Lögberg - 12.02.1953, Side 3

Lögberg - 12.02.1953, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. FEBRÚAR, 1953 3 Buddha gegn Staiin Viðreisnin í Burma heíir tekist ótrúlega vel, þrátt fyrir erfiðustu aðstæður Þann 4. þ.m. voru fimm ár liðin síðan Burma hlaut sjálf- stæði sitt. Þess var minnst með miklum hátíðahöldum í Burma og mörg erlend blöð minntust þess. Yfirleitt voru dómarnir þeir, að Burma hefði farnazt betur en vonir stóðu til og mætti vænta þar mikilla framfara á komandi árum, ef ekkert sér- stakt kæmi fyrir. Hinn kunni hæstaréttardómari í Bandaríkjunum, William O. Douglas, ferðaðist um Burma síðastl. sumar og hefir síðan rit- að um þá ferð sína í amerísk blöð. Verður hér á eftir einkum stuðst við upplýsingar hans. — Ég var búinn að fara víða um Burma, segir Douglas á ein- um stað, og undraðist yfir því, hvað mikið hafði áunnizt. Ég var staddur í borg einni alllangt frá R a n g o o n, er stjórnarfulltrúi nokkur bauð mér að koma og skoða bænahúsið. Er við komujn þangað, sagði stjórnarfulltrú- inn: Hérna biðjumst við alltaf fyrir. Ég innti hann nánara eftir því, hvað hann meinti með orð- inu „við.“ Hann svaraði því, að hann ætti við embættismenn stjórnarinnar, er kæmu þarna saman á hverjum degi, er þeir hafðu lokið störfum til þess að biðjast fyrir. Douglas segir, að honum hafi við þetta svar verið hugsað til embættismanna í Washington eða öðrum vestrænum höfuð- borgum, er flýttu sér í cocktail- boð eða finndu sér eitthvað ann- að til skemmtunar að loknu dags verki. Jafnframt sagðist hann hafa skilið stórum betur eftir en áður þá miklu byltingu, er raun- verulega hefði verið gerð í Burma. Hún var borin uppi af sterkri hreyfingu, sem haldið var saman af einlægri trú og hug- sjónum. Það var Buddha, sem hafði sigrað Stalín. Miklir erfiðleikar Ástandið gat vart verið ömur-' legra en það var í Burma, þegar þjóðin hlaut sjálfstæði sitt. Burma var hernumið af Japön- um snemma í Asíustyrjöldinni, en Bretum tókst að hrekja þá þaðan að mestu fyrir lok henn- ar. Mikið tjón hlaust af styrjald- arátökunum í landinu, m.a. urðu borgirnar fyrir miklum skemmd- um af völdum loftárása. Japanir felldu líka óspart búpeninginn. Um tvær milljónir ekra af hrís- grjónaökrunum fóru í órækt. Þannig mætti lengi telja* þá efnahagserfiðleika, er styrjöldin orsakaði. Þetta voru þó ekki einu erfið- leikarnir. Síðari stríðsárin hafði ^ayndað allsterk andspyrnu- hreyfing gegn Japönum. Komm unistum tókst þar eins og víðar að koma ár sinni þannig fyrir horð, að þeir náðu tökum á henni að verulegu leyti í stríðs- lokin. Þeir notuðu sér þessa að- stöðu til að taka völdin í ýmsum landshlutum, en héldu annars staðar uppi skæruhernaði. Mark- rnið þeirra var að ná völdunum 1 sínar hendur. Þegar Burma hlaut sjálfstæði, voru ítök komm ónista mjög mikil. Rétt á eftir hættist það svo við, að einn þjóð flokkur landsins, Karenar, gerði uPpreisn og heimtaði fullt sjálf- s^æði. Um skeið mátti svo heita, hin nýja stjórn landsins réði ekki fullkomlega y f i r nema stærstu borgunum. Skæruliðar ° u uppi meira og minna annars þessum tíma var líka búizt við því, að stjórnin myndi liðast sundur þá og þegar og Bretum var legið á hálsi fyrir að hafa atið Burmabúa fá sjálfstæði ^ ur en þeir höfðu verið orðnir ®rir um að