Lögberg - 24.06.1954, Blaðsíða 2

Lögberg - 24.06.1954, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. JÚNI 1954 Ræða Thor Thors sendiherra lesin aí segulbandi á Lýðveldissamkomu deildarinnar „Frón" í Fyrstu Sambandskirkju, 17. júní 1954 Góðir Islendingar: I dag, 17. júní, fer heilög há- tíð um hugi allra íslendinga heima á Fróni — og hvar sem íslendingar, eða fólk, sem Is- landi ann, er statt í veröldinni. Heima á Islandi ríkir almenn- ur fögnuður um gjörvalt landið. íslenzki fáninn blaktir við hún á hverri stöng, guðþjónustur eru haldnar í öllum söfnuðum landsins. I Reykjavík munu æðstu menn þjóðarinnar flytja fólkinu boðskap sinn og útvarp- ið mun láta mál þeirra hljóma út til stranda og inn til dala — inn á nær því hvert einasta heimili við sjó og í sveit. Mikill fögnuður mun vera í höfuð- staðnum langt fram á nótt, svo mun einnig vera alls staðar þar sem byggð er fjölmenn og alls staðar þar, sem því verður við komið. Hví fögnum vér? Hið endurreista íslenzka lýð- veldi hefir nú lifað sín fyrstu tíu ár. Tíu ár er stuttur tími, jafnvel í lífi flestra manna, en tíu ár eru á mælikvarða eilífð- arinnar og í lífi flestra þjóða að- eins sem sandkorn á sjávar- ströndu, og þó — við nánari at- hugun verðum við að viður- kenna, að fyrstu tíu árin á mannsæfinni geta verið örlaga- rík og mótað skapgerð, lífsvið- horf og lífsferil hinnar ungu veru um alla framtíð. Það býr lengi að fyrstu gerð. Svo getur einnig farið í lífi þjóða. Því verður heldur ekki neitað, að tíu fyrstu ár lýðveldisins munu miklu ráða um framtíð vora alla og hafa þar djúptæk áhrif. Þau munu marka sporin, og sporin hafa legið og munu liggja fram á við. „Ardegið kallar áfram liggja sporin, enn er ei vorri framtíð stakkur skorinn". Þess vegna er oss holt á þess- ari hátíðar- og helgistundu að líta ofurlítið yfir farinn veg, og jafnframt að skyggnast nokkuð inn í heima framtíðarinnar. Láta blikljós minninganna fara um hugi vora og líta í hrifningu bjarma þess sem í vændum er og koma skal. Vér viljum þá minnast þeirra manna, sem hafa á undan förnum öldum háð baráttuna fyrir frelsi þjóðarinnar og sjálf- stæði, minnast leiðtoganna og einnig allra hinna óbreyttu her- manna, er fylgdu forustumönn- unum fast að málum. Það er mesta firra, þegar því er fleygt, að vér höfum endurheimt frelsi vort á nokkurrar baráttu, án nokkurra fórna. Aðeins 7 alda stríð gat fært oss sigurinn. Leiðin var myrk og langsótt gegnum hættur. Erlend yfirráð og drottnun færðu afturkipp í þjóðlífið og lágu eins og mara yfir því. Leiðarnornir skópu oss langa þrá. Því fór svo, að jafnskjótt og oss gafst þess kost- ur að standa einir og ráða einir öllum vorum málum, þá greidd- um við því fagnandi atkvæði nær allir. Islendingar hafa alltaf skilið það að: „Þrælajörð þér veröldin verður, verk þín sjálfs nema geri þig frjálsan". Því fór svo, að við gátum sagt við oss sjálfa, og tilkynnt öllum heiminum hinn 17. júní 1944, að nú væri: Lýðveldið — Islands stræri draumur — rættur. Nú skulum við renna snöggv- ast augum sögunnar yfir hin fyrstu 10 ár okkar unga lýð- veldis, og spyrjum sjálfa oss: „Höfum við gengið til góðs, götuna fram eftir veg?“ Við getum ekki neitað því að framfarir og framsækni blasa við á flestum sviðum. Lítum á atvinnuvegina. Landbúnaðurinn, okkar elzta og traustasta atvinnugrein, hefir aldrei staðið í slíkum blóma sem nú í dag. Kotin og moldarkof- arnir eru að hverfa, og þokkaleg og vistleg íbúðarhús rísa á flest- um jörðum um allar Islands byggðir. Ræktunin margfaldast, tún og akrar hylja móa og mýr- ar. Búpeningi fjölgar og hann fær betri aðhlynningu. Og það sem bezt er: Unga fólkið er aftur að fá trúna á landið, það vill margt vera kyrrt heima í sveitinni, og sér nú og skilur, að sveitirnar hafa frá upphafi íslandsbyggðar megnað og kunn- að og kunna enn í dag að fóstra marga vaska syni — og dætur. Kuldinn og myrkrið og einangr- unin hafa hrjáð og hrellt fólkið í sveitinni á undanförnum öld- um. Nú streymir Ijós og ylur úr fossa vorra skrúða inn á stöðugt fleiri sveitabýli. Hitann úr iðrum jarðar leggur um fjölda heimila og útvarpið færir fólkið daglega beint inn á svið vi?