Lögberg


Lögberg - 24.06.1954, Qupperneq 8

Lögberg - 24.06.1954, Qupperneq 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. JÚNl 1954 Tyrkland og nýi tíminn Aukinn iðnaður og úiílutningur. Miklar raforkuíramkvæmdir. Borgin Izmir, sem stofnuð var af Grikkjum þúsund árum fyrir Krists burð, er nú orðin mesta útflutnings- höfn Tyrklands, en mestur innflutningur fer fram um Istanbul. Um Izmir fer hraðvaxandi magn allskonar afurða til 60 landa heims, sem færa Tyrkjum mikinn erlendan gjaldeyri. Gera Tyrkir sér vonir um, að Litla- Asía eigi eftir að verða miðstöð Miðjarðarhafsviðskipta austan til. Út um heim er Izmir kunnust undir sínu gamla nafni, Smyrna, sem hún hét þar til tyrkneska lýðveldið var stofnað 1923. Hafnarborg þessi hefir lengi verið mikil útflutningshöfn og hefir verið fluttur út þaðan mestur hluti tóbaksframleiðslu Tyrkja, baðmullar og fíkju- framleiðslunnar, en nú er einn- ig flutt út um Izmir baðmull, króm, mangan, málmgrýti, hveiti og búfénaður. Hinn nýi tími — aukin velmegun Athafnalífið í borginni sýnir betur en flest annað að nýr tími, hefir haldið innreið sína í Tyrk- land, og að þar er vaxandi fram- leiðsla, vaxandi verzlun og vel- megun. Izmir er auk þess, sem að ofan hefir verið getið, önnur mesta verksmiðjuborg Tyrk- lands og kemur næst á eftir Istanbul. Þarna eru tvö höfuð- skilyrði fyrir hendi til mikillar framleiðslu, nægt vinnuafl og mikil hráefni. Og það má gjarn- an nefna það um leið, að lofts- lag er þarna hið heilnæmasta, svo að hvergi getur heilnæmara á jörðu, að því er Herodetes sagði forðum. Miðstöð vatnsvirkjana Izmir er einnig mikil miðstöð vatnsvirkjana og raforkukerfis. Raforkuver eru við árnar Gediz og Buyuk Menderes. Nýja fyrir- hleðslu og orkuver er verið að reisa við Demirkopru og er á- ætlaður kostnaður um 96 millj. dollara. Orkuverið á að geta framleitt 70.000 kílóvött. Einnig hafa skapast skilyrði til þess að gera stórfelldar vatnsveitur í ræktunarskyni og koma upp görðum til þess að afstýra flóða- hættu, en ræktarlönd eru mikil í Tyrklandi í grennd við Eyja- haf. Það er franskt fyrirtæki, sem tók að sér framkvæmdir við hið nýja Gediz-orkuver, og á að ljúka því á 3V2 ári. Fjögur orku- ver önnur er verið að reisa, sem framleiða yfir 140.000 kílóvött, en orkuverin við Gediz og Mendares verða í tengslum við hið mikla orkuver við Sakarya- fljót, sem stofnað var til þess að sjá iðnaðarhéruðum í Vestur- Anatoliu fyrir rafmagni. Drógu fisk fyrir 1000 krónur Báiar frá Akrenesi fóru síðasia róðurinn í gær, afli var 3—7 ionn Ágætur afli er á handfæri hjá Akranesbátum. 