Lögberg - 06.08.1953, Blaðsíða 2

Lögberg - 06.08.1953, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 6. ÁGtrST, 1953 ERIK WASTBERG: Gilbert Keith Chesterton Fyrsta og mikilvægasta stað- reyndin viðkomandi Gilbert Keith Chesterton er sú, að hann fæddist 29. maí 1874 í Campden Hill, Kensington, London, — svo að breyting sé gerð á inngangs- orðum ævisögu Bernard Shaws, er Chesterton ritaði. B. Shaw hefir að sínu leyti lýst Chester- ton þannig, að hann væri svo gildur vexti, að ekki væri unnt að sjá hann nema hálfan í einu. Chesterton víkur að því sjálfur í sjálfsævisögu sinni, er hann getur þess, að hann hafi verið skírður í kirkju heilags Georgs, beint á móti vatnsaflsstöð Lun- dúnaborgar: „Ég ætla ekki að halda því fram, að neitt sem máli skiptir sé sameiginlegt með þessum tveim byggingum, og ég neita því móðgaður, að kirkjan hafi verið valin vegna þess, að ekki hafi veitt af vatnsafli alls vesturhluta Lundúnaborgar til þess að skíra mig.“ Börnin voru tvö á heimilinu, því að systirin, sem var eldri en Gilbert, dó meðan hann var enn á barns- aldri. bróðir hans, Cecil, var fimm árum yngri en hann, og strax og hann fór að geta talað, hófust endalausar samræður með þeim bræðrum. Þeir kapp- ræddu jafnan en rifust aldrei. Bróðirinn féll í fyrri heims- styrjöldinni, og það gat Chester- ton aldrei fyrirgefið Þjóðverjum. Trúlega er þangað að leita per- sónulegra orsaka þess, að hann skyldi, þrátt fyrir hugsjónir þær, sem hann annars átti, flækja sér inn í hinn fúlasta stríðsáróður og ekki einu sinni veigra sér við að þylja enn á ný upp kenning- ar sínar í sjálfsævisögu sinni. Faðir hans og afi voru báðir all- vel stæðir fasteignasalar í Lun- dúnum. Ætlunin hafði verið sú, að faðir hans helgaði listinni starfskrafta sína, en fjölskyldu- fyrirtækið þótti öruggara. Af- leiðing þess varð sú, að hæfileik- ar hans leituðu sér útrásar í 10—12 greinum föndurs, sem allt var af listrænum rótum runnið, svo sem teikningu, listmálun, myndamótun, ljósmyndun, gler- skreytingu, útsögun, glermósaík og öllum mögulegum þess hátt- ar greinum. Fjölskyldan var að mörgu leyti ensk í sér og sérlega ensk hvað snerti náttúrlega hneigð til föndurs. Chesterton þótti vænt um, að faðir hans skyldi láta sér nægja föndrið eitt. „Hann mundi aldrei hafa komizt neitt áleiðis með alla þessa mergð viðfangsefna, sem honum fóru svo vel úr hendi.“ Gilbert var seinþroska barn. Hann fór ekki að tala fyrr en hann var orðinn þriggja ára, fór ekki að* lesa fyrr en hann var orðinn átta ára, og er hann lauk skólanáminu, var hann enn ekki kominn í mútur. Móðir hans hafði áhyggjur út af þessu og fór með hann til læknis, sem lýsti einkennum sjúklingsins þannig, að hann væri óvenju gáfaður, mjög tilfinninganæmur, langt á veg kominn andlega og mundi því að öllum líkindum þroskast hægt. „Slíkt kemur fyrir hjá afburða snillingum og fábján- um,“ sagði læknirinn. En hann varð aldrei alfullorð- inn. Hann unni ævintýrasögnum; hann las þær annað hvort eða hlýddi á þær sagðar, er hann var barn, og þegar hann stækk- aði, skrifaði hann þær sjálíur og teiknaði myndir í þjer. Hon- um var mikil raun að því að eignast engin börn, en hann þreyttist aldrei á því að leika við börn annarra, teikna karla fyrir þau, segja þeim ævintýri og leika allar mögulegar listir. Þeg- ar móðir ein, sem hafði miklar á hyggjur út af menntun sonar síns, spurði hann, hvort hann hefði lært nokkuð, er hann var boðinn í te til Chestertons hins mikla, fékk hún þetta svar: „Nei, en þú hefðir átt að sjá hann Gilbert, þegar hann greip boll- urnar á lofti með munninum!