Lögberg - 16.09.1954, Qupperneq 1
ANYTIME
ANYTIME
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
S1LVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 16. SEPTEMBER 1954
NÚMER 37
Dr. Richard og Bertha Beck komin heim
úr íslands- og Norðurlandaför
Kveðjur fró North Dakota
Dr. Richad, Beck og forsœtisráðherra, Noregs Oscar Torp
Svo sem vitað er, heimsótti Dr. Richard Beck ásamt frú sinni
Noreg að áliðnu sumri og varð heimsóknin þeim hjónum með öllu
ógleymanleg. Á myndinni sézt Dr. Beck á skrifstofu norska
forsætisráðherrans, Oscars Torp, þar sem hann flytur honum og
norsku þjóðinni kveðjur frá North Dakotaríkinu, en þar er
búsettur fjöldi fólks af norskum stofni; forsætisráðherra þakkar
kveðjurnar.
Varnarbandalagi komið á fót
vegna Suðaustur-Asíu
Dr. Richard og Bertha Beck
komu heim til Grand Forks úr
íslands- og Norðurlandaferð
sinni síðastliðinn fimmtudag
eftir rúmra þriggja mánaða
ferðalag. Höfðu þau alls staðar
aft frábærum viðtökum að
fegna, og ferðin um allt verið
hin ágætasta, eins og þegar er
að nokkru kunnugt af blaða-
íréttum.
Þau dvöldu seinni part sum-
arsins á Norðurlöndum, lengst
af í Noregi, og mun síðar sagt
nanar frá dvöl þeirra á þeim
slóðum. En seinustu viku ferða-
^gsins dvöldu þau heima á ís-
Hylf- af heilli þjóð
Sá sögufrægi atburður gerðist
a fimtudaginn var, að 16 ára
stúlka, Miss Marilyn Bell, synti
yfir Ontariovatnið milli New
Yorkríkis og Torontoborgar án
Þess að henni yrði meint af og
Var þó ærið kalt í vatninu; hún
Var á sundi í 20 klukkustundir
°g 56 mínútur, en vegalengdin
Var 45 mílur.
Svo sem vænta mátti hefir
canadiska þjóðin hylt þessa
ttnklu sundhetju sína, en gjafir
Þ^er, sem henni þegar hafa bor-
lst, eru metnar á sextíu þúsundir
dollara.
Maetir í Washington
fyrir hönd
Manifobabænda
Mr. J. T. Monkhouse
Hinn 7. þ. m., hófst í Washing-
f°n, D.C., fundur með það
^harkmið fyrir augum, að reyna
a® komast að niðurstöðum um
hverni ghelzt mætti selja
þ^r ofbirgðir mjólkurafurða,
Sena safnast hefðu fyrir vítt um
heim. Fyrir hönd samtaka þeirra,
Sem ganga undir nafninu Mani-
t°ba Federation of Agricultur
and Co-operation, sótti fundinn
^r- J. T. Monkhouse, sem í á-
^instum efnum er viðurkendur
Serfræðingur og rak fyrir eigin
reikning stórbú í grend við Elie
1 Manitoba fram til síðasta árs;
1 nýlegu viðtali komst Mr.
f°nkhouse meðal annars þannig
að orði:
»Áminstur fundur var mikils-
Verð tilraun til þess af hálfu
s^ipulagðra búnaðarsamtaka að
raða fram úr þeim vandkvæð-
Um> sem af ofbirgðum landbún-
aðarframleiðslu stafa, einkum þó
míólkurafurða“.
,^r- Monkhouse var hlyntur
ð^ðurgreiðslu smjörverðs, þar
®ern lágmarksverð yrði trygt
rainleiðendum, en hámarksverð
neytendum.
landi, og var þar aftur, sem fyrri
í sumar, afburða vel tekið og
margvíslegur sómi sýndur af
hálfu ættingja og vina og opin-
berra aðila, áður en þau lögðu
af stað heimleiðis með Loftleið-
um mánudagskvöldið þann 6.
september.
1 boði borgarstjóra Reykja-
víkur, herra Gunnars Thorodd-
sen, skoðuðu þau hitaveitu
borgarinnar og Sogsvirkjunina,
og fannst mikið til um þau
mannvirki.
Síðasta föstudagskvöldið, sem
þau hjón dvöldu í Reykjavík,
hélt dr. Kristinn Guðmundsson
utanríkisráðherra þeim veglega
kveðjuveizlu, og þakkaði þeim, í
nafni ríkisstjórnarinnar, kom-
una, og dr. Beck margþætt
kynningar- og fræðslustörf hans,
en fyrr á sumrinu höfðu þau,
ásamt fleiri Vestur-lslendingum,
setið boð forseta íslands, herra
Ásgeirs Ásgeirssonar, og frúar
hans að Bessastöðum, og einnig
boð forsætisráðherra íslands,
Ólafs Thors, og frúar hans að
heimili þeirra. í boði biskups
íslands, dr. Ásmundar Guð-
mundssonar, fóru þau einnig
fyrr á sumrinu til Gullfoss,
Geysis og Þingvalla, en á vegum
Eysteins Jónssonar ráðherra
fóru þau síðasta sunnudag sinn
á íslandi í ferðalag til Strandar-
kirkju, Keflavíkur og Hafnar-
fjarðar.
