Lögberg - 16.09.1954, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. SEPTEMBER 1954
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
GefiíS at hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT' AVENfTE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN-
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd-
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Dr. A. H. S. Gillson,
f. 4. des. 1889, d. 10. sepl. 1954
(Fáein minningarorð)
1 bréfi, sem Jónas Hallgrímsson skrifaði vini sínum,
Páli Melsted yngra, frá Kaupmannahöfn 5. júlí 1844, lýsir
Jónas danska skáldinu J. C. Hauch m. a. svo:
H. er allra elskulegasti maður; hann er hár og grannur
og ólánlega vaxinn", allra manna svartastur, blakkur og
suðrænn í andliti, og sérlega fallega ljótur, eins og þú
þekkir, með fjarska stórt nef og efra tanngarð og allra
manna stóreygðastur og úteygðastur; og samt sem áður
þarf ekki nema líta á hann til að sjá hann er fluggáfaður.
Þessi mannlýsing varð mér strax minnisstæð, er ég las
hana, og hún kom mér ósjálfrátt í hug, er ég sá dr. Gillson
í fyrsta skipti daginn eftir að ég kom til Winnipeg. Það var
á laugardagsmorgni, annasöm vika senn liðin hjá og eins og
ró helginnar hefði færzt yfir forsetann. Hann var í prýðis-
skapi, og féll þegar vel á með okkur, og hélzt svo æ upp
frá því. •
Dr. Gillson var viðkvæmur og ör í lund, fljótur til vin-
áttu og tryggur þeim, er hann tók, en lét menn einnig
kenna þess, ef honum þótti við þá, því að hann var hrekklaus
sjálfur og fékk ekki dulið skapbrigði sín, á hvora sveifina
sem þau snerust.
Hugmyndin um íslenzka kennarastólinn hreif hann
þegar, og veitti hann henni af alhug, er til kasta háskólans
kom. Þó að stærðfræði og stjörnufræði væru sérgreinar
hans, undi hann ekki við þær einar, heldur haslaði sér
miklu víðari völl bæði í listum og bókmenntUm. Og þar
sem þekkingu hans þraut í þeim efnum, tók við glöggt
hugboð hins sanna menntamanns, er lætur fátt koma að
sér óvörum. Honum var kunnugt, hver rækt hefur verið
lögð við íslenzk fræði á föðurlandi hans, Englandi, og taldi
þau eiga jafnbrýnt erindi hér sem þar. Hann skildi og, að
Manitobaháskóli var kjörinn staður til slíkra fræði-iðkana
sökum þess, að íslenzk tunga er enn að nokkru lifandi mál
í fylkinu og skilyrði til náms í henni að því leyti sérstæð.
Loks vissi hann, að miklu varðaði, hvernig búið yrði að
íslenzkunni við háskólann í upphafi, og var það hið síðasta,
sem við ræddum, áður en hann veiktist, hversu enn mætti
bæta aðstöðuna til íslenzkunámsins, svo að kennslan við
deildina gæti komið að sem mestum og beztum notum.
Þegar ég nú rifja upp kynni mín við dr. Gillson, verður
mér einna hugstæðust málsnilld hans, hvort heldur var í
einkaviðræðum eða á stórum mannfundum. Forseta-
embættið við Manitobaháskóla er umsvifamikið. Forsetinn
verður að vera alls staðar heima og með á öllum nótum.
Huginn og Muninn þurfa að vera á stöðugu flugi, ef ekkert
á að fara framhjá forsetanum. Háskólaráð, kennaralið og
nemendur standa stundum í öndverðum fylkingum, og
verður forsetinn þá að miðla málum milli þeirra, ef í odda
skerst. Biðstofa hans er þéttsetin, og við alla ræðir hann af
kunnleika og áhuga. Hann var frábær fundarstjóri, hélt
sér að efninu og hafði svipaðan aga á fundarmönnum og
góður tamningamaður á hesti sínum. Hátíðlegum samkom-
um stýrði hann af miklum virðuleik, og er mér sérstaklega
minnisstætt, hver stíll var yfir stjórn hans, er hið nýja bóka-
safn háskólans var vígt. í veizlum og á hvers konar gleði-
mótum var hann hrókur alls fagnaðar og líkt og lifnaði yfir
mönnum, þegar hann byrjaði að tala.
