Lögberg - 20.08.1953, Qupperneq 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 20. ÁGÚST, 1953
NÚMER 34
LIBERALAR VINNA GLÆSILEGAN KOSNINGASIGUR
Rl. Hon. Louis Sl. Laurenl
Liberalar urmu glæsilegan sigur í
sambandskosningunum hinn 10 þ.m.
Fiskimólanefnd
skipuð
Svo sem búist var við, hefir
fylkisstjórnin í Manitoba skipað
fiskimálanefnd til þess að íhuga
væntanlegar úrbætur varðandi
fiskiðnaðinn, sem hefir átt við
ramman reip að draga og það
svo mjög, að til raunverulegra
vandræða hefir horft, og mun
því eigi af veita, að teknar verði
róttækar ákvarðanir þessum
mikilvæga atvinnuvegi til við-
reisnar, en hann grípur djúpt
inn í efnalega afkomu fjölda Is-
lendinga í þessu fylki; nefndin
er þannig samsett og eru þessir
úr hópi þingmanna: M. N.
Hryroczuk, Ethelbert; Chris
Halldórson, St. George; F. L.
Jobin, Flin Flon; George P.
Renouf, Swan River; Donovon
Swailes, Winnipeg; H. P. Shew-
man, Morris, og Dr. S. O.
Thompson, Gimli; í meðráða-
nefnd eiga sæti Paul Olson,
Gimli, fyrir hönd fiskimanna við
Winnipegvatn; Victor Westdal
af hálfu fiskimanna við Mani-
tobavatn; Peter Bilanduk, Win-
nipegosisvatn, og Barney Bald-
winson, Thicket Portage, fyrir
norðurvötnin. T. Edmundson
skipar sæti vegna Hudson’s Bay
Company, af hálfu smásala, en
Mrs. Christine White fyrir hönd
neytendafélagsins.
Við nýlega astafnðar kosning-
ar til sambandsþings urðu úr-
slitin á þann veg, að Liberal-
flokkurinn undir forustu Mr. St.
Laurents, vann glæsilegan kosn-
ingasigur og hlaut 171 þingsæti;
íhaldsflokkurinn kom að 50 þing-
mönnum, eða tveimur fleiri en
í kosningunum 1949. Allir ráð-
herrarnir náðu endurkosningu.
C.C.F.-flokknum græddist nokk-
uð fylgi, einkum í Saskatchewan,
og ræður hann nú yfir 23 þing-
sætum. Kommúnistar höfðu 100
frambjóðendur í kjöri og töpuðu
þeir allir tryggingarfé sínu.
Social Credit-sinnar otuðu fram
8 þingmannefnum í Manitoba og
af þeim töpuðu 7 tryggingarfé.
í Selkirk var kjörinn R. J.
Wood með 199 atkvæðum um-
fram aðalkeppinaut sinn, Mr.
Bryce, C.C.F.
R. J. Wood, M.P.
Af hálfu fiskifélaganna eiga
sæti í nefndinni G. F. Jónasson
forstjóri Keystone Fisheries
Limited og Axel Barbour for-
stjóri Booths Fisheries, Winni-
peg, en fyfir hönd fiskpökkunar-
manna. S. V. Sigurdson, forstjóri
Sigurdson Fisheries, Riverton.
Meðlimir fyrir hönd náttúru-
fríðindadeildarinnar eru þeir
Sigurbjörn Sigurdson og B.
Stephanson.
Það hefir verið tilkynt, að
meðlimir aðalnefndarinnar heim
sæki við fyrstu hentugleika meg-
in verstöðvar innan vébanda
fylkisins og eigi því næst fundi
með meðráðanefndinni.
