Lögberg - 13.05.1954, Page 7

Lögberg - 13.05.1954, Page 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. MAl 1954 7 Bræðraminning LOFTLEIÐIR 10 ARA: Sækja um Beyfi til áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Tokyo Það mun ekki hafa verið getið um lát Sveinssons-bræðranna, Jóns og Sveins, í íslenzku blöðunum vestan hafs, en þeir dóu með tæpu mánaðarmillibili seinni hluta ársins 1953, Jón í Billings, Mont., og Sveinn í Portland, Ore. Foreldrar þeirra voru hin velþekktu hjón, Sveinn Sveinsson bóndi og kona hans Guðrún Símonardóttir, frum- byggjar í íslenzku byggðinni að Mountain, N.D. Foreldrar Sveins föður þeirra voru Sveinn Sveins- son læknir, annálaður yfirsetu- læknir og almennt kallaður Yfirsetu-Sveinn, er bjó á Sleitu- stöðum í Kolbeinsdal í Skaga- fjarðarsýslu, og seinni kona hans Rannveig Erlendsdóttir úr sömu sveit. Sveinn er fæddur að Sleitu- stöðum 7. apríl 1848. Úr föður- húsum fór hann á 12. ári og vann fyrir sér þar í sveitinni þar til árið 1876 að hann flutti vestur um haf til Nýja-íslands, Mani- toba, Canada, og var bóluvetur- inn á Gimli. Árið 1877 kvæntist Sveinn Guðrúnu Símonardóttur. Árið eftir fór Sveinn suður til Mountain, N.D., U.S.A., sem þá var íslenzkt nýlendusvæði, og nam þar land. Árið 1879 fluttu þau hjónin þangað búferlum og settust að á heimilisréttarlandi sínu stutt suður af Mountain- þorpi; síðar fluttu þau á bújörð 3 mílur austur af Mountain, og arið 1905 fluttu þau á lönd, sem þau keyptu stutt suður af Akra, N.D., og bjuggu þar til æviloka. Sveinn andaðist 30. júlí 1924. Guðrún kona Sveins var Sí- monardóttir Kristjánssonar frá Veðramóti í Gönguskörðum í Skagafjarðarsýslu og konu hans Þorbjargar Eiríksdóttur Bjarna- sonar frá Víðinesi í Hjaltadal. Guðrún var fædd 7. apríl 1856, fluttist til Nýja-lslands, Man., árið 1876 og giftist sem fyr segir Sveini 1877. Guðrún andaðist 5. marz 1940 á heimili dóttur sinn- ar og tengdasonar Mr. og Mrs. Steini Björnsson, Hensel, N.D. Jón Sveinsson var fæddur að Mountain, N.D., 18. marz 1885; hann lézt 31. ágúst 1953 í Bill- ings Mont. Dauða hans bar óvænt að, þó hann væri van- heill síðasta ár ævinnar. Þennan dag fóru þau Jón og kona hans «1 sonar síns Gilchrists, sem býr í Billings, þar sem fjölskyldan mætti til miðdagsverðar. Seinni hluta dags fór Jón einn heim. Á miðri leið hafði hann stöðvað bíl sinn upp við gangstéttina, var höfuð hans hneigt að stýris- hjólinu og hann örendur. Jón kvæntist í Manitoba, Canada, 10. júlí 1911 Jónu Johnson, dóttur Gísla Johnson Runólfssonar og Sigurlaugar Gísladóttur Kon- ráðssonar sagnfræðings. Kona Gísla og móðir Jónu var Krist- jana Símonardóttir Kristjáns- sonar og kona hans Þorbjörg Eiríksdóttir, sem lengi bjuggu í Neewatin, Ont., þar dó Gísli; eítir það fluttist Kristjana til írændfólks síns að Mountain, ^ — Jón og Jóna settust fyrst á landi austan við Mountain. Seinna keypti hann land í nánd Vli® þorp, sem Bakoo heitir, skammt frá Akra, N.D. Þar stundaði hann búskap og vann smíðum; hann og Björn jálmarsson frá Akra unnu er>gi saman. Þegar börn Jóns og onu voru uppkomin og búin að a ^oenntun, brugðu þau búi og voru um tíma á Akra. Þaðan luttu þau til Helena, Mont. Þar stundaði hann húsasmíðar. 