Lögberg - 09.04.1953, Page 8

Lögberg - 09.04.1953, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 9. APRÍL, 1953 Úr borg og bygð FOR SALE 4 Room stucco bungalow, glazed verandah and back porch. Well and pump house. Close to school. IV2 lots all fenced and landscaped. Situated on 2nd Ave., Lundar, Man. Price $2500 or best offer for cash. Apply to Mrs. V. Wennberg, iCr The next meeting of the Jon Sigurdson Chapter, IODE will be held at the home of Mrs. G. Gottfred, 168 Elm St., on Friday eve, April lOth, at 8 o’clock. Mrs. A. Blondal will tell of her visit to Iceland last summer. ☆ FRÓNS-fundur Eins og þegar hefir verið getið, efnir Þjóðræknisdeildin Frón til, almenns fundar í G.T.-húsinu, mánudagskvöldið 13. apríl kl. 8. Málefni fundarins að þessu sinni er það, hvort íslendingar hér í borg skuli ráðast í að reisa félagsheimili. Framsöguræðu í þessu máli flytur séra Valdimar J. Eylands. Að ræðu hans lok- inni fara fram frjálsar umræður. Þá hefst skemmtiskráin, sem ennþá hefir þó eigi verið að fullu ráðin, með því, að víðfrægur sjónhverfingamaður leikur listir sínar, og er ekki að efa, að hann muni vekja hlátur íslendinga, ekki síður en annara, sem átt hafa þess kost að sjá til hans. Ennfremur verða fluttar rímur af plötum, sem kveðnar voru á íslandi á Alþingishátíðinni 1930. Jónbjörn Gíslason sýndi Frón þá velvild að lána honum þessar plötur og mun hann flytja fáein formálsorð fyrir þeim, þegar þar að kemur. Vera má, að eitt- hvað fleira verði til skemmtun- ar, þótt ekki verði því slegið hér föstu. Aths. Vegna orðróms, sem gengið hefir á milli fólks þessa dagana, þess efnis, að núverandi ritari deildarinnar, sendi ekki báðum blöðunum fundarboð, vill undir- ritaður taka það fram, að Heims- kringlu var sent fundarboð síð- ustu viku, og er það því ekki hans sök, þótt hún af einhverj- um ástæðum sæi sér ekki fært að birta það. THOR VIKING, ritari Fróns ☆ Rilsljórnarnefnd Árdísar tilkynnir hér með, að alt efni fyrir næsta hefti verður að vera komið í hendur ritstjóra fyrir 1. maí n. k. Þetta eru þeir beðnir að taka til greina, eí hafa í huga að senda seviminningar eða annað til birtingar. Þar sem óskað er eftir að myndir séu birtar skal myndin fylgja rit- gerðinni. Sendist til einhvers meðlima nefndarinnar: Mrs. S. Ólafsson, Box 701, Selkirk, Man. Miss Ingibjörg Bjarnason, 254 Belvidere St. Wpg. Mrs. J. Skúlason, Geysir, P.O., Man. ☆ The Women’s Association First Lutheran Church meet Tuesday April 14th at 2.30 p.m. in the Church parlors. This will be a short business meeting to allow the members to attend the “Tea” being held by The Canad- ian Institute for the blind in The T. EATON Company’s Annex from z to 4.30. Tuesday is Lutheran Churches Day and an opportunity for all to support this very worthy work for the blind. ☆ Dánarfregn Steingrímur Johnson land- námsmaður og um 39 ár bóndi í grennd við Wynyard, Sask., andaðist þann 23. marz ó Crerar sjúkrahúsinu í Winnipegosis, Man. Útför hans fór fram þann 30. marz í Wynyard, Sask. að viðstöddu fjölmenni. Séra Sig urður Ólafsson flutti kveðjumál ásamt presti United kirkjunnar, Rev. D. L. Berry. Þessa merka íslendings mun að nokkru minnst nánar síðar. ☆ Mr. Guðmundur Björnsson frá Árborg dvaldi í borginni í byrjun vikunnar. ☆ Hin ágæta bók, „Sendibréf frá íslenzkum konum“, eftir Finn Sigmundsson, fæst nú í Björns- son’s Book Store að 702 Sargent Ave., og kostar í skrautbandi $4.50. ☆ Gjafír lil „Höfn" Mr. og Mrs. K. Einarsson, Os- land, B.C., $10.00; Mrs. I. Grim- son, Vancouver, B.C., $5.00; Mr. og Mrs. S. Sigbjörnson, Van- couver, B C.; $5.00; Mr. Daníel Johnson, Vancouver, B.C., $10.00; Mrs. Ingibjörg Olson, Manerino, B.C., $200.00; Mrs. D. Mack Stewart, Vancouver, B.C., $6.50; Mr. John Kristjánsson, Mazart, Sask., $50 