Lögberg - 02.07.1953, Síða 8

Lögberg - 02.07.1953, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 2. JÚLÍ, 1953 Úr borg og bygð — BRÚÐKAUP — Margrét Avis Valgardson og Frederick Dale Clark voru gefin saman í hjónaband í Zion United kirkjunni í Moose Jaw, Sask., á föstudagskveldið 19. júní s.l. Rev. Francis Stevens gifti. Brúðurin er yngri dóttir Mr. og Mrs. V. Valgardson, Moose Jaw, en brúðguminn er yngsti sonur Mr. og Mrs. John E. Clarke, Briercrest, Sask. — Svaramenn brúðhjónanna. voru systir brúðarinnar, Mrs. S. R. Walter og bróðir brúðgumans, James E. Clarke, en Sandra litla Walter var blómamey. Mrs. C. W. Weddige söng brúðkaups- söngvana, við hljóðfærið var oreglleikari kirkjunnar Mr. Robert Pounder. Bróðir brúðar- inpar, Norman Valgardson og William Webster leiddu gestina til sætis. Að lokinni hjónavígslunni fór fram fjölmenn og vegleg veizla í Grant Hall hótelinu. Fyrir minni brúðarinnar mælti Mr. Wm. Lewis frá Kennaraskólan- um, en í þeim skóla voru brúð- hjónin bekkjarsystkini. Brúð- guminn tók og til máls, svo sem venja er til; þá lék frændi hans, Mr. Arthur Britton, Eston, Sask., á fiðlu og saxphone. Veitingar voru síðan framreiddar og vakti brúðkaupskakan sérstaka at- hygli, því hana hafði frændkona brúðarinnar, Mrs. C. Tómasson frá Hecla, Man., bakað og skreytt af mikilli listfengi. Auk Mrs. Tómasson, var við- statt allmargt af frændliði brúð- arinnar frá Winnipeg: Mr. og Mrs. G. J. Johnson; Mr. og Mrs. E. P. Jónsson; Mr. og Mrs. Allan Valgardsson og Mr. og Mrs. T. R. Thorvaldson. Fjöldi utan- bæjargesta sóttu brúðkaupið — frá Calgary, Prince George, B C., Lindsay, Ont., Regina, Briercrest og bæjunum umhverfis. Enn- fremur bárust fjöldi heillaóska- skeyta — frá Steveston, B.C., Haney, B.C., Calgary, Winnipeg, Plecla og fleiri stöðum. Brúðhjónin fóru bílleiðis til Vancouver, B.C.; dvelja þau þar í tvo mánuði, en taka síðan við kennslu í Briercrest, en þar er Mr. Clarke skólastjóri. Lögberg árnar hinum ungu hjónum innilega til hamingju. ☆ — GIFTING — Rosemary Bennetta Helgason og Donald Arthur Martin voru gefin saman í hjónaband í Sam- bandskirkjunni á Gimli á laug- ardaginn 20. júní. Séra Harald S. Sigmar gifti. Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Beggi Helgason, Gimli, en brúðguminn er sonur Mr. og Mrs. G. S. Martin, Gimli. Miss Lorna Stefánson söng brúð- kaupssönginn og Mrs. Doris Martin frá Hnausum var við hljóðfærið. Svaramenn brúð- hjónanna voru systir brúðarinn- ar, Mrs. Dorothy Farago, og Mr. Wallace Bergman, en brúðar- meyjar voru June Martin og Joan Helgason; Rosslyn Chopek var blómamey. Arnold Helgason og Adolph Valgardson vísuðu gestunum til sætis. Brúðkaups veizla var haldin í Gimli Palrish Hall. Ungu hjónin fóru brúð- kaupsferð til Detroit Lakes. Heimili þeirra verður á Gmli. ☆ — DÁNARFREGNIR — Mrs. Thelma Crane lézt Steveston, B.C., 10. júní. Hún lætur eftir sig eiginmann sinn, George; föður sinn Thord ísfjörð á Gimli; fjórar