Lögberg - 24.06.1954, Qupperneq 1
ANYTIME
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 24. JÚNÍ 1954
NÚMER 25
Innsetning að
Mountain, N.D.
Séra B. Theodór Sigurðsson
Séra B. Theodór Sigurðsson
var settur í embætti sem prest-
ur Mountain prestakalls, við há-
tíðlega athöfn, sem fór fram
undir beru lofti í bæjargarðin-
um að Mountain, á sunnudaginn
20. júní. Byggðarfólk hafði und-
irbúið samkomu þessa með
uiestu prýði bæði úti og inni.
Theodór Thorleifsson frá Garð-
ar hafði æft stóran sameigin-
legan söngflokk úr öllum sötn-
uðunum. Prentaðri dagskrá með
salmum og messuformi var út-
býtt á staðnum. Altari og pré-
dokunarstól var komið fyrir á
vellinum, og sömuleiðis hljóð-
uemum sem báru athöfnina víðs-
vegar. Séra S. T. Guttormsson
frá Cavalier þjónaði fyrir altari
a undan prédikun. Forseti
kirkjufélagsins, dr. Valdimar J.
Eylands, flutti prédikun, og
framkvæmdi innsetninguna; þá
flutti séra Theodór snjalla
aðfararræðu. Emily Sigurðsson
söng fagran einsöng Að afstað-
iuni messugjörð var öllum boðið
id kaffidrykkju í samkomuhúsi
sveitarinnar, og var veitt af
uiikilli rausn. Mannfjöldinn fór
síðan heim á prestssetrið, til að
uthuga nýjar umbætur, sem á
því hafa verið gerðar; er það nú
að heita má nýtt hús, og mjög
vel frá því gengið á allan hatt.
Skrifuðu menn nöfn sín þar í
gestabók prestshjónanna, og
°skuðu þeim persónulega til
hamingju með heimilið og em-
öættið. Allt stuðlaði að því að
§era daginn ánægjulegan og
eftirminnilegan: yndislegt veð-
Ur> frjósemi og fegurð sveitar-
lnnar, mikill mannfjöldi víðs-
^egar að, og ekki sízt augljós
ðgnuður safnaðanna út af komu
mna glæsilegu prestshjóna. •—
ugheilar blessunaróskir fjölda
vma fylgja þeim á hinu nýja
starfssviði þeirra.
j. heimsókn til
Washington
þessar mundir eru þeii
urchill forsætisráðherra of
den utanríkisráðherra að leggjí
a stað tii Washington í heim
s°kn til Eisenhowers forsetí
vegna viðhorfsins 1 Asíu, svc
Sem 1 fudo-China, og vafalausi
margra annara aðkallandi vandí
mala, það var Churchill, sen
rumkvæði átti að heimsókr
essari, og var þeirri ákvörður
, ans emróma fagnað í brezkí
þmginu.
b ^0J^æ^lsraðherra Canada hefi:
^0. 1 þessum merku stjórnmálí
0 °nnum> að heimsækja Ottawa
begB Cm.Þeir Þakksamlegi
Ég minnist þín
17. júní 1954
Sjálft frelsið er eilíft frelsisstríð,
hvert fótmál þess skylduvaka.
Að saltstólpa verður sérhver þjóð,
er seilist um of til baka. —
Hún máist oft hjá oss myndin þín
af miklu þó sé að taka.
Þó fjarlægðin geri fjöllin blá
hún fegrar ei ásýnd þína,
því undrin, sem ég í æsku leit
í andlegri nálægð skína,
hvert öræfabros, hvert daladrag,
hver drangur og jökullína.
Ég freistaðist ungur í faðmi þér
mitt fábrotna ljóð að yrkja,
þar fann ég þann eina efnivið,
er áform mín kynni að styrkja.
Og útsýnið brosti mér alt í kring
sem uppljómuð heilög kirkja.
í lindinni heima var lítill foss,
hans ljóði ég aldrei gleymi;
mér finst eins og áhrif hans enn í dág
um æðar og vitund streymi,
í nið hans var undarlegt undirspil
að íslenzkum stefjahreimi.