- burðanna — heima og í hinum stóra heimi. Lítum svo til sjávar, til auðs- linda okkar atvinnulífs, þangað sem komið hefir afl þeirra miklu hluta, sem við höfum gjört, ekki aðeins síðustu tíu árin, heldur á fyrri helmingi'þessarar aldar. — Við sjáum þá að á fyrstu árum okkar lýðveldis höfum við stigið stór og djörf spor fram á við. — Vér höfum eignast stærri og fullkomnari flota fiskiskipa en vér höfum nokkru sinni áður átt í sögu vorri. Skipin bera af um styrkleika, sjófærni og veiði- hæfni. Þau mega heita fær í allan sjó undir handleiðslu okk- ar afburða sjómanna. Leitað er á ný og fjarlæg mið. Aflamagnið fer vaxandi, nýjum stöðvum skýtur upp á landi til að verka fiskinn og gjöra hann verðmæt- ari með meiri tilbreytni og meiri vandvirkni. Hraðfrysti- húsum, þurkhúsum og hjöllum fjölgar örar en unnt er að skrá. Vér skiljum það, að við þurfum að afla nýrra markaða fyrir hinn aukna feng. Það hefir tek- izt, og þótt sums staðar hafi ver- ið skellt í lás fyrir okkur, þá höfum við ratað í aðrar áttir og allt gengið vel. íslendingar deyja aldrei ráðalausir. — Við sjáum ennfremur að við höfum eign- ast nýjan verzlunarflota, marg- falt stærri en við áttum fyrir stofnun lýðveldisins, óendanlega miklu stærri en nokkurn Islend- ing gat dreymt um, þegar fyrsta skipið okkar, gamli Gullfoss, kom heim árið 1914. Ég nenni ekki á þessari stundu að tilfæra neinar tölur. Fögnuður okkar allra yfir þessari framsækni er öllum tölum æðri. Vér höfum stigið það djarfa heillaspor að færa út landhelgi vora til að venda okkar dýrmæt- ustu fjársjóði, fiskimiðin, sem vér verðum að telja fátæka mannsins einasta lamb. Vegna þessa höfum vér sætt andúð og andróðri, jafnvel frá svokölluð- um vinum vorum. Vér höfum eigi látið bugast, en haldið fast við rétt vorn og málstað, og hinn hógværi málstaður vor hefir jafnvel unnið bráðabirgðasigur meðal heimsins þjóða — á þingi Sameinuðu þjóðanna, þrátt fyrir andstöðu og andóf stórveldis. En lítum svo til fuglanna í loftinu. íslendingar hafa viljað vængjum berast. Á þessum bernskuárum lýðveldisins höf- um vér einnig eignast álitlegan flugflota, sem fer um víða geima, og stígur til jarðar um allar álfur. Islendingar fara nú til fjarlægra landa á sama tíma og það tók fyrir aðeins fjórum áratugum að ferðast frá Reykja- vík til Þingvalla. Islenzkir flug- menn, þessir víkingar alheims geimsins, bera hróður og frægð íslands til annarra landa, nær og fjær. Vér sjáum að einnig á því sviði fjölgar vængjum og flugið er djarflega þreytt. Lítum svo á iðnað og iðju. Þar blasir við vaxandi framleiðsla iðnaðarvara og stöðugt fleiri vörutegundir, meiri vöruvöndun og aukin fjölbreytni. Iðnaðurinn er orðinn einn af hornsteinum okkar atvinnulífs. Stpriðjan hefir tekið hamskiptum, marg- föld virkjun Sogsins og Laxár, og nú síðast áburðarverksmiðj- an, eru stórkostleg og stórvægi- leg tákn þessarar miklu þróun- ar, og stórhugur stjórnmála- mannanna og raunar allrar þjóð- arinnar boðar djarfhuga og stór- felldar aukningar á þessum sviðum. Rafmagn inn á hvert heimili, út við sjó og inn til dala, er markið. Þetta er engin fjarlæg eða draumkennd hug- sjón lengur, heldur takmark, sem byrjað er að nálgast. Sements- verksmiðja í byggingu. Það boðar ný húsakynni um land allt, útrýmingu heilsuspillandi Ibúða og ný og glæst heimili fyrir unga fólkið, sem vill eign- ast sitt eigið athvarf. Við þurfum ekki lengur að spyrja: „Hvað verður úr þínum hrynjandi fossum? Hvað verður af þínum flöktandi blossum?