Grikkir hinir fornu lögðu mikla áherzlu á, að menn
væru snillingar í orðum, en þó jafnframt framkvæmdar-
menn í verkum. Eru kunn orð hins gamla riddara Felix, er
hann mælti eitt sinn við kappann Akkilles:
----„Hinn aldraði riddari Peleifur lét mig fara með
þér þann dag, er hann sendi þig frá Fiðju til Agamemnons;
varstu þá ungur og enn óvanur hernaði og mannfundum,
þar er menn verða frábærir um fram aðra. Því var það,
að hann lét mig fara með þér til að kenna þér allt þetta, svo
þú yrðir snillingur í orðum og framkvæmdarmaður í
verkum.“------
Þó að dr. Gillson væri e. t. v. meiri orðsnillingur en
framkvæmdarmaður, kom hann miklu í verk í stjórnartíð
sinni. Hver byggingin reis af annarri á háskólalóðinni og
starfsemi skólans jókst og dafnaði á margar lundir. Reynt
var að styrkja samband háskólans við almenning í fylkinu,
og var dr. Gillson ótrauður að ferðast um í kynningarskyni
og flytja mönnum fróðleik um þessa æðstu menntastofnun
þeirra. Hann hélt því fram, að háskólinn ætti að spegla
menningu og háttu hinna mörgu þjóðarbrota, er fylkið
byggja, og styðja þau til að varðveita og ávaxta hvort-
tveggja. Minnast íslendingar í Manitoba þannig ferða hans
um byggðir þeirra og ýmsir jafnframt persónulegra kynna
við hann. Áhrif þeirra kynna verða og varanlegust, þegar
frá líður; endurminningin um hlýtt handtak, vingjarnlegt
bros og örvandi orð lifir löngu eftir að maðurinn er
genginn — og því lengur sem hann var örlátari á allt þetta
og þeir fleiri, sem þekktu hann.
Ég mun ætíð sakna dr. Gillsons og þykja daufara um
þar úti, eftir að hann er farinn. Ekkju hans og syni þeirra
votta ég samúð mína og þakka henni um leið alúð hennar í
minn garð á liðnum árum.
Finnbogi Guðmundsson
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
5. SEPTEMBER
U N D U R utanríkisráðherra
Norðurlanda var haldinn í
Reykjavík á mánudag og þriðju-
dag og var að honum loknum
birt tilkynning um störf fund-
arins. Segir þar m. a.: Rædd
voru sameiginleg áhugamál,
einkum málefni þau, sem tekin
verða fyrir á 9. allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna, og var
rætt um ýmsar kosningar, er
þar eiga að fara fram. Ráðherr-
arnir voru ásáttir um að styðja
viðleitni í þá átt að auka tölu
þátttökuríkja í Sameinuðu þjóð-
unum. Einnig voru þeir sam-
mála um, að æskilegt væri að
Pekingstjórnin tæki áður en
langt um liði sæti Kína hjá Sam-
einuðu þjóðunum. — Að því er
snertir umræður þær, sem fram
eiga að fara innan Sameinuðu
þjóðanna um stofnskrána, varð
samkomulag um, að sérstökum
nefndum í hverju landi um sig,
yrði falið að skýra hinar ýmsu
hliðar málsins og undirbúa sam-
eiginlega norræna afstöðu. Að
boði norsku ríkisstjórnarinnar
verður næsti reglulegi utanríkis
ráðherrafundur Norðurlanda
haldinn í Osló vorið 1955.
Fundinn sátu utanríkisráð-
herrar Danmerkur, íslands og
Noregs, og forstjóri sænska utan
ríkisráðuneytisins, þar eð sænski
utanríkisráðherrann átti ekki
heimangengt sjálfur.
