Lögberg - 28.05.1953, Blaðsíða 3

Lögberg - 28.05.1953, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. MAÍ, 1953 3 Sólarhrings æfintýri (.Eftir LAURENS LEE) Sig. Júfl. Jóhannesson þýddi Hún var gullfalleg og hrífandi: ólík öllum öðrum stúlkum, sem hann hafði nokkru sinni séð í litla þorpinu sínu. Hvernig gat hann farið fram á það, að hún staðnæmdist og settist að á þessum ógeðslega og afskekta stað? Ókunnugt fólk: einn karl- maður og tvær konur, höfðu komið inn í litlu timburstöðina við jaðarinn á baðmullar akrin- um á afskektum stað, úti á landi í Alabama. Þetta fólk var ófeimið, og mað- urinn talaði djarflega við stöðv- arstjórann og ungan mann, sem með honum var. Ef vel var aðgætt sást það glögt að þetta var sama fólkið, sem myndirnar voru af á gulu gömlu auglýsingunni, sem hang- ið hafði síðan í sumar úti á auða vöruhúsinu, sem nú hafði verið breytt í hreyfimyndahús og var nú kallað Leikhúsið. Stöðvarstjórinn og ungi mað- urinn sáu það glögt, að köflóttu fötin foringjans, sem var stór og sterklegur, voru öll hrukkótt og bæld; og andlitið, sem var rauð- leitt og þrútið, þurfti þess með að vera rakað. En fötin á kon- unni og dóttur þeirra virtust vera í góðu lagi. Unga stúlkan var sérstaklega vel tilhöfð. Hárið var svart; það var greitt upp á höfuðið, og leit því út eins og tagl á tryppi; því var haldið þannig með stuttum grænum borða, sem var eins litur og baðmullarfötin hennar og skórn- ir. Hún var eins hress og hrein eins og nývökvað blómakerfi. Hún var dökkeygð og horfði beint framan í unga manninn. Andlitið var sporöskju myndað, og lýsti því með einkennilegum bjarma, að henni féll ungi mað- urinn vel í geð: Hún lét það í ljós með einlægu þögulu sak- leysi. Ungi maðurinn hefði ó- mögulega getað annað en horft stöðugt á hana, ef faðir hennar hefði ekki verið svo óþægilega hávær. Leikstjórinn lyfti skyndilega hrukkóttum og margteygðum stráhattinum með alls konar fettum og • brettum framan í mennina við gluggann og talaði svo hátt, áð það hvein í litlu j árnbrautarstöðinni: „Þér-fyrirgefið, herrar mínir!“ sagði hann: „þó ég ónáði ykkur. En af því við erum ókunnug hérna, þá-------- Stöðvarstjórinn brosti út undir eyru, þar sem hann stóð fyrir innan gluggagrindurnar; hann færði grænu ljóshlífina hærra upp á höfuðið hálfsköllótt og gráhært: „Þið eruð Ducamps flokkur- inn, er ekki svo? Þið ætlið að vera í Leikhúsinu hjá okkur í kvöld, eða er ekki svo?“ „En hvað þér eruð athugulir!“ sagði leikstjórinn: „Það sem mig langar nú til að spyrja yður, með leyfi, er--------“ Nú kom konan upp að glugg- anum og sagði afsökunarlaust: „Getum við fengið leigðan bíl?“ Bæði stöðvarstjórinn og ungi maðurinn sáu það, að daufbláu augun í þessu höfði voru ekki eins falleg og þau sýndust þegar konan stóð dálítið fjær. Og mikla gula hárið hafði auðsjáanlega verið gerð tilraun til þess að bæta eftir að það kom frá höf- undi náttúrunnar. Það lýsti sér bæði í málrómi og öllum hreyf- ingum, að konan var þreytt og lúin. „Hér er einungis einn leigu- bíll, frú mín góð,“ sagði stöðvar- stjórinn: „Og hann fór með Mr. Curtis skömmu áður en þið komuð.“ Allir steinþögðu stundarkorn. Nú heyrðist járnbrautarlestin koma hægt og letilega eftir næstu bugðunni fyrir utan þorp- ið. Lestin blés dauft og áhuga- laust. Hún var ekki löng; auk vélarinnar sjálfrar var það að- eins einn flutningsvagn og tóm- ur farþegavagn. Lestin var sótug og óhrein. Þorpið var kyrlátt og þögult: sást tæplega mannvera á gangi og heyrðist varla orð af munni. Sólarhitinn var steikjandi á ber- svæðinu. Leikforinginn tók aftur til máls og sagði: „Er Verbena hótelið langt héðan?“ Ungi maðurinn stóð við glugg- ann; skyrtan hans var eins hrein og andlitið á honum og fór eins vel og hárið á höfðinu á honum, sem var vel og nákvæmlega greitt. Hann studdist fram á oln-' bogana ástfanginn og vandræða- legur. Andlitið var örlítið frekn- ótt, fremur stórskorið en svip- fallegt. Andlitið á stúlkunni, sem hann starði á sýndist honum vera eins og andlit á einhverri stúlku, sem hann hafði altaf þráð að kynnast. Sjálfur roðnaði hann um leið og hann reis upp úr þessum hjákátlegu stelling- um, sem hann ekki hafði tekið eftir fyr, og svaraði leikforingj- anum á þessa leið: „Nei, það er alls ekki langt. Næsta gata er Depot stræti, og svo eru tvö stræti eftir Eufala götu.