1 desember 1945 fluttu þau til Billings Mont. og bjuggu þar síðan. Jón lætur eftir sig ekkju sína Jónu og fjóra syni: Gilchrist og Elvin (Plummers), Gordon (Electrician), allir í Billings, Mont., og James (Sheet Metal Worker) í Juneau, Alaska, og (eina dóttur Mrs. Savage (Mae) í Batön Ruge L.A. Jón var iðjumaður í þess orðs beztu merkingu, umhyggju- (Samur eiginmaður og faðir. glöggt auga fyrir öllu spaugi- ilegu og var orðheppinn og iSkemmtinn í viðræðum. Sveinn Sveinsson andaðist að heimili sínu í Portland, Ore., 20. september 1953 og var jarðsung- inn 23. sama mánaðar og lagður til hvíldar í Lincoln Memorial grafreit. Sveinn var fæddur að Moun- tain, N.D., 12. apríl 1899 og var því aðeins 54 ára að aldri. Hann kvæntist Elsie J. Su frá Hamil- ton, N.D. Þau voru gefin saman, í Moore Head, Minn., 16. nóvem- ber 1925. Þau settust fyrst að í Helena, Mont. Þar stundaði Sveinn atvinnu sína, en hann var raffræðingur (Electrician). Síðar fluttu þau til Portland, Ore. Þar hélt hann áfram sama starfi þar til heilsan bilaði. Síð- ustu ár ævi sinnar átti hann í stríði við heilsuleysi, þó ungur væri, og gekk undir ægilegan uppskurð, en engin læknis- aðgerð gat bjargað. Ólæknandi krabbamein varð honum að Þeir eru ekki ýkja margir, sem ilfa það að komast á tíræðis- aldurinn, og þeir, sem tóra allan þann tíma, eru allajafna orðnir býsna farnir og þreyttir á líf- inu — og furðar engan á því. Þó á sumt fólk því láni að fagna að halda lífsþrótti sínum og lífs- gleði undursamlega fram í háa elli. Á meðal þessa fólks er frú ;María Ámundadóttir, sem í dag fyllir níunda áratuginn. í fyrra- dag, þegar mig bar að garði á heimili hennar, Laugavegi 159A, þar sem hún býr hjá tengdasyni sínum, Pétri Þórðarsyni, var hún úti við að hengja upp þvott- inn sinn eins og ekkert væri. Hún þjónar sér sjálf og hugsar um sig að mestu leyti og sívinn- andi er hún 1 höndunum allan daginn, með prjónana sína eða við rokkinn. Hún er hress og reif í máli, með ágæta heyrn en nokkuð er sjón hennar farin að daprast, þó ekki meira en svo að hún getur hæglega lesið gler- augnalaust fyrirsagnir dag- blaðanna. Þeir, sem vel þekkja til Maríu dást að hinni traustu og hlýju skapgerð hennar, léttlyndi henn- ar og kjarki. Sjálfsagt eru það ekki sízt þessir eiginleikar henn- ar, sem hafa hjálpað henni yfir alla erfiðleikana, sem orðið hafa á vegi hennar á hinni löngu ævi. María er fædd að Árbæ í Holtum í Rangárvallasýslu hinn 1. apríl 1864. Hún ólst upp hjá afa sínum og ömmu til 8 ára aldurs, en þá byrjaði hún að basla fyrir sér sjálf og síðan hefir henni aldrei fallið verk úr hendi. Hún hefir fætt og alið upp þrjú börn, sem hún sá fyrir og kom til manns af eiginn rammleik. bana. Allar þjáningar bar Sveinn með íslenzkri karlmannslund, glaður og reifur til hinztu stundar; ástríkur eiginmaður og faðir, alltaf fær um að draga at- hygli sinna nánustu frá líðan sinni með ljúfmennsku og hýru viðmóti. Hann syrgja ekkjan Elsie og þrjú börn: tveir synir, Robert Swain og Charles Richard, og ein dóttir