Lögberg - 29.10.1953, Page 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 29. OKTÓBER, 1953
Lögberg
Ritsíjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefiö út hvern fímtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrlft rltstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SAROENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 74-3411
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The 'Lögberg" is printed and published by The Columbia Preso Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manltoba, Canada
Authorized as Second Class Mall, Poet Office Department, Ottawa
Safnaðarafmælið
Þessa dagana standa yfir vegleg hátíðahöld í tilefni af
75 ára afmæli Fyrsta lúterska safnaðar og hófust þau með
tilkomumikilli útvarps guðsþjónustu kl. 11 f. h. á sunnu-
daginn var; sóknarpresturinn, séra Valdimar J. Eylands
prédikaði; einsöngvarar voru Mrs. Lincoln Johnson og Mr.
Alvin Blöndal og tókst þeim báðum hið bezta til. Kirkju-
kórinn var vel æfður undir öruggri forustu Mrs. E. A.
Isfeld, er var við hljóðfærið; þessi inngangsþáttur hátíða-
haldanna setti á þau virðulegan svip.
Winnipeg var smábær, er Fyrsti lúterski söfnuður hóf
göngu sína og Manitobafylki í raun og veru í bernsku; það
voru íslenzkir frumherjar, menn og konur, er grundvöll
lögðu að söfnuðinum og var þá landnám þeirra hér um
slóðir aðeins fimm ára gamalt; þeim var umhugað um að
með stofnun safnaðarins yrði ekki tjaldað til einnar nætur
og sú hefir einnig orðið raunin á; nú er þessi söfnuður orð-
inn langfjölmennasti lúterskur. söfnuður vestan vatnanna
miklu, og telur, að því er nýlega hefir upplýst verið, hátt á
nítjánda hundrað meðlimi.
A sunnudagskvöldið fór fram í kirkju safnaðarins
glæsileg og afarfjölsótt samkoma, er eigi munu færri sótt
hafa en á áttunda hundrað manns; hófst hún með lestri
pistils og guðspjalls og fögrum söng; einsöngvari var Miss
Lilja Eylands, er mjög hefir þroskað rödd sína og tóntúlkun
upp á síðkastið.
Mikla og almenna hrifningu þá um kvöldið vakti sér-
stök viðhöfn undir forustu Dr. W. C. Graham skólastjóra
við United College, er þá sæmdi séra Valdimar J. Eylands
formlega heiðursdoktorsnafnbót í guðfræði með þar að
lútandi hátíðabrigðum. Dr. Graham flutti snjalla og hlý-
yrta ræðu, mintist íslenzkukennslunnar við Wesley College
og þeirra mörgu íslenzku nemenda, er þar gátu sér fræðar-
orð; þá fór hann heldur eigi síður vingjarnlegum orðum
um þá ágætu menn, sem kent höfðu íslenzkuna við áminsta
mentastofpun; hér var um •skrautlega athöfn að ræða, þar
sem doktorar og kennimenn voru í einkennisskrúða; það
var ekki einasta að séra Valdimar væri mikill sómi sýndur
með doktorskjörinu, heldur og Fyrsta lúterska söfnuði og
íslenzka mannfélaginu 1 heild.
Fagrar og hlýjar kveðjur fluttu presti og söfnuði Dr.
Rúnólfur Marteinsson, séra H. S. Sigmar, Gimli, séra
Philip M. Pétursson, Winnipeg, Dr. Richard Beck, Grand
Forks, Miss M. Halldórsson, er afhenti hinum nýja doktor
splunkunýja prestshempu, en að lokum flutti forseti safn-
aðarins Victor Jónasson hlýleg ávarpsorð og árnaði presti
og söfnuði framtíðarheilla.
Dr. Valdimar stýrði sínum hluta þessa eftirminnilega
mannfagnaðar með góðri háttlægni og rögg.
Fyrsti lúterski söfnuður hefir frá upphafi vega sinna
notið forustu mikilhægra kennimanna, svo sem þeirra Dr.