00; Kvenfélagið „Sól- skin“, Vancouver, B.C., $200.00. Meðtekið með þakklæti, Mrs. Emily Thorson, 3930 Marine Drive', West Vancouver ☆ Þær Miss Kristín Skúlason og Mrs. Hrund Skúlason frá Geysi, voru staddar í borginni á þriðju- daginn. ☆ Grettir L. Johannson ræðis- maður Islands og Danmerkur í Sléttufylkjum Canada fór flug- leiðis í embættiserindum vestur til Edmonton á föstudaginn langa, en bjóst við að koma heim seinnipart yfirstandandi viku ☆ Mr. J. E. Peterson forstjóri Farmers Union Oil Company í Cavalier, North Dakota, var einn þeirra fimm manna úr fjórum norðurríkjurp Bandaríkjanna, er heiðraðir voru nýlega á hluthafa fundi félagsins í St Paul; var honum fengið þaí að gjöf fórk- unnar fagurt úlnliðsúr með við- eigandi áletran. Mr. Peterson (Joe), eins og vinir hans venju- lega nefna hann, nýtur mikilla vinsælda í héraði, enda um alt hinn ábyggilegasti maður og fé- lagslyndur Islendingur. ☆ Hingað kom rétt fyrir páskana Haukur Clausen stúdent, er nám stundar í tannlækningum við háskóla Minnesotaríkis, hinn glæsilegasti maður og skemmt- inn í viðræðum; hann er upp- alinn í Reykjavík; í för með honum var ung, íslenzk kona, Mrs. Livingstone frá Lundar, sem nú á heima í Minneapolis. ☆ Mr. B. J. Lifman frá Árborg var staddur í borginni í byrjun yfirstandandi viku. Á laugardaginn 4. apríl voru gefin saman í hjónaband Mrs. Mabel Thorvaldson McGowan og William Magrange í Sam- bandskirkjunni í Winnipeg; séra Philip M. Pétursson gifti. Svara- menn brúðhjónanna voru írænka brúðarinnar, Miss Margaret Johnson og Mr. Walker. Að athöfninni lokinni fór fram allfjölmenn veizla í Empire Hotel. Mr. Fred Mc- Clellan var veizlustjóri; séra Philip M. Pétursson mælti fyrir minni brúðarinnar, en Miss Evelyn Thorvaldson söng ein- söngva; Mrs. W. Kristjánsson var við hljóðfærið. Brúðurin er dótt- ir Sveins heitins Thorvaldson, M.B.E., Riverton, Man., og fyrri konu hans, Margrétar. Heimili Mr. og Mrs. Magrange verður í Winnipeg. ☆ Nýútkomin Sameining getur þess, að séra Eric Sigmar geri ráð fyrir að fara, ásamt frú sinni, áleiðís til Islands, strax eftir kirkjuþing. Býst hann við að dvelja þar árlangt við nám, og heimsækja ef til vill einnig há skóla á meginlandinu. Háskóli íslands í Reykjavík sér þeim fyrir húsnæði á meðan á dvöl þeirra stendur þar í landi, og veitir prestinum einnig nokkurn námsstyrk. ☆ Séra Skúli Sigurgeirsson, fyrr- um prestur að Gimli, þjónar nú enskumælandi söfnuði í bæ þeim sem Walters heitir í suð-vestur hluta Minnesota ríkis. Söfnuður- inn er ekki mjög stór, (um 200 fermdir meðlimir), en er glað- vakandi í starfi. $6.500.00 er var- ið árlega til starfsins, bæði heima fyrir og í hinu víðtæka trúboðs- starfi kirkjunnar. Sumir s^fnað- armanna leggja fram í safnaðar- sjóð $200.00 árlega, og er tillagið borið fram á hverri helgi í sam- skotaumslögum. Presturinn hef- ir leigulausa íbúð, hið prýðileg- asta hús; föst laun hans eru $3000.00 á ári, auk þess fær hann $300.00 á ári til ferðakostnaðar; einnig fær hann skrifstofukostn- að greiddan og síma. Aðsókn að guðsþjónustunum á hverri helgi samsvarar öllum fermdum með- limum safnaðarins að meðaltali. Sameihingin óskar þeim séra Skúla og frú Sigríði, konu hans, til hamingju með ánægjulegt umhverfi þeirra og blessunar- ríkt starf þar syðra. En betur hefði henni nú samt liðið, ef kirkjufélagið, sem hún hefir þjónað svo lengi, hefði borið gæfu til að njóta starfskrafta þessara góðu hjóna. —Sameiningin ☆ Miss Jórunn Magnússon systir Magnússons bræðranna á Hnaus- um lagði af stað flugleiðis til Evrópu á föstudaginn í fyrri viku í tveggja mánaða ferðalag. Hún mun fyrst fara á fund Mr. og Mrs. Cecil Feeney, er eiga heima nálægt Amsterdam, en Mrs. Feeney er dóttir S. Sig- mundssonar að Hnausum; þær eru frænkur. Mun Miss Magnús- íslenzku