Lögberg - 17.06.1954, Page 7
0
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. JÚNÍ 1954
7
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, sextugur
Forseti Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, er sextugur 1 dag.
Hann er fæddur að Kóranesi á
Mýrum, sonur hjónanna Jens-
ínu Bjargar Matthíasdóttur og
Ásgeirs Eyþórssonar. Sjö ára að
aldri fluttist hann til Reykja-
vikur með foreldrum sínum, en
var eigi að síður í sveit sumar
hvert til 21 árs aldurs, er hann
lauk guðfræðiprófi. Lengst af
var hann hjá hinum ágætu hjón-
um Ragnheiði og Asgeiri í
Knarranesi, foreldrum Bjarna
sendiherra, og einnig í Alftanesi.
Frá Mýrunum og veru sinni þar
hefir hann sjálfur sagt í frá-
bærlega ritaðri og hugljúfri
grein í bókinni „Móðir mín",
sem margir hafa lesið.
Á uppvaxtarárum sínum vann
forsetinn ýms venjuleg verka-
mannastörf vor hvert fram að
slætti, en fór þá ætíð í kaupa-
vinnu, oftast upp á Mýrar. Þó
var hann tvö sumur við sjó- og
landvinnu hjá Gunnari Ólafs-
syni, síðar alþingismanni, og
Þrjú sumur hjá Stefáni bónda í
Möðrudal á Fjöllum.
•---☆-----
Af þessu er auðsætt, að jafn-
hliða bóknáminu hefir forset-
mn mótazt af sveitalífi og sveita
menningu og lært til allra verka
bæði á sjó og landi. Varð það
honum haldgott veganesti og
þroskaskóli undir hin margvís-
legu og vandasömu störf, sem
biðu hans síðar í lífinu.
Um námsárin í menntaskólan-
um, en þaðan lauk hann prófi
vorið 1912, hefir forsetinn einnig
ritað ágætan kafla í bókina
..Minningar úr menniaskóla",
Þar sem hann lýsir félagslífi,
h’fsviðhorfum og áhugamálum
skólapilta á þeim tíma, á
skemmtilegan hátt og af djúpum
skilningi hins vitra og þroskaða
manns, sem lítur með andlegu
jafnvægi og hlutlausum augum
yfir löngu farinn veg.
Á háskólaárum hans var
frjálslyndi í trúmálum að ryðja
ser til rúms undir forystu gáf-
aðra og víðsýnna kennara. Þau
ahrif, ásamt starfinu í ung-
mennafélögunum, áttu mikinn
þátt 1 að skapa lífsviðhorf hans.
Meðfædd hneigð til frjálslyndis
°g víðsýni varð að fast mótaðri
skapgerð í skólum náms og
reynslu. Frjálslyndi í trúmál-
um færðist yfir á stjórnmálin.
Öll kúgun var honum frá upp-
hafi ógeðfelld og það kom brátt
1 hjós, að hann vildi grafast fyrir
hin dýpri rök málanna, hugsa
Þau sjálfur og taka síðan þá af-
stöðu, sem hann taldi réttasta,
ems þótt hún færi í bág við þá-
verandi stjórnarstefnu þess
f'okks, sem hann annars fylgdi
að málurn.
----☆----
Áð námi loknu var hr. Ásgeir
Ásgeirsson eitt ár ritari hjá Þór-
halli biskupi Bjarnarsyni og á
annað ár bankaritari, en fór síð-
an utan til framhaldsnáms við
háskólann í Uppsölum.
Árið 1918 varð hann kennari
við Kennaraskóla íslands og
samstarfsmaður hins gáfaða og
mikilsvirta skólamanns, séra
Magnúsar Helgasonar. Tókst
rne<J'> þeim mikil vinátta, og fór
séra Magnús ekki dult með það
^úkla álit, sem hann hafði á
°num og vænti af honum þegar
ram liðu stundir.
h>egar hér var komið sögu var
rautin orðin bein til meiri
rama og fjölþættari ábyrgðar-
s arfa. Eins og oft vill verða um
og glæsilega gáfumenn
neigðist hugurinn að stjórn-
nialurn. Árið 1923 var hann kos-
mn á þing | Vestur-lsafjarðar-
ys u 0g sat á Alþingi sem full-
arnUl þess kjördæmis óslitið síð-
♦ l’ Unz hann var kjörinn forseti
0 auds sumarið 1952, eða 29 ár,
boð en§inn farið með um-
að , stur-ísfirðinga svo lengi,'
, , dnni Sigurðssyni forseta
hadanskildum. Árið 1926 var
nn settur fræðslumálastjóri
og skipaður í það embætti árið
eftir. Því starfi sagði hann lausu
árið 1938.