Laugardaginn áður en þau
hjónin hurfu heimleiðis, héldu
íslenzkir Goodtemplarar þeim
virðulegt« kveðjusamsæti og
leystu þau út með stórgjöfum;
var dr. Beck við það tækifæri
afhent skrautritað ávarp þess
efnis, að hann hefði verið kjör-
inn heiðursfélagi í stúkunni
„Framtíðinni“ í Reykjavík í
viðurkenningarskyni fyrir störf
hans í þágu bindindis- og menn-
ingarmála.
Síðasta laugardagskvöld sitt á
íslandi kvöddu þau hjónin land
og þjóð í ríkisútvarpinu og þökk-
uðu hinar framúrskarandi ástúð-
legu viðtökur, sem þau höfðu
hlotið. Öll dagblöðin í Reykja-
vík birtu einnig viðtöl við þau
hjónin. Fórust „Tímanum“
meðal annars þannig orð í viðtali
sínu:
„Hingað voru þau hjónin mikl-
ir aufúsugestir, ekki aðeins vin-
um og ættingjum, heldur og
þjóðinni allri. Islendingar þakka
þeim fyrir komuna og óska þeim
fararheilla. Þau munu ætíð
verða velkomnir gestir til ís-
lands á ný.“
Annars staðar hér í blaðinu er
birt viðtal við þau hjónin, er
kom í „Morgunblaðinu“, en í
hinum blaðaviðtölunum var
mjög slegið á sömu strengi.
Átta þjóðir úr austri og vestri,
áttu nýlega fund með sér í borg-
inni Manila á Filippseyjum og
hrundu af stokkum varnar-
bandalagi til öryggis þeim þjóð-
um, er Suðaustur-Asíu byggja;
fundurinn stóð aðeins yfir í þrjá
daga og hafði þá náðst fult sam-
komulag um öll grundvallar-
atriði; að sáttmála þessum eða
bandalagi standa, Bandaríkin,
Frakkland, Bretland, Ástralía,
New Zealand, Thailand, Pakistan
og Filippseyjar.
Að fyrirmælum sáttmálans
geta fleiri þjóðir orðið öryggis
hans aðnjótandi fullnægi þær
settum grundvallarskilyrðum og
telji sig þurfa á utanaðkomandi
aðstoð að halda; sáttmálinn
bindur sig að engu við varnir
Formosa.
Aminstur varnarsáttmáli er í
sex meginliðum:
1. Hernaðarlegt bandalag til
að verjast sameiginlegri
hættu á þeim svæðum, sem
sáttmálinn nær yfir.
2. Samstarf hlutaðeigándi
þjóða varðandi efnahags-
mál og stjórnarfarslega
samvinnu.
3. Stofun ráðs, er kvatt geti
með skömmum fyrirvara
til funda ef þörf krefst og
vanda ber að höndum.
4. Ákveðnar merkjalínur
verndarsvæðisins.
5. Að vaka jafnan á verði
yfir sameiginlegum vel-
ferðarmálum og hnekkja
^ illkvitnislegum áróðri utan-
aðkomandi skaðsemdarafla.
6. Órofatrúnaður við sáttmála
sameinuðu þjóðanna.
Brezk stjórnarvöld hafa þegar
lokið miklu lofsorði á þenna
nýja varnarsáttmála. Suður-
Kórea leggur lítið upp úr hon-
um, en Rússar og Kínverjar telja
hann móðgun við Asíuþjóðir.
Hörmungar þjaka
kosfi Algeríubúa
Hinn 9. þ. m., varð lands-
skjálftakippur, er aðeins stóð
yfir í nokkrar sekúndur, ellefu
hundruðum manna að bana í
Norður-Algeríu, auk þess sem
þúsundir standa uppi án skýlis
yfir höfuð sín. Algería lýtur yfir-
ráðum Frakka og hafa frönsk
stjórnarvöld þegar leitað ásjár
Bandaríkjanna varðandi líknar-
ráðstafanir og hafa amerísk
stjórnarvöld sent til slysastöðv-
anna fatnað, meðöl og sjúkra-
umbúðir; telja má víst, að fleiri
þjóðir bregðist vel við um stuðn-
ing við hinn þjakaða lýð.
Borgin Orleansville, er taldi
um þrjátíu og tvær þúsundir
íbúa varð einna harðast úti og
er í rauninni öll flakandi í sár-
um. Veðurstofan í Strasbourg
telur landsskjálftakipp þenna
hinn skæðasta, er Norður-
Algería hafi upplifað á síðast-
liðnum fjörutíu árum.
