Lögberg - 23.10.1952, Blaðsíða 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 23. OKTÓBER, 1952 NÚMER 43
--------:-----------------------------------------------------------------------------_____--------------------------------------------------«
Háskóli Manitobafylkis sæmir Dr.P.H.T.
Thorlakson heiðursdoktorsgráðu í lögum
Vegleg hátíðahöld eru nú í undir-
búningi í tilefni af 75 ára afmæli
háskóla Manitobafylkis, þessarar
umfangsmiklu stofnunar, sem jafnt
og þétt víkkar landnám; aðal-
hátíðin fer fram á þriðjudags-
kvöldið þann 28. þ. m. í Civic
Auditorium, þar sem landsstjórinn
í Canada, Rt. Hon. Vincent Massey,
flytur meginræðuna; fjórtán þjóð-
kunnir borgarar úr hinum ýmissu
stéttum samfélagsins, þeirra á
meðal Mr. Massey, Mr. Victor
Sifton, hinn nýskipaði háskóla-
kanzlari, og Dr. P. H. T. Thorlak-
son, hafa verið kjörnir heiðurs-
doktorar í lögum við háskólann, og
verða þar formlega kynntir sam-
komu gestum og skrýddir að há-
skólasið.
1 ritstjórnargrein um kjör hinna nýju heiðursdoktora, komst
Winnipeg Free Press svo að orði um Dr. Thorlakson, að ekki hefði
verið unt að ganga fram hjá slíkuni afburðamanni, og munu flestir
verða á eitt sáttir um það, að slíkt sé eigi ofmælt.
Að rita langt mál um Dr. Thorlakson og fjölþættan starfsferil
hans, er í rauninni óþarft, því svo er nafn hans kunnugt meðal
Islendinga vestan hafs óg reyndar austan hafs líka, því þar sannast
hið fornkveðna, að verkið lofar meistarann; og víst er um það,
að meðal Vestur-íslendinga, var Dr. Thorlakson fyrir löngu
„drápunnar verður."
Dr. Thorlakson er meðlimur í mörgum vísindafélögum, svo
sem félagi brezkra skurðlækna og skurðlæknafélaginu ameríska;
hann er formaður krabbarannsóknarfélagsins canadiska og stofn-
andi hinnar umfangsmiklu og víðkunnu lækningastofnunar,
Winnipeg Clinic, en þrátt fyrir óhemju annríki við læknisstörfin,
hefir honum ávalt unnist tími til að gefa sig að íslenzkum menn-
ingarmálum á mikilvægan hátt; forusta hans varðandi framgang
kenslustólsmálsins í íslenzku við Manitobaháskólann mun lengi í
minnum höfð, ásamt árvekni hans og elju vegna útgáfu Lögbergs.
Sérhvert það rúm, sem Dr. Thorlakson skipar, er með ágætum
skipað.
Dr. Thorlakson er annað og meira, en mikill vísindamaður og
frábær athafnamaður; hann er það, sem mest er um vert, and-
legur höfðingi og mannkostamaður, sem fáir komast til jafns við.
Leifs Eiríkssonar minnst í
Norður-Dakota
Dr. P. H. T. Thorlakson
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
12. OKTÓBER
Leifs Eiríkssonar og Vínlands-
fundar hans var aftur á þessu
hausti minnst með ýmsum hætti
í Norður-Dakota, og áttu íslend-
ingar þar sinn þátt í því.
Norsk - ameríska vikublaðið
„Normanden“ í Fargo birti þ. 9.
október einkar skilmerkilega
grein eftir Guðmund Grímsson
hæstaréttardómara um Leifs-
styttu þá hina miklu, sem
Bandaríkin sæmdu ísland að
gjöf í tilefni af Alþingishátíð-
inni 1930, og fylgdi greininni
stærðarmynd af styttunni. Einn-
ig flutti blaðið ritstjórnargrein
um Leif og Ameríkufund hans.
Þjóðræknisdeild Norðmanna
(Sons of Norway) í Grand Forks
efndi að kvöldi þ. 10. október
til samkomu er helguð var
norskum og öðrum norrænum
landnemum vestan hafs á síðari
tímum, en jafnframt minningu
Leifs Eiríkssonar og afrekum
hans; var dr. Richard Beck for-
m a ð u r undirbúningsnefndar
samkomunnar.
Hann útvarpaði einnig frá út-
varpsstöð ríkisháskólans í Norð-
ur-Dakota (University of North
Dakota) í Grand Forks síðdegis
á mánudaginn þ. 13. október
Rýr fiskveiði
Þær fregnir hafa borist af
haustvertíðinni á Winnipeg-
vatni, að afli sé með lélegasta
móti og afspyrnurok hafi mjög
torveldað veiðina; nokkurt netja
tjón er sagt að orðið hafi út frá
verstöðvum.