1 kennara- og fræðslumála-
starfinu ferðaðist forsetinn víða
um land og kynntist fólki úr öll-
um stéttum. Var hann með af-
brigðum vinsæll og vel metinn
í því starfi, og traustið, sem hann
ávann sér þar og vináttuböndin,
sem hann batt þá og síðar í öll-
um héruðum landsins, urðu hon-
um haldgóð, þegar mest á
reyndi.
•---☆-----
Þegar mikið þótti við liggja,
að Sameineð Alþingi hefði virðu
legum og færum forseta á að
skipa á þúsund ára hátíðinni
1930, varð hr. Ásgeir Ásgeirsson
fyrir valinu, þá aðeins 36 ára
gamall. Tiginmannleg fram-
ganga hans og virðuleiki, ásamt
hinni afburða snjöllu ræðu, sem
hann flutti að Lögbergi, sannaði
að rétt var valið og gaf þá þegar
fyrirheit um það, sem síðar
hefir fram komið.
Fjármálaráðherra varð hann
árið 1931 og forsætisráðherra að
auki árin 1932—1934.
Árið 1938 var hann skipaður
bankastjóri Útvegsbankans. —
Hann hafði átt manna mestan
þátt í heillaríkri lausn íslands-
bankamálsins á sínum tíma og
var því að margra dómi vel að
þessu starfi kominn. Árin 1926—
1927 átti hann sæti í banka-
málanefndinni, sem undirbjó
Landsbankalögin og ferðaðist á-
samt Sveini heitnum Björnssyni
um Norðurlönd til þess að ráðg-
ast við þjóðbankastjóra og kynn-
ast þessum málum þar. For-
maður gengis- og gjaldeyris-
nefndar var hann 1925—1935 og
hefir aflað sér óvenjulega mikill-
ar og haldgóðrar þekkingar í
gjaldeyrismálum og bankalög-
gjöf. Hann tók einnig sæti í
stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
þegar hann var stofnaður og
gegndi því starfi til ársins 1952.
----☆-----
Þá hefir forseti vor einnig
lagt mikla stund á að kynna sér
utanríkis- og alþjóðamál. Hann
var fyrst kosinn í utanríkismála
nefnd 1928 og var þar ýmist aðal
maður eða varamaður, unz hann
tók við forsetaembættinu, að fá-
einum árum undanteknum. Hann
hefir átt sæti í fjölmörgum þýð-
ingarmiklum samninganefndum
um viðskiptamál og einnig verið
fulltrúi íslands á fundum Sam-
einuðu þjóðanna. Hann hefir
flutt ræður og fyrirlestra um
alþjóðamál í útvarp og ávalt
verið talsmaður þeirrar stefnu í
utanríkismálum Islands, sem
síðan hefir verið tekin af þingi
og stjórn. í hinum margþættu
störfum sínum hefir hann fyrr
og síðar haft kynni af stórmenn-
um margra þjóða og áunnið sér
traust og virðingu, hvar sem
hann hefir farið. Hinar glæsi-
legu viðtökur, sem forsetahjónin
fengu í nýafstaðinni Norður-
landaför, voru áreiðanlega að
nokkru leyti ávöxtur þeirra vin-
sælda og trausts, sem hr. Ásgeir
Ásgeirsson hefir áður áunnið
sér sem fulltrúi íslands í marg-
háttuðum samskiptum við þess-
ar þjóðir og forustumenn þeirra
á sviði viðskipta og menningar-
mála.
Enn eru ótalin ýms störf, sem
forsetinn hefir gegnt fyrir þjóð
sína og einstök félög fyrr og
síðar. Þess skal að lokum getið,
að um 15 ára skeið var hann
formaður stjórnarnefndar stú-
dentagarðanna og hafði lifandi
samband við stúdenta Háskól-
ans. Á þeim árum var Nýi Stú-
dentagarðurinn reistur og margs
konar umbætur gerðar á að-
stöðu stúdenta.