1 gær- morgun fóru tveir menn á báti út til veiða og öfluðu 2,5 tonn eða töluvert meira en tonn hver. Þeir voru ekki nema nokkrar klukku- stundir að veiðum, en hlutur hvors þeirra eftir róðurinn er um 1000 krónur. BLOOD toeWtP olio t ft • « t X $ i I . TM I S SPACE CONTRIBUTED B Y DREWRYS MANITOBA D I V I S I 0 N WESTERN CANADA BREWERIES LIMITIO Hanafærafiskurinn er vænn fiskur,’ en það veiðist ekki á beitu, af því hann er,. eins og kallað er, fullur af síli. Er hann einvörðungu veiddur á pilk. 18 þúsund íonn af fiski Aflinn á Akranesi eftir vertíð- ina er 18 þúsund tonn, um 10 þúsund af bátafiski og 7500 af togarafiski. Aflahæsti báturinn er Keilir, og er hann með 710 tonn af fiski, slægðum og haus- uðum, en hásetahlutur mun vera um 35 þúsund krónur. Akranes- bátar fóru síðasta róðurinn á vertíðinni í gær. Var afli þá 3—7 tonn. —Alþbl., 16. maí Úr borg og bygð Á ársfundi Manitoba Camera Club, sem haldinn var nýlega, hlaut Mrs. Kristín Johnson, Garfield Street, Taylor-silfur- bikarinn fyrir að hafa gert beztu “colored slide”, sem sýnd var á myndasamkeppni félagsins. ☆ Látinn er nýlega á Gimli Thordur ísfjord 77 ára að aldri; útför hans var gerð frá kirkju lúterska safnaðarins þar í bæn- um. Séra H. S. Sigmar jarðsöng. ☆ Nýlátinn er af völdum járn- brautarslyss Stanley Sigurðsson búsettur í Selkirk, 43 ára að aldri; hann lætur eftir sig konu sína og sjö börn og einnig aldr- aða móður. ☆ Þeir Ari Johnson og Franklin Johnson frá Geysir voru staddir í borginni síðastliðinn fimtu- dag ;í för með þeim var Davíð Einarsson frá Árborg. ☆ Þeir á meðal væntanlegra erindreka og gesta, sem ætla að sækja 70. ársþing lúterska kirkjufélagsins, og óska þess að þeim sé útvegað fæði og hús næði á meðan á þingi stendur, eru beðnir að gera undirrituðum aðvart tafarlaust: FRED BJARNASON 187 Aubrey Sí„ Winnipeg Sími 72-2364. ☆ Mr. Jón Jóhannsson frá Elfros, Sask., var staddur í borginni seinnipart viku. ☆ Mr. Ásgeir Gíslason frá Leslie, Sask., kom til borgarinnar síðast liðinn fimtudagsmorgun til að vera viðstaddur Lýðveldissam- komu deildarinnar „Frón“, sem haldin var í Sambandskirkjunni þá um kvöldið. Mr. Gíslason brá sér einnig norður til Gimli í heimsókn til samferðamanna og vina, sem nú eru þar margir bú- settir. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Ágæt grein Norsk-Ámeríkana um ísland og Loftleiðir h.f. Höfundur undrast afrek þjóðar- innar, — Loftleiðir brauiryðj- endur á fornri leið. Fyrir nokkrum dögum birt- ist í blaðinu „Nordisk Tid- ende“, sem Vestur-Norð- menn gefa út í Brooklyn í New York, fróðleg grein og vinsamleg um Island og Loftleiðir h.f. Grein þessi, sem er eftir Erik J. Friis, aðalritstjóra hins kunna tímarits „The American-Scand- inavian Review“, birtist undir fyrirsögninni „Með flugvél í slóð Leifs Eiríkssonar“, en í undir- fyrirsögninni segir, að hið ís- ar lenzka flugfélag, Loftleiðir, sé brautryðjendur í lofti á hinni gömlu norrænu leið milli Noregs og Ameríku um Reykjavík. Greinin ber það með sér, að höfundur hefir skygnzt um á ferðalagi sínu, því að hann kem- ur víða við, segir frá Reykjavík og því, sem þar sé helzt að sjá, svo sem hið nýtízkulega Þjóð- leikhús, kvikmyndahúsin, þar sem sýndar séu amerískar, ensk- ar eða þýzkar myndir, styttur Leifs og Ingólfs, hinn glæsilegi Háskóli og þar fram eftir göt- unum. Hann skoðar hitaveitu- geymana og skreppur til Þing- valla, í gróðurhús og víðar, en öll er greinin vinsamleg mjög. Segir hann, að