Lögberg - 05.03.1953, Side 1

Lögberg - 05.03.1953, Side 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas • Oil • Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs 66 ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 5. MARZ, 1953 NÚMER 10 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 15. FEBRÚAR --------------- Ríkisstjórn Frakklands hefir sent ríkisstjórn íslands orðsend- ingu vegna reglugerðar hennar frá 19. marz 1952 um verndun fiskimiðanna, og segir í orðsend- ingu þessari að ísland hafi gagn- vart Frakklandi brotið í bág við viðurkennda reglu í alþjóðar- rétti, þar sem ákveðið sé að víð- átta fiskveiðilögsögu skuli miðuð við þrjár mílur. í reyndinni þýði reglugerðin að frönskum skipum sé bannað að veiða á fiskisælustu svæðunum, þótt nærri láti að Frakkar geti áskilið sér söguleg réttindi, þar eð frönsk skip hafi stundað veiðar á þessum miðum svo öldum skipti. Vernd fiski- miðanna mætti alveg eins ná með ákvæðum alþjóðasamnings um ofveiði. I lok orðsendingar- innar lætur franska stjórnin þá von í ljós, að íslenzka ríkisstjórn- in endurskoði ákvörðun sína frá 19. marz 1952, og óskar þess ein- dregið að hægt verði að gera nokkrar lagfæringar með gagn- kvæmu samkomulagi milli land- anna, til dæmis varðandi tak- mörkuð veiðisvæði og tímabil fyrir franska togara, einkum á verndarsvæðinu við vestur- ströndina. — Ríkisstjórnin hefir orðsendingu þessa til athugunar og mun henni verða bráðlega svarað. 1 viðtali við Reykjavíkurblað segir Ólafur Thors atvinnumála- ráðherra um þessa orðsendingu frönsku ríkisstjórnarinnar, að í henni felist ekkert nýtt. Um orð- sendingu þá,j sem íslenzku ríkis- stjórninni barst fyrir nokkru frá ríkisstjórn Bretlands, segir ráð- herrann, að íslenzku stjórninni þyki ekki rétt að birta hana á þessu stigi málsins og sé hún til athugunar. Hann endurtekur að lokum það, sem lýst hefir verið yfir af hálfu ríkisstjórnarinnar frá upphafi, að hún muni í engu hvika frá gerðum sínum í þessu máli. ☆ Heildarfiskafli landsmanna á árinu 1952 varð tæplega 337.000 lestir, og voru þar af frystar um 125.000 lestir, en 127.000 saltaðar, og 4iertar voru 14.700 lestir. I desembermánuði síðastliðnun) varð aflinn 19.000 lestir. Afli báta hefir verið allgóður að undan- förnu, sums staðar ágætur. ☆ Enn er hlýtt í veðri hér á landi, og hafa talsverðar rigningar verið að undanförnu. Um síðustu helgi rigndi svo mikið í Vestur- Skaftafellssýslu að mikill vöxtur hljóp í allar ár og flæddu þær langt yfir l bakka sína. 1 flóði þessu skemmdist brúin á Tungu- fljóti í Skaftártungu svo mikið, að hún er ófær bifreiðum. Jaka- hröngl ruddi burtu undirstöðun- um kafla og seig brúin þar um hálft annað fet. í fyrramorgun var nokkurra stiga hiti hér á landi, þegar talsvert frost var í Skandinavíu og á Bretlands- eyjum. ☆ Allar Rauða kross deildir hér á landi safna nú fé til fólks á flóðasvæðinu í Hollandi, og hafa safnast í Reykjavík talsvert á annað hundrað þúsund krónur, og á Akureyri höfðu safnast um 13.000 krónur í fyrrakvöld. Send- ar voru s.l. þriðjudag 6 til 7 hundruð ullarábreiður til Hol- lands. Póst- og símamálastjórnin hefir ákveðið, vegna Hollands- hjálparinnar, að yfirprenta með 25 aura yfirverði tvö. gildandi frímerki, og verða yfirprentuð 250 þúsund af hvorri tegund. Þau verða til sölu til 1. apríl næst- komandi en gilda undir allar póstsendingar til 1. júlí. ☆ Steingrímur Steinþórsson for- sætisráðherra fór til Kaup- mannahafnar á þriðjudaginn var og situr þar fund Norðurlanda- ráðsins af hálfu íslenzku ríkis- stjórnarinnar. Samferða honum