----☆-----
Fjölbreytni einkenndi undir-
búningsár herra Ásgeirs Ásgeirs-
sonar meira en flestra annarra
stjórnmálamanna. Fjölbreytni
Pollak gegn Bevan
hefir og einkennt lífsstörf hans
meir en flestra annarra.
Snorri segir, að ef nornir ráði
örlögum manna, þá skipti þær
geysiójafnt, er sumir hafa gott
líf . . . . en sumir lítið lén eða
lof, og öll þekkjum við orðtæk-
ið að þessi eða hinn sé fæddur
undir heillastjörnu. Eftir þeirri
trú hafa örlagadrottnar Ásgeirs
Ásgeirssonar valið honum að
vegarljósi óvenjulega blikskæra
hamingjustjörnu. — Hann hef-
ir verið óvenjulega affarasæll
maður í öllum störfum sínum.
Meðfætt mannvit og miklir
mannkostir, ásamt víðtækri
menntun og fjölþættri reynslu,
hefir veitt honum örugga inn-
sýn og ósvikula dómgreind til
farsælla ákvarðana. Hann hefir
vaxið með hverjum vanda og
leyst hverja þraut, sem lífið hef-
ir lagt fyrir hann á þann veg
að virðing hans og traust hefir
jafnan aukizt þegar róleg íhug-
un og hlutlaus yfirsýn hefir
komizt að, eftir að öldurnar
hafði lægt á hafi stjórnmálanna.
Og þótt nokkur skoðanamunur
kunni enn að vera um afstöðu
hans til vissra pólitískra stór-
mála, eftir því hvar menn standa
í flokki, munu fáir efast um, að
hann hafi ávallt gert það, sem
hann taldi sjálfur réttast.
Það er alkunn staðreynd, hve
annt hann lét sér um hag kjör-
dæmis síns og íbúa þess, hvort
sem þeir voru fylgismenn hans
eða ekki. Sýnir það vel mann-
kosti hans og höfðingslund, að
hann lagði þeim ekki síður lið,
sem hann vissi að ekki myndu
setja krossinn við nafn hans á
kjördegi. Sú hefir raunin einnig
orðið síðan kjördæmi hans varð
allt landið, að manngreinarálit
finnst ekki fremur en áður í fari
hans.
Framkoma forsetans er með
þeim hætti, að hann hlýtur að
vinna hug þeirra, sem einhver
kynni hafa af honum. Honum
hefir flestum öðrum fremur tek-
izt að samræma háttvísi og virðu
leik heimsborgarans ljúfmann-
legu látleysi og hjartahlýju hins
íslenzka alþýðumanns. Og það
er ekki hvað sízt vegna þess,
sem hann er svo ástsæll og hug-
þekkur þjóðhöfðingi, sem raun
ber vitni. Allir, sem koma á
heimili hans, ljúka upp einum
munni um viðmót hans og þá
menningu hjartans, sem ávallt
hefir einkennt ástsælustu menn
þjóðanna.
----☆-----
Enn er ótalin sú mesta ham-
ingja, sem herra Ásgeiri Ásgeirs-
syni hefir hlotnazt, en það er
kvonfang hans. Árið 1917 kvænt-
ist hann hinni gáfuðu og glæsi-
legu konu, Dóru Þóhallsdóttur
biskups, sem hefir reynzt hon-
um traustur og samhentur lífs-
förunautur og mikilhæf hús-
móðir. í helgum fræðum segir,
að „vizka kvennanna reisi hús-
ið“, og er sá sannleikur enn í
góðu gildi. Heimili þeirra hjóna
hefir jafnan verið með þeim
höfðingsbrag, sem skapast af
forsjá viturrar og vel menntaðr-
ar húsfreyju. Hefir ekki hvað
sízt reynt á þessa hæfileika frú
Dóru síðan hún tók við hús-
móðurstarfinu á Bessastöðum,>
en hún hefir, eins'og vitað var,
reynzt þeim vanda vaxin og
skipað þann sess með þeirri
stjórnsemi, virðuleik og háttvísi,
sem ágætustu konur prýðir og
ávallt gerir garðinn frægan.
Börn forsetahjónanna eru:
Þórhallur, skrifstofustjóri í utan
ríkisráðuneytinu, kvæntur Lilly
Knudsen; Vala, gift Gunnari
Thoroddsen, borgarstjóra, og
Björg, gift Páli Ásgeiri Tryggva-
syni, fulltrúa í utanríkisráðu-
neytinu.