Jóns Bjarnasonar, Dr. Björns B. Jónssonar og nú síðustu
fimtán árin Dr. Valdimars, sem er mikill gáfumaður, snjall
kennimaður og mælskur vel.
Hátíðahöldin vegna safnaðarafmælisins halda áfram
fram í vikulokin og verða næsta fjölbreytt.
☆ ☆ ☆
Rödd frá íslandi
Eins og þegar hefir verið skýrt frá, eiga íslendingar í
Winnipeg og víða út um íslenzku bygðarlögin þess nú brátt
kost að hlýða á kærkomna rödd frá Islandi, en með þessu er
átt við söngkonuna frú Guðmundu Elíasdóttur, er heldur
með aðstoð Þóru Ásgeirsson — du Bois söngskemtun í
Fyrstu lútersku kirkjú á þriðjudagskvöldið hinn 3. nóvem-
ber næstkomandi.
Frú Guðmunda kemur hingað á vegum Þjóðræknis-
félagsins, og ber það að meta, er félagið beitir sér fyrir um
auknar menningarlegar samgöngur milli Islendinga austan
hafs og vestan; söngmenning er mikilvægur uppeldisþáttur
í lífi hvaða þjóðar, sem er, og víst er um það, að í þessum
efnum, eins og reyndar á svo mörgum öðrum sviðum, hefir
fsland tekið risavöxnurn framförum síðustu áratugina.
Vestur-íslenzka mannfélagið fagnar yfir því, að eiga
þess kost að kynnast frú Guðmundu og hlusta á fagra rödd
hennar, því um hæfni hennar á vettvangi hinnar fögru
listar sinnar verður eigi efast, eins og ráða má ljóst af
blaðadómum um söng hennar, sem Lögberg hefir þegar
birt.
Landbúnaðurinn í Rússlandi
Búpeningseign Sovéiríkjanna er nú miklu minni en hún var 1928
Síðastliðinn sunnudag var birt
í Moskvu yfirlýsing þess efnis,
að miðstjórn kommúnistaflokks-
ins hefði á nýloknum fundi
sínum ákveðið að auka stórlega
landbúnaðarframleiðsluna, þar
sem hún hefði verið gerð horn-
reka á ýmsan hátt á undanförn-
um árum. 1 ýfirlýsingu þessari
sagði ennfremur, að miðstjórnin
hefði falið Nikita Khrusheff að
hafa yfirstjórn landbúnaðar-
málanna með höndum, en jafn-
hliða hefði hann verið skipaður
aðalritari Kommúnistaflokksins.
Malenkoff lét af aðalritara-
starfinu, þegar hann varð for-
sætisráðherra, en enginn aðal-
ritari var skipaður í hans stað,
heldur fimm ritarar, sem taldir
voru jafnir að völdum. Nú hefir
þessu verið breytt þannig, að
Khrusheff hefir verið gerður
aðalritari flokksins og þar með
mesti valdamaður hans. Þykir
þetta og annað benda til þess,
að hann gangi nú næst Malen-
koff að völdum, en þeir eru
tengdir, þar sem Malenkoff er
giftur systur Khrusheffs. Sú
breyting hefir líka orðið eftir
fall Bería, að rússnesku blöðin
nefna nöfn þeirra Malenkoffs og
Khrusheffs orðið miklu oftar en
nöfn annarra valdamanna Sovét
ríkjanna, en fyrst eftir fráfall
Stalíns virtust þau hafa fyrir-
skipun um að gera helztu valda-
mönnum Sovétríkjanna jafnt
undir höfði í þessum efnum.
Þykir þetta sýna, að Malenkoff
og Khrusheff séu að styrkja
völd sín í flokknum og þurfi nú
ekki aðra keppinauta að óttast
en hershöfðingjana.
Hnignun landbúnaðarins
Sama daginn og áðurnefnd
yfirlýsing var birt, fluttu
Moskvublöðin greinargerð þá
um landbúnaðarmálin, sem
Khrusheff hafði birt á mið-
stjórnarfundinum. I greinargerð
þessari segir, að efling stóriðn-
aðarins hafi haft forgangsrétt á
undanförnum árum og landbún-
aðurinn á margan hátt orðið út-
undan. Afleiðingin sé sú, að
honum hafi á margan hátt
hnignað seinustu árin, einkum á
sviði kvikfjárræktarinnar. Kvik
fjáreign Sovétríkjanna sé nú
t. d. minni en hún var 1928.