“ „Það er ágætt!“ sagði leikfor- inginrí: „Það er svo sem ekki langur gangur, og það í þessu indæla veðri.“ Konan hafði steinþegjandi tekið upp bláa pokann sinn. Ungi maðurinn tók hann af henni. Svo lyfti hann líka upp rauðgráa pokanum, sem var hjá stúlkunni. Sá poki var nýlegri en poki gömlu konunnar: „Með þínu leyfi,“ sagði hann: „skal ég vísa þér til vegar að GISLI S. BORGFORD FRAMBJÓÐANDI VERKALÝÐSSAMTAKANNA í WINNIPEG CENTRE Gísli er sonur hinna merku hjóna Þor- steins Borgfjörð byggingameistara og frúar hans, en Þorsteinn fluttist hingað til lands árið 1886 og tók jafnan mikinn þátt í opin- berum mannfélagsmálum og slíkt hið sama gerði einnig frú Borgfjörð. Gísh hlaut mentun sína í skólum Win- nipegborgar, en hugur hans beindist snemma að því, að beita sér fyrir bættum kjörum verkamanna og nú hefir hann í all- mörg ár verið forstjóri, Regional Director of the Canadian Congress of Labour. Hann er maður fylginn sér og vel máli farinn. Greiðið atkvæði með almennmgsöryggi Styðjið C.C.F.-frambjóðendur yðar! MERKIÐ KJÖRSEÐILINN ÞANNIG HINN 8. JÚNÍ BORGFORD, Gisli S. 1 Published by Authority of Winnipeg Labour Council—Political Action Committee hótelinu. Ég vinn örskamt frá því.1' Bláeygða, þreytulega konan leit beint framan í hann með þegjandi samþykki. Hún tók eftir því, að hann hafði ekki beðið eftir samþykki hennar. Hún tók líka eftir því að hann horfði nú ánægjulega beint framan í dóttur hennar. Stúlkan leit út fyrir að vera svo sem einu ári yngri eða eldri en hann — í kring um 17 ára. Leikstjórinn hélt áfram að tala við stöðvarstjórann: „Og hvenær er hægt að fá járnbrautarlest héðan til . . . . Hvert förum við næst, Helen mín?“ Konan svaraði í þeim mál- rómi eins og það gerði hvorki til né frá hvað hún væri kölluð þessi óþekta flugnastöð, sem þau heimsæktu næst: „Það eru ekki nema tvær lestir héðan á dag, Mr. Ducamp: sú sem þið komuð á hingað og önnur klukkan 8.45 að kveldinu.“ „Við getum þá ekki komist héðan fyr en á morgun. Viljið þér sjá um að við fáum sæti handa þremur í fyrramálið?“ „Það verður nóg rúm, Mr. Ducamp.“ Leikforinginn fór af stað á undan konunni sinni og lauk upp stöðvardyrunum upp á gátt, til þess að hún ætti hægt með að komast út. Stöðvarstjórinn sá Arthur Thomas, þar sem hann gekk í skugga trjánna á Depot stræti. Hann hafði steingleymt reikn- ingnum fyrir eldhússtólana hans föður síns; en það gerði nú svo sem ekkert til. Unga leikkonan gekk við hlið hans. Hún talaði stöðugt og horfði framan í hann. Hvorugt þeirra virtist taka eftir því, að þau héldu bæði á far- angri, sem gerði það að verkum að þau gátu ekki gengið alveg saman. Foreldrar stúlkunnar komu á eftir þeim: faðir hennar viðhafn- arlegur, alveg eins og hann væri að leika frammi fyrir flokki á- horfenda. Móðir hennar tilgerð- arlaus og blátt áfram. Á andliti hennar sást aðeins bregða fyrir svip, sem túlkaði einhverja þrá eða löngun þegar hún sá ný- slegnu grasblettina og timbur- húsin í reglulegum röðum með- fram götunum í litla sveita- þorpinu, þar sem þau voru nú stödd. Leikstjórinn leit sem allra snöggvast framan í konuna sína. Og, hvernig sem á því stóð, var það auðséð að talsvert dofnaði yfir honum. Þau sneru bæði sam- tímis inn á Eufula stræti, án þess að ráðgast nokkuð hvort við annað. Þar gátu þau séð hótelið. Það var lág bygging úr ösku- litum tígulsteini, og þakið úr rauðmáluðum tinplötum, sem dró til sín steikjandi sólarhitann. Rimla vantaði hér og þar í ómál- aðar grindurnar umhverfis pall- inn, sem náði alveg út að stétt- inni, en sjálf stéttin var úr ósléttu sementi. A pallinum sást engin mann- vera. En það var eins og tóm- leikinn sæti þar í gömlum ruggu- stólum, með gatslitnum strá- botnum, sem höfðu verið bættir af einhverjum, sem ekki kunni. Þessir auðu stólar biðu eftir söfnuði ferðakaupamanna, sem altaf kom inn í þorpið um kveld- verðartímann: „Þetta er nú víst Verbena hótelið," sagði leikstjórinn, og það var eitthvert afllaust háð í röddinni. „Verra gat það verið,“ sagði konan: „Við höfum öll einhvern tíma sofið og hvílst í lélegra húsi en þessu.