Lögberg - 30.10.1952, Blaðsíða 1

Lögberg - 30.10.1952, Blaðsíða 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs 65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 30. OKTÓBER, 1952 NÚMER 44 ----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Setur ársþing sameinuðu þjóðanna með íslenzkum fundarhamri Hon. Lester B. Pearson ulanríkisráðherra Canada og forseti ársþings sameinuðu þjóðanna í New York Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 19. OKTÓBER Mynd þessi er af utanríkis- ráðherra Kanada, Mr. Lester B. Pearson, þar sem hann heldur á íslenzkum fundarhamri í hend- inni. Hamar þessi er gerður af Ásmundi Sveinssyni, rpynd- höggvara, og var gefinn af ís- lenzku ríkisstjórninni til þess að Endurkosinn Peter D. Curry Við nýafstaðnar kosningar til bæjarstjórnar í Winnipeg, var Peter D. Curry endurkosinn í skólanefnd fyrir 1. Kjördeild með geisimiklu atkvæðamagni. Mr. Curry er mikill áhugamaður um mannfélagsmál og drengur hinn bezti; hann á íslenzka móður, hina kunnu dugnaðar- og þrekkonu, frú Berthu Curry, sem búsett er að San Diego, Cal. Synjað um hækkun farmgjalda Eins og vitað er fóru járn- brautarfélögin í Canada fram á hækkun farmgjalda, e'r nema skyldi átta af hundraði; stjórn- ir Vesturfylkjanna börðpst gegn hækkuninni með oddi og egg, og nú hafa leikar farið á þann veg, að járnbrautarráðið í Ottawa hefir synjað um hækkunina; við þetta er áætlað að Vesturfylkj- unum sparist hvorki meira né minna en fjörutíu miljónir dollara. notast af forseta Allsherjar- þingsins. Sendiherra Thor Thors afhenti Pearson, skömmu eftir kosninguna, hamarinn í viður- vist Trygve Lie, og setti Pearson fyrsta fundinn, sem hann stjórn- aði með því að berja rösklega í borðið með hinum íslenzka hamri. íslenzka sendinefndin á Alls- herjarþinginu er fáliðuð. Eins og i fyrra eru aðeins tveir, Kristján Albertson, rithöfundur, og Thor Thors, sendiherra, mættir fyrir íslands hönd. , Hr. Thor Thors, sendiherra, var 22. október s.l., kosinn fram- sögumaður pólitísku nefndar þingsins, samkvæmt tillögu Madame Pandit, aðalfulltrúa Indlands. ÍÞetta er í þriðja'sinn að hann er kosinn í þessa stöðu og er það einsdæmi. Það er ráðgert, að þetta þing standi a. m. k. til jóla. Bæjarstjórnin í Winnipeg fyrir næsta ór Bargarstjóri, Garnet Coulter. 1. Kjördeild, bæjarfulltrúar: G. Sharpe, D. Mulligan, J. Gur- zon Harvey, C. E. Simonite, Maude McCreary, G. Chown. 2. Kjördeild, bæjarfulltrúar: H. V. McKelvey, Mrs. L. Hallon- quist, H. B. Scott, Jack St. John, V. B. Anderson, James Black. 3. Kjördeild, bæjarfulltrúar: P. Taraska, D. Orlikow, S. Gar- rick, J. Blumberg, S. Rebchuk, F. Wagner. 1. Kjördeild, skólanefnd: P. D. Curry, H. W. Moore, Mrs. E. R. Tennant, W. S. McEwan, H. B. Parker. 2. Kjördeild. skólanefnd: G. Frith, A. N. Robertson, Adam Beck, E. G. Hansen, Mrs. H. Murphy. 3. Kjördeild, skólanefnd: S. Cherniak, Mrs. N. Patrick, A. Zahaychuk, J. Zuken, H. L. Stevens. Árdegis í gær bauð herstjórn varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli ríkisstjórn íslands, nokkr- um embættismönnum og öðrum gestum að vera viðstaddir her- sýningu í grennd við flugvöll- inn. Til hersýningar þessarar var stofnað fyrst og fremst í þeim tilgangi að kynna varnarliðs- mönnum vélflugur, skriðdreka, stórskotalið og önnur hergögn, sem komið hefir verið fyrir á Reykjanesskaga til varnar ís- landi, verði á það ráðizt, og treysta samvinnu landhers, flug- hers og flota. Fréttamenn áttu þess kost að fylgjast með skotæfingum hers- ins á sýningarsvæðinu af stuttu færi og kynnast með Jiverjum hætti nýjustu og fullkomnustu hergögnum er beitt í nútíma- hernaði. Höfðu varnarliðsmenn komið skotmörkum fyrir víðs vegar um æfingasvæðið. Þrátt fyrir óhag- Garnet Coulter Endurkosinn til borgarstjóra Mr. Coulter, sem endurkos- inn var til borgarstjóra í Win- nipeg í bæjarstjórnarkosningun- um hinn 22. þ. m., hefir um næstkomandi áramót gegnt þessu vandasama virðingar- embætti í tíu ár samfleytt; nú var hann kosinn til tveggja ára, og við lok þessa kjörtímabils, endist honum heilsa og líf, hefir hann sett met varðandi lengstu þjónustu í borgarstjórasessi. stætt veður, gátu áhorfendur bæði séð og heyrt aðfarir og beitingu hinna ýmsu hergagna, allt frá venjulegum hernaðar- rifflum upp í þungar og lang- drægar fallbyssur langt að baki „víglínunnar." Áformað hafði verið, að vél- flugur úr flugher og flota Banda ríkjanna á íslandi tækju þátt í hersýningunni, en sökum þess, hversu lágskýjað var yfir Reykja nesskaga allan daginn í gær, gat ekki af því orðið^ Sýningin virtist í alla staði fara giftusamlega fram, enda höfðu stjórnendur og fyrirliðar samband sín á milli um allt sýn- ingarsvæðið, eins og gerist í hernaði." í síðasta þættinum var hleypt af öllum skotvopnum sýningar- innar í senn, og stóð sú skothríð í heila mínútu. Mun þá lauslega áætlað hafa verið hleypt af eigi færri en 10 þúsund skotum. Var af því mikill gnýr og reykhaf. Ekki mun vera áformað að slík hersýning verði endurtekin á Reykj anesskaga fyrr en í fyrsta lagi á næsta vori, sam- kvæmt ákvörðun varnarliðs- nefndar, en venjulegum æfing- um í meðferð léttra vopna verð- ur að sjálfsögðu haldið áfram. Það skal tekið fram, að þessi hersýning stendur ekki í neinu sambandi við heræfingar Atlants hafsríkjanna í Norður-Evrópu. —Mbl., 20. sept. Fulltrúi hóskóla sms á vígsluhótið Dr. Richard Beck, prófessor í Norðurlandamálum og bók- menntum við ríkisháskólann í Norður-Dakota (University of North Dakota), var fulltrúi há- skóla síns og forseta hans á vígsluhátíð samkomuhallar og íþróttahúss Concordia College í Moorhead, Minnesota, sunnu- daginn 19. september. Fulltrúar margra æðri mennta stofnana á þeim slóðum tóku þátt í vígsluhátíðinni, en talið Var, að 3000 manns hefðu sótt hana; þótti hún um allt hið virðu- legasta. Laugardaginn 11. þ.m. var ut- anríkisráðherra Breta afhent crðsending frá ríkisstjórn Islands út af landhelgismálinu og bann- inu á löndun íslenzks togara- fisks í Bretlandi. Er þar fyrst vikið að síðustu orðsendingu Breta út af ákvörðun fiskveiði- takmarkana við strendur íslands og talin nokkur mikilvæg atriði, sem brezka stjófnin lítur öðru vísi á en íslenzka ríkisstjórnin. Segir, að brezk stjórnarvöld geti ekki með réttu kvartað um, að þeim hafi ekki verið gert að vart um hvað í vændum var, og ís- lenzka stjórnin sé alveg ósam- mála brezku stjórninni um að þriggja mílna landhelgin sé á- kveðin af alþjóðalögum, þannig að ekki verði breytt nema með einhliða ákvörðun. Síðan er rifj- uð upp niðurstaða brezku orð- sendingarinnar, þar sem fyrir- vari er gerður um rétt til skaða- bóta að því er varðar hvers konar afskipti af brezkum skip- um á svæði því, sem brezka stjórnin telur úthaf. Um þetta segir, að íslenzka stjórnin hafi að sjálfsögðu ekkert við það að at- huga, þótt brezka stjórnin hafi gert fyrirvara um skaðabóta- kröfur, enn síður þar sem með slíkri fyrirvaragerð virtist koma fram viðurkenning á því, að yrði úr deilu, bæri að ráða henni til lykta á lögformlegan hátt. Is- lenzka stjórnin vonaði þó, að Bretar myndu að athuguðu máli fallast á skoðanir Islendinga í þessum efnum, en því meiri eru vonbrigði íslenzku stjórnarinnar, þar sem það virðist nú stað- reynd að brezkir útgerðarmenn ætli að taka lögin í sínar eigin hendur og beita útilokun við ís- lendinga til að knýja fram vilja sinn. Er þar auðsjáanlega ætlun- in, að hinn sterki láti hinn veika kenna aflsmunar. Síðan er á það bent, að við- skipti íslendinga og Breta séu hagstæðari Bretum en íslending- um. Brezku þjóðina muni að vísu litlu um vörurnar frá íslandi, en það gæti vel lamað fjárhagslíf Kjörinn forseti vísindafélags Dr. A. J. Thorsteinson Á ársfundi Félags skordýra- fræðinga í Manitoba, sem haldið