menn hljóti að undrast, hve miklu svo fámenn þjóð hafi getað áorkað, enda sé kjörorð hennar: „framfarir og samvinna" (fremskritt og sam- arbeid). Síðan segir greinarhöfundur frá viðkynningu sinni af Loft- leiðum, rekur sögu íélagsins stuttlega, og greinir frá því, að þótt undarlegt megi virðast sé félagið rekið án ríkisstyrks. Bendir höfundur á, að á marga vegu séu Loftleiðir nýmæli í flutningum yfir Atlantshaf. Fé- lagið annist bæði fólks- og vöruflutninga, og sé það ein á- stæðan fyrir því, að fargjöld séu svo lág sem raun ber vitni. Þá getur hann þess, að náin sam- vinna sé milli Loftleiða og Braathen-félagsins norska, t. d. annist viðgerðaverkstæði Braa- thens á Sola-flugvelji viðgerðir og eftirlit flugvélanna. Þá er þess minnzt, að flugmenn Loft- leiða, siglingafræðingar og loft- skeytamenn hafi stundað nám í Bandaríkjunum við hin ströng- ustu skilyrði. Loks minnist höfundur á hin- glæsilegu skrifstofur Loft- leiða í New York, en þar vinnur fólk af ýmsu þjóðerni, Islend- ingar, Norðmenn og Bandaríkja- menn. Minnist hann á Bolla Gunnarsson, urgboðsmann Loft- leiða í New York og birtir mynd af honum, svo og mynd af „Heklu“ Idlewild-flugvelli. Klykkir höfundur út með því, J að æ fleiri Vestur-Norðmenn ferðist með Loftleiðum til „gamal landsins“. Grein Erik J. Friis er hin vinsamlegasta, eins og fyrr greinir, góð landkynning |jón Johnson fyrir Island, en jafnframt mak- legt lof um Loftleiðir, sem held- ur uppi áætlunarferðum á þess- um slóðum við vaxandi vinsæld- ir og hinn bezta orðstír. —VÍSIR, 18. maí Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Mr. Bogi Johnson frá Wyn- yard, Sask., kom til borgarinnar í ivkunni, sem leið. ☆ Mr. Ólafur Hallsson kaupmað- ur frá Eriksdale, var staddur í borginni í fyrri viku ásamt frú sinni. ☆ Mr. Grettir Eggertson rafur- magnsverkfræðingur kom úr Is- landsför sinni á fimtudaginn var; hafði dvölin, þótt stutt væri, verið um alt hin ánægju- legasta og veðurblíða á hverjum degi. / ☆ VANTAR Gjörðabók sextugasta og sjö- unda þings lúterska kirkjufé- lagsins 1951 — Proceedings of ihe Sivty-Seventh Annual Con- venlion of the Icelandic Luth- eran Synod of America 1951. — Hafi einhver þetta hefti aflögu, er hann vinsamlega beðinn að láta undirritaðri það í té. Sam- einingin fyrir sumarmánuði þess árs og Gjörðabókin er inn- bundin í eitt hefti. Mrs. F. Benson, Golumbia Press, 695 Sargent Ave., Winnipeg ☆ Mr. Árni Sigurðsson listmál- ari frá Seven Sisters Fall var meðal þeirra mörgu, er sóttu Lýðveldissamkomu Þjóðræknis- deildarinnar „Frón“ hinn 17. þessa mánaðar. ☆ Mr. B. J. Lifman frá Árborg var staddur í borginni seinni- part vikunnar, sem leið. ☆ Mr. Halldór M. Swan fyrrum verksmiðjueigandi, 912 Jessey Ave., fór á þriðjudaginn til Miniota, Man., í heimsókn til vina sinna þeirra Sveins E. Björnssonar læknis og frú Marju Björnsson og mun dvelj- ast þar um óákveðinn tíma. ☆ Þeir Gunnar Tómasson og H. Magnússon frá Hecla komu til borgarinnar fyrripart vikunnar á leið norður að Manitobavatni til að