☆
Ólafur Thors forsætisráðherra
kom í vikunni heim frá útlönd-
um, en hann hafði dvalist á
Norðurlöndum, í Frakklandi og
Englandi frá því að fundi Norð-
urlandaráðsins lauk í Osló. For-
sætisráðherrann sagði nokkur
orð í útvarpið á fimmtudaginn
um samþykkt Norðurlandaráðs-
ins varðandi friðunarráðstafanir
íslendinga á fiskimiðum um-
hverfis landið, og sagðist þá m. a.
telja rétt að vekja athygli á því,
að enda þótt íslendingar fagni
því að eiga þess kost að ræða í
Evrópuráðinu löndunarbann
brezkra útgerðarmanna og skýra
málstað vorn, telji þeir að sjálf-
sögðu Evrópuráðið ekki réttan
aðila til að dæma um lögmæti
friðunarráðstafana vorra heldur
Haagdómstólinn. Með samþykkt
Norðurlandaráðsins hefir m. a.
það unnist, að Norðmenn, Danir
og Svíar hafa skuldbundið sig
til að fylgja þeirri skoðun Is-
lendinga.
☆
Á þriðjudaginn var undirritað-
ur í Reykjavík nýr viðskipta-
og greiðslusamningur milli Is-
lands og Tékkóslóvakíu og er
gildistími hans til 31. ágúst 1957,
en vörulistar, sem jafnframt var
samið um, gilda í eitt ár. Gert er
ráð fyrir sölu til Tékkóslóvakíu
á frystum fiskflökum, frystri
síld, saltsíld, fiskimjöli og fleiri
vörum, en að þaðan verði keypt
m. a. vefnaðarvara, járn og stál,
skófatnaður, bifreiðar, glervörur,
sykur og pappírsvörur. Áætlað
er, að viðskipti landanna aukist
verulega frá því sem verið hef-
ir á undanförnum árum.
☆
Á mánudaginn var opnuð í
Skálholti steinkista Páls biskups
Jónssonar, er biskup var í Skál-
holti frá 1195 til 1211, en kista
þessi fannst fyrir skömmu við
gröft í dómkirkjugrunninum.
Þóttist Þjóðminjavörður og þeir
aðrir, er að rannsóknunum vinna
þegar vita að þetta væri stein-
kista Páls biskups, því að frá
því er sagt í sögu hans, að hann
lét gera steinþró ágæta haglega.
Það kom og í Ijós að í kistunni
voru bein biskups. Kistan var
höggvin eða holuð innan úr
heilum móbergskletti, og hella
yfir. Hellan var sprungin á
tveimur stöðum. Þegar lok þetta
var hafið af kistunni, kom í ljós
höfuðkúpa gulnuð af elli, leggir
og fleiri bein, og til fóta í kist-
unni var beinamusl líkt og
brunnin bein væru. Þykir sýnt,
að áður hafi kistan verið opnuð,
en eigi er vitað hvenær það hefir
verið gert, eða hvaða bein það
eru, sem liggja þar til fóta. Við
hægri öxl biskups lá biskups-
stafur, lítill og mjög fagurlega
skorinn húnninn, og hefir stafur
þessi verið 123 sentimetrar á
lengd. Ekki fannst annað gripa í
kirkjunni, en menn höfðu gert
sér vonir um að þar kynni að
finnast vígsluhringur biskups.
Engin mold var í kistunni og
beinin svo vel varðveitt, að talið
er, að menn geti af þeim gert
sér glögga grein fyrir hæð
biskups og höfuðlagi. — Þjóð-
minjavörður telur þennan fund
hinn merkasta og er það eitt, að
ekki hefir fundizt hér áður
biskupsstafur úr katólskum sið.
