Lögberg - 21.01.1954, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 21. JANÚAR 1954
Úr borg og bygð
Alice May, dóttir Roberts h.
og Edith Dodds, (nú Mrs. Fisher)
frá Glenboro, og Björn James,
sonur Jóns og Mary h. ísleifsson,
einnig frá Glenboro, voru gefin
saman í hjónaband á prests-
heimilinu þann 30. des s.l. af
sóknarprestinum. Systir brúð-
arinnaf, Mrs. E. Ferguson, frá
Winnipeg, var brúðarmey og
aðstoðarmaður brúðgumans var
bróðir hans William. Brúðurin
var leidd fram af bróður sínum
Alex. Vivian Fredriksson spilaði
á hljóðfærið. Að athöfninni lok-
inni voru leiknir á hljóðfæri
kirkjunnar brúðkaupssöngvar.
Fjöldi fólks sat rausnarlega
veizlu á heimili brúðarinnar.
Ungu hjónin fóru í brúðkaups-
ferð til Winnipeg og víðar. —
Brúðguminn gegnir ábyrgðar-
stöðu hjá Interprovincial Pipe-
line félaginu. — Heimili þeirra
verður í Glenboro.
iir
— DÁNARFREGN —
Þann 18. desember síðastlið-
inn andaðist á heimili sonar síns
Ragnars Guðmundssonar í Víðis
bygð Guðbjörg Guðbrandsdóttir
Guðmundsson. Hún var fædd á
Katardal í Húnavatnssýslú 13.
október 1862. Hún kom til þessa
lands árið 1900 og hefir átt
heima í Árdals- og Víðisbygð
frá þeim tíma — að undanskild-
um sjö árum, er hún átti heima
í Duluth, Minn. Mann sinn,
Jakob Guðmundsson frá Stað í
Hrútafirði, misti Guðbjörg 1827.
Þau* eignuðust 4 börn; tvær
stúlkur, er dóu í æsku; en hin
eru Ragnar, er hún hefir altaf
*
Úr dagbók
Framhald af bls. 7
skýringunum, sem fylgdu mynd-
inni.
Myndin er falleg túlkun þess
bezta og háleitasta, sem Sovét-
ríkin hafa að bjóða á sviði list-
anna. Þjóðlegt stolt og hrifning
þess, sem gjört hefir verið og
gjöra skal í veldi og heimi Sovét
ríkjanna, var hið þunga undirlag
tóna og mynda.
Að lokinni myndasýningunni
voru boðnar ríkulegar veitingar
af rússneskrar gestrisni. Vodka
og kaviar fylla borðin, en ekki
fólkið, enda vill svo illa til að
flestir þurfa að flýta sér úr þessu
vingjarnlega hófi. Frú Zaroubin
leiðir okkur að borðum, og biður
okkur að njóta góðgjörðanna.
Starfsmenn sendiráðsins ganga
um og bjóða gestunum ríkulega.
Ambassador Zaroubin er alls-
staðar nálægur. Þetta kvöld eru
allir frjálsir að bjóða góðan
þokka, gestrisni og alúð. En því
miður verðum við að fara fljót-
lega, því að kl. 10.00 eigum við
að vera mætti í viðhafnarbúningi
„kjóli og hvítu“ hjá ambassador
Filipseyja, General Carlos P.
Romulo og frú. Þetta boð höfð-
um við þegið áður en rússneska
boðið barst okkur. Þar sem það
var hið fyrsta boð, sem haldið
var í Washington til heiðurs hin-
um n ý j a utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, John Foster
Dulles, þykir hlýða að allir sendi
herrar mæti.
☆
Við skunduðum heim og skipt-
um um föt og gengum síðan fyr-
ir Romulo, frú og gesti þeirra,
utanríkisráðherrahjónin. Dulles
segir nokkur gletnisyrði við
mig, en við erum kunnugir frá
þingum Sameinuðu þjóðanna,
þar sem Dulles hefir í mörg ár
verið einn af aðalmálsvörum
Bandaríkjanna undir stjórn Tru-
mans og fyrirrennara Dulles í
sendiherra
stöðu utanríkisráðherra, Dean
Acheson. Sýnir þetta traust það,
sem Dulles nýtur hér í landi.
