipti. Margan mun fýsa
að hlusta á próf. Finnboga Guð-
mundsson og sjá nýjar myndir
frá okkar fagra ættlandi, sem
hann sýnir og útskýrir. Húsmóð-
irin á Betel, Mrs. Tallman, segir
fréttir frá heimilinu, og margt
fleira verður til skemtunar. —
Styrkið gott málefni; njótið
góðrar skemtunar; sækið sam-
komuna!
☆
Próf. S. K. Hall, tónskáld,
Wynyard, Sask., er nú að búa
undir prentun þriðja bindi
sönglagabókar sinnar. Fyrstu
tvö heftin seldust vel og hlutu
ágæta dóma hjá dómbærum
mönnum, íslenzkum og annara
þjóða. í þessu hefti verða 8 lög,
sum við kvæði eftir vestur-
íslenzk skáld, bæði á frummál-
inu og í enskum þýðingum. Þýð-
endur Ijóðanna eru: Jakobína
Johnson, Próf. Skúli Johnson,
séra R. Fjelsted, Paul Bjarna-
son og H. S. Axdal.
Próf. Hall á miklar þakkir
skilið, ekki einungis fyrir hin
mörgu yndislegu sönglög, sem
hann hefir samið, heldur og fyr-
ir viðleytni hans að kynna
þannig canadísk skáld af ís-
lenzkum stofni. Söngelskt fólk
mun fagna útkomu þessa heftis.
GERANIUMS
18 VAtlETIES 20c
Everyone interested tn
houseplants should plant
a packet or two or our
Geranium Seed. We ofíer
a gorgeous collection
containing Dazzling Scar-
let Flame Red, Brick
Red, Crimson. Maroon,
Vermilion. Scarlet Sal-
mon, Cerise, Orange-Red.
Salmon - Pink. B r i g h t
Pink, Peach, Blush Rose,
White, Blotched. Varie-
gated, Margined Easy to grow from seed
and often bloom 90 days after planting.
(Pkt. 20c) (2 for 35c) postpaid. Plant now
SPECIAL OFFER: 1 pkt. as above and 5
pkts of other Choice Houseplant Seeds. all
different and easily grown in house.
Value $1.25, all for 65c postpaid.
Um þessar mundir birtist í
Winnipeg Tribune þættir úr
ævisögu George Smith, sem var
í starfsliði Winnipeg lögregl-
unnar í 40 ár, og um skeið yfir-
maður hennar; segir hann frá
ýmsum stórmálum, er lögreglan
hafði með höndum á þessu
tímabili. Fyrsta stórmálið, sem
hann rannsakaði var morðmál
1905. Segir hann þar frá ungum
og vöskum löregluþjóni, John J.
Samson, sem þá hafði verið í
lögregluliðinu í 18 mánuði og
sem flestir Islendingar munu
kannast við.
* ☆
Mrs. Matthildur Sveinson frá
Keenora, Ontario, sem dvalið
hefir í borginni nokkrar undan-
farnar vikur, og ferðast norður
til Riverton og Mikleyjar, fer
heimleiðis í næstu viku.
*
Donated to Sunrise Lutheran
Camp $5.00 by Thor Lifman,
Arborg, in memory *of Andrés
Erlendson who died Feb. 17,
1952.
☆
Mrs. Jóhannes Gíslason frá
Elfros, Sask., hefir dvalið í borg-
inni undanfarinn vikutíma í
heimsókn til systur sinnar, Mrs.
Anderson, Tremont Apts., og
annara ættingja og vina.
☆
KveSjusamsæti
Þann 19. janúar s.l. var haldið
samsæti á hinu fallega heimili
Mr. og Mrs. S. Thorkelsson, 100
Ungava St., Victoria, B.C., til
heiðurs Miss Katrínu Brynjólfs-
son, sem nú er á förum til Is-
lands. Um 30 gestir voru við-
staddir; The Victoria Women’s
Icelandic Club gáfu heiðursgest-
inum ferðaklukku í skilnaðar-
gjöf.
Miss Brynjólfsson kom til
þessa lands með bróður sínum,
séra Eiríki Brynjólfssyni og
fjölskyldu hans 1947. Húft hefir
eignast marga vini hér um slóð-
ir og mun dvelj’a nokkra mánuði
í Winnipeg áður en hún fer
heim.
☆
Stúkan HEKLA I. O. G. T.
heldur fund á venjulegum stað
og tíma þriðjud., 4. marz n. k.
' ☆
Mrs. Sigríður Walterson, 407
Taylor Ave., Selkirk, dó á mánu-
daginn, 25. febrúar á St. Boni-
face Old Folks Home, 70 ára að
aldri. Hún kom til þessa lands
fyrir 67 árum og hefir búið í
Selkirk lengst af þeim tíma;
maður hennar, Sigurgeir, dó fyr-
ir allmörgum árum. Hún lætur
eftir sig tvo sonu, Harvey og
Neil í Winnipeg; fjórar dætur,
Mrs. W. Matthews, Kelvington,
Sask., Mrs. E. McKay, Selkirk,
Mrs. W. Harvey, Dickens P. O.
og Mrs. Bisset, Cleveland, Ohio;
ennfremur 17 barna-börn og 1
barna-barna-barn; eina systur,
Mrs. Eliza Roberts, Winnipeg.
