Lögberg - 23.07.1953, Page 7

Lögberg - 23.07.1953, Page 7
LÖGBERG, FIMMTXJDAGINN, 23. JÚLÍ, 1953 7 KATRÍN FRÁ BÓRA Fjórar aldir eru nú liðnar frá dauða Katrínar frá Bóra, konu Lúiers, og birtir því Kirkjuritið grein um hana, eftir sænskan prest, Richard Asberg að nafni, í lauslegri þýðingu. Haustið 1515 unnu nokkrar ungar stúlkur af aðalsættum klausturheit við hátíðlega guðs- þjónustu í nunnuklaustrinu Marienthron skammt frá Torgau á Saxlandi. Ein í hónpum var Katrín frá Bóra. Hún var þá sex- tán ára og laut vilja foreldra sinna. En klausturvistin varð skemmri en ætlað var. Vorvind- ar tóku að blása frá Witten- berg, og lífið kvaddi einnig dyra í nunnuklaustrinu. Fréttir bárust um það, að klaustur væru að tæmast hvert af öðru og fylgis mannaflokkar „villumunksins“, Marteins Lúters í Wittenberg, yxi dag frá degi. Fáein rita hans um fánýti klaustralifnaðarins bárust nunnunum í hendur. Og röksemdir hans urðu þungar á metunum í augum þeirra. Þeim fannst verða þröngt um sig innan klausturmúranna og lífið þar fátæklegt og að litlu gagni. Þá gerðust þau ódæmi í klaustrinu, að Katrín og nokkr- ar nunnur aðrar gengu fyrir abbadísina og báðu um leyfi til þess að losna úr klaustrinu, því að þær hefðu verið látnar í það andlega ófullveðja. Auðvitað var ekki við þetta komandi. Þá var ekki annað úrræði en að reyna að flýja á laun. En hver myndi hjálpa þeim til annarra eins ör- þrifaráða? Hvorki foreldrar né aðrir vandamenn. Hvaða hneykslismynd var háðulegri en strokununna? Eina vonin fyrir þessar nunnur, sem unnu frels- inu svo heitt, var sú að leita at- beina Lúters, er hafði vakið þeim þessa löngun, að skilja við ánauð klausturlífsins. Og Lúter barst bréf frá þeim, beiðni um hjálp. Hann hafði þá sem mest að vinna, en engu að síður tókst hann þann vanda á hendur að reyna að losa nunn- urnar úr prísundinni. Ýmsir löttu hann og kváðu þetta valda mesta hneyksli. En Lúter sagði: Hneyksli hér og hneyksli þar. Neyð og mæða molar fjötra og hugsar ekki um hneykslanir. Lúter fékk kaupmann einn, Leonard Koppe að nafni, til þess að hjálpa sér, byrgði sá Marien- thron að matvælum. Að kvöldi páskadags 1523 kom Koppe með matarvagn sinn og hafði þanið strigatjald yfir hann. Meðan á páskamessunni stóð í klaustur- kirkjunni, laumuðust þær Katrín út níu saman og smeygðu sér upp í vagninn. Því næst -var honum ekið burt hið bráðasta. Náttmyrkrið tók við. Nunnun- um var borgið. Annálsritari skrifar svo um þennan atburð: „Koppe nam nunnurnar á burt úr klaustrinu jafn fljótt og fimlega eins og þær hefðu verið síldartunnur.“ Af því hefir sú skoðun myndazt, að nunnurnar hefðu verið flutt- ar burt í tómum síldartunnum, sem hefði átt að sækja til klaust- ursins. i Á þriðja í páskum le'nti hópur- inn í Wittenberg, og þurfti Lúter að sjá þeim fyrir gistingu. Hon- um tókst von bráðar að'fá sex foreldrana til þess að leyfa dætrum sínum að koma heim. En hvað átti að gjöra við hinar? Ekkert átti Lúter til, heldur lifði hann harla fátæklegu einlífi í Ágústínusarklaustrinu í Witten berg. Honum lánaðist að gifta tvær þeirra góðum mönnum. Þá var Katrín ein eftir. Hún var orðin 24 ára, eða komin yfir bezta giftingaraldurinn að dómi þeirra tíma. Ekki var fríðleikinn heldur mikill, og engan eyri átti hún til, og ætt hennar mátti sín lítils. Framtíðarhorfur hennar virtust vera heldur dauflegar. Henni var komið fyrir tilf bráðabirgða á heimili borgar- ritarans, þar til er fyrsta biðilinn bæri að garði. Hún var hálf- hrædd