Og enn skín sól yfir Ingólfsbygð
þó umhorfs sé skýjað víða.
Hver þjóð, er ráða vill sjálfri sér
skal sjálfsþroskans lögum hlýða
og ákalla guð sinn hæst í hæð
i holskeflum rúms og tíða.
Einar P. Jónsson
KIRKJUÞINGIÐ
Hið 70. ársþing lúterska kirkjufélagsins hefst með guðsþjón-
ustu (á íslenzku) í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudaginn kemur,
27. júní kl. 7. Séra Eiríkur Brynjólfsson prédikar, en séra Bragi
Friðriksson þjónar fyrir altari. Síðan fer fram þingsetning, og
forseti flytur ársskýrslu sína.
Við árdegisþjónustuna á sunnudaginn, 27. júní kl. 11, flytur
séra S. O. Thorlakson prédikun.
Á mánudagskvöldið kl. 7:30 flytur Þórir Kr. Þórðarsson,
cand theol. frá Chicago-háskólanum fyrirlestur „Biblían og kirkja
nútímans".
Á þriðjudagskvöldið flytur séra B. Theodór Sigurðsson fyrir-
iestur: „Þjóðkirkjan á Islandi eins og hún kom mér fyrir sjónir“.
Séra S. O. Thorlakson flytur einnig erindi um sjálfvalið efni.
Erindrekar og gestir kirkjuþingsins eru beðnir að mæta ít
samkomusal Fyrstu lútersku kirkju á sunnúdaginn 27. júní milli
kl. 5—7. Verður þeim þá sagt til um gistingarstaði, og veittar aðrar
upplýsingar er snerta starfsskrá þingsins.
Fishermen Ask
Education Program
Lake Winnipeg fishermen are
asking the provincial govarn-
ment for assistance in securing
an adult education program for
the promotion of co-operative
development among fishermen,
and in enabling them to get re-
bates on tax for all gasoline
used in commercial fishing.
At a meeting in Riverton,
petitions requesting the pro-
vincial government’s assistance
in these matters were presented
to Dr. S. O. Thompson, MLA
for Gimli, for submission to
Premier D. L. Campbell.
The petitions refer to two re-
commendations of the March 24
report of the Commercial Fish-
ing commission. They ask that
the provincial government,
through the University of Mani-
toba and MFAC, request the
federal minister of fisheries for
assistance in the establisment of
the adult education program,
and that arrangements made by
the revenue branch regarding
gasoline tax rebates to enable
men be reviewed to enable
fishermen to get rebates for all
gasoline used in commercial
fishing.
During the meeting, consider-
able discussion took place re-
garding the propriety of the
acceptance and submission of
these petitions by the member
for Gimli constituency. It was
the unanimous opinion of the re-
presentatives that since there
was no definite organization
among Lake Winnipeg fisher-
men, it was quite proper that
the petitions should be accepted
and submitted to the govern-
ment authorities by the member.
—Winnipeg Free Press
Silfurbrúðkaup
Eftir hádegi á sunnudaginn
20. júní söfnuðust saman í neðri
sal Fyrstu lútersku kirkju um
hundrað vinir og vandamenn
þeirra Mr. og Mrs. Árni Stefáns-
son til að halda upp á silfur-
brúðkaup þeirra hjóna. Systur-
sonur silfurbrúðgumans, Dr.
Harold Blöndal, hafði veizlu-
stjórn með höndum og afhenti
heiðursgestunum fyrir hönd
skyldfólks og vina “Combination
Radio and record player” að
gjöf. Guttormur Finnbogason
mælti fyrir minni Mrs. Stefáns-
son, en J. Jónasson fyrir minni
manns hennar. Alvin Blöndal
söng einsöngva, Mrs. Doreen
Breckman lék á fiðlu, ennfrem-
ur söng Mr. Stefánsson. Miss
Sigrid Bardal annaðist undir-
spil.
Heimili þeirra Mr. og Mrs.
Stefánsson er að Tyndal, Man.
Þau eiga tvö börn, Irvin er
stundar búskap, og Lois, er
stundar nám í Home Economics
við Manitobaháskóla.
