Lögberg - 14.01.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. JANÚAR 1954
3
HANNES JÓNSSON, félagsfræðingur:
Frjólsir menn verjast þrælafjötrum hins
kommúnistiska einræðis
Hin frjálsa vestræna menning lýðræðis og frelsis. rétllælis
og bræðralags kristindómsins á í vök að verjast fyrir
einræði, lögregluríki. ríkiseinokun og heimsveldahyggju
kommúnismans. Slöðugur ótti, óíreisi, ógnir og fjöldamorð
„Alþýðulýðveldanna" eru sjúkdómseinkenni hinnar
kommúnistísku menningar.
Lýðræðið er ekki gamalt í
heiminum. Og það hefir alltaf
átt í vök að verjast fyrir einræð-
inu. í gamla Grikklandi, þar
sem lýðræðið á rætur sínar, varð
það fljótt einræðinu að bráð. 1
gegnum aldirnar hafa lýðræðis-
og frelsisunnendur hvað eftir
annað orðið einræðisherrum að
bráð. Múgmennskan og valdið,
vanþekking og þroskaleysið, hafa
æ ofan í æ kollvarpað lýðræðinu
þegar loks var búið að koma
því á.
Fyrir frelsið og lýðræðis út-
heltu menn blóði sínu í frönsku
byltingunni og bandaríska frels-
isstríðinu. Smátt og smátt hafa
þær fórnir, sem þá voru færðar
fyrir þessar göfugu hugsjónir
mannkynsins, borið ávöxt, og
smátt og smátt vinnur lýðræðis-
hugsjónin á, enda þótt hún hafi
beðið mörg skipbrot, svo sem
dæmin um nazista Þýzkalands,
fasista ítalíu, falangista Spánar
sanna.
En aldrei hefir jafn stórkost-
legri sókn verið beint gegn lýð-
ræðinu sem kommúnistar gera í
dag. Aldrei hefir eins skipulega
verið unnið á alþjóðlegum vett-
vangi að því að gera fórnir þær,
sem frelsisvinir frönsku bylt-
ingarinnar færðu, að engu, sem
af hinum alþjóðlegu kommún-
istadeildum í dag. Aldrei hefir
lýðræðinu og frelsinu í heimin-
um riðið meira á því en í dag,
að múgmennska og vanþekking
víki fyrir pólitískum þroska og
þekkingu.
Arestoteles gamli skilgreindi
lýðræðis sem „stjórnarform þar
sem embættum er úthlutað með
frjálsum kosningum“. Og að
hans dómi er lokatakmark lýð-
ræðisins frelsi.
I dag eru a. m. k. tvö sjónar-
mið á því, hvað lýðræði sé.
Annars vegar eru Rússar og
löndin austan járntjalds. Hins
vegar hinn frjálsi vestræni
heimur.
Hinn mikli brezki heimsspek-
ingur og friðarvinur Bertrand
Russell, segir á einum stað svo
um misnotkun kommúnista á
hugtakinu lýðræði:
„Fyrir vesian járntjald þýðir
orðið lýðræði venjulegast, að
^oðsta valdið sé í höndum meiri-
hluta fullorðna fólksins í við-
komandi landi".
En hjá kommúnistum:
„Fyrir austan járnljaldið þýð-
h’ orðið lýðræði hervætt ein-
raeði í höndum lítils minnihluta,
hvers ráðamenn hafa ákveðið að
kalla sig lýðræðissinna".*)
Nauðsynlegt er að hafa í huga
þessi tvö sjónarmið á hugtakinu
lýðræði í dag þegar rætt er um
varnir og varnarleysi. Annars
vegar — í hinum frjálsa vest-
ræna heimi — þýðir orðið það
sama og það hefir þýtt allt frá
uPPhafi lýðræðisins í heiminum,-
Hins vegar — í einræðislöndum
kommúnismans — hefir ákveðið
form af einræði verið skýrt
>Jýðræði“, ákveðin einræðisríki
>>alþýðulýðveldi“.
Aðeins með því að gera sér
grein fyrir því annars vegar, á
Verju hin frjálsa vestræna
naenning byggist, en hins vegar,
u hverju hin einræðissinnaða,
ommúnistiska menning austan
Jarntjalds byggist, geta menn
y hlega skilið hvað það er, sem
hinar vestrænu þjóðir ætla að
verja með varnarsamtökum sín-
Um °g gegn hverju þær eru að
verjast.