Fiskveiði við Mikley hefir á-
takanlega brugðist.
ræðu um Leif Eiríksson og nor-
rænan hetjuanda, en fyrir há-
degið samdægurs hafði dr. Beck
flutt erindi um Leif og Vínlands-
fund hans fyrir all-fjölmennum
hóp háskólastúdenta. Annars er
12. október lögfestur „Land-
fundadagur" (Discovery Day) í
N. Dakota, en þar sem hann féll
á sunnudag var hann hátíðlegur
haldinn daginn eftir.
Hlýtur verðlaun
í píanóleik
Miss Evelyn Thorvaldson
.1 nýafstöðnum hljómlistar-
prófum við Manitobaháskólann
hlaut Miss Evelyn Thorvaldson
verðlaun Jon Sigurdson Chapter
I. O. D. E. í píanóleik. Aðal-
kennarar hennar hafa verið Mr.
Gunnar Erlendsson og Miss
Frida Simundson.
Miss Thorvaldson hefir líka
mjúka og yndisfagra söngrödd,
sem hún hefir skemt mörgum
með ásamt móður sinni á sam-
komum íslendinga hér um slóð-
ir. Hún er dóttir Mr. og Mrs. T.
R. Thorvaldson, 37 Roslyn Road.
Frá kvöldskólanum
við Broadway
Vegna 75 ára afmælishátíðar
háskólans fellur öll kennsla
niður í kvöldskólanum við
Broadway þriðjudagskvöldið 28.
október.
Hefst námskeið það 1 íslenzk-
um bókmenntum, sem auglýst
var í síðasta blaði, af þeim sök-
um ekki fyrr en þriðjudags-
kvöldið 4. nóvember kl. 8. Eru
menn vinsamlega beðnir að at-
huga þetta og láta það berast.
Frá þingi sam-
einuðu þjóðanna
Þing sameinuðu þjóðanna kom
saman í New York í vikunni,
sem leið, og er því svo að segja
nýsezt á rökstóla; forsæti skipar,
eins og þegar er vitað, Lester
B. Pearson, utanríkisráðherra
Canada; aðeins fulltrúar tveggja
stórþjóða hafa látið til sín heyra
fram að þessu, þeir Acheson
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna og Vishinsky utanríkisráð-
herra Rússlands; var ræðu hins
fyrnefnda mjög stilt í hóf og
einkum skýrt frá tilraunum
herja sameinuðu þjóðanna í þá
átt, að koma á vopnahléi í
Kóreu; á hinn bóginn var ræða
Vishinskys þrungin stóryrðum
og öfgum, er orkuðu lítt á hugi
þingheims; var hann einkum
bituryrtur í garð Bandaríkjanna
og kendi þeim um ástandið í
Kóreu, svo sem hann hafði áður
gert.
Þingið akvað að taka á dagskrá
og til umræðu kynþáttadeiluna
í Suður-Afríku, þrátt fyrir
ströng mótmæli af hálfu erind-
reka Malanstjórnarinnar þar í
landi, og höfðu þeir í hótunum
um að ganga af þingi.
Banaslys á Húsavík
í fyrrinótt varð bifreiðarslys
á Húsavík, er leiddi til þess, að
gamall maður, Stefán Þórðar-
son að nafni, lézt af meiðslum,
er hann hlaut.
Stefán heitinn sat í aftursæti
bifreiðarinnar M-47, sem er eign
manns á Húsavík, er hún rakst
aftan á vörubifreið frá Akur-
eyri. Stóð vörubifreiðin á vegar-
brún á Garðarsbraut. Pallur
vörubifreiðarinnar ' mun hafa
gengið inn í fólksbifreiðina, sem
rifnaði mikið, en við þetta hl^ut
Stefán mikla áverka. Bílstjór-
ann mun hins vegar ekki hafa
sakað, en sjónarvottar að slys-
inu voru engir. Stefán var flutt-
ur í sjúkrahús á Húsavík, og lézt
þar síðar af áverkunum.
Sorgaratburður
Síðastliðið mánudagskvöld
gerðist sá sorglegi atburður, að
Mr. Donald McLachlan Smith,
28 ára að aldri, beið bana af
völdum bílslyss, ásamt öðrum
manni, skamt frá bænum St.
Norbert um 13 mílur suður af
Winnipeg. Mr. Smith var af
skozkum ættum, hann var hæfi-
leikamaður og vel að sér um
alt ger; hann var fyrir tveimur
árum kvæntur Elene Eylands,
dóttur þeirra séra Valdimars J.
Eylands og frú Lilju Eylands,
hinni elskuverðustu konu; var
heimili þeirra að Ste. 8 Agnes
Apts., hér í borginni.
Útför þessa vinsæla og ágæta
manns fer fram frá Fyrstu lút-
ersku kirkju kl. 2 e. h. á föstu-
daginn kemur. Séra Harald S.
