Lögberg - 16.09.1954, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. SEPTEMBER 1954
3
til sumardvala og ársvista, fyrir
rnilljónir og aftur milljónir
króna. Og er þar þó aðeins talað
um stofnkostnað slíkra heimila.
Margir þekkja svo, hvernig
Stundum gengur eða tekst til
•neð rekstur sumra opinberra
stofnana.
Mál það, er hér um ræðir, er
nhklu alvarlegra en svo, að sið-
menntuðum mönnum og ábyrg-
um sæmi um að sakast eða öðr-
um ófarir að kenna. Ef horfzt er
í augu við vandann með bróður-
legum skilningi og löngun til að
firra meinin, þá hlýtur að vera
hægt að hjálpa. Góður vilji, á-
samt heilbrigðri skynsemi og
kristilegu siðgæðisþreki, finnur
®tíð færar leiðir. Og ég tel það
hjálp meiri, sem fyrirbyggir slys,
en hirðir hinn slasaða, enda þótt
þess þurfi líka með.
Það eru lög og reglur og fjöl-
niennt lögreglulið kostað til að
sjá um, að sett boð séu haldin,
°g fangelsi eru byggð og betr-
unarhús. En ekkert af þessu er
einhlýtt. Siðferðis- og menning-
urslysunum fer æ fjölgandi, eftir
því sem mennirnir búa fleiri
saman. Hvað er hægt að gera til
varnar því, og síðan til sóknar í
siðgæðis og þroskaátt?
VII.
Ég þykist sjá eina leið og að-
eins eina leið til lausnar í því
vandamáli: Aukin siðgœðis- og
ti"úaráhrif á hverju einasta heim-
*li í bœ og sveit á landinu. Ég
finn ekki, að ég mæli þetta af
tilhneiging til stéttaráróðurs,
heldur af langri og rólegri íhug-
Un og athugun lífsins sjálfs og
sögunnar. Umbúðalaus og ein-
iæg Kriststrú og óttalaus Guðs-
frú, eins og hún birtist t. d. í
dæmisögum Jesú, er öllu öðru,
sem ég þekki, meiri öryggis-
gjafi og hamingjutrygging —
hverjum unglingi og fullorðnum
uaanni. Vakandi tilfinning fyrir
raunveruleik andlegrar tilveru
°g návistar Jesú og áframhald-
andi vitundar og lífs sjálfra vor
að jarðlífinu loknu er í raun og
veru hið eina, sem skapar á-
hyrga og siðferðilega breytni og
gefur lífinu innihald og tilgang.
Og hvar er svo hægt að móta
^eskuna, og heimilin yfirleitt,
uhrifum Krists, anda Krists, trú
Krists og trú á Krist? Er það
ekki við hjarta íslenzkrar nátt-
uru og tign og alvöru hins kyrr-
Mta sveitalífs? Hvort sem það er
hirkjunnar vígði þjónn eða ung
móðir eða lífsreynd amma, eða
hver annar sem vera skal, er
leiðir unga sál að lindum helgra
fræða, — leiðir hana til Krists,
Sa hinn sami vinnur betra verk
°g þjóðhollara en fjölmennt lög-
reglulið með kylfum og táragasi.
Ekki svo að skilja, að lögreglu-
hðið sé ekki nauðsynlegt. En í
einlægni og alvöru talað, þá held
eg, að kirkjan sé líklegri en lög-
reglustöðin til að leysa þetta
höfuðvandamál þjóðarinnar.
Það er rætt og ritað um þörf
þjóðar og einstaklinga á að spara.
^g víst er gott, að hóf sé haft í
hverjum máta. Verður sumum
su leið helzt sjáanleg til sparn-
aðar, að fækka um nokkra presta
eða prestaköll í landinu. Víst
sParast nokkuð fé við það. Aðrir
sJa líka tekjuöflunarleið í sölu
^eira áfengis. En hvað fylgir
því, eða hvað kemur í staðinn
fyrir þetta hvort tveggja? Er
hægt að loka augunum fyrir því,
a® dvíanadi Kristsáhrif og Guðs-
tru veldur siðferðislosi og margs
honar óreiðu, sem því fylgir?
