Lögberg - 24.04.1952, Page 1

Lögberg - 24.04.1952, Page 1
PHONE 21374 U<*?e r> 1 í>a.T'-e"rS Clett' pn) A Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21374 ,T, d clett^eT* A Complele Cleaning Inslilulion 65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 24. APRÍL, 1952 NÚMER 17 Lögberg árnar íslenzka mannfélaginu vestan hafs og austan gleðilegs sumars Mætur athafnamaður látinn Síðastliðinn laugardagsmorg-- un varð bráðkvaddur að heimili sínu 796 Grosvenor Avenue hér í borginni, Mr. Jón Júlíus Swan- son, víðkunnur athafnamaður, er um langt' skeið tók mikinn og giftudrjúgan þátt í starfsemi ís- lenzkra mannfélagsmála bæði í Winnipeg og víðar; hann var prúður maður í umgengni og drengur góður. Jón heitinn var fæddur að Álftartungu á Mýrum hinn 1. dag júlímánaðar 1880 og fluttist 9 ára að aldri til Winni- peg, en þangað voru foreldrar hans áður komin, þau Þorvarður Sveinsson og Guðrún Jónsdóttir; að afloknu barna- og miðskóla- námi lagði Jón stund á verzlun- arfræði og hafði um hríð með höndum bókfærslu hjá J. A. Banfield húsgagnaverzluninni, sem fjöldi Islendinga átti mikil viðskipti við. Skömmu eftir að tengdabróðir Jóns, Hinrik heitinn Henricson stofnaði fasteignaverzlun sína árið 1912 gekk Jón í félag við hann og hefir fyrirtækið lengst af gengið undir nafninu J. J. Swanson & Company, er brátt færði út kvíar og naut almenns trausts; var Jón maður hagsýnn og ábyggilegur í viðskiptum; hann var áratugum saman fé- hirðir elliheimilisins Betel og lét sér manna hugarhaldnast um velferð stofnunarinnar; hann átti í fjöldamörg ár sæti í fram- kvæmdarnefnd The Columbia Press Limited, studdi Fyrsta lúterska söfnuð af ráði og dáð og var um tímabil formaður fé- lags fasteignakaupmanna í þess- ari borg. Jón hafði jafnan mik- inn áhuga á stjórnmálum og hneigðist að skoðunum vinstri manna, er á leið ævina; hann leitaði kosningar til Sambands- þings undir merkjum C. C. F.- sinna í Mið-Winnipeg kjördæm- inu hinu syðra, en beið þá lægra hlut og freistaði eigi gæfunnar í þeim efnum framar. Árið 1902 kvæntist Jón og gekk að eiga ungfrú Kristínu Jónsdóttur frá Hjarðarfelli í Dölum, fallega konu og híbýla- prúða; var heimilislíf þeirra hið ástúðlegasta um allt; þeim varð sex barna auðið, tvö dóu í æsku, en þau ,sem eftir lifa eru J. J. Swanson Wilfrid, búsettur í Winnipeg, Julia í Calgary, Raymond, er heima á í Toronto og Irene til heimilis í Winnipeg. Jón lætur eftir sig fjögur systkini, Svein í Edmonton, Mrs. H. Henrickson, Mrs. B. Júlíus og Mrs. J. Drysdale, allar búsettar í Winnipeg; tvö börrt tóku foreldrar Jóns, Þorvarður og Guðrún, til fósturs, þau Ólaf •verðbréfasala í Winnipeg og Elínu Sigurðsson, sem látin er fyrir mörgum árum; nutu þau á heimili þeirra engu minna ást- ríkis en þeirra eigin börn. Lögberg vottar sifjaliði hins horfna, mæta manns, innilega samúð vegna þess djúpa harms, sem nú er að því kveðinn. Útförin fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju í gær að við- stöddu miklu fjölmenni þar sem séra Valdimar J. Eylands flutti hin hinztu kveðjumál. Tilkynning frá skrifstofu ræðismanns íslands í Winnipeg Frá áflæðissvæðunum Enn er hvergi nærri séð fyrir endann á þeim hörmungum, sem af völdum Missouriárinnar stafa í Missouri, Nebraska og Iowa; tala heimilislausra er sögð að vera komin á annað hundrað þúsund og enn er áin í hamförum; á hinn bóginn hefir lækkað allmjög í Missisippi- fljóti. Um fimm hundruð fjölskyldur hafa orðið að flýja heimili sín í Swift Current-bygðarlögunum í Saskatchewan vegna vatna- vaxta. Uianríkisráðuneylið Reykjavík, 5. apríl 1952 Gin- og klaufaveiki- vegabréfsáritanir Hér með sendist afrit af bréfi frá dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu, dags. 3. þ.m., þar sem lagt er fyrir sendiráð og ræðis- mannsskrifstofur í þeim lönd- um, sem gin- og klaufaveiki geysar í, fyrst um sinn þar til öðruvísi verður ákveðið, að veita engum vegabréfsáritanir til íslandsferðar nema eftir bein- um fyrirmælum frá dómsmála- ráðuneytinu. Það skal tekið fram, að þetta á auðvitað einungis við ríkis- borgara þeirra landa, sem ísland hefir ekki samkomulag við um afnám visumskyldu. Samkomu- lag hefir verið gert við Dan- mörku, Noreg, Svíþjóð, Bret- land, Sviss, írland, Holland, Belgíu, Frakkland, Monaco, Italíu og Finnland. F. r. Magnús V. Magnússon (sign.) Ræðismaður íslands, Winnipeg. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið Reykjavík, 3. apríl 1&52 Hér með er þess beiðst, að utanríkisráðuneytið feli sendi- ráðum og ræðismannsskrifstof-* um íslands í þeim löndum, sem gin- og klaufaveiki geysar í, fyrst um sinn þar til öðruvísi verður ákveðið, að veita engum vega- bréfsáritanir til íslandsferðar nema eftir beinum fyrirmælum frá dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu. F. h. r. e. u. Ragnar Bjarkan (sign.) Til utanríkisráðuneytisins. Ræðismannsskrifstofa íslands í Winnipeg, er eina skrifstofan í Canada, sem annast um stað- festingar áritanir á vegabréf. Sir Stafford Cripps látinn Síðastliðinn mánudag lézt á heilsuhæli í Zurich á SvisSlandi Sir Stafford Cripps fyrrum fjár- málaráðaherra Breta, nálega sextíu og þriggja ára að aldri; hann hafði átt við langvarandi veikindi að stríða, er þrátt fyrir einbeitni hans og viljakraft náðu að lokum yfirhönd. Sir Stafford var vellauðugur lögfræðingur, er gekk snemma ævi sinnar í jafnaðarmannaflokkinn og varð brátt einn af aðalleiðsögumönn- um hans; er jafnaðarmenn'tindir forustu Clements Attlee komu til valda á Bretlandi að lokinni síðari heimsstyrjöldinni, var Sir Stafford skipaður fjármálaráð- herra og hafði það embætti á hendi á erfiðum kreppuárum .meðan kraftar leyfðu; hann var maður rökvís og fylginn sér vel; meðan á styrjöldinni stóð var Sir Stafford sendiherra Breta í Rússlandi, og skipaði Winston Churchill hann í það vandasama embætti, en þeir voru jafnan góðir vinir. Varð yfirsterkari Við nýafstaðið prófkjör í New Jerseyríkinu, varð Eisenhower hershöfðingi yfirsterkari Sena- tor Taft og fékk kosinn 31 er- indreka á framboðsþing Repub- licana gegn 6, er féllu hinum síðarnefnda í skaut. Harald E. Stassen fékk einn erindreka. Andrew Daníelsson Sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar Sú frétt barst Lögbergi í byrj- un vikunnar, að hinn kunni at- hafnamaður og fyrrum ríkis- þingmaður í Washington, Andrew Daníelsson, hafi verið sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lenzku Fálkaorðu. Mr. Daníels- son á heima í Blaine, Wash., og þar fór afhending orðunnar fram, en athöfnina framkvæmdi vara- ræðismaður íslands í Seattle, Mr. F. K. Frederick. Lögberg flytur hinum nýja riddara innilegar árnaðaróskir. íslenzk sfefna, tímarit Nýalssinna Félag Nýalssinna, sem hefir það að markmiði að útbreiða kenningar dr. Helga Péturss, gefur út tímarit, sem nefnist Islenzk stefna og eru þeir rit- stjórar Þorsteinn Jónsson og Sveinbjörn Þorsteinsson. Komið er út fyrsta hefti annars árgangs íslenzkrar stefnu og er efni rits- ins þetta: Þekking og vanþekk- ing eftir dr. Helga Péturss, Frægasta nafnið eftir Bjarna Bjarnason, Eðli drauma, athygl- isverð grein eftir Grím, ósjálf- ráð skrift rituð af Þóru Mörtu Stefánsdóttur veturinn 1929 og koma þar fram látnir menn svo sem Stefán B. Jónsson, Jón Sigurðsson, forseti og margir fleiri, Mótunarvald minninganna nefnist grein eftir Þorstein Jóns- son á Úlfsstöðum. Áfmæli Brefadrofningar Á mánudaginn var átti Eliza- beth Bretadrotning 26 ára af- mæli; dvaldi hún þá um daginn í Windsorkastala ásamt manni sínum og börnum; drotningurini bárust heillaóskaskeyti víðsveg- ar að í tilefni af afmælinu. Loftleiðir reyna að festa kaup á nýrri Skymaster-vél Alfreð