Útförin fór fram á miðviku-
daginn; séra Sigurður Ólafsson
jarðsöng.
☆
Nýstárleg hreyfimynd.
„45 Tioga Street“ nefnist
hreyfimynd, sem sýnd verður í
samkomusal Fyrstu lútersku
kirkju á eftir messu á sunnu-
dagskvöldið, 9. marz, kl. 8:15.
Myndin fjallar um hugðarefni
sem kirkjulega sínnuðu fólki er
ljúft að dvelja við. Engin sam-
skot. Allir velkomnir.
Baldur Ingólfsson mennia-
skólakennari hér á Akureyri
dvelur um þessar mundir við
framhaldsnám í Kiel í Þýzka
landi. Baldur skrifar blaðinu
nýlega m. a. á þessa leið um
ástand og horfur suður þar.
. . . Héðan að sunnan mætti
skrifa margt, því að heldur er
órólegt í okkar gömlu Evrópu
eins og fyrri daginn og stundum
erfitt að átta sig á því, hvað satt
er í öllum þeim fréttum og ár-
óðri, sem hér dynur á mönnum,
bæði að vestan og austan. Þjóð-
verjar hugsa þó meira um að
byggja land sitt upp aftur og
hafa þegar náð furðumiklum ár-
angri, því að í mörgum borgum,
t. d. Kiel voru allt að 80% allra
íbúðarhúsa eyðilögð, auk verk-
smiðja, samgöngutækja o. s. frv.
Þó segja þeir, að líða muni ein
öld, áður en öll merki annarrar
heimsstyrjaldarinnar verði af-
máð.
Rælt um Schuman-áællunina.
Annað, sem hér er mjög á dag-
skrá, er Schumanáætlunin, sem
nú er óðum að komast á laggirn-
ar. Hér eru allskiptar skoðanir
um hana og Þjóðverjar tor-
tryggnir, þó að þeim sé auðvitað
ljóst, hvern hag þeir muni hafa
af áætluninni. Mjög virðast mér
Þjóðverjar vera gegn endur-
vopnun, einkum stúdentar.
Háskóli í raftækjaverksmiðju!
Ég sendi til gamans mynd af
háskólanum í Kiel. Hann er nú
til húsa í gamalli raftækjaverk-
smiðju, sem framleiddi fyrir her-
inn, því að gömlu háskólabygg-
ingarnar gereyðilögðust í stríð-
inu. Eftir stríðið kom til mála að
flytja háskólann til Schleswig,
þar sem Kiel var svo illa útleik-
in, en ekki varð úr því, þar eð
yfírvöld borgarinnar sáu fram á,
að borgin yrði þá of þýðingar-
lítil og líflaus, eftir að flotinn
þýzki og allt, sem honum til-
heyrði, var úr sögunni.
Kröpp kjör siúdenia
Mjög mikið er gert fyrir stú-
dentana, sem eru um 2800, og
sótzt eftir að fá sem bezta
kennslukrafta, og hefur það tek-
izt með ágætum. Þýzkir stúdent-
ar lifa almennt við mjög kröpp
kjör, svo að yfir helmingur
þeirra verður að komast af með
hundrað mörk á mánuði. Af því
gætu þeir þó ekki lifað af, ef
þeir hefðu ekki óbeina hjálp frá
fjölskyldum sínum eða beina
hjálp frá stúdentasamtökunum,
sem svo njóta styrks frá ríkinu.
Einn íslendingur í Kiel
Ég er eini íslenzki stúdentinn
í Kiel, én tveir eru í Hamborg.
Auk þess munu einhverjir vera
í Köln . . .“ — DAGUR, 23 jan.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMU N DSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK
SÖNGSKEMTUN
Mrs. Elma Gíslason syngur vel valin lög,
þar á meðal þjóðsöngva frá ýmsum löndum.
Meðspilari verður Gwendda Owen Davies
I FYRSTU SAMBANDSKIRKJU
Fimtudaginn, 6. marz
Inngangur 75c Byrjar kl. 8.30
undir umsjón stjórnarnefndar safnaðarins.
Slær í hart við
bónda, er neitar að
skera fé sitt
Hann skemmdi bíl eflirliis- ,
mannsins með skammbyssu-
skoium
I Árnessýslu fór niðurskurður
á fé bænda fram nú í haust, í
sambandi við fjárskiptin. Bónd-
inn að Skipholti, Stefán Guð-
mundsson, sem á 17 kindur, neit-
aði að skera þær.
Á Þorláksmessu.
Gekk svo fram til jóla að ár-
angurslaust var hann beðinn að
fara að settum fyrirmælum. Á
Þorláksmessu fór eftirlitsmaður
með framkvæmd niðurskurðar-
ins, heim að Skipholti til fundar
við Stefán bónda.
Skaui á bílinn.
