Lögberg - 17.06.1954, Side 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. JÚNÍ 1954
POUL BRODERSEN:
Trén tvö í krossinum
Krossinn er gjörður af tveim-
ur trjám, öðru langsum, hinu
þversum. Þetta er ytra einkenni
á krossinum, en það boðar með
táknrænum hætti sannleikann
um krossinn, sem Jesús Kristur
þoldi á písl sína. Kross hans
varð til, er tveimur mestu megin
öflum tilverunnar laust saman:
hinu illa og kærleika Guðs.
Væri annað þeirra horfið —
myndi þessi kross aldrei hafa
risið. í syndlausum heimi hefði
kærleiki Jesú ekki þurft að líða
kross og nauð. Og hefði það
ekki verið kærleiki Guðs, sem
bjó í Jesú Kristi og knúði hann
til þess að fórna sjálfum sér
heldur en að sleppa hendinni af
mönnunum, þá hefði hann get-
að bjargað sjálfum sér frá kvala-
fullum dauða. Synd mannanna
reisti upp tréð, en kærleiki
Guðs í brjósti Jesú þvertréð.
Hann þjáðist og lagði sjálfan sig
í sölurnar fyrir syndir mann-
anna til þess að friðþægja fyrir
þær og sigrast á þeim.
Vér viljum hugsa um kross-
inn eins og þar mætist synd
heimsins og kærleiki Guðs. Vér
viljum láta krossinn fræða oss
um það, hvað synd er og hverju
hún veldur gagnvart Guði — en
jafnframt um það, hvað kærleiki
Guðs er og hvað hann hefir af-
rekað gagnvart veraldarinnar —
og vorri — synd.
Það voru menn, sem bjuggu
Jesú þennan kvalafulla smánar-
dauða. Menn vildu ryðja honum
burt, leggja hann að velli. Á
vorum tímum má finna mörg
skelfileg dæmi þess, hvað menn-
irnir geta gjört hverir öðrum,
þegar sérstaklega stendur á,
þrátt fyrir alla fræðslu og
menningu. En það, sem lýsir því
ægilegast, hvernig komið er fyr-
ir mönnunum, er þessi kross á
Golgata. Þegar Hann, hreinn og
sannur í öllu lífi og starfi og í
samfélagi við heilaga veru Guðs,
var hér með oss mönnunum, þá
var samsæri gjört um það að
fyrirkoma honum. Menn vildu
ekki þola hann. „Burt með hann,
burt með hann!“ æptu þeir sam-
eiginlega. Og svo deyddu menn
hann.
Þessi atburður varpaði átak-
anlega skærri birtu yfir afstöðu
mannanna til lifanda Guðs. Al-
varan djúpa í því, að mennirnir
krossfestu Jesú, var ekki éin-
ungis í því falin, að það var
blóðugt ranglæti — að menn
tóku hann af lífi, er saklaus var
og heilagur. Dýpsta alvaran býr
í því, að Guð sjálfur kom til
mannanna þar sem Kristur var.
Hann kom til þeirra í sannleiks-
orði sínu og krafðist hjartna
þeirra og vilja. Og hverju svör-
uðu mennirir? Því, sem Jesús
lýsti í dæmisögunni um pundin:
„Vér viljum ekki, að þessi mað-
ur sé konungur yfir oss“. Þá
kom í ljós í allri nekt sinni and-
staðan gegn Guði í lífi heimsins,
sem veldur í dýpstum skilningi
myrkrinu í honum og þjáning-
unum.
Ef til vill kann einhver að
hugsa: Það voru á þeim tímum
þessir ákveðnu menn — æðstu
prestar Gyðinga og Farísear, —
sem aðhöfðust þetta, óg það er
ókleift út frá því að draga
nokkra ályktun um mennina
yfirleitt og afstöðu þeirra til
Guðs. Þetta kann að virðast svo,
en aðeins fljótt á litið. Kross-
festing Jesú er að vísu ákveð-
inn atburður á ákveðnum tíma
sögunnar, og ákveðnir menn
áttu þátt í þeirri harmsögu. En
jafnframt leiddi hún það í ljós,
sem er hið sama á öllum tímum
og býr í oss öllum gagnvart
Guði og kröfu hans til lífs vors.
Hvað var það, sem olli því, að
þessir menn breyttu þá við
Jesú, eins og þeir gjörðu?