☆
Samið var um það í maímán-
uði s.l. að íslenzkir verktakar,
samþykktir af íslenzku ríkis-
stjórninni, skyldu framkvæma
allar varnarliðsframkvæmdir
hér á landi, sem væru á þeirra
færi, og samkvæmt þessu hefir
utanríkisráðuneytið beitt sér
fyrir stofnun verktakafélags,
sem mun hafa á hendi slíkar
framkvæmdir í framtíðinni. Fé-
lag þetta heitir íslenzkir aðal-
verktakar, sameignarfélag. Sam-
eigendur félagsins eru Ríkis-
sjóður að einum fjórða hluta,
Reginn h.f. að einum fjórða og
Sameinaðir verktakar að helm-
ingi. Formaður stjórnar Is-
lenzkra aðalverktaka er Helgi
Bergs verkfræðingur. Samkomu-
lag varð um það milli ríkis-
stjórna Islands og Bandaríkj-
anna að koma á stofn æfingar-
námskeiðum í þeim tilgangi að
æfa íslenzka menn í að fara með
og halda við stórvirkum vinnu-
vélum í þeim tilgangi m. a. að
gera íslendinga sem færasta um
að taka að sér framkvæmdir á
vegum varnarliðsins. Mun þessi
tæknikunnátta einnig koma sér
vel á ýmsum öðrum sviðum. —
Þegar hefir verið ákveðið að
senda allmarga íslendinga til
stuttrar dvalar við tæknistörf í
Bandaríkjunum. Einnig munu
hefjast æfingar hér á landi.
Ætlunin er, að unnið verði að
vegagerð ofan við Hafnarfjörð
með stórvirkum vinnuvélum til
þess að beina hinni miklu um-
ferð út úr Hafnarfjarðarkaup-
stað.
☆
Hin nýja Þverárvirkjun í
Strandasýslu, sem tók til starfa
í desembermánuði s.l., var form-
lega opnuð í gær. Lýsti Stein-
grímur Steinþórsson raforku-
málaráðherra yfir því, að stöðin
væri tekin í notkun. Viðstaddir
voru ýmsir forráðamenn Stranda
sýslu, þingmaður kjördæmisins
og þeir, sem verkinu stjórnuðu.
Framkvæmdir við Þverárvirkj-
un við Hólmavík hófust haustið
1951 og hafa verið virkjuð 500
kílóvött, en hægt er að bæta við
vélasamstæðu, svo að orku-
vinnslan tvöfaldist. í fyrra voru
lagðar háspennulínur til Hólma-
víkur og tveggja sveitabæja og
lagt- nýtt innanbæjarkerfi á
Hólmavík. Kostnaður við virkj-
un þessa hefir numið 5 miljónum
856 þúsund krónum, og er á-
ætlað að 500 kílóvatta viðbótar-
vél ásamt húsi muni kosta hálfa
aðra miljón króna.
☆
Á þessu ári verður lokið við
stækkun Landsímahússins í
Reykjavík, og er ætlast til þess,
að sjálfvirka stöðin í Reykjavík
verði fyrst um sinn stækkuð um
3000 númer, og í framhaldi þess
verði reist undirstöð með 3000
númerum í Sogamýri við Suður-
landsbraut og byrjað á því verki
á næsta ári. Símanotendur í
Reykjavík og Ilafnarfirði eru nú
um 11.000, en fjögur til fimm
þúsund eru á biðlista. Sjálfvirka
símastöðin á Akureyri verður
einnig stækkuð úr 1000 í 1500
númer, og verður þeirri stækk-
un loþið seint á þessu ári. —
Margir sveitasímar voru lagðir
í sumar, og hafa nú rúmlega 80
af hundraði allra sveitabæja á
landinu síma.
☆
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda var haldinn í gær og í
fyrradag að Laugum í Reykja-
dal. Var þar m. a. samþykkt á-
lyktun þess efnis, að fundurinn
telji, að rafvæðingu sveitanna
eigi að vera lokið innan 10 ára.
