Lögberg - 12.08.1954, Blaðsíða 3

Lögberg - 12.08.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 12. ÁGÚST, 1954 3 Fréttir fré ríkisútvarpi íslands 25. JÚLÍ í byrjun síðustu viku var íiustanátt um allt land, en á þriðjudag gerði norðanátt um allt land og á fimmtudag brá aft- ur til austanáttar, en í gær var bjart veður og hægviðri af norð- austan og norðan. Sunnanlands hafa verið þurrkar mestan hluta vikunnar, en votviðrasamt og þokur norðanlands, þó ekki hafi verið neinar stórrigningar þar. ☆ Dr. D. U. Stikkef, hinn nýi sendiherra Hollands á íslandi, af- henti forseta Islands trúnaðar- bréf sitt síðastliðinn miðvikudag við hátíðlega athöfn á Bessa- stöðum. — Chester A. Rönning, sendiherra Canada á íslandi, af- henti forseta íslands trúnaðar- hréf sitt síðastliðinn fimmtudag við hátíðlega athöfn á Bessa- stöðum. Síldveiði hefir verlð dágóð á köflum undanfarna viku og fengu allmörg skip sæmilegan afla, en á nokkrum hluta veiði- svæðisins hefir síldin, sem veiðzt hefir, reynzt mjög misjöfn að gæðum og horuð. ☆ Vöruskiptajöfnuðurinn í júní- mánuði varð óhagstæður um 55,8 milljónir króna. Inn voru fluttar vörur fyrir 117,9 milljónir króna og út fyrir 62,1 milljón. Fyrra helming þessa árs hefir vöruskiptajöfnuðurinn í heild orðið óhagstæður um 119 mill- jónir króna. Nam verðmæti inn- fluttrar vöru 516 milljónum króna, en út voru fluttar vörur fyrir 397 mjlljónir. Fyrra helm- ing ársins 1953 varð vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um svipaða upphæð og nú, eða um 201 milljón króna. ☆ Utanríkisráðuneytið hefir til- kynnt, að samkvæmt varnar- samningnum hafi varnarliðinu nú verið afhent landssvæði í landi Voga á Reykjanesi til skot- æfinga. Hefjast æfingarnar þessa dagana og standa í sex vikur. ☆ Um hádegi á þriðjudag varð það slys, að brezkur togari sigldi á trillubát frá Norðfirði með þeim afleiðingum, að Hörður Kristinsson, tvítugur maður frá Norðfirði, fórst með bátnum. — Slysið varð norður af Norðfjarð- arhorni, en þar voru Hörður og faðir hans, Kristinn Ivarsson, að handfæraveiðum. ☆ íbúðarhús Páls Jónssonar að Skeggjastöðum í Fellum á Fljóts dalshéraði brann um hádegi á mánudag. — Mestöllum innan- stokksmunum varð bjargað. ☆ Skeiðarárhlaupið náði há- marki á mánudag og lagði þá megna brennisteinsfýlu yfir Suðurland. Dr. Sigurður Þórar- insson flaug yfir Grímsvatna- svæðið s.l. miðvikudag og skýrði hann svo frá, að mikið rask hefði orðið þar. Ekki sáust þó nein merki eldsumbrota. ☆ Sl. sunnudag var hleypt af stokkunum nýjum vélbáti í skipa smíðastöðinni Dröfn í Hafnar- firði. Heitir báturinn Víðir II. Hann er 53 lestir að stærð og búinn 180 hestafla Lister-diesel- vél. Ganghraði hans er 9 sjó- mílur. ☆ Níu blaðamenn frá átta ríkj- um innan Atlantshafsbandalags- ins komu til Reykjavíkur frá París s.l. þriðjudag. Er tilgang- urinn með förinni að auka kynni á Islandi og Islendingum meðal Atlantshafsríkjanna. ☆ 1 fyrradag var settur í Reykja- vík fundur stjórnar norræna byggingamálasambandsins og er það í fyrsta skipti, sem hann er haldinn hér á landi. ☆ Á þriðjudag verður opnuð í Reykjavík fyrsta bílasýningin, sem haldin er hér á landi. Eru það þýzku bílaverksmiðjurnar Daimler-Benz í Stuttgart, sem sýna bifreiðar sínar, en umboðs- menn verksmiðjanna hér á landi er Ræsir h.f. ' ☆ Tvö prestaköll hafa verið aug- lýst laus til umsóknar. Þau eru Staður í Gunnarsvík og Ögur- þing. Er umsóknarfrestur til 15. ágúst. ☆ Drengjakór KFUM í K^up- mannahöfn hefir dvalist hér- lendis undanfarna viku og sung- ið nokkrum sinnum opinberlega á ýmsum stöðum. Hefir kórnum hvarvetna verið tekið ágætlega og hlotið mikið lof fyrir söng sinn. Kórdrengirnir fóru heim- leiðis með Gullfossi í gær. ☆ Danska knattspyrnuliðið B- 1903, sem keppti hér í fyrra, hefir nú boðið meistaraflokki Knattspyrnufélagsins Víkings til Danmerkur og keppir Víkingur fimm sinnum þar, tvisvar í Kaup mannahöfn og er fyrri leikurinn í dag. ☆ Landsmóti í golfi lýkur í dag, en það hefir staðið síðan í fyrradag. Golfþing