Æðstu prestarnir og Farísearnir
skildu það, að ef Jesú hefði rétt
fyrir sér, þá hefðu þeir rangt
og þá yrðu þeir að breytast. 1
stað þess að taka því, vildu þeir
bjarga sjálfum sér og halda
sjálfum sér fram. Þeir vildu
ekki að fullu og öllu gefast á
vald lifanda Guði, sem talaði
þannig til þeirra og vildi stjórna
lífi þeirra. Þeir vildu halda völd-
unum — og vegsemdinni sjálfir.
Og alþýðan? Alþýðan hafði
hyllt Jesú alla þá stund, er hún
hugði, að hann væri að láta ósk-
ir hennar rætast og leiða hana
til valda og virðingar. Þegar
henni varð það ljóst, að þetta
vakti ekki fyrir honum, heldur
vildi hann láta líf þeirra stjórn-
ast af Guðs vilja, þá snerist hún
öndverð gegn honum.
Það, sem birtist bæði í afstöðu
leiðtoganna og lýðsins til Jesú,
var innsta eðli allra synda. Því
að synd er ekki aðeins það, að
menn gjöra eitthvað rangt eða
eru öðruvísi en þeir eiga að
vera. Syndin er í því fólgin að
láta sinn vilja og löngun ráða
gagnstætt Guðs vilja og kröfu
hans til þess að stjórna lífi voru.
Meginsynd vor er sú, að vér
viljum ekki, að Guð sé Drottinn
vor. Hvert sinn sem vér viljum
láta eigingirnina ráða og ryðja
oss braut, þá erum vér að reyna
að þagga niður Guðs rödd og
sporna við því, að hann drottni
yfir oss.
Meðan oss finnst Guð vera í
fjarlægð og vilji hans óskýr og
óákveðinn, kemur þessi mót-
spyrna gegn honum ekki greini-
lega í ljós. En því meir sem vér
finnum til nálægðar hans í orði
hans og kröfur hans til vor
verða strangari og vald yfir oss
ósveigjanlegra, því harðari verð-
ur andstaða dramblætis vors og
eigingirni við vilja hans. Svo
fór, þegar Guð birtist í Kristi og
opinberaðist í mannlífinu, eins
og því er lifað hér í heimi, þá
varð einnig andstaðan skýr og
ákveðin, eins og krossinn sýnir
oss. Þá varð það ljóst, að menn-
irnir höfðu beint lífi sínu inn á
þær brautir, að það var alger
uppreisn gegn Guði og Drottni
lífsins. Og á því eigum vér öll
sök.
Þessi eigingjarna og drembi-
láta mótspyrna gegn drottin-
valdi Guðs yfir lífinu getur
einnig birzt undir fögru skinni.
Leiðtogarnir, sem gengust fyrir
málsókninni á hendur Jesú, voru
í miklum metum í landi sínu.
Þeir fylgdu sínum meginreglum,
en höfðu þær að skálkaskjóli
gagnvart lifanda Guði, sem
vildi fá vald yfir hjörtum þeirra
og leiða þá lifandi röddu sinni.
Þeir vildu ekki afneita sjálfum
sér. Sjálfselskan getur einnig
ráðið á trúarsviðinu, þannig að
vér viljum hafa Guð til þess að
hrinda í framkvæmd hugsjón-
um vorum og fyrirætlunum í
stað þess að láta Guð stjórna
oss og breyta oss til batnaðar.
Lýðurinn var snortinn þjóðar-
hrifningu, en í þeirri hrifningu
hélt hann sjálfum sér fram og
leitaði heiðurs og tnigar, valda
og hamingju fyrir sjálfan sig —
gegn vilja Guðs og veldi yfir
þeim. Þjóðarhrifning getur einn-
ing verið í andstöðu við Guð.
Frá krossi Jesú leggur birtu á
alla söguna og yfir hugsanir
vorar og hjörtu, jafnvel yfir
dularlöngun hjartans til þess að
losna við Guð og eigast máttmn
og dýrðina.
En það var ekki þetta eitt,
sem lét kross Jesú verða til.
Hefði svo verið, þá hefði kross-
inn blátt áfram verið ógnin ein,
en ekki hjálpræðistáknið, sem
hann hefir verið þúsundunum
um aldirnar. Þessi kross boðar
einnig annað en synd mann-
anna. Dauði Jesú var ekki ein-
ungis píslarvættisdauði. Hann
gekk út í dauðann af frjálsum
vilja. Hann hefði vel getað kom-
izt hjá því. En hann gjörði það
ekki, af því að hann vildi ekki
sleppa hendinni af syndugum
mönnum. Hann vissi um allan
hag þeirra. Hann vissi, að undir-
rótin að öllu böli mannanna er
mótspyrnan móti Guði og frá-
hvarfið frá honum, og að hún
myndi verða eilíf ógæfa mann-
anna, ef ekki yrði sigrazt á
henni. Hann gat ekki gengið
fram hjá þessu. Hann réðist
miklu fremur beint að því böli,
fús til þess að þola allt, ef hann
gæti aðeins bjargað mönnunum
frá því, sem er mesta ógæfa lífs-
ins og bölvun. Hann vildi taka
á sig verstu illgerðir mannanna
til þess að verða þeim til hjálp-
ræðis með kærleika sínum, er
liði kvöl.
