Lögberg - 13.05.1954, Page 3

Lögberg - 13.05.1954, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. MAÍ 1954 3 Þjóðafjölskylda, sem cnga á sína líka í veraldarsögunni Merkileg þróun á íimm ára ævi Ailanishafsbandalagsins GRUNTER hershöfðingi, yfir- maður herafla Atlantshafsríkj- anna í Evrópu, komst svo að orði í október í haust: „Það er ánægjulegt að geta skýrt ykkur frá, að herafli okkar er nú tvisv- ar til þrisvar sinnum meiri en hann var, þegar Eisenhower hershöfðingi kom til Evrópu 1951. Mestar hafa framfarir orð- ið í flughernum, sem var því miður lítils megnugur upphaf- lega og veldur okkur jafnvel áhyggjum enn í dag. Útgjöld aðildarríkjanna til landvarna hafa og aukizt veru- lega. Hækkunin hefir orðið mest í Bandaríkjunum. 1 hinum aðildarríkjunum hafa þau tvö- faldazt. Flest þeirra hafa lengt herþjónustutímann. Varnir okkar í Evrópu styðj- ast aðallega við vel þjálfaðan landher. Tiltækt er og nokkurt varalið, sem hægt er að beita þegar, er árás hefir verið gerð. Harðsnúinn flugher er til að- stoðar. Þessi viðbúnaður ætti að gera okkur kleift að vígbúa vara- lið okkar. Og langfleygar vél- flugur er hægt að senda til at- lögu langt inn í lönd árásarþjóð- anna, þar sem þær eyða iðju- verum þeirra og öðrum veiga- miklum mannvirkjum............“ Lykill að friði Eftir seinustu ehimsstyrjöld höfðu lýðræðisríkin fengið sig fullsödd af stríði. Ósk þeirra og von var sú, að Sameinuðu þjóð- irnar reyndust heilladrjúgar til að greiða friðinum götu, svo að þeir, sem unnu stríðið ynnu og friðinn. I trausti þessa lögðu lýðræðisþjóðirhar allt kapp á afvopnun. Bráðlega kom þó á daginn, að Rússar fóru ekki að dæmi þeirra. Herafli þeirra var 1 engu rýrður frá því, sem þurfa þótti á styrjaldartímum. Ekki nóg með það; þeir hófu sleitu- lausan áróður gegn lýðræðis- ríkjunum, sem höfðu verið sam- herjar þeirra í styrjöldinni. Þeir stefndu hagsmunum og áliti S. Þ. í voða með því m. a. að beita neitunarvaldi sínu eftir geðþótta. Og Rússar gengu feti framar. Eftir því sem tímar liðu fram brautu þeir Austur-Evrópuríkin undir sig hvert á fætur öðru, gleyptu þau með húð og hári. Lýðræðisríkjunum hraus hugur við þessum aðförum. Þeim duld- ist ekki, að taka þurfti í taum- ana og það umsvifalaust eða verða að gjalti ella. Ef svo héldi áfram sem horfði, yrðu örlög Vestur-Evrópu innan skamms þau sömu og landanna fyrir austan járntjald. Eitthvað varð til bragðs að taka, en það var ekki á færi neinnar einnar þjóð- ar að stemma stigu við ásælni herveldisins í austri. Friðar- sinnaðar þjóðir hlutu að sverj- ast í fóstbræðralag; þar og ekki annars staðar var fólginn lykill íriðarins. Fyrir 5 árum Til að sýna, að þetta eru ekki staðhæfingar úr lausu lofti gripnar, skal hér drepið á atriði, sem ekki verða véfengd. h'yrir fimm árum, er Atlants- hafsbandalagið var stofnað, áttu Rússar á að skipa 175 fullþjálf- uðum herfylkjum, 20 þúsund vélflugum og stórum kafbáta- flota fyrir utan nokkurn herafla í hjáríkjunum. Rússaveldi var albúið til styrjaldar, svo að það hefði getað gert hættulega árás á Vestur-Evrópu umsvifalaust. Brussel-bandalagið, Bretland, Frakkland, Belgía, Holland og úuxembujfg, var stofnað 1948. — Samanlagður herafli þess var um 10 herfylki og 400 vélflugur. Sjóherinn var að vísu nokkuð öflugur, en þó að skipakostur russelbandalagsins væri skárri en Rússa, þá var sjóherinn alls e ki undir það búinn að taka á moti þeirri hættu, sem stafaði ra vélflugum Rússa, tundur- duflum og kafbátum. Þannig var þá umhorfs, þegar Atlantshafssáttmálinn var undir- ritaður í Washington fyrir 5 árum eða 4. apríl 1949. Þjóðir hafa sama metnað fyrir hönd herja sinna og mæður hafa fyrir hönd barna sinna. Og á liðn um öldum hefir enginn fengið öðrum stjórn herja sinna nema slíkt væri knúið fram með vopna valdi. í fyrsta skipti í veraldar- sögunni gangast frjálsar þjóðir nú undir það af frjálsum vilja á friðartímum. Svo sérstæð er ein- drægni Atlantshafsríkjanna. Þetta hefir gert kleift að ganga frá sameiginlegum