Lögberg - 08.01.1953, Page 5

Lögberg - 08.01.1953, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. JANÚAR, 1953 5 WWWWWWWWWW W W ***********W'W ÁIMAtttl CVCNNA Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON ÚR HEIMI KVENNA Það er íslenzki bótaf lotinn, sem hefir eyðilagt fiskimiðin Elizabeth II., drottning brezku sambandsríkjanna, flutti ræðu yfir útvarpið á jóladaginn, eins og afi hennar George V. og faðir hennar George VI. gerðu á sín- um tíma; er hún fyrsta drottn- ingin í sögu brezka veldisins, er það hefir gert. Hún talaði sem kona, móðir og drottning, og hinni fögru ræðu hennar var út- varpað til allra landa. Markar ræða hennar enn eitt spor í þróunarsögu kvenþjóðarinnar, er nu a þessari öld nýtur sívax- andi viðurkenningar í öllum stéttum mannfélagsins. — í lok hvers árs fer fram nokk- urs konar atkvæðagreiðsla und- ir umsjón Canadian Press til að dæma um hvaða konur hafi skarað fram úr á ýmsum svið- um á árinu; kvenritstjórar dag- blaðanna velja þær, og fær sú kona oftast flest atkvæði, er mest hefir verið getið um í blöðunum. Charlotte Whitton, borgar- stjóri í Ottawa var aftur kosin ,,kona ársins“, og þótti hún einn- ig skara fram úr öllum öðrum konum á sviði opinberra mála. Um hana hefir verið skrifað meir í blöðin en um sex aðra borgarstjóra til samans. Miss Marlene Stewart, Font- hill, Ont., þótti bezt í íþróttum. Hún er aðeins 18 ára og leikur golf; hún vann Canadian Ladies Close Championship, og mun á- samt sex öðrum keppa þar í golf samkeppni. Miss Mazo de la Roche, To- ronto, þótti skara fram úr í bók- mentum og listum. Hún hefir verið víðkunn í aldarfjórðung fyrir skáldsögur sínar um „Whiteoaks ættina". Síðasta bók hennar, „A Boy in the House“, var gefin út 1952. Suzanne Cloutier þótti bezt á leiksviði, í kvikmyndum og fadio; hún er fræg leikkona. Lois Marshall, soprano söng- konan frá Toronto fékk flest atkvæði á sviði hljómlistar, enda hlaut hún mikið lof listdómara, er hún söng í Town Hall í New York og víðar. ☆ A mánudaginn 29. desember s-l- var Mrs. Frank Brown kosin bæjarstjóri í Lac du Bonnet og skapaði þannig sögu, því hún er fyrsta kona, sem kosin hefir ver- ið bæjarstjóri í Manitoba. Ein kona hefir áður verið kosin sveitaroddviti í Manitoba, en það er Mrs. M. E. Allen; hún var jörin oddviti Eriksdale sveitar 1948. Mrs. Frank Brown lauk prófi við Manitobaháskóla í hús- stjórnarfræði árið 1936 og áður en hún giftist starfaði hún hjá landbúnaðardeild fylkisins. Hún er tveggja barna móðir. ☆ Mrs. Dwight Eisenhower, sem innan skamms verður forseta- frú í Hvíta húsinu, og þá talin æðsta kona Bandaríkjanna, er svensk í móðurætt; það er víst í fyrsta skipti að kona af nor- rænum ættum kemst í þá virðu- legu stöðu. Amma hennar og afi, Maria Anderson og Carl S. Carlson voru fædd í Fjaras í Svíþjóð. Þau giftust 1866 og fluftu ári seinna til Bandaríkj- anna og settust að í Boone, Iowa. Þar fæddist dóttir þeirra Ellen, 1878; hún giftist John S. Doud 1894. í nóvember 1896 fæddist þeim Doud hjónum dóttir, er þau nefndu Mamie. Um alda- mótin fluttist fjölskyldan til Denver, Colorado; í þeirri borg kyntist Mamie Dwight Eisen- hower og þau voru gefin saman í hjónaband árið 1916. Mamie Eisénhower tók virkan þátt í nýafstaðinni forsetakosn- ingu eiginmanns síns og mun verða glæsileg forsetafrú. ☆ ÝMISLEGT Hér fara á eftir nokkrar al- mennar reglur í góðum um- gengnisvenjum og almennri kurteisi: Hvenær eiga menn að gefa af sér ljósmyndir? Yfirleitt ætti fólk ekki að gefa ljósmyndir af sjálfu sér, nema að beðið hafi verið um það á þann hátt, að viðkomandi hafi látið í ljósi ein- læga ósk um að eiga ljósmynd- ina. Ef þér skrifið á ljósmynd af yður sjálfum, þá svarið fyrst þessari spurningu, áður en þér skrifið: „Myndi ég kæra mig um að lesa þetta, eða láta lesa það fyrir mig eftir 10 ár?