systur, Mrs Ronald Jones, Mrs. Sigberg Kristjánsson og Mrs. John ísfeld, allar búsettar á Gimli og Sig' rúnu ísfjörð í Steveston; enn- fremur bróður, Norman ísfjörð á Gimli. Bálför hinnar látnu fór fram í Vancouver 13. júní og askan var flutt til Gimli og graf- in við leiði móður hennar Gimli grafreit. Minningarathöfn fór fram í Sambandskirkjunni. ☆ Yngvi Thorkelsson, leiksviðs- stjóri við Þjóðleikhúsið í Reykja vík, lézt 4. júní 50 ára að aldri. Um tvítugt fluttist hann vestur um haf, dvaldi árlangt hjá móðursystur sinni í Selkirk, frú Sigríði Sæmundsson, ferðaðist síðan víða um álfuna og lagði fyrir sig margskonar störf, með það fyrir augum að afla sér fjár til náms í leiklist og leiksviðs- störfum. Lauk hann prófi með hæstu einkunn í þessum grein- um við Cornish skólann í Seattle árið 1933; starfaði síðan við leikhús í Seattle, New York og New Jersey og gat sér góðs orðstírs. Árið 1949 sneri hann aftur heim til ættjarðarinnar og var þá ráðinn leiksviðsstjóri við Þjóðleikhúsið og þótti kunnátta sú, er hann hafði aflað sér vestan hafs koma sér vel ,ekki hvað sízt við undirbúningsstarfið við opnun hússins. ☆ Tíu ára piltur óskar eftir sæti í bíl vestur til Leslie, Sask., eða annarra bæja í Vatnabyggðun um. Upplýsingar veitir Mrs. Betty Gíslason Inglis Block, Notre Dame Avenue, rétt austan við Sherbrook. Heima eftir kl. 6 e. h. Eða hringið til Mrs. Dóra Iiampton, 309 Queens Street. Sími 65954. ☆ Icelandic Canadian Club The following sjate of officers for 1953-54 was elected at the Annual meeting of the Icelandic Canadian Club. Honorary President: Professor Skúli Johnson; President: Judge W. J. Lindal; Vice-President: J. T. Beck; Secretary: Mrs. Inga Cross; Treasurer: H. J. Stefáns- son; Recording Secretary: Miss Steinunn Bjarnason. Executive Committee: H. V. Lárusson, Mrs. G. F. Jónasson, Mrs. Pauline Newcombe, G. Finnbogason, W. Johnson. Magazine Board. Chairman: Axel Vopnfjord; Business and ,Circulation Manager: Hjálmur F. Danielson. ☆ • Mr. og Mrs. J. S. Gillies lögðu af stað austur til Toronto og Ottawa síðastliðinn laugardag í heimsókn til barna sinna, sem þar eru búsett; en hinn 10. þ. m., sigla þau frá Montreal áleiðis til íslands. Lögberg árnar þessum vinsælu og mætu hjónum góðs brautar- gengis. ☆ GEFIÐ TIL Sunrise Lutheran Camp Ladies Aid Grund, Baldur, $25.00; Mrs. Stan. Sigurdson Selkirk, $5.00. To the Children's Trust Fund: — Mrs. C. Paulson, Gerald, Sask., $10.00; Mrs. O. Stephensen, Win- nipeg, $2.00; Mrs. M. Sivertsen, Winnipeg, $10.00; Mrs. J. Gillies, Winnipeg, $10.00; Miss Lella Eydal, Winnipeg, $2.00; Mrs. J. E. Erickson, Selkirk, $15.85; Mrs. V. Valdimarsson, Langruth, $1.00; Mrs. A. Hildibrand, Lang- ruth, $1.00; Mrs. G. J. Thordar- son, Langruth, $1.00; Mrs. B. Bjarnason Langruth, $1.00; Kvenf. Bræðrasafnaðar, River- ton, $33.00. Með innilegu þakklæti ANNA MAGNÚSSON. Box 296, Selkirk, Man. ísland og íslendingar Framhald af bls. 4 Fréttir Sendið engin