☆
Reknetaveiðin hefir verið all-
misjöfn að undanförnu og síldin
sem veiðist misjafnlega stór. Um
helgina, sem leið, hafði verið
saltað í 5000 tunnur sunnan-
lands. Nokkrir togarar veiða nú
fyrir Þýzkalandsmarkað og seldi
hinn fyrsti í Þýzkalandi í gær
fyrir rúmlega 70.000 mörk, og
var það lágt verð. Næsti togari
selur þar á morgun. — Samn-
inganefndir í kjaradeilu útgerð-
armanna togaranna og sjómanna
hafa setið á samningafundum,
en ekki hefir verið tilkynnt, að
samkomulag hafi náðst.
☆
Á sunnudaginn var opnuð í
Listasafni ríkisins sýning á
norskri nútímalist, fyrsta norska
listsýningin, sem haldin er hér á
landi, en hún er haldin í boði
íslenzku ríkisstjórnarinnar. Áður
var haldin sýning í Noregi á
verkum íslenzkra listamanna.
Fjöldi gesta var viðstaddur, er
sýningin var opnuð, og flutti
Valtýr Stefánsson formaður
Menntamálaráðs ávarp, — en
Menntamálaráð sá um undirbún-
ing sýningarinnar hér. Því næst
flutti Halvard Lange utanríkis-
ráðherra Noregs ávarp, og Bjarni
Benediktsson menntamálaráð-
herra flutti ræðu og lýsti sýn-
inguna opnaða almenningi. —
Þarna eru sýnd 220 verk eftir nú
lifandi norska listamenn, mál-
verk, vatnslitamyndir, teikning-
ar og höggmyndir. Sýningin
hefir verið fjölsótt.
☆
Önnur sýning var opnuð í
húsakynnum Þjóðminjasansins í
gær. Bókasýning, sem British
Council og félagið Anglía standa
að. Þar er til sýnis mikill jöldi
bóka, sem gefinn hefir verið út í
Bretlandi eftir 1950, en auk þess
allmargar bækur, er sýna prent-
list og fagra bókagerð í Eng-
landi síðustu 200 árin, og hafa
þær bækur þegar verið sýndar í
mörgum löndum. Þegar sýningin
var opnuð töluðu þeir James T.
Henderson sendiherra Breta á Is-
landi, Bjarni Benediktsson
menntamálaráðherra, og Hall-
grímur Fr. Hallgrímsson for-
maður Anglíu.
☆
Aðalfundur Prestafélags Suð-
urlands var haldinn í Haukadal
og Skálholti um helgina og sóttu
hann 20 prestar ásamt biskupi
landsins. Fundurinn lýsti yfir
þeirri skoðun sinni, að leggja
beri áherzlu á það, að hin nýja
kirkja, sem áformað er að reisa
í Skálholti, fái í megindráttum
svipmót þeirrar dómkirkju, sem
áður var á staðnum. Einnig æskti
fundurinn þess, að Skálholt
verði biskupssetur að nýju, og
kaus nefnd til þess að athuga í
samráði við biskup, hvernig því
megi bezt verða fyrirkomið.
☆
í ágústmánuði s.l ferðuðust
1553 farþegar með flugvélum
Loftleiða. Vegna mikilla anna
þurfti félagið að hafa eina auka-
ferð í mánuðinum. Afráðið er,
að tvær eða þrjár aukaferðir
verði farnar í þessum mánuði til
viðbótar hinum föstu áætlunar-
ferðum félagsins.
☆
Nýlega er komin til Reykja-
víkur sendinefnd á vegum fé-
lagsins Menningartengsla Js-
lands og Ráðstjórnarríkjanna, og
eru í nefndinni nokkrir lista-
menn, m. a. píanóleikarinn
Tamara Guséva, cellóleikarinn
Rostropovitjs og danspar frá
Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu.
Listamenn þessir skemmtu í
Þjóðleikhúsinu ásamt íslenzkum
listamönnum á miðvikudaginn
var, og í fyrrakvöld í Austur-
bæjarbíó, er fjórða ráðstefna
Menningartengsla Islands og
Sovétríkjanna var sett þar. —
Meðal þessara gesta er leikstjóri
sá, er setja mun á svið í Moskvu
hið nýja leikrit Halldórs Lax-
nes, Silfurtunglið.