og feimin, en öllum var hlýtt til hennar. Lúter var skriftafaðir hennar og bar gift- ingu hennar mjög fyrir brjósti. Hann gat nú flutt henni bónorð háskólarektors, meistara Gaspars Glaciusar. Hún færðist undan, þótti hann þumbaralegur bóka- béus. Þá varð Lúter gramur og sendi Amsdorf, vin sinn, til þess að telja henni hughvarf. Hann spurði hana háðslega: „Hvern viljið þér þá fyrir mann, úr því að þér eruð ekki ánægð með guð- fræðidoktor?" Þá svaraði Katrín stillt og rólega: „Ef þér sjálfir eða doktor Lúter biðjið mín, þá mun ég fagna því.“ Þessi bending féll í góðan jarð- veg. Lúter skildist, að Katrín var ekki stolta aðalskonan, eins og hann hafði haldið.' Og úr því að hún vildi verða konan hans, hafði hann ekkert við það að athuga. „Það var vilji Guðs,“ sagði hann síðar, „að ég skyldi miskunna mig yfir einstæðing- inn. Og Guð hefir veitt mér ríku- lega umbun, því að ég hefi eign- azt góða og guðhrædda konu, KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyTÍr yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK M.D.333 sem hjarta mitt getur reitt sig á.“ Um kvöldið 13. júní 1525 komu þau Lúkas Cranach málari og kona hans með Katrínu heim til Lúters í „Svartaklaustrið“. Vígsluvottar voru þar vinir Lúters Bugenhagen prestur í Wittenberg og Justus Jonas pró- fastur, og einn lögfræðingur að auk. Lýstu þau því yfir frammi fyrir þeim, Lúter og Katrín, að þau vildu eigast. Lögfræðingur- inn þuldi lagagreinar, og Bugen- hagen lýsti blessun Drottins yfir brúðhjónunum. Því næst var neytt vígslumáltíðar og brúð- hjónin síðan leidd til sængur. Var annar skór brúðgumans lagður ofan á ársalinn til merkis um það, að bóndinn ætti að ráða á heimilinu. Fjórtán dögum síðar var aðal- brúðkaupsveizlan haldin. Meðal annarra bauð Lúter Koppe til hennar og skrifar svo m. a.: — „Guð hefir skyndilega og óvænt veitt mig í net heilags hjóna- bands, sem ég verð að staðfesta með veizlu á þriðjudag. En til þess að faðir minn og móðir og allir góðvinir verði þeim mun glaðari, viljum við, herra Katrín og ég, vinsamlega biðja yður um að útvega okkur að drykk eina tunnu af forláta öli og senda okkur hana sem fyrst. Verði ölið ekki gott, legg ég þá refsing við, að £ér verðið að drekka það allt sjálfur. Ennfremur bið ég þess, að þið hjónin verðið ekki fjar- verandi, heldur komið með fögnuði.“ Wittenbergbær gaf doktornum sínum til veizlunnar tunnu af öji og tuttugu gullpeninga. Og há- skólinn sendi í brúðargjöf silfur- bikar mikinn og gullbúinn. Sjálf- ur gaf Lúter Kötu sinni dýran hring með krossmarki á og stór- um roðasteini. En stærstu gjöf- ina gaf Jóhann kjörfursti, því hann fékk brúðhj ónunum klaustrið í hendur til íbúðar leigulaust. Svartaklaustrið við Elbu varð nú að prestsheimili. Þar hafði allt verið í óhirðu, en Katrín kom á röð og reglu. Munkastof- an dimma varð að vistlegu her- bergi, matsalurinn að eldhúsi, búri og vinnukonuherbergi, öll herbergin á efstu hæðinni íbúð- arherbergi fyrir kostgangara, sem Katrín seldi fæði í von um það að auka tekjurnar. í klaust- urgarðinum voru gróðursett aldintré og nytjajurtir, og þar var reist hænsnahús, býflugna- bú og svínastía. Ölbruggun var hafin, og taldi Lúter það „bezta öl í heimi“. Kýr voru keyptar í fjósið, endur, gæsir og dúfur. Og Katrín keypti sér meira að segja einu sinni, þegar vel lá á henni, páfugl til þess að vakka um í húsagarðinum og verða prýði hans. Það var stærðar bú, sem Katrín stóð fyrir. Hún var önn- um kofin frá því snemma á morgnana og þangað til seint á kvöldin. „Morgunstjarnan í Wittenberg,“ er Lúter nefndi svo, gekk syngjandi um húsið, sagði fólkinu fyrir verkum og leit eftir öllu frá matnum á borðinu og til fóðursins í jötunum. Stöku sinnum lá henni við að kikna undir erfiðinu, og fyrir kom það, að hún andvarpaði: „Ég verð að skipta mér í sjö parta, því að ég verð að vera í einu á sjö stöðum og gegna sjö embættum. Því að ég er: I 1. lagi kornrækt- arkona. I 2. lagi bruggunarkona. f 3. lagi eldakona. í 4. lagi barn- fóstra. f 5. lagi garðyrkju- og vínyrkjukona. í 6. lagi huggari og ölmusugjafi allra beiningar- manna í Wittenberg. Og í 7. lagi doktorskona, sem á að vera sam- boðin maka sínum stórfrægum og fæða fjölda gesta af 200 gyll- inum á ári.“ Þá hafði Lúter til að svara í spaugi: „Ég get kyrjað ennþá hærra helgisönginn. Ég verð líka að skipta mér í sjö doktora. Ég verð að sýna um- burðarlyndi páfanum, ofsa- mönnum, fíflunum og múginum. Ég verð daglega að sýna stú- dentunum umburðarlyndi, vinnu fólkinu mikið umburðarlyndi og alveg sérstakt umburðarlyndi Kötu nokkurri frá Bóra.“ En umburðarlyndið hefir ekki verið eingöngu á hans hlið. Hún hefir ekki síður þurft að taka á því. Þegar ofsinn hljóp í Lúter, var erfitt við hann að fást. Þá gat enginn sefað hann eins og hún. Þegar aftur lægði, grét hann stundum hljóðlega, og hún huggaði hann eins og barn. Þeg- ar veikindi og þunglyndi steðj- uðu að, gat hún ein manna friðað hann og glatt. Dag nokkurn kom Lúter- í þungbúnasta lagi heim frá háskólafyrirlestri. Ratrín tók á móti honum í skrifstofu- dyrunum í svörtum sorgarbún- ingi. Honum hnykkti mjög við og hann spurði: „Hver er dáinn?“ „Góður Guð,“ svaraði hún. „Hann hlýtur að vera dáinn, því að annars gæti Marteinn minn ekki verið svona sorgbitinn.“ Þá brosti Lúter og sagði, að aldrei hefði nokkur skriftafaðir hugg- að hann jafnvel og skörulega og konan hans. Stundum var það hann aftur á móti, sem sendi stórorð bréf „til sinnar kæru eiginkonu, doktorsfrúar og meinlætamann- eskju í Wittenberg,“ eða „til hinnar heilögu og áhyggjufullu Katrínar Lúter“ og reyndi að telja í hana kjark: „Láttu Guð bera umhyggju fyrir okkur, þ. e. varpa byrði þinni á Drott- in. Hann mun vel fyrir sjá.“ Og þegar hann var orðinn leiður á löngum aðfinnsluræðum hennar, spurði hann: „Lastu Faðir vorið fyrir prédikun?“ Eða: „Kemur nú ekki senn amen eftir pré- dikun?“ Lúter hefir aldrei lýst hjóna- bandinu eins og paradís. Öllu heldur eins og skóla í ást og þolinmæði. Bæði hjónin áttu auðsjáanlega sína galla. Því verður ekki neitað, að Katrín var alleinþykk og ráðrík. Og ef- laust á Lúter við það, þegar hann kallar hana ströngu hús- móðurina sína eða ávarpar hana í bréfunum: „Kæra herra Kata.“ En jafnframt játar hann það, að hann vilji ekki skipta á drottn- ingarvaldi hennar og konungs- ríki Frakklands né tign og veldi Feneyja. Ber það vitni um djúpa ást hans til hennar, að hann nefnir uppáhaldsrit sitt í Biblíunni, Galatabréfið, Kötu sína. Og þegar hann horfði á myndina af henni, sem Lúkas Cranach hafði málið, sagði hann: „Ég vil láta mála líka karlmanns- ‘mynd og senda hvora tveggja á kirkjufundinn í Mílanó og spyrja feðurna heilögu, hvort þeir kjósi heldur: Hjúskap eða einlífi?“ í einu var Katrín manni sín- um miklu fremri, fjármálastjórn heimilisins. Kunni hann lítt tök á henni, en Katrín því betur. Og mikils þurfti við til þess að láta tekjurnar hrökkva fyrir útgjöld- unum. Börnunum fjölgaði, og smám saman varð Svartaklaustr- ið hæli fyrir flóttamenn, sjúka og sorgbitna, og foreldrahús fyrir munaðarleysingja. En Katrín gætti í hvívetna mestu hagsýni og sparnaðar og rakst þá stundum hastarlega á gjaf- mildi hans. Eitt sinn t. d. kom stúdent og bað Lúter um fjár- styrk, og átti hann þá ekkert annað handbært en dýran silfur- bikar, sem hann hafði nýlega fengið að gjöf. Lúter rétti stú- dentinum hann. Stúdentinum varð litið til Katrínar, og kom þá hik á hann. En Lúter lagði bikarinn saman og sagði stú- dentinum að fara og selja hann gullsmið. Mest reyndi á trú Katrínar og kærleik, þegar drepsóttin geis- aði í Wittenberg. Þá breiddi heimili hennar faðminn við öll- um, bæði sjúkum og heilbrigð- um. Hún gegndi öllum skyldum sínum með dæmafárri ró, gleymdi engum, hjúkraði skjól- stæðingum sínum, spretti í kýli, sá um heimilisstörfin, vakti yfir börnunum, hughreysti mann sinn og treysti Guði. Og þegar sorgin sótti þau hjónin heim, þá bar hún harm sinn í hljóði og í trú á Guð: „Þetta varð að fara svo, og úr því að svo var, þá hlýtur það að vera gott.“ Hugg- un hennar varð sálmurinn: „Það verði allt, sem vill minn Guð.“ Svo fór einnig, er henni barst fregnin um lát manns hennar, fjarri heimilinu og fjarri henni, sem hafði þráð það að mega hjúkra honum síðast og loka augum hans. Henni virtist sem sólin hefði gengið til viðar. Og svo steðjuðu að fleiri áhyggj- ur. Á stríðstímunum varð hún að flýja tvisvar frá Wittenberg, og þegar hún kom aftur var aldin garður hennar orðinn að flagi og sveitabýli lagt í rústir. Hún hafði misst allar eignir sínar. En hún hófst aftur handa með óþrotlegum kjarki og dugnaði. Hún tók kostgangara á ný og rétti smám saman aftur við. En eftir stríðið kom drepsóttin aftur til Wittenberg. Háskólinn var fluttur til Torgau, og þangað leitaði Katrín einnig með börnin sín. Á leiðinni fældust hestarnir. Katrín reyndi að stöðva þá og bjarga börnum sínum, en steypt- ist þá úr vagninum og lenti í köldu síki. Þegar hún kom til Torgau, var hún orðin mjög veik. Hún lá í þrjá mánuði sárþjáð, Framhald af bls. 2 skógurinn hafði gleypt í sig litla spítalabæinn hans með húð og hári, svo að allt var eyðilagt af fúa og uppétið af maurum nema bárujárnsplöturnar. Fréttin um, að hvíti galdralæknirinn væri kominn aftur, breiddist út eins og elding, og nú streymdu að negrar úr öllum áttum. En merkilegast af öllu var það, að þeir tjáðu sig fúsa til að byggja nýtt sjúkrahús undir stjórn Schweitzers. Þegar hér var komið sögu, höfðu fregnir af starfi Schweit- zers einnig borizt til Evrópu, og nú leið ekki á löngu þar til hann fékk nokkra lækna og hjúkrun- arkonur sér til aðstoðar. Nú reis hvert sjúkrahúsið af öðru. Kær- leiksverk Schweitzers tók nú að bera ávöxt á sístækkandi svæði. Hann hafði sérstæðan hæfi- leika til að útvega peninga og skipuleggja hjúkrun sjúkra í stórum stíl. Þegar hann var ekki í Lambarene, sem hann unni heitast allra staða, að kenna læknunum þann vanda að um- gangast negrana á réttan hátt, var hann á sífelldum ferðalögum í Evrópu og hélt orgeltónleika og safnaði peningum. Sett var á laggirnar sérstök Schweitzer- nefnd, sem átti að safna pening- um og styðja starfsemi hans. Schweitzer segir frá því í einni af þinum mörgu bókum sínum, hvernig lífinu sé lifað í spítalabænum hans í frumskóg- inum. Eitt hinna erfiðari við- fangsefna eru aðstandendur og burðarmenn sjúklinganna, sem koma oft með þeim í stórum hóp- um. Þá verður að fæða á kostnað sjúkrahússins meðan þeir eru í Lambarene. Reynt er að fá þá til að borga fyrir matinn með vinnu í þágu sjúkrahússins meðan þeir bíða þess að ættingja sínum batni, en það er fátítt, að þeir séu haldnir mikilli starfslöngun. Hjúkrunarmaður sá, sem stjórn- ar vinnuflokknum, verður oft að taka matinn með sér út á vinnu- staðinn til að lokka gestina til vinnu og gefa þeim ekkert fyrr en þeir hafa lokið dagsverkinu. Negrarnir þiggja hjálp hvítu mannanna eins eðlilega og barn þiggur eitthvað af foreldrum sín- um, en oft er með öllu ómögu- legt að fá negra, sem ekki eru af sama kynflokki, til að hjálpa hverjum öðrum. Einnig í því eru þeir eins og börn — með öðrum orðum, hugsa um ekkert nema sjálfa sig. En Albert Schweitzer þreytist ekki. Hann telur, að þar sem Guð hafi gefið sér skarpan skilning og margþætta kunnáttu, sé það skylda sín, Ijúf skylda sín, að nota þessar gáfur í þágu með- en bar þrautir sínar eins og hetja fram í andlátið fjórum dögum fyrir jól 1552. Síðustu orð hennar munu hafa verið þessi: „Ég ætla að halda mér eins fast við Krist og hrúðurkarl á kletti.“ Lík hennar var borið í ríkis- kirkjuna í Torgau, og mælti Melanchton eftir hana. Kvað hann hana hafa þolað þungar raunir, en orðið mikillar náðar aðnjótandi. Börn hennar létu síðar reisa henni minnisvarða úr sandsteini og letra á hann: — „Anno 1552, 20. desember, sofn- aði Katrín frá Bóra, ekkja doktors Marteins sáluga Lúters, sætt í Guði hér í Torgau.“ Lág- mynd er umhverfis steininn. Sést Katrín þar í síðri kápu og með húfu á höfði og heldur á Biblíunni opinni. Gáfur Katrínar voru svo miklar, kærleikur hennar og trú, að mynd hennar bliknar ekki við hlið Lúters. Morgunstjarna Wittenberg skín enn skært eftir fjórar aldir. Og aldrei mun slá fölva á minningu Katrínar frá Bóra. Hún var ein af mestu merkis- konum kristninnar. bræðra sinna. Þessi furðulegi maður hefir ekki iðrazt þess eitt augnablik, að hann skipti á fram- tíð sem einhver snjallasti vís- indamaður og listamaður Evrópu fyrir erfiða og lýjandi ævi í ein- hverju yfirgefnasta frumskóga- héraði jarðarinnar. En er það þá yfirgefið? Nei, ekki fyrst þar er annar eins maður og Albert Schweitzer! Ævi hans er öll lík fossandi, dynjandi tónlist, lík fúgu eftir Jóhann Sebastian Bach, leikinni úti í rjóðri í frum skóginum, lík vorgeisla í heimi, þar sem svo marga dreymir um að inna af hendi mikil og göfug störf, en svo fáir eru gæddir at- orku til að gera drauminn að veruleika. Fyrir skömmu greindu dag- blöðin frá því, að The National Arts Foundation í New York, mannúðarfélagsskapur framúr- skarandi rithöfunda, listamanna og tónlistarmanna í 17 löndum, hafi tilnefnt þennan heimsfræga sjötíu og fimm ára gamla lækni, trúboða og heimspeking, dr. Albert Schweitzer, sem „mann aldarinnar.“ Fimmtíu og tveir af þeim 150 félögum, sem send voru eyðu- blöð undir tillögur og nánari skilgreiningu, svöruðu því til, að þeir greiddu honum atkvæði fyrir þá sök, að hann lifði „aðeins til að hjálpa öðrum“, og „hann hefir með fordæmi sínu kennt meðbræðrum sínum, hvernig þeir eigi að leita útrásar hinum góðu öflum, sem til eru í oss öllum.“ Sumir hika jafnvel ekki við að segja, að leysa mætti öll vandamál heimsins með því að viðurkenna hugsjónir hans og taka þær upp í samskiptum manna og þjóða. —Heimilisblafíið . . . konur eru skapaðar til þess að elska, en ekki til þess að skilja . . . COPENHAGEN Bezta munntóbak heimsins Á. G. þýddi —Kirkjuritið Albert Schweitzer

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.