meðöl til Evrópu þangað til þér hafið fengið vora nýju verðskrá. Skriflð eftir liinni nýju 1953 verðskrá, sem ini er á takteinmn. Verð hjá oss er mlklu lætfrn en nnnars sttiðnr í C’nnnda. RIMIFON — $2.10 fyrir 100 töflur STREPTOMYCIN — 50c grammið Sent frá Evrópu um víðn veröld. jafnvel nustnn járntjnldsins. — IN>st«jald Innlfallð. STARKMAN CHEMISTS 403 IJIXJOIt ST. WEST TOHOVTO Næst var hringt hverri einustu kirkjuklukku á Islandi. Ekki er kirkjuklukkan á Þingvöllum stór, og ekki er hljómur hennar sérstaklega hrífandi, venjulega. En hvað maður var ánægður samt að heyra rödd gleðinnar hefjast til himins, þrátt fyrir þungu skýin, í hljómi þeirrar bjöllu á þessum degi! í útvarp- inu var búið að taka inn á plötu hringingu ýmsra kirkjuklukkna. Þeir kunna tæknina líka á Is- landi, á mörgum sviðum. Þeir blönduðu hljóðinu úr kirkju- klukkunum í Dómkirkjunni, Frí- kirkjunni, kirkjunum báðum í Hafnarfirði, inn á sömu hljóm- plötu, og útvarpshlustendur fengu að heyra samsteypu hljóma, er maður gæti ímyndað sér, hefði verið hægt að hlusta á allar kirkjuklukkur hringjandi samstundis um landið alt. Þá var gengið til atkvæða- greiðslu um kosningu forseta. En hátindinum hafði verið náð. Lang hrifningarmesta stundin var liðin hjá. Draumarnir rætt ust. Eining ríkti. Af alhug barst til himins bæn til handa lýð- veldinu nýja: „Drjúpi hana blessun drottins á, um daga heimsins alla.“ ☆ Nú mætumst við og minnumst íslands á þjóðhátíðardegi Kan- ada. Aðeins tvær vikur eru liðn ar síðan Islendingar héldu upp á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Eftir þrjá daga kemur fjórði júlí, þjóð- hátíðardagur Bandaríkjanna. — Það er engin furða þó Stefán Einarsson ritstjóri Heimskringlu hafi sagt í ritstjórnargrein ný- lega að aðalhelgidagur kjörlands- ins hér komi mikið, ef ekki fyrst til greina, þar sem einmitt sá helgidagur verður fyrir valinu sem íslendingadagur um leið. Þótt við ákvæðum, eins og vera bæri, að halda upp á 17. júní hér, eins og gert er á íslandi, þá finnst mér vel hægt að sameina hugsjónir íslendingadags og 1. júlí í Kanada eða 4. júlí í Banda- ríkjunum. Lýðfrelsi og sjálf- stjórn eru grundvallaratriði allra þessara hátíðisdaga. I hvert skipti sem við minnumst Islands og vekjum á ný áhuga okkar fyrir varðveizlu íslenzks menn- ingararfs, leggjum við um leið áherzlu á helztu einkenni Kanada- og Bandaríkjaþjóðar- innar — fjölbreytni þeirra beggja. Þjóðir okkar hér vestra hafa það fram yfir aðrar þjóðir 1 heimsins, að þær eru komnar af margvíslegum stofnum. Okkur greinir á í trúmálum og stjórn- málum. Við keppumst að einingu andans, en metum um leið þau einkenni, sem hefja okkur upp yfir fábreytni og svipleysi. Við erum ekki, og viljum ekki vera, styeptir í sama móti. I andans heimi hugsjónanna Framhald af bls. 5 Þátttakendur í bændaförinni til Norðurlanda, sem Búnaðar- félag íslands gekkst fyrir, komu heim á sunnudaginn var og létu vel af för sinni. Þeir fóru um Danmörk, Svíþjóð