Lýðveidisins minst
Tíu ára afmælis íslenzka lýð-
veldisins 17. júní, var fagurlega
minst hér vestan hafs; klukkan
sex um kvöldið flutti canadiska
útvarpskerfið lýðveldisþátt, en
þar fluttu snjallar ræður þeir
Dr. Valdimar J. Eylands forseti
Þjóðræknisfélagsins, og sendi-
herra íslands í Canada og Banda
ríkjunum, Thor Thors, en þætt-
inum lauk með blönduðum kór,
Ó, Guð vors lands.
Klukkan hálf níu fór fram í
Sambandskirkjunni virðuleg og
fjölsótt lýðveldissamkoma að
tilhlutan Þjóðræknisdeildarinn-
ar „Frón“, er vandað hafði verið
til svo sem framast mátti verða;
formaður deildarinnar, John
Johnson, skipaði forsæti.
Að Mountain, North Dakota,
og eins í Vancouver, B.C., voru
haldnar fjölmennar og ánægju-
legar afmælissamkomur.
Vera má, að lýðveldisafmæl-
inu hafi verið fagnað á fleiri
stöðum en þeim, sem nú hafa
nefndir verið, þótt Lögbergi sé
ekki kunnugt um slíkt.
Æfingar gegn
kjarnorkustyrjöld
r M r ■ • r
i Sviþjoð
Stokkhólmi, 18. maí
Ehrensward hershöfðingi, yfir
maður sænska hersins, hefir
skýrt frá því 1 ræðu, sem birt
var í gær, að á hausti komanda
myndu fara fram í sænska hern-
um stórkostlegar æfingar gegn
kjornorkuárásum. Hershöfðing-
inn kvað svo að orði, að Svíar
væru langt komnir í öllu varð-
andi kjarnorkustyrjaldartækni.
Hann kvað ennfremur strjál-
byggt land betur geta varizt
kjarnorkuárásum en þéttbyggðu
löndin.
Ræðan var flutt á fundi, þar
sem ýmsir herforingiar voru
viðstaddir og hermálaráðunaut-
ar skandinavisku sendisveitánna
í Stokkhólmi.
— VISIR
Nýju pappírsfélög
hér í landi hafa verið dæmd
fyrir verðlagssamsæri og nemur
sektin 242 þúsundum dala.
Fjörutíu ára hjúskaparafmæli
Dr. og Mrs. Haraldur Sigmar
Á kirkjuþingi því er í hönd fer í Winnipeg, munu margir
sakna prestshjónanna frá Blaine, Wash., þeirra dr. Haraldar
og frúar hans. Mun séra Haraldur hafa setið öll þing
kirkjufélagsins samvizkusamlega, allt frá því er hann var
vígður á kirkjuþingi, árið 1911. En nú hefir hann góða
afsökun fyrir fjarveru sinni. Þau hjón eru nú í Evrópuför,
og munu þau, um þessar mundir, stödd á Islandi. Var dr.
Haraldi fengið umboð frá kirkjufélaginu til að koma fram
fyrir hönd þess á vígsludegi hins nýja biskups, herra
Ásmundar Guðmundssonar, 20. þ. m. Undanfarnar vikur
hafa þau dvalið í Noregi í heimsókn hjá ættingjum frúar-
innar, og einnig heimsótt Svíþjóð og Danmörku. A heim-
leiðinni munu þau fara um Bretland og Bandaríkin. Munu
þau lengi hafa ráðgert þessa för, en það sem nú ýtti undir
framkvæmd hennar sérstaklega, er fjörutíu ára giftingar-
afmæli þeirra 25. þ. m. Er því hér um einskonar brúðkaups-
för að ræða. Á slíkum ferðum horfa ung hjón venjulega
fram á óyissa framtíð, því að framtíðin er ávalt óviss. En
þessi hjón hafa mun meiri ástæðu til að gleðjast á þessari
brúðkaupsferð sinni, að þau geta litið til baka yfir farinn
veg fjörutíu ára, sem er stráður mörgum dásamlegum
gjöfum og gæfu lífsins.
