Lögberg - 11.11.1954, Qupperneq 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME _ ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1954
NÚMER 45
Hvarvetna vekja sögustaðir upp minningar
Erindi Jörgens Bukdahls
á ísafirði
Danski rithöfundurin Jörgen
Bukdahl heimsótti Isafjörð
eftir för sína til Norður-
lands. Hann hélt þar erindi
fyrir fullu húsi, varðandi
hina norrænu samvinnu og
var gerður góður rómur að
máli hans. Kristján Jónsson
bauð hann velkominn til
ísafjarðar og síðan hóf rit-
höfundurinn erindi sitt.
ViS Arnardal
Hann minntist á það, þegar
hann las fóstbræðrasögu fyrst í
*sku, að þá staldraði hann oft
við þann stað frásagnarinnar,
þar sem sagt er frá dvöl Þormóðs
Kolbrúnarskálds í Arnardal, en
þar liðu hamingjufyllstu dagar
hans, sem hann aldrei gleymdi.
Ekki óraði mig þá fyrir því,
sagði Bukdahl, að ég myndi
sjálfur fá að standa á túninu þar
sem Þormóður bjó, heyra nið
árinnar í dalnum, hinn sama nið
og hann hafði heyrt fyrir
7—800 árum, eða að ég fengi að
sjá sömu fjöllin og hann sá.
Á slóðum galdra og písla
En hérna stóð ég líka á slóð-
um Píslarsögu, frásögn Jóns
Friðarsamningar
undirritaðir
Síðastliðinn fostudag voru
Undirritaðir í Rangoon, höfuð-
borginni í Burma, friðarsamn-
ingar milli Japan og Burma og
samkvæmt þeim féllust Japanir
á að greiða burmísku þjóðinni
á næstu tíu árum $250,000,000
í stríðsskaðabætur í vélum,
lánum, margskonar varningi og
tmknilegri aðstoð.
Canada, Bretland, Bandaríkin
°g 46 aðrar þjóðir undirrituðu
friðarsamninga við Japan í San
Francisco 8. septmeber 1951.
Rússnesku ráðstjórnarríkin, Pói-
land og Tékkóslóvakía vildu
okkert með samningsgerðina
hafa að gera, en Indland gerði
sérstakan friðarsamning við
Japan hinn 9. júní 1952.
Vinnur meirihluta
í báðum
bingdeiBdum
Að því, er nú virðist ljóst, hafa
Demokratar meirihluta í báðum
deildum þjóðþingsins í Wash-
ington; meirihluti þeirra í neðri
Oaálstofunni nemur tutfugu og
fjórum þingsætum, en aðeins
einu 1 hinni efri, þó vera megi að
Þar geti sætatala orðið jöfn, því
frambjóðandi Demokrata í
^regon, hafði einungis fáein at-
kvæði umfram gagnsækjanda
sinn af hálfu Republicana, og
þar afleiðandi nokkurn veginn
víst að endurtalningar verði
krafist.
Eisenhower forseti hefir kvatt
til fundar við sig í Washington
helztu leiðtoga beggja flokk-
anna til að ráðgast við þá um
horfurnar á vettvangi stjórn-
^álanna bæði heima og erlendis.
Foringjar Demokrata hafa lýst
yfir því, að þeir muni veita for-
seta fulltingi varðandi fram-
kvæmd þeirra mála, er til sannra
þjóðþrifa miði.
Magnússonar um galdra og Jón
Jónsson, föður og son á Kirkju-
bóli, sem voru brenddir meðan
Þuríður slapp.
Yfir Breiðafirði
Það var ævintýralega fagurt
veður. þegar ég flaug hingað
vestur, sagði Jörgen Bukdahl.
Flugvélin fór yfir Borgarfjörð,
Breiðafjörð og Flatey, þar sem
ég minntist Flateyjarbókar, gim-
steins hinna íslenzku handrita.
Þar minntist ég einnig séra
Kúlds prests í Stykkishólmi og
Þuríðar konu hans, sem var
systir Benedikts Gröndals. —
Þarna var Helgafell og Snæ-
fellsnes, og þegar flogið var yfir
Vestfirði, þá birtist Vatnsfjörður
og við komum til ísafjarðar.