koma þar upp bryggjum vegna ferjusambandsins, sem þar er nú í aðsigi. ☆ Gifts to Belel Mr. and Mrs. G. F. Jónasson In memory of our father Guð- $100.00 Bergmál I fyrradag komu hingað til lands dr. Richard Beck prófessor við háskólann í Norður Dakota og kona hans, Berta, og eru þau öæði hinir mestu aufúsugestir. Það er í rauninni óþarfi að fara mörgum orðum um Richard Beck, því að alþjóð er kunnugt hið mikla og ágæta starf hans í þágu íslands og íslendinga. En kannske hefir ekki verið lögð á það nægileg áherzla, að auk þess sem hann hefir um langt skeið gegnt mikilli virðingar- stöðu í einni kunnustu menn- ingarstofnun Bandaríkjanna, í Grand Forks, Norður Dakota (i því fylki eru yfir 40% íbúanna af norskum ættum og þar eru íslenzkar landnemabyggðir), og staðið fremstur í fylkingu 1 þjóð- ernisbaráttu landa vorra vestra og verið forseti Þjóðræknisfé- lagsins, hefir hann alla sína tíð vestra lagt hina mestu stund á það, sem menntamaður og upp- fræðari í menntastofnun, sem ræðismaður Islands, en fyrst og fremst sem sannur og góður Is- lendingur, er vill veg lands síns sem mestan, að kynna land sitt og þjóð, bæði í Bandaríkjunum og Canada. Mikilvæg landkynning Þessi landkynning dr. Becks er svo mikil og verið stunduð af svo mikilli hógværð, prúð- mennsku og þekkingu, að hún verður seint eða aldrei metin sem vert er. Þjóðin á honum því miklar þakkir að gjalda sem sín- um mesta landkynni nú á tím- um, og sannast að segja held ég að það sé vafasamt, að nokkur maður hafi í landkynningar- starfi náð til fleiri manna vestra en dr. Richard Beck. í íslandsferðum sínum, en Beck mætti vissu- lega koma oftar, hefir hann lagt mikla stund á að kynna íslenzku þjóðinni sögu, baráttu og starf landa vorra vestra, og fyrir það á hann einnig þakkir skildar, bæði okkar og þeirra. Við gæt- um áreiðanlega haft gagn af að fylgjast með öllu, sem varðar landa okkar vestra, og nánara samstarf við þá er æskilegt. — Þegar Beck kemur nú heim, til þess m. a. að vera fulltrúi Vest- ur-íslendinga á 10 ára lýðveldis- hátíðinni, þar sem halnn einnig kemur fram sem fulltrúi ríkis- stjórans í Norður Dakota, hefir hann með sér hinn ágætasta fulltrúa þeirra vestan hafs, sem eru af íslenzku bergi brotnir. Sá fulltrúi er kona hans, Berta, sem hefir verið hans stoð og stytta í miklu starfi. Frú Berta er ættuð úr Rangárvallasýslu, en fædd vestra, í landnema- byggð í Dakota, þar sem íslenzk- ur hugsunarháttur ríkti og ís- lenzk tunga var töluð á hverju heimili á upþvaxtarárum henn- ar. Frú Berta er vel menntuð kona, ættfróð og lesin og áhuga- söm um þau mál. Aufúsugeslir Nú fær hún í fyrsta skipti tækifæri til þess að ferðast um sveitirnar, þar sem foreldrar hennar áttu heima, áður en þau fluttust vestur, og víðar um land. Eru þau hjón bæði þjóð- inni aufúsugestir. Býður Vísir þau velkomin heim og óskar þess að all-löng sumardvöl megi verða þeim til sem mestrar ánægju. —VISIR, 4. júní Hljómplötur frá íslandi Mikið úrval af íslenzkum hljómplötum hefir G. F. Jónas- son forstjóri