Á þessum merku tímamótum
í ævi forsetans þakkar þjóðin
honum öll hin margvíslegu
störf, árnar honum, frú hans og
fjölskyldu allra heilla og ætt-
jörðinni árs og friðar.
Víglundur Mölier
—VISIR, 12. maí
Ritstjóri aðalblaðs austurrískra
jafnaðarmanna lýsir áliti sínu á
Bevanismanum.
Fyrir nokkru síðan, sagði
Aneurin Bevan sig úr stjórn
þingflokks Verkamannaflokks-
ins í mótmælaskyni við það, að
formaður flokksins, Clement
Attlee, hafði lýst yfir því, að
flokkurinn gæti hugsað sér, að
Bretar tækju þátt í varnar-
bandalagi Suðaustur-Asíu, ef það
miðaði ekki að því að viðhalda
nýlenduyfirráðum þar.
Eftir að Bevan fór úr þing-
flokksstjórninni, gerði hann
sérstaka grein fyrir afstöðu
sinni í blaði sínu „Tribune“.
Þetta varð til þess„ að aðalrit-
stjóri við aðalblað austurrískra
jafnaðarmanna, Oscar Pollak,
skrifaði svargrein til Bevans og
hefir hún birzt í mörgum blöð-
um jafnaðarmanna utan Austur-
ríkis, m. a. í aðalblaði norska
Alþýðuflokksins, — Arbeider-
bladet. Pollak er einn af þekkt-
ustu foringjum austurríska jafn-
aðarmannaflokksins, er hefir
barizt eindregnar gegn hvers
konar einræði en nokkur annar
jafnaðarmannaflokkur Evrópu,
fyrst gegn Dolfuss og síðan gegn
Hitler og nú seinast gegn
kommúnistum. Pollak hefir það
því umfram Bevan að þekkja
einræðisstefnurnar — og þá ekki
sízt kommúnismans — betur af
eigin raun.
Grein Pollaks fer hér á eftir:
Röksiuðningur Bevans
— Aneurin Bevan hefir dreg-
ið sig til baka úr stjórn þing-
flokks Verkamannaflokksins
brezka. Hann hefir gert það til
þess að mótmæla stefnu meiri-
hluta þingflokksins í utanríkis-
málum. Hann rökstyður þessa
ákvörðun í blaði sínu „Tribune“
á eftirfarandi hátt:
„Bretlandi er stöðugt þröngv-
að af Bandaríkjunum. Það hefir
fallizt á, að iðjuverin í Ruhr séu
látin í hendur fyrri eigenda
sinna. Það hefir látið hræða sig
til meiri vígbúnaðar en því er
mögulegt að rísa undir. Það hefir
einnig verið neytt til að stimpla
Kína sem „árásaraðila“ í Kóreu.
Til viðbótar kemur nú ný hótun
frá Washington. Gjaldkerinn
hótar að stöðva greiðslurnar, ef
ekki sé dansað eftir pípu hans.
Okkur er boðin samvinna til að
eyðileggja Genfar-ráðstefnuna,
áður en hún kemur saman. Þó
var Genfar-ráðstefnan eini ár-
angurinn af Berlínarfundinum.
Þeim fundi var hins vegar ekki
fyrr lokið en Bandaríkin byrj-
uðu að lýsa yfir því, að þau
myndu ekki undir nokkrum
kringumstæðum vinna það til
fyrir frið í Indó-Kína að viður-
kenna Pekingstjórnina. Til hvers
er þá Kína boðið til Genfar?
Eigum við að semja eða undir-
oka? Eigum við að semja um
frið eða heyja styrjöld, rétta
fram sáttahönd eða ógna með
vetnissprengju? Það viljum við
vita, áður en ráðstefnan hefst.
Eina trompið, sem við höfum í
hendinni í Genf, er að viður-
kenna Pekingstjórnina, ef frið-
ur verður saminn í Indó-Kína,
og þá vitanlega á þeim grund-
velli, að Indó-Kínverjar fái fullt
sjálfstæði. Þeir verða að vera
óháðir öllum, óháðir Frakk-
landi, Kína og Bandaríkjunum.
Ef þjóðir Indó-Kína kjósa kom-
múnistíska stjórnarhætti, eiga
þær að hafa fullt leyfi til þess“.