☆
Opnuð hefir verið í Reykjavík
sýning á málverkum eftir Gunn-
laug Scheving listmálara. Félag
í s 1 e n,z k r a myndlistarmanna
stendur að sýningunni og heldur
hana í tilefni 50 ára afmælis
listamannsins.
☆
Karlakórinn Fóstbræður er nu
á ferðalagi á meginlandi Evrópu,
söng hann á fimmtudagskvöldið
í Lubeck og kvöldið eftir í Ham-
borg, og hlaut þar mjög góðar
viðtökur. Söngstjóri er Jón
Þórarinsson.
☆
Sex íslenzkir skákmenn, sem
keppa á alþjóðamótinu í Hol-
landi, eru komnir til Amster-
dam fyrir nokkru. Þeir lentu i
riðli með Grikklandi, Ráðstjórn-
arríkjunum, Hollandi, Finnlandi
og Austurríki. Þeir keppa i
fyrstu umferðinni við Hollend-
inga.
☆
Knattspyrnumennirnir f r a
Akranesi, sem nú eru á ferð i
Þýzkalandi, kepptu um daginn í
Hannover við Þýzkalandsmeist-
arana, og varð jafntefli, eitt
mark gegn einu. 1 gær kepptu
þeir við úrvalslið úr Neðra-
Saxlandi og töpuðu með þremur
mörkum gegn sjö.
☆
í dag keppir bandaríski hlaup-
arinn Mal Whitfield í 400 metra
hlaupi á íþróttavellinum 1
Reykjavík.
ítalir fara í
dýpsto hellinn
Ætla að setja með í neðan-
jarðargöngu
HÓPUR fullhuga vinnur að því
í Lessini-fjöllum að kanna
helli, sem talinn er hinn dýpsti i
heimi.
Er hér um 2ja manna hóp að
ræða — 23 karlar og ung
stúlka — sem ætla rað fara ofan
í Pretahellinn, en menn ætla, að
hann sé enn dýpri en Pierre St.
Martin-hellirinn í Pyrenea-fjöll-
um, sem Frakkar og Spánverjar
fóru ofan í árið 1952, þegar þeir
settu met að þessu leyti, og foru
ofan í 2159 feta dýpi. ítalir telja»
að Preta-hellir sé dýpri, og ætla
að ganga úr skugga um það 3
næstunni.
Undirbúningur leiðangursins
hefir gengið illa, því að veður
hefir verið mjög slæmt í Lessim-
fjöllum, meira að segja svo
slæmt í nótt, að eitt tjaldanna
sleit upp í veðrinu, en aðalbæki-
stöðvar hafa þegar verið reistar
neðanjarðar eða í 1184 feta dýpi>
og sumir leiðangursmanna hafa
kannað hellinn vandlega þanga®
niður og heldur lengra, svo og
hliðarganga. Hefir herinn lánað
ýmsan útbúnað til þess og einnig
sveit hermanna, sem er með til
öryggis.
Foringi leiðangursins er dr'
Walter Maucci, sem er í stjórn
náttúrufræðifélagsins ítalska.
Var ráðizt í leiðangurinn til
fagna göngu ítala á K-2, Godwin
Austen, annan hæsta tind jarðar,
og er gert ráð fyrir að hann taki
alls 20 daga.
Árið 1927 var gerður út lei®'
angur ofan í Preta-hellinn. Kom-
ust allir leiðangursmenn í
feta dýpi, en foringinn fór einn
ofan í 2090 feta dýpi. ..
(Frakkar gera nú tilraun ti
að ná upp líki hellnafræðingsi0®
Loubens, sem hrapaði til bana
Pyrena-hellinum fyrir tveim
árum).
Síðustu jréttir:
Leiðangur Mauccis er kominn
í 1600 feta dýpi. , .
—VÍSIR, 13- ágnst