Lögberg - 25.11.1954, Blaðsíða 5

Lögberg - 25.11.1954, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. NÓVEMBER 1954 5 yfffytfy?yfyyffyy?tyffyfyyi AliteAHAL IWLNNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON GÓÐUR GESTUR Frú Margit Eylands MA R G I R Vestur-íslendingar hugsa hlýlega til þessarar ágætu konu. Hún kom hingað í heimsókn með manni sínum, Árna G. Eylands, stjórnarráðs- fulltrúa, árið 1939 og ferðuðust þau þá nokkuð um íslenzku byggðirnar og eignuðust marga vini. Þegar þau komu heim, rit- aði frú Margit einkar fallega grein um elliheimilið „Betel“, sem endurbirt var í Lögbergi, og mörgum þótti vænt um. Og jafnan síðan hafa þau hjón sýnt Vestur-lslendingum mikla góð- vild bæði í orði og í verki. Við fögnum því komu þeirra, þegar þau nú bæði heimsækja okkur í annað sinn. Margit er af norsk- um ættum, fædd á Rogalandi, suðvestasta fylki Noregs, nálægt borginni Stafangur. Ættarnafn hennar er Fosstveit og telja ættmenn hennar sig komna af Erlingi Skjálgssyni á Sóla, er uppi var á tíð Haralds Tryggva- sonar og Ólafs Haraldssonar helga, og þótti „göfugastur allra lendra manna í Noregi“. Margir sögustaðir eru í þessu fylki; norður af Sóla er Hafursfjörður, þar sem Haraldur hárfagri vann úrslitaorustuna um yfirráðin í Noregi. Stafangur er gamall bær og er hans víða getið í forn- um sögum; dómkirkja bæjarins var byggð á miðöldum og er talin mjög merk. Eiríkur rauði og fleiri íslenzkir landnáms- menn voru frá Rogalandi. Frú Margit er næm fyrir öllu, sem er sögulegs eðlis og er auð- fundið að hið söguríka um- hverfi, sem hún ólst upp í, hefir mótað hana á ýmsan hátt. Hún hefir mikla ánægju af að kynna sér allt það sem fornt er, listir engu síður en bókmenntir. Hún er hannyrðakona góð, og hefir nú með höndum dúk, sem hún er að sauma eftir gömlu munstri frá miðöldum. Frú Margit kynntist manni sínum, þegar hann var við fram- haldsnám í búvísindum í Noregi, og fluttist með honum til ís- lands 1921. Þegar ég spurði hana hvernig henni hefði geng- ið að læra íslenzkuna, sagði hún að sér hefði gengið það fremur vel vegna þess að hún hefði lært ný-norsku í miðskól- anum og háskólanum — en ný- uorskan er lík íslenzkunni; hins vegar er ríkismálið líkt dönsk- unni. — Svo sem fyrr var vikið að, er frú Margit vel ritfær á íslenzka tungu og væntum við þess að birta grein eftir hana í Kvennasíðunni áður en langt um líður, Frú Margit er og ljóð- elsk mjög og kann mikið af ís- lenzkum ljóðum; að henni verð- ur heldur ekki komið óvart í fornsögunum, að minnsta kosti ekki í Heimskringlu Snorra; sennilega mun hún hafa lesið þá bók í skóla, svo sem títt er um skólafólk í Noregi. Eiga þau hjónin mikið og vandað bóka- safn, enda bæði mjög bókelsk. Frú Margit kann vel við sig á íslandi; hún dáir hinn andlega þrótt þjóðarinnar og henni finnst mikið til um hinar miklu framfarir þar í landi, sem hún hefir verið sjónarvottur að þessi síðustu 30 ár; henni finnst þróunin á sviði lista ganga undri næst. En það sem henni þykir vænst um er, að mat þjóðarinnar á hinni fornu menn- ingu fer einnig vaxandi. Auð- heyrt er á öllu, að frú Margit elskar landið og þjóðina, sem nú er hennar