Þegar séra Haraldur var vígður, fyrir fjörutíu og
þremur árum síðan, samdi hann og lét lesa ævisögu sína,
fram að þeim tíma. Kemur þar strax fram skaphöfn hans og
lyndiseinkunnir: prúðmennska og hógværð. Þessar einkunn-
ir hafa auðkennt allan feril hans sem prests og manns, og
skapað honum miklar vinsældir hvar sem hann hefir dvalið.
Þá var það ekki síður gæfuspor, er hann gekk að eiga Anne
Margrethe, dóttur hinna valinkunnu hjóna, séra Steingríms
og frú Eriku Thorlaksson í Selkirk. Mannkostir hennar og
hæfileikar hafa stuðlað mjög að giftusömu starfi dr. Har-
aldar, og skapað heimili þeirra álit og vinsældir. Séra Har-
aldur hefir þjónað þessum prestaköllum: Wynyard, Sask.,
1914—1926; Mountain, N. Dak., 1926—1945; Vancouver, B.C.,
1945—1950; og síðan Blaine, Wash. Hann var varaforseti
kirkjufélagsins frá 1931 til 1947, og síðan forseti þess í
fjögur ár. Árið 1944 gjörði United College í Winnipeg hann
að doktor í guðfræði, (honoris causa). Börn þeirra hjóna eru:
Margaret, Mrs. Elvin O. Kristjánsson í Seattle, Wash.;
Haraldur Steingrímur, prestur að Gimli, Man.; Eric Hálfdán,
prestur Hallgrímssafnaðar , Seattle, Wash.; og George
Octavius, skrifstofumaður í Seattle. \
Lögberg óskar þessum mætu hjónum til hamingju á
hinum merku tímamótum og biður þeim heillar heimkomu,
og vonar að þeim endist heilsa og kraftar til að vinna
köllunarverk sitt meðal fólks vors, enn um langan aldur.
Sækir þing
vísindamanna
Dr. Áskell Löve
Síðastliðinn þriðjudag lagði af
stað héðan úr borg áleiðis til
Parísar dr. Áskell Löve prófess-
or í grasafræði við Manitoba-
háskólann og situr þar alþjóða-
þing grasafræðinga. Dr. Áskell
er alment talinn ágætur vísinda-
maður, og á áminstu þingi hefir
honum verið falið á hendur
mikilvægt hlutverk sem þeim
einum, sem í fremstu röð grasa-
fræðinga standa, er fengið til
meðferðar.
í báðum leiðum kvaðst dr.
Áskell koma við á íslandi, þótt
viðdvöl sín þar yrði sennilega
fremur stutt.
Frú Aurora
Johnson látin
A þriðjudagsmorguninn lézt
að heimili dóttur sinnar í
Madison, New York, frú Aurora
Johnson, ekkja hins kunna
stjórnmálaskörungs Thomasar
H. Johnson, fyrrum dómsmála-
ráðherra Manitobafylkis, 76 ára
að aldri; hún lætur eftir sig
þrjú börn, Elswood, Ethel og
Cecil. Hún var dóttir hinna
kunnu landnámshjóna, Friðjóns
og Guðnýjar Frederickson; einn-
ig lifa hana tveir bræður, Kári
i Vancouver og Harold í Winni-
peg.
Frú Aurora var fríðleikskona,
vinföst og híbýlaprúð; útför
hennar verður gerð frá Fyrstu
lútersku kirkju á laugardaginn
kemur, kl. 1.30 e. h., undir for-
ustu Dr. Valdimars J. Eylands.
Nýr flokksforingi
Duff Roblin
Á nýafstöðnu þingi íhalds-
manna í Manitoba, sem haldið
var í Royal Alexandra hótelinu
hér í borginni, var Duff Roblin
fylkisþingmaður fyrir South
Winnipeg kjördæmið, valinn til
flokksforustunnar í stað Erriks
Willis, er beið lægra hlut við
atkvæðagreiðslu eftir átján ára
foringjastarf, er að jafnaði gekk
þetta upp og niður.
Hinn nýi leiðtogi er sonar-
sonur Roblins forsætisráðherra,
er lengi sat við völd, en var
knúður til að láta af embætti
1915. Hann er lögfræðingur að
mentun og þykir maður harð-
snúinn og fylginn sér vel.