Lögberg - 28.05.1953, Síða 1
66 ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, '28. MAÍ, 1953
Phone 72-0471
BARNEY S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - OU - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
NÚMER 22
Canada hyllir Elizabethu drottningu í tilefni af krýningu hennar
Úr nógu að velja
í Winnipeg Centre kjördæm-
inu er um þrettán frambjóð-
endur að velja við fylkiskosn-
ingarnar, sem fara fram þann 8.
júní næstkomandi. Liberal-
flokkurinn hefir þrjá í kjöri,
Jack St. John bæjarfulltrúa,
Mrs. Nan Murphy, sem sæti á í
skólanefnd, og David Graham
heilbrigðisfulltrúa; það er á valdi
kjósenda, að tryggja þeim öllum
kosningu fylki þeir einhuga um
þá liði, sem naumast er ástæða
til að efast um.
Hennar Hálign Elizabeth drottning og maður hennar hertoginn af Edinburgh
Ræðuhöld dr. Becks
Samkvæmt frásögn í norsk-
ameríska vikublaðinu „Nor-
manden“ í Fargo, N. Dakota,
hefir dr. Richard Beck ekki setið
auðum höndum undanfarið.
Segir blaðið fyrst frá ræðum
þeim, er hann flutti þ. 1. maí í
Lincoln, Nebraska, og þegar
hefir verið getið hér í blaðinu,
en þvínæsta lýsir blaðið ræðu-
höldum hans á þessa leið:
Mánudaginn þ. 4. maí flutti
hann að sérstökum tilmælum
tvo fyrirlestra um norska sagna-
skáldið O. E. Rölvaag og skáld-
sögur hans um norsk-amerískt
landnemalíf fyrir stórum hópum
stúdenta í enskudeild ríþishá-
skólans í N. Dakota; en föstu-
daginn í sömu viku flutti hann
aðalræðuna á samkomu, er
norska þjóðræknisdeildin í
Grand Forks efndi til í minningu
um látið félagsfólk, og ræddi
hann þar um manndómshugsjón
norrænna manna.
Þá flutti dr. Beck þrjár ræður
í tilefni af þjóðhátíðardegi Norð-
manna. Þann 15. maí var hann
aðalræðumaður á fjölmennri
samkomu þeirra í Simcoe, N.
Dakota, og hafði þar að umræðu-
efni: „Hugsjónaarfleifð nor-
rænna manna“; um sama efni
útvarpaði hann á sjálfan þjóð-
hátíðardaginn, þ. 17. maí, ræðu
frá útvarpsstöð ríkisháskólans í
N. Dakota, og þ. 19. maí hafði
hann með höndum samkomu-
stjórn á þjóðhátíðarsamkomu
Norðmanna í Grand Forks og
flutti þar ávarp um sögulega
þýðingu dagsins og frelsisást
norrænna manna.
Fréttir fró ríkisútvarpi islands
17. MAÍ
Liberalar sigra í
Nova Scotia
Síðastliðinn þriðjudag fóru
fram fylkiskosningar í Nova
Scotia og lauk þeim á þann veg,
að Liberalar gegnu sigrandi af
hólmi; fékk flokkur þeirra 22
þingsæti af 37, íhaldsmenn 13 og
C.C.F. 2. Liberalar hafa farið
með völd í fylki þessu í tvo
áratugi.
Að undanförnu hefir verið
heldur kalt í veðri hérlendis,
norðaustanátt síðustu dagana og
í fyrrinótt næturfrost sums stað-
ar norðaustanlands og snjó-
koma sums staðar. Bjart hefir
verið sunnanlands en golan
köld.
☆
Ríkisstjórn íslands hefir til-
kynnt stjórnarvöldum Banda-
ríkjanna að hún telji ekki leng-
ur þörf á þeirri efnahagsaðstoð,
sem Islendingar hafa notið síð-
ustu fimm árin. Björn Ólafsson
viðskiptamálaráðherra skýrði
frá þessari ákvörðun í útvarpinu
í gærkveldi og færði til tvær
höfuðástæður. Önnur er sú, að
Bandaríkjastjórn hefir nú veitt
nægilegt fjármagn til þess að
ljúka við stórframkvæmdirnar
þrjár, virkjanir Sogs og Laxár
og byggingu áburðarverksmiðj-
unnar. Hin ástæðan er sú, að
dollaratekjur landsins af út-
flutningi og öðrum viðskiptum
hafa aukizt svo síðustu tvö árin,
að þær geta staðið undir inn-
flutningi okkar frá Ameríku og
öðrum dollaragreiðslum. Ráð-
herrann sagði, að Islendingar
myndu lengi minnast Marshall-
aðstoðarinnar fyrir það, að hún
hefði gert þeim kleyft að byggja
þrjú stórfyrirtæki, sem samtals
kosta 373 miljónir króna og
verða um langan aldur ómetan-
leg stoð íslenzkum þjóðarbú-
skap. Marshall-aðstoðin til Is-
lands hefir alls numið 38,500,000
dollurum eða 630 miljónum
króna með núverandi gengi. Af
þessu eru 29,850,000 dollarar
gjöf, 2,3 miljónir dollara lán og
3,5 miljónir dollara skilorðis-
bundið framlag. Hér eru ekki
meðtaldar fjárveitingar til tækni
legrar aðstoðar, en gert er ráð
fyrir að þær haldi áfram, þótt
önnur efnahagsleg aðstoð hætti.