Boð þetta átti sér annars ein-
kennilega sögu. Við forsetakosn-
ingarnar, sem fram fóru í Banda
ríkjunum haustið 1948, voru
Dulles og Romulo báðir staddir
í París sem fulltrúar landa sinna
á allsherjarþingi Sameinuðu
sem þar var háð. Þá var almennt
búist við því, að Dewey mundi
sigra Truman, og að Dewey
mundi velja Dulles sem utanrík-
isráðherra sinn.. General Rom-
ulo er hrifgjarn og ör og bauð
Dulles nokkru fyrir kosningarn-
ar í hátíðlega veizlu sem utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna og
skyldi veizlan háð að kosningum
loknum. En kjósendur í öllum
löndum eru skrítið fólk og ó-
útreiknanlegt. Þeir kusu Tru-
man en ekki Dewey. Romulo
varð því að láta hátíðina fyrir
Dulles falla niður 1948 og bíða 4
ár. Það varð Eisenhower en ekki
Dewey sem gjörði Dulles að ut-
anríkisráðherra. Hinsvegar átti
Dulles drjúgan þátt í að gjöra
Eisenhower að forseta. Þyngdar-
lögmál stjórnmálanna er ráð-
gáta allra óvitlausra manna.
Boðið í hinu fallega sendiráði
Filippseyja var með svipuðum
hætti og önnur Washingtonboð.
Matur og drykkur ríkulega fram
borið handa fólki, sem einskis
eða sem minnst vildi neyta. Há-
vaði vegna viðræðna mörg hundr
uð manna. Glæsilegar konur í
skrautlegum klæðum. Vel búnir
menn, margir skartlegum orðum
settir. Iðandi fjöldi fólks úr öll-
um löndum í veizluskapi. Vingj-
arnlegt viðmót. En allir að flýtja
sér. Allir fara um kl. 11.00 eftir
aðeins klukkustundar dvöl.
Heim er ekið. Á morgun bíða
mörg verkefni, sem betur fer.
•
— MBL. 4. nóv.
ICELANDIC CANADIAN CLUB
BAXQUET and DANCE
Marlborough.Hotel, Blue Room
FRIDAY, JANUARY 29lh, 1954
6:45 p.m.
PROGRAM:
Piano Solo Miss Helga Baldwinson
Address Rev. Robert Jack, of Arborg
Vocal Solo Miss Ingibjorg Bjarnason
JIMMY GOWLER’S ORCHESTRA
Modern and Old Time Music—Dress Optional
ADMISSION: Banquet, including Dance, $2.50 per person
Dance only (commencing at 9 p.m.) $1.00 per person
ond MURSERt BOOK
citn_____
The finest and largest Catalog we
have ever issued, now 164 pages, all to help
you enioy the loveliest garden ever. Many fine new
things lilce Bush Form Sweet Peas, a Miracle Flower that
changes color every day, Saivias so early they flower in the seed
flat, Miniature Glads, Giant Hybrid Bcgonias and Gloxinias
Baby Orchid, New Roses, Crimson King Maple, latest Hybrid
Vegetables, Large Fruited Strawberries from seed, Nursery
Stock, Bulbs, Houseplants, Garden Chemicals, Supplies, etc.
Send today. . »oi
GEORGETOWN
ONTARIO
I0N SEED HOIISE
dvalið hjá, og Helga — kona
Unnsteins Jacobson í Geysis-
bygð.
Guðbjörg var rúmföst síðustu
3 árin en bar þann erfiðleika
með þolinmæði og trausti á
handleiðslu algóðs Guðs.
Jarðarför hennar fór fram frá
heimilinu 22. desember 1953. —
Séra Robert Jack jarðsöng.
Á
Bréfaviðskipli óskasl
Ég undirskrifuð óska eftir að
komast í bréfasamband við
vestur-íslenzkan mann á aldrin-
um 40 til 50 ára, sem skrifar
íslenzku.