Elíasson fór þeirra erinda veslur um haí s.l. laugardag Síðastliðinn laugardag fór Alfreð Elíasson, flugstjóri hjá Loftleiðum h.f., vestur um haf, til þess að leita fyrir sér um kaup á heppi- Fimta boð Park-Hannesson félagsins f-il Austur-Canada og New York Halldór Kiljan Laxness Fimtugur er í dag hinn sér- stæði og mikilhæfi rithöfundur íslenzku þjóðarinnar, Halldór Kiljan Laxness. Sjá afmælis- grein um skáldið á bls. 4, eftir Finnboga prófessor Guðmunds- son. Borun fyrir olíu Borun fyrir olíu er hafin á ný í námunda við bæinn Virden hér í fylkinu, og virðast námufræð- ingar nú þeirrar skoðunar, að þar muni vera nægilegt olíu- magn til verzlunarvöru vinslu. California Standard Oil félagið hefir framkvæmdir með hönd- um og leggur fram féð. legri millilandaflugvél fyrir félagið. Héðan fór Alfreð til New York, þar sem hann mun vinna að þessum málum fyrir félagið, en, eins og kunnugt er, hefir það nú enga millilandaflugvél, síðan Hekla fórst í lendingu á ítalíu í leigu erlends flugfélags í vetur. Við þá vél voru miklar vonir bundnar, eins og að líkum lætur og ráðgerðar með henni áætlun- arflugferðir milli íslands og annarra landa í vor. Ekki er Vísi kunnugt, hvers konar vél það er, sem Loftleiðir hyggjast festa kaup á, en ýmis- legt bendir til þess, að félagið muni reyna að festa kaup á vél af Skymaster-gerð, en þær hafa reynzt okkur íslendingum mjög vel, en kostnaður allur viðráðan- legri af ekki stærri vél en hin- um stærstu sem nú eru í notkun. Almenningur fylgist vel með þessum málum, og vitað er, að víða er mikill áhugi ríkjandi fyrir því, að Loftleiðum takist að festa kaup á nýrri vél í stað Geysis, sem fórst á Vatnajökli, eins og kunnugt er, en afdrifum Heklu er áður sagt frá. —VÍSIR, 25. marz Niðurgreiðsla farmgjalda Sambandsstjórn hefir kunn- gert, að frá 1. maí næstkomandi að telja lækki farmgjöld með járnbrautum milli Austur- og Vestur-Canada sem svari 7 milj- ónum á ári; er þetta gert að til- hlutun járnbrautarráðs er mælti með því að áminstum niður- greiðslum yrði hrundið í fram- kvæmd eins fljótt og því fram- ast mætti koma við. Á mynd þessari gefur að líta þær æfintýrahetjur úr fiskiðnaði Sléttufylkjanna, er veið- arfæraverzlunin góðkunna, Park-Hannesson Company Limited, tók nýlega með sér í Austurveg undir forustu Mr. Roy Parks: voru félagar þessir tíu daga í ferðinni og rómuðu mjög leiðsögn fararstjóra og allan aðbúnað á ferðalaginu; auk þess að koma við í Toronto, Ottawa, Montreal og Drummondville, þar sem hinar miklu veiðarfæraverk- smiðjur eru reknar, heimsóttu þeir New York og komu um borð í skip Eimskipafélags íslands, Tröllafoss, sem nýkomið var þangað frá Reykjavík. Fremri röð: Simbi Josephson, Josephson Bros., Gimli, Man.; Haddi Peterson, Peterson Bros., Gimli, Man.; Lawrence Goodman, Booth Fisheries, Winnipeg; Jas. Harwood, Fish Merchant, Dilke, Sask. Bakröð: Richard Waite, Waite Fishg^ies, Big River, Sask.; C. W. Christenson, Fish Marketing Service, Prince Albert, Sask.; Snorri Jqnasson, Perfection Net & Twine Co., Winnipeg; Oli Josephson, Josephson Bros., Gimli, Man.; D. F. Corney, Fish Marketing Service, Prince Albert, Sask.; Sam Peterson, Peterson Bros., Gimli Man.; Roy A. Schlader, Mclnnis Products, Edmonton, Alta.; Roy E. Park — Park-Hannesson Ltd., Winnipeg Gerir yart yið sig á ný Hinn illkynjaði vágestur, gin- og klaufnaveikin, sem eigi alls fyrir löngu gerði mikinn usla í Saskatchewanfylkinu, hefir nú stungið sér þar niður á ný og hefir ellefu skepnum þegar ver- ið slátrað í suðurhluta fylkisins af völdum sýkinnar, af þessari ástæðu hafa stjórnarvöldin hert mjög á eftirlitinu, og má nú nokkurn veginn telja víst, að hert verði jafnframt á innflutn- ingsbanni búpenings frá Saskat- chewan og millifylkja viðskipt- um í þessari grein.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.