Lögberg - 23.07.1953, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 23. JÚLÍ, 1953
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARQENT AVENUE. WINNIPEG. MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 74-3411
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The 'Lögberg” is prlnted and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Ciass Mail, Post Office Department, Ottawa
Þjóðeiningarflokknum eykst ört fyigi
Frá strönd til strandar eykst Liberalflokknum, þjóð-
einingarflokknum, fylgi jafnt og þétt, að því er blaða-
fregnir herma og nær þetta jafnt til borga sem sveita-
bygða; það er auðsætt af öllum eyktamörkum, að kjós-
endur vilja sem minst eiga á hættu varðandi valdaforust-
una; þeim er það ljóst hvað þeir búa við og munu ógjarna
vilja breyta um til hins verra; og víst er um það, að fólkið,
sem Manitobafylki byggir, lætur ekki ginna sig til að verða af
þeim 24 miljónum dollara, sem Manitoba fær vegna skatt-
samnings við Ottawa, hversu gullin, sem kosningaloforð
stjórnarandstöðunnar kunna að vera.
Eigum við framvegis að njóta forustu þess stjórnmála-
flokksins, sem nýtur svo að segja jafns fylgis í öllum fylkj-
unum, eða láta ginnast af íhaldinu eða klofningaflokkunum,
svo sem Social Credit trúboðunum frá Alberta?
Canada nýtur forustu mikilhæfs stjórnmálamanns,
þar sem St. Laurent á í hlut, manns, sem eigi aðeins nýtur
virðingar og trausts heima fyrir, heldur og vítt um heim
þar sem opinber afskipti hans koma við sögu.
Það er ekki einasta, að núverandi stjórn hafi aukið á
einingu þjóðarinnar síðustu fjögur árin, heldur hefir
Liberalflokkurinn frá upphafi vega sinna stefnt að þessu
eina og sama markmiði.
Núverandi stjórn hefir með gætni og viturlegri forsjá
sinni, rýmkað svo um hið hagsmunalega andrúmsloft, að
framleiðslan hefir stigið eitt risaskrefið öðru meira svo að
ekki eru dæmi til annars slíks í þróunarsögu hinnar cana-
dísku þjóðar.
Núverandi stjórn hefir nótt sem nýtan dag vakað á
verði gegn áróðri og undirferli kommúnista og bygt upp
svo varnir sínar, að á betra verður ekki kosið.
Núverandi stjórn hefir talið það skyldu sýna að grynna
jafnt og þétt á þjóðskuldinni, og samtímis þessu hefir
henni lánast að draga úr sköttum að mun.
Eru líkur á að kjósendur verði tilleiðanlegir til að
skipta á stjórn, sem þannig hefir reynst og pólitískum
æfintýramönnum, sem líklegir eru til að verða eitt í dag
og annað á morgun? Engu slíku ætti að þurfa að gera
skóna.
Það yrði ekki ófélegt að fá þing, samsett af fáeinum
Social Credit trúboðum frá Alberta, ofurlítilli jafnaðar-
mannafylkingu frá Saskatchewan, dálítilli viðbót íhalds-
manna frá Ontario og strandfyíkjunum að viðbættum
nokkrum grímuklæddum utanflokkalegátum frá Quebec.
Hvernig ætti stjórn, sem upp úr slíkri samsuðu sprytti, að
viðhalda því félagslega öryggi, sem þjóðin nú býr við, hvað
þá heldur að auka á það þjóðarheildinni til hagsmuna?
Þótt góður og frjór jarðvegur sé mikilvægur, er hitt
þó meira um vert að sál fólksins, sem erjar jörðina, sé
víðsýn og engum höftum háð, því það er hún, sem á að erfa
landið og gera garð þess frægan í aldir fram.
Tígulsteinamusterið, sem hér er í sköpun á að verða
bústaður samstiltrar þjóðsálar, er verða megi alþjóð manna
til fyrirmyndar.
Liberalflokkurinn hefir þegar gert lýðum ljós öll fram-
boð sín í þessu fylki og verður naumast annað sagt, en
þar sé um mannval að ræða; í Winnipeg North Centre
býður sig fram Peter Taraska bæjarfulltrúi, góður og
gildur þegn, sem um langt skeið hefir tekið heillavænlegan
þátt í opinberum mannfélagsmálum; hann er borinn og
barnfæddur. í þessari borg og hefir rutt sér glæsilega braut
til frama; slíka menn væri holt að fá á þing í stað hinna,
er þangað leita einkum vegna spóns og bita.
Winnipeg South Centre kjördæmið á ágætum manni á
að skipa þar, sem Albert W. Hanks er; hann er ritstjóri og
útgefandi blaðsins St. James Leader og var um eitt skeið
formaður vikublaðasambandsins canadiska. Mr. Hanks er
maður gerkunnugur mönnum og málefnum í Winnipeg
South Centre kjördæmi og það kaupir þess vegna enginn
köttinn í sekknum, er greiðir honum atkvæði þann 10.
ágúst; hann er maður einkar vel látinn og hinn ábyggileg-
asti um alt.
Af hálfu Liberala leitar kosningar í Winnipeg South
ungur maður, Mr. Simonite, hann er maður hygginn og
áhugasamur um landsmál; myndi hann alveg vafalaust
reynast liðtækur á þingi.
I Selkirk kjördæmi er fjöldi míkill kjósenda af ís-
lenzkum stofni, er haft geta veigamikil áhrif á úrslit kosn-
inga í kjördæminu; þar býður sig fram Mr. R. J. Wood, er
sæti átti á sambandsþingi við góðan orðstír síðastliðið kjör-
tímabil; hann er íslendingum í kjördæminu að góðu kunnur
og verðskuldar traust þeirra á ný.