Landbúnaðarframleiðslan sé því
alltof lítil til þess að fullnægja
þörfum landsmanna og sé því
óhjákvæmilegt að efla hana. Þá
er rekstur landbúnaðarins á
margan hátt gagnrýndur og tal-
in þörf margvíslegra endurbóta
á því sviði.
Varðandi búfjáreign Sovét-
ríkjanna kemur þetta m. a. fram
í sambandi við skýrslu Khru-
sheffs:
Árið 1928 voru nautgripir
taldir 70,5 milj., en tala þeirra
nú (1. júlí) er 61,6 milj.
Árið 1928 voru mjólkandi kýr
taldar 30,7 milj., en tala þeirra
nú (1. júlí) er 27 milj.
Árið 1928 voru kindur og
geitur taldar 146,7 milj., en nú
(1. júlí) eru þær taldar 130 milj.
Árið 1928 voru svín talin 26
milj., en eru nú (1. júlí) .29
milj.
Til samanburðar má geja þess,
að 1928 var íbúatala Sovrétríkj-
anna 150 milj., en nú er hún
215 milj.
Fækkun búfjársins er raunar
mun meiri en framangreindar
tölur sýna, þar sem Sovétríkin
hafa í stríðslokin innlimað stór
landssvæði, sem ekki heyrðu
undir þau 1928. Búnaðarskýrsl-
ur þá náðu því til mun minna
landssvæðis en nú.
1 skýrslu Khrusheffs kemur
það m. a. fram, að á síðastliðnu
ári einu hefir nautgripum fækk-
að um 2,2 milj., þar af eru
mjólkandi kýr um 500 þúsund.
Barálta Stalins við
bændastéttina
Þær tölur, sem eru greindar
hér að framan, fela vissulega í
sér þungan áfellisdóm um bú-
skaparhættina í Sovétríkjunum
í stjórnartíð Stalíns. Að vísu
fækkaði búpeningi óeðlilega
mikið á stríðsárunum. En fækk-
unin kemur engan veginn öll á
þann tíma. Búpeningseignin var
stórum minni 1939 en hún var
1928. Eftir styrjöldina hefir
minni en eðlilegt getur talizt.
Ástæðan til þess, að kvikfjár-
ræktin heLr dregizt jafn mikið
saman á þessu tímabili og raun
ber vitni um, felst fyrst og
fremst í breytingum þeim, sem
Stalín lét gera á rekstrarhátt-
unum.
Lenin gerði sér þ%ð ljóst, að
ætti byltingin ekki að mistakast,
yrðu kommúnistar að vinna sér
hylli bændanna. Þess vegna
vék hann frá hinni kommúnis-
tísku ríkisrekstrarstefnu á sviði
líka aukning hennar orðið miklu ! landbúnaðarins. Jarðeignum var
skipt milli bænda og þeir urðu
eigendur jarða sinna. Þessi
skipan hélst fyrstu árin eftir
fráfall Lenins. Það var fyrst
eftir að Stalín hafði fest sig í
sessi, er hann hóf baráttu sína
fyrir ríkisbúum og samyrkju-
búum. Markmið hans var að
uppræta bændastéttina til fulln-
ustu og gera hana að verkalýð,
hliðstæða verkalýð bæjanna.
