Lögberg - 14.01.1954, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. JANÚAR 1954
GUÐNIÞÓRÐARSON:
GRIMSBY—fiskibærinn á fljótsbakkanum,
þar sem útgerðarmenn róða
Sumir vilja siga hundum á íslendinga, en aðrir geyma
handa þeim peninga. — Einvaldarnir, sem héldu að íslend-
ingar myndu deyja. — Sjómannaíélög óþekkl í logara-
bænum. — Frú England með naínabók íslendinga
við búðarborðið.
Tiltölulega fleiri stúlkur sækja
húsmæðraskóla ó íslandí en á
nokkru hinna Norðurlandanna
,JÞ að væri réttast að siga
hundum á alla lslendinga“,
hvíslaði þjónninn í eyra mér,
þegar hann hafði fengið þjórfé
sitt að miðdegisverði loknum.
Œíann hafði komið auga á ís-
lenzka vegabréfið mitt milli
blaða í veskinu, þegar gjaldið
var fundið.
Þetta var í veitingasölu á
þriíalegum matstað niður við
höfnina í Grimsby,_þar sem yfir-
menn á brezkum togurum, fisk-
salar og útgerðarmenn eru dag-
legir gestir. „Já, siga þú þínum
hundum, en íslenzkir hundar
gelta ekki, þeir bíta. Vara þú
þig á þeim, lagsmaður og flýttu
þér til húsbónda þíns“.
Þannig var andrúmsloftið í
Grismby um það leyti, sem Ing-
ólfur Arnarson braut löndunar-
bannið.
En þetta er þó ekki rétt mynd
af,allri þeirri hlið, sem að Is-
lendingum snýr í Grimsby og
einkarlega annars staðar í Bret-
landi, en þessi hluti hennar er
samt óhugnanlega stór í mis-
jafnlega sterkum litum.
Það er sjaldgæft að fara með
strætisvagni, án þess að heyra
einhverja af farþegunum vera
að ræða um íslendinga. Sumir
eru innilega sammála og eiga
varla nógu.sterk orð til formæl-
inga, en aðrir eru ósammála og
deila fast. Oft gæti maður hald-
ið, að þar ræddust við íhalds-
menn og verkamannaflokks-
menn daginn fyrir kosningar og
væru báðir jafn ákveðnir að
snúa hinum á sitt mál. En þegar
betur er hlustað, er umræðu-
efnið hvorki Churchill eða
Attlee, heldur íslendingar og
Dawson.
Helmingi mannfleiri en
Reykjavík
Grimsby er um það bil helm-
ingi mannfleiri borg en Reykja-
vík, þó að borgarstæðið sé kann-
ske ekki stærra. Hún er ekki í
tölu elztu borga á Englandi og
fór ekki að byggjast verulega
fyrr en á síðustu öld, þegar fisk-
veiðarnar voru að flytjast norð-
ur með strönd Englands.
Þegar togaraútgerðin byrj-
aði, voru höfuðstöðvar hennar
í borgum suður undir Ermar-
sundi. En fiskurinn þvarr fljótt
á þröngum miðum þar og stærri
skip voru byggð til lengri sjó-
ferða. Þá komu Norðursjávar-
togararnir og síðan úthafstogar-
arnir, sem sendir voru alla leið
norður undir Færeyjar, ísland
og Noreg. En það var ekki að
ráði fyrr en um aldamót.
Grimsby hefir blömgast sem
stærsta og næststærsta fiskihöfn
Bretlands við hliðina á Hull.
Þessar tvær borgir við Humber-
fljótið urðu miðstöð togveið-
anna í Bretlandi, svo það er
ekkert undarlegt, að þar er að
finna helztu andstæðinga nýju
landhelgislaganna við Island.
Borgir þessar eru ennþá helztu
togarastöðvar hins brezka fisk-
veiðiflota og fisverzlunar í sam-
bandi við landanir.
Enginn ókunnugur getur í-
myndað sér þau ógnartök, sem
útgerðarmenn í Grimsby hafa á
samborgurum sínum. Þeirra lög
eru óskráð, en raunverulega
fara þeir með löggjafar- og
framkvæmdavald i borginni.