land og hennar þjóð. Farfuglarnir til Islands 1946, ritstjórar vestur-íslenzku blað- anna, ræðismaður Islands í sléttufylkjum Canada og konur þeirra munu seint gleyma bíl- ferðinni um Suðurlandsundir- lendið alla leið austur í Vík í Mýrdal með Eylandshjónunum. Skemmtilegri ferðafélaga ekki hægt að kjósa sér, en þó man ég bezt eftir frú Margit í kveldverðarboði á hinu yndis- lega heimili þeirra hjóna, þar sem hún sat í húsmóðursætinu við borðið; þar sómdi hún sér svo vel, enda hefir það fallið í hennar hlut að taka á móti mörgum gestum, og kann hún vel þá list að fagna gestum sín- um og láta þeim líða vel. Þau hjónin fara héðan á laugardagskveldið, fljúga suður til Bismark, N. Dak. Árnaðar- óskir vina þeirra hér fylgja þeim úr garði. Fréttir frá Glenboro, Maniroba ☆ ☆ ☆ HANNYRÐASÝNING um Það er jafnan margt manninn í neðri sal Fyrstu lút- ersku kirkju, þegar Kvenfélag safnaðarins heldur sitt árlega haustboð, og svo var það á mið- vikudaginn í fyrri viku, enda er þessi félagsskapur vinsæll; í honum eru eldri konur safnað- arins og hafa þær flestar starf- að í félaginu síðan þær voru ungar stúlkur eða nýgiftar. Auk kaffihressingar hafa þær venju- lega til sölu ýmislegt matar- kyns, hannyrðir og ýmsa muni, er þær hafa gert sjálfar. Eru sumar konurnar mjög listrænar og hafa á undanförnum árum notað óspart sínar högu hendur í þágu félags síns og safnaðar. 1 þetta sinn höfðu þær sýningu á hannyrðum sínum og list- munum, og var þar margt að sjá, sem var fagurlega gert, þó var þarna aðeins lítið sýnishorn af þeirri listavinnú, sem þær hafa gert um dagana. Fyrst tók maður eftir litlum dúk, sem fyrsti forseti félags- ins frú Lára Bjarnason hafði gert þegar hún var ung; var hann frá árinu 1850 og í hann voru útsaumaðir stafir og nafn hennar, Laura Michaeline Gud- jonsen. Til beggja handa héngu allskonar myndir: olíumyndir málaðar af Mrs. G. M. Bjarna- son; petite point myndir gerðar af Mrs. T. Hannesson; útsaumuð madonnu mynd eftir Mrs. Thoru Olson; blómamynd gerð úr skeljum eftir Mrs. E. W. Perry og mynd af hreindýri gerð með’ krosssaum af Mrs. J. S. Gillis. Allar voru þessar myndir falleg- ar og vel gerðar. Á einu borðinu voru sýnishorn af vefnaði Mrs. Albert Wathne; er hún löngu kunn fyrir frábæran listvefnað sinn; þar voru handklæði, bað- þurrkur og borðdúkar ofnir úr mismunandi tegundum af linen, barnaábreiða ofin úr ull í mjúk- um litum; áklæði fyrir stóla og legubekk ofin úr cotton, og margt fleira fallegt. Á fremsta Það er bezt að gera grein fyrir því strax, að G. J. 1 Oleson, sem í mörg ár hefir skrifað fréttir héðan, og er til þess allra manna færast- ur, hefir í lengri tíma verið veikur og treystir sér ekki til að skrifa að sinni. Hann mæltist til þess, að undir- ritaður skrifaði fréttir í þetta skipti. Þeim mun þykja minna til koma, sem þekkja stíl og frásögn G. J. Olesons. En það getur verið nokkur bót í máli, að G. J. Oleson hefir lánað mér gömlu ritvélina sína. Treysti ég nú, að henni fylgi anda- gift eigandans og að vel fari. Eitt er áreiðanlegt, að okkur verður í huga vinur okkar, sem við virðum og metum svo mikils, og við óskum af alhug að hann nái sem