voru fimm fulltrúar Alþingis í Norðurlandaráðinu, — og er Magnús Jónsson alþingismaður formaður íslenzku fulltrúanefnd- arinnar og einn af varaforsetum ráðsins. Steingrímur Steinþórs- son forsætisráðherra átti sextugs afmæli á fimmtudaginn var. ☆ Bankaráð Iðnaðarbanka ís- lands samþykkti einróma á fundi sínum á fimmtudaginn, að ráða Helga Hermann Eiríksson skóla- stjóra fyrsta bankastjóra Iðnaðar bankans. Ákveðið er að bankinn taki til starfa með vorinu. For- maður bankaráðs er Páll S. Pálsson lögfræðingur. ☆ \ Alþingiskosningar fara fram hér á landi í sumar og birtast qðru hverju fréttir af fyrirhug- uðum framboðum í einstökum kjördæmum. I vikunni, sem leið, var sagt frá því, að Jónas G. Rafnar alþingismaður verði í framboði fyrir Sjálfstæðisflokk- inn á Akureyri, Jóhann Þ. Jósefs- son alþingismaður í Vestmanna- eyjum og Gísli Jónsson alþingis- maður í Barðastrandarsýslu. ☆ Á þriðjudaginn varð jarð- skjálfta vart í Eyjafirði, Suður- Þingeyjarsýslu sums staðar og á Siglufirði. Ekkert tjón varð. ☆ Bæjarstjórnir í nokkrum kaup- stöðum hafa samþykkt að hafa atkvæðagreiðslu um það, hvort hafa skuli þar opnar áfengisút- sölur, og í þessu tilefni hefir Framkvæmdanefnd Stórstúku íslands og Samvinnunefnd bind- indismanna birt yfirlýsingu, þar sem talið er, að lítið sem ekkert vinnist við héraðabann í Reykja- vík, þar eð lýst hafi verið yfir, að Áfengisverzlun ríkisins muni eftir sem áður selja þar áfenga drykki þótt slíkt bann verði sam- þykkt þar. Hins vegar sé mjög líklegt, að héraðabönn í bæjar- félögum utan Reykjavíkur, eink- um þar sem öflugur bakhjarl í hagstæðu almenningsáliti er fyrir hendi, muni reynast vænleg til takmörkunar áfengisneyzlu. ☆ Nýtt yátryggingarfélag hefir verið stofnað í Reykjavík og nefnist Vátryggingarfélagið h.f. Það tekur að mestu við starf- semi tveggja tryggingarfélaga, Trolle og Rothe h. f. og Carl D. Tulinius og Company. Hlutafé nýja félagsins er 1,2 miljón króna, og framkvæmdarstjóri er Ólafur Finsen. ☆ Stúdentafélag Reykjavíkur heldur umræðufund í dag og ræðir nú um kristindóm og kommúnisma. Framsögumenn eru Jóhann Hannesson kristni- boði og Gunnar Benediktsson rithöfundur. ☆ Aðfaranótt föstudags kom upp eldur í skipinu Herðubreið, sem var á leið til Austfjarða frá Framhald á bls. 5 Embættismenn Þjóðræknisfélagsins Valdimar J. Eylands Egíll H. Fájnis Endurkosinn forseti Kjörinn varaforseti í framkvæmdarnefnd, auk for- seta og varaforseta, Ingibjörg Jónsson, ritari, Finnbogi Guð- mundsson, vararitari, G. L. Jö- hannsson, féhirðir, Margrét Pétursson, varaféhirðir, Guð- mann Levy, fjármálaritari,, Ólafur Hallson, varafjármálarit- ari, Ragnar Stefánsson, skjala- vörður. Endurskoðendur: Steindór S. Jakobsson og J. Th. Beck. Gerir gerviull ullina verðlausa á næstunni? Vi'ða um lönd, svo sem í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, er mikil sauðfjárrækt, er byggist á ullarframleiðslu, og hvílir afkoma þessara landa langmest á ullinni. En nú eru ýms veður í lofti, og sá ótti hefir komið upp, að ullin muni innan skamms verða algerlega undir í sam- keppninni við gerviefni. Það er gerviullin, sem Ástra- líumenn og Ný-Sjálendingar ótt- ast, en að rannsóknum undir- búnings á framleiðslu slíkra efna er nú kappsamlega unnið af ýmsum færustu vísindamönn- um heims á sviði gervi-iðnaðar. Varnaðarorð vísindamannsins Þetta mál hefir komizt sérstak- lega á dagskrá í haust, sökum þess, að yfirmaður efnafræði- deildar Sidney-háskóla lét svo ummælt, að þess muni skammt að bíða, að gervilullin komi fram á sjónarsviðið, og landar hans og