Mr. Wood var nýliði á þingi 1950, en slíka athygli vakti
hann þá á sér, að blaðið Toronto Saturday Night, mintist
hans sérstaklega í ritstjórnargrein hinn 14. marz um vetur-
inn sem fyrirmyndar þingmanns, og sá, sem greinina reit,
var hvorki meira né minna en Wilfrid Eggleston, einn af
kunnustu og áhrifamestu blaðamönnum þessa lands; hann
komst meðal annars svo að orði:
„Það var hressandi eftir hinar mörgu og bragðdaufu
ræður um stjórnarboðskapinn, að hlusta á R. J. Wood þing-
mann frá Manitoba fyrir Norquay kjördæmið, sem mér
skilst að sé að miklu leyti gamla Selkirk kjördæmið; hann
lýsti skilmerkilega sögulegum grunni þess; hann gat um
landnám Islendinga í kjördæminu og að Vilhjálmur Ste-
fánsson hefði fæðst innan vébanda þess; ennfremur mintist
hann landnáms Úkraníumanna og hve margir af þeim kyn-
stofni hefðu komið þar vel ár sinni fyrir borð; ræðan var
ekki löng, en engu að síður næsta athyglisverð."
P.C/s to Contest
Every Seat
The Progressive Conservatives
will have a candidate in every
one of the fourteen Federal
ridings in Manitoba, according
to statements issued by the Pro-
vincial Headquarters. Candi-
dates nominated to date are:
Brandon-Souris, Walter Dins-
dale; Churchill, Wm. Thompson;
Dauphin, R. Elmer Forbes; Lis-
gar, W. H. Sharpe; Marquette,
Ernest A. Bates; Provencher,
Abe Thiessen; Selkirk, Mike
Baryluk; Springfield, Joseph
Slogan; St. Boniface, George C.
MacLean; Winnipeg South, Dr.
O. C. Trainor; Winnipeg South
Centre, Gordon Churchill; Win-
nipeg North, J. Kereluk.
Nominating conventions are
being called for the two remain-
ing constituencies, Portage-
Neepawa and Winnipeg North
Centre.
In a statement issued by Geo.
Muir of Roland, president of the
Manitoba Progressive Associa-
tion, he pointed out that the
thousands of younger electors
who had never known anything
but a Liberal Administration
should be reminded of the many
great achievements of the Con-
servative Party; these included
the Confederation of Canada
into one united nation, the first
immigration act, the bringing
into being of the Canadian
Pacific Railway and, in later
years, the Canadian National
Railway and the Trans-Canada
Airways, the formation of the
Northwest Mounted Police, the
first recognition of trade unions,
the farm marketing act, votes
for women, the national housing
act, the Bank of Canada, veter-
ans’ benefits and pensions.
Fréfrtir . . .
Framhald af bls. 1
í kvöld kemur til Reykjavíkur
heimsmeistarinn í Sleggjukasti,
Sverre Strandli, og keppir á
frjálsíþróttamóti Í.R., sem haldið
verður í Reykjavík á mánudags-
og þriðjudagskvöld.
☆
Almennur kirkjufundur verð-
ur haldinn í Reykjavík í október
í haust og verða aðalfundarmálin
þessi: — Kristindómurinn og
fræðslumálin, ríki og kirkja, og
kristniboð.
☆
Guðbrandur Jónsson prófessor
lézt s.l. sunnudag í Landsspítal-
anum í Reykjavík á sextugasta
og fimmta aldursári.
HIHN
CANADISKI
DOLLAR
Hagnýtustu peningar í heinu!
Sanna í verki viturlega forustu þjóðmálanna
í höndum
LIBERAL STJÓRNARINNAR
HEILBRIGÐ LÆKKUN SKULDA
$13 Biljónir
$11 Biljónir
Hrein þjóðskuld 1945 - 46
Hrein þjóðskuld 1952 - 53
Lækkun $2 Biljónir
Árlegur vaxtasparnaður $75 Miljónir
VELFERÐARMÁL
1952-53
F j ölsky ldusty rkur
Ellistyrkur
Atvinnuleysisstyrkur
Eftirlaun hermanna o. s. frv.
Stuðningur við búnað
LÆGRI PERSÓNUSKATTAR
fjárshagsár
$334 Miljónir
$345 Miljónir
$ 56 Miljónir
$241 Miljónir
$ 56 Miljónir
Gift barnlaust
fólk
Grundvallar- Canada U.S. Britain Ausiralia
undanþága $2000.00 $1200.00 $ 566.00 $ 489.00
TEKJUR SKATTAR
$1000 30.00 39.00
2000 133.00 264.00 206.00
3000 150.00 333.00 621.00 464.00
5000 510.00 733.00 1360.00 1213.00
ÚR HINU MERKA
BREZKA BLAÐI:
"LONDON ECONOMIST"—
5. JÚLÍ 1952
Fjármálum Canada hefir
verið svo vel stjórnað. að slíkt
á engan sinn líka annars
staðar í heiminum.
ÚR KUNNU AMERÍSKU
BLAÐI:
"FORTUNE"—ÁGÚST. 1952
Þróun Canada síðustu 12 árin,
er eitt af f járhagslegum
undrum þessarar aldar. vöxi-
ur hefir í öllum efnum orðið
slíkur, að jafnvel skarar
íram úr Bandaríkjunum.
HALDIÐ
GÓÐRI
STJÓRN
Vegna viturlegrar stjórnar . . .
. . . Vegna heilbrigðrar fjórmólastefnu . . .
Greiðið LIBERAL atkvæði
Published by authority of the Manitoba Liberal Progressive Election Committee.
KJOSENDUR SELKIRK KJORDŒMIS!
Kjósið --- 1 0. ágúst
Published by authority of the Selkirk Liberal Progressive Association.