Lögberg - 18.02.1954, Blaðsíða 4
4
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið öt hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjörans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Dtd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized aa Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Hittumsf' heil á þingi
Næstkomandi mánudag kemur saman til funda hér í
borgi^ni hið 35. ársþing Þjóðræknisfélags fslendinga í
Vesturheimi, sem vonandi verður fjölsótt og giftudrjúgt
um lausn aðkallandi vandamála; næg verkefni bíða þings,
sem ráða verður fram úr á raunhæfum grundvelli; liý og
breytt viðhorf skapast frá ári til árs, sem krefjast styrkra
átaka, umburðarlyndis og aukins víðsýnis; það er ekki til
nokkurs skapaðs hlutar að berja höfðinu við steininn; innan
vébanda Þjóðræknisfélagsins verður að rýmka þannig til,
áður en það verður um seinan, að þar geti rúmast allir,
allir, er íslenzkum menningarerfðum unna og vilja nokkuð
á sig leggja þeim til trausts og halds; félagsdeildum þarf að
fjölga og þær, sem fyrir eru verður að magna að starfsfjöri,
þótt mæla verði á tungum tveim; engin mannfélagssam-
tök, sem verða ósamstiga við æskuna eiga langt líf fyrir
höndum; þau veslast upp og deyja jafnvel um aldur fram.
Fyrsta og æðsta skylda okkar allra, sem af íslenzku bergi
erum brotin og búsett í þessari álfu, er að vaka yfir ís-
lenzkukensluna og þá öldungis án hliðsjónar af áreynsl-
vegna ber okkur að leggja alla hugsanlega rækt við ís-
lenzkukensluna og þá öldungin án hliðsjónar af áreynsl-
unni, sem slík kensla óhjákvæmilega hefir í för með sér;
enda sýnist það engan veginn fjarskylt norrænni hetju-
lund að færast því meir í auka sem ágjöfin vex.
Forusta í mannfélagsmálum verður ávalt og undir
öllum kringumstæðum að stjórnast af sannri málefnaást;
skjóti síngjarnar hvatir þar upp trjónu, verður naumast við
góðu að búast. Lífrænt menningarsamband við ísland ber
okkur að styrkja, en í því er fólgin okkar aðal þjóðræknisleg
sáluhjálp; en á hinn bóginn getur það einnig orðið stór-
skaðlegt, að vera sí og æ að horfa aftur fyrir sig og geta
átt það á hættu að verða að saltstólpa svo sem kom fyrir
konuna hans Lots.
I hvert sinn er ég hugsa um menningartengslin við
ísland minnist ég hins snjalla kvæðis Einars Benedikts-
sonar „Vestmenn“, er hann helgaði Vestur-íslendingum í
heimsókn sinni sumarið 1921. Ég hefi stundum vitnað í
kvæði þetta áður eða réttara sagt nokkrar ljóðlínur úr
því, mér og samferðamönnum mínum til hjartastyrkingar,
en með því að góð vísa er sjaldan of oft kveðin, verða tvær
vísur úr kvæðinu hér birtar:
Þeim, sem gleyma þjóð og ætt,
þeim, sem hafa mist sig sjálfa,
verður tóm og auð hver álfa.
Andans tjón þau verða ei bætt.
Þegar barn nam móðurmál,
mótuð var þess sál. —
Þegar barn nam móðurmál
mótuð var þess insta sál.
Altaf flýgur hugur heim,
hvar sem gerist saga landans.
Standa skal í starfsemd andans
stofninn einn með greinum tveim.
Brúnni slær á Atlasál
okkar feðramál —
brúað hefir Atlasál
Islands fagra, sterka mál.
Venju samkvæmt verða haldnar í sambandi við þingið
meiri háttar skemtisamkomur og fer sú fyrsta fram í Fyrstu
lútersku kirkju á mánudagskvöldið, Miðsvetrarmót Þjóð-
ræknisdeildarinnar Frón undir forsæti hins ötula formanns
hennar, Jóns Jónssonar bókavarðar; aðalræðumaður verður
séra B. Theodore Sigurðsson. Á þriðjudagskvöldið verður
haldin, einnig í Fyrstu lútersku kirkju, skemtisamkoma sú,
er Icelandic Canadian Club stofnar til, en forsæti skipar
W. J. Líndal dómari; aðalræðumaður verður Hon. Byron I.
Johnson, fyrrum forsætisráðherra British Columbiafylkis,
fyrsti maðurinn af íslenzkri ætt, er slíkan virðingarsess
hefir skipað utan Islandsstranda.
Þingslitasamkoman verður haldin í Sambandskirkj-
unni á miðvikudagskvöldið og verður harla fjölbreytt, svo
sem ráða má af skemtiskráinni, sem auglýst er á öðrum
stað hér í blaðinu.