Þeir haga sér í öllu eins og
fullkomnir einvaldsherrar og
hafa búið til einfalt en áhrifa-
ríkt kerfi til að tryggja þá að-
stöðu sína. Sjómannafélög eru
óþekkt fyrirbrigði í Grimsby, og
á enskum togurum eru engin
ákvæði í heiðri höfð um hvíld
sjómanna. Algengast er að þeir
vinni 18 tíma á sólarhring við
fiskveiðar og aðgerð á höfum
úti, en það er líka venjulegast,
að þeir vinni samfleytt nokkra
sólarhringa án teljandi hvíldar,
þegar grimmlyndir skipstjórar
eru að ljúka veiðum og fylla
skipið til heimferðar.
Sjómenn eru að vísu meðlimir
í verkalýðsfélögum þeim, sem
ná til flutningaverkamanna. En
lítið virðast þau samtök Bevans
hins byltingasinnaða, hugsa um
hag togarasjómanna.
Almenningur óttast þá
Útgerðarmenn í Grimsby eru
það afl, sem almenningur óttast,
en virðir ekki nema takmarkað,
því marga langar til að fara þar
að dæmi íslendinga og brjóta
vald þeirra á bak aftur. Þess
vegna eiga íslendingar óskipta
samúð margra bæjarbúa, sem
langar til að sjá, hvernig út-
gerðarmenn verða að láta í
minni pokann í fyrsta sinn. En
sú samúð fer ekki hátt.
Annars voru þessir höfðingjar
í einveldisstól sínum niður við
höfnina alveg undrandi þessa
dagana. Það er í fyrsta sinn, sem
kerfi þeirra bilar. Þeir voru
búnir að banna íslendingum að
stækka landhelgina, en þeir
gerðu það samt. Slíkt hefði eng-
inn Grimsbybúi þorað og nú
varð að láta alla sjá, að einveldi
útgerðarmanna í Grimsby stæði
föstum fótum.
Þess vegna gáfu þeir einn góð-
an veðurdag út tilskipun um, að
íslenzkum fiski skyldi ekki land-
að í Bretlandi. Þeir fóru ekki
dult með það, að þetta þýddi
sama og segja íslendingum að
svelta. En hvað skeður. Islend-
ingar landa ekki fiski í meira
en ár, en halda samt áfram að
lifa. Þeir komu meira að segja á
máluðum og vel til höfðum skip-
um, og skipverjar eru glaðir og
kátir.
Hvað hafði skeð? Það vita út-
gerðarmenn ekki, en þetta er í
fyrsta sinn, sem einvaldsskipu-
lagið bilaði. Og svo landa þeir
fiski, eins og útgerðarmenn séu
ekki til og einskisvirða valdboð
þeirra.
En svo eru það aðrir, sem
fagna. Verzlunarfólkið í Grimsby
var orðið langeygt eftir íslenzku
drengjunum, því engir voru
betri viðskiptavinir.
Þegar komið er inn 1 skóbúð
langt uppi í borg, segir afgreiðslu
maðurinn: Meðal annarra orða,
eruð þér norskur eða sænskur.
— Nei, íslenzkur.' — Nú, ekki
bjóst ég við að sjá Islending
aftur. Þó ætti ég að þekkja ykk-
ur, svo marga skóna hefi ég
mátað á íslenzka fætur.
Island í myndum
sem gestabók
Komi maður í kjólabúð við
Freemanns Street, kemur verzl-
unarstjórinn, móðurleg frú á
efri árum, brosandi að borðinu
og segir: Góðan daginn, þér eruð
íslendingur ,er það ekki? Hvaða
skip er nú í höfn, ég hélt áð
Ingólfur væri farinn?
Hún kemur með útgáfu af
íslandi í myndum, sem er út-
skrifuð af mannanöfnum og
skipa úr íslenzka flotanum. —
Þér sjáið, að við höfum séð ís-
lending áður. Hafið þér ekki
heyrt um mig talað á íslandi,
segir frúin, sem heldur að
Reykjavík sé aðeins nokkur hús
á sjávarströnd. — Þeir kalla mig
Mrs. England, drengirnir. Þér
hljótið að hafa heyrt mín getið
á íslandi?
Afgreiðslumaðurinn á benzín-
stöðinni á horninu segir, þegar
hann er spurður til vegar: —
Þú ert íslendingur, er það ekki?
Hann gengur í hvíta sloppnum
sínum út á hornið og bendir inn
í verzlunargötuna og segir: —
Farðu bara til hans Greenbergs,
hann þekkir alla Islendinga.
Innstæður íslendinga
í Grimsby
Og sannarlega þekkir Green-
berg alla Islendinga. — Sjáðu
hérna, segir hann og sækir
bunka af umslögum í eldtraust-
an skjalaskáp sinn. — Hérna eru
umslög með peningum, sem Is-
lendingar eiga. Ég útvega mörg-
um íslendingum föt, og þeir fá
þau saumuð og borga inn á
pöntun ^ína.
A umslögunum standa nöfn
skipverja og nöfnin á togurun-
um undir. Þarna er Isólfur,
I nýútkomnu Fishing Gazette,
októberheftinu, sem mun vera
fjöllesnasta fiskiðnaðartímarit í
Bandaríkjunum, segir frá nýjum
fiski- og síldarmjölsþurrkara,
sem fyrirtækið Edw. Renneburg
& Sons Co. hefir smíðað og sett
upp í verksmiðju einni í Wild-
wood í New Jersey. Er þess jafn-
framt getið, að Gísli Halldórsson
verkfræðingur eigi hugmynd-
ina að þurrkara þessum og hafi
séð um smíði hans.
Þurrkari þessi hefir vakið
mikla athygli og er hann að
ýmsu leyti frábrugðinn eldri
gerðum. Rekstur hans er að öllu
leyti sjálfvirkur, en þó má með
augnabliks fyrirvara stjórna
honum á venjulegan hátt.
Slærsti þurrkari í heimi
Þurrkari þessi er álitinn
stærsti þurrkari, sem menn vita
af og hafa afköst hans reynzt
geysimikil. Hefir hann í allt
sumar unnið með ágætum og
auðveldlega unnið úr sem svarar
10 þúsund málum á sólarhring.
Meira hráefni hefir ekki verið
fyrir hendi og er því ekki vitað
með vissu, hve miklu meira
hann myndi geta afkastað, en
áætlað að hann myndi geta
þurrkað úr 15—17 þúsund mál-
um. Á þessu sumri hefir hann
framleitt mjöl fyrir um 20 millj.
krónur. Þurkofninn er um 10 m.
á lengd og 4 m. á breidd, en 6 á
hæð. kynntur með tveim olíu-
brennurum.
17 metrar á hæð
Þurrkarinn sjálfur er um 20
Kaldbakur, Hafliði, Fylkir og
margir fleiri.
— Hér geymi ég peningana
þeirra, þangað til þeir koma,
hvort sem ég verð dauður eða
lifandi, þá geymir fyrirtækið
umslögin. Þeir hættu að koma,
en það er ekki mín sök.
Niður við höfnina er verið að
landa úr Ingólfi Arnarsyni.
Þreytulegur verkamaður kemur
með vafðar fætur upp úr ísnum
í lestinni. Hann gleymir kaffinu
sínu og segir margar sögur frá
30 ára samskiptum við Islend-
inga.
— Yfirleitt fellur okkur verka
mönnum betur við Islendinga en
hinar þjóðirnar, sem hingað
koma til að landa. Þeir eru
liprir í samstarfi og lausir við
allan hroka.
Hann kann góð skil á íslenzk-
um skipum og veit nákvæmlega
um það, hverjir hafa verið skip-
stjórar á þeim í Grimsbyferð-
um. Hann man langt aftur í
tímann.
— Það er aðeins einn veru-
lega illur skipstjóri, sem komið
hefir frá Islandi. Hann nefnir
hann Trieggvy, svo nafnið er
óskiljanlegt, sem betur fer, en
það er ekki maður, heldur fúl-
menni í þess orðs fyllstu merk-
ingu, segir þessi lúni verka-
maður og nú erum við hættir að
sjá hann, sem betur fer, bætir
hann við.
— En svo eru íslenzku skip-
stjórarnir líka guðdómlegir
menn, sumir hverjir. Beztur
þeirra allra er Benno frá Hafn-
arfirði. Betri dreng mun varla
hægt að finna. Yfirleitt eru allir
yngri skipstjórarnir íslenzku
viðmótsþýðir og elskulegir
menn, sem ánægja er að vinna
fyrir.
Þannig var þá vitnisburðurinn
um íslenzku skipstjórana. Verka
maðurinn er aftur horfinn ofan
í lestina og farinn að tína þorsk-
inn úr ísnum í löndunarkörfurn-
ar, því löndunarsinfónían er
byrjuð aftur.
Uppi í borginni bíður frú
England með kjólana handa sjó-
mannakonum og velur eftir
myndum og nákvæmum málum,
en Greenberg gætir umslaganna
þangað til Islendingarnir fara
aftur að koma í búðina hans.
—TIMINN, 18. nóv.
m. á lengd og með mismunandi
vídd, allt frá 2 m. upp í 4 m.