var í háskólanum síðastliðna viku var Dr. A. J. Thorsteinson kosinn forseti félagsins. Hann er sonur Sigurðar heitins Thor- steinssonar málarameistara og ekkju hans frú Halldóru Thor- steinsson. Annar íslendingur — Haraldur Westdal — var kjör- inn féhirðir félagsins; hann starfar í þjónustu sambands- stjórnar og er sonur þeirra Páls og frú Helgu Westdal, sem lengi bjuggu í Wynyard, Sask., en nú eiga heima í Winnipeg. íslendinga að vera án sölumögu- leika á vörum sínum í Englandi. íslendingar hafi ekki annað gert en beita alþjóðalögum, svo sem þeir skilja þau, til að vernda hagsmuni sína. Það verði því að teljast óvinsamlegur verknaður, ef utan laga og réttar eigi að beita sv.o harkalegum ráðum sem útilokun frá mörkuðum til að reyna að neyða íslendinga til að hverfa frá því, sem þeir telja rétt sinn. Áreiðanlegt sé, að þótt það bitni hart á mörgum, muni allir íslendingar sameinast um að standa þá atlögu af sér. Á það er bent, að bannið við togara- veiðum á hinum umdeildu mið- um bitni ekki síður á íslending- um en Bretum og öðrum útlend- ingum. Loks segir, að íslenzka stjórnin treysti því í lengstu lög að vinsemd brezku stjórnarinnar endist til þess áð fallast, á sjónar- mið Islendinga, og hún komi að minnsta kosti í veg fyrir að kúgunaraðferðum verði beitt í þessu lífshagsmunamáli Islend- inga. ☆ Fiskaflinn í ágústmánuði s.l. varð rösklega 27.000 lestir, en í sama mánuði í fyrra rúmlega 55.000 lestir, enda veiddist þá nærri 30.000 lestum meira af síld. Heildarfiskafli landsmanna fyrstu 8 mánuði þessa árs varð rúmlega 247.000 lestir, en á sama tímabili í fyrra rúmlega 307.000 lestir. Af aflanum í ár hafa rúm- lega 102.000 lestir verið frystar, saltaðar 87.000 lestir, ísaðar 21.000 og í herzlu fóru 14.000 lestir. — Nokkrir íslenzkir togar- ar hafa selt afla sinn í Þýzka- landi að undanförnu. ☆ Á síðustu fjárlögum voru veittar tvær og hálf miljón króna til landnámsframkvæmda, og verður einni og hálfri miljón varið til þess að styrkja ræktun á nýbýlum, sem einstaklingar reisa á eigin landi með heimild nýbýlastjórnarinnar. Hinn hluti fjársins gengur til undirbúnings ræktunar í byggðahverfum. — Byggðahverfi nýbýlastjórnarinn- ar eru orðin átta að tölu og rækt- unarundirbúningi lokið að mestu í fimm þeirra. í hverfum þess- um eru í undirbúningi 40 til 50 býli. í byggðahverfunum kostar nýbýlastjórnin framræslu lands, nauðsynlegar vegalagningar að löndunum, heildargirðingar um land byggðahverfisins, aðal- vatnsveitur, og jarðvinnslu og ræktun á allt að fimm hekturum lands á hvert býli. ☆ Ríkisstjórn íslands ákvað í haust að gefa Sameinuðu þjóð- unum tvo fundarhamra til hinn- ar nýju byggingar stofnunar- innar í New York. Var Ásmundi Sveinssyni falið að gera annan hamarinn, en Ríkarði Jónssyni hinn. Síðastliðinn þriðjudag af- henti Thor Thors sendiherra/ for- maður sendinefndar Islands á allsherjarþinginu, fundarhamar Ásmundar hinum nýkjörna for- seta allsherjarþingsins, Lester B. -Pearson, að viðstöddum aðal- ritara Sameinuðu þjóðanna. Setti forseti síðan fyrsta fund alls- herjarþingsins með hamrinum og sagði þá: „Ég hef sett þennan fund með hamri, sem verið var að gefa Sameinuðu þjóðunum af ríkisstjórn íslands, lands, sem hefir átt frjálsa og lýðræðislega stjórn í margar aldir.“ — Hamar- inn er^skorinn úr dökkum viði og á hann letrað á íslenzku og Framhald á hls. 4 Hon. Thor Thors sendiherra íslands í Washington Hinn virðulegi sendiherra Islands í Washington, Hon. Thor Thors, hefir á yfirstandandi ársþingi sameinuðu þjóðanna í New York, verið kosinn í þriðja sinn í röð framsögumaður hinnar pólitísku nefndar þessara alþjóðasamtaka; hefir honum með þessu fallið persónulega makleg sæmd í skaut, auk þess sem slíkt eykur að sjálfsögðu 4 veg íslenzku þjóðarinnar út á við. Hersýning við Keflavíkurflugvöll

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.