Hinn mikli heimspekingur og
nthofundur, Frakkinn Andre
aurois, hefir í snilldarlegri
grein í tímariti Rotari-félag-
anna skilgreint þrjá þýðingar-
mestu þætti vestrænnar menn-
ingar.
Fyrsti þáttur hennar er, segir
Maurois, af grískum uppruna,
þ. e. hugmyndin um frelsi og
lýðræði. Annar þáttur hennar
er Rómverskur, þ. e. hugmyndin
um lagalegan réfi. Og sá þriðji
er að nokkru leyti austurlenzk-
ur, þ. e. kristindómurinn með
hugmyndir sínar um bræðralag,
manngöfgi og lotningu fyrir
Guði og því góða í heiminum.
Allir hafa þessir grundvallar-
þættir vestrænnar menningar
verið útfærðir og skilgreindir
nánar á síðari tímum.
Hinir vestrænu frelsisunnend-
ur fundu brátt nauðsyn vissra
skilyrða fyrir því, að lýðræðið
gæti staðizt og frelsið notið sín.
Á meðal þessara skilyrða eru:
stjórnarfar, sem byggist á full-
trúaþingum; habeas corpus**);
réttarrannsókn og óháðum dóm-
endum; ritfreisi; trúfrelsi; mál-
frelsi; samtakafrelsi.
Og Rómverjar fundu strax, að
það var nauðsynlegt að skrifa
niður lögin, svo að hver einasti
þegn gæti vitað, hvað var rétt
að gera og að lögum og hvað
lögbrot.
Og frá sjónarmiði kristin-
dómsins varð maðurinn ekki að-
eins dýrmætur, sem þjóðfélags-
þegn, heldur fyrst og fremst
sem bróðir er ástundaði misk-
unn, ást og bræðralag.
Þetta eru þá þeir þrír megin-
þættir hinnar frjálsu vestrænu
menningar, sem hinar frjálsu
þjóðir vilja verja í dag.
Og hvers vegna vilja frjálsir
menn verja þessi verðmæti?
Vegna þess, að reynslan hefir
sýnt okkur, að án þessara verð-
mæla, — án lýðræðis, frelsis,
lagalegs réttlælis og bræðra-
lags, — er lífið ekki þess virði
að lifa því. og þess vegna belra
að deyja í baráttunni fyrir frels-
ið og önnur verðmæti frjálsrar
vestrænnar menningar heldur
en að lifa í þrælafjötrum ein-
ræðisins.
Gegn hverju er varist?
En hver eru þau menningar-
einkenni, sem hinar vestrænu
þjóðir eru að verjast? Hver eru
menningareinkenni kommún-
ismans?
Einræði þar sem málfrelsi, rit-
fersli, skoðanafrelsi, trúfrelsi og
samtakafrelsi hefir verið af-
numið.
Lögregluríki þar sem lögin eru
vilji einræðisherrans og það sem
leyft var í gær er bannað í dag,
þar sem pólitískar eða trúar-
legar ofsóknir eru daglegir við-
burðir og falskar játningar eru
knúðar fram í krafti þumal-
skrúfunnar eða annarra ægi-
legra pyntingartækja.
Ríkiseinokun þar sem allt er
til orðið fyrir ríkið, einræðis-
herrann og flokkinn, en sjálfs-
bjargarhvötin, einstaklingseðlið
eða frjáls félagshyggja getur
ekki notið sín.
Heimsveldahyggja kommún-
ismans, sem byggist á því að
Sovét-Rússland, sem föðurland
kommúnismans, eigi að brjóta
undir sig lönd veraldar, svifta
þau frelsi og sjálfstæði, gera
þau að leppríkjum sínum, sem
miði athafnir sínar og afstöðu
við hagsmuni og þarfir hins
rússneska heimsveldis.
*) Sjá ,,What is Democracy", eftir
Bertrand Russell, bls. 7.
**) Réttarfar, sem heimilar sak-
borningi aS vera frjáls á meSan mál
hans er rannsakaC og dæmt.
Þetta er kommúnisminn, þetta
er skipulag „Alþýðulýðveld-
anna“. Gegn þessu berjast frjáls-
ir menn og frjálsar þjóðir.
Það er gegn framangreindum
menningareinkennum kommún-
ismans, sem hinar vestrænu
þjóðir verjast vegna þess að
þær vilja halda sjálfstæði sínu
og viðhalda freslinu og hinum
þremur framangreindu menn-
ingarþáttum vestrænnar menn-
ingar, byggja þær upp varnir
sínar.
En eins og Andre Maurois
sagði:
„Það er brjálæði að fórna verð
mælum, sem hafa sannað sitt
menningarlega gildi, fyrir hug-
myndir, sem til þessa hafa að-
eins skapað ógnun, ofbeldi.
fjöldamorð og ótta".
Og ennfremur segir Maurois:
„Auðvitað viðurkennum við,
að hin veslræna menning er ekki
fullkomin. Hún þarf enn að
sækja mikið fram fyrir félags-
legu jafnrétti. En viðurkenning
Undanfarin ár hafa verið mikil
brögð að því, að saltfiskur
skemmdist við að gulna við
framleiðslu og í geymslu. Mest
mun hafa borið á þessu árið 1950
og er talið, að það ár eitt hafi
tjón af þessum sökum skipt
miljónum króna. Enn verður
mikið tjón af gulunni á hverju
ári. Bæði á þessu ári og í fyrra
hefir allverulega kveðið að þess-
um skemmdum. Sums staðar er-
lendis hefir gulunnar gætt tals-
vert. Skemmdir þessar hafa
verið rannsakaðar bæði hér á
landi og erlendis, en ekki er
kunnugt, að ljóst sé um orsak-
irnar. Canadamaður taldi þær
stafa af sáralitlu magni af járni,
sem er í venjulegu fisksalti, en
í. Englandi hefir þess verið getið
til, að gulan kæmi af svonefndri
Millard efnabreytingu í eggja-
hvítu m. m.
☆
Síðustu vikurnar hefir farið
fram rannsókn á þessum
skemmdum í rannsóknarstofu
Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði og benda niðurstöð-
urnar eindregið til um orsök
gulunnar. Þykir því rétt að
skýra nú þegar frá þessum at-
hugunum.
Salt það, sem notað er í fisk
hér á landi, í Noregi og víðar,
er nær eingöngu sjávarsalt, sem
unnið er úr sjó á ströndum
Suður-Evrópu og víðar, einkum
Miðjarðarhafsins. Jarðsalt er
yfirleitt ekki notað til fisksölt-
unar. í öllu sjávarsalti er auk
natriumklorids (matarsalts) og
vatns nokkuð af aukasöltum,
calcium- og magniumsöltum
(súlföt og klorid) og geta þau
numið mest fáeinum hundraðs-
hlutum. Það sem einkum skilur
jarðsalt frá sjávarsalti er, að
mun minna er af þessum auka-
söltum í jarðsalti. Sumt af jarð-
salti má t. d. heita snautt af
magnium. Það er áberandi af
þeim gögnum um salt, sem til-
tæk eru, hversu bfeytilegt er
magn aukasaltanna í sjávar-
salti enda mun farmleiðsla þess
víða vera með þeim hætti, að
því mun litlu skeytt, hve mikið
verður í saltinu af þessum efn-
um. Hvort saltið er kennt við
Trapani, Ibiza eða einhvern ann-
an sólríkan stað skiptir litlu
máli í þessu efni. Þannig reynd-
ist calciummagn 14 saltsýnis-
horna, sem Atvinnudeild Há-
skólans rannsakaði 1938 0,12—
0,36%, en magnium 0,07—1.50%.
Gögnin bera það og með sér, að
á þessu þýðir ekki það sama og
að grundvallarþællir veslrænn-
ar menningar séu einskis virði.
Þveri á móii sannar það nauð-
syn fulls trúnaðar við þessi verð
mæti. Við björgum ekki hinum
vestræna menningararfi okkar
með því að hefla frelsið, heldur
með því að auka það".
1 krafti þeirrar hervæðingar,
sem hinar vestrænu þjóðir hafa
byggt upp í varnarskyni gegn
yfirgangi og ofbeldi kommún-
ismans, hefir valdarán Rússa
verið stöðvað, líkt og hnefi
lófeigs í Skörðum stöðvaði yfir-
gang Guðmundar ríka í sinni
tíð. Menn hafa talið réttara að
hætta lífinu í vörn fyrir frelsið,
sjálfstæði og menningarverð-
mæti hinnar frjálsu vestrænu
menningar heldur en að verða
hnepptir í þrælafjötra komm-
únismans.
Geiur nokkur íslendingur
verið í vafa um hvorum megin
við eigum að vera í baráttunni
um frelsið og verðmæti vest-
rænnar menningar? Eru nokkr-
ir, nema óðustu kommúnislar,
sem í alvöru vilja bjóða menn-
ingarógnum kommúnista heim?