hðð skyldi þó ekki vera, að hitt
yfði öllu meiri búhnykkur, að
fjölga prestum, og það svo mikið,
a® þeir næðu til hvers einasta
heimilis sókna áinna með per-
sónuleg áhrif og boðskap Krists,
samfara þessu, að auka
hennslu í kristnum fræðum í öll-
Uru skólum landsins að miklum
mun, og gera strangar kröfur um
hvorra tveggja, presta og
^ennara, þeirra manna, er bein-
Ust áhrif hafa á siðgæði og þegn-
tegan þroska hverrar komandi
ynslóðar. En það eru fleiri sem
æskuna móta og skapa ríkjandi
tízku í bæ og landi. Hver einasti
þegn, og í opinberu starfi ek'ki
sízt, er á hverri líðandi stund að
skapa það andrúmsloft eða um-
hverfi, þá siðgæðis- eða sið-
leysistízku, sem mótar hinn upp-
vaxandi lýð, og veldur gæfu eða
ógæfu. Siðferðilegir afbrota-
menn í ábyrgðarstöðum eru
þjóðinni jafnvel enn dýrari en
hinir, sem þegar hafa hlotið
vist í vandræðamannahælum
landsins.
Til er eitur, merkt þrem
krossum mönnum til aðvörunar
um að það sé lífshættulegt, sé
þess neytt. Annað eitur er og
til, og mun girnilegra til neyzlu,
en á því stendur ekkert hættu-
merki. Er það og hefir verið þjóð
vorri og öðrum þjóðum enn
hættulegra en hinn svokallaði
Hvítidauði og Svartidauði báðir
til samans. Engin ein orsök er
meiri til ógæfu einstaklinga og
þjóða en hin „gullna veig“,
áfengið, sem ekki þykir taka að
setja neitt aðvörunarmerki við.
— Og það ber enn að sama
brunni, þótt ríki Bakkusar sé
víðlent á voru landi, þá má sá
hamingjuskelfir sín þó einna
minnst í sveitum landsins. Hið
heilnæma loft og heilbrigða líf
við barm íslenzkrar náttúru er
mönnum vörn gegn þeim voða
sem mörgum öðrum.
vm.
Það er oft, og að verðugu, vitn-
að í gömlu prestsheimilin ís-
lenzku, hvílíkar menningar-
miðstöðvar þau voru. Þau voru
þjóðinni meira virði en hægt er
að reikna hagfræðilega. Sumir
telja nú hlutverki þeirra lokið,
þar sem komnir séu skólar bæði
í sveit og bæ, sem taki að sér
fræðsluhlið uppeldismálanna, er
mörg prestsheimilanna fornu
bæktu með mesta myndar- og
ágætisbrag. Satt er það. Nú þarf
enginn unglingur að týnast og
glatast þjóðinni fyrir andlegt
hirðuleysi. Allir eiga kost
menntunar og skólagöngu. En
börn og unglingar og fullorðnir
menn eru þó enn að týnast, —
eru að farast, andlega skilið, og
kannske einmitt fyrir það, að
prestsheimilin eru orðin of fá, og
ekki aðeins prestsheimilin, held-
ur sveitaheimili landsins, sem
eru megnug þess að skapa það
andrúmsloft siðgæðis, atorku og
hvers kyns heilbrigðrar menn-
ingar, sem nauðsynlegt er til
þess, að hin langþráða og sjálf-
sagða skólamenntun komi að
fullum notum og skapi heil-
brigða, almenna þjóðmenningu.
Vér megum aldrei gleyma því,
að gömlu íslenzku sveitaheimil-
in, og þá ekki aðeins höfuðbólin,
en einnig mörg afdala- og út-
nesjakotin, voru háskóli þjóðar-
innar og lýðskóli í senn um alda-
raðir.