Utanáskrift mín er:
Frú Guðný Vigfúsdóitir
Melshúsi, Sandvíkurveg,
Reykjavík, Jsland.
☆
Elliheimilið STAFHOLT
þarfnasl
FORSTÖÐUKONU
Helzt þarf hún að vera útlærð
hjúkrunarkopa; tala íslenzku, og
búa á heimilinu. Kaupgjald er
$250.00 á mánuði, ásamt fæði og
húsnæði. — (Modern private,
furnished apt.).
Frekari upplýsingar fást hjá
ANDREW DANIELSON
P. O. Bor 516, Blaine
☆
Miðaldra, eða eldri hjón, ósk-
ast til að annast um fæði
fyrir roskinn Islending gegn af-
notum af tveggja herbergja íbúð
í hans eigin húsi.
Upplýsingar veittar á skrif-
stofu Lögbergs, sími 743411.
☆
I sambandi við gjafalista
„Stafholts", sem birtist í Lög-
bergi 7. .janúar, hefir blaðið
verið beðið að geta þess, að gjöf-
in frá kvenfélaginu að Lundar
$10.00, sem gefin var í minningu
um Ágúst Magnússon, Lundar,
Man., var frá Kvenfélaginu
EINING, og gjöfin frá Mr. og
Mrs. Gunnar Guttormsson $5.00
var einnig gefin í minningu um
Ágúst heitinn.
☆
The Women’s Association of
the First Lutheran Church will
hold an open meeting Jan. 26th
at 8.30 p.m. in the lower audi-
torium of the church.
Report . . .
Conlinued from page 5
conditions. It may seem strange
to say so but fresh fish produced
in some of our more remote lakes
may and does reach Winnipeg in
less time than fish from the
north end of Lake Winnipeg.
By employment of two men in
Winnipeg whose full time is
spent with the industry in
quality inspection and checkmg
of fish shipments arriving in the
city, we have assisted the indus-
try in maintaining and improv-
ing quality. It has been possible
to trace fish of poor quality back
to the source and for our field
inspectors to deal with and im-
prove the particular situation.
But quality can only be fully
judged by the condition of the
product as it reaches the con-
sumer. Ensurance of quality at
some given point along the line
of production is not in itself
sufficient. Quality must be pre-
served all along the line. Loss of
quality is not by any means
attributable solely to the fisher-
man or to any particular section
of the industry.
In no way would I imply that
anyone is satisfied p r e s e n t
quality cannot or should not be
improved. A great deal remains
to be done that can be done.
If we approach this problem
with continued co-operation and
determination we can achieve an
enviable standard of quality.
Education is a slow and some
times painful process, Legisla-
tion might be necessary to hasten
the desired improvement, but
when everyone concerned recog-
nizes the problem and shows the
will to overcome it I believe the
problem is more than half solved.
Conlinued nexl week
Bréf fró Glenboro, Man
IVI ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
16. JANÚAR 1954
„Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka.
Nú gengin er sérhver þess
gleði og þraut,
það gjörvalt er runnið á eilífðar
braut,
en minning þess víst skal þó
vaka“.
Já, árið 1953 er liðið og nýtt ár
er runnið upp; er við stöldrum
við og lítum til baka, þá verður
okkur ljóst að árið 1953 er eitt.
af beztu árum, sem runnið hafa
upp yfir okkar góða og frjálsa
land — Canada —og mun það
lengi lifa í minningunni, þó að
margur einstaklingur hafi haft
um sárt að binda, og mun svo
ætíð verða. Hér í okkar um-
hverfi hefir verið blessuð ár-
gæzka sem mörg undanfarin
ár og fyrir það skyldi maður
forsjóninni þakkir gjalda.