Yfir Borg og Saurbæ
I erindi sínu minntist Jörgen
Bukdahl þess þó sérstaklega
hvílíkir helgistaðir íslenzkra
bókmennta Borg á Mýrum og
Saurbær í Hvalfirði væru. Því
að við þessa staði eru tengd nöfn
þeirra Egils Skallagrímssonar og
Hallgríms Péturssonar. Þannig
er þessu hagað, þegar maður
ferðast um Island, að hvarvetna
blasa við staðir, sem minna á
forn og ný afrek Islendinga í
bókmenntum, sem minna einnig
á það, hvaðan íslenzku handritin
eru upprunnin.
Þá rakti Bukdahl afrek íslend-
inga í skáldskap á miðöldum;
hann sagði frá Jóni Hallssyni,
Guðmundi biskupi Þorlákssyni
og rakti hvernig þjóðararfur Is-
lendinga heldur áfram að lifa og
þroskast gegnum aldirnar.
Hið nýja ísland
Hann lauk fyrirlestrinum með
Væntanlegur í
heimsókn
Árni G. Eylands
Um miðja næstu viku er
væntalegur hingað til borgar
Árni G. Eylands stjórnarráðs-
fulltrúi frá Reykjavík ásamt
frú sinni, en hann hefir, svo
sem áður hefir verið skýrt frá,
ferðast vítt um Canada og
Bandaríkin sem boðsgestur
ríkisstjórna þessara tveggja
þjóða; er heimsókn hans til
Norður-Ameríku einkum gerð
með það fyrir augum að kynnast
búnaðarháttum og notkun land-
búnaðarvéla, er koma mættu að
sem mestu gagni á íslandi, en í
þeim efnum stendur Árni í
fremstu brautryðjendaröð með
þjóð sinni.
Árni er vinmargur hér um
slóðir frá fyrri heimsókn til
Winnipeg og verða þeir því
margir, er fagna munu komu
hans og hans ágætu frúar.
Árni er fjölhæfur menningar-
frömuður og gott ljóðskáld og
rhun von á ljóðabók eftir hann
áður en langt um líður.
því að hylla hið nýja Island,
sem fullkomnast í stöðugri fram-
þróun og þroska þjóðarinnar í
jarðrækt, notkun dráttarvéla og
með smíði raforkustöðva. íslend-
ingar hafa komizt yfir Sturlunga
öldina og með nýju frelsi hafa
þeir öðlazt þann rétt, sem stend-
ur að baki hinni gífurlegu út-
þennslu og framsókn.
Að lokum stóð Birgir Finnsson
upp, þakkaði Bukdahl rithöf-
undi fyrir komuna og óskaði
honum góðrar ferðar.
—Mbl., 6. okt.
Kirkjuafmæli
1914—1954
Lúterski söfnuðurinn í Blaine,
Wash., hefir ákveðið að minnast
40 ára afmælis kirkju sinnar
með hátíðahöldum sunnudaginn
28. nóvember.
Fyrst verður hádegisguðs-
þjónusta, sem byrjar kl. 11 með
altarisgöngu. Verður þar sér-
stakur hátíðasöngur.
Að kveldinu, kl. 7.30, verður
svo samkoma í. kirkjunni, þar
sem bæði barnakór og kirkju-
kór safnaðarins syngja hátíða-
söngva. Sögu safnaðarins verð-
ur þar minst í erindi af einum
hinna eldri meðlima safnaðar-
ins. Einsöngvar verða einnig
sungnir, og fleiri atriði til
skemtunar og fróðleiks. Aðgang-
ur að samkomunni verður ekki
seldur, en samskota verður
leitað og renna þau í viðgjörð-
arsjóð kirkjunnar. Gjafir í þann
sjóð verða og þakksamlega
þegnar þá og síðar.