Aðsókn að samkomum sem þessum hefir á undanförn-
um árum verið geisimikil og þarf eigi að efa að svo verði
einnig í þetta sinn, því enn er það mörgum manninum og
margri konunni ósegjanlegt fagnaðarefni, að hlusta á „ást-
kæra ylhýra málið“ hvort heldur er í ræðu, ljóði eða söng;
hitt leiðir einnig af sjálfu sér hver gróði það sé, að kynnast
kjarngóðu umtalsefni á enskri tungu.
Á síðastliðnu starfsári mun Þjóðræknisfélagið hafa
haldið sæmilega í horfi, og að minsta kosti sums staðar hafa
lifnað yfir því, svo sem á Kyrrahafsströndinni; er gott til
þess að vita, að til sé fólk, er eigi sofi ávalt yfir sig, því næg
eru verkefni fyrir hendi, sem krefjast þess að árla sé úr
rekkju risið.
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. FEBRÚAR 1954
ALFREÐ GISLASON:
Heitsuvernd
Fyrir um það bil 15 árum sá
ég fyrsta alvarlega tilfellið af
blýeitrun í Reykjavík. Var það
miðaldra verkamaður, sem um
langt skeið hafði unnið í skipa-
viðgerðarstöð hér í bænum. Ekki
hafði hann haft hugmynd um
neina hættu í sambandi við starf
sitt, sem að mestu var var fólgið
í því að berja gamla menju utan
af skipsskrokknum, en menjan
er blýsamband. Hvorki fyrir-
tækið né aðrir höfðu bent hon-
um á hættuna, og sama mun hafa
gilt um aðra verkamenn á þeim
stað.
Enginn áhugi
Forstöðumenn þessa fyrirtækis
voru strax látnir vita um sjúk-
dómstilfellið, en ekki sýndu þeir
nokkurn áhuga og hvorki
hreyfðu þeir hönd né fót til
varnar verkamönnum sínum
eftirleiðis, Var þá leitað til slysa-
varnafélagsins með tilmæli um,
að það sæi um uppsetningu að-
vörunarspjalda á þeim vinnu-
stöðvum, þar sem blý eða blý-
sambönd væru höfð um hönd.
Tók félagið vel í það mál og
tjáði sig reiðubúið, en fyrir siða-
sakir var leitað umsagnar heil-
brigðisyfirvalda. — Undirtektir
þeirra voru heldur ekki afleitar,
þau tóku málið að sér, svæfðu
það og hafa látið það sofa til
þessa dags.
Margar hœttur
Heilsuvend manna í starfi er
býsna veigamikill liður heil-
brigðismálanna og greinist í
marga þætti. Má þar fyrst telja
slysavarnir. Vinnustaðurinn s jálf
ur, með stigum, pöllum og gólf-
um, getur boðið upp á ýmsar
hættur, röng staðsetning véla cg
annarra tækja sömuleiðis.
Þröngt athafnasvið eykur mjög
a alla slysahættu og hið sama
gerir hirðuleysi í umgengni.
Reglubundið eftirlit þarf að
hafa með vélum og öðrum vinnu
tækjum svo og öllum raflögnum.
Þá er það mikilsvert að viðvan-
íngnum sé vandlega leiðbeint um
alla slysahættu þar sem þeir
starfa.
Sérstakar ráðstafanir
Sjúkdómahætta er margvísleg
í sambandi við störfin. Sé untiið
innanhúss, verður að krefjast
þess, að húsakynni séu íveruhæf.
Þröng salarkynni illa loftræstuð
eða rök og óþétt verka að sjálf-
sögðu heilsuspillandi á starfs-
fólkið. Þegar um útivinnu er að
ræða, þarf eftir föngum að sjá
á vinnustað
starfsmönnum fyrir skýli, á með-
an þeir matast og hvíla sig.
Hverri einstakri starfsgrein
fylgir gjarna sérstök sjúkdóms-
hætta. Oft er um að ræða ýmis
konar ryk eða eitraðar gasteg-
undir í andrúmslofti vinnustað-
arins eða sérstök efni, sem verið
er með. Er þá komið að hinum
eiginlegu atvinnusjúkdómum.
Eru þeir sérstaklega algengir í
sambandi við iðnað og verk-
smiðjurekstur, en geta komið
fyrir á flestum vinnustöðvum.
Þegar um slíka hættu er að ræða,
þarf að gera sérstakar varnaðar-
ráðstafanir á vinnustaðnum með
útbúnaði, sem hæfir hverjum
stað. Starfsfólkinu verður ' að
Collon Bag Sale
BLEACHED SUGAR .29
BLEACHED FLOUR 29
UNBLEACHED FLOUR .23
UNBLEACHED SUGAR........23
Orders less than 24, 2c per bag extra.