Eigum við að deyja
fyrir Ðanzig?
Lítum aftur um nokkra stund
til áranna fyrir 1939. Hitler
hafði þá þegar innlimað Austur-
ríki. Hann var að innlima Tékkó
slóvakíu í smástykkjum — er
hann taldi þá „seinustu“ kröfu
sína um útfærzlu Þýzkalands —
með fulltingi sáttastefnunnar,
er Chamberlain fylgdi. Ógn
nazismans grúfgði yfir Evrópu.
Minnihluti brezka Verkamanna-
flokksins hafði að lokum fallizt
á ófullnægjandi vígbúnað eftir
allmiklar innanflokkadeilur við
hina hefðbundnu friðarsinna
(pasifister) og draumóramenn.
Ein klíka í flokknum hélt þó
fram andstöðunni. Það voru
þeir, sem höfðu þá þegar skipað
sér um „New Statesman and
Nation“ og útgefanda þess,
Kingsley Martin. í þeim hóp var
meðal annarra Richard Cross-
man, sem nú er einn af þing-
mönnum brezka Verkamanna-
flokksins.
Þessir menn voru þá sem nú
fulltrúar sáttastefnunnar meðal
vinstri aflanna. Að sjálfsögðu
fellur okkur ekki einræði
Hitlers, sögðu þeir. Samt er því
ekki að neita, að það hefir sína
kosti. Þjóðverjar eru mikil þjóð.
Eigum við að hindra þá í því að
velja sér fasistíska stjórn, ef þeir
vilja það sjálfir? Eigum við að
fara í styrjöld fyrir ensku
kapítalistana, sem vita ekki
sjálfir, hvort þeir eiga heldur að
berjast við Hitler eða semja við
hann? Við viljum ekki vígbúast
og ögra Hitler.
Það var þessi stefna, sem hlut-
leysingjarnir í Frakklandi völdu
hið fræga vígorð: Mourir pour
Danzig — Eigum við að d^yja
fyrir Danzig? 1 Frakklandi voru
líka þá eins og nú miklar við-
sjár heima fyrir. Hægri flokk-
arnir töldu Blum, foringja jafn-
aðarmanna, jafnvel hættulegri
en Hitler. Það var þó alltaf reyn-
andi að semja við Hitler — held-
ur að rétta fram sáttarhönd en
hefja styrjöld. Þetta var skoðun
mikils hluta frönsku borgara-
stéttarinnar. Róttækustu vinstri
öflin í Bretlandi og afturhalds-
öflin í Frakklandi áttu þá sam-
leið um stefnu undanlátssem-
innar, alveg eins og nú.
Við vitum hvernig fór. Styrj-
öldin kom og það ekki sízt vegna
þessa sjónarmiðs. Margir létu
lífið — ekki vegna Danzig,
heldur vegna þess, að Bretland
og Frakkland voru óviðbúin og
óvígbúin, svo að Hitler taldi sér
óhætt að hefja styrjöld, þegar
hann sá styrkleysi þeirra og
innra ósamkomulag.
Hefir Aneurin Bevan gleymt
þessu. Við í Austurríki höfum
ekki gert það.
Hælluleg blekking
Varasamasta blekkingin í
þeirri keðju hálfsanninda og
blekkinga, sem höfð er eftir
Bevan hér að framan, er án efa
þessi: Við getum ekki háð
styrjöld til þess að koma í veg
fyrir að þjóð taki upp kommún-
istíska stjórnarhætti, ef „hún
vill það sjálf“. Við annað tæki-
færi hefir Bevan orðað þetta
einna ljósar með því að segja,
að ekki sé hægt að heyja styrj-
öld gegn kommúnismanum. Ef
einhver þjóð vilji búa við íhalds
stjórn, jafnaðarmannastjórn eða
kommúnistíska stjórn, þá sé það
hennar sjálfrar að ráða því.
Eins og kunnugt er, var Aust-
urríki hernumið af Hitler með
þeim rökstuðningi, að meirihluti
Austurríkismanna hefði óskað
eftir því. Vesturveldin létu þess-
ari lýgi ekki ómótmælt, heldur
staðfestu hana óbeint. Það er
erfitt að sjá muninn á beinni
erlendri innrás og á moldvörpu-
starfi fimmtu herdeildar. Það
LÆGSTA
TIL
ÍSLANDS
ASeins
fram og til baka
til Reykjavíkur
sýnir reynslan frá mörgum lönd-
um. Eftir á verður svo viðkom-
andi þjóð ekki spurð um það,
hvað hún vill eða hefir viljað.