Fólki líður hér yfirleitt öllu
vel á þessum slóðum, atvinna
góð, efnahagur sæmilegur, þrátt
fyrir dýrtíðina, heilsufar yfir-
leitt gott, félagsstarfsemi vel
vakandi. Líta menn því mót
framtíðinni með bjartsýni og
vonaraugum. Þrátt fyrir þetta
hefir skórinn víða krept að á
árinu liðna, og hörmungar
dunið yfir í ýmsum löndum,
bæði af mannavöldum og frá
náttúrunnar hendi. Stríð hafa
verið háð í Kóreu, Indo-China,
Afríku og víðar af mikilli
grimmd og mannfall verið
mikið. Jarðskjálftar ollu miklu
tjóni og höfmungum í ýmsum
löndum, Grikklandi, Tyrklandi,
Japan og víðar. Ofsaveður og
flóð gerðu óhemju tjón og mann
skaða á Eenglandi og í Vestur-
Evrópu og víða um heim. Glæp-
ir og óöld hafa ráðið lögum og
lofum í ýmsum löndum heims.
Þessu verður ekki gleymt, því
verður heldur ekki gleymt, að
ljós skein í myrkrinu; aldrei
hafa einstaklingar og þjóðir
Verið eins fljótir að líkna og
hjálpa þeim, sem orðið hafa
fyrir þungum áföllum. Þó illska
mannanna sé mikil, þá er þó
máttur kærleikans sterkur í
hjarta almennings.
Ekki eru fréttir miklar héðan,
en tínt skal til það sem ég man
eftir.
Hr. Friðbjörn S. Fredrickson
átti 95 ára afmæli 9. janúar s.l.
Er hann til heimilis hjá syni
sínum Friðrik stórkaupmanni.
Bauð Friðrik nokkrum vinum
gamla mannsins heim til sín að
kvöldi þess dags í heiðursskyni
við föður sinn til að skrafa við
hann og drekka með honum
kaffi. Með öll þessi ár að baki
er Friðbjörn furðu ern og fylgj-
ist vel með því, sem er að gjör-
ast í heiminum. Hann hefir alla
daga verið hið mesta snyrti- og
prúðmenni, og hófsemdarmaður.
Hann sýndi frábæran dugnað í
búskapnum á fyrri árum, og í
viðskiptalífinu, sem hann tók
mikinn þátt sem og við embætt-
isstörf í þarfir sveitar sinnar um
langt skeið og ætíð hefir hann
verið góður drengur.
Friðbjörn var fæddur að Hóli
á Melrakkasléttu. Flutti vestur
tvítugur að aldri, nam land í
Argyle 1880, var einn af þeim
fimm Islendingum, er fyrstir
komu til Argyle og námu þar
land. Er hann einn á lífi þeirra
manna, hinir 4 eru löngu dánir.
Hamingjuóskir við þessi tíma-
mót. Megi kvöldroðinn verða
fagur og heillandi síðustu
áfangana.
☆
Nýkomnir eru þeir S. A.
Josephson, Glenboro, og Sigurð-
ur Sigurðsson, Cypress River,
heim úr langferð til Ontario,
Chicago, Minneapolis og íslenzku
byggðanna í Minnesöta; voru
þeir nokkrar vikur í túrnum og
heimsóttu fjölda af vinum og
ættingum. Létu þeir hið bezta
af ferðinni.
Þann 30. des. s.l. voru gefin
saman í hjónaband hér í Glen-
boro þau Björn James Isleifsson
og Alice May Dodds. Hjóna-
vígsluna framkvæmdi séra J.
Fredriksson. Brúðguminn er
sonur Jóns S. ísleifssonar hér í
bæ og konu hans, sem var af
hérlendum ættum, dáin fyrir
nokkrum árum, en brúðurin er
fædd hér í nágrenninu og er af
hérlendum stofni. Brúðhjónin
setjast að hér í Glenboro, þar
sem brúðguminn skipar ábyrgð-
arstöðu hjá Interprovincial
Pipeline félaginu. — Hugheilar
hamingjuóskir til brúðhjónanna.
☆
Þann 6. þ. m. hafði íslenzka
kvenfélagið ársfund; sýndu
skýrslur þeirra að þær hafa
verið athafnamiklar á árinu
liðna að vanda. María Sigmar
var endurkosin forseti; Lára
Josephson, endurkosin féhirðir,
og Rowena Anderson var kosin
skrifari í staðinn fyrir Mrs. C.