Eftir samkomuna safnast allir
viðstaddir í samkomuhús safn-
aðarins og verður þar kaffi og
afmæliskaka á boðstólum fyrir
alla. Verður þar einnig tækifæri
til að ræða gömul og ný áhuga-
mál.
Allir eru boðnir og velkomnir
til þessara hátíðarhalda.
Fyrirlesfur og
myndasýning
Svo sem áður er á minnzt, er
von á Árna Eylands stjórnar-
ráðsfulltrúa og frú hingað til
Winnipeg nú um miðjan mánuð-
inn, og munu þau dveljast hér
um hríð í boði Þjóðræknis-
félagsins. En Arni er kunnur
Vestur-lslendingum frá fyrri
ferðum sínum vestan hafs og að
sérstökum áhuga á málefnum
þeirra.
Þessu sinni eru áætlaðar
a. m. k. þrjár samkomur, þar
sem Árni mun segja tíðindi af
íslandi og sýna nýjar kvik-
myndir þaðan. Verður fyrsta
samkoman fimmtudagskvöldið
18. nóvember kl. 8.15 í Sam-
bandskirkjunni við Banning.
Önnur samkoman þriðjudags-
kvöldið 23. nóvember að Lund-
um í samkomuhúsi bæjarins kl.
8.30, og hin þriðja í Lúlersku
kirkjunni í Árborg fimmtudags-
kvöldið 25. nóvember kl. 8.30.
Aðgangur að hverri sam-
komu kostar 50 cent og verður
seldur við innganginn.
Kvikmyndir þær, er Árni mun
sýna, eru allar litmyndir og
hver annarri betri. Skal Aust-
firðingum sérstaklega bent á, að
ein myndanna er frá Seyðis-
firði, Borgarfirði eystra og
Vopnafirði, stöðum, sem sjald-
an eða aldrei hafa verið sýndir
hér á kvikmynd, en marga, sem
þaðan eru upp runnir, mun fýsa
að sjá.
Kosinn á
sambandsþing
Mr. William Bryce
Svo sem frá er skýrt,á öðrum
stað hér í blaðinu var Mr.
Bryce kosinn á sambandsþing í
aukakosningunni, sem fram fór
í Selkirk-kjördæmi á mánu-
daginn var.
Minsta uppskera
síðan 1943
Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um frá hagstofunni í Ottawa,
nemur hveitiuppskeran í Canada
í ár, aðeins 298,913,000 mælum;
er þetta minsta uppskerumagn
landsins síðan 1943. Veður var
óhagstætt meiripart síðastliðins
sumars og svipað mátti um
þreskingartímann segja, þar sem
votviðri stórskemdu korn og
töfðu fyrir uppskerustörfum.
Upplýsingaskrif-
stofa fyrirhuguð
í London
Hon R. D. Turner, iðnaðar- og
fjármálaráðherra fylkisstjórnar-
innar í Manitoba hefir kunngert
að um næstu áramót hlutist
Manitoba til um, að koma á fót'í
L o n d o n upplýsingaskrifstofu
með það fyrir augum, að kynna
fylkið brezkum iðjuhöldum, er
síðar kynnu að stofna til iðnað-
arfyrirtækja innan vébanda
fylkisins.
Mr. Turner dvaldi á Bretlandi
nokkurn hluta síðastliðins sum-
ars og kvað sig hafa furðað á
því, hve brezkir iðjuhöldar og
fésýslumenn hefðu verið ófróðir
um náttúrufríðindi og tækifæri
til iðnaðarlegrar þróunar, sem
fylkið hefði upp á að bjóða; úr
þessu er meðal annars hinni
væntanlegu upplýsingaskrifstofu
ætlað að bæta.
Ýms hinna fylkjanna hafa
fyrir all-löngu komið sér upp
hliðstæðum skrifstofum í Lon-
don við góðum árangri, svo sem
British Columbia.
Alþjóðaþing jarðeðlisfræðinga:
Nú er talið, að aldur jarðar sé
4500 milljónir óra
Dr. Sigurði Þórarinssyni falið að
rita bindi í miklu rilsafni. —
Rætt við hann um þingið.