Mrs. Lotu (Donna Lee), öll í Portland, Ore. Elzti bróðirinn, Sveinn Sveins- son byggingameistari, dó 1 Chi- cago fyrir nokkrum árum; auk ofantaldra skyldmenna syrgja bræður sína 4 eftirlifandi systur: (Rúna) Mrs. Kristjánsson og (Lóa) Mrs. Björnsson, Hensel, N.D., (Tobba) Mrs. Sveinsson, Wynyard, Sask., og (Dilla) Mrs. Thorwaldson, Los Aengeles, Cal. í þeirri von, að ættmenni á Is- landi og þeir sem í þessu landi búa, en hafa ekki séð ensku blöðin, sem andlátsfregnir bræðranna voru í, sjái línur þessar eru þær nú birtar. Það lifir í minning um ófarin ár, er áttum við föðurhús saman. Oss birtist þar sýn gegnum saknaðartár um svo margt, sem var unun og gaman. Það rætast ei allar óskir og þrár né æskunnar vonir um framan. Að vera iðju- og lánsmenn liðinna daga, er lífsins fegursta ævisaga. Blessuð sé minning bræðranna í nafni systranna Gamall Dakota-búi Tíu krónur í árslaun Hún vann fyrir sér sem vinnukona á bæjunum í sveit- inni hennar, eins og gerðist í þá daga. Þegar hún var 18 ára gömul voru árslaun hennar 10 krónur og þrjár flíkur að auki. — Ég man, segir María, — að árið 1884 var aflahlutur sjó- manna 60 krónur yfir vertíðina — og það þóttu hrein uppgrip í þá daga. — En hvenær komuð þér til Reykjavíkur? — Það var um árið 1910, sem ég settist hér að. Áður hafði ég þó farið einum þrisvar sinnum fótgangandi austan úr Rangár- vallasýslu til Reykjavíkur til að leita fyrir mér um atvinnu — hvort mér byðist ekki eitthvað betra, sem gæfi meira í aðra hönd heldur en vinnan í sveit- inni. — Og féllu yður skiptin vel? — Já. Það var auðveldara að koma sér áfram hér, það var erfitt og illa launað í sveitinni, þegar ég var upp á mitt bezta, og oft skortur á því sem vera skyldi. Fólk barðist í bökkum við að hafa í sig og á. Það mátti ekkert tæpara standa, að það tækist. — Já, víst hef ég orðið að ganga gegnum margar þrautir og erf- iðleika um ævina, en það fellur nú flest um sjálft sig. Ég á líka margar sólskinsstundir til að minnast — þær vil ég geyma en gleyma hinu. Alsáll við lífið — Svo að þér eruð eftir allt saman sáttar við lífið og til- veruna? — Já, alsátt, ég fer héðan ánægð, þegar ég fer. Ég finn, að ég er að verða óttalega ónýt, þrótturinn er smám saman að fjara út, svo að ég vildi helzt, að ég ætti ekki mjög langt eftir — annars er ég ekkert of góð til að lifa svo lengi sem það á að verða. — Ég gleðst af tilhugsun- inni um, hve fólkið á við betri kjör að búa, hve því líður miklu betur nú heldur en í gamla daga, þegar ég var að berjast áfram, og ég vildi óska, segir hin ní- ræða kona að lokum, — að það ástand megi haldast, að sem flestir geti lifað glaðir og ánægðir. Fjölga Atlantshafsferðum og undirbúa kaup á Cloudmastervél Loftleiðir h.f. eiga í dag tíu ára starfsafmæli. Á þessu tímabili hafa flugvélar fé- lagsins flutt samtals 94,132 farþega, 243 tonn af pósti og 918 tonn af ýmiskonar varningi. Loftleiðir eiga nú aðeins eina millilandaflugvél, „Heklu“, en hafa tekið á leigu norska flugvél frá Brathen, sem í sumar mun annast áætlunarflugferðirnar á vegum félagsins milli Evrópu og Ameríku ásamt „Heklu“. Hafa Loftleiðir og sótt um leyfi