“ Hann vildi alltaf laða fram hið ótruflaða, hugmyndaríka barns- eðli hjá mönnum, og þegar hann átti að útskýra tilveru Guðs fyrir þeim náttúruvísindamönn- um samtíðar sinnar, sem héldu því fram, að lifandi máttur ætti sér engan stað í alheiminum, þar eð hann væri bundinn órjúf- anlegum lögmálum einum sam- an, hrópaði hann: „Lítið til barnanna! Það er einmitt ofgnótt þeirra af lífsorku, sem veldur því, að þau óska þess, að hlut- irnir endurtaki sig í óbreyttri mynd. „Gerðu það aftur,“ er hið sífellda viðkvæði þeirra, og full- orðni maðurinn gerir það aftur, þangað til hann er næstum því örmagna, því að fullorðið fólk er ekki nógu sterkt til þess að njóta fábreytileikans. En ef til vill er Guð nógu sterkur til þess að hafa ánægju af tilbreytingar- leysinu. Ef til vill segir Guð á hverjum morgni „gerðu það aftur“ við sólina og á hverju kvöldi „gerðu það aftur“ við tunglið!" Hann var mikið út af fyrir sig í skólanum, og höfuðviðfangs- efni hans voru í því fólgin að teikna hvar sem auðið var í bæk- ur sínar skopteikningar af kenn- urum, áberandi stjórnmála- mönnum og atriði úr leikritum Shakespeares. Hann var stór- vaxinn, hirðuleysislegur og ótrú- lega klunnalegur og viðutan, og var hann því mjög ólíkur félög- um sínum, bæði andlega og lík- amlega. Hann gleymdi öllu, „en þó leysir hann starf sitt vel af hendi, þegar hann man eftir því; hann ætti að vera í vinnustofu listamanns en ekki í skóla,“ segir yfirkennarinn í bekknum hans um hann, þegar Chesterton er 13 ára, og þrem árum síðar eru ummælin þessi: „Mjög hugs- unarlaus en mjög skynsamur.“ En hann tók sig til og varð for- maður málfundafélags skólans og skrifaði í hvert einasta tölu- blað málgagns félagsins, sem Umræður nefndist. Þegar skóla- félagar hans héldu til Oxford og Cambridge, fór Chesterton í myndlistarskóla og sótti jafn- framt því bókmenntafyrirlestra í háskólann í Lundúnum. Þá virðist hann enn hafa fengizt mest við kappræður og rökræð- ur, þar til honum loksins datt í hug að skrifa niður hugsanir sínar. Hann gerðist blaðamðaur og taldi sig alla ævi síðan blaða- mann, hvað sem leið öllum af- rekum hans á sviði Ijóðagerðar og smásagna. „Blöðin,“ segir hann, veru skóli örðugleikanna og hinnar þungbæru auðmýktar. Þau eru mesta afrekið, sem nokkru sinni hefir komið fyrir augu manna, án þess að nafns höfundar þess hafi verið að nokkru getið, síðan hinar miklu kristnu dómkirkjur voru reist- ar.“ Það er fátt um nákvæm tíma- mörk í ævisögu Chestertons. - Hann vissi sjaldan sjálfur hvaða dagur var. Hann sendi vini sín- um svohljóðandi símskeyti og borgaði um leið fyrir svarskeyti: „Var það í kvöld, sem ég átti að heimsækja þig eða hvenær?“ Svarið var á þessa leið: „Ekki í dag, sem er þriðjudagur, heldur á miðvikudaginn kemur.“ Hann mætti ekki, þegar hann átti að flytja fyrirlestra, hann gleymdi þeim eða lét aka sér á þver- öfugan stað. Enn er til símskeyti frá honum, svohljóðandi: „Er í Harborough. Hvar á ég að vera?“ Bak við það felst sú staðreynd, að það skipti hann litlu sem engu máli, að hann flutti árið 1909 frá Lundúnum til Beaconsfield. En hins vegar virðist annað hafa orðið þyngra á metunum, sem sé það, að árið 1901 kvæntist hann Frances Blogg. Hún virðist hafa gegnt þýðingarmiklu hlut- verki í lífi hans, enda þótt svo virðist, sem hann hafi aldrei verið heima, heldur eytt öllum sínum stundum á litlum knæp- unum við Fleet Street og Strand, götur blaðanna og útgefendanna og neytt þar öls og búrgundar- víns í geysistórum stíl, því að hann vildi ekki sjá sterka drykki og allra sízt kokkteila. Chester- ton var svo hirðulaus um ytra útlit sitt að fádæmum sætti. Vin- kona þeirra hjóna hefir sagt svo frá, að þegar ekkert stoðaði, hafi það verið hún, sem fann upp búniflg handa honum — búning þann, sem hann varð kunnur fyrir að bera í blaðamanna- hverfinu og á öllum skop- myndum um víða veröld — stóru rómantísku Porthoskáp- una, sem skýldi fitu hans, hversu mikið sem hann lét eftir sér að auka við hana, barðabreiða hatt- inn og hárlubbann. En með skó- reimarnar gekk hann óhnýttar til dauðadags, því að hún gat ekki elt hann á röndum, hvert sem hann fór. Chesterton skrifaði um allt. Honum þótti gaman að vinna innan um fólk og það jók kæti hans svo að undrun sætti. Yfir- þjónn á einu af Fleet Street veitingahúsunum hefir lýst hon- um þannig fyrir vini sínum: „Mjög einkennilegur maður. Hann situr og hlær. Síðan skrif- ar hann. Og svo hlær hann að því, sem hann hefir skrifað.“ En hann skrifar án afláts, dálk í Daily News og heila síðu í Illustrated London News á hvferjum degi, inngangsorð að hverju sem er, allt frá Jobsbók til síðustu skáldsögu Gorkís og auk þess endalausan flaum af bundnu máli og óbundnu. Alls staðar er hann skrifandi, venju- lega í stílabækur, ekki aðeins í veitingahúsum, kaffihúsum og knæpum, heldur einnig í bifreið- um, á efri hæð strætisvagna, já, meira að segja gangandi á göt- unni. Ef hann er ekki að skrifa, þá er hann að tala, hann eys í kringum sig þversögnum og rek- ur upp skellihlátra að sinni eigin fyndni. Og öllu öðru frem- ur lætur hann aka sér í bifreið, alltaf bifreið, enda þótt hann þurfi ekki að fara nema smá- spöl og jafnvel þótt hann verði að biðja ökumanninn að lána sér fyrir fargjaldinu. Fyndnin og þversögnin eru engin uppgerð hjá Chesterton, hann þarf ekkert að leggja á sig þess vegna. Það er hið eðlilega tjáningarform hans. Hann er líka fyndinn sem kristinn maður og lýðræðissinni — en það tvennt er eitt og hið sama að áliti Chestertons. Aldrei hafa þessar í sjálfu sér virðingar- verðu lífsskoðanir verið varðar með hnitmiðaðri snilliyrðum, á- hrifaríkari myndum eða meira ruglandi þversögnum. í raun og sannleika hefir Chesterton kann- ske aldrei verið jafn snjall og eftir að vinur hans, Faðir Brown, — sá hinn sami og er leynilög- reglumaður í hinum kunnu Föður Brown-bókum og hét í raun og veru Faðir O’Connor — sneri honum til kaþólskrar trúar. Danski heimspekingurinn og blaðamaðurinn Harald Nielsen hefir kallað hann nýtízku aftur- haldsmann. Ernst Wigforss, sem á æskuárum sínum gaf út rit um hann, kallaði hann róttækan afturhaldsmann. Báðar eru nafn- giftirnar vel til fundnar. Hann hefir sjálfur sagt svo frá, að alla heimspeki sína hafi hann lært af henni ömmu sinni gömlu. Hún samtvinnaði hið alþýðlega því, sem helgað var erfðavenjum. Þessa heimspeki, sem var „svo einföld, að jafnvel lærður maður mundi geta skilið hana,“ ver hann með stílblæ fyrir vand- fýsna gáfumenn og notfærir sér til þess hárfínustu töfrabrögð nútímarökvísi, sem út af fyrir sig er þversögn. Hann ber tak- markalausa fyrirlitningu fyrir vísindamönnunum, sérfræðing- unum. Þeir eru vitlausir, álítur hann. „Vitlaus er ekki sá, sem misst hefir skynsemi sína, held- ur sá, sem misst hefir allt nema skynsemina." Þeir þramma hring eftir hring eins og fábjánar eftir sínum eigin hugsanastíg. Þeir sitja í hringakandi neðanjarðar- brautinni og aka hring eftir hring, „án þess að geta innt af hendi hina frjálsu, orjcueyðandi og leyndardómsfullu athöfn að fara úr lestinni við Gower Street.“ Að betrumbæta slíkan ráðvilling er ekki að ræða við heimspeking, heldur að reka út djöfulinn. Hann hæðir skynsem- istrúarmennina fyrir að hungr- aðar sálir þeirra skuli ekki geta trúað á kraftaverk og yfirnátt- úrulega hluti, þar sem sú mergð er til af vitnisburðum manna um slíkt, að líkja má við löðrandi vatnsfall. Og ef menn geta ekki trúað vitnisburði annarra manna, þá ættu ekki heldur þeir, sem ekki hafa komið til Ameríku, að viðurkenna að hún sé þegar fundin. „Hið ljósa, greinilega og lýðræðislega er að reiða sig á eplasölukonu, er hún ber vitni í morðmáli. Þannig er það einnig einfalt og alþýðlegt," telur Chesterton, „að reiða sig á bónd- ann, þegar um draugasögu er að ræða, nákvæmlega að jafnmiklu leyti og menn reiða sig á orð hans, er hann ræðir um herra- garðseigandann. Menn geta hliðrað sér hjá að trúa, annað hvort vegna þess, að maðurinn er bóndi eða vegna þess, að sag- an er draugasaga. Af því leiðir, að annað hvort afneita menn aðalgrundvallaratriði lýðræðis- ins eða þeir veita viðtöku helztu grundvallarkenningu efnishyggj- unnar — hinum hversdaglega ómöguleika dásemdarverksins.“ Það voru ekki aðeins guðsaf- neitarar, sérfræðingar og skyn- semistrúarmenn, sem sérleg ó- beit Chestertons beindist að. Hann tók einnig afstöðu gegn tveim viðurkenndum höfuðand- stæðingum, sem sé sósíalistum og kapítalistum. Hvorir tveggja réðust að eignarréttinum, eignar- rétti hins umkomulitla manns; sósíalistarnir með því að fá hann í hendur ríkinu; kapítalistarnir með því að ásælast eignir ann- arra. Fleiri stefnubundnir menn voru skráðir á aftökulista hans, svo sem heimsvaldasinnarnir og þó öðru fremur þeir, sem hann kallar „mannvinina,“ og það eru hinir framsæknu menn hinna nýjustu aðferða, þeir, sem vilja éta gras og banna mönnum að drekka vín. Um vin sinn og deilu bróður, Bernard Shaw, segir hann: „Herra Shaw skilur það ekki, að það, sem í okkar augum er dýrmætt og þess vert, að því sé unnað, er einmitt manneskjan — hin gamla ölkæra, kreddu- skapandi, stríðandi, fallandi, munaðargjarna, virðingarverða manneskja.“ Hann teflir fram manninum úr hópi alþýðunnar gegn yfirstéttinni í hvaða mynd sem er. Dickens var meistari hans í bókmenntunum og „mesti heiður hans var sá„ að hann kunni ekki að lýsa „gentle- manni“.“ Hin góðviljaða kenn- ing: „Það er ómögulegt að hata nokkurn hlut að undanteknum hugmyndum,“ var Chesterton meira virði en allt annað, en hann prédikaði líka stórkostlega um listisemdir þessa heims. Lífið var honum kyndugt ævintýri, og hann vildi ganga fram og hrópa til hópsins alls, hinna margvís- legu fábjána, sem ganga án af- láts hina litlu og mjóu hring- stíga sína: „Reynið eitt einasta örvita andartak að ímynda ykk- ur, að grasið sé grænt!“ Hann segir ekki, eins og flestir pré- dikarar, að án kristindómsins verði heimurinn bágborinn eða vondur eða tilgangslaus eða inni- haldslaus; hann segir það, sem ætlast er til að hafi langtum sterkari áhrif á þann, sem talað er við; sem sé, að án kristin- dómsins sé ekki gaman að lifa í heiminum. Enn ein áreiðanleg tíma- ákvörðun er til úr ævisögu Chestertons; hann dó 14. júní 1936, og Pacelli kardínáli, sem nú er páfi, gaf honum heiðurs- titilinn „talsmaður trúarinnar." Þá tók hann síðustu bifreiðina upp til lífsins eilífa, sem honum var ómögulegt að skilja, að hver einasta manneskja skyldi ekki trúa á, þar sem svo miklum mun auðveldara var að lifa lífinu með þeim hætti. Faðir hans og okkar allra kvað hafa orðið undrandi yfir því, að svo fyndinn karl skyldi sleppa inn um Gullna hliðið. —Heimilisblaðið COPENHAGEN Bezta munntóbak heimsins Kaupið Lögberg SPYRJIÐ HVERN, SEM ER f WINNIPEG NORTH CENTRE Maðurinn, sem allir greiða atkvæði er STANLEY KNOWLES C.C.F. þingmaður yðar, sem kemur hlutum í framkvæmd Minnist þess að merkja kjörseðilinn með krossi. Authorized by Howard McKelvey, Official Agent SAMFERÐA ÞRÓUNINNI . . . Nú á dögum nota bankaþjónar mikið af vélum við reikningshald hinna nálega 9,000,000 innstæðna. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því, að þeim reynist kleift, að fullnægja hinum sívaxandi kröfum sífjölgandi viðskiptavina . . . og annast um innstæðureikninga yðar af sömu nákvæmni. Síðan 1900 hefir tala bankaþjóna vaxið úr nokkrum þúsundum upp í 48,000 . . . fjöldi ávísana nema um 1,000,000 á dag. BANKARNIR ÞJÓNA BYGÐARLÖGUM YÐAR

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.