áætl- unum, það hefir gert kleift að halda sameiginlegar heræfingar aðildarríkjanna á landi, í lofti og á legi. Mönnum skyldi ekki koma á óvart, þó að í þvílíkum samtökum mætti fá því orkað, sem áður þótti óhugsandi. Miklu hefir verið áorkað Raunin er líka sú, að þau 5 ár, sem sáttmáli Atlantshafsríkj- anna hefir staðið, hefir herafli þeirra eflzt meir en menn óraði fyrir. Engu að síður er liðsafli þeirra ónógur, og her Rússa- veldis er enn þann dag í dag mun sterkari og eflist óðum. Enginn getur örugglega sagt fyrir um fyrirætlanir þeirra, en svo mikið er víst, að möguleikar þeirra til að hefja árásarstríð með góðum árangri hafa stórum þ»orrið undanfarin 5 ár. Ennn hafa Rússar á að skipa 175 herfylkjum að minnsta kosti, 20 þúsund vélflugum og miklum kafbátaflota, sem þeir leggja mikið kapp á að auka. Þó að þessar tölur sýni ekki aukningu þetta 5 ára skeið, hefir herinn tvímælalaust styrkzt stór- um. Rússar hafa lagt megin- áherzlu á að endurnýja her- gögn sín og búa heri hjáríkjanna nýtízku vopnum og þjálfa þá. 1 herjum þeirra eru nú að lík- indum 70—80 herfylki. Atlantshafsríkin hafa nú á að skipa 75 herfylkjum og 4500 vél- flugum. Gerðir hafa verið 125 nýir flugvellir og unnið er að fleirum. Sjóher þeirra er miklu öflugri en Rússa, þegar kafbáta- flotinn er undanskilinn, en sjó- her bandamanna stafar enn sem fyrr mikil ógn frá Rússum. Varnarsamtök en ekki árásar Hvað sem þessum tölum líður, þá er víst, að Atlantshafsríkin hafa eflzt ótrúlega mikið á 5 árum.Seinustu árin hefir verið lögð meiri áherzla á dug her- aflans en höfðatölu hermanna og fjölda vopna. Herlið og varalið hefir verið þjálfað til þrautar og vopnabúnaður allur bættur, og það endurnýjað, sem úrelzt hafði. Sérstaka athygli hafa vak- ið æfingar með ný vopn þar á meðal meðferð kjarnorkuvopna, sem notuð hafa verið við heræf- ingar á seinustu misserum. Eitt einkennir allan þennan viðbúnað öðru fremur. Hann er allur miðaður við varnir, hvorki í smáu né stóru er gert ráð fyrir, að vopnum eða herafla verði beitt til árásar. Er þetta í sam- ræmi við markmið bandalags- ins — að fæla ágengar þjóðir frá því að gera árás og stofna til þriðju heimsstyrjaldarinnar. Það eru í innsta eðli sínu varnar samtök. Einn hugur — eiit markmið Einingin er meginstyrkur At- lantshafsríkjanna og aðalsmerki. VitasTíuld ber margt á góma, sem allir eru ekki sammála um. Það fylgir hverri fjölskyldu, að fólkið greini á um menn og mál- efni. En í meginatriðum getur aldrei orðið verulegur ágrein- ingur. Það er líka athyglisvert, að engum málefnum, sem aðild- arríkin varða í heild, er ráðið svo til lykta, að öll séu þau ekki á einu máli. Hér þarf ekki neit- unarvald, heldur er unnið að lausn viðkvæmustu og veiga- mestu mála, unz allir geta við unað. Markmiðið er líka sama hjá öllum: gagnkvæmar varnir, vel- megun aðildarríkja og efling efnahagslegra og menningar- legra viðskipta þeirra. Hernað- arlega vinna ríkin sameiginlega að því að koma sér upp svo sterkum vörnum, að engin þjóð sjái sér hag í að hefja árásar- stríð. En ef viðbúnaður þeirra skyldi ekki nægja .til að fæla herskáar þjóðir frá árás, þá eru aðildarríkin reiðubúin að verj- ast sameiginlega með púðri og stáli. Undansláiiur siofnar griðum í hæitu Heyrzt hafa raddir um, að viðbúnaður bandalagsins væri ærinn orðinn ,og því væri óhætt að láta hér staðar numið. Ríkis- stjórnir Atlantshafsríkjanna og þeir, sem hnútum eru kunnugir, vita þó betur. Það, sem áunnizt hefir til eflingar friðinum, er að verulegu leyti að þakka tilveru bandalagsins. Samvinna aðildar- ríkjanna hefir að vísu lyft Grettistökum, skapað flóðgarða þar, sem elfur eyðileggingarinn- ar gat áður beljað fram fyrir- hafnarlaust, glætt samheldni og samhug, þar sem óvinir sáu áður von til sundrungar. En hernaðar- báknið í austri heldur áfram að blása út, og um leið og dregið yrði úr viðbúnaði, mundi það vaxa samtökum frjálsra þjóða yfir höfuð. Hnefinn er reiddur yfir á.lfunni. Reynslan hefir margsannað okkur, að ekkert