handritin geymd í ruslastíu, sem brunnið getur hvenær sem er Kaupmannahöfn, 9. febr. — Síðastliðinn laugardag var haldinn hér fundur í danska stúdentafélaginu og var um- ræðuefnið: Á að skila íslend- ingum hinum fornnorrænu handrilum? eins og það var orðað. Fyrstur tók til máls prófessor Hjelmslev og var hann algerlega andvígur afhendingu handrit- anna. — Sagði hann, að málið, sem höfundar handritanna hefðu skrifað á, væri ekki íslenzka heldur „fornnorræna“! er væri málýzka, sem þróazt hefði af frumnorrænu. Kvað hann hand- ritin einnig samnorræna eign og sagði, að Islendingar ættu enga heimtingu á þeim. Skoraði hann að lokum á Islendinga að falla frá handritakröfum sínum. Ekki í neinum vafa Næstur tók til máls A. Bruun utanríkisráðherra og kvaðst ekki vera í neinum vafa um eignar- rétt yfir handritunum. Hann sagði, að þau hefðu ver ið dönskum almenningi gersam lega ókunn, þangað til fyrir skömmu og væru mjög lítils virði í augum flestra Dana, en væru hins vegar dýrmætasti fjársjóður íslands og hefðu þau stuðlað mjög að varðveizlu ís lenzkrar tungu og sjálfstæði þjóðarinnar. — Island er frum vörður norrænnar menningar sagði A. Bruun utanríkisráð herra, og við megum ekki hrinda þjóðinni frá hinum Norð urlöndunum. Við gætum ekki varið þá framkomu okkar að halda í hin íslenzku handrit sem væru þau okkar eign,. heldur verðum við að láta íslendinga ná rétti sínum í þessu máli. Prof. Bröndum Nielsen sagði að allar rannsóknir á handritun um mundu stöðvast, ef þeim yrði skilað íslendingum, auk þess væri þá ekki hægt að vinna á fram að hinni fornnorrænu orða bók. Alsing Andersen, fyrrum ráð herra, varði málstað íslendinga og svaraði hinum furðulegu DREWRYS M.D.334 son ferðast í bíl með þeim hjónum um Vestur-Evrópu. — Hún hefir einnig í hyggju að heimsækja ísland. ☆ Mr. Peter Anderson kornkaup maður kom heim á þriðjudaginn ásamt frú sinni eftir nokkurra mánaða dvöl í Miami, Florida. Mr. Anderson leit sem snöggvast inn á skrifstofu Lögbergs og minnti útlit hans á táp og fjör og fríska menn. ☆ Dr. P. H. T. Thorlaksön kom heim á laugardaginn fyrir páska ásamt frú sinni og sonardóttur eftir tveggja mánaða burtveru; dvöldu hjónin lengst af í Florida, en svo brá Dr. Thorlakson sér til London, en þar dvelja við framhaldsnám í læknisfræði tveir synir læknishjónanna. Dr. Thorlakson kom sem snöggvast við á Keflavíkurflugvelli á leið vestur, en Mrs. Thorlakson kom til fundar við mann sinn í New York þann 1. þ. m., en hún hafði dvalið í Florida fram að þeim tíma. Margrét Compelien Þann 12. febrúar s.l. andaðist í Vesturheimsbyggð nálægt Min neota, Minn., Margrét Compelien 65 ára gömul. Hún var yngsta dóttir Mr. og Mrs. S. S. Hofteig. er voru frumherjar þar í byggð- inni. Margrét var fædd þar í byggð 15. jan. 1888. Hún var gift norskum manni, áttu þau 10 börn og eru 9 þeirra á lífi. Margrét var hneigð fyrir söng og hljómlist. Stundaði hún nám í þeirri grein við mentaskólann í St. Peter, Minn., um skeið. Börn, hennar voru einnig sönghneigð og voru sumar dætur hennar í hinum nafnkunna St. Olaf söng' flokk og fóru víða með honum. Margrét hafði lengi eigi gengið heil til skógar, en hún barðist sem hetja gegn óvini lífsins; var ætíð lífsglöð og bjartsýn. Átti ég með henni inndæla kvöld- stund 24. nóv. s.l., er ég var á ferð þar syðra, og þrátt fyrir heilsubilun og óefað vissu um hvert stefndi, var hún lífsglöð og hrókur alls fagnaðar. Farðu vel, frænka. Guð blessi minningu þína og láti ljós sitt lýsa þér í landi lífsins. G. J. Oleson. staðhæfingum próf. Hjemslevs. Sagði hann m. a., að handritin væru skrifuð á íslandi af Islend- ingum og væru bókmennta- skerfur þeirra og innlegg í nor- ræna menningu. Sagði hann Dani ekki hafa siðferðilegan réit iil að vísa handriiakröfum ís- lendinga á bug. Að lokum tók Jón