fara með það. ^lðreisnin ^u er ástandið í landinu hins Vegar orðið mjög á aðra leið. Bú- ið er að mriða flesta landshluta, en þó eru enn skæruliðasamtök á nokkrum stöðum. Stjórnin er talin orðin alltraust í sessi og efnahagsástandið h e f i r mjög batnað. Það virðist ekki annað séð en að stjórnin sé búin að vinna sér traust landsmanna. Það á hún að þakka framkomu sinni og stefnu. Forsætisráðherra hennar, U Nu, nýtur ekki sízt mikils trausts og vinsælda. Flokkur hans fékk 85% atkvæða í seinustu kosningum. Hann er nánast sagt róttækur jafnaðar- maður, en andkommúnisti og heittrúaður Buddhisti. Hann hef ir m.a. byggt flokk sinn á trúar- vakningu. Eitt af fyrstu verkum U Nu var að setja landinu nýja stjórna skrá. Hún gerir ráð fyrir fylkja skipun, líkt og er í Bandaríkj- unum. Þetta hefir gefizt vel í Burma, því að þar eru allmargir þjóðflokkar, er hafa nú hlotið sjálfsstjórn, sem þeir virðast una vel. Næsta verk U Nu, sem ef til vill hefir aflað honum mestra vinsælda, var jarðaskiptingin. 1 stjórnarskránni segir, að ríkið sé yfirráðandi allra jarðeigna, geti tekið þær eignarnámi og hefir það nú verið gert með allar stórjarðir. Hinir gömlu leiguliðar eru nú jarðeigendur innan þeirra takmarka, er ríkið setur. Flest flutningatæki hafa verið þjóðnýtt, eins og járnbrautir og fljótaskip. Útflutningsverzlunin á hrísgrjónum, sem er stærsti útflutningsliðurinn, hefir líka verið þjóðnýtt. U Nu hefir þó yfirleitt varazt að ganga lengra í þjóðnýtingarátt en nauðsyn krafði. En víða var við slíka einkahagsmuni að etja, að ekki var um annað að ræða. Sam- vinnufélög hefir U Nu eflt á ýms um sviðum, en þó telur hann að þau megi ekki efla hraðar en þroski fólksins leyfir. Sama gild ir um verkalýðssamtökin. Vísir að þeim hefir verið komið á fót, og er ætlunin að þau eflist smátt og smátt. Stjórnarhætti í Burma er vit- anlega ekki hægt að mæla eftir vestrænum mælikvarða, þar sem aðstæður eru þar allt aðrar. í heild verður þó ekki annað sagt, en þar stefni í rétta átt. í skólamálum og heilbrigðis- málum hefir verulegu verið á- orkað, en þau mál voru í hörmu- legu ástandi og eru raunar enn. Eitt af athyglisverðustu verk- um U Nu er meðferð hans á skæruliðum, er gefast upp, sem flestir eru kommúnistar. Þeir eru settir á uppeldishæli, þar sem þeir fá að læra ýmsar iðn- greinar og komast þeir þá oftast í góða atvinnu að hælisvistinni lokinni. Niðurstaðan verður yfir leitt sú, að þeir snúast til fylgis við U Nu. Er talið, að þetta hjálpi mjög til þess að vinna fylgi af kommúnistum. Sjálfstæð þjóð Það hefir vitanlega greitt mjög fyrir endurreisninni, að Burma er auðugt land. Þar eru nú 17 millj. íbúa, en talið er að landið gæti auðveldlega fram- fleytt fimm sinnum fleiri íbúum. Fyrir styrjöldina fluttu Burma- búar árlega út 3 millj. tonna af hrísgrjónum. Burma hefir einn- ig mikið af góðum nytjaskógum og þar er olía í jörðu og margir góðmálmar. Stjórnin hefir haf- izt handa um að hagnýta þessi auðæfi eftir megni og taka aukna tækni í þjónustu atvinnu- veganna. Hefir hún einkum not- ið aðstoðar Bandaríkjamanna við það síðarnefnda. Sambýlið við Kína veldur því, að Burma kýs að fylgja hlut- leysisstefnu. En Burmabúar leggja hins vegar áherslu á að sýna, að þeir séu ekki háðir Kínverjum og vilji ekki vera