Keystone Fisheries Limited nýlega fengið, og eru þær nú þegar fáanlegar til kaups; einsöngvarar og kórar, er sungið hafa inn á þessar plötur, eru sem hér segir: María Markan Östlund, Stefán Islandi, Elsa Sigfúss, Gunnar óskarsson, 12 ára drengur, Einar Kristjáns- son, Þuríður Pálsdóttir, Sigurð- ur Skagfield, Þorsteinn Hannes- son, Guðrún Á. Símonar, Tón- listarfélagskórinn, Karlakór Reykjavíkur, Dómkirkjukórinn og blandaður kór K. F. U. M. Ennfremur Karlakórinn Geysir á Akureyri. Verð frá $2.50 til $3.50. Pantanir ásamt andvirði send- ist Keystone Fisheries Limited, 60 Louise Street, Winnipeg, sími 92-5227, eða til Columbia Press Ltd, 695 Sargent Avenue. Lesið Lögberg "A Realislic Approach to the Hereafter" by Winnipeg author Edith Hansson Bjornsson's Book Siore 702 Sargent Ave. Winnipeg Bíllinn nam staðar við landa- mærin og tollþjónninn hóf rann- sókn sína. — Það lítur út fyrir, sagði hann að lokum, að allir pappírar yðar séu í góðu lagi; — en hvernig getið þér sannað fyrir mér, að þessi kona, sem situr við hliðina á yður, sé konan yðar? — Ég skal láta yður fá 500 dollara, ef þér getið sannað fyrir mér, að hún sé það ekkij Víðir Ladies Aid, Víðir, Man............... 25.00 Mr. and Mrs. Halldór Austman, Víðir Man., In loving Memory of our brother Jacob Sigvaldason 8.00 Mrs. S. Thorlakson, Árnes, 3 gallons skyr and W2 gallons cream. Pálmi Lárusson, Pipes and tobacco. Mr. J. Clubb, Muirs Drug Store, Winnipeg, 25 lbs. tea cubes. Mr. and Mrs. G. F. Jónasson, 3 Gramophone records as a gift to Matron and staff. S. M. Bachman, Treasurer, Ste. 40, 380 Assiniboine Ave. Winnipeg, Man. THE SEVENTIETH ANNUAL CONVENTION of the Icelandic Evangelical Lutheran Synod WINNIPEG, MANITOBA June 27-30, 1954 Sunday Evening, June 27th, 7 p.m. Icelandic Services with Rev. Bragi Fridriksson. Liturgist—Rev. E. S. Brynjolfsson preaching the sermon Special Music by the Choir—Report of the President of Synod—Appointment of Committees. Monday Morning, June 28th, 9 a.m. Opening Devotion—Rev. S. Olafsson. Reports of Committees. Reports of the Officers of Synod. Monday Afternoon, 2 p.m. Opening Devotion—Rev. Virgil Anderson. Addresses by: Rev. G. Jacobi, Representative United Lutheran Church in America. Part I. Rev. Clifford Monk, on: Lutheran World Action. Monday Evening, 7.30 p.m. Special music. Addresses by: Rev. H. S. Sigmar. Thorir Kr. Thordarson. Rev. A. G. Jacobi, Part II. ULCA Representation. Tuesday Morning, June 29th: 9 a.m. Opening Devotion, Rev. Robert Jack. Sessions. 2 p.m. Opening Devotion, Dr. R. Marteinsson. Sessions. Closing Devotion, Rev. S. S. Christopherson. Tuesday Evening, 7.30 p.m. Opening Devotion, Rev. S. T. Guttormsson. Speakers: Rev. B. Theodor Sigurdsson, Rev. S. O. Thorlaksson. Special Music by the Choirs. Wednesday Morning. June 30íh Opening Devotion, Rev. Johann Fridriksson. Sessions. Wednesday, Close of Afternoon 2 p.m. Opening Devotion, Rev. G. Guttormsson. Sessions. Closing of Synod.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.