H. Christie, er sagði af sér. —
Kvenfélagið styrkir söfnuðinn
ætíð að miklu ráði, auk þess sem
það vinnur að líknarstörfum
með miklum dugnaði og fórn-
færslu árlega. .
☆
Hr. S. E. Paulson lafði af stað
síðastliðinn sunnudag vestur á
Strönd í heimsókn til systra
sinna í Port Alberni; hyggst
hann að dvelja þar vestra í
nokkra mánuði.
☆
S. S. Anderson lálinn
Þann 26. marz s.l. andaðist í
Wynyard, Sask., einn af frum-
herjum Vatnabyggðanna, Sig-
tryggur Sigurðsson Anderson,
fæddur 1875, ættaður úr Þing-
eyjarsýslu. Munu foreldrar hans
Sigurður Andrésson og Helga
Ásmundsdóttir hafa búið um
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 24. janúar:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi
íslenzk messa kl. 7 síðd.
skeið á Héðinshöfða á Tjörnesi.
Hvort Sigtryggur var fæddur
þar er mér ekki kunnugt. En
frá Vopnafirði fluttist hann með
móður sinni (er þá var ekkja) og
systur sinni, sem nú er á Betel
(Mrs. Inga Storm, mesta sæmd-
arkona) vestur um haf 1893 og
til Argyle; þar var hann í 12 ár.
Til Vatnabyggða, Sask., flutti
hann árið 1905 og nam land í
grend við Kandahar. Hann var
góður búhöldur og bjó góðu búi.
Eins og margir fleiri, mun hann
hafa verið hætt kominn í krepp-
unni, en hann rétti við vel með
tilstyrk barna sinna, sem al-
menningsorð fá fyrir dugnað og
myndarskap. Kona hans Soffía
Guðrún Gísladóttir Einarssonar
er frábær myndarkona í sjón og
raun og skörungur við búskap-
inn,*) lifir hún mann sinn ásamt
7 sonum og 5 dætrum. Báru 6
synir hans föður sinn til grafar.
Séra P. M. Pétursson jarðsöng
hann og fór jarðarförin fram frá
Sambandskirkjunni í Wynyard.
Hinn látni brá búi 1952, og bjó
hann í Wynyard þar til kallið
kom. Ég minnist ekki að hafa
séð andlátsfregn þessa í Lög-
bergi, en Mr. Anderson var al-
þekktur hér í þessu byggðarlagi,
er hans þess vegna getið hér, þó
nokkuð sé langt um liðið.
*) Þau giftust 1913.
G. J. Olesori
ÞRÍTUGASTA OG FIMMTA ÁRSÞING
Þjóðræknisíélags Íslendinga
í Vesturheimi
verður haldið í Good Templarahúsinu við Sargent Ave.
í Winnipeg, 22., 23. og 24. febrúar 1954
ÁÆTLUÐ DAGSKRÁ:
1. Þingsetning
2. Ávarp forseta
3. Kosning kjörbréfanefndar
4. Skýrslur embættismanna
5. Skýrslur deilda
6. Skýrslur milliþinganefnda
7. Útbreiðslumál
8. Fjármál
9. Fræðslumál
10. Samvinnumál
11. Útgáfumál
I
12. Kosning embættismanna
13. Ný mál
14. Ólokin störf og þingslit
Þingiðverður sett kl. 9.30 á mánudagsmorguninn
22. febr., og verða fundir til kvölds. Að kvöldinu efnir
Frón til síns árlega miðsvetrarmóts.
Á þriðjudaginn verða þingfundir bæði fyrir og
eftir hádegi. Að kvöldinu verður samkoma undir stjórn
The Icelandic Canadian Club.
Á miðvikudaginn halda þingfundir áfram og eftir
hádegið þann dag fara fram kosningar embættis-
manna. Að kvöldinu verður almenn samkoma undir
umsjón aðalfélagsins.
Winnipeg, Man., 18. janúar 1954
1 umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins,
VALDIMAR J. EYLANDS, forseti
INGIBJÖRG JÓNSSON, ritari