Þannig varð kærleiki Guðs
augljós mitt í hinum synduga
heimi. Þegar vér segjum, að það
hafi verið kærleiki Guðs, sem
gekk hér á hólm við syndina í
heiminum, þá er það af því, að
vér trúum því, sem stendur í
Nýja testamentinu, að Guð var
í Kristi. Það var Guð, sem birt-
ist í orðum hans og verkum.
Hann og faðirinn voru eitt. Þess
vegna birtir þjáning Jesú og
dauði oss ekki aðeins fórnandi
kærleika manns, heldur kær-
leika Guðs sjálfs. Það er eins
og Páll segir: „Guð auðsýnir
kærleika sinn til vor, þar sem
Kristur er fyrir oss dáinn, með-
an vér enn vorum í syndum
vorum.
í fornri kirkju ítalskri er
mynd af Jesú á : krossinum,
þannig að eygja má bak við hann
föðurinn eilífa. Hendur föðurs-
ins eru fyrir aftan hendur son-
arins, og naglarnir nísta soninn,
særa einnig föðurinn. Málarinn
gamli vildi á eina* málinu, er
hann hafði á valdi sínu, segja
það, sem oft gleymist, að Guð
var í Kristi og það er kærleiki
Guðs í Jesú, sem lét negla sig á
krossinn mönnunum til hjálp-
ræðis. Kærleika Guðs átti ekki
að ávinna með fórn. Heldur var
það þvert á móti kærleiki hans,
sem birtist í fórninni á Golgata.
Hvað segir þá þessi kross oss
um kærleika Guðs?
Fyrst það, að Guð er ekki
fjarri því, sem gerist í þessum
heimi, þar sem er svo mikið af
illu og svo mikil þjáning. Heim-
ur syndarinnar er einnig heim-
ur þjáninganna. Guð er ekki
fjarri honum. Hann er ekki að-
eins áhorfandi, sem er hátt haf-
inn yfir þetta allt. Krossinn sýn-
ir oss, hvernig Guð þjáist fyrir
oss og með oss. Hann er ekki
fjarlægur því, sem synd sjálfra
vor og heimska hefir valdið.
Hann hefir gengizt undir og
tekið á sig þjáningarnar og byrð-
arnar, sem leiða af öllu því, sem
vér höfum bakað sjálfum oss,
hverir öðrum — og honum.
Og hvers vegna gjörir hann
það? Til þess að frelsa oss. Hvað
sem það kann að kosta sjálfan
hann, vill hann leitast við að
bjarga oss, sem höfum fellt
rústir yfir sjálfa oss. „Maður,
lít þú Guð þinn“, segir krossinn
við oss. Þannig elskar Guð vond-
an heim og syndum spilltan.
Þannig liggur honum á hjarta
syndabyrði og syndaþungi ver-
aldarinnar. Það var maður, sem
sagði einu sinni: „Væri ég Guð,
myndl hjarta mitt bresta vegna
neyðar veraldarinnar og synd-
ar“. Sá maður vissi ekki, hvað
hann sagði. Því að neyð verald-
arinnar hefir níst hajrta hans.
Hann gleymdi krossinum. Þeim
verður það mörgum, þegar þeir
tala um Guð og heiminn,
eins og hann er. Fyrst hafna
menn krossinum — þeir vilja
ekki heyra hann nefndan, hafa
hans enga þörf — og síðan
spyrja þeir, hvernig Guð breyti
í raun og veru við heim, þar
sem mikið sé af illu. Þar er
krossinn svarið. Og vilji menn
ekki hlýða á það svar, þá fá
þeir í raun og veru ekkert svar.
En þá er það ekki heldur krist-
indóminum að kenna. Á krossi
Krists hefir kærleiki Guðs orðið
fyrir allri vonzku veraldarinnar.
Á krossinum gengur hann á
hólm við hana. Krossinn birtir
oss kærleika Guðs, sem það
gjörir. Gyðingar hugðu, að þeg-
ar Guð tæki í taumana og berð-
ist við vonzku veraldar, þá
myndi hann mola og tortíma.