Þótt veglegar skólabyggingar
séu nú risnar í hverri byggð, er
hlutverk heimilanna, bæði í
sveit og bæ, enn sem fyrr há-
leitt og vandasamt og aðkallandi
til mótunar hvers kyns siðferði-
legra og félagslegra dyggða. Og
sem betur fer, þá eru þau mörg
heimilin í landi voru, sem eru
hlutverki sínu vaxin, þótt hin
séu of mörg, sem betur þyrftu
að gera. Sérstaklega þyrfti
byggðin að aukast á þeim stöð-
um, þar sem uppeldis og lífs-
skilyrðin eru slík, að mestar
líkur eru til að upp vaxi heil-
brigð æska og hraust, eins og í
mörgum sveitum landsins, — að
fram komi kynslóð, sem elur
heilbrigð börn og þjóðholla karla
og konur.
☆
Þetta erindi, sem hófst á sögu
um smá-embættisferð, er nú
orðið lengra en ætlað var í upp-
hafi og komið inn á ýmis efni.
En það er nú svona, að mynd-
irnar líða yfir tjaldið, myndir,
sem blasa við augum útkjálka-
búans. Borgarbúinn sér aðrar
myndir og önnur lífsviðhorf.
Slík er fjölbreytni lífsins og
hollast, að saman fari.
—KIRKJURITIÐ
Hurðin, sem bæði heyrir og sér
Ljósneminn — fótósellan — er
furðuleg uppfundning, sem
kemur œ víðar við sögu
EKKERT er líklegra en að
ferðamaður, sem kemur til
Ameríku í fyrsta skipti, reki upp
stór augu ,er hann kemur t. d.
að búðardyrum, sem opnast, að
því er virðist, sjálfkrafa fyrir
honum, án þess að nokkur mað-
ur sé þar sjáanlegur í nánd, hvað
þá heldur, að hann hafi sjálfur
kvatt dyra á nokkurn hátt.
Sennilega mun ýmsum, er ekki
þekkja þetta fyrirbrigði áður,
detta í hug í fyrstu, að einhver
ósýnilegur mannlegur dyravörð-
ur muni dyljast þarna á næstu
grösum og fylgjast svo vel með
ferðum manna, að hann geti
„kippt í spottann“, einmitt á
réttu augnabliki, hvenær sem
einhver þarf að ganga um dyrn-
ar. Þeir, sem kynnzt hafa Ijós-
nemanum, eða fótósellunni, áður
og hinum kynlegu eiginleikum
hans, vita hins vegar vel, að það
er töframagn hans, dautt og vél-
rænt, sem vakir þarna yfir ósýni-
legt í hurðinni og stjórnar út-
búnaðinum, sem opnar hana
fyrir hverjum gesti, sem að garði
ber og inn hyggst ganga, — og
lokar henni á sama hátt að baki
honum, þegar inn er komið, að
hætti hins kurteisa þjóns, hljóð-
laust og hógværlega.
Annars þurfa menn nú orðið
ekki alla leið til Ameríku til
þess að kynnast „hurðinni, sem
bæði heyrir og sér“ og öðrum
„göldrum" þessa kynjatækis,
ljósnemans, því að einnig hér í
Evrópu hafa slíkir vélrænir
dyraverðir verið settir til starfa,
þótt ekki séu þeir algengir enn
sem komið er. Jafnvel til Norður
landa hafa þeir borizt. Til dæmis
er þess getið í júlíhefti danska
samvinnuritsins „Samvirke“, að
einni slíkri hurð hafi verið kom-
ið fyrir í hinni nýju sölubúð,
sem kaupfélagið í Kaupmanna-
höfn, Hovedstadens Brugsforen-
ing, hefir nýskeð reist og opnað
í Nörrevold þar í borg.
Vér Islendingar erum oft ekki
vonum seinni að taka upp ýms-
ar nýjungar, svo að sízt er fyrir
það sverjandi, að slíkar hurðir
og önnur tæki, sem byggð eru á
sams konar tækni, berist hingað
innan tíðar, svo að almenningur
hér geti kynnzt þeim af eigin
raun. Væri það því vel til fund-
ið, að einhver málhagur maður
og orðsnjall tæki sig til og smíð-
aði nýtt orð, er vel færi í ís-
lenzku máli sem heiti á þeim
skrítna hlut, sem þarna er að
verki og líkast er að láti til sín
taka á æ fleiri sviðum tækninn-
ar á næstu tímum. En meðan
ekkert *líkt nýyrði er til, verða
menn annað tveggja að láta sér
nægja hið útlenda eða fótósella
(fotocel) eða sætta sig við ný-
gerving þann, sem hér er notað-
ur í greininni, þ. e. Ijósnemi —
þegar tækið ber á góma. En í
sem skemmstu máli sagt, er hér
um að ræða áhald, er hefir þann
eiginleika, að breytilegt ljós-
magn orkar á það með þeim
hætti, að það framleiðir breyti-
legan rafstraum, þ. e. þegar ljós-
magnið eykst, magnast og raf-
straumurinn, en dvínar'á sama
hátt, þegar ljósmagnið minnkar.