til áætlunarflugs' á flugleiðinni Reykjavík—Tokyo, en ekki hef- ir endanlega verið gengið frá því máli. Næsti áfangi á þró- unarbraut félagsins er að kaupa flugvél af fullkomnustu gerð, og er nú unnið að undirbúningi kaupa á vél af tegundinni Cloud- master DC6, en slíkar vélar eru ekki fáanlegar nema með tveggja ára biðtíma, og munu kosta um eða yfir 20 millj. kr. Þótti því nauðsynlegt að taka flugvél á leigu meðan beðið er þessarar nýju vélar, til þess að halda uppi áætlunarferðunum ásamt „Heklu“. Stjórn Loftleiða ræddi í fyrra- dag við blaðamenn og skýrði þeim í stórum dráttum frá sögu og starfi félagsins þessi tíu ár, og hafði Kristján Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður aðallega orð fyrir stjórninni. Þrír flugmenn brautryðjendur Síðla árs 1943 keyptu þeir Alfreð Elíasson, Kristinn Olsen og Sigurður Ólafsson litla Stin- son sjóflugvél, en þeir höfðu þá dvalizt í Canada við nám og störf. Upp úr áramótunum 1943—1944 ákváðu þeir, ásamt nokkrum fleirum, að stofna nýtt flugfélag og 10. marz 1944 voru Loftleiðir h.f. stofnaðar, en fyrstu stjórnina skipuðu þeir þremenningarnir, auk Ólafs Bjarnasonar og Kristjáns Jóh. Kristjánssonar, sem var formað- ur félagsins og gegndi þeim starfa um langt árabil. Fyrsta áætlunarflugið var far- ið með Stinsonvélinni 7. apríl 1944, en þá var haldið til Vest- fjarða. Á næstu árum jókst flug- vélakostur félagsins og um skeið héldu Loftleiðir uppi áætl- unaflugi milli Reykjavíkur og 15 flugstöðva á landinu, auk þess sem vélar félagsins önnuðust síldarleit. Fyrsta millilandaflugvélin í júnímánuði 1947 fengu Loft- leiðir fyrstu millilandaflugvél sína, eldri „Hekluna“, og var það fyrsta Skymasterflugvél Is- lendinga, og árið eftir keypti félagið aðra Skymastervél, „Geysi“. Síðan hefir félagið haldið uppi föstum áætlunar- ferðum milli Evrópu og Norður- Ameríku, en auk þess hafa vélar þess verið í leiguferðum víða um heirh. Eins og kunnugt er urðu Loft- leiðir fyrir því óhappi haiietið 1950, að flugvélin „Geysir“ ó- nýttist á Vatnajökli, og síðar brann „Hekla“ suður á ítalíu, en þar var hún í vörzlu erlends flugfélags. — Hafði þetta í för með sér mikinn hnekki fyrir fé- lagið og tafði framþróun þess, en árið 1952 keypti það nýja Sky- mastervél, nýju „Heklu“, sem verið hefir í förum víða um heim frá því í maí 1952. Þess má geta að á síðastliðnu ári voru hreinar gjaldeyristekjur af flugi vélarinnar, umfram það sem eyddist við rekstur hennar, ná- lega ein millj. kr. Hætta innanlandsflugi Eftir áramótin 1952 urðu þátta skil í rekstri Loftleiða, er ákveð- ið var að leggja niður innan- landsflug vegna skiptingu flug- leiðanna milli flugfélaganna, en þá skiptingu, eins og hún var ákveðin, gátu Loftleiðir ekki fellt sig við. Var þá ákveðið að selja allar flugvélarnar, er notaðar höfðu verið í innan- landsfluginu, og síðan hafa Loftleiðir einsöngu haldið uppi ferðum landa í milli. Samvinnan við Braathen Nokkru áður en nýja „Hekla“ var keypt gerðu Loftleiðir samn- ing við Braathen’s SAFE um gagnkvæma leigu á flugvélum. Braathen, sem hélt uppi föstum áætlunarferðum milli Noregs og Kína, leigði „Heklu“ tvisvar í mánuði til Austurlanda, en Loft- leiðir leigðu norska flugvél aðra hverja viku til Ameríkuferða. Fjölgar ferðum yfir Atlantshafið Loftleiðir hafa nú ákveðið að fjölga ferðunum yfir Atlants- hafið, upp í tvær í viku eftir næstu mánaðamót, en eftir 27. maí er ákveðið að fara þrjár ferðir í viku milli Evrópu og Ameríku. Viðkomustaðir verða þeir sömu og áður, það er Ham- borg, Kaupmannahöfn, Stafang- er, Reykjavík og New Ycyrk, en auk þess verða teknar upp viku- legar ferðir milli Islands og Gautaborgar, og einnig verða ferðir til Osló í beinu sambandi við flugferðir Loftleiða. Ákveðið heflr verið að gera gagngera breytingu á báðum flugvélunum, „Heklu“ og norsku leiguflugvélinni, með tilliti til þæginda og öryggis farþeganna. Meðal annars verður sætunum fækkað í 53, og verða þau færan- leg og einnig verða færanleg skilrúm í vélunum. Ráðgert er, að Hekla fari til Kaupmanna- hafnar í dag á afmælisdegi fé- lagsins, þar sem þessi endur- nýjung og breytingin verður framkvæmd. Loftleiðir eru háðar sam- þykktum IATA um fargjöld milli íslands og Evrópu. Hins vegar hefir félagið óbundnar hendur um fargjöldin á flugleið- inni Island og Ameríka og hafa fargjöld þess að undanförnu verið um 800 kr. lægri á þeirri leið en annarra félaga. Um 60 manna starfslið Alls vinna nú hjá Loftleiðum um 60 manns bæði hér og er- lendis, en félagið hefir umboðs- menn víða erlendis. M. a. hefir það nýlega aukið tölu starfs- manna sinna og í Kaupmanna- höfn hefir húsnæði verið tekið á leigu fyrir afgreiðslu og skrif- stofur í Vester-Farimagsgade, og veita skrifstofunni forstöðu þeir J. Höberg Petersen og Gunnar Gunnarsson. í New York hefir félagið Icelandic Airlines Inc. tekið að sér alla fyrirgreiðslu vegna starfsemi Loftleiða, en það félag er stofnað að tilhlutan þeirra. Forstjóri þessa félags er Nicholas Craig, en Bolli Gunn- arsson er trúnaðarmaður Loft- leiða og fulltrúi í New York. Auk þessa hefir félagið umboðs- menn í Noregi og Þýzkalandi. Á síðasta aðalfundi Loftleiða var ákveðið að auka hlutafé fé- lagsins upp í 2 millj. kr. og er stjórnin nú að ljúka við fram- kvæmd þeirrar ákvörðunar, og hefir hlutafjársöfnunin gengið mjög vel. Stjórn félagsins skipa nú Kristján Guðlaugsson, form., Alfreð Elíasson, sem einnig er framkvæmdastjóri félagsins, Kristinn Olsen flugstjóri, Sig- urður Helgason framkvstj. og Ólafur Bjarnason skrifstofustj. í varastjórn eru Sveinn Bene- diktsson framkvæmdastjóri og Einar Árnason flugstjóri. —VISIR, 10. marz Fréttir frá ríkisútvarpi íslands Skíðamóti Islands lýkur í dag. P’yrri hluti mótsins fór fram á Siglufirði og var þar keppt í norrænum greinum, göngu og stökki, en síðari hluti mótsins hófst á sumardaginn fyrsta í nágrenni Reykjavíkur og var þar keppt í alpagreinunum svo- nefndu, svigi, bruni og stórsvigi. Skíðamenn frá öllum lands- hlutum tóku þátt í mótinu. ☆ Hörður Bjarnason skiplags- stjóri hefir nýlega verið skipað- ur húsameistari ríkisins. — Þrír umsækjendur eru um prófessors embætti í lögum við lagadeild Háskóla íslands. Þeir eru Bene- dikt Sigurjónsson fulltrúi, Dr. Gunnlaugur Þórðprson fulltrúi og Theódór