Þeir eru alltaf margir, sem
hugsa sér það. En Guð í Kristi
fór aðra leið. Hann hefir gengið
á hólm við vonzku veraldar. En
stríð hans var fórn — fórn búin
mætti til hjálpræðis.
Krossinn merkir það, að kær-
leiki Guðs er kominn alla leið
niður til vor, hvar sem vér erum
staddir. Hversu djúpt sem
mannslíf er sokkið — mun kær-
leikurinn, er þoldi píslir á krossi,
lúta niður enn dýpra til þess að
hefja það upp til ljóssins. Inn í
heim hins versta, sem mennirnir
geta drýgt, gekk þessi kærleiki,
til þess að vér skyldum aldrei
þurfa að verða viðskila við Guð
að fullu og öllu. Þyngsta bölvun
syndarinnar er sú, að hún grefur
djúp milli mannanna og Guðs.
Þeir hafa á öllum tímum haft
hugmynd um það, að þeir væru
orðnir viðskila við Guð sökum
synda þeirra. Og þeir hafa leit-
azt við það sjálfir að treysta
sambandið á ný. En aðeins einn
megnar það .... Guð sjálfur.
Hann hefir gjört það með krossi
Jesú Krists. Allar fórnfæringar
ýmissa trúarbragða eru tilraun-
ir mannanna til þess að láta
allt gróa aftur heilt. Fórnin á
Golgata er annars konar. Þar
eru það ekki mennirnir, sem
færa Guði fórn til þess að bæta
það, sem syndin hefir brotið og
skemmt. Þar er það Guð sjálfur,
sem færir fórnina. Hann nemur
það burt, sem skilur. Hann lýtur
niður að oss og gefur oss sjálfan
sig, oss, sem höfum gerzt brot-
leg við hann, til þess að vér
skulum ekki líða undir lok,
heldur öðlumst hjálpræði og
nýtt líf. Það er hjálpin, að Guð
kemur til vor, sem höfum
syndgað, og þar sem vér erum
stödd, í myrkri, syndasekt og
neyð, lofar hann oss að koma
til sín og öðlast samfélag við sig.
Þannig er engum útskúfað.
Enginn þarf að lifa án Guðs.
Horfum vér á þennan kross, sjá-
um vér kærleik, sem eigi nem-
ur staðar við neitt, — opinn
faðm, sem er breiddur út mitt á
meðal syndugra manna, og bíður
aðeins eftir því, að vér komum
og látum fallast í hann.
En þá getum vér heldur al-
drei gleymt því, að kærleikur-
inn, sem birtist oss í þjáning
Jesú og dauða og breiðir út
faðminn móti oss, er með sára-
förum syndar vorrar, þess, sem
vér höfum brotið gegn Guði.
Kross hans leyfir oss ekki að
hugsa alvörulítið um kærleika
Guðs né það, að vér séum menn
syndugir. Hugsanirnar um kær-
leik Guðs og fyrirgefning rista
grunnt, ef krossinum er gleymt.
Þá brestur yfirleitt djúpan
skilning á því, hvað syndin er.
Syndin er uppreisn gegn Guði
og ákvörðun hans oss til handa.
Það er hún, sem lætur lífið
hrynja í rústir. Allt þetta getur
Guð ekki látið sér liggja í léttu
rúmi og reist fyrirgefning sína
á þeim grundvelli. Kærleikur-
inn, sem krossinn birtir oss, boð-
ar ekki það, að Guði finnist
synd vor vera lítil, heldur, að
hann taki sjálfur á sig í Jesú
Kristi þunga hennar og kvöl og
afleiðingar til þess að frelsa oss
frá því, er leggur líf vort í auðn.
Þegar vér horfum á krossinn,
sjáum vér, hvílík synd vor er
frammi fyrir Guði — og þá getur
oss ekki fundizt hún vera smá-
vægileg.
I skóla Gandhis á Indlandi bar
svo við, áð einn drengjanna
sagði Gandhi það, er hann lagði
í fyrstu trúnað á, en sá seinna,
að var ósatt. Gandhi stefndi þá
öllum drengjunum saman og
sagði við þá mjög alvarlegur og
harmþrunginn: „Ég hefi komizt
að því, að einn yðar er lygari.