Alþjóðaþing jarðeðlisfræð-
inga var haldið í Rómaborg
dagana 14.—25. sept. s.l., og
var það hið fimmta slíks
þing, sem haldið er. Eru þing
þessi haldin þriðja hvert ár.
Þingið sátu fyrir íslands hönd
dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur og Eysteinn Tryggva-
son veðurfræðingur, sem annast
jarðskjálftamælingar fyrir Veð-
urstofu Islands. Var þetta i ann-
að sinn, sem S. Þ. situr alþjóða-
þing jarðeðlisfræðinga, því að
hann sat þingið, sem haldið var
í Osló 1948, og sýndi þar Heklu-
kvikmyndina. {1951 var þingið
haldið í Brussel).
Sigurður Þórarinsson er fyrir
skömmu heim kominn úr Róma-
borgarför sinni og hefir tíðinda-
maður Vísis haft tal af honum
og leitað fregna hjá honum um
þetta alþjóðasamstarf og einkum
um störf þingsins’. Varð hann
fúslega við þessar^ beiðni og
sagðist frá á þessa leið:
Störf bingsins
— Þingið starfaði í sjö deild-
um, en þeir, sem í deildunum
starfa, hafa samstarf sín á milli,
milli þinga. Ein deildin fjallar
um jarðskjálftarannsóknir, önn-
ur um eldfjallarannsóknir og sú
þriðja um jökla og snjórann-
sóknir. Átti ég sæti í tveim hin-
um síðastnefndu.
Þingið sóttu á annað þúsund
fulltrúar frá flestum löndum
heims, þeirra á meðal frá lönd-
um Austur-Evrópu. Rússar áttu
áheyrnarfulltrúa á þinginu, en
þeir eru ekki enn beinir þátt-
takendur í þessu alþjóða-sam-
starfi. Þingið var haldið í bygg-
ingum þeim skammt utan Róma-
borgar, sem reistar voru vegna
væntanlegrar heimssýningar í
Rómaborg, sem fórst fyrir vegna
heimsstyrjaldarinnar síðari. Eru
þetta miklar, nýtízku byggingar,
sem ekki hafa enn verið teknar
í varanlega notkun.
Eldf jallarannsóknir
1 eldfjalladeildinni voru flutt-
ir fyrirlestrar og sýndar kvik-
myndir af eldgosum síðari ára.
Flutti ég þar erindi um öskulaga
rannsóknir. í þeirri deild var
einnig rædd útgáfa mikils rit-
safns, sem þegar er hafin, og á
að vera lýsing á öllum eldfjöll-
um jarðar, sem virk hafa verið
síðan sögur hófust. Verður rit-
safn þetta í mörgum bindum.
Eitt bindið á að fjalla um ís-
land og Jan Mayen og tók ég að
mér ritstjórn þess, í von um að
Stórkostleg rafvæðing fyrirhuguð
Mr. D. M. Stephens, formaður
Manitoba Hydro Electric nefnd-
arinnar, lýsti yfir því í ræðu,
sem hann flutti í Dauphin á
fimtudagskvöldið í vikunni, sem
leið, að Manitobastjórn hefði í
undirbúningi 10 ára áætlun
varðandi virkjun Nelsonárinnar,
er út af fyrir sig myndi kosta
90 miljónir dollara; gaf Mr.
Stephen einnig í skyn, að raf-
væðing í Norður-Manitoba, gæti
auðveldlega hlaupið upp á 252
miljónir dollara áður en yfir
lyki. Mr. Stpehens lét þess jafn-
framt getið í ræðu sinni, að
lcomið gæti til mála að beizla
kjarnorku og hagnýta í sam-
bandi við hin fyrirhuguðu orku-
ver við Nelsonána.
Á fundi þessum í Dauphin, er
Manitoba Chamber of Com-
merce stóð að, tók einnig til
máls Mark Smerchanski náma-
fræðingur og einn af meðlimum
háskólaráðsins í Manitoba og
spáði meðal annars því, að innan
fimm til tíu ára yrði úraníum-
framleiðslan í fylkinu komin á
það stig, að hún skaraði langt
fram úr öllum öðrum námu-
iðnaði.