B. Líndal hæsta- réttarlögmaður. ☆ Barnavinafélagið Sumargjöf efndi til hátíðahalda í Reykjavík á sumardaginn fyrsta og var veður milt og blítt. Voru há- tíðahöldin mjög fjölsótt. Börn komu í skrúðgöngum úr Austur- og Vesturbænum og voru skraut búnir vagnar í förinni. Var haldið á Austurvöll og þar flutti biskupinn yfir íslandi, herra Ásmundur Guðmundsson, ræðu af svölum Alþingishússins. Fjölmargar skemmtanir voru í samkomuhúsum bæjarins og voru vel sóttar. Nær 150 þúsund krónur söfnuðust fyrir sölu merkja, bóka og blaða og hefir aldrei safnazt jafn mikið á barna daginn. Sumardagsins fyrsta .var minnzt með hátíðahöldum víðar um land og efnt til marg- víslegra skemmtana. ☆ Nýlega kom flutningaskipið Arnarfell með 100 dráttarvélar af Ferguson-gerð tli landsins og Samband íslenzkra samvinnu- félaga á von á 266 dráttarvélum til viðbótar í vor. Er vélar þess- ar eru komnar til landsins, þykir fullvíst að Islendingar eigi hlut- fallslega flestar dráttarvélar eða rúmlega eina á þriðja hvert býli. ☆ Þrír ungir listmálarar halda málverkasýningu um þessar mundir. Þeir eru Benidikt Gunn- arsson, sem sýnir í Listamanna- skálanum í Reykjavík, Garðar Loftsson, sem sýnir á Akureyri og Jóhannes Geir Jónsson, sem sýnir í Listvinasalnum í Reykja- vík. Hefir aðsókn að sýningum þessum verið mikil og margar myndir selzt. ☆ Sænska Slysavarnafélagið hef- ir sæmt Slysavarnafélag Islands sérstökum heiðursskildi í tilefni af björgun skipverja á sænska flutningaskipinu Hanön, sem strandaði við Engey í ofviðri annan jóladag. Einnig hefir fé- lagið látið útbúa heiðursskjöl í fjórum eintökum til þeirra, sem bezt lögðu sig fram við björgun- ina. Var heiðursskjöldurinn og skjölin afhent í Stokkhólmi fyrir skömmu. SAVE Best for Less Davenport and Chalr, $82.50 Chesterfleld and Chair, $149.50 Hostess Chair $16.50 T.V. Chairs .....$24.50 Chesterfield and Chair. recovered, from $89.50 up. - — hi-graoe upholstering and drapery service 625 Sargent Ave. Phone 3-0365 CHICKS FOR PROFIT Approved 100 50 25 R.O.P. Sired 100 50 25 R.O.P. Bred 100 50 25 White Leghorns Unsexed White Leghorn Pullets »18.50 $ 9.75 $ 5.15 36.00 18.50 9.50 20.00 $10.50 $ 5.50 39.00 20.00 10.25 Rarred Rocks Unsexed Barred Rock Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.75 21.50 11.25 5.70 36.00 18.50 9.50 New Hampshires Unsxd. New Hampshire Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.55 21.50 11.25 5.70 36.00 18.50 9.50 Light Sussex Unsexed Light Sussex Pullets $19.00 $10.00 $5.25 31.00 16.00 8.25 20.00 10.80 5.50 33.00 17.00 8.75 R.O.P. Bred Chicks Are the kind that really lay And give you a better profit For the money that you pay. Black Australorps Unsxd Black Australorp Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.75 COCKERELS White Leghorns Heavy Breeds April Delivery 5.00 3.00 2.00 18.00 9.50 5.25 May Delivery 6.00 3.50 2.00 20.00 10.50 5.50 FARMERS' CHICK HATCHERY Phone 59-3386 1050 Main Street Winnipeg, Man. „Ég er glöð yfir því hve kjör fólksins hofa batnað" — segir MARÍA AMUNDADÓTTIR níræð —Mbl., 1. apríl

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.