í þessum mánuði var veitt síð-
asta framlagið 4,250,000 dollarar
í gegnum Greiðslubandaiag
Evrópu, sem gerir kleift að taka
úr mótviðrissjóði það fé, sem
stórframkvæmdirnar skorti til
greiðslu á innanlandskostnaði.
Ráðherrann þakkaði að lokum
fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar
þá vináttu og hið mikla örlæti,
sem stjórnarvöld Bandaríkjanna
og öll bandaríska þjóðin hefir
sýnt íslendingum með því að
veita þeim þennan ómetanlega
stuðning. — . Ráðherrann sagði
að-lokum: Þótt nú sé endir bund-
inn á efnahagsaðstoðina og
hennar sé ekki lengur þörf, er
því meiri þörf fyrir gagnkvæma
efnahagssamvinnu, sem miðar
að því að auðvelda viðskiptin
milli landanna. — Ég hef þá trú,
að þau vandamál framtíðarinnar
verði leyst í samvinnu við Banda
ríkin í þeim anda velvildar og
víðsýnis, sem einkennt hefir
Marshall-aðstoðina.
í tilefni þess, að efnahagsað-
stoðinni er nú lokið kvaddi ríkis-
stjórnin sendiherra Bandaríkj-
Framhald á bls. 8
Fellibylur veldur
geisitjóni
í lok fyrri viku skall fellibylur
yfir bæinn Sarnia í Ontario-
fylkinu, er kom hart niður á
þessum fallega verksmiðjubæ.
Fimm manns týndu lífi í þessu
einsdæma fárviðri, en eignatjón
er metið á fjórðu miljón dollara;
mælt er að bæjarstjórnin hafi
ákveðið að leita til sambands-
stjórnar um fjárstuðning.
Jack St. John hefir fimm
sinnum verið kosinn í bæjar-
stjórn í 2. kjördeild og jafnan
hlotið mest atkvæðamagn þeirra,
er í kjöri voru í það og það
skiptið; hann er maður hag-
sýnn, sem rasar eigi fyrir ráð
fram og hann er efni í ágætan
ráðherra, en einmitt slíka menn
þarf Winnipegborg að eiga á
þingi.
Jack St. John á að vera kos-
inn og þarf að vera kosinn á
þing vegna framfaramála borg-
arinnar og þess vegna ber öllum
LiberÖlum í kjördæminu að
greiða honum forgangsatkvæði.
Nan Murphy er áhugasöm
kona um mannfélagsmál og
hefir getið sér góðan orðstír í
skólanefnd og myndi vafalaust
sóma sér vel á þingi.
David Graham heilbrigðisfull-
trúi hefir gegnt mörgum trúnað-
arstörfum innan vébanda Liberal
flokksins og er maður, sem
ógjarna lætur sinn hlut; hann er
maður óhvikull í skoðunum og
býr yfir ríkum framsóknarhug.
^ í áminstu kjördæmi leita tveir
íslendingar kosningar á fylkis-
þing, þeir Gísli S. Borgford af
hálfu C.C.F.-sinna og Emil
Johnson fyrir hönd Social
Credit fylkingarinnar.
Leitar kosningar
til þings
Joseph Stepnuk leitar kosn-
ingar til fylkisþings í Winnipeg
Centre kjördæminu undir merkj-
um Progressive Conservative
flokksins. Mr. Stepnuk hefir
setið átta ár í bæjarstjórninni í
Winnipeg og er því gagnkunn-
ugur hag bæjarbúa; hann er
málafylgjumaður mikill, sem
ekki lætur sér alt fyrir brjósti
brenna.
Mr. Stepnuk er fæddur í Win-
nipeg 1898. Hann tók þátt í fyrri
heimsstyrjöldinni og er með-
limur í fjölda mikilvægra fé-
laga í þessari borg; þetta er í
fyrsta skiptið, sem hann býður
sig fram til þingmensku.
W. L. Palk
H. E. Sellers
Þessir tveir menn hafa með höndum forustu um 8 miljón dollara
fjársöfnun til viðbygginga við Almenna sjúkrahúsið hér í borg og
barnaspítalann; hér er um slíkt velferðarmál að ræða, að allir
verða að leggjast á eitt um framkvæmd þess.
Frú Aðalbjörg Brandson — Séra Sigurður Ólafsson
Á föstudaginn 8. maí heimsóttu þeir séra Valdimar J.
Eylands, forseti Kirkjufélagsins, og séra Sigurður Ólafs-
son, formaður Betelnefndar, Mrs. B. J. Brandson að heimili
dóttur hennar, Mrs. Stewart Chevrier, 156 River Oaks
Drive hér í borginni, og afhentu henni skrautritað þakkar-
ávarp*frá kirkjufélaginu og Betelnefnd; var skjalið undir-
ritað af framkvæmdarnefnd kirkjufélagsins og stjórnar-
nefnd Betel. Ávarpið er á þessa leið:
„Frú Aðalbjörg Brandson:
Með skírteini þessu viljum vér votta yður virðingu vora
og innilegar þakkir fyrir frábært starf yðar í þágu Elli-
heimilisins Betel á Gimli, sem forstöðukona stjórnar-
nefndar þess, og fyrir margra ára kærleiksþjónustu sem
þér veittuð málstað Heimilisins við hlið manns yðar,
dr. B. J. Brandsonar, M.D., LL.D.
Guð blessi yður, og gefi að fagurt fordæmi ykkar hjóna
megi verða þeim sem nú og síðar vinna að heill Heimilisins
hvöt til eftirbreytni."
Myndin hér að ofan var tekin, er séra Sigurður afhenti
Mrs. Brandson skjalið.
Kærkominn menntamaður
Á fimtudaginn í fyrri viku
kom hingað til borgar Helgi
Elíasson fræðslumálastjóri Is-
lands, en hann hafði eins og
kunnugt er dvalið í Bandaríkj-
unum síðan í byrjun febrúar-
mánaðar sem gestur utanríkis-
ráðuneytisins.
Helgi er fæddur 18. marz 1904
í Hörgsdal á Síðu í Vestur-
Skaftafellssýslu; foreldrar: Elías
yfirkennari við Miðbæjarskól-
ann í Reykjavík og Pálína Elías-
dóttir frá Syðri-Steinsmýri í
Meðallandi. Helgi lauk kennara-
prófi 1935, en stundaði síðan
framhaldsnám við kennaraskóla
íslenzkt námsfólk
brautskróð fró
Manitobahóskóla
Auk þeirra 20 nemenda, er
luku prófi við Manitobaháskóla
í vor og sagt var frá í síðasta
Lögbergi; hefir blaðinu borizt
nöfn þessara:
Bachelor of Laws:
Harold Alexander Huppe —
Honors. Islenzkur í móðurætt,
dóttursonur Ágústar Vopna.
Docior of Medicine:
Raymond Johnson, B.A.
(Sask.) — Honors.
Bachelor of Science in
Engineering (Civil):
John Edward Spring.
Bachelor of Science (Pharmacy):
Eyfi Oliver Walterson.
Bachelor of Science
(Home Economics):
Ruth Lillian Johnson
Claire Louise Vopni.
Helgi Elíasson fræðslumálasijóri
á Jótlandi auk tveggja missera
náms við háskólann í Hamborg.
Hann gaf sig um hríð við
kenslustörfum í Reykjavík, var
settur fræðslumálastjóri um
nokkurt skei^, en var skipaður í
það embætti 1944.
Helgi á sæti í stjórn Blindra-
vinafélags íslands, vann að út-
gáfu landkortabókar fyrir barna-
og unglingaskóla og Ríkisútgáfu
námsbóka; hann er kvæntur
Hólmfríði Davíðsdóttur kaup-
manns Kristjánssonar í Reykja-
vík.
Viðdvöl Helga hér í borg varð
styttri en almenningur hefði
kosið því hann hvarf héðan á
sunnudaginn; á laugardags-
kvöldið gekst, framkvæmdar-
nefnd Þjóðræknisfélagsins fyrir
samkomu í Fyrstu lútersku
kirkju þar sem Helgi flutti harla
fróðlegt erindi um þróun fræðslu
málanna á Islandi síðan 1907,
auk þess sem hann sýndi margt
fagurra mynda af íslandi. Dr.
Valdimar J. Eylands stýrði sam-
komunni, en prófessor Finnbogi
Guðmundsson kynti hinn góða
gest.
Að loknu erindi fræðslumála-
stjóra var samkomugestum boðið
upp á kaffi.