Meðan eftirlitsmaðurinn hafði
þar viðdvöl, gerði Stefán sér lít-
ið fyrir, tók kindabyssu sína og
skaut gat á alla fjóra hjólbarða
bílsins og einnig braut hann rúð-
ur í honum með skothríð sinni.
Eftirlitsmaðurinn varð þaðan
að hverfa án þess að úr niður-
skurði á kindum Stefáns bónda
yrði. — Eru þær enn á lífi. —
Eftirlitsmaðurinn kærði þessa
árás til sýslumánnsins á Sel-
fossi.
Slæm færð hamlar.
Svo sem kunnugt er hafa verið
illviðri og vegir erfiðir yfirferð-
ar, frá því um jólin. Hefir yfir-
valdið ekki aðhafzt í málinu, en
til þess mun nú draga innan
skamms, ef fært verður að Skip-
holti.
—Mbl., 16. jan.
Rif-gerðasamkeppni
um kristilegt efni
Hin íslenzka þjóðkirkja efn-
ir til ritgerðasamkeppni í
gagnfræða- og héraðsskólum
landsins o. fl. um efnið
„Dæmisögur Krist í guð-
spjöllunum“.
Herra Sigurgeir Sigurðs.son
biskup skýrði fréttamönnum í
gær frá ofangreindri samkeppni.
Þátttakendur eru nemendur
gagnfræðaskóla, héraðsskóla,
kvenna- og húsmæðraskóla, sjó-
mannskóla, iðnskóla, samvinnu-,
verzlunar-, kennara- og mennta-
skóla. Þriggja manna nefnd
dæmir ritgerðirnar, en þeim sé
skilað fyrir maílok og verði eigi
lengri en 1200 orð. Verðlaun
verða þrenn: Ferð til Glasgow,
Nojrðursjávar- og Miðjarðarhafs-
hafna.
Ritgerðasamkeppni þessi er
einkum gerð til þess að glæða
áhuga æskunnar fyrir Ritning-
unni, en vel má vera, sagði
biskup, að samkeppni þessi verði
vísir að stærra og meira átaki
í þessum efnum.
—VÍSIR, 16. jan.
M ESSU BOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylanda.
Heimili 686 Banning Street. Sími
30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 2. marz
Ens kmessa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
Mikið fjölmenni yið
minningarathöfnina
í Grindavík í gær
I GÆR fór fram í Grindavíkur-
kirkju minningarathöfn um skip
verjana er fórust með vélbátn-
um Grindvíkingi, og var mjög
mikill fjöldi fólks viðstaddur
víðs vegar að. Komust ekki nær-
ri allir inn í kirkjuna, og var
gjallarhornum komið fyrir úti,
fyrir þá, sem ekki komust inn.
Ræður fluttu biskupinn yfir
Islandi, Sigurgeir Sigurðsson,
sóknarþresturinn í Grindavík,
séra Jón Árni Sigurðssoif, og
séra Eiríkur Brynjólfsson, prest-
ur að Útskálum.
Lík Grindvíkinganna fjögurra
Jóhanns Magnússonar s k i p -
stjóra, Guðm. Hermanns Krist-
inssonar, vélstjóra, Sigfúsar
Bergmanns Árnasonar og Þor-
valdar Jóns Kristjánssonar voru
öll jarðsett í sömu gröf, en lík
eins skipverjans, Valgeirs Val-
geirssonar, var flutt til greftrun-
ar norður í Strandasýslu, í átt-
haga hans.
I Grindavík hefur verið stofn-
a ð u r minningarsjóður u m
drukknaða sjómenn frá aldamót-
um.
—i A. B., 30. jan.
THE VIKING CLUB
Ninlh Annual
Banquet & Ball
Friday, March 7th, 6.30 p.m.
MARLBOROUGH HOTEL
(Dress Optional)
Dinner and Dance $2.50
Dance Only $1.00
Please Reserve Early
Afmælissamkoma Betels
undír umsjón Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar
verður haldin í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU Á VICTOR ST.
Þriðjudaginn 4. marz I 952--Byrjar kl. &. I 5
1. ÁVARP FORSETA Séra V. J. Eylands
2. SAMSÖNGUR (Choral Group)
3. PÍANÓ SOLO ............. Miss Sigrid Bardal
4. VOCAL SOLO..................Mr. Paul S. Bardal
5. FRÉTTIR FRÁ BETEL ...... Mrs. J. A. Tallman
6. SAMSKOT
7. RÆÐA (sýnir myndir frá íslandi)
Próf. Finnbogi Guðmundsson
8. VOCAL SOLO Mr. Paul S. Bardal
9 VOCAL QUARTETTE ....
Miss Gwen Frederickson Mr. Albert Halldórsson
Miss Lilja Eylands Mr. Alvin Blöndal
GOD SAVE THE QUEEN
Við hljóðfærið: Mrs. E. Isfeld — Miss Sigrid Bardal
Að lokinni skemtiskrá er öllum boðið að setjast til borðs
við kaffiveitingar (rúgbrauð, rúllupylsu, pönnukökur o. fl.)
í neðri sal kirkjunnar.