Helgason próf. til máls og sagði, að ýmsir hefðu fullyrt, að íslenzku hand- ritin væru Dönum eins mikils virði og þjóðminjasafnið, lista- safnið og höggmyndasafnið til samans. Benti hann á það, að þau væru öll í glæsilegum húsa- kynnum, þar sem Árnasafn væri hins vegar í hinni mestu rusla- stíu, er brunnið gæti á svip- stundu. Auk þess vantaði safnið tilfinnanlega peninga til teksta- útgáfu og flyti nú á fjárfram- lögum frá íslandi. Mætti bezt sjá hug Dana til safnsins með því að líta lítillega á þessar stað- reyndir. —Páll —Mbl., 10 marz MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Mr. Barney Eggertson kaup- maður að Vogar, Man., var stadd- ur í borginni í fyrri viku ásamt frú sinni og syni. ☆ Capt. Gordon Ingaldson, a former commander of the Min- nedosa squadron on the 12th Manitoba Dragoons, has been appointed chief instructor of the recently-formed General Hugh Dyer Royal Canadian army cadet corps here. Capt. Ingaldson is the son of Mrs. Violet Ingaldson an the late Ingimar Ingaldson. Skotinn Sandy gekk með vin- konu sinni niður Broadway. Þau gengu fram hjá veitingahúsi, þar sem verið var að steikja kalkún- hana í glugganum. Þau námu staðar og horfðu á. Allt í einu sagði stúlkan: — Veiztu það, Sandy, að í hvert skipti, sem ég'sé kalkún- hana, þá fæ ég svo mikið vatn í munninn. — Veiztu það, sagði Sandy, — þú skalt bara skirpa, því það sér enginn til þín! Séra Valdimar J. Eylanda Heimili 686 Banmng Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 12. apríl: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi. Islenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson ☆ — Gimli preslakall — H. S. Sigmar, prestur Sunnudaginn, 12. apríl: Betel, kl. 9 f.h. Gimli, kl. 11 f. h. Husavick, kl. 2 e. h. Gimli, kl. 7 e. h. Árnes, kl. 8.30 e. h. Lesið Lögberg Sumarmálasamkoma verður haldin í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU fimtudaginn 23. apríl, kl. 8 e. h. af Kvenfélagi safnaðarins Séra V. J. Eylands SKEMMTISKRÁ O, CANADA ÁVARP FORSETA.....,....... SÖNGFLOKKUR, 35 kvenraddir Undir stjórn KERR WILSON EINLEIKUR Á PÍANÓ .............Sigrid Bardal SAMTAL, fimm stúlkur EINSÖNGUR ..................... Kerr Wilson RÆÐA ......................W. J. Lindal dómari EINLEIKUR Á PIANÓ .............Sigrid Bardal SÖNGFLOKKURINN Samskot ELDGAMLA ISAFOLD — GOD SAVE THE QUEEN Ókeypis veitingar í neðri sal kirkjunnar Sunrlse Lutheran Camp Prepares for Summer The Camp Committee of the Lutheran Womens League is now preparing the program for its 8th Camping Season. The Activities will Include . . . HANDICRAFTS - GAMES - SPORTS - SWIMMING STUDY and INSTRUCTION PERIODS UNDER TRAINED DIRECTORS AND LEADERS And the Benefits ... v as all, who have been there before, well know FUN AND FELLOWSHIP ABUNDANCE OF FRESH AIR WITH LAKE BREEZES AND THE MOST NOURISHING MEALS While the jollowing is a tentative schedule, printed folders with application jorms and registering instruction will soon he available and distributed through your church organiza- tion or mailed to those interested. Summer Schedule, 1953 July 2 to July 10 - Leadership Training Boys and Girls 14 and over. July 11 to July 19 - Intermediate boys 10 to 13 years. July 20 to July 28 - Junior boys 6 to 9 years. July 29 to Aug. 4 - Open House for Adults. Aug. 4 to Aug. 12 - Intermediate girls 10 to 13 years. Aug. 12 to Aug. 20 - Junior girls 6 to 9 years. This schedule is subject to change, if necessary. WATCH FOR FURTHER ANNOUNCEMENT Those prepared to ojfer their services in any capacity, please write or phone the undersigned. MRS. S. OLAFSSON CaUip Director Box 701, Selkirk, Man. Phone 67 MRS. H. G. HENRICKSON Secretary 208 Lenore St. Winnipeg, Man. Phone 3-9440

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.