það. Þegar sendiherra Burma kom fyrst til Kína eftir valda- töku kommúnista, ætlaði kín- verska stjórnin að láta staðgeng il Mao Tse Tung taka á móti skilríkjum hans. Sendiherrann neitaði því og kvaðst aðeins af- henda þau Moi Tse Tung sjálf- un. Honum var þá bent á, að staðgengill hans hefði tekið á móti skilríkjun sendiherra frá Póllandi, Ungverjalandi, Rú- meníu, Tékkóslóvakíu og Alban- íu. M.a. benti rússneski sendi- herrann honum á þetta, Hann leg sig samt ekki, og stjórnin í Burma stóð líka með honum. Hún lét fréttast til Peking, að sendiherrann yrði kalaður heim ef Mao Tse Tung tæki ekki sjálf ur við skilríkjunum. Þá var loks látið undan og tók kínverski einræðisherrann sendiherranum hið bezta. í sumar mætti U Nu á fjöl- menn um fundi opinberra starfs manna í Rangoon. Hann gerði þar grein fyrir stefnu stjórnar- innar. Aðeins einu sinni var mál hans truflað með lófaklappi. Það var þegar haim sagði: Við mun- um ekki gerast, lærisveinar neins stórveldis eða leppríki ein- hverrar stórveldablakkar. Við munum ekki einu sinni hreyfa minnsta fingur eftir fyrrmælum utan frá. — TÍMINN, 10 jan. Fjórða bindi ritsafnsins „Austurland" Eftir DR. RICHARD BECK Áttahagafélög þau sem risið hafa upp á íslandi á síðari ár- um, vinna þarft verk með fé- lagslegri starfsemi sinni, og þá eigi síður með útgáfu rita þar sem safnað er í einn stað sögu- legum og þjóðlegum fróðleik, er annars myndi, eigi ólíklega, fara forgörðum. Austfirðingum vestan hafs eigi síður en austan má vera það fagnaðarefni, að Austfirðinga- félagið í Reykjavík skipar með sóma sess sinn í hópi slíkra átt- hagafélaga og hefir unnið ýms nytjaverk. um annað fram með útgáfu ritsafnsins Austurland)» en fjórða bindi þess er nýkomið út; er ritið sem áður gefið út að tilhlutun Sögusjóðs Austfirð- inga, en aðalútgefandinn er bóka forlagið Norðri í Reykjavík. Rit- nefndina skipa Halldór Stefáns- son, Bjarni Vilhjálmsson og Jón Ólafsson. í þrem fyrstu bindum ritsafn- sins er skráður harla mikill og margháttaður fróðleikur um Austurland, og má það einnig með sanni segja um hið nýút- komna fjórða bindi, sem er 260 bls. að stærð, að nafnaskrá og ítarlegu efnisyfirliti meðtöldum. Þetta bindi er einnig sam- felldara að efni en eldri bindin, því að megin innihald þess er hið fjölþætta og greinagóða yfir- lit Halldórs Stefánssonar: „Þætt- ir úr sögu Austurlands á 19. öld“ sem verulegur fengur er að, og mega Austfirðingar vera höfund- inum þakklátir fyrir þetta fróð- leiksríka þáttasafn hans. í gagnorðum inngangi lýsir höf. sérkennum Austurlands um veðurfar, almenn bjargræðisskil- yrði til sjávar og sveita, og á- standinu í byrjun 19. aldar. Tel- ur hann síðan upp helztu bú- skaparmenn austur þar um þau aldamót, bæði í embættismanna og bændastétt, og er sú upptaln- ing hin fróðlegasta. Að innganginum loknum hefst síðan aðalefni þessa sagnfræði- lega yfirlits Halldórs Stefáns- sonar, en því er vel lýst í megin- dráttum í þessum lokaorðum inngangsins: Hér verður nú klofin frá- sögnin í sérstaka þætti. Aðal- þættirnir eru þrír, Verzlunar- þáítur, Búskaparþáttur og Sjó- sóknarþátiur. Auk þess verða sérstakir þættir um hluttöku kvenna í framvindu sögunnar og þáttur um ýms atriði, sem ekki hafa fallið inn í aðra þætti. Loks er þáttur um ættstofna. Kaflar úr félagsmálasögu ald- arinnar eru ritaðir í III. bindi. Að öðru leyti fléttast félagsmál- in inn í aðra þætti. Allt eru þetta yfirlitsþættir, sem fylla má út með ýtarlegri frásögnum að vild. Þeim er ætl- að að vera leiðarhnoð, sem rekja má um slóðir sögunnar á 20. öld- inni. Með því að tengja þá sam- an í huga á tímamótum og að sögulokum, er heildaryfirlitið fengið.