Þegar ljósbrigði verða, skapar
tækið þannig tilsvarandi straum
brigði, og á þennan hátt er hægt
að orka á rafstraum og stjórna
honum beinlínis með ljóshrifum
einum.
Þýðingarmesti hluti ljósnem-
ans er venjulega frumefni það
sem nefnt er selan, en það hefir
þann merkilega eiginleika, að
hæfni þess til að leiða rafstraum
stendur í beinu hlutfalli við birt
una, sem á það skín. Aðalhluti
fótósellunnar er því tíðast járn
plata, sem þunnt lag af frum
efni þessu hefir verið brætt i
undir þunnri gullhúð. Önnur
frumefni hafa og þennan sama
eiginleika, svo sem málmarnir
kalíum og cæsíum, enda eru
þeir stundum notaðir í ljósnema,
svo sem í útvarpslömpum.
Hér um bil ein öld er nú liðin,
síðan menn uppgötvuðu fyrst
þetta eðli slíkra efna, en fyrst í
stað var mönnum ekki ljóst,
hvernig hægt væri að hagnýta
sér þá þekkingu. Árið 1890 fundu
svo Þjóðverjar tveir, Elster og
Geitel, fótóselluna, eða ljós-
nemann, sem tæknin hefir þeg-
ar tekið í þjónustu sína á marg-
víslegan hátt, og þekkjum vér
þó naumast annað en fyrsta upp-
haf þeirrar sögu sem vel getur
orðið bæði löng og gagnmerk, ef
að líkum lætur.
Ef menn skoða nánar „hurð-
ina, sem heyrir og sér“, munu
þeir sjá, að í dyrastöfunum til
beggja handa eru örlítil „gæju-
göt“, beint andspænis hvort
öðru. 1 öðru „auganu“ er komið
fyrir örsmárri ljósvörpu, sem
sendir geisla — að vísu oftast
ósýnilegan mannlegu auga —
þvert yfir gættina, rakleiðis í
hitt „augað“, en bak við það er
ljósnemi — fótósella. Gangi nú
einhver að hurðinni, rofnar
geislinn og ljósneminn breytir
straumstyrknum í rafútbúnað,
sem oft er raunar komið fyrir
annars staðar, t. d. í kjallara
hússins, en þessi útbúnaður
(relæ nefnist hann á útlendu
máli) er þannig gerður, að verði
hann fyrir spennufalli, magnar
hann annan rafstraum, sem
gegnum hann er sendur, en sá
straumur orkar síðan, m. a. með
seguláhrifum, á loftpumpur,
sem hreyfa hurðina, opna dyrn-
ar og loka þeim síðan aftur,
þegar geislinn frá ljósvörpunni
nær aftur að skína óhindrað á
fótóselluna. Allt tekur þetta að-
eins örstutta stund, miklu
skemmri tíma en til þess þarf að
lýsa því í orðum.
Á það skal bent, að efnislög-
mál þau, sem hér eru að verki,
eru og meginatriði í hljóm- og
talmyndatækninni, þar sem
gangur málsins er að vísu öfug-
ur, þannig að hljóðinu er með
hjálp slíkra tækja breytt í ljós-
hrif, sem orka á kvikmynda-
ræmuna við upptöku myndar-
innar. En þegar myndin er sýnd
í kvikmyndahúsunum, lætur
fótósellulögmálið enn til sín taka
í réttri röð og breytir þeim
þætti „filmunnar“, þar sem hljóð
hrifin hafa áður verið „ljós-
mynduð“, aftur í hljóð, tal og
tóna. Sjónvarpið byggist og
öldungis á sömu lögmálum, þ. e.