“ ☆ Þegar um ættingja er að ræða, eða mjög góða vini, er það góður siður, að gefa af sér mynd í jóla- gjöf, eða við önnur hátíðleg tækifæri. ☆ Um gestinn, sem tekur sér húsbóndavald í ókunnugu húsi með því, að stinga upp á hvað gestirnir eigi að gera, tekur að sér að kynna nýkomna gesti, sækir stóla og réttir veitingar, er það eitt að segja, að hann kann ekki almenna kurteisi. ☆ Kona, sem tekur að sér að aðstoða húsmóðurina á heimili þar sem hún er gestur, má gæta þess, að taka ekki fram fyrir hendurnar á henni. Annars á hún — sem eðlilegt er — von á að verða fljótt óvinsæl. —Mbl. ☆ TIL UMHUGSUNAR „Hyggilegt er að koma fram við börn eins og þau væru ung- ar, fullvaxta manneskjur. Klæð- ið þau og baðið með nærgætni. Sýnið þeim hæfilega tillátssemi, verið vingjarnleg en ákveðin við Framhald af bls. 1 fram úr, en Akureyrarstöðin endurvarpar daglega kvölddag- skránni eftir kl. 19.30, en útvarp- ar auk þess af hljómplötum kl. 15 til 16 dag hvern. ☆ Dr. Kurt Oppler, hinn ný- skipaði sendiherra sambands- ríkisins þýzka, afhenti á þriðju- daginn forseta íslands trúnaðar- bréf sitt að Bessastöðum. 1 ☆ Vöruskiptajöfnuðurinn í nóv- embermánuði s.l. var hagstæður um 3,8 miljónir króna. Út voru fluttar vörur fyrir 92,8 miljónir króna, en inn fyrir tæplega 89 miljónir. Fyrstu 11 mánuði árs- ins var vöruskiptajöfnuðurinn ó- hagstæður um 246 miljónir króna. Út voru fluttar vörur fyr- ir 597,8 miljónir króna en inn fyrir 843,9 miljónir. ☆ Á þessu ári voru borunar- framkvæmdir jarðhitadeildar raforkumálastjórnarinnar með minna móti, en fjórar borvélar voru í notkun mikinn hluta ársins. Á Námafjalli í Mývatns- sveit var borað fyrir gufu fyrir brennisteinsvinnslu, lokið við tvær holur og unnið við hina þriðju enn, og verður að svo stöddu ekkert um það fullyrt, hvort takast muni að hefja brennisteinsvinnslu úr gufunni. Sýnt þykir, að borvélar þær, sem þau. Faðmið þau ekki né kyssið, takið þau ekki í fangið. Ef yður sýnist svo, þá kyssið það á ennið á kvöldin, þegar þér bjóðið því góða nótt. Réttið því höndina, þegar þér bjóðið því góðan dag- inn. Klappið því, þegar það hefir leyst erfitt vergefni reglulega vel af hendi. — Reynið þetta. Eftir vikutíma munuð þér kom- ast að raun um, hve auðvelt er að vera vingjarnlegur og góður við börnin, án þess að dekra of mikið við þau.“ (Úr: „Fyrstu árin“ eftir J. B. Watson). ☆ PIPAR OG SALT Eitt góðverk nægir ekki til að gera neinn að góðum manni, en eitt afbrot er nóg til að eyði- leggja allt líf manns. Guð hjálpi þeim manni, sem ekki vill gifta sig fyrr, en hann finnur hina fullkomnu konu, og guð hjálpi honum þó alveg sér- staklega, ef hann giftist henni. Ef þú vilt verða að fullkomn- um manni, þá lifðu eins og þú eigir að deyja á morgun, en starf- aðu eins og þú sért ódauðlegur. Margar konur muna, hvar þær fengu fyrsta kossinn, en þær eru fleiri, sem muna ekki hvenær maðurinn þeirra kysti þær síðast. ☆ Kafrjóð í kinnum grúfði hún andlitið á öxl föður síns. — Hann elskar mig, sagði hún. — Þá ætlar hann víst að giftast þér? mundraði sá gamli. — Já, pabbi minn. — Hvað hefir hann í tekjur? Hún hrökk við. — Ég veit það ekki — en þetta var einkennileg tilviljun. — Hvaða tilviljun? spurði fað- irinn. Og hún svaraði: — Hann Siggi spurði mig