Loftblásarinn getur sogið allt að
3 smálestir af lofti á mínútu
gegn um þurrkarann og blæs
hann fínasta mjölinu upp í mjöl-
skilju, sem er um 17 metrar á
hæð og allt að 6 m. í mesta
þvermál. Mun mjölskilja þessi
vera hin stærsta í heimi.
Þar sem fiskimjölsverksmiðja
sú, sem hér á hlut að máli, stend-
ur rétt hjá einum glæsilegasta
baðstað, þar sem um 100 þusund
manns liggja við á sumrum, er
tilvera verksmiðjunnar bundin
því skilyrði, að ekki finnist nein
fisklykt af henni og hefir Edw.
Renneburg & Sons Co. nú verið
falið að ljúka áframhaldi kerfis-
ins eins og það var fyrirhugað í
fyrstu og koma upp hringrásar-
kerfi og öðrum útbúnaði til að
fjarlægja allan óþef. Hefir Gisli
Halldórsson yfirumsjón með öll-
um þeim framkvæmdum eins og
hinum fyrri.
Hefir sóít um einkaleyfi
Gísli Halldórsson hefir sótt um
einkaleyfi á þurrkkerfi þessu, en
Edw. Renneburg & Sons Co.
hafa einkaframleiðsluréttinn.
Gísli Halldórsson hefir nú
dvalið í Bandaríkjunum í nær
tvö ár og aðallega starfað sem
ráðgefandi verkfræðingur fyrir
Edw. Renneburg & Sons Co., en
það er eitt elzta fyrirtæki í fram-
leiðslu fiskiðnaðarvéla, en fram-
leiðir jafnframt alls konar vélar
fyrir efnaverksmiðjur.
—TÍMINN, 12. nóv.
Á fundi Félags Húsmæðra-
skólakennara, sem haldinn var
18. október s.l., var tekin saman
eftirfarandi ályktun til leiðrétt-
ingar á misskilningi þeim, sem
virðist ríkja meðal fólks um or-
sökina fyrir því, að húsmæðra-
skólarnir hafa ekki verið full-
skipaðir síðustu árin.
Húsmæðraskólarnir eru 12
talsins og rúma fullskipaðir 490
nemendur árlega.
Árið 1950 voru hér á landi um
12000 konur á aldrinum 15—25
ára, eða um 1200 á hverju aldurs
ári. Af þessu sést, að ekki mun-
ar miklu, að önnur hver stúlka
komist á húsmæðraskóla, ef
hún óskar þess.
Skólaárið 1952—1953 sóttu 305
stúlkur húsmæðraskólana, en
nokkuð meiri virðist aðsóknin
vera í ár. Reynsla 2ja s.l. ára
sýnir okkur því, að a. m. k. um
Amateur Áthletes
of Lundar
On Track and Field, by Art
Reykdal — A History of a
Manitoba Athletic Club —
Printed by Pauper Press,
1953 - 76 pp.
Art Reykdal
Grettir A m a t e u r Athletic
Association of Lundar, Manitoba,
was founded in 1912 by Paul
Reykdal, for many years a
prominent member of the Mani-
toba Icelandic Community, who
died about 18 months ago:
In 1912, Thorstein Oddson
donated the Oddson shield for
annual competition at the Ice-
landic celebration. In 1913, the
first year of the competition, it
was won by Winnipeg’s Viking
Club which beat the Grettir
Club by one point. From then on
the trophy seemed to have a
permanent home in Lundar.
Finally, in 1924 the Grettir Club
stopped competing and the Odd-
son shield was moved from what
had become its natural habitat.
The athletic prowess of the
Grettir members is perhaps for-
gotten by many followers of
sport today. All of them were
amateurs in the strictest inter-
pretation of the word and made
their mark before the profession-
al was so prominent. On two oc-
casions, Grettir members were
considered for the Canadian
Olympic team, but both times
the plan was defeated because of
outbreak of war in 1914 and 39.
Paul Reykdal, in his younger
days, was no mean athlete.
Alone, he was one of the stars
of the Grettir Club. For years he
had planned to put its history
on the record. During his final
illness, in his last conversation
with his son, he asked that it be
completed.
The book is thus the fulfilment
of an obligation of a son to his
father. Apart from this, it is a
valuable addition to the written
record of the contribution made
to Manitoba by its Icelandic
pioneers. Appropriately it is
dedicated to the memory of Paul
Reykdal. L. F. E.