þeirri staðreynd, að ljóshrif geta
orkað á rafstraum m^i þessu
móti og síðan er hægt að senda
rafstrauminn með þráðum, eða
útvapa honum í allar áttir, og
breyta honum aftur, með hjálp
viðtækjanna, í sams konar ljós-
hrif og uphaflega orkuðu á
strauminn.
Dyrabjöllur, varúðarmerki
gegn innbrotsþjófum og fjöl-
mörg önnur tæki, sem ekki gefst
tóm til að nefna hér, starfa undir
stjórn þessa sama töfratækis,
fótósellunnar eða ljósnemans.
Þegar vörur þær, sem framleidd-
ar eru í fjöldaframleiðslu í stór-
verksmiðjum nútímans, renna á
reim sinni „samfellubandinu“
fram hjá hinum sívakandi og
alltsjáandi auga fótósellunnar,
orka kraftar þeir, er hún leysir
úr læðingi, á talningsvélarnar,
sem telja og skrásetja hvern
hlut, sem framhjá fer. Þannig
mætti lengi telja hin nýju undur
á þessu sviði, en hin verða þó
miklu fleiri og markverðari, sem
eiga eftir að koma til skjalanna
í framtíðinni, ef að líkum lætur.
Og ekki er það ósennilegt, að al-
menningur eigi eftir að kynnast
ljósnemanum, þessu furðuverki
tækninnar, sem vissulega hefði
forðum daga verið mjög kennt
við galdra, miklu nánar en orðið
er, bæði á heimilunum og á
vinnustöðvum hvers og eins.
(Dagur)
—TÍMINN, 19. ágúst
Business and Professional Cards
Phone 74-1855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
832 Simcoe St.
Winnlpeg, Man.
SEWING MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Portage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
SérfrœCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdðmum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Gr&ham and Kennedy St.
Skrifstofusími 92-3851
Heimastmi 40-3794
Dunwoody Saul Smith
& Company
Chartered Accountanls
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man.
And offices at:
FORT WILLIAM - KENORA
FORT FRANCES - ATIKOKAN
HofiS
Höfn
í huga
Heimili sðlsetursbarnanno.
Icelandic Old Folks’ Home Soc
3498 Osler St.. Vancouver, B.C.
ARLINGTON PHARMACY
Prescription Specialist
Cor. Arlington and Sargent
Phone 3-5550
We Handle School Supplies
We collect light, water and
phone bills.
Post Office
Muir's Drug Store Ltd.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVING THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422
Ellice & Home
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Acccintant
505 Confederatlon Life Bulldlng
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker. Q.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kristjanason
500 Canadian BanK of Commerce
Chambers
Wlnnipeg, Man. Phone 92-3561
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Simi 92-5227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphln, Manitoba
Eigandl ARNI EGGERTSON Jr.
Van's Etectric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFTAT
Phone 3-4890
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
vega penlngalán og eldsábyrgB,
bifreiSaábyrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 3.30 - 6.0t p.m.
Thorvaldson. Eggertson,
Ðastin & Stringer
Barristers and Solicitors
309 BANK Or NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONl 33-83*1
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Dlrector
Wholesale Dtstributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
OfHce: 74-7451 Res.: 73-3917
Offlce Phone
92-4762
Res. Fhone
72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUTLDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
StofnaC 1894
SÍMI 74-7474
Phone 14-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Maternity Pavllion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers.
Funeral Designs, Corsages.
Bedding Plants
Nen Johnson Res. Phone 74-6753
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SF.ALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
PHONE 92-ÚÍ24
Gilbari Funeral Home
Selklrk, Manitoba.
J. Roy Gilbart
Licensed Embalmer
Phone 3271 Selkirk
SELKRK METAL PRODUCTS
Reykháfar. öruggasta ehlsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaelningar-
rör. ný uppfynding. Sparar eldt-
vlC, heldur hita frá ao rjúka út
meC reyknum.—SkrlfiC, stmiC tll
KF.LLY SVEINSSON
(25 Wall St Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
Simar 3-3744 — 8-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in aii tts branches
Real Estate - Mortgages - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 40-3480
LET US SERVE YOU