Spyrjið tékknesku þjóðina um
það nú, hvort hún vilji einræði
kommúnista, spyrjið Ungverja,
spyrjið Pólverja. Hvernig getur
líka Bevan vitað, hvort þjóðir
Indó-Kína vilji vera „kommún-
istar“? Það yrði aldrei hægt að
fá vitneskju um það rétta, ef
kommúnistar kæmust þar til
yfirráða í skjóli vopnavalds. Hitt
er hins vegar ótvírætt, að þegar
kommúnistar eru komnir til
valda, kúga þeir viðkomandi
þjóð og ógna nábúum hennar.
Mér kemur gamall atburður í
hug. Á stríðsárunum stóð ég
ásamt fleiri jafnaðarmönnum að
útgáfu „Left News“, er Victor
Gollancz gaf út. Einn af sam-
herjum Bevans, G. D. H. Cole,
sagði þá á fundi, sem við vorum
á, að auðvelt væri að semja við
Stalín. Ef hann vildi fá Austur-
og Mið-Evrópu sem áhrifasvæði,
væri sjálfsagt að' fallast á það.
Ég sagði þá, að enskur sérvitr-
ingur, sem las „The Times“ í ró
og næði yfir tebollanum sínum
meðan austurrískir og spánskir
jafnaðarmenn fórnuðu lífi sínu í
baráttu við fasismann, hefði
ekki minnsta rétt til að verzla
með lönd okkar.
Þetta sama segi ég nú við
Aneurin Bevan.
Aðvörunarorð iil Bevans
Já, ég segi þetta við Aneurin
Bevan, sem aldrei hefir séð
Rússa nema við hátíðleg tæki-
færi með vodkaglas í hendinni:
Undanlátssemin er ekki rétta
stefnan í skiptum við einræðis-
herra, jafnvel þótt þeir hafi
vinstri stimpil. Hann ætti að at-
huga hverjir bandamenn hans
eru: Franskir Gaullistar, móður-
sjúkir Þjóðverjahatarar, of-
stækisfullir þjóðernissinnar og
beinir og óbeinir fylgismenn
kommúnista.
Ég segi ennfremur við Bevan:
Sá, sem er andvígur hlutleysis-
stefnunni, er engan veginn á-
hangandi Dulles. Aðeins innan
samtaka frjálsra þjóða — en
ekki utan þeirra — er hægt að
hnekkja kröfum frá amerískum
afturhaldsmönnum og ógnunum
hinnar kommúnistísku yfir-
gangsstefnu. Við austurrískir
jafnaðarmenn vorum meðal
þeirra fyrstu, sem tókum upp
vígorðin um „þriðja aflið“. Með
því höfum við ekki átt við hlut-
leysi, undanlátssemi og uppgjöf,
heldur markvissa og sjálfstæða
stefnu.
Svo að lokum þetta: Ekkert er
eins hættulegt fyrir styrkleika
þessa „þriðja afls“ en hnignun
brezka Verkamannaflokksins.
Þetta höfum við erlendir jafn-
aðarmenn leyfi til að segja, án
þess að blanda okkur að öðru
leyti í mál flokksins. Hinn lýð-
ræðislegi sósíalismi í Evrópu er
bundinn við styrk, stefnu, festu
og kosningahorfur brezka Verka
mannaflokksins. Hlutleysisstefna
og sundurlyndi frjálsu þjóðanna
er vatn á myllu valdhafanna í
Moskvu. Sundrung innan brezka
Verkamannaflokksins væri þó
enn meira vatn á myllu þessara
höfuðandstæðinga hinna sósí-
alistísku alþýðusamtaka.
FLUGFAR
Grípið tækifærið og færið
yður í nyt fljótar, ódýrar og
ábyggilegar flugferðir til
íslands í sumar! Reglu-
bundið áætlunarflug frá
New York .. . Máltíðir inni-
faldar og annað til hress-
ingar.
SAMBÖND VIÐ FLESTAR STÓRBORGIR
Finnið umboðsmann ferðaskrifsiofunnar
ICELANDIC AIRLINES
15 West 47th Street, New York
PLoza 7-8585
lllil
—TÍMINN, 14. mai