“ Við sjáum það og finnum dag- lega í okkar lífi, og þó getum við enn með sanni sagt: „Land mitt! Þú ert sem órættur draumur, óráðin gáta, fyrirheit“. Allar þessar miklu tæknilegu, verklegu framfarir eru vissu- lega blessunarríkt fagnaðarefni. En maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Einnig á sviði menn- ingar og menntamála hefir þró- unin verið stórstíg. Myndarlegir barnaskólar og unglingaskólar, með nýtízku útbúnaði hafa risið í Reykjavík og víðsvegar um landið. Menntaskóli hefir verið stofnaður í sveit og Háskólinn hefir fært út starfssvið sitt við stöðugt vaxandi aðsókn stú- denta. Islenzkir stúdentar hafa þó eigi hætt við að sækja sér- menntun sína til mestu landa menningar og tækni víðsvegar um heim. Einnig á sviði listanna hefir orðið bráð og björt vakn- ing. Við höfum opnað þjóðleik- hús vort upp á gátt. Leiklistin blómgast fyrir atgerfi afburða íslenzkra leikenda. Fólkinu er færður boðskapur snjöllustu höfunda íslenzkra og utan úr heimi. Úrvals íslenzkt og erlent söngfólk flytur okkur fegurstu og frægustu óperur heimsins, og íslenzk hljómsveit fyllir sali og býli fegurstu tónum meistar- anna. Margar snjallar bækur ís- lenzkra höfunda færast inn á hvert heimili, og skærustu gull- korn heimsbókmenntanna má finna jafnt í höll og hreysi. Það er sem íslenzka þjóðin hafi fengið vængi. Nú erum við alfrjálsir og því alls megnugir. Alltaf hefir saga vor sýnt að aukið frelsi boðaði nýjan byr og nýja landvinninga framfara og menningar. En þó eru alltaf þeir menn til, sem vilja væla og vola og telja að eigi höfum við gengið til góðs. Slíkt fólk talar jafnan um allt stórtækt framtak sem glap- ræði, og stökkbreytingar. Hve- nær sem ýtt er frá landi sýnist því kollsigling í vændum, það talar um glatað siðferði, um glapræði og gleiðgosahátt. Slík- ar raddir hafa alltaf heyrzt á öllum tímum. Einkum þykir hlýða að tortryggja eða jafnvel fordæma æskuna. En æska Is- lands hefir alltaf vaxið upp til að bæta landið og skapa þjóð- inni betri tíma og bætt lífskjör. Svo mun enn verða um æsku landsins nú í dag. Gefum æsk- unni aukið sjálfstraust, aukið frjálsræði, aukinn trúnað. Þá mun æskan taka við stjórnvöl og stýra þjóðarknerri dýrum, öruggar en vér getum fram til fegurri landa, aukinnar velmeg- unar, framfara og hamingju. Trúin á æskuna er grundvöll- ur gróandi þjóðlífs. Ég hygg að segja megi með sanni, að hin íslenzka þjóð hafi aldrei lifað við eins góð kjör eins og hin fyrstu 10 ár okkar lýðveldis. Auðsöfnun og auð- jöfnun hafa haldizt í hendur. Síðast og ekki sízt ber oss að líta á atburðina á sviði stjórn- málanna. Ég á ekki við stríðið milli flokkanna heima, eða per- sónupatið, öfundina eða ásæln- ina. Ég á við aðstöðu Islands meðal annarra þjóða, og á sviði alheims stjórnmálanna. Islenzka lýðveldinu hefir um allan heim verið vel, virðulega og vingjarn- lega tekið, og víða fagnað. Þetta hefir m. a. komið fram við heim sóknir okkar tveggja fyrstu for- seta til erlendra þjóðhöfðingja og erlendra þjóða. Franklin D. Roosevelt, voldugasti þjóðhöfð- ingi veraldarinnar í síðustu heimsstyrjöld, tók fyrsta for- seta íslands, herra Sveíni Björns syni, opnum örmum, og ræddi við hann sem jafningja sinn, er forsetl okkar gisti Hvíta Húsið í Washington árið 1944. Allir valdamestu menn Bandaríkjanna í Washington voru kallaðir til að heiðra þennan