Sigmar frá Gimli jarðsyngur.
Lögberg vottar sifjaliði hins
látna innilega samúð vegna
þess heita harms, sem nú er að
því kveðinn.
W. J. Lindal dómari
Kjörinn forseti
Á fundi, sem haldinn var í
samkomusal Sambandskirkjunn-
ar hér í borg á mánudagskvöld-
ið var W. J. Lindal dómari kos-
inn forseti Icelandic Canadian
Club í stað Jóns K. Laxdal, er
lét af þeim starfa vegna anna.
Frá starfsemi
Dr. Becks
Dr. Richard Beck prófessor
hefir undanfarið birt greinar og
ritdóma um íslenzk og norræn
efni í kunnum amerískum bók-
mennta- og fræðiritum.
1 júníhefti The American-
Scandinavian Review 1 New
York birti hann minningargrein
um Svein heitinn Björnsson, for-
seta íslands, er prentuð var sem
forustugrein í ritinu, ásamt heil-
síðumynd af hinum látna for-
seta; hefir greinar þessar verið
vinsamlega getið í norsk-ame-
rískum blöðum.
Dr. Beck var einnig meðhöf-
undur bókfræðilegrar skrár yfir
amerísk rit og ritgerðir um nor-
ræn efni („American Scandi-
navian Bibliography 1951“), er
út kom í maíhefti Scandinavian
Studies, en hann er í ritstjórn-
inni. í sama hefti birti hann
ítarlegan ritdóm um hið mikla
rit Prófessors Gustavs Indrebö:
Norsk maalsoga, öndvegisrit um
norska tungu og þróun hennar.
í sumarhefti bókmenntarits-
ins, Books Abroad, sem gefið er
út af hálfu University of Okla-
homa og fjallar um heimsbók-
menntir í heild sinni, voru einnig
ritfregnir eftir Dr. Beck um
bækur um norræn efni.
íslendingur
deyr af slysi
Á föstudaginn í vikunni, sem
leið, vildi það sorglega slys til,
að Bessi Byron, 57 ára að
aldri, búsettur að Oak Point,
varð fyrir því, að skot
hljóp úr byssu hans, er hann
var að fuglaveiðum skamt frá
bænum og beið af því bana.
Bessi var góður drengur og
vinsæll; hann lætur eftir sig
konu sína ásamt tveimur börn-
um; einnig lifa hann níu syst-
kini, þrír bræður og sex systur;
meðal bræðranna er hinn kunni
atorkumaður, Kári Byron að
Lundar, oddviti Coldwell-sveit-
arinnar.
Útför Bessa hófst á þriðjudag-
inn með húskveðju að heimil-
inu, en jarðsett var í grafreit Is-
lendinga við Otto. Séra Jóhann
Fredriksson frá Glenboro flutti
hin hinztu kveðjumál.
Fyrsti ríkisráðsfundur í tíð
núverandi forseta, herra Ásgeirs
Ásgeirssonar, var haldinn að
Bessastöðum hinn 9. þ. m. For-
setinn flutti ávarp og mælti m. a.
á þessa leið: „Við höfum allir
skyldur að rækja við ættjörðina,
sem beina hug okkar og við-
leitni að sama marki.“ Forsætis-
ráðherra, Steingrímur Stein-
þórsson, þakkaði ávarpsorð for-
seta og árnaði forsetahjónunum
heilla í starfi. Forseti staðfesti
síðan ýmsa úrskurði, er hann
hafði gefið út frá því sísðasti
ríkisráðsfundur var haldinn, en
að fundi loknum sátu ráðherr-
arnir og konur þeirra hádegis-
verðarboð forsetahjónanna.
☆
í septembermánuði síðastliðn-
um var vöruskiptajöfnuðurinn,
við útlönd hagstæður um 19,7
miljónir krnóa. Inn voru fluttar
vörur fyrir 56,1 miljón en út
fyrir 75, 8 miljónir. Fyrstu 9
mánuði þessa árs var vöruskipta
jöfnuðurinn óhagstæður um
232,9 miljónir króna. Inn hafa
verið fluttar vörur fyrir 657
miljónir króna, en út fyrir
424,7 miljónir.
☆
Fyrir nokkru fóru til Eng-
lands tveir fulltrúar Félags ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda,
þeir Kjartan Thors formaður
félagsins, og Jón Axel Péturs-
son framkvæmdastjóri. Erindi
þeirra var að ræða við brezka
togaraútgerðarmenn um land-
anir á ísfiski íslenzkra togara í
Grimsby og Hull, en togaraeig-
endur þar höfðu komið sér sam-
an um að neita að lána löndun-
artæki fyrir íslenzkan fisk. ís-
lenzku fulltrúarnir ræddii við
fulltrúa heildarsamtaka brezkra
togaraeigenda í London 2. þ.m.,
og vildu brezku fulltrúarnir
þegar beina umræðunum að
nýju verndarlínunni umhverfis
landið. Islenzku fulltrúarnir
vildu hins vegar ræða fyrir-
komulag fisklandana í Hull og
Grimsby með það fyrir augum
að tryggja landanir og hæfileg-
Formaður
alþjóðarsamtaka
Paul Bardal, M.L.A.