United Bag Co. Ltd.
145 Portage Ave. E. Wínnlpeg
$2.00 Deposit for C.O.D.'s
Write for prices on new and used
Jut Bags.
Dept. 1M
heimsins
Bezta munntóbak
BALDWINSOK
BAKERY
BREAD - PIES
CAKES - PASTRY
Icelandic Specialties:
VINARTERTA - KLEINUR
PHONE 74-1181
749 Ellice Ave. Winnipeg
Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta
og fimta miðsvetrarmót Fróns í
Winnipeg, 22. febrúar 1954.
DICK HILLIER
Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta
og fimta miðsvetrarmót Fróns í
Winnipeg, 22. febrúar 1954.
Gleymið ekki þegar um það er að
ræða að gleðja aðra að líta inn til
346 PORTAGE AVENUE WINNIPEG
benda á hættuna, kenna því að
\'arast hana, og eru námskeið til
þess nauðsynleg.
Mörg fagfélög og verkamanna-
íélög hér á landi hafa árum
saman barizt fyrir aukinni
heilsuvernd í vinnustöðvum.
ItTinni áhuga hefir gætt hjá at-
vinnurekendum og heilbrigðis-
stjórnúm, enda miðar hægt á-
fram. Er ekkert skipulag enn
komið á þau mál hér að heitið
geti. Víða erlendis, t. d. annars
staðar á Norðurlöndum, hefir
þessum þætti heilsuverndarinn-
ar þegar fyrir löngu verið skip-
aður sá sess, sem honum hæfir.
Fyrir tveim árum mun alþingi
hafa samþykkt lög um öryggis-
ráðstafanir á vinnustöðvum, og
hefir það líklega verið gert með
ólund af hálfu íhaldsflokka þar.
Hvað sem um það er, þá hafa
þessi lög ekki enn komið til
framkvæmda, og hafði þó af
frumvarpinu verið sneitt ýmis-
legt sem bezt var. Hagsmunamál
vinnandi handa eiga enn erfitt
uppdráttar í þessu landi.
—Alþbl., 24. jan.
Velkomnir félagar og gestir ó þrítugasta
og fimta miðsvetrarmót Fróns í
Winnipeg, 22. febrúar 1954.
£tuani!i Sell Seáae
Beverley and Sargenl
fiaw- a mo-deAsi ^aad manlzet uxltene
cjfUalitif, ceusiti
PHONE 72-6536
Meals - Groceries - Fresh Fruiis and Vegelables
Við bjóðum íslendinga velkomna ó þrí-
tugasta og fimta miðsvetrarmót Fróns í
Winnipeg, 22. febrúar 1954, og þökkum
góða viðkynningu og vinsamleg viðskipti
þeirra, sem við höfum notið í liðinni tíð,
og vonum að njóta í framtíðinni.
Candian Fish Producers
Limited
J. H. PAGE, forstjóri
N.W. Cor. Chambers and Henry
WINNIPEG SÍMI 74-7451
Þrítugasta og fimmta
MIÐSVETRARMÓT
Þjóðræknisdeildarinnar Frón
uerðttr haldið í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU
mánudaginD. 22. febrúar, 1954
OH, CANADA (allir) .Gunnar Erlendssson við hljóðfærið
Ó, GUÐ VORS LANDS (leikið á píanó)
SKEMMTISKRÁ:
ÁVARP FORSETA Jón Johnson
EINSÖNGUR Lorna Stefánsson
1. Á Sprengisandi ...............S. K. HALL
2. ólafur reiB með björgum fram ..ÞJÓÐLAG
3. TáriS ..........................R. RAY
Undirleik annast ELMA GISLASON
KVÆÐI (flutt af H. Thorgrimson) Rósmundur Árnason
EINLEIKUR Á FIÐLU ................Pálmi Pálmason
1. Rímnalög ............KARL O. RUNÓLFSSON
a) Allegro
b) Adante
c) Allegro vivace
2. Rhapsodie ............JAMES E. FORREST
RÆÐA Séra Theódór B. Sigurðsson
EINSÖNGUR Lilja Eylands
1. Söngur spunakonunnar .LOUISE GUDMUNDS
2. The Lotus Flower .............SCHUMANN
Undirleik annast SIGRID BARDAL
ELDGAMLA ISAFOLD — GOD SAVE THE QUEEN
Veitingur soldar í neðri .sal kirkjunnar eftir sanikomuna.
Verða þar á boðstólum Islenzkrir réttir svo sem pottbrauð,
rúllupylsa, kleinur, vínarterta og fleira góðgæti.
Aðgangur 75c.
Byrjar kl. 8.15 e. h.