“ „Manstu eftir sumrinu, sem við lékum í Baltimore?“ sagði for- inginn. Og það var alls enginn ánægjublær í röddinni. Hann talaði við konuna eins og hér væri um eitthvað leðinlegt að ræða, sem fyrir þau hefði komið. „Ég man eftir öllum sumrun- um,“ sagði hún: „og öllum vetr Framhald á bls. 7 Business and Professional Cards Offlce Phone 92-4762 Res. Phone 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MXDICAL ARTS BUILDINC, Offlce Houra: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment. Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLJNIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVKNUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ct- vega peningalán og eldsábyrgC, bifreiöaábyrgS o. s. frv. Phone 92-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 TOR QUICK, RELIABLE SERVICE DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MAN. Phones: Office 26 — Res. 230 Offíce Hours: 2:30 - 6:00 p.m. Thorvaldson Eggertson Baslin 81 Stringer Barristers and Soticitors 200 BANK OF NOVA SCOTLA BG. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 A. S. BARDAL LTD. FDNERAL HOME 84 3 Sherbrook St. Selur likklstur og ann&st um út- farlr. Allur útbúnaBur sá besU. Stofnað 1894 Slml 74-7474 Nell Johnson CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Dlstrlbutors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Res.: 72-2917 Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Matemity PavUlon General Hospttal Nell's Flower Shop Weddlng Bouqueta. Cut Flowers. runeral Designs. Corsages. Beddlng Plants Rea. Phone 74-6753 ^ jfohnny. JZyan jUir7 908Sargen^Ave^Ph^-1365 WINNIPEC'S riRST "MAILORPHONE" ORDER HOUSE Write for our Spring and Summer Catalogue LesiS Lögberg SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldavörn, og ávalt hereinlr. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viB, heldur hlta frá aC rjúka flt meö reykum.—-Skriflö, almlö tll KKLLT 8VETNSSON (25 Wall Street Wlnnlpeg Just North of Portage Ave. Slmar: 3-3744 — 3-4431 J. WILFRED SWANSON & CO. Insnrmnce in all Ita br&nches. Real Bstate • Mortgages • Bentals 21* POWKR BUILDINO Telephoae 837 181 LKT US SERVX YOU S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. : RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg PHONE 92-4624 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Ashphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. Dr. A. V. JOHNSON DENTIST 506 SOMERSET BUILDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216 Dr. ROBERT BLACK SérfrœÖingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Grahara and Kennedy St. Skrifstofusimi 92-3851 Heimaslmi 40-3794 Creators of Distinetive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargenl Ave., Winnipeg PHONE 74-3411 Aristocrai Stainless Sleel Cookware For free home demonstrations without obligation, write phone or call 302-348 Main Street, Winnipeg Phone 92-4665 “The King of the Cookware” Gundry Pymore Ltd. British Quallty Fish Nettlng 58 VICTORIA 8T. WINNIPKG PHONK 92-8211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wlll be appredatad Minnist EETEL í erfðaskrám yðar. Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANITOBA Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicilors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Krlstjanason 5M Canadlan Bank of Commerce Chambert Wlnnlpeg, Man. Phone 92-25«] G. F. Jonasson, Pres. St Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributora of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Simi 92-6227 BULLMORE FUNERAL HOME Dauphin. Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. VAN'S ELECTRIC LTD. 636 Sargent Ave. Aulhorized Home AppUanee Dealert General Electric McClary Electric Moffat Admiral Phone 3-4880

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.