“ — Meginþáttunum er síðan skipt í smærri kafla, sem of langt yrði hér upp að telja, en öll er niður- röðun efnisins hin skilmerki- legasta og frásögnin hin læsileg- asta, svo að yfirlit þetta veittir glögga yfirsýn yfir þróun aust- fizkra verzlunarmála, búnaðar- mála og sjávarútvegsmála, fé- lags-og menningarmála á öld- inni, sem leið. Hér er að sjálfsögðu sérstak- lega getið, þó í stuttu máli sé, þeirra félagslegu hreyfinga, sem auðkennt hafa Austfirðinga, svo sem Fríkirkjuhreyfingar þeirra, er var næsta athyglisvert þjóð- félagslegt fyrirbrigði, þó sú alda sé nú hjöðnuð. Kaflinn um þáttöku kvenna í félagsmála-og menningarsögu Austurlands á þessu tímabili er einnig hinn eftirtektarverðasti, og þeirra þar að verðleikum að góðu getið. Er það t.d. sérstak- lega frásagnarvert, að fyrsta kvennablað á Islandi var stofn- að á Austurlandi, en það var hálfsmánaðarblaðið Framsókn, er þær mæðgur Sigríður Þor- steinsdóttir, kona Skapta rit- stjóra Jósepssonar, og Ingibjörg dóttir þeirra, stofnuðu á Seyðis- firði í ársbyrjun 1895. Sérstakur kafli fjallar, að von- um, um Vesturheimsferðir Aust firðinga, sem miklar voru um eitt skeið, eins og alkunnugt er, og lágu til þeirra góðar og gild- ar þjóðfélagslegar ástæður, eins og höf. bendir réttilega á; hitt dregur hann eigi fjöður yfir, hver blóðtaka sá útflutningur var Múlasýslum. En þó að skin og skuggar, eins og alltaf er í ferli þjóðanna og lífi einstaklingsins, hafi á um- ræddu tímabili skipst á í sögu Austurlands, ber þetta yfirlit glögglega með sér, að Austfirð- ingar hafa hvorki verið eftir- bátar annarra landa sinna um frelsisást né framsóknaranda. Spáir það góðu um það, að þeir muni ganga sigrandi af hólmi þeirra vandkvæða, sem þeir, eins og heimaþjóðin í heild sinni eiga við að glíma nú á þessum viðsjár-og erfiðleikatímum. Auk hinna efnismiklu þátta sinna úr sögu Austurlands, á Halldór Stefánsson í þessu bindi Framhald á bls. 7 Stingandi fótaverkur Þjáist þér I leggjunum svo sem hníf væri stungið í holdið? Veitist yður erfitt að rétta úr fótunum? Þúsundir mæla með Templeton’s T-R-C’s vegna skjðtrar svíunar á vöðvasársauka. Yður getur batnað við að nota T-R-C’s. 65 c., $1.35 I lyfjabúðum. T-833. Skrautblóm 18 TEGUNDIR 25c Allir sem hafa á- nægju af hús- biðmum ættu að fá einn eða tvo pakka af Geran- ium fræinu okk- ar. við höfum á boðstðlum skraut legt safn af Dazz- ling S c a r 1 e t, Plame Red, Brick Red, Crimson, Maroon, Vermilion, Scarlet, Sal- mon, Cerice, Orange-Red, Sal- mon-Pink, Bright Pink, Peach, Bluch Rose, White, Blotched, Variegated, Margined. Sprettur vel og blðmstrar oft 90 dögum eftir sáningu. (Pkt. 25c) (2 fyrir 45c) póstfrítt Sáið núna. Sórstakt tilboð: 1 pkt. af ofan- greindu og 5 pkt. af öðrum blðmafræjum, öll mismunandi, auðveldlega ræktuð innanhúss. $1.25 virði, alt fyrir 65c póstfrítt. C D C E OUR BIG 1953 SEED rivCC and NURSERY BOOK I Kii u i ri