og Noreg, skoðuðu bændabýli og tilrauna- stöðvar, heimsóttu bændaskóla og ræddu við bændur og telja sig hafa haft mikið gagn af för- inni. ☆ Helgi Elíasson fræðslumála- stjóri er nýlega kominn heim úr fjögurra mánaða kynnisferð til Bandaríkjanna, sem hann fór á vegum bandaríska utanríkisráðu neytisins. Aðalerindi fræðslu- mplastjóra var að kynna sér stjórn og skipan skólamála Bandaríkjunum og starfinu skólunum yfirleitt. ☆ Leikflokkur frá Þjóðleikhúsinu ier um þessar mundir á ferða- lagi Norðanlands og sýnir gam- anleikinn Topaz eftir franska höfundinn Pagnol. Sýningar hafa verið fjölsóttar og þykir fólki gott að fá slíkar heimsóknir frá Þjóðleikhúsinu. — I Þjóðleik- T_ „ , „ . húsinu er nú sýnd óperan La erU Kanada‘ °S Bandankja- Traviata. ☆ Bayard Taylor, notaði þegar hann kom til Islands til að vera viðstaddur þjóðhátíðina 1874 •— form og innihald tapa sannar- lega engu í snilldarþýðingu Matthíasar Jochumssonar: Hér koma börn þíns bjarta Vínlands, sem byggjum yngstu heimsins grund, Þú ættland kappa, söngs og sögu, að signa þig á frægðarstund! Vér hleyptum skeið, þar Eiríks arfi, hinn ógnum prúði sigla nam; og þar sem fánar Þorfinns gnæfðu, vér, Þorfinns niðjar, settum fram. Heill, heill, þér móðir hetju skálda, er hingað leiddi frelsisorð, með eld, sem þú í efldum barmi, og afl sem þú að bifa storð! Þá trylltur ofsi eyddi þjóðum, nam andans svanur hér sín lönd, og heiðin goð og frægðin forna hér festu byggð á sæbrimsströnd. Og eins og lindin hrein sér heldur, þótt hleypi á akra leirug flóð, þitt afl og ljós og lífsins dugur hér lifði á sólar-kaldri slóð. Þótt gleymd og hrjáð og hrakin værir, þín hetjuþjóð skóp frægðar rún, er seiðir til þín sigurþjóðir að sjá í dag þín frægu tún. Og þótt þín harpa þagna eigi, skal þjóð vor lengja brostin ljóð: Vér köllum land þitt kynland, móðir, þú kappa, skálda, söguþjóð. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Bannmg Street. Sími 30 744. Blaðagreinar um landnámshótíðina í Norður Dakota Tekur sér hvíld frá störfum Forsætisráðherra Breta, Win- ston Churchill, hefir að fyrirlagi lækna sinna ákveðið að taka sér mánaðarfrvíld frá störfum; hann hefir átt geisiannríkt upp á síð- kastið með því að hann hefir, auk embættis síns, jafnframt veitt forustu utanríkisráðuneyt- inu í sjúkdómsforföllum Mr. Edens; í miliitíðinni hefir Mr. Butler fjármálaráðherra stjórn- arforustuna með höndum. Gífurlegt mann- og eignafjón Áflæði af völdum steypirign- inga hefir orsakað slík spjöll á norðurhluta japönsku eyjarinn- ar Kyushu, að til einsdæma er talið; nákvæmar fregnir af tjón- inu eru enn eigi við hendi þó víst sé, að á annað þúsund manns hafi týnt lífi; eignatjón er svo víðtækt, að fram að þessu hefir reynst ókleift að meta það til fulls. Sá hluti eyjarinnar, sem flóðið svarf þyngst að, er á stærð við Massachusettsríkið. menn samherjar Islendinga. Vandamál okkar hérna megin hafsins eru yfirleitt mjög lík þeim erfiðleikum, sem Island á