það sem kallað er t. d. Trapani-
salt er mjög misjafnt að efna-
samsetningu. Astæða virðist til
að ætla, að sýnishorn, sem tekin
hafa verið bæði hér heima og
erlendis af fisksalti séu næsta
lítils virði vegna þess, hve mis-
jöfn framleiðslan er. Það mun
og fátítt, að slík sýnishorn séu
tekin þannig, að tryggt sé, að þau
gefi rétta mynd af saltinu. Er
full ástæða til þess að brýna
fyrir þeim, sem salt kaupa og
nota að láta' taka sem réttust
sýnishorn og fá þau rannsökuð.
Ætti reynslan af gulunni að vera
næg ráðning til þess.
☆
Skoðanir manna á gildi auka-
saltanna fyrir fiskinn eru mjög
skiptar. Þannig er víða í skrifum
um þessi efni varað við þeim
og benda þó rannsóknir, sem
gerðar voru fyrir aldarfjórðungi
til þess, að þau séu ekki síður
mikilvæg fyrir góðan saltfisk en
aðalsaltið (natriumklorid). Það
er einkum talið til baga við
aukasöltin, að þau tefji fyrir
söltuninni, þ. e. að saltið komist
í fiskinn.
Ástæða þótti því til að at-
huga áhrif aukasaltanna nánar
og því fremur, sem ýmislegt
þótti benda til þess, að aðalorsök
gulunnar gæti verið bundin við
þessi sölt. Tilraun var gerð með
að leggja fisk í salt, sem hafði
mjög lítið af aukasöltum og jafn-
framt í það að viðbættu lítils-
háttar af 1) calciumklorid (1%)
og 2) magnium-súlfati. Kom þá
í ljós, að fiskurinn, sem fékk
calciumklorid gulnaði fljótt og
mikið.
☆
Aðrar tilraunir með minna
magn af calciumklorid sýndu
hliðstæðar niðurstöður. Gulnar
fiskurinn þó að ekki sé nema
þúsundasti hluti af þessu efni 1
saltinu. Rannsökuð voru tíu
sýnishorn af gulum og gul-brún-
um fiski, sem tekin voru við
fiskmat. Reyndist miklu meira
calcium í þeim en venjulegum
saltfiski, sem tekin var til sam-
anburðar. Voru 0,25% í þeim
gula, en 0,14% í hinum. Einnig
var saltmagnið meira í þeim
gula. Glögglega kom þessi mun-
ur á efnasamsetningu fram við
rannsókn á fiski, sem var sums
staðar gulur, en annars staðar
eðlilegur.
Það getur því tæplega leikið
Framhald á bls. 7
TIMINN, 12. nóv.
Merkileg uppgötvun um orsök
saltfiskgulu
Páll Ólafsson, efnafræðingur Síldarverksmiðja ríkisins,
hefur siaðreynf að calciumklorid í sallinu veldur gulunni.
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLJNIC St. Mary’s and Vaughan, Wlnnlpeg PHONE 92-6441 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
J. J. Swanson & Cö. LIMXTED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgC, bifreiCaábyrgC o. s. frv. Phone 92-7538 1 Dr. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216
SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service Dr. ROBERT BLACK SérfræCingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusfmi 92-3861 Heimaslmi 40-3794
DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITQBA Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.00 p.m. Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargent Ave. Winnipeg PHONE 74-3411
Thorvaldson, Eggertson, Baslin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 Hafið Höfn í huga Heimili sólsetursbarnanna. Icelandic Old Folks’ Home Soc., 3498 Osler St., Vancouver, B.C. |
•
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Dlrector Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917 Aristocrat Stainless Steel Cookware For free home demonstrations with- out obligation, write, phone or call 302-348 Main Sireet. Winnipeg Phone 92-4665 “The King oj the Cookware"
Oflice Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment.
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um út- fartr. Allur útbúnaCur sá bezti. StofnaC 1894 SlMI 74-7474 Minnist BETEL í erfðaskrám yðar.
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Life Bulidlng WINNIPEG MANITOBA
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity Pavilion General Hospital Nell's Flower Shop Weddlng Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages. Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Krlstjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnlpeg, Man. Phone 92-3561
Lesið Lögberg
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hltaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viC, heldur hita frá aC rjúka út meC reyknum.—SkrifiC, simiC til KELLV SVEINSSON «25 WaU St. Wlnnipeg Just North of Portage Ave. Simar 3-3744 — 3-4431 G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Slmi 92-6227
J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance ln all lts branchea Real Estate • Mortgages • Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 46-3480 LET US SERVE YOU EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniloba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONK 92-4624 Van's Efectric Ltd. 636 Sargent Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-4810