ein- mitt að því líka, hve miklar tekjur þú hefðir á ári. ☆ Hún: — Fyrir tveimur mán- uðum var ég alveg vitlaus eftir honum Jóni, en nú þoli ég ekki að sjá hann. Það er skrítið hvernig mennirnir geta breyst. ☆ Biðillinn: — Ég vona, herra forstjóri, að þér lítið á mig sem eins konar eign, jafnvel þó að ég geti ekki lofað yður ákveðn- um ágóðahlut. Tengdapabbi tilvonandi: — Blessaðir verið þér, ungi maður. Verið þér ekki að tala um ágóða- hlut. Ég þykist góðhr ef ég þarf ekki að borga með yður. nú eru fyrir hendi, séu ekki nægilega öflugar til þess að ann- ast nauðsynlegar boranir þar, og er gert ráð fyrir að bæta úr þessu á næsta sumri. — Önnur aðalframkvæmdin var borun fyrir heitu vatni við Áshildar- holtsvatn í nágrenni Sauðár- króks, og er þeirri borun ekki lokið enn. Víðar hefir verið borað bæði fyrir heitu og köldu vatni, og auk þess annaðist jarð- hitadeildin rannsóknir á jarðhita á allmörgum stöðum, en flestum þeirra rannsókna, sem hafnar voru á árinu, verður ekki lokið fyrr en á næsta ári. ☆ Jólaleikrit Þjóðleikhússins verður Skuggasveinn eftir Matt- hías Jochumsson það leikrit, sem oftar hefir verið sýnt hér á landi en nokkuð annað, og hvert mannsbarn kannast við. Skugga- sveinn var sýndur í fyrsta skipti í Reykjavík fyrir 90 árum, og gerðu það Menntaskólanemend- ur, en síðast var leikurinn sýnd- ur í Reykjavík 1935. Leikurinn verður sýndur að kvöldi annars jóladags. Leikstjóri er Haraldur Björnsson. Upp úr áramótum hefjast í Þjóðleikhúsinu æfingar á nýju leikriti eftir Davíð Ste- fánsson frá Fagraskógi. Leikrit þetta fjallar um ævi danska prestsins Hans Egede. Höfundur hefir enn ekki valið því nafn. Segja brezkir togaraskipstjórar og útgerðarmenn (á dönsku!) í brezka útvarpinu Einhverjum alvarlegustu að- dróttunum, sem heyrzt hafa um íslendinga var útvarp- að frá London nokkrum augnablikum eftir að ís- lenzkur ráðherra hafði geng- ið á fund utanríkisráðherra Bretlands. Þetta gerðist kl. 16,30 s.l. fimmtudag í dönsku fréttasend- ingunni frá BBC útvarpsstöð- inni í London. Að fréttasend- ingunni lokinni kom fréttaauki, sem helgaður var Islandi á dá- lítið eftirminniíegan hátt. Frétta maður útvarpsins, N. T. Martin að nafni, sem a. m. k. talaði óað- finnanlega dönsku, hafði brugð- ið sér til Grimsby til að kynna sér hinar eiginlegu ástæður fyrir löndunarbanninu, sem þul- urinn lýsti nokkrum orðum en. mjög lauslega. N. T. Martin hafði tekið með sér stálþráð til þess að gera för sína alla áhrifaríkari og nú var í ráði er, að Handíða- og myndlistarskólinn í Reykjavík efnir til kynnisferðar til megin- lands álfunnar næsta vor, og verða í förinni fyrrverandi og núverandi nemendur myndlist- ar- og teiknikennaradeilda skól- ans, auk tveggja eða þriggja kennara. — 18 málarar sýna smámyndir í Listvinasalnum í Keykjavík um þessar mundir, aðallega vatnslitamyndir. ☆ í haust fannst dálítill sjóður af fornu gangsilfri á Ketu á Skaga. Silfrið er samtals 135 grömm, mest brotasilfur, en innan um brot af silfurpeningum, er sum- ir eru þýzkir, sumir arabiskir frá 9. eða 10. öld. Sambærilegur sjóður er aðeins einn til áður á Þjóðminjasafninu, frá Sand- múla inn af Bárðardal, en annar sjóður með eintómum mótuðum silfurpeningum frá um 1000 fannst í Gaulverjabæ í Flóa 1930. ☆ Á Austurvelli í Reykjavík hef- ir verið reist geysistórt grenitré, sem Oslóbúar sendu Reykvík- ingum að gjöf, og mun norski sendiherrann Torgeir Andersen- Rysst afhenda jólatré þetta í dag, en Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri veitir því viðtöku fyrir hönd