Á fundi, sem haldinn var í
fyrri viku í borginni London í
Ontariofylkinu, stofnuðu út-
fararstjórar í Canada með sér
samtök, sem ná yfir alt landið;
formaður þessara nýju sam-
taka var kjörinn Paul Bardal
þingmaður í Manitobafylkis-
þinginu og forstjóri A. S. Bardal
útfararfyrirtækisins í Winnipeg.
Bardal var áður formaður út-
fararstjórasamtakanna í Mani-
toba; hin nýja trúnaðarstaða
Mr. Bardals ber þess glögg
merki hvers trausts hann nýtur
meðal stéttarbræðra sinna, sem
og raunar í hvaða verkahring,
sem störf hans liggja.
an aðflutning af fiski með ís-
lenzkum togurum og aukna
vöruvöndun báðum aðiljum til
hagsbóta. Enn fremur yrðu
brezkir útgerðarmenn að hætta
mismunun þeirri í afgreiðslu
togara, sem verið hefir síðan
1946, og afturkalla löndunar-
bannið. Samkomulag varð ekki
og var viðræðum slitið. Á það
var bent af hálfu íslenzku full-
trúanna, að á stríðsárunum
hefðu 75% af öllum fiski, sem
neytt var í Bretlandi, komið frá
Islandi og á þeim árum hefði
farist 21% íslenzka togaraflot-
ans, sum skipanna með allri á-
höfn. 1 viðtali við brezka frétta-
menn tóku íslenzku fulltrúarnir
það fram, að íslenzkir útflytj-
endur fisks myndu vinna að því
að brezkar húsmæður ættu þess
kost sem áður að fá íslenzkan
fisk til matar, og myndu gera
það, sem þeir gætu til þess að
finna aðila, er vildu taka að sér
löndun á íslenzkum fiski.
☆
Sjómannadagsráð ræddi ný-
lega framkvæmdir varðandi
byggingu dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna, en því er fyrir-
hugaður staður á Laugarási norð
vestanverðum í Reykjavík og
verður senn byrjað að grafa
fyrir grunni þessa stórhýsis. Það
verður 2500 fermetrar og að
rúmmáli 21.000 teningsmetrar.
þar verður rúm fyrir 127 vist-
menn í eins og tveggja manna
herbergjum, en auk þess íbúðar-
herbergi fyrir 40 manna starfs-
lið.
☆
Auglýst hefir verið, að stofn-
fundur Iðnaðarbanka Islands h.f.
verði haldirín í Reykjavík á
laugardaginn kemur og safnað
hafi verið tilskyldu hlutafé.
Samkvæmt lögum þeim um Iðn-
aðarbanka, er samþykkt voru á
síðasta Alþingi, skal ríkissjóður
leggja fram sem hlutafé þrjár
miljónir króna, Landssamband
iðnaðarmanna og Félag íslenzkra
iðnrekenda hvort um sig hálfa
aðra miljón og loks sé safnað
hálfri miljón með frjálsu útboði,
þannig að hlutafé bankans verði
samtals 6Y2 miljón króna. Áður-
greind félagssamtök iðnaðar-
manna tóku að sér að safna
hlutafé því, sem er umfram ríkis
framlagið og höfðu lokið því um
síðustu helgi.
☆
Fyrir nokkru voru nýjar regl-
ur settar um fjarvistarleyfi
bandarískra varnarliðsmanna
hér á landi, og er það aðalatriðið
að óbreyttum liðsmönnum beri
að hverfa úr Reykjavík og ná-
lægum bæjum kl. 22 öll kvöld
vikunnar nema eitt, er þeir fá
að dveljast til miðnættis, og
takmarkaður er fjöldi þeirra
liðsmanna, sem fara mega frá
bækistöðvunum á sama tíma.
☆
Herráðsforingi Bandaríkja-
hers, J. Lawton Collins, kom á
þriðjudagsmorgun til Reykja-
víkur á leið sinni frá Evrópu til
Bandaríkjanna. Hann gekk á
fund utanríkisráðherra ásamt
Edward B. Lawson sendiherra
Bandaríkjanna hér á landi og
Ralph O. Brownfield hershöfð-
ingja.
☆
Síðastliðinn vetur fór land-
búnaðarráðuneytið þess á leit
við Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
að hún léti íslandi í té fræðilega
aðstoð við rannsóknir á sauð-
Framhald á bls. 5