íífSnÍ^BW! DOMINION SEED HOUSE CEORCETOWN.ONT. Business and Professional Cards Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 -------------------------- I S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg PHONE 92-4624 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð, bifreiðaábyrgð o. s. frv. Phone 92-7538 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Ashphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. SARGENT TAXI PHONE 20-4845 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK. MAN. Phones: Offlce 26 — Res. 230 Offlce Hours: 2:30 - 6D0 p.m. Thorvaldson Eggerison Bastln & Siringer Barristers and Sollcltors 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917 Offlce Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUTLDLNG Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. GIMLI FUNERAL HOME Sími 59 SérfræOingar i öllu, sem aO útförum lýtur BRUCE LAXDAL forstjóri Licensed Embalmer Dr. A. V. JOHNSON DENTIST 506 SOMERSET BUILDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216 i Dr. ROBERT BLACK Sérfræðingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 92-3851 Heimaslmi 40-3794 Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargeni Ave., Winnipeg PHONE 74-3411 Gundry Pymore Ltd. British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST. WINNIPKG PHONE 92-8211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreclated A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook St. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá beiti. Stofnað 1894 Sími 74-7474 Minnist BETCL í erfðaskrám yðar. Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Matemlty PavilJon General Hospltal Nell's Flower Shop Wedding Bouqueta, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Beddlng Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753 -----------------------------J PHONR 02-7025 H. J. H. Palmason, C.A. Chartered Aeconntant 505 Confederatlon Llfe Bulldlng WINNIPEG MANITOBA jfohnny, JZyan 1071 DOWNING ST. PHONE 72St2t WINNIPEC'S FIRST "MAILORPHONE" ORDER HOUSE This Week's Special: Free gift certificates to the first 20 persons who phone or write in. Kaupið Lögberg SELKIRK MEUL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt herelnlr. Hitaelnlngar- rör, ný uppfyndlng. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka flt með reykum.—Skrifiö, slmiC til KILLY SVEINSSON 625 Wall Street Wlnnlpeg Just North of Portage Ave. Slmar: 3-3744 — 3-4431 J. WILFRID SWANSON 8t CO. Insurance ln all its branches. Real Rstate - Mortgages - Rentals 216 POWRR BUILDING Telephone 937 181 Res. 693 496 LET US SERVE YOU Parker, Parker and Kristjansson Barrislers - Solicilors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjanason 506 Canadian Bank of Commerce Chambers Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3561 G. F. Jonasson. Pres. 8c Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributorg of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Simi 92-5227 BULLMORE FUNERAL HOME Dauphin, Manitoba Eigandl ARNI EGGERTSON, Jr. VAN'S ELECTRIC LTD. 636 Sargent Ave. Aulhoriaed Home Appliance Dealers General Electric McClary Eledric Moffait Admiral Phone 3-4890

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.