—The Winnipeg Tribune,
Jan. 9, 1954
stundarsakir sækir ekki nema
liðlega 4. hver stúlka húsmæðra-
skóla. Samt er sú aðsókn geysi-
mikil ef við berum okkur saman
við önnur lönd, .t d. Danmörku,
sem þykir standa framarlega á
sviði húsmæðrafræðslunnar. I
septemberhefti „Husholdnings-
iærerinder“, sem er fagblað
danskra húsmæðrakennara er
meðal annars rituð grein þar
sem skýrt er frá því, að árið
1950 hafi 38.838 konur gift sig í
Danmörku, en ekki nema 2226
sótt húsmæðraskóla það ár. Ef
við berum þessar tölur saman
við okkar manntalsskýrslur sjá-
um við, að árið 1950 hafa 1217
konur gift sig hér á landi, en 440
sóttu húsmæðraskóla það ár. Ef
við reiknum þetta í prósentum
sést, að miðað við þá tölu
kvenna, sem gifta sig árlega, þá
sækja um 5% danskra stúlkna,
en um 36,6% íslenzkra stúlkna
húsmæðraskóla árið 1950.
Ef við berum okkur saman
við hin Norðurlöndin þá eru til
nokkurn veginn öruggar heim-
ildir fyrir því, að í Noregi sækir
um 8°/0 stúlkna húsmæðraskóla,
en í Svíþjóð mun þessi tala vera
um 6%.
Talað hefir verið um mikla
aðsókn að húsmæðraskólunum
árin 1942—1948, og það með
réttu. Á þessum árum var verið
að fjölga skólunum og stækka
þá gömlu. Árið 1940 voru hús-
mæðraskólarnir 7 og rúmuðu
160 nemendur. Árið 1946 eru
þeir orðnir 12 og rúma samtals
380 nemendur. Til þess að fá
betri starfsskiptingu í kennsl-
unni, voru litlu skólarnir stækk-
aðir. Það var því fyrst 1948 að
húsmæðraskólarnir rúmuðu þá
nemendatölu, sem þeir rúma nú,
eða 490 nemendur. En þá fer líka
fljótlega að bera á því, að skól-
arnir eru ekki fullskipaðir. Árið
1946 rúmuðu húsmæðraskólarn-
ir, eins og áður er sagt, 380 nem-
endur. 1 haust sækja skólana
315 nemendur eða 65 nemendum
færra, en sú tala mun breytast
þegar Blönduósskólinn tekur til
starfa eftir áramót, svo að ekki
er munurinn mikill. Að vísu
voru biðlistar við skólana 1946,
en á það verður að benda í þessu
sambandi, að á árunum 1944—
1948, þegar hagur einstaklings og
þjóðar stóð með mestum blóma
fjárhagslega, þurftu húsmæðra-
skólarnir ekki aðeins að svara
árlegri eftirspurn, heldur þurftu
þeir einnig að taka á móti þeim
konum, sem höfðu beðið jafnvel
árum saman eftir tækifæri til
þess að komast á húsmæðra-
skóla.
Þegar litið er á aðsókn að hús-
mæðraskólum s.L 12 ár þá sjáum
við að aðsóknin hefir ekki
minnkað svo mikið, það væri
nær að segja, að hún hafi ekki
aukizt að sama skapi og sá nem-
endafjöldi, sem skólarnir rúma.
Það verður því að finna annan
starfsgrundvöll fyrir eitthvað af
skólunum, enda ætti það að vera
mögulegt. Á það ber einnig að
benda í þessu sambandi, að hús-
stjórnarnám í verknámsdeildum
Gagnfræðaskólastigsins hefir
verið að aukazt þessi síðustu ár,
og að hópur kvenna fer árléga
utan, aðallega til Norðurland-
anna og stundar þár hússtjórnar-
nám, jafnframt því, sem skólar
og félög hafa aukið námsskeiðs-
hald í hússtjórnarfræðum.
Af ofanrituðu sést, að við meg-
um í rauninni vera ánægð yfir
því, hve margar stúlkur sækja
húsmæðraskólana, en því ber
ekki að neita að enn ánægju-
legra væri það, ef aðsóknin að
skólunum gæti verið meiri.
Námið í húsmæðraskólunum
undirbýr konuna undir það að
taka við því starfinu, sem er
vandasamasta og mikilvægasta
starfið í hverju þjóðfélagi. Engin
stúlka ætti því að fara á mis við
þann undirbúning.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
*
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA 34. REYKJAVIK
fslendingur fann upp stærsta
mjölþurrkarann í heiminum