íslands var haldið í fyrradag og sóttu þingið átta fulltrúar. Forseti Golfsam- bands Islands var kjörinn Þor- valdur Ásgeirsson. ☆ Samnorræna sundkeppnin hef- ir nú staðið í níu vikur og lætur nærri, að nú hafi synt 60% af þeim fjölda, sem tók þátt í keppninni 1951. Margir bæir og hreppar hafa efnt til sérstakrar keppni sín á milli um þátttöku í sundkeppninni og hafa ýmsir gefið verðlaunagripi. Business and Professional Cards Phone 74-7855 ESTIMATES FREIT Dr. P. H. T. Thorlakson J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles WINNIPEG CUNIC Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation St. Mary’s and Vaughan, Wínnipeg PHONE 92-6441 532 Simcoe St. Winnipeg, Man. Flugfreyjurnar fimm Flugfreyjurnar eru sómi ís- lenzka loftflotans og njóta almennra vinsælda erlendra og íslenzkra farþega, sem ferðast með flugvélum okk- ar. Grein þessi, sem birtist í síðasta tölublaði FLUGS, er samtal er Sigurður Magnús- son átti við Hólmfríði Mekk- inósdóttur yfirflugfreyju hjá Loftleiðum. Greinin lýsir á skemmtilegan hátt störfum og viðhorfum íslenzku flug- freyjanna. TLUGFREYJUSTÖRF munu freista mjög margra ungra stúlkna, svo sem eðlilegt er, og liggja til þess augljós rök, en ýmsum mun oft gleymast, að þau eru önnur og meiri en að brosa við farþegum, þar sem þeir ganga inn í flugvél, og kveðja svo í flugstöð, þar sem þakkað er fyrir góða samfylgd. Það er að vísu ákaflega mikils vert að geta brosað unaðslega, en það eitt er alls ekki nóg. Það er einn- ig ágætt að geta bjargað sér í nokkrum erlendum tungumál- um, en mikil málakunnátta ein er engin örugg leiðbeining um, hvort ung stúlka muni vandan- um vaxin. Hún verður að vera búin ótal öðrum kostum til þess að ná þeim vinsældum, sem nauðsynlegar eru. Góð flugfreyja er sú ein, sem er dugleg, stjórnsöm, kjarkmikil og örugg í framgöngu, en á þó til ljúfleik og hjartahlýju þess, sem allir áræða að tjá vandræði sín, lítið barn, gömul kona — einhver, sem þarf hjálpar eða hughreystingar við. Vinsæl flugfreyja verður sú ein, sem er góð og mikilhæf kona. Hólmfríður, yfirflugfreyja Loftleiða, er dóttir þeirra Mekk- inós Björnssonar, kaupmanns í Reykjavík, og konu hans, Dag- mar Þorláksdóttur. Að loknu gagnfræðaprófi í Reykjavík fór Hólmfríður vest- ur til Bandaríkjanna og var þar tvö ár við nám í skóla, sem Centenary Junior College heitir. Nokkru síðar, eða 3. maí 1948, réðst hún til starfa hjá Loft- leiðum. — Vér hittum Hólmfríði að máli og spyrjum hana, hverjar verið hafi fyrstu flugfreyjur Loftleiða. — Fríða Blöndal og Elínborg Ólafsdóttir. Þær unnu við mjög erfið skilyrði. Ekkert eldhús var þá í flugvélinni og má nærri geta, hve óþægilegt það hefir verið. — Hverjar eru nú starfandi í þessari grein hjá félaginu? — Sigríður Gestsdóttir, Guð- rún Steingrímsdótir, Erna Hjalta lín og Andrea Þorleifsdóttir, auk mín. Sigríður er í rauninni elzt okkar í þessu starfi, en hún hætti um tíma, en er nú aftur farin að fljúga. Ákveðið hefir nú verið að ráða nokkrar nýjar stúlkur, og munu þær hefja störf með vorinu. Ýmsar stúlkur hafa verið hjá okkur á undanförnum árum, og er t. d. rétt að minna á það, að Margrét Guðmundsdóttir, sem fékk nafnbótina „Bezta flug- freyja ársins 1950“ í London var þá hjá Loftleiðum. Sá sigur var mjög skemmtilegur og ómetan- leg auglýsing fyrir félagið. — Þér hafið farið allvíða, eða er ekki svo? — Nokkuð. Ég hef komizt lengst austur á bóginn til Karachi í Pakistan og syðst til Caracas í Venezuela. — Hvar kunnið þér bezt við yður? — Heima. — Hvers vegna leggið þér þessi störf þá fyrir yður? — Því veldur tilbreytingin, sem fylgir þeim. Það er gaman að skreppa út „í heiminn, en bezt er þó alltaf að koma aftur heim“. — Hvaða skilyrðum þurfa þær að fullnægja sem vilja verða flugfreyjur? . — Þær þurfa, að geta bjargað sér í nokkrum erlendum málum. Ég tel, að þær megi helzt ekki vera yngri en 25 ára. — Hvers vegna ekki yngri en 25 ára? — Það er vitanlega örðugt að draga einhverja ákveðna marka- línu, þar sem miðað er við eitt ■ar fremur