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
2. ÁGÚST
Ægilegar slysfarir
Nýverið gerðust slík umbrot af
völdum náttúruhamfara á ey
nokkurri í Jóniskahafinu skamt
undan ströndum Grikklands, að
óttast var um að hún sykki í sæ,
en svo alvarleg urðu þó afdrifin
ekki; um manntjón ’er enn eigi
nákvæmlega vitað að öðru leyti
en því, að víst er að um 700
manns týndu lífi og að hátt á
fimmtánda hundrað varð fyrir
meiri og minni meiðslum; marg-
ar þjóðir sendu her til eyjar-
innar með það fyrir augum, að
halda uppi lögum og reglu, auk
þess sem send voru þangað
kynstrin öll af matvælum og
allskonar sjúkraútbúnaði; hafði
Rauði Krossinn með höndum
dreifingu þeirra birgða, er
komnar voru.
Vikuna sem leið var bjartviðri
um mestan hluta landsins, hlýtt
í veðri og afbragðs þurrkur.
Sums staðar hafa bændur jafnvel
slegið seinni slátt og hirt í hlöðu.
Grasvöxtur er mjög mikil og
spretta garðávaxta góð. Fólk er
farið að taka upp kartöflur sér
til matar og er það óvenju-
snemmt og hefur talsvert af
nýjum kartöflum borizt á mark-
að í Reykjavík.
☆
Síldveiði hefur verið sæmileg
að undanförnu. Fyrra laugardag
um miðnætti nam heildarsöltun
á landinu öllu röskum 90.000
tunnum, en á sama tíma í fyrra
var heildarsöltun 2.600 tunnur.
Bræðslusíld var um fyrri helgi
orðin rúm 45.000 mál, og frystar
höfðu verið rúmlega 4600 tunnur.
Að minnsta kosti 146 skip voru
þá komin til veiða á miðunum
fyrir norðan og austan land og
höfðu fengið 500 mál og tunnur
og þaðan af meira, en á sama
tíma í fyrra höfðu aðeins 38 skip
náð því marki. Fjögur skip voru
með meira en 3000 mál og tunn-
ur, og aflahæsta skipið var Jör-
undur frá Akureyri með 3600
mál og tunnur, og hann hefur
bætt miklu við síðan.
☆
í vikunni sem leið var talsverð
síldveiði, eins og áður var sagt,
og mikið saltað flesta daga vik-
unnar, en sums staðar háir fólks-
ekla. Stundum var mikil þröng
á söltunarstöðvunum svo að
mörg skip komu afla sínum að-
eins í bræðslu og sum urðu að
Framhald á bls. 8
Glæsilegt
íþróttasvið
Síðastliðinn fostudag var tekið
til afnota hér í borginni um-
fangsmikið og glæsilegt íþrótta-
svið (Stadium), er teljast má ein
hin mesta borgarprýði; er lýsing
öll svo vel úr garði gerð, að um
hánótt er alt sem dagbjart væri;
feykilegur mannfjöldi var við-
staddur athöfnina og var þar
samankomið margt stórmenna á
vettvangi bæjar- og fylkismál-
efna; hátíðin fór fram undir um-
sjá Shriners-reglunnar og rann
ágóðinn af samkomunni í spítala
sjóð fatlaðra barna.
To the Far East
Vinnur sér íþrótta- og nómsframa
Allan Fredriksson
Allan B. Frederiksson, son of
Rev. and Mrs. . Fredriksson of
Glenboro, Man., has been called
to the far east, Japan and Korea.
Allan has taken two years of
college at the North Dakota
School of Forestry at Battineau,
N. D. He was called to service in
the U. S. army last fall and has
completed a course of field train-
ing and field artillery leader’s
course in the fifth armored di-
vision at Camp Chaffee, Ark.
Out of 57 who took the course,
Allan stood third. He is called to
serve from nine to sixteen
months overseas. On his return,
he intends to finish his education
at the University of Denver. He
is vacationing with his parents
at Glenboro.
J. Fredriksson
Alkunnugt er það, hver áherzla
er lögð á íþróttir á amerískum
háskólum. Er það því algengt,
að námsmenn þeirra geti sér
mikið orð fyrir fræknleik í einni
eða fleiri íþróttagreinum; hitt er,
hins vegar, sjaldgæfara, þó að
þess séu mörg dæmi, að hinir
fremstu íþróttamenn háskólanna
séu námsmenn að sama skapi.
Það verður þó með sanni sagt um
Kenneth Jóhannson, er 9. júní
síðastliðinn útskrifaðist af ríkis-
háskólanum í Norður Dakota
(University of North Dakota), og
bæði hafði verið einhver allra
snjallasti hoc£ey-leikari, sem
háskólinn hefir átt á að skipa,
og jafnframt reynst ágætur
námsmaður.
Kenneth Jóhann Jóhannson,
því að svo heitir hann fullu
nafni, er fæddur 6. okt. 1930 í
Ednmnton, Alberta, sonur þeirra
Jóhanns T. Jóhannson (d. 1948)
og fyrri konu hans, Þuríðar Mag-
núsdóttur Sigurðssonar, hins
góðkunna fræðimanns að Storð í
Nýja-íslandi. En Thelma, stjúp-
móðir Kenneths, er gengið hefir
honum í móðurstað, er dóttir
hins kunna athafnamanns, Árna
Eggertssonar fasteignasala.
Kenneth hlaut miðskóla-
menntun sína í Edmonton, stund-
aði síðan nám á ríkisháskólanum
í Norður Dakota um fjögurra
ára skeið, og brautskráðist þaðan
nú í júníbyrjun, eins og fyrr
getur. Hlaut hann menntastigið
„Bachelor of Science in Educa-
Ávarpsorð G. L. Jóhannsonar
ræðismanns
á íslendingadeginum á Gimli,
3. ágúst
Herra forseti, virðulega
Fjallkona, Campbell forsætis-
ráðherra, aðrir góðir gestir og
íslenzkir samferðamenn:
Mér er það sérstakt ánægju-
efni, að vera viðstaddur þennan
fjölmenna mannfögnuð hér í dag
og flytja ykkur hjartfólgnar
árnaðaróskir forseta íslands, ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar og ætt-
þjóðar okkar í heild; á hátíðleg-
um stundum sem þessari, hverfa
fjarlægðirnar og við sameinumst
öll um „upprunans heilögu glóð.“
Nú verða senn liðin áttatíu ár
frá þeim tíma, er öndvegissúlum
íslenzku frumherjanna skolaði á
land við Víðinegtangann í ná-
munda við þennan vingjarnlega
bæ; frá þeim tíma hefir af eðli-
legum ástæðum djúptæk breyt-
ing orðið á kjörum og lífsvið-
horfi íslenzka kynstofnsins hér
um slóðir; flestir landnemanna
hafa nú safnast til feðra sinna
eftir merkilegt brautryðjenda-
starf og nú eru það niðjar
þeirra, sem erfðu landið, sem
halda dag þennan hátíðlegan, og
gera vafalaust lengi k enn; þar
sem mannrækt og óðalsrækt fall-
ast í faðma skapast umhverfi, er
fegrast þess meir, sem ár og aldir
líða.
íslendingadagurinn er þjóð-
ræknisleg stórhátíð, sem styrkir
oss í trúnni á eilífðargildi ís-
lenzkrar tungu og hvetur til
samtaka um fullvernd hennar í
hinu vestræna dreifbýli; í þessu
efni er ekki um neina fórn að
ræða, heldur sjálfsagða skyldu.
Ég vil grípa þetta tækifæri til
að bjóða velkominn prófessor
Finnboga Guðmundsson og far-
fuglahópinn, sem hann safnaði
saman og fór með til íslands í
öndverðum júnímánuði síðast-
liðinn, og ég vona, að með þess-
ari ferð hefjist nýtt tímabil til
eflingar hinu menningarlega
sambandi milli íslendinga vest-
an hafs og austan. Ég vil enn-
fremur eigi láta hjá líða að fagna
séra Einar Sturlaugssyni, sem nú
hefir í fyrsta skipti sótt okkur
heim; hann er okkur aufúsu-
gestur og kunnur af hinni höfð-
inglegu blaða- og tímaritagjöf
til Manitobaháskólans; og síðast
en ekki sízt, vil ég bjóða vel-
kominn hinn mikla trúnaðarvin
íslenzkrar menningar, prófessor
Watson Kirkconnell, sem allir
íslendingar standa í svo djúpri
þakkarskuld við.
Að svo mæltu óska ég íslend-
ingadeginum og öllum öðrum
þjóðræknissamtökum o k k a r
blessunar í bráð og lengd.
Mr. Chairman, Ladies and
Gentlemen:
As Consul of Iceland it is my
privilege and pleasure to extend
to this magnificent gathering
sincere greetings and good
wishes from the President and
Government of Iceland coupled
with the hope that the Icelandic
people may for many years to
come honor with joy and re-
spect their cultural heritage.
Wishing you one and all a happy
day.
Kenneih Jóhann Jóhannson
tion and Bachelor’s Diploma in
Teaching.“ Aðalnámsgrein hans
var íþróttafræði („Physical
Education”), en náttúruvísindi
aukagrein. Útskrifaðist hann
með heiðri í sérgrein sinni og
hlaut einnig ágæta aðaleinkunn.
Er það þeim mun frásagnarverð-
ara, þegar í minni er borið, að
hann vann að miklu leyti fyrir
sér jafnframt námi sínu.
Á háskólaárum slnum varð
Kenneth fljótt kunnur fyrir
mikla frækni sína í hockey-leik,
enda var hann síðasta skólaár
sitt kjörinn formaður hockey-
leikflokks háskólans; fluttu bæði
hið víðlesna dagblað í Grand
Forks (Grand Forks Herald) og
vikublað háskólans, sem og mörg
önnur blöð, margar frásagnir um
snjallan leik hans, og töldu hann
framarlega í hópi hockey-leik-
ara meðal háskólastúdenta í
Bandaríkjunum. Hann var einn-
ig knattspyrnumaður góður. En
eins og einkunnir hans sýna, sló
hann þó eigi slöku við námið.
Hlaut hann að verðleikum á
háskólaárum sínum margvísleg-
ar heiðursviðurkenningar. Var
meðal annars kosinn félagi í
heiðursfélagi þeirra námsmanna,
er íþróttafræði stunda; einnig
einn af 15 úr flokki hinna mörgu
stúdenta, sem brautskráðust
samtímis honum, er kjörnir
voru í “Who’s Who” háskóla-
stúdenta; og ennfremur kosinn
félagi í “Blue,” en þann heiður
hljóta þeir einir, sem staðið hafa
sig óvenju vel í námi og verið
jafnframt forustumenn í félags-
lífi háskólastúdenta. En Kenneth
hafði bæði verið forseti Fulltrúa-
ráðs sambýlishúsa stúdenta
(President Inter-Fraternity
Council) og vara-forseti árgangs
síns (Senior Class) á háskólan-
um. Ber það einnig vitni þeim
víðtæku vinsældum, sem hann
átti að fagna innan háskólans og
utan.
Er hann um allt hinn mesti
efnismaður, prúður og hægur í
framkomu, en þéttur fyrir, þegar
því er að skipta. Sýndi það sig
hvorttveggja í hockey-leik hans,
því að hann háði leikinn af
miklu kappi, en jafnframt svo
drengilega, að oft var til þess
tekið í blaðafrásögnum.
Fylgja Kenneth, er hann hefir
nú lokið háskólanámi sínu, góð-
hugur og heillaóskir kennara
hans og skólafélagaf og fjöl-
margra annarra, sem honum
hafa kynnst. Landar hans mega
vera hreyknir af íþróttafrækni
hans og námsferli á háskólaárun-
um. En vel er þegar atgervi
handa og anda fylgjast að.
RICHARD BECK