Eignatjón varð svo gífurlegt,
að ókleift hefir fram að þessu
reynst að meta það með nokkurri
nákvæmni.
Andrew Daníelsson
Merkur maður
lútinn
Nýlátinn er í Blaine, Wash.,
Mr. Andrew Daníelsson, fyrrum
ríkisþingmaður, atorkumaður
mikill og höfðingi heim að
sækja; hann lætur eftir sig konu
sína, sem er móðursystir Páls
Kolka læknis á Blönduósi.
Vafalaust verður þessa merka
manns frekar minst við fyrstu
hentugleika.
Fyrrum húskóla-
rektor lótinn
Dr. A. H. S. Gillson
Síðastliðinn föstudagsmorgun
lézt að heimili sínu í Fort Garry
fyrrum rektor Manitobaháskól-
ans, Dr. A. H. S. Gillson,
eftir langvarandi vanheilsu,
mikilhæfur menningarfrömuður,
fæddur 4. desember 1889. Útför
hans var gerð á mánudaginn. Sjá
minningargrein á bls. 4 eftir
Finnboga prófessor Guðmunds-
son.
Vill rýmka um
alþjóðaviðskipti
Eisenhower forseti, sem und-
anfarið hefir dvalið sér til hvíld-
ar og hressingar í grend við
borgina Denver í Coloradorík-
inu, hefir átt þar svo annríkt,
að um li'tla eða jafnvel enga
hvíld hefir verið að ræða; á
sunnudaginn boðaði forseti á
fund sinn utanríkisráðherrann,
Mr. Dulles, er þá var svo að
segja nýkominn af Manilaráð-
stefnunni, auk þess sem hann í
sömu ferðinni heimsótti Tokyo
og Formosa; einnig kom þá um
daginn til fundar við forseta
öryggisráð hinnar amerísku
þjóðar vegna þess breytta við-
horfs, er skapast hafði í tilefni af
árás kínverskra kommúnista á
eyjar, er liggja skamt undan
ströndum Kína, en eru í höndum
Nationalistanna á Formosa.
Þessu jafnframt tók forseti til
alvarlegrar íhugunar við gesti
sína aðstæðurnar til aukinna við-
skipta þjóða á milli með það
fyrir augum að útrýma tollmúr-
um hvar helzt, sem slíku yrði
viðkomið.
Heimboði hafnað
Verkalýðssamtök Rússa, sem
ráða sér ekki nema þó að nafn-
inu til, fóru þess nýlega á leit
við verkamannaflokkinn brezka,
að hann sendi erindreka á þing
áminstra verkalýðssamtaka á
Rússlandi nú í haust; samtök
brezkra verkamanna héldu fjöl-
mennan fund og höfnuðu heim-
boðinu með geisilegu atkvæða-
magni og létu þannig ummælt,
að verkalýðssamtök Rússa væru
eins og viljalaust verkfæri í
höndum rússneskra valda-
manna.
íslcnzkukennsla
við hóskólann
Islenzkukennsla hefst við há-
skólann 20. september að lokinni
innritun dagana 15.—18. septem-
ber. Nemendur þeir, er hyggja á
íslenzkunám í vetur, eru beðnir
að koma til viðtals, áður en þeir
láta innrita sig. Mun ég verða í
skrifstofu minni innritunardag-
ana, herbergi nr. 207 í Arts-
byggingunni.
Finnbogi Guömundsson
Þögnin fær seinasta sönginn
Ég kveð úti á mínum kvisti
og kæri mig lítt um það
ef drottinn hlýðir á hljóminn.
þó hlust leggi fálr að.
Sem þrösturinn glaði ég þreyti
við þögnina mína raust,
og þögnin fær seinasta sönginn,
því senn er nú komið haust.
Ef mey hefur reikað um rjóður
og rödd minni hlýtt um stund
og gengið síðkveldis sælli
á svefnsins og draumanna fund.
Ég hóf ei til'einskis úti
í eyðiskóginum raust,
því geng ég, er gránar vangur,
glaður á fund við þig haust.
Páll Guðmundsson
Ferjan yfir Mjósundin senn iekin í noikun
Nú er svo komið, að innan skamms tíma verði hin mikla
ferja yfir Mjósundin (The Narrows) á Manitobavatni
tekin til reglubundinna afnota,, en slíka samgöngubót
hafa íbúarnir norður þar lengi þráð; frá dagsetningu, er
ferjan tekur til starfa, hefir enn eigi verið skýrt. Myndina
hér að ofan, sem The Interlake Weekly Observer góð-
fúslega lánaði Lögbergi til birtingar, tók Mrs. Stína
Goodman á Lundar, og sézt ferjan ásamt umhverfi að
Steep Rock.
Þingmaður St. George kjördæmisins í fylkisþinginu, Mr.
Chris. Halldórsson, barðist djarflega fyrir framgangi þessa
máls og þarf eigi að efa að árvekni hans í þessu efni verði
að makleikum metin.