þjóðhöfðingja vorn, og ræða við hann. Nú ný- verið hafa konungar Danmerk- ur og Svíþjóðar og forseti Finn- lands sýnt forsetahjónum vor- um, herra Ásgeiri Ásgeirssyni og frú hans, allan sóma og þjóðir þeirra hyllt og fagnað hinu frjálsa, íslenzka lýðveldi. Til þess fyllilega að skilja hið sögu- lega mikilvægi þessarar at- burða, skulum við líta aftur í tímann. Haldið þið ekki að Jón Sigurðsson — sem var, er og ætíð verður okkar mikli Forseti, hefði ekki átt erindi, og látið ljós sitt skína við voldugasta mann veraldarinnar. Og hvernig haldið þið, að Jón Sigurðsson hefði notað þá aðstöðu að vera tekinn sem jafningi af Dana- konungi, sem þjóðhöfðingi vors sjálfstæða lýðveldis við fögnuð og velvild dönsku þjóðarinnar. Atburðir sögunnar og örlögin skópu honum ekki þessa að- stöðu, en hann ruddi brautirnar fyrir þá er síðar skyldu koma og fyrir fullkomnu sjálfstæði ís- lenzku þjóðarinnar. Eða hvernig skyldi Jóni Sigurðssyni og öðrum foringjum og forystu- mönnum okkar sjálfstæðisbar- áttu á undanförnum árum hafa líkað sú vitund að eiga á þjóð- anna þingi, meðal allra þjóða heims, sama atkvæðisrétt um al- heims mál og örlög heimsins og mestu stórveldin, að vita það að lóð íslands var jafnþungt á meta skálinni og lóð Bandaríkjanna, Bretlands eða Rússlands. Og hvernig hefði þessum foringjum okkar fallið það að láta alheim- inn hlýða á mál þeirra. Sam- tímis því er vér fögnum hinni auknu vegsemd Islands, hörm- um við það, að foringjarnir miklu gátu ekki notið hennar og gjört hana glæsilegrí. A sviði íslenzkra utanríkis- mála er þetta til samanburðar. Árið 1944 hafði ísland sendi- herra erlendis aðeins á þrem stöðum. Þeim hafði verið veitt viðtaka af stórveldunum í þess- ari tímaröð: í Washington október 1941. í London desember 1941. I Moskva 1944. Öll höfðu þessi stórveldi sent sérstaka sendiherra til Islands fyrir lýðveldisstofnun. Enn- fremur hafði hin útlæga stjórn Noregs í London sendiherra á Islandi, og Frakkland og Sví- þjóð áttu hér sendifulltrúa. Nú hefir hið íslenzka lýðveldi sendiherra eigi aðeins hjá fyrr- nefndum þrem stórveldum, held- ur einnig í Frakklandi, Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð. Hinir íslenzku sendiherrar gegna og störfum meðal allflestra þjóða Evrópu, í tveim Asíulöndum og um þvera og endilanga Suður- og Norður-Ameríku. Islenzkir kjörræðismenn greiða götu Is- lendinga í helztu viðskiptaborg- um íslendinga um víða veröld. Þetta er þróun utanríkismál- anna á tíu árum lýðveldisins. Nær allar helztu vina- og við- skiptaþjóðir Islands hafa einnig skipað sendiherra til að sinna íslandsmálum. íslenzk þróun hefir á öllum sviðum verið sem æfintýr. Vér þökkum það og fögnum því. En við látum eigi ofmetnast. Við vitum að vandi fylgir vegsemd hverri, og að öll æfintýri eiga sér endalok, ýmist góð eða ill. — Veldur hver á heldur. — Vér vitum það og, að Fjallkonan verður aldrei fegurri og kærari en í ást og framtíðar vordraum- um barnanna hennar. Þessi orð eru töluð sérstaklega í tilefni af hátíð dagsins meðal Vestur-íslendinga. Ég vil því snúa máli mínu með nokkrum orðum beint til ykkar, góðu vinir, íslands synir og dætur og niðjar allir. Þið hafið tekið ykkur bólfestu og gjörzt borgar- ar í hinum miklu löndum Vest- urheims, Canada og Bandaríkj- unum. Þið hafið verið trúir og dugandi þegnar ykkar nýja fósturlands, en þið hafið aldrei gleyma gamla landinu, fieðra ykkar Fróni. Þið hafið vitað það og skilið, að: „Þeim, sem gleyma þjóð og ætt, þeim, sem hafa misst sig sjálfa, verður tóm og auð hver álfa“. Tryggð ykkar við ferðranna grund og forna tungu, við vort tignríka mál, stuðningur ykkar við okkar framfaramál, allt þetta hefir verið okkur ómetan- legur styrkur í okkar sjálf- stæðisbaráttu og viðreisnarleit. Og vér vitum, að þið hafið sjálf öðlast styrk og hvöt við að minn- ast feðranna frægðar. Vér dáumst að manndómi ykkar og afrekum í baráttunni hér í þess- um miklu löndum harðrar sam- keppni. Vér erum ykkur þakk- látir fyrir þrek ykkar, dugnað og dyggðir allar. Vér óskum og vonum, að stórskáld vort, Einar Benediktsson, hafi verið sann- spár, er hann sagði: „Standa skal í starfssemd andans, stofninn einn með greinum tveim“. Það voruð þið sjálfir, sem sögðuð við okkur á lýðveldis- hátíðinni 1944: „Vér höldum allir hópinn, þótt hafið skilji löndin“. Undir það taka allir Islend- ingar hjartanlegh. Er vér nú reynum að skyggn- ast inn í lönd fortíðarinnar, og hugleiða hvar mun framtíð Is- lands, þá getum við með sanni sagt, að við íslendingar vitum sjálfir hvaða verkefni vér vilj- um helga krafta okkar á næstu áratugum. Ég hefi nokkuð vikið að því í framansögðu. Oss er það ljóst, að þar sem nú búa 150,000 manns á íslandi, þá munu íslendingar vera orðnir um 300,000 í lok þessarar aldar með eðlilegri og sambærilegri fólks- fjölgun. Þjóðin mun tvöfaldast. Öllu þessu fólki þarf að sjá fyr- ir menntun, vinnu og heimilum. Vér þykjumst vita og kunna verkefnin framundan. Við trú- um á æskuna, sem landið á að erfa. Þess vegna látum vér bjart- sýni leika sem hressandi golu um hugi vora og vit, en ábyrgð og gjörhygli skal ráða hverju fótmáli. Oss er þó einnig ljóst, að ver- öld öll lifir nú í eilífum ótta. Óttinn við þriðju heimsstyrjöld- ina grúfir eins og mara yfir al- heimi. Þessi tilfinning er ægileg og hryllileg. En þó er það svo, að óttinn mun afstýra styrjöld. Ótti valdamanna heimsins við hefndir óvinarins mun ráða því, að enginn óbrjálaður maður mun þora að hefja styrjöld. Öll- um viti bornum mönnum er ljóst, að í nýrri styrjöld gæti enginn slgrað. Lyktirnar yrðu aðeins rústir, eyðing menningar og útrýming mikils hluta mann- kynsins. Enginn þorir að leggja slíka eymd yfir sína eigin þjóð eða aðrar. Vér trúum því að friður haldist. Líklega kaldur friður, en ekki slátrun. Að lokum aðeins þetta: I dag ómar allt af söng og ljómar af gleði heima á Islandi. Allir ungir og gamlir jafnt munu syngja: „Hver á sér fegra föðurland, með fjöll og dali og bláan sand“ svo að undir tekur í fjöllunum. Og „ísland ögrum skorið" mun hljóma langt út á haf. — Þér sem hafið fest rætur erlendis og eigið þar yðar fósturland og. framtíð, munið samgleðjast ís- lenzku þjóðinni og óska þess af hjarta, að hennar háleitu óskir megi rætast. — Vér hin, sem eigum í huga og hjarta heima á Islandi — við sem lifum í útlegð — munum einnig vera heima á Fróni í dag með lífi og sál, og hylla og dá Fjallkonuna minnug þess að: ,,Sá er beztur sálargróður, sem að vex í skauti móður, en rótarslitinn visnar vísir, þótt vökvist frjórri morgun- dögg‘. Öll óskum við hér vestanhafs, að allir fegurstu draumar ís- lenzku þjóðarinnar megi rætast á öllum ókomnum tímum. Kaupið Lögberg VIÐLESNESTA ISLENZKA BLAÐIÐ TILKYNNING Þeir lögfræðingarnir LAMONT og BURIAK, 510 Childs Building hér 1 borg, hafa ákveðið að setja á fót lögmanns- skrifstofu í Árborg, Man., snemma í júnímánuði næstk. Mr. Arthur Kristján Swainson, L.L.B., sem er meðlimur áminsts lögfræðingafélags, mun veita þessari nýju skrif- stofu forstöðu, eða ef svo ber undir, annar starfsmaður félagsins. Lögfræðinginn verður að hitta vikulega í Arborg á föstudögum og laugardögum og ef þörf gerist aðra daga vikunnar. KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. SINDRI SIGURJÓNSSON LANGHOLTSVEGI 206 — BEYKJAVIK

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.