Þess vegna ætla ég að leggja
stranga föstu á sjálfan mig“. Og
alvaran yfir Gandhi, er hann
mælti þetta, og harmur hans og
hugsunin um þjáning hans
vegna lygi drengsins, hefir rist
dýpra en allt annað, sem hann
hefði getað gjört við drenginn
sjálfan. Þetta er maður, sem
gengst sjálfur undir kvöl til þess
að leiða dreng frá lygi til sann-
leiks. Kross Jesú er heilög, guð-
leg ást, sem tekur á sig synd alls
mannkynsins til þess að leiða
oss aftur til Guðs í áttina að því
marki, er hann hefir sett lífi
voru.
Krossinn, sem táknar út-
breiddan faðm Guðs við oss
syndugum mönnunum, birtir oss
jafnfarmt sekt vora. Hann vill
sigrast á síngjörnum vilja vor-
um og þrjózku og fá oss til þess
að hætta að berjast gegn Guði.
Eins og krossinn er hið ytra eitt
þvertré lagt á annað tré, þannig
vill Guð með krossi Krists lægja
dramb vort og eigingirni, svo
að vér gefumst honum og hann
umbreyti oss og taki oss í þjón-
ustu sína.
Verið hljóð frammi fyrir mynd
hins krossfesta. Og um leið og
þú horfir á þjáningar Krists, þá
skaltu afneita öllu því í hugsun-
um þínum, hjarta og lífi, sem á
þátt í því að búa þessum kær-
leik kross, og seg við hann:
„Drottinn, veit mér viðtöku
eins og ég er. Fyrirgef mér alla
synd mína. Tak vilja minn og
gjör hann að þínum vilja. Tak
hjarta mitt og lát það verða
nýtt. Veit mér það, að ég megi
þjóna kærleik þínum“.
Á. G. þýddi —Kirkjuritið
Kaupið Lögberg
VIÐLESNESTA
ÍSLENZKA BLAÐIÐ
C- CM
sem Canadabúar
fyrst kjósa sér
Ferðalög á hjóli í Canada eru
frábrugðin því, sem annars staðar
gengst við. Vegalengdir eru miklar,
veðrátta hörð í horn að taka og
ásigkomulag vega harla mismun-
andi.
C. C. M. eru útbúin hinum frægu
“Hercules” Coaster hemlum, sem
stöðva reiðhjólin alveg á svip-
stundu og skapa með því óvið-
jafnanlegt öryggi; sama er um
gírana að segja, þeir eru með öllu
óbrigðulir.
Finnið C. C. M. umboðsmann þegar
í stað; hvaða tegund reiðhjóla, sem
þér æskið yður, verðið þér ekki í
vafa um hvað hjólreiðamaðurinn á
við, er hann staðhæfir, að C. C. M.
sé bezta gerðin slíkrar tegundar í
Canada.
Cyco9onlc keyrsla — helldarútbúnaður ffvo ramger, a8 betrl
getur hvergi og hjúlastigin verBa afarauBveld, ásamt hinum
innilokuBu og þægilegu rðluvöltum.
Aburðasterk hjól með þrísoðnum rimlum, chromium húS I
staB nickels; ryðtryggar hjólskorSur úr stáli.
C. C. M. “Hercules” Coaster hömlur — fljðtvirkar og undir
öllum kringumstæCum öruggar.
Glitrandi og varanleg búðun — þrjú lög af traustustu
emeleringu. Málningin er svo fögur og vönduC, a8 sllkt á
engan sinn llka.
óbilnndi Chromium yfir 20 ára trygg nickelhúöun.
Dunlop hjólbarðar — þeir frægustu I vlðri veröld.
Kaupið canadiska framleiðsln og styðjlð með því atvinnuvegtna
C. C. M. þjðnusta og varahlutir ávalt við hendi
hjá yfir 3,000 verzlununum um Canada þvert og endilangt.
Makers of Bicycles, Bike-Wagons, Joycycles & Juvenile Vehicles Since 1899
TILKYNNING
Þeir lögfræðingarnir LAMONT og BURIAK, 510 Childs
Building hér 1 borg, hafa ákveðið að setja á fót lögmanns-
skrifstofu í Árborg, Man., snemma í júnímánuði næstk.
Mr. Arthur Kristján Swainson, L.L.B., sem er meðlimur
áminsts lögfræðingafélags, mun veita þessari nýju skrif-
stofu forstöðu, eða ef svo ber undir, annar starfsmaður
félagsins. Lögfræðinginn verður að hitta vikulega í Arborg
á föstudögum og laugardögum og ef þörf gerist aðra daga
vikunnar.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
SINDRI SIGURJÓNSSON
LANGHOLTSVEGI 206 — REYKJAVIK