Lögberg - 19.02.1953, Side 6

Lögberg - 19.02.1953, Side 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 19 FEBRÚAR, 1953 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands Framhald af bls. 1 Háskóla Islands árið 1922 og var síðan við bókmenntanám á Norðurlöndum og í Englandi, hefur verið skólastjóri Verzlun- arskólans frá 1931 og athafna- samur í félags- og menningar- málum ýmsum og m.a. verið formaður Þjóðleikhússráðs frá upphafi. ☆ Það hefur verið ákveðið, að J ó n Pálmason alþingismaður verði í framboði í sumar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Austur- Húnavatnssýslu. ☆ Fjársöfnun til byggingar hand ritasafns hér á landi gengur mjög vel. Landsnefnd handrita- safnsbyggingarinnar efndi til merkjasölu um land allt 1. des. sl. og seldust merki í Reykjavík Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta og þriðja miðsvetrarmót Fróns í Winnipeg, 23. febrúar 1953. ALDO'S BAKERY “Once You Buy to Try— You Will Always Try to Buy” 613 Sargent Ave., Winnipeg Phone 74-4843 fyrir rúmlega 60.000 krónur en samtals á landinu fyrir um 90.- 000 krónur. Síðustu tvo mánuð- ina hafa nefndinni borizt gjafir sem nema um 1500 krónum á dag að meðaltali, og samtals nemur söfnunin nú, að meðtöld- um loforðum um framlög tæp- um 400,000 krónum, en markið er ein miljón króna. ☆ Stjórn Eimskipafélags íslands hefur auglýst ,að hún muni á næsta aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 6. júní í sumar, leggja fram tillögu um það, að öll hlutabréf í félaginu verði innkölluð og í stað núgildandi hlutabréfa fái h 1 u t h a f a r ný hlutabréf, sem verði að fjárhæð tífalt núverandi nafnverð bréf- anna. ☆ Velkomnir félagar og gestir ó þrítugasta og þriðja miðsvetrarmót Fróns í Winnipeg, 23. febrúar 1953. Lítið inn til okkar ef þið hafið tíma VARIETY SHOPPE LOVISA BERGMAN PHONE 74-4132 630 NOTRE DAME AVE. og 697 SARGENT AVE. Innflúenza hefur komið upp á Keflavíkurflugevlli og hafa margir tekið veikina, en enginn er þungt haldinn. Ekki er kunn- ugt að fólk hafi veikst af far- aldri þessum í Reykjavík en nokkur innflúenzutilfelli eru í Keflavík. Innflúenzan er væg, svipuð þeirri, er gekk 1951 og hefur ekki valdið neinum veru- legum fylgikvillum eða dauðs- föllum, að því er Innflúenzumið- stöð Sameinuðu þjóðanna grein- ir frá. ☆ Slysavarnafélag íslands átti 25 ára starfsafmæli á fimmtu- daginn og var þess minnst í dag- skrá útvarpsins þá um kvöldið. Meðal ræðumanna voru forseti íslands, herra Asgeir Asgeirs- son, Ólafur Thórs siglingamála- ráðherra, biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson og forseti Slysavarnaæélagsins Guð bjartur Ólafsson. Félagið gaf út myndarlegt afmælisrit og er þar rakinn aðdragandi að stofnun slysavarnafélags her og starfs- saga félagsins og fjallar einn kaflinn sérstaklega um björgun- arstörfin. í félaginu eru nú nær því 200 deildir og félagsmenn eru um 28.000. Félaginu bárust Stjórn og starfsfólk Safeway búðanna fjölmargar árnaðaróskir frá ein staklingum og félögum og góðar gafir, m. a. 10.000 krónur frá Eimskipafélagi Islands, 10.000 frá Sjóvátryggingafélagi Islands og 100 sterlingspund frá Sam- tryggingu botnvörpuskipa - eigenda í Hull. — Slysavarna- félagið Ingólfur í Reykjavík hélt nýlega aðalfund sinn og var þar samþykkt 140.000 króna fram- lag til slysavarna og vegna 25 ára afmælis Slysavarnafélags ís- lands. í þessari upphæð er 40.- 000 króna afmælisgjöf til slysa- varnafélagsins í félagsheimilis- sjóð, 25.000 krónur til kaupa á helikopter - björgunarflugvél og 30.000 krónur til björgunarbáts í Reykjavík. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins í Reykjavík gaf Slysavarnafélagi Islands 25.000 krónur í afmælisgjöf. ☆ Schlieker framkvæmdastjóri í Dusseldorf hefur afhent hag- fræðideild háskólans í Kiel 10.- 000 þýzk mörk, er verja skal til styrktar íslenzkum stúdentum til hagfræðináms við háskólann í Kiel. Styrkurinn verður veitt- ur einuni íslenzkum stúdent frá 1. maí nk. til tveggja missera náms, og nemur hann 200 til 260 mörkum á mánuði, eftir fjöl- skylduástæðum styrkþega, en styrkþeginn verður laus við greiðslu skólagjalda. Þeir, sem lokið hafa prófi í hagfræði er- lendis eða í viðskiptafræðum við Háskóla íslands munu sitja fyrir um styrkveitingu. Umsókn um um styrk þennan skal skilað til Háskóla Islands fyrir 15. marz nk. og fylgi umsóknunum nákvæmar upplýsingar um náms feril. ít Nýlega var haldið þing Hér- aðssambandsins Skarphéðins, en í því eru 25 ungmennafélög í Árnessýslu og Rangárvallsýslu. Var þar skorað á ungmenntafé- lögin í Árnessýslu að vera hjálp- leg við öflun þjóðlegra muna og skjala til væntanlegs byggða- s a f n s sýslunnar. Sambands- félögin voru hvött til þess að vinna að aukinni þekkingu fólks á gróðurfæri landsins og heppilegt talið að fenginn yrði sérfróður maður til þess að ferð- ast á milli ungmennafélaganna á sambandssvæðinu og leiðbeina um söfnun og greiningu planta. Ungur söngvari úr Reykjavík, Gunnar Óskarsson að nafni, er nýlega kominn heim frá Italíu, en þar hefur hann dvalist við söngnám um þriggja ára skeið. Hann heldur söngskemmtun í Reykjavík á föstudaginn kemur. Á sunnudaginn var fór fram prestskosning í Eyrarbakka- prestakalli. Magnús Guðjónsson cand. theol. var kosinn lögmætri kosningu. ☆ Brezka ríkisstjórnin og brezka verkalýðssambandið hafa boðið forseta Alþýðusambands Islands Helga Hannessyni, og þremur öðrum fultrúum sambandsins í hálfs mánaðar kynnisför til Bretlands. ■fr Ríkisstjórn Islands hafa borizt þakkir þýzku ríkisstjórnarinnar fyrir þá aðstoð, sem veitt var af hálfu íslendinga við leitina að þýzka togaranum Ebeling, er fórst með allri áhöfn út af Vest- fjörðum á Þorláksmessu. ☆ Sinfóníuhljómsveitin heldur tón leika í Þjóðleikhúsinu á þriðju- daginn kemur með aðstoð Sam- kórs Reykjavíkur og verða þar flutt verk eftir Mozart, Brahms og Moussourgsky. ☆ Karlakórinn Heimir í Skaga- firði minntist nýlega 25 ára starfsafmælis. í kórnum eru 40 menn úr 5 hreppum sýslunnar, og eiga margir þeirra langt að sækja æfingar, eins og nærri má geta. Stjórnandi kórsins er Jón Björnsson.bóndi á Hafsteins stöðum. Hamingjuóskir til íslendinga í tilefni af 33. miðsvetrarmóti Fróns í Winnipeg, 23. febr. 1953. fró J J. SWANS0N & C0. LIMITED FASTEIGNA SALAR Leigja og annast íbúðar og verzlunar hús Alls konar vátryggingar Lána peninga gegn lágum vöxtum Fasteigna umsjónarmenn TIL VIÐTALS OG RÁÐA J. J. SWANSON & CO. LIMITED Sími 92-7538 308 Avenue Bldg. WINNIPEG, Manitoba býður gesti, sem koma ó hið þrítugasta og þriðja miðs- vetrarmót Fróns í Winnipeg, velkomna og væntir að þeir njóti mikillar ónægju af heimsókninni. SAFEWAY CANADIAN SAFEWAY LIMITED Við bjóðum íslendinga velkomna ó þrítugasta og þriðja miðsvetrarmót Fróris í Winnipeg, 23. febr. 1953, og þökkum góða viðkynningu og vinsamleg viðskipti þeirra, sem við höfum notið í liðinni tíð, og vonum að njóta í framtíðinni. CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, forstjóri N.W. Cor. CHAMBERS and WINNIPEG HENRY SÍMI 74-7451 f

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.