DREWRYS M.D.334 Hinn 30. þ. m. verður þess minnst að Laugarvatni, að 10 ár ,T, eru liðin frá stofnun íþrótta- enn við að stnða. Ver, sem unn kennaraskóla Islands og 20 ár frá Um lýðveldi> hvar sem er 1 heim því að Björn Jakobsson stofnaði skóla að Laugarvatni til þess að búa einstaklinga undir íþrótta- kennarapróf. ☆ Nýlega var opnuð í Reykjavík sýning á verkum fimm málara °g tveggja mynd'höggvara og nefnist Vorsýningin. Þar sýna málararnir Þorvaldur Skúlason, Benedikt Gunnarsson, Valtýr Pétursson, Guðmunda Andrés- dóttir og Hjörleifur Sigurðsson, og myndhöggvararnir Gerður Helgadóttir og Ásmundur Sveins son. ☆ Lögum samkvæmt skal verja 10 miljónum króna til að bæta verðfall, sem orðið hefir á spari- fé einstaklinga. Landsbanka Is- lands er falin framkvæmd þessa máls, og verður byrjað að taka á móti umsóknum 25. þ. m. — inum, verðum að standast próf- raunina. Við verðum að sanna það fyrir öllum heimi, að lýð veldi sé vandanum vaxið að ganga giftusamlega frá þeim málum sem knýja að. Vér hugs- um heim til íslands í dag, eins og oftar, hreyknir af afrekum frænda vorra og bræðra þar. 1 þeirri baráttu gagnstæðra hug- sjóna, sem háð er í heiminum í dag, eigum við samleið með hinu unga lýðveldi gamla íslands. Hér vestra heilsum við íslandi í endurómi lýðveldishátíðarinn- ar, með orðum þeim, sem Banda- rískur rithöfundur og skáld, Bótarétt hafa þeir, sem áttu sparifé í sparifjárreikningum innlánsstofnana eða verzlunar- reikningum fyrirtækja á tíma- bilinu 31. des. 1941 til 30. júní 1946. Sunnudaginn 14. júní birti Grand Forks Herald, annað út- breiddasta dagblaðið í N. Dakota allítarlega grein um íslenzku byggðirnar þar í ríkinu eftir dr. Riehard Beck prófessor. Rakti greinarhöfundur aðal- tildrög stofnunar landnámsins og sögu byggðanna í nokkrum megmdráttum; lagði áherzlu á menningarframlag byggðanna og gat í því sambandi margra sona og dætra þeirra, sem getið hafa sér mikið orð á ýmsum sviðum og borið hróður íslands og íslendinga víða um álfuna, og jafnvel út fyrir takmörk hennar. Grand Forks Herald flutti einnig þriðjudaginn 16. júní ítar- lega frásögn um landnámshátíð- ina eftir einn af fréttariturum blaðsins, og birti fjölda mynda frá hátíðinni. / Síðar í vikunni kom einnig í vikublaðinu Cavalier Chronicle löng og ágæt frásögn af hátíð- inni, ásamt mörgum myndum; hennar hefir einnig verið getið ýmsum öðrum blöðum í N. Dakota. Þurfið þér að senda peninga yfir hafið? Sendið þá • fljóff • auðveldlega • örugglega Canadian Pacific Express Erlendar greiðslur Hvaða Canadian Pacific skrifstofa, sem er, sendir peninga fyrir yður til ættingja eða viðskiptayina handan hafs. Fijót og fibyggileg afgreiðsla. STBIVE FOR KNOWLEDGE In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Cotntncnce Your Busincss Training immcdiately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PHESS LIJHITED PHONE 74-3411 695 Sargent Ave., WINNIPEG

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.