Lögberg - 26.03.1953, Side 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 26. MARZ, 1953
3
KANNTU BOÐORÐIN?
I kristilegri siðfræði eru til tvö
meginhugtök, lögmál og náð.
Gyðingar lögðu mikið upp úr
lögmálinu. Sá, sem hélt lögmálið,
hlaut réttlætingu að launum.
Guð elskaði þann einn, sem upp-
fyllti fyrirmælin út í yztu æsar.
Menn skyldu vera góðir menn til
þess að guð elskaði þá. Syndar-
ana elskaði guð ekki. Þetta varð
mönnum eins og t. d. Páli post-
ula andleg ofraun. Enginn komst
hjá að syndga, og því hlaut reiði
guðs og fordæming að hvíla yfir
öllum. Þá komst hann í kynni
við aðra stefnu og annan hugs-
unarhátt, fagnaðarerindi Jesú
um náð guðs. Samkvæmt því
elskaði guð syndarann að fyrra
bragði. Menn skyldu því verða
góðir menn, af því að guð elsk-
aði þá, líkt og barnið finnur hjá
sér löngun til þess að hlýða góð-
um og ástríkum föður og gera
vilja hans. Þá er það ekki óttinn
við lögmálið, sem er driffjöðurin
í lífi mannsins, heldur löngunin
til að vera barn guðs og bróðir
náungans. Hin æðsta lífsregla
verður tvöfalda kærleiksboðorð-
ið um elskuna til guðs og ná-
ungans, gullna reglan um að
breyta við aðra, eins og maður-
inn sjálfur vill, að aðrir breyti
við sig, en Jesús Kristur hinn
heilagi og syndlausi, er sú fyrir-
mynd, sem allt miðast við í
framkvæmdinni.
Þrátt fyrir þetta verður lög-
málið ekki alveg úr sögunni. Hin
tíu boðorð Móse hafa eftir sem
áður verið látin gilda sem leið-
beining — ekki um það, hvernig
menn ættu að öðlast elsku guðs
— heldur um það, hvernig menn
eigi að koma fram öðrum til góðs.
Allir, sem lesa þessar línur,
munu telja sig kunna boðorðin,
mmm
last year j
your purchase f
Easter Seals
enabled
Kinsmcn • ••
to help 357
crippled
children
enda á það svo að vera. En það
dylst mörgum, að þessi gömlu
boðorð myndi nokkra innbyrðis
heild. Þó er það svo, þegar nánar
er að gáð.
Boðorðin skipast í tvo aðal-
flokka. Hin þrjú fyrstu eru um
guðsdýrkunina, hin sjö um
breytni við mennina. Mörgum
nútímamanninum mun finnast
guðsdýrkuninni gert full hátt
undir höfði, með því að nefna
hana á undan bréytninni, því að
einu gildi um trúna, ef breytnin
sé góð. Kirkjan lítur aftur á móti
svo á, að líf mannanna mótist
alltaf af einhverri trú, einhverj-
um guði, sem menn tilbiðji og
tigni. Auðvitað getur það komið
fyrir, að menn missi trú á allt og
alla, og leiðir slíkt jafnan til
kaldrar örvæntingar. í rauninni
ætti það að vera auðskilið mál,
að viðhorfið gagnvart tilverunni
sjálfri eða hinu æðsta valdi
hennar hlýtur að vera grund-
völlurinn undir viðhorfinu gagn-
vart einstökum smærri heildum,
svo sem þjóð, heimili eða ein-
staklingum. Þegar menn hætta
að tilbiðja hinn eina sanna guð,
fara menn ávallt að tigna eitt-
hvað í hans stað. Samtíð vor
dýrkar ekki Þór og Óðinn, en
hún tignar menn af öllu mögu-
legu tagi. Nú ríður lífið á því
fyrir oss, að þjóðin tigni guð —
tigni hann hégómalaust. Að
leggja guðs nafn við hégóma er
að tilbiðja guð þannig, að það sé
sjálfum þér hégómi, meiningar-
leysa eða hræsni. Ef guð sjálfur
er hégómi í augum þínum, er
ekki von á góðu. Og til þess að
guðsdýrkunin verði byggð á
öðru en ósamstæðum stemning-
um einstaklinganna, þurfum vér
að rækja hvíldardaginn betúr en
gert er. Auðvitað er hægt að til-
biðja guð hvar sem er, eins og
hægt er að syngja hvar sem er,
og borða hvar sem er, og læra
landafræði og sögu hvar sem er.