Af fréttum þessum má ráða,
að hér séu stórhuga athafna-
menn að verki, sem mikils góðs
megi vænta af varðandi athafna-
líf fylkisins.
einhver smá fjárveiting fengist
hér til þess að það geti staðist
samanburð við önnur bindi
safnsins. Þess ber að geta, að
Unesco — menningarstofnun
Sameinuðu þjóðanna — greiðir
prentunarkostnað alls safnsins.
Tvö bindi eru komin út af safn-
inu og fjalla þau um Indonesíu
og Filipsseyjar.
Jöklar annsóknirnar
Þar voru fluttar skýrslur um
jöklaleiðangra seinustu ára og
var stórfróðlegt að kynnast
þeim. Hér er um að ræða skýrsl-
ur franska leiðangursins, sem
var tvö ár á Grænlandsjökli
undir stjórn Paul Emil Victors
<1950 og 1951). Þær rannsóknir
leiddu í ljós, að Grænlandsjökull
er allt að 3000 metrar á þykkt
og nær um miðbik landsins
niður fyrir sjávarmál. Hins veg-
ar er í skýrslunum algerlega
borið til baka, sem sagt var í
blöðum, að rannsóknirnar hefðu
leitt í ljós, að Grænland skiptist
í þrjú svæði. Einnig voru merki-
legar niðurstöður rannsóknanna
á suðurskautssvæðinu, en þær
gerði brezk-norsk-sænski leið-
angurinn, sem var tvö ár þar
syðra. Komust vísindamennirnir
að raun um, að jökulinn þar
syðra væri miklu þykkri en
áður var talið.
Aldur jarðar
Nokkra fyrirlestra sótti ég i
öðrum deildum. M. a. hlýddi ég
á fyrirlestra um aldur jarðar.
Brezkir og bandarískir jarðeðlis-
fræðingar, sem ekkert samstarf
höfðu sín á milli, og beittu ólík-
um aðferðum, komust að sömu
niðurstöðu: Að aldur jarðar sé
um 4500 milljónir ára, en það
er mun hærri aldur en áður var
talinn líklegur meðal vísinda-
manna.
Mikil velvild og gestrisni
ítalir, sem sáu um ráðstefn-
una, skipulögðu ferðir á hana og
ráðstefnuna sjálfa, komu fram af
mestu velvild og höfðingsskap
og verður gestrisni þeirra eigi
um of rómuð“.
i Var ferðin því öll hin ánægju-
legasta og fróðlegasta og er ég
mjög þakklátur menntamála-
ráðuneytinu og fjárveitinga-
nefnd Alþingis, er veittu mér
farareyri.
Tíðindamaðurinn spurði S. Þ.
nokkru nánar um þátttöku Is-
lands í þessu alþjóðasamstarfi.
Hún er enn óbein, þ. e. byggist
á persónulegum kynnum og
samstarfi. Eindregnar óskir
komu enn fram um, að ísland
gerðist beinn þátttakandi í sam-
starfinu, og væntanlega líður
ekki langur tími, þar til svo
verður komið. Orsök þess, að er-
lendir vísindamenn hafa ítrekað
óskir í þessu efni er mikilvægi
Islands fyrir eldfjalla- jökla- og
veðurrannsóknir. Kostnaður við
beina þátttöku nemur aðeins
100 stpd. árlega.
Vísir vill benda á, er um þetta
er rætt, að það er vegna þátttöku
í hinu nýafstaðna þingi, að Is-
lendingum er falið að annast út-
gáfu hins merka ritsafns, er að
ofan getur um, en ella mundi
það hafa verið falið annarra
þjóða mönnum, þ. e. Dönum.
Væri eigi vansalaust, ef öðrum
væri falið slíkt hlutverk og
önnur, sem íslenzkir vísinda-
menn hafa bezt skilyrði til að
annast. Þátttaka íslands í þessu
alþjóðasamstarfi ætti að vera oss
öllum metnaðaratriði.
—VÍSIR, 14. okt.