aðrir, er stundað hafa sauðfjár- rækt með ullarframleiðslu að meginstoð, verði að vera við því búnir, að þessi þróun kippi fót- unum undan atvinnuvegi þeirra. —TÍMINN MINNING OG EGGJAN Flutt í Winnipeg þ. 25. febr. 1953 á samkomu Þjóðræknisfélagsins í tilefni af aldarafmæli Gests skálds Pálssonar. Heill sé þeim, er hófu merkið hátt og djarft á nýrri öld, áttu í hjarta eldinn bjarta ævi fram á hinzta kvöld; báru yl í bæi kalda, birtu eftir langa nótt, kveiktu sólþrá sálum ungum, sumartrú og vængjaþrótt. Vorsins syni, skáldi skyggnu, skuldir gjaldast þetta kvöld, hljóma yfir hafdjúp ára honum lof og þakkargjöld. Vökumaður vonadjarfur vildi glæða ættarþjóð sannleiksást, en svefni hrinda, svall í barmi kærleiksglóð. Vildi kröppu kjörin bæta kotungslýð, og öðrum þeim, er í skugga sátu sviptir | sínum manndómsrétt í heim. Vildi öllum hrjáðum hlýja hjörtum, sem í éljum kól; vildi hefja huga þjóðar hærra móti dagsins sól. Sein er leið á Sigurtinda, sóknardjarfra bíður þraut. Grýttur reyndist gæfuvegur Gesti, ævin þyrnibraut. Tíðum lífs á hörðu hjarni hríðarbarið skáldið stóð; blóði drifinn ferill fórna frumherjanna merkar slóð. ------☆------ , Skýrist nú í skuggsjá aldar skáldsins mynd og vökustarf; sinni þjóð að sonarlaunum silfri dýrri gaf hann arf. Yfir legstað ljóssins þjóna leiftrar, skráð á tímans spjöld: — Eigðu’ í hjarta eldinn bjarta ævi fram á hinzta kvöld! RICHARD BECK Minna má gagn gera Kommúnisti nokkur í Quebec, Walsh að nafni, hefir sagt sig úr flokknum og gert lýðum ljóst, að stjórnvöldin í Moskvu hafi mælt svo fyrir við skoðanabræð- ur sína hér í landi, að í því falli, að Canada lenti 1 stríði við Sovét- ríkin, bæri þeim fyrst af öllu að sprengja upp öll orkuver og járnbrautarbrýr hér í landi. Demantsbrúðkaup Sunnudaginn hinn 15. febrúar síðastliðinn, var hinum mætu og vinsælu hjónum, Hermanni Bjarnasyni og frú Júlíönu Bjarnason að Milton, N. Dak., haldið veglegt samsæti á heimili þeirra í tilefni áf demantsbrúð- kaupi þeirra, sem þá var fáum dögum áður um garð gengið; þau hjón eru bæði ættúð frá Barðsnesi í Norðfirði; þau voru gefin saman í hjónaband að Churchbridge, Sask., 11. febrúar 1893, en byrjuðu búskap þrjár rnílur norður af Milton, N.D., og hafa dvalið þar jafnan síðan. Viðstödd áminstan mannfagn- að voru börn og barnabörn demantsbrúðhjónanna, og margt skyldmenna víðsvegar að. Mannfagnaðurinn hófst með því, að sunginn var sálmurinn Hve gott og fagurt og indælt er, og Hvað er svo glatt; þá yoru demantsbrúðhjónunum afhent blóm og nokkur peningaupphæð og var það systursonur Her- manns, B. Bjarnarson kaup- maður, er slíkt gerði. Demantsbrúðguminn þakkaði með hlýjum orðum fyrir sína hönd, konu sinnar og annara ættmenna heimsóknina, vina- þelið og gjafirnar. Hamingjuóskaskeyti bárust demantsbrúðhjónunum úr öllum áttum, er vöktu hjá þeim inni- legan fögnuð. Öll börn demantsbrúð’hjón- anna, sem á lífi eru, voru við- stödd, svo og systurbörn Her- manns Björns Bjarnarson, Lang- ruth, og frú, Karl Bjarnarson, Baldur, og frú, og Valdimar Bjarnason, Langruth, ásamt frú; æinnig Mrs. Þorbjörg Hjörleifs- son, St. Vital, og Óskar Bjarna- son frændi demantsbrúðgumans fyrir nokkru kominn af íslandi. Sjö börn þeirra hjóna eru á lífi; barnabörn eru 31 og 26 barna- barnabörn. Mæfrur maður látinn Á miðvikudaginn í fyrri viku lézt að heimili sínu, 874 Gros- venor Avenue hér í borginni, John Edward McRae, fimtugur að aldri, er um langt skeið hafði gegnt mikilvægum trúnaðar- stöðum hjá Hudson’s Bay verzl- unarfélaginu mikla í Edmonton og Calgary, og gegndi hliðstæðri stöðu í þjónustu þess hér í borg, er sviplegt fráfall hans bar að. Mr. McRae var glæsilegur maður og prúður í framgöngu og hann naut hvarvetna góð- vildar og trausts hvar, sem leið hans lá. Mr. McRae var kvæntur Hrefnu, dóttur þeirra J. J. Bíld- fells og frú Soffíu Bíldfell. Auk konu sinnar lætur Mr. McRae eftir sig tvö börn, John 21 árs og Sylvíu 9 ára að aldri. Útförin, sem var afarfjölmenn, fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á laugardaginn, þar sem séra Valdimar J. Eylands flutti hin hinztu kveðjumál; við útför- ina voru stödd foreldrar Mrs. McRae og bróðir hennar, Dr. John A. Bildfell, en þau eiga nú öll heima í Quebecfylkinu. Dánarfregnir Jón Magnússan Borgfjörð, landnámsmaður í Árdalsbyggð, lézt í Árborg Red Cross spítal- anum á föstudaginn, 27. febrúar, 86 ára að aldri. Foreldrar hans voru Magnús hreppstjóri á Hofs- stöðum í Álftaneshrepp í Mýra- sýslu Jónsson og Helga Þor- steinsdóttir frá Skildinganesi. Jón misti föður sinn ungur og flúttist mað móður sinni, stjúp- föður og bróður, Guðmundi, til Vesturheims 1888; ári síðar sett- ust þeir bræður að í Árdals- byggð; Jón kvæntist Guðrúnu Eggertsdóttur það sama ár syst- ur Árna heitins Eggertssonar og þeirra systkina. Auk hennar læt- ur hann eftir sig fimm sonu: Eggert í Geraldton, Ont.; Edward í Winnipeg; Árna í Árborg; Valdimar og Magnús heima á bújörðinni; fjórar dætur: Mrs. T. T. Jónasson, Riverton; Mrs. Otto Kristjánsson, Geraldton; Mrs. George P. Olson, Spokane, og Mrs. S. O. Jónasson, Winni- peg; 23 barnabörn og 22 barna- barnabörn; ennfremur tvær systur: Mrs. S. Landy, Gimli, og Mrs. George Harpell, Winnipeg; ofannefndan bróður, Guðmund, í Árborg. Útförin fór fram frá lútersku kirkjunni í Árborg á miðviku- daginn; séra Sigurður Ólafsson jarðsöng. ☆ Mrs. Friðrika. Thorolfson, 21 Tremont Apts., Winnipeg, lézt á fimtudaginn, 26. febrúar, 73 ára að aldri. Foreldrar hennar voru Friðrik Sigurbjörnsson frá Sjáv- arlandi í Þistilfirði og Sigríður Jónsdóttir frá Geiteyjarströnd við Mývatn á Islandi; þau voru fyrstu íslenzku hjónin, sem gift- ust í Winnipeg, og dóttir þeirra Friðrika fyrsta íslenzka stúlkan, sem fæddist í þeirri borg. Hún lætur eftir sig eiginmann sinn, Halldór, tvær dætur, Mrs. Lincoln Johnson og Mrs. W. Allison, og einn son, Frank; ennfremur einn bróður, John Davidson og 4 barnabörn. Mrs. Thorolfsson tilheyrði Fyrsta lúterska söfnuði alla ævi og var einnig í Women’s Musical Club. ' Útförin fór fram á mánudag- inn var; séra V. J. Eylands jarð- söng. Þessarar mætu konu verður nánar getið síðar. ☆ Mrs. Guðrún Gilbertson, 246 Parkview Street, St. James, lézt á fimtudaginn, 26. febrúar, 88 ára að aldri. Hún átti heima í þessari borg um 66 ára skeið; hún misti hann sinn, Magnús, fyrir ári síðan. Hún lætur eftir sig þrjár dætur: Mrs. K. Thorsteinson, Mrs. Emil Johnson og Mrs. J. Kellet; einn son, Thomas. Útför- in fór fram á þriðjudaginn; Dr. Rúnólfur Marteinsson jarðsöng. Innflutningsbanni aflýst Landbúnaðarráðherra Banda- ríkjanna aflýsti formlega banni því á canadiskum búpeningi og kjöti suður yfir landamærin hinn 2. þ. m., en bannið gekk í gildi fyrir ári síðan vegna gin- og klaufnaveikinnar, sem gróf um sig í suðurhluta Saskat- hewanfylkis; tilkynning varð- andi lausn málsins var birt sam- tímis í Washington og Ottawa. Leiðtogar hins canadiska land- búnaðar hafa þegar fagnað af- námi bannsins og um sömu mundir rýmkaði stjórn þessa lands nokkuð um útflutning á tollskyldum vörum, sem Banda- ríkin kaupa héðan úr landi.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.