getur tálmað því, að höggið ríði af nema krepptur hnefi lýðræðis þjóðanna. Eða muna menn til þess, að nazistar og kommún- istar hafi vílað fyrir sér að rjúfa greiðin, er þeir sáu sér hernaðar- legan ávinning í því? Hitt er svo alkunna, að lýð- ræðisríkin bíða þeirrar stundar með óþreyju, að þeim verði ó- hætt að draga úr vígbúnaði sín- um. Þeim dylst ekki, að eftir því sem varið er minna fé til hervarna verður auðið að veita meira fé til þeirra mála, sem skapa fólkinu hagsæld og ham- ingju. Þær eru á einu máli um, að allt kapp skuli lagt á að draga úr viðsjám og togstreitu í heiminum og grípa hvert tæki- færi, sem býðst, til að varða leið- ina til friðar í sátt og bróðerni allra þjóða. Sönn þjóðafjölskylda Ismay lávarður, aðalritari At- lantshafsbandalagsins sagði í ræðu s.l. sumar: „Þegar tilrætt verður um At- lantshafsbandalagið, er oftast talað um herafla þess; af því má þó ekki draga þá ályktun, að þetta sé venjulegt hernaðar- bandalag á gamla vísu. Því fer fjarri. Því er, eins og Churchill orðaði það, ekki aðeins ætlað að verja hendur sínar fyrir snögg- legri árás, heldur því skapað að glæða framfarir þjóða á ókomn- um árum. Og sáttmáli Atlants- hafsríkjanna gerir ráð fyrir, að aðildarríkin myndi, er tímar líðar, sanna þjóðafjölskyldu, þar sem hugur og hönd tengist til sameiginlegra átaka, þar sem hver hjálpar öðrum í öllum greinum alþjóða viðskipta, jafn- yel þótt árásarhættan í heimin- um hafi hjaðnað að nokkru, jafn- vel þótt hún verði alveg úr sögunni“. —Mbl., 4. apríl Verður grasfræsrækt reynd í allstórum stíl ó söndunum í Rangórvallasýslu? Þingsályktunartillaga Búnað- arþings er komin frá jarðrækt- arnefnd, og var Ólafur Jónsson, fyrrverandi tilraunastjóri, fram- sögumaður að henni. Ályktunin er svohljóðandi: „Búnaðarþing ályktar í fram- haldi af ályktunum síðasta Bún- aðarþings um frærækt, að fela stjórn Búnaðarfélags Islands að vinna að því við ríkisstjórn og Sandgræðslu ríkisins, að í Gunn- Hreindýrastofninn á Austurlandi hefir 20 faldast s.l. 14 ór Talið sjálfsagi að hagnýia hann nú á einhvern háit Hreindýrunum á Austur- landi hefir fjölgað mjög ört á síðustu árum. Er nú talið af kunnugum mönnum að þau séu ekki færri en 2000 talsins, en þau voru 1940 talin vera um 100 talsins. Þó er mjög erfitt að segja nákvæmlega til um tölu þeirra. Virðast dýrin lifa góðu lífi, en ennþá hafa þau ekki farið út af þeim slóðum, sem þau hafa verið á um langt árabil. Hin öra fjölgun Árið 1940 voru hreindýrin friðuð, nema að heimilt var að látá veiða hreintarfa, því skipt- ingin milli karl- og kvendýra var talin óheppileg, jafnvel svo að það hindraði vöxt hjarðarinnar. Á hverju hausti hefir því að ráði eftirlitsmanns verið fargað 20—60 dýrum. Ekki er vitað með vissu, hvort það er þessi ráð- stöfun, sem átt hefir sinn mikla þátt í að hreindýrunum hefir stórfjölgað svo sem raun er á. Nú er af hálfu ríkisstjórnar- innar flutt á Alþingi frumvarp um að hreindýr skuli friðuð fyrir skotum og öðrum veiði- vélum. Þó geti ráðherra í sam- ráði .við sýslumenn og eftirlits- mann heimilað veiðar hrein- dýra, enda setji hann um það nánar reglugerð. 1 reglugerðinni á ráðherra að setja ákvæði um það hvert hagn- aðurinn, er verða kann að veið- unum, renni. Þykir sjálfsagt að bændur sem lönd eiga næst hreindýraslóðunum njóti þess arðs. í greinargerð með frumvarp- inu segir og, að sjálfsagt sé að reyna að hagnýta hreindýrin skynsamlega eins og hver önnur gæði landsins. Þarf reynslan að skera úr um, með hvaða hætti þau verða helzt gerð arðgæf. 1 svipinn virðast veiðarnar liggja næst, enda er talin yfirvofandi hætta á, að í hörðu ári muni dýrin horíalla, ef hjarðir þeirra vaxa frá því sem nú er. —Mbl., 7. apríl arsholti verði hafin frærækt í stórum stíl af þeim tegundum túngrasa, sem auðveldast er að rækta hér til frætekju og ætla má, að henti vel til fræræktar í sandjarðvegi. Jafnframt fari stjórn Búnaðarfélags Islands þess á leit við nýbýlastjórn ríkisins, að hún athugi þann möguleika að gera nýbýlahverfi á hentugum stað í nágrenni Gunnarsholts, er hafi korn og frærækt sem aðalframleiðslu. Ennfremur hlutist stjórn Bún- aðarfélags Islands til um það við áðurnefnda aðila og Skógrækt ríkisins, að í sambandi við fræ- ræktina verði gerðar rækilegar tilraunir með gróðursetningu og ræktun skjólbelta". Fræraekt í stórum stíl í greinargerð, sem fylgir þess- ari þingsályktunartillögu segir, að síðasta Búnaðarþing hafi fellt grein um grasfrærækt inn í kornræktarfrumvarpið, en síðan hefir ekkert um málið heyrzt. Hér á landi má með góðum árangri rækta fræ af ýmsum tegundum túnjurta, sérstaklega er fræþroskinn hraður í sand- jarðvegi. Frærækt verður að fram- kvæma í stórum stíl vegna stofn- kostnaðar og þá sérstaklega vegna véla, er nota þarf til að hreinsa fræið. Það, sem helzt myndi þurfa að óttast í sam- bandi við grasfrærækt, eru stormar, sem feyktu fræinu burt eftir þroskun. Þess vegna myndu skjólbelti eiga óvíða betur við en í sambandi við grasfrærækt, og er nauðsynlegt að fá úr því skorið, hvernig skjólbeltarækt- un myndi lánast hér. —TÍMINN, 7. marz Dr. P. H. T. Thorlakson WINNÍPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan. Winnlpeg PHONE 92-6441 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningal&n og eldsábyrgB, bifreiBaábyrgtS o. s. frv. Phone 92-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m. Thorvaldson, Eggertson, Baslin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE. Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917 Office Phone 92-4762 Res. Phone 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur Hkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaBur sá bezti. StofnaB 1894 SlMI 74-7474 Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity Pavilion General Hospital Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Fimeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753 SELKIRK METAL PRODUCTS Reykh&far, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viC, heldur hlta frá atS rjúka út meB reyknum.—SkrifiB, slmiB til KELLT SVEINSSON 625 Wall St Winnipeg Just North of Portage Ave. Símar S-3744 — 3-4431 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all lts branches Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BU1I.DING Telephone 93-71S1 Res. 46-3480 LET US SERVE YOU S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 92-4424 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 832 Simcoe St. VVinnipeg, Man. SEWING MACHINES Darn socks in a jiffy. Mcnd, weave in holes and séw beautifully. 474 Portage Ave. Winnipeg, Man. 74-3570 Dr. ROBERT BLACK SérfræBingur I augna, eyrna, nef • og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 92-3851 Heimasími 40-3794 Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargenl Ave. Winnipeg PHONE 74-3411 Hofið Höfn í huga Heimili sólsetursbarnanno, Icelandic Old Folks’ Home Soc., 3498 Osler St., Vancouver, B.C. Cotton Bag Sale BLEACHED SUGAR .29 BLEACHED FLOUR ..........29 UNBLEACHED FLOUR ........23 UNBLEACHED SUGAR .23 Orders less than 24, 2c per bag extra. United Bag Co. Ltd. 145 Portage Ave. E. Winnipeg $2.00 Deposit for C.O.D.’s Write for prices on new and used Jut Bags. Dept. 1M AUTOMOTIVE SERVlCé Exclusive Hillman Distributors Sargent & Home Ph. 74-2576 Minnist' BETEL í erfðoskróm yðar. Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederatlon Llfe Bulldlng WINNIPEG MANTTOBA Lesið Lögberg Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker. Q.C. B. Stuart Parker. A. F. Kristjanmon 500 Canadian Bank of Commerce Chamberi Winnipeg, Man. Phone 92-3561 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Simi 92-6227 EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniloba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr. Van7s ESectric Ltd. 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL F!l >T!utkIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFTAT Phone 3-48U0

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.