en annað, en ég held, að farþegar eigi erfitt með að treysta stúlkum, sem eru korn- ungar, — einkum ef þeir eru hræddir. — Hafið þér verið í mörgum ferðum, þar sem hræðslu hefir sett að farþegunum, svo að eftir- minnilegt sé? — Ég man eftir einni slíkri ferð. Við vorum þá á leiðinni til Suður-Ameríku og lentum í vitlausu veðri. Þá var grátur og gnístran tanna og talnabönd á fleygiferð. — En þér? — Ég hafði engan tíma til að vera hrædd. — Annars eru ferð- irnar oftast mjög þægilegar, far- þegar vingjarnlegir og þakklátir að leiðarlokttm. — Vinnuskilyrði? — Eldhúsið okkar er þröngt, en þó er öll aðbúð okkar langt um betri nú en hún var fyrst. Við höfum mikið að gera, meðan á ferðunum stendur, en svo hvíl- um við okkpr líka vel á milli. — Hvað viljið þér segja vegna afmælis félagsins? — Ég vil biðja yður að skilja þakklæti frá okkur flugfreyjun- unum til allra þeirra, sem hafa orðið okkur samferða á undan- förnum árum, og vitanlega með óskum um, að sem allra flestir vilji eiga samleið með okkur á ókomnum árum. — Samstarfs- mönnum mínum hjá félaginu þakka ég liðnu árin, og Loftleið- um óska ég allra heilla. ----0---- Það verður eflaust ekki erfitt að finna nógu margar ungar stúlkur, sem fúsar eru nú til að bætast í hóp flugfreyjanna hjá Loftleiðum. Hitt verður áreiðan- lega örðugra að velja strax svo vel, að allar flugfreyjurnar verði jafndugandi og sú, sem nú er ryrirliðinn. —Alþýðublaðið WEDDING INVITATIONS, ANNOUNCEMENTS, etc., GREETING CARDS * FOR ALL OCCASIONS PERSONALIZED XMAS CARDS Subscriptions taken for all occasions Courteous and Prompt Service. Call in — Telephone, or write: Subscription Centre 204 Affleck Building 317 Portage Ave. Phone 93-2830 - Winnipeg 2, Man. SEWING^MACHINES Darn socks in a jiffy. Mend, weave in holes and sew beautifully. 474 Portage Ave. Winnipeg, Man. 74-3570 Dr. ROBERT BLACK SérfræBlngur í augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusímt 92-3851 Heimaslmi 40-3794 Dunwoody Saul Smith & Company Charlered Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN HofiS Höfn í huga Heimili sólaetursbarnanna. Icelandic Old Folks’ Home Soc , 3498 Osler St., Vancouver, B.C. ARLINGTON PHARMACY Prescription Specialist Cor. Arlinglon and Sargent Phone 3-55S0 Films, Picnic Suppiies and Beach Novelties. We collect light, water and phone bills. Post Office Muir's Drug Slore Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS Phone 74-4422 Ellice St Home Minnist BETEL í erfðaskrám yðar. J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ct- vega peningal&n og eldsá.byrg6, bifreiðaábyrgB o. s. frv. Phone 92-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For yuick, Reliable Service DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.0i p.m. Thorvaldson, Eggertson, Bastin & Stringer Barristers and. Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE. Managing Dlrector Wbolesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: 74-7451 Res.: 72-3917 Offlce Phone Res. Phone 92-4762 v72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur ltkkistur og annast um út- farlr. Allur fltbúnaCur sá bezti. StofnaB 1894 SÍMI 74-7474 Phone 74-5257 7M Notre Dame Ave. Opposite Matemity Pavilion General Hospital Nell's Flower Shop Weddlng Bouquets, Cut Flowers, Funeral Deslgns, Corsages, Beddlng Plants NeU Johnson Res. Phone 74-8753 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smlth St. Winnipeg PHONE 92-4824 Gilbari Funeral Home Selklrk, Manltoba. J. Roy Gilbart Licensed Embalmer Phone 3271 Selkirk SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Httaeiningar- rör, ný uppfyndlng. Sparar eldi- vi(5, heldur hita frá aB rjúka öt meB reyknum.—SkrifiB, símlB til KF.LLY SVEINSSON 825 WaU St. Wtnnlpeg Just North of Portage Ave. Slmar 3-3744 — 3-4431 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance ln all tts branches Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 48-3480 LET US SERVE YOU

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.