allra fyrst góðri heilsu og að í mörg ár enn fáum við að njóta góðs frá penna hans. borðinu voru rúmábreiður, prjónaðar og heklaðar, gerðar af Jónínu Ingjaldson, Halldóru Bjarnason, Ingibjörgu Thorvard- son og Margréti Stephensen, allar fallegar og vandaðar. Er það mikið verk að búa til eina slíka ábreiðu; Mrs. Stephensen hefir þó heklað fjórar; eina fyrir hverja dóttur; geymast slíkir hlutir að sjálfsögðu mann fram af manni sem ættargripir. Þarna voru og útsaumaðir dúkar og sessuborð eftir þessar konur, er taldar hafa verið hér að framan. Mrs. Alex Johnson átti þarna fallega, heklaða og „tatted“ borðdúka; fjölbreytt og vönduð er handavinna Mrs. Salome Backman, harðangurs saumur, flos saumur, samkvæmistaska saumuð perlum o. fl. Mrs. C. Ólafsson átti þarna fínlega út- saumaða muni, dúka, barnaskó, kraga; ennfremur útsaumaðir dúkar eftir Mrs. Unu Líndal; barnaábreiða með “applique” saumi eftir Mrs. Fíu Jónsson; karlmannasokkar úr fínu bandi prjónaðir af Mrs. S. Oddson; Mrs. Thorsteinn Johnson, sem látin er fyrir nokkrum árum málaði myndir fagurlega á postulín og var þarna einn lítill blómavasi, er minnti á listræni hehnar og starf í kvenfélaginu Sérstaka athygli vakti „íslenzka“ sýnishornið, þar voru dúkar og sessuborð, útsaumaðir af frú Margréti Guðmundsson úr ís- lenzkri ull, ennfremur glitsaum ur og afar fínlega prjónuð slæða eftir .Katrínu Brynjólfs- son. Voru munirnir á þessu borði sérlega litauðugir og fallegir. Gestir kvenfélagsins þyrptust að sýningarborðunum til að skoða og dáðst að þessari fallegu handavinnu, og var auðheyrt og auðséð að þeir höfðu mikla ánægju af því. Vorið byrjaði með kuldahreti hér sem annars staðar á háslétt- unum. Nokkrir bændur byrjuðu vorvinnu seinustu dagana í apríl og sáðu nokkuð. Svo fór að rigna og það rigndi meiri- var hlutan af maí og lítið sem ekkert var hægt að vinna á ökrum. Sumir bændur kláruðu ekki sáningu fyrr en 20. júní. Það var þurrviðri í júlí og hnekti ökrum afar mikið. Þegar að sláttutíma leið fór að rigna aftur og meira að jafnaði og í lengri tíma en elztu menn muna eftir; korn og hey hrakti og sumt náð- ist ekki vegna vætu. Uppskera var að jafnaði rýr, og öll vinna kostnaðarsöm og erfið. Nokkrir bændur norðvestur af Glenboro- bænum urðu fyrir miklum skaða af völdum hagls og storma. Við munum minnast þessa sumars sem þess vætusamasta í manna minnum. The International Pipe Line hefir byggt hér heilmikið sein- ustu fáu árin. Olíustöðin var reist á Birt Meredith landinu fyrir sunnan bæinn. Það mun láta nærri, að byggingar allar og vélar í olíustöðinni kosti um tvær miljónir dollara; 22 menn vinna við stöðina og helmingur jeirra er úr bænum eða bygð- inni. Það hefir heyrzt að mikið eigi að bæta við þessa stöð enn Dá. Næsta ár á að auka pípulagn- ingar, pumpur og vélar. Árið 1952 byggði Interprovincial Pipe Line 4 hús í bænum; árið 1953 3 hús og í sumar 8 sjö herbergja hús. Fyrir utan þetta hafa verið bygg 11 prívat-hús seinustu tvö árin. Flest af þessum húsum eru í norðaustur bænum. Mr. E. Berry rafmagnsfræðingur reisti stórt vöru- og íbúðarhús, þar sem gamla Leland hótelið var áður; einum “Elivator“ og tveim “Annex“ var bætt við korn- hlöðurnar í sumar, og pósthús er í smíðum rétt fyrir vestan sveitaráðsskrifstofuna. Þann 22. október s.l. var gengið til at- kvæðagreiðslu um nýjan spítala. Atkvæði greiddu 370 manns með en 172 á móti. Byrjað verður á smíðinni næsta vor og spítalinn reistur á lóðinni fyrir norðan sjúkrahúsið, sem fyrir er. Þess má einnig geta, að flest verzlun- arhúsin voru máluð í vor, Beaver Lumber verzlunin, Glenboro Hardware og rakarastofan voru færð í nýmóðins stíl. Þetta prýðir bæinn mikið. , Margir gestir hafa komið hingað í sumar, vil ég nefna þá, sem. komið hafa fram á manna- mótum: Séra Einar Sturlaugsson prófastur frá Patreksfirði mess- aði hér á íslenzku. Við munum lengi minnast þessa prúða manns og þökkum honum inni- lega fyrir komuna. Séra Eric Sigmar og kona hans frú Svava, Dr. Haraldur Sigmar og frú, komu hér við á heimleið frá íslandi og Evrópu. Þeir feðgarnir höfðu hér skemmtisamkomu; — fjölmennt var á þessu gleðimóti og hafði fólk mikla skemmtun af því. Dr. Valdimar J. Eylands og frú og tvær dætur þeirra komu hingað í vor. Dr. Eylands messaði hér í fjarveru sóknar- Framhald á bls. 8 Síðan 1910 Canadamenn bera traust t)il Tip Top Tailors, elztu og stærstu fatagerSarinnar I Canada. Tip Top föt, sniCin eftir niAli, njóta meiri hylli í Canada vegna-sniðs, gæða og endingar. Spyrjist fyrir hjá nágranna yðar, hann veit svarið. Beztu föt í Canada sem fáanieg’ eru. Ávalt Tip Top búð i grendinni. Tip Top tailors Uppáhald fjölskyldu vorrar! Vér erum upp með oss, eins og >ér munuð vera líka, yfir slíku hressilyfi sem Halpole’s Extract of Ood Liver Oil! pað veitir oss þá heilsuvernd, sem Sunshine Vitamin “!>'• býr yfir og mörg önnur heilsubætandi efni; það er ljúffengt og veitir nýjan þrött. — Reynið Lalpole’s nú þegar! HKW-b EXTRACT 0F COD LIVER EXTRflCT COOLIVtfl © -.r KSií ~ «>»!» Hér fæst nýr bæklingur, sem greiðir götu yðar í Canada Með það fyrir augum, að fræða nýja innflytjendur um canadiska lifnaðarháttu og skyldur, hefir deild þegnréttinda og innflytjendamála látið gefa út „Handbók til afnota nýjum innflytjendum“. Bókin útskýrir nákvæmlega þegnréttindakröfur, bankareglur, hvernig kaupa skuli hús, viðskiptafyrirtæki eða bújarðir; póstþjónustu, menntamálakerfi Canada, öflun leyfa, atvinnuhætti, læknaþjónustu og heilbrigðismál og reglugerðir um samfélagslegt öryggi; hún inniheldur margar aðrar nytsamar upp- lýsingar varðandi Canada og canadiskar venjur. Bókin er gefin út á fimm tungumálum, ensku, frönsku, þýzkú, hollensku og ítölsku og fæst ókeypið með því að fylla inn eyðublaðið hér að neðan og senda The Citizenship Branch, Dept. of Citizenship and Immigration, Ottawa. Látið ekki undir höfuð leggjast, að tilgreina tungumál þeirrar bókar, er þér æskið að fá. Gefið út til afnota nýjum innflytjendum til Canada af DEPARTMENT OF CITIZENSHIP & IMMIGRATION HON. J. W. PICKERSGILL, P.C., M.P., Minister of Citizenship and Immigration LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C., Deputy Minister of Citizenship and Immigration CITIZEXSHIP BRANCH, DEPARTMENT OF CITIZENSHIP AND IMMIGRATION, OTTAWA. Gcrið svo vel að senda mér eintak af (tiltakