Lögberg - 17.06.1954, Qupperneq 4
4
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið St hvern fimtudag ai
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WXNNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjórana:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVfENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg" is printed and published by The Columbia Prese Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Lýðveldisafmælið
I dag, hinn 17. júní, er tvíheilagt í stjórnarfarssögu
íslenzku þjóðarinnar; Þetta er afmæli Islands mesta manns,
Jóns Sigurðssonar og jafnframt tíu ára afmæli hins frjálsa
og óháða íslenzka lýðveldis; af þessu hvorutveggja leiðir
að sjálfsögðu það, að sterk fagnaðaralda fari um sál heima-
þjóðarinnar og hún nær vitaskuld einnig til afkomenda
hennar, sem í Vestri búa, eða hvar annars staðar, sem þeir
eru í sveit settir á hnettinum; þenna dag verða allir eitt!
Fyrir tíu árum, er lýðveldið var stofnað á Þingvöllum
við Öxará, komst Lögberg meðal annars þannig að orði:
I dag skín sól yfir alfrjálsu Islandi, sögulandinu við hin
yztu höf, sem guð og góðir menn hafa leitt til öndvegis á
ný; eina landinu í heimi, sem varið skal um allar ókomnar
aldir með vitsmunafestu í vopnastað.
Þó fjarlægðir- skilji verða þúsundir vor Vestmanna með
hugann heima á íslandi í dag, því enn streymir víða í vestri
íslenzkt blóð um æðar og enn einkennir margan manninn
og marga konuna hreinræktað, íslenzkt hjartalag.
Vér biðjum þann eina, sem öllu ræður, að vaka yfir
stofnþjóð vorri og vera leiðarljós hennar á braut hins eilífa
þroska.
Nú skygnist hún alfrjáls um álfur vítt
hin íslenzka, djarfa þjóð,
er aldrei glataði sjálfri sér
á svikanna Heljarslóð,
en skildi að vinna má frelsi fult
án fórna, sem kosta blóð.
Guð blessi Island og íslenzku þjóðina frá öld til aldar,
frá kyni til kyns.
☆ ☆ ☆
Aimanak 1954
Þá er nú Almanak O. S. Thorgeirssonar loks komið
fram á sjónarsvið og varð auðsjáanlega síðbúnara en æski-
legt hefði verið, en þessi dráttur rýrir vitaskuld að engu
innihald ritsins, sem er fjölskrúðugt að vanda, og tekur
um margt ýmsum hinna fyrri árganga fram; nú er Almanak-
ið sextugt og fylgir ritstjórinn, Dr. Richard Beck, því úr
hlaði með skilmerkilegum formálsorðum, auk þess sem
hann á í ritinu prýðilegar ritgerðir um Sigurgeir Sigurðs-
son biskup og Stephan G. Stephansson skáld; meðal annara
ágætra og fróðlegra ritgerða má telja Islenzk bæjarnöfn í
Argylebygð eftir G. J. Oleson og Landnemar úr North
Dakota, er fluttust til Gerald og Vatnabygða eftir Gunnar
Jóhannsson.
Þeir Thorgeirsson bræður verðskulda almennar þakkir
fyrir þá ræktarsemi við íslenzka bókmenning, er þeir hafa
auðsýnt í verki með útgáfu Almanaksins, að stofnanda þess,
hinum ágæta föður þeirra látnum, og vonandi er að þeim
auðnist að gefa það út í mörg ár enn, eða þá með aðstoð
annara.
Efnisyfirlitið er á þessa leið:
Almanaksmánuðirnir, um tímatalið,
veðurathuganir og fl. 1
Almanakið sextugt, eftir Richard Beck 21
Aldarminning Stephans G. Stephanssonar,
eftir Richard Beck 29
Flóðið mikla í Nýja-Islandi,
eftir Vigfús J. Guttormsson 40
Sjötíu og fimm ára afmæli landnáms Islendinga,
í Norður-Dakota, eftir Richard Beck 49
Islenzk bæjarnöfn í Argyle-byggð,
eftir G. J. Oleson 65
Landnámsþættir Islendinga í Spy Hill, Gerald og
Tantallonbyggðum, eftir Richard Beck 69
Landnemar úr N. Dak., er fluttust til Gerald og
Vatnabyggða, eftir Gunnar Jóhannsson 88
Dr. Sigurgeir Sigurðsson biskup, minningar- og
kveðjuorð, eftir Richard Beck 96
1 Ólafsdal, eftir Arna G. Eylands 109
Árni S. Josephson ,eftir G. J. Oleson 112
I Arnarstapagili við Víðimýrarsel,
eftir Ríkarð Jónsson myndhöggvara 114
Helztu viðburðir meðal Vestur-lslendinga 115
Þakkarorð 127
Mannalát 128
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. JÍTNÍ 1954
Ljóshærð og blóeyg stúlka, en
lærlingur galdramcnnsins
Gerður Helgadóllir mynd-
höggvari hefir að undan-
förnu dvalizl í París, og
þann 13. maí opnaði hún þar
sýningu á verkum sínum í
Gallarié Arnoud. — Verk
Gerðar vekja mikla alhygli
franskra lisidómara, eins og
grein þessi ber með sér, en
hún er eflir hinn kunna
gagnrýnanda, — Michael
Rayon, — og birtisi í apríl-
hefti límaritsins „Cimaise",
Revue de l'art actuel,
þessa árs.
ÞEGAR listamaður kýs sér járn
sem efni til að vinna úr, setur
hann sig í margs konar hættur.
— Gashylkin skelfa húsverðina,
og þegar það í þokkabót er ung
stúlka, sem notar slíkar vélar,
þá er henni hiklaust sagt að fara
eitthvað annað til að leika lærl-
ing galdramannsins. Þetta er
einmitt það, sem kom fyrir
Gerði fyrir nokkrum mánuðum;
hún hafði engan samastað til að
geta unnið. Til allrar hamingju
hefir Luc Bidoilleau skotið yfir
hana skjólshúsi í hinni stóru
vinnustofu sinni í Vaugirard-
hverfinu. Bak við bráðabirgða-
skilrúm getur Gerður óhindrað
látið neistana fljúga. Það er al-
veg furðulegt að sjá þessa ljós-
hærðu, bláeygðu stúlku innan
um öll þessi áhöld, sem hún
notar. — Ég þekki engan annan
kvenmyndhöggvara, sem hefir
þorað að ráðast á járnið, og er
Gerður þó mjög blíðleg að sjá.
— Maður á erfitt með að skilja,
að hún skuli geta unnið með
sömu verkfærum og hinn risa-
stóri Jakobsen. En hún fer með
gasflöskurnar, eins og sjálfsagða
hluti, og járnborð með málm-
sögum, klippum, þjölum, af öll-
um stærðum og gerðum til að
pólera suðurnar, og skrúfstykki,
gefa herberginu smíðaverk-
stæðisblæ. Gerður sjálf í bláum
slopp með suðugleraugun fyrir
From lcelandic
Airlines
New York — PL 7 8585
New York: — Heavy demands
for Trans-Atlantic transporta-
tion stimulated by fares about
$100 less than those of other
regularly scheduled airlines has
made it necessary for Icelandic
Airlines to increase its services
to three round trips weekly, it
was announced today by Presi-
dent Nicholas Craig.
The airline is now operating
flights on Tuesdays, Fridays and
Saturdays from New York Inter-
national Airport and from
Europe Thursdays, Fridays and
Saturdays. The flights leaving
New York on Fridays go to
Hamburg and Gothenburg via
Reykjavík. Those leaving on
Saturdays are to Stavanger and
Copenhagen via Reykjavík and
those departing on Tuesdays are
to Oslo via Reykjavík and
Stavanger.
As an illustration of the
bargain which Icelandic Air-
lines offers in trans-Atlantic
fares, the trip to Oslo is $472.20,
a saving of $118.40 as compared
with tourist fares of other lines,
Mr. Craig points out.
“Offering fares within the
reach of the average man will
enable many economy-minded
Americans to visit Europe for
the first tinme ahd will permit
those who have not seen their
relatives abroad for many years
to visit their native lands,” Mr.
Craig says in commenting on the
business stimulated by Ice-
landic’s low fares.
Icelandic Airlines is a regu-
larly scheduled airline operat-
ing Douglas four-engined Sky-
masters and certified by the
United States Government —
(CAB).
'augunum, breytist í persónu úr
vísindareyfara.
Nýjar stefnur
Það, að hinir ungu mynd-
höggvarar fara meira og meira
að nota „óæðri málma“, en
hætta við brons, gips og stein,
stafar af miklu leyti af fordæmi
Gonzales og Caldes. Hin mikla
viðurkenning, sem Gonzales
hefir fengið eftir dauða sinn, og
hrifningin á líkönum, sem sýna
hreyfingu, hafa óhj ákvæmilega
leitt af sér nýjar stefnur. —
Eins og kunnugt er, voru fyrstu
líkön úr smíðajárni og plötum,
þau, sem Gargallo smíðaði, ,um
1906. Maður minnist alltaf þessa
tíma. Svo fyrir 1914, Marcel
Duchamp og Archipenko. Lang-
an tíma stóðu Pevsner og Gon-
zales alveg einir sér. — Þetta er
öðru vísi í dag, þar sem David
Smith og Lippold í U.S.A., Max
Bill í Sviss, Jakobsen og Lard-
era í París, meðal annarra, hafa
kynnt notkun járns í abstraktri
myndhöggvaralist.
Meðal hinna ungu, virðist
Tagiri hafa haldið áfram, þar
sem Gonzales sleppti, en eftir
að Gerður yfirgaf steininn, sem
annars var hið sígilda efni högg-
listamanna, þá var það Daninn
Jakobsen, sem hún tók sér til
fyrirmyndar. — En áhrifa hans
gætir alls ekki lengur í verkum
Gerðar.
„Yfir línuna"
Hæfileikar Gerðar eru furðu-
legir. Hún lærði gamla stílinn í
Florence, og hjó myndir úr
steini svo meistaralega, að þeg-
ar hún kom til Parísar, á vinnu-
stað Zadkins, komst hún strax
„yfir línuna“. Fyrstu högg-
myndir hennar úr steini eru frá
1950 og 1951. Þar er hún ennþá
dálítið hikandi og virðist sækja
sögur. — En strax og hún byrj-
aði með járnið 1952, náði hún
ákveðnari stíl. Líkön hennar,
sem sýna hreyfingu gáfu þegar
fyrirheit um hinn léttilega yndis
þokka verka hannar nú. Því í
dag notar Gerður ekki smíða-
járn, hún notar stálteina og
stálvír, sem hún sýður saman,
og stálið er fágað og suðurnar
póleraðar með þjöl. Það er að
segja, hún hefir fjarlægzt mikið
Gonzales, sem eftir því, sem
hún sagði mér sjálf, hafði haft
mikil áhrif á hana, þegar hún
byrjaði að vinna úr járni.
1 raun og veru notaði Gon-
zales, eins og Hajiri, nú í dag,
efni valið af handahófi, oft
ryðgað, en þetta gerði, að verk
hans litu út fyrir að vera frum-
við fangsefnin í íslenzkar þjóð-
stæð list, nokkuð sambærileg við
viss líkön úr járni, sem negrar
gera og landkönnuðir hafa flutt
með sér.
Síðustu verk Gerðar eru alger
andstaða þessa stíls höggmynda-
gerðar úr málmi.
Þegar Gerður kom til íslands
og hafði sýningu 1952 í Reykja-
vík, furðaði hún sig á, hve mót-
tökurnar voru góðar, og hve
mikinn áhuga listamenn í föður-
landi hennar sýndu verkum
hennar.
París hefir ekki viljað láta
sitt eftir liggja og þegar tekið
Gerði í fóstur og álítur hana
óumdeilanlega einn sinna beztu
myndhöggvara.
—Alþbl., 18. maí
"A Realislic Approach io the
Hereafier"
by
Winnipeg auihor Edith Hansson
Bjornsson's Book Siore
702 Sargeni Ave.
Winnipeg
Ægir fann óvenju-
lega síldargöngu
við Kötlufi'anga
Torfan náði yfir 30 sjóm. svæði
Fyrir nokkru fannst við
suðurströnd landsins óvenju
leg síldarganga. Var þessi
síld svo stór að þess munu
ekki dæmi fyrr. — Það var
varðskipið Ægir, sem fann
þessa síld í Asdiktæki og
dýptarmæli, en þar sem hún
var, var samfelld síldartorfa
á um 30 sjómílna svæði.
Svæðið, sem Ægir fann síldina
á, var milli Kötlutanga og
Drangshlíðarfjalls/ en það er um
30 sjómílna vegalengd, 3—4 sjó-
mílur undan landi.
4 iunnur síldar
Þetta var síðari hluta dags,
sem varðskipið fann síldina og
voru þegar í stað lögð út fjögur
reknet. — Eftir stutta lögn þá
um kvöldið og aðra lögn næsta
morgun, fengust alls 4 tunnur af
síld. — Síldin var send til rann-
sóknar.
Þetta var mjög óvenjuleg síld,
a. m. k. á þessum slóðum. Hún
var yfirleitt frá 33—39 sm. löng.
Hún hefði stærðarinnar vegna
getað verið Norðurlandssíld. •—
Aftur á móti var hún mjög
horuð eða um 9% fitumagn.
Meirihluti síldarinnar var ný-
gotinn, en um !4 með hrognum
og svilum.
Athyglisverður síldarfundur
Síldarfundur þessi hefir eðli-
lega vakið nokkra athygli
manna, því hér er ekki um svo-
nefnda Faxasíldar-göngu að
ræða, sú síld er miklu minni.
Munu þess ekkl dæmi, að svo
stór síld hafi fundizt við suður-
ströndina svo vitað sé, a. m. k.
ekki í svona stórum torfum.
—Mbl., 28. apríl
Buy frhem the meter way 50c a day
Choose Quality and Ferformance
GENERAL
ELECTRIC
BLACK — DAYLITE TELEVISI0N
17” TELEVISI0N C0NS0LETTE
V BEAUTIFULLY STYLED HAND
FINISHED WALNUT OR LIGHT OAK
WOOD CABINETS.
V BLACK-DAYLIGHT PICTURE TUBE
for maximum picture detail and contrast
even in brightly illuminated rooms
V HIGH - POWERED CHASSIS to pro-
duce clear, sharp pictures.
y DYNAPOWER SPEAKER for fine
tone, F.M. sound transmission.
v PICTURE STABILIZER — Built-in
stabilizer circuits eliminate annoying
flap-over.
y BUILT-IN ANTENNA
Model C7T6B
only $229.95
YOUR CHOICE WALNUT OR LIGHT OAK CABINETS
For Iniormation on the Meter Plnn Phone
VAN’S ELECTRIC LTD.
PHONE 3-4890
SARGENT at McGEE
WINNIPEG