En hvað er þá á móti því að
biðja saman og hlýða saman á
kristilega fræðslu eins og menn
vilja syngja saman, borða saman,
og læra veraldleg vísindi saman?
Eða eiga menn að hafa allt í
samfélagi við aðra, nema kristin-
dóminn, rækja alls konar söfn-
uði, íþróttasöfnuði, stúkusöfnuði,
sálarrannsóknarsöfnuði, KFUM-
söfnuði, slysavarnasöfnuði, Odd-
fellóasöfnuði, Sj álfstæðissöfnuði,
Framsóknarsöfnuði, jafnaðar-
mannasöfnuði og kommúnista-
söfnuði, eða danssöfnuði, bíó-
söfnuði og leikhússöfnuði, eða í
einu orði sagt, állt nema kirkju-
söfnuði? Ég er ekki að lasta það,
að menn myndi félög um hug-
sjónir sínar og áhugamál. Slíkt
er einmitt mjög eðlilegt. En það
var slæmt að postularnir skyldu
ekki fæðast sem íslendingar, því
að þá hefði sú vísa þjóð kannske
reynt að koma vitinu fyrir þá
og sýna þeim fram á, að fagnað-
arerindið eitt gæti lifað án safn-
aða, — án sameiginlegrar guðs-
aýrkunar og sameiginlegs helgi-
uags.
Pegar lögð hefir verið undir-
staöa breytninnar með heil-
brigðu trúarlífi, verða hið boð-
orðin sjö til leiðbeiningar um
félagslegt samneyti við aðra
menn. Fyrst er rætt um að virða
DREWRYS
\
M.D.334-
foreldrana, forfeðurna, því að sú
þjóð, sem ekki kann að meta arf
hins liðna, er glötuð þjóð. Þá
kemur næst að láta sér annt um
líf þeirra, sem nú lifa, samtíðar-
mannanna. Og til þess að tryggja
heill næstu kynslóða, þarf að
byrja að sjá svo um, að börnin
fæðist við heilbrigð skilyrði,
verði ekki til í lauslæti, kæru-
leysi og heimilisleysi. Sjötta
boðorðið ákveður, að hverju
barni skuli tryggt, að það eigi
bæði föður og móður,'og heimili.
Jafnvel það að foreldrar búi
saman utan hjónabands, er var-
hugavert fyrir þjóðfélagið því að
í því er fólgið mótatkvœði gegn
skipulögðu hjónabandi og stefnt
að upplausn. Sjöunda og áttunda
bororðið eiga að koma í veg
íyrir, að nokkur sé rændur fram-
færzlumöguleikum sínum eða
trausti samborgaranna, og loks
skulu tvö síðustu boðorðin aftra
mönnum frá að spilla annarra
heimilum, annað hvort með því
að kom.a í veg fyrir, að þeir eigi
sér samastað eða með því að
spilla heimilislífi og heimilis-
friði. Að spilla milli hjóna, koma
illu af stað milli barna og for-
eldra, rægja saman húsbændur
og hjú, er einhver vísasta leiðin
til að valda ógæfu.
Þetta yfirlit sýnir, að hin J;íu
boðorð eru ekki sett út í bláinn,
heldur eru þau öll í einni heild
sett til þess að tryggja velfarnað
mannanna á öllum sviðum. —
Kœruleysi við boðorðin er kær-
leiksleysi við samborgarana. Þess
vegna ættu bæði heimili og skól-
ar að leggja allt kapp á að inn-
ræta þau hverju barni. Boðorðin
eru engan veginn úreltur bók-
stafur og afleiðingar lögbrotanna
koma niður á eftirkomendum í
þriðja og fjórða lið, eins og
reynslan sýnir. Ekki af því að
guð sé að hefna á börnunum,
heldur af því tilveran er nú einu
sinni svo úr garði gerð, að hver
einstakur maður er liður í heild
ættarinnar. Allt, er vér gerum,
hefir sínar afleiðingar, bæði
fyrir samtíðarmenn og eftirkom-
endur. Þetta útilokar ekki þann
gleðilega sannleika, að þrátt
íyrir syndir mannanna, auðsýnir
guð miskunn sína þúsundum,
meðal annars með því að gefa
mönnunum bæði lögmál og
fagnaðarerindi, — og frelsara,
sem elskar mennina og vill leiða
þá inn í sitt ríki, þar sem náðin
er hið æðsta lögmál.
Jakob Jónsson
—TÍMINN, 22. febr.
Örlög íslenzku
bókanna
Ég finn til áhyggju út af Ör-
lögum þeim sem bíða íslenzkra
bóka hér í landi, eftir að lestur
þeirra er mjög genginn úr hefð.
Mér er kunnugt um það, að
bækur hafa farist í eldi og vatni,
og legið hingað og þangað „kvik-
settar“ eða ólesnar; hafa stund-
um komist í hendur manna, sem
ekki gátu lesið orð í íslenzku.
1 Það virðist skylda manna, að
ganga svo frá þessum vinum
sínum, að þeim verði borgið eft-
ir þeirra dag, eftir því sem er
unt.
Hvað á að verða um Árbækur
Jóns Espolíns; Flateyjarbók og
bóklegar gersemar fleiri, sem
mér er kunnugt eru að eru til
út um bygðir?
Ég sé ekki betur en hér sé
vandamál, sem sé eða geti verið
eitt af starfsemi Þjóðræknisfé-
lagsins og allra sannra bókavina,
svo að það fá í heppilega af-
greiðslu.
Ég tengi hér við stutta frá-
sögn um Flateyjarbók.
„Jón bóndi í Flatey, sonur séra
Torfa Finnssonar,. átti stóra og
þykka pergamentisbók með gam
alli múnkaskrift, innihaldandi
Noregskonunga sögur og margt
fleira, og hér fyrir er hún al-
mennilega kölluð. Flateyjarbók.
Hana falaði M. Brynjólfur til
kaups fyrir peninga, síðan fyrir
fimm hundruð í jörðu. Fékk
hana þó ekki að heldur. En er
Jón fylgdi honum til skips úr
eyjunni, gaf hann honum bók-
ina, og meinast að biskupinn
hafi hana fullu launað.“
(Biskpas 1)
Síðan sendi Brynjólfur biskup
bókina að gjöf á bókahlöðu kon-
ungs í Kaupmannahöfn.
Mælt er að pergament þetti
hafi verið til sýnis á heimssýn-
ingunni í Chicago. Svo mikið
þótti koma til þessa fágæta rit-
verks.
Eftir pergamenti þessu var
Flateyjarbók gefin út í þrem
bindum.
Er nautn að lesa bók þessa;
málið er gullfallegt, og frásögn
lipur og óþvinguð.
Sjálfgæft mun það, að nokkur
bók hafi verið borguð með heilu
jarðarverði; sýnir það að Brynj-
ólfur hefir kunnað að meta gildi
bókarinnar; enda sendi hann
pergamenti þetta ásamt nokkr-
um fleirum til varðveizlu hjá
öðrum bókum og fornritum til
Danmerkur. _ _
Tvo drengi á tunnufleka rak
hjálparlausa á sjó út
Helgi Helgason fann þá milli
Akureyjar og Engeyjar — höfðu
ofí farið í sjóinn
Er vélskipið Helgi Helgason
lagði upp í áætlunarferð sína til
'Vestmannaeyja í gærkvöldi og
var fyrir skömmu kominn út úr
Reykjavíkurhöfn, heyrðu menn
á skipinu neyðaróp, sem þeir
rannsökuðu svo nánar hverju
sætti. Kom þá í ljós, að tveir
tólf ára drengir, Óttar Guð-
mundsson, Snorrabraut 32, og
Þorleifur Jósefsson, Miðtúni 50,
voru að hrekjast á tunnufleka í
sundinu milli Engeyjar og Akur-
eyjar. Drengjunum var báðum
bjargað upp í skipið.
Af þeim dregið
Er drengjunum var bjargað
um borð í Helga Helgason, var
mjög af þeim dregið, enda höfðu
þeir verið að velkjast á flekan-
um langan tíma. Sneri skipið
með þá til hafnar og var drengj-
unum ekið heim til sín í sjúkra-
bifreið.
Flekanum hvolfir
Eftir þeim upplýsingum, sem
blaðið hefir fengið af þessu,
mun flekanum hafa hvolft að
minnsta kosti einu sinni undir
drengjunum, en þeim tókst að
komast upp á flekann aftur. Það
mun hafa hjálpað þeim mikið í
þessum raunum, að þeir voru
báðir syndir.
Óvísf að þeir hefðu
þolað meira
Það var mikið lán að eftir
þeim var tekið af skipinu, því
óefað hefðu þeir ekki þolað öllu
meiri vosbúð á flekanum. Dreng-
irnir munu hafa verið að leika
sér á flekanum í flæðarmálinu,
en borið undan, án þess að fá
nokkuð að gert.
Ekki er talið, að drengjunum
verði teljandi meint af þessari
svaðilför, en eins og gefur að
skilja hefir reynt mikið á þá.
—TÍMINN, 7. febr.
Bezta munntóbak
heimsins
Business and Professional Cards
Dr. P. H.T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 1 t S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 92-4624
J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgö, bifreiöaábyrgö o. s. frv. Phone 92-7538 Phone 74-7855 ESTTMATES l,1^ J. M. INGIMUNDSON AshphzÉt Roofs and Insulated ðiding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnlpeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
SARGENT TAXI Sími 59
PHONE 20-4845 SérfrœOingar ( öllu, sem aO
útförum lýtur
FOR QUICK, RELIABLE SERVICE BRUCE LAXDAL forstjóri
Licensed Embalmer
DR. E. JOHNSON Dr. A. V. JOHNSON
304 Eveline Street SELKIRK, MAN. DENTIST
506 SOMERSET BUILDING
Phones: Office 26 — Res. 230 Telephone 92-7932
Office Hours: 2:30 - 6(00 p.m. Home Telephone 42-3216
Thorvaldson Eggertson Dr. ROBERT BLACK
Bastin & Stringer SérfrœÖingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum.
Barristers and Bolicitori 401 MEDICAL ARTS BLDG.
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Graham and Kennedy St.
Portage og Garry St. Skrifstofuslmi 92-3851
PHONE 92-8291 Heimasími 40-3794
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. Creators of Distinctive Printing
J. H. PAGE, Managing Director Columbia Press Ltd.
Wholesale Distributon of Fremh and
Frozen Fish B95 Sargent Ave., Winnipeg
311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Be(.: 72-3917 PHONE 74-3411
Offlce Phone Res. Phone
92-4762 72-6X15
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Offlce Hours: 4 p.m.—8 p.m.
and by appolntment.
Gundry Pymore Ltd.
British Quality Flsh Netting
58 VICTORIA ST. WINNIPRQ
PHONK 92-8211
Manager T. R. THORVALDSON
Yonr patronage wHl be appreclatod
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook St.
Selur likklstur og annast um flt-
farlr. Allur fltbúnaCur sá. bestl.
StofnaC 1894 Slmi 74-7474
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemlty Pavilion
General Hospltal
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets. Cut Flowers.
Funeral Designs, Corsages,
Beddlng Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
-----------------------------1
PHONB 92-7025
H. J. H. Palmason, C.A.
Chartered Acconntant
505 Confederatlon Life Bulldlnt
WINNIPEG MANITOBA
jfohnny. Jfyan
!SiKL 1076 OOWNING BT. 9HONE 71SIÍ*
WINNIPEG'S FIRST
"MAILORPHONE"
ORDER HOUSE
Watch for Opening
New Showrooms
Kaupið Lögberg
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3581
G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise 8t.’-eet 8iml 92-5227
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykh&far, öruggasta eldsvörn,
og Avalt hereinir. Hitaeiningar-
rðr, n? uppfynding. Sparar eldi-
viB. heldur hita frá a8 rjúka út
meB reykum,—Skriflö, stmlö til
KELLY 8VEINSSON
625 WaU Street Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Slmar: 3-3744 — 3-4431
J. WILFRID SWANSON & CO.
Insnrance in all lts branches.
Real Bstate - Mortgages • Rcntals
210 POWER BUILDINQ
Telephone 937 181 Res. 483 489
LET US SERVE YOU
BULLMORE
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EOGERTSON. Jr.
VAN'S ELECTRIC LTD.
636 Sargent Ave.
Aulhorised Home Appliance
Dealers
General Electric
McClary Oocíric
Moffat
Admiral
Phone 3-4890