bæjarbúa. Dómkirkjukór- inn syngur við þetta tækifæri. ☆ Bókmenntakynning var í Aust urbæjarbíó í Reykjavík í fyrra- kvöld, og kynnt verk Halldórs Kiljans Laxness, lesið úr skáld- sögum hans og ljóðum, erindi flutt um skáldsöguna Gerplu, og að lokum las höfundur sjálfur nokkra kafla úr Gerplu, og var vel fagnað. ☆ Félagsbækur Menningar- og fræðslusambands alþýðu 1952 eru nýkomnar út: Ritsafn Gests Pálssonar, Fólkið í landinu, og tímaritið Menn og menntir. Rit- safn Gests Pálssonar er í tveim- ur bindum og ritar Tómas Guð- mundsson eftirmála. Hann get- ur þess að hér hafi mjög verið fylgt útgáfu Þorsteins Gíslason- ar, er kom út er 75 ár voru liðin frá fæðingu Gests Pálssonar. í haust voru hundrað ár liðin frá fæðingu hans. * ☆ Aðalfundur Skíðafélags Reykjavíkur var haldinn fyrir nokkru. Félagið hefir ákveðið að reisa þeim L. H. Muller og Kristjáni Skagfjörð minnis- varða, tvo ‘stuðlabergssteina, sem valinn hefir verið staður á mó- bergssyllu í Reykjafjalli skammt frá skála skíðafélagsins í Hvera- dölum. hann mættur í „danska útvarp- inu frá London“ með þráðinn. Byrjar hann nú með því að lýsa komu sinni í útgerðarskrifstofu eina í Grimsby. Þar sér hann Islandskort sem hann fer að skoða og reyna að stafa sig fram úr ýmsum nöfnum og undrast mikið yfir því hvað Grímsey og Grimsby eru lík nöfn (elskuleg- ur og dálítið „naiv“ Dani). En þá víkur heldur gustmikil! brezkur togaraskipstjóri sér að honum (sem talar einkennilega góða dönsku) og tjáir honum að þetta kort sé ekki lengur „aktuelt“ og N. T. Martin fær allar upplýsingar hér að lútandi frá þaulkunnugum manni. Þeir eiga að vera fyrir innan „Nú, en getur þú ekki veitt fyrir utan hina nýju landhelgis- línu?“ spyr fréttamaðurinn. „Útilokað,“ svarar Bretinn, „allur góðfiskurinn, sem hús- mæðurnar sækjast eftir, er fyrir innan línuna.“ „En íslenzku togararnir, hvað um þá?“ „Það er ekkert launungarmál að þeir eiga að fá að veiða innan við línuna,“ svarar hinn brezki heiðursmaður og hann bætir því við að þessi framkoma Islend- inga í garð Breta sé ekkert eins- dæmi, því að þeir hafi frá fyrstu tíð verið á móti brezkum sjó- mönnum og hann lýsir „árás“ íslenzkra varðskipa á brezka togara því til sönnunar með sterkum orðum. „Annars eiga brezkir sjómenn engan þátt í því ef fiskurinn hefir minnkað eitthvað við strendur lslands,“ heldur skip- stjórinn áfram, „það er íslenzki bátaflotinn sem þar er að verki. Þetta viðurkenna allir. Nei, því verður aldrei neitað að íslend- ingar hafa sýnt eindæma frekju o geigingirni í þessum málum,“ Félagatala hefir hundraðfaldazt og félagið orðið eitt f jölmennasta félag landsins. Á morgun, 27. nóvember er Ferðafélag íslands 25 ára. Á þessum 25 árum hefir félag- ið unnið þrekvirki, sem einstætt má kalla. Hér skal ekki rakin saga fé- lagsins, en þó stiklað á nokkrum höfuðatriðum, þeim er mestu máli skipta. Stofnendur Ferðafélagsins voru 63 að tölu, síðan hefir með- limatalan hundraðfaldazt, því að nú telur félagið um eða yfir 6000 meðlimi og er því eitt fjölmenn- asta félag landsins. Hlutverk Ferðafélags Islands var frá öndverðu það, að kynna landið, auka þekkingu á því og glæða áhuga almennings fyrir ferðalögum. Félagið hefir á hverju ári efnt til fjölda ferða víðsvegar um landið og voru það ýmist göngu-, skíða-, hesta- skipa-, flug- eða bílferðir. Sam- anlagður fjöldi þessara ferða skiptir hundruðum og fá svæðin á landinu sem félagið hefir ekki reynt að kynna meðlimum sín- um, jafnt í byggð sem á öræfum uppi. Ferðafélagið hefir reynt að búa í haginn fyrir þá sem leita til óbyggðanna með því að reisa sæluhús og búa þau sem bezt úr garði. Á félagið nú 8 slík hús, öll hin vönduðustu og félaginu til sóma. Ferðafélag íslands hefir í Ár- bókum sínum, sem eru jafn- margar árunum, sem félagið hefir starfað, staðið að beztu og ítarlegustu íslandslýsingu, sem hefir verið skráð. Er ekki sízt í þessu starfi fólgið veigamikið segir hinn brezki togaraskip- stjóri að lokum. Úlgerðarmaðurinn talar Nú mætti ætla, að þessari þulu væri lokið, en þá kom brezkur útgerðarmaður (ónafngreindur eins og skipstjórinn), sem á er- indi við stálþráðinn. Hann talar einnig dönsku, eins og hún er bezt töluð á Islandi og endur- tekur nokkuð af því sem skip- stjórinn sagði, t. d. það að ís- lenzki bátaflotinn sé að eyði- leggja fiskimiðin við strendur landsins. Síðan bætir hann við, að á meðan brezkir sjómenn voru í stríði hafi íslenzkir togara sjómenn og útgerðarmenn setið einir að brezka fiskmarkaðinum og okrað fram úr öllu hófi, enda græddu þeir á tá og fingri. Eftir stríðið var einhver sá brjálæðis- legasti „luksus“, sem nokkurn tíma hefir þekkst, á Islandi. Og hann endar með því að neita harðlega, að það séu brezkir út- gerðarmenn sem eigi sök á lönd- unarbanninu, það séu íslending- ar sjálfir, sem hafi tekið lögin í sínar hendur, í stað þess að leggja málið fyrir alþjóðadóm- stólinn til úrskurðar, sem nú verði að taka afleiðingum gerða sinna. Þáttur til Noregs Eftir að danska útvarpinu lauk tók norska útvarpið frá London við og fréttaauki þess var nokkuð á annan veg. Þar voru rifjaðar upp nokkrar end- urminningar Norðmanna í Bret- landi á styrjaldarárunum. Þar kom m. a. fram að Winston Churchill hefði einhvern tíma sagt að norski siglingaflotinn hefði á stríðsárunum verið á við milljón manna her. Nú var ekki talað um stríðsgróða eða hve fljótir Norðmenn voru að endur- nýja og auka siglingaflota sinn að stríðinu loknu og gera hann að fullkomnasta siglingaflota í heimi. Það skal að lokum tekið fram, að norska landhelgislínan var ekki nefnd á nafn! —VISIR, 13. des. menningarhlutverk, sem Ferða- félaginu verður seint fullþakkað. Auk þessa, sem að framan er talið hefir F. I. efnt til fræðslu- funda á hverjum vetri með fræð andi erindum um land og þjóð og kvikmynda- eða skugga- myndasýningum af viðkomandi landssvæðum. Félagið hefir látið ræktun landsins til sín taka og er nú einn ötulasti aðilinn að skóggræðslu í Heiðmörk. Það hefir efnt til ljósmyndasýninga í Reykjavík á nokkurra ára fresti og þannig beint og óbeint glætt áhuga almennings fyrir ljósmyndum. Það má með sanni segja að Ferðafélagið hafi með starfi sínu vakið þann áhuga fyrir ferða- lögum og ferðamennsku, sem nú er orðinn almenningseign og sterkur liður í uppeldi þjóðar- innar. Á þessu sviði hefir félag- ið unnið þjóðarheildinni ómetan- legt gagn, sem seint verður met- ið að verðleikum. Fyrsti forseti Ferðafélágs Is- lands var Jón Þorláksson ráð- herra, aðrir forsetar hafa verið: Björn Ólafsson ráðherra, Gunn- laugur Einarsson læknir, Jón Eyþórsson veðurfræðingur og nú síðast Geir G. Zoega vegamála- stjóri, sem fyrir nokkrum dögum var kosinn forseti félagsins í 16. sinn. Einn af mætustu starfsmönn- um og brautargöngumönnum félagsins, Kristján Ó. Skagfjörð stórkaupm., er nýlega fallinn í valinn, en í minningu hans hefir Ferðafélagið ákveðið að reisa stórt og myndarlegt sæluhús á Þórsmörk. —VÍSIR, 26. nóv. Fréttir fró ríkisútvarpi íslands Ferð'afélag íslands 25 ára: Átta sæluhús og 25 binda ritsafn um fsland

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.