Bændur voru sviptir eignum
sínum og ýmist gerðir að verka-
mönnum á hinum nýju ríkis-
Framhald á bls. 8
Kruchev — hin nýja stjarna Rússlands
Hann tapaði í barállunni við
rússneska bændur — en gaf
Malenkov systur sína
Nikita Krushev var skipað-
ur aðalritari rússneska
kommúnistaflokksins í síð-
ustu viku og komust þá
þegar á kreik ýmsar sögur
þess efnis, að hann væri nú
að bola Malenkov mági sín-
um frá völdum og hyggðist
taka við stöðu hans, ekki
sízt þar eð nú hefir Bería
verið hreinsaður og æ
minna virðist bera á Molo-
tov. En nú er spurningin:
Hver er þessi Kruchev eigin
lega? Er sennilegt að marg-
ir hafi hug á að vita það,
því að fylgzt er með leiðtog-
um Sovétríkjanna sem
væru þeir aðalpersónur í
einhverri leynilögreglusög-
unni. — Oð hver hefir ekki
gaman af leynilöreglu-
sögum?
Enginn veit með vissu, hvaða
orðrómur á við rök að styðjast,
þegar Kreml er annars vegar.
Hms vegar vitum við, að sem
stendur er samvinna með þeim
Malenkov, Molotov og Kruchev
— og í Sovétríkjunum er nú
samstjórn margra manna. Hafa
kommúnistablöðin lagt mikla
áherzlu á þá staðreynd, enda
hefir einskis eins manns verið
getið sem forystumnans Ráð-
stjórnarríkjanna. Einnig vitum
við, að leiðtogarnir sitja á svik-
ráðum hver við annan; það
sýndi fall Bería. Allt bendir til
þess, að allir reyni Sovétleiðtog-
arnir að ná einræðisvaldi, eins
og Stalín forðum.
Hafa slarfað lengi saman
Allan þann tíma, sem Malen-
kov og Kruchev hafa starfað
saman, hefir verið ómögulegt að
merkja neina valdastreytu eða
mikilvægar deilur milli þeirra.
Þeir hafa gegnt ólíkum embætt-
um; auk þess eru þeir tengdir á
annan hátt: Malenkov er kvænt-
ur systur Kruchevs, Helenu,
sem einu sinni var fræg príma-
donna við Moskvuóperuna.
Þegar Malenkov var einkarit-
ari Stalíns og skipulagði iðnað
Sovétríkjanna, starfaði Kru-
chev að skipulagningu land-
búnaðar og Úkraníumálum.
Hann er sjálfur Úkraníumaður,
sonur fátæks verkamanns, er
lézt af slysförum í kolanámu
einni í Kalinovka; hann ólst upp,
eins og Vorisholov marskálkur,
á hinum víðáttumiklu sléttum
Rússlands, lifði einlífi hjarð-
sveinsins og lærði að meta nátt-
úru landsins. Hann gekk ungur
í fylkingar Rauðliða.
Á þyrnum siráðri braut
sljórnmálanna
Vorisholov gerðist hermaður
— en Kruchev fór þegar út á
hina hálu braut stjórnmálanna.
Hann tók snemma að kynna sér
skipulags mál ýmiss konar og
fékk það hlutverk á hendur að
breyta hinni miklu þjóðernis-
stefnu í Úkraníu og veita henni
í nýjan farveg kommúnista-
stefnunnar: í fyrstu voru komm-
únistaleiðtogarnir umburðar-
lyndir gagnvart hinum ýmsú
þjóðarbrotum Sovétríkjanna, en
á því varð skjótt stefnubreyting.
Slcjólur frami
Kruchev hafði lánið með sér.
Hann hækkaði smátt og smátt í
tign, fluttist til Moskvu fyrir
1930, gekk þar um tíma í iðnað-
arháskóla og gerðist foringi
stúdentanna, er þeir skipuðu
sér undir merki Stalíns í baráttu
hans við þá Bukharin og
Trotsky .Eftir hreinsanirnar
hækkaði hann skjótlega í tign,
varð undirmaður Kaganovitch,
sem þá skipulagði iðnaðar- og
járnbrautarmál Rússlands og
síðar tók hann við starfi hans
sem yfirmaður kommúnista-
flokksdeildar Moskvuhéraðs. —
Meðal annars má geta þess, að
Kruchev er frumkvöðull hinnar
miklu neðanjarðarbrauta í
Moskvu, sem mikið hefir verið
lagt í af dýrindis skrauti til þess
að villa ferðamönnum sýn: Þær
eru andstaðan við hin fátæklegu
hreysi rússneskra alþýðufjöl-
skyldna.
Sendur á veitvang
Þegar Stalín og Hitler skiptu
Póllandi bróðurlega á milli sín
1939 var Kruchev sendur á
vettvang til þess að innlimunin
færi fram á sómasamlegan hátt
og hinir nýju Sovétborgarar —
fyrrum Pólverjar — „hoppuðu
inn í“ Sovétsamveldið þegjandi
og hljóðalaust. — Og nú notaði
Kruchev aftur fyrri aðferðir,
umburðarlyndi og sveigjanleika
í fyrstu, en síðan algera hlýðni
við stefnuna. Á þann hátt hafa
Rússar ætíð unnið í þeim lönd-
um, sem þeir hafa innlimað í
heimsveldi sitt. — En Rússar
fengu ekki frið í pólsku
Úkraníu: Heimsstyrjöldin skall
á og nazistaherirnir réðust
austur á bóginn. Það gerði strik
í reikninginn — og Kruchev
fékk ekki að ljúka við verk sitt.
En eftir 1945 fór hann aftur á
vettvang til að hefja verk sitt á
ný og bjarga því, sem bjargað
varð. í þetta skipti var hamingj-
an ekki hliðholl honum. Gífur-
legir þurrkar herjuðu um alla
Úkraníu næstu ár, fólkið fluttist
umvörpum á brott og hægt var
að aka tímum saman um hinar
miklu sléttur án þess að rekast á
nokkra hræðu. Var þá Kakano-
vitch sendur á vettvang. Stalín
gerði hann aftur að yfirmanni
Kruchevs og var hann það,
þangað til ástandið hafði lagast
mjög; þá var Kruchev settur í
fyrra embætti sitt og náði aftur
völdunum' í Úkraníu. —
Áætlun Kruchevs
Það var á þessum árum, sem
Kruchev fékk hinn gífurlega
áhuga sinn á landbúnaðarmál-
um og hafði hann mikil áhrif á
flokksbræður sína; hann vann
þá á sitt mál og fékk áætlanir
sínar og tillögur samþykktar. —
Voru þær í höfuðdráttum á þá
leið, að samyrkjubændur og
allir landbúnaðarverkamenn
skyldu búa í þorpum og bæjum
og fluttir í járnbrautarlestum til
og frá vinnustað.
Samyrkjubúskapurinn hefir
brugðizt
En áætlun Kruchevs mætti
gífurlegri mótspyrnu bæði land-
búnaðarverkamanna og bænda
— og svo fór að lokum, að Ráð-
stjórnin varð að forkasta henni.
Má af því sjá, hvílíkar viðtökur
hún fékk, því að kommúnista-
stjórnin er sannarlega ekki vön
því að láta alþýðuna ráða gerð-
um sínum. En í þetta skipti fór
þó svo, óánægja manna hrinti
stjórninni bókstaflega á flótta.
Síðan hefir áætlun Kruchevs
aldrei skotið upp aftur. Og meira
að segja er nú svo komið, að
Kruchev sjálfur hefir skipt um
skoðun, sem kunngerð var nú
ekki alls fyrir löngu. Sam-
kvæmt henni mega bændur jafn
vel stunda sjálfstæðan búrekst-
ur jafnhliða samyrkjubúskap. —
í fyrsta sinn hafa stjórnarvöld-
in ekki þorað annað en mæta að
nokkru hinum háværu kröfum
rússneskra bænda. Ástæðan er
ekki sízt sú, að samyrkjubú-
skapurinn hefir ekki uppfyllt
þær vonir, sem við hann voru
bundnar í upphafi.
—Mbl., 22. sept.
Þurfið þér að senda
peninga yfir
hafið?
Ssndið þá
• fljótt
• auðveldlega
• örugglega
Canadian
Pacific
EXPRESS
Erlendar greiðslur
Iiv;i8a Canadian Pacific skrifstofa, sem
er, sendir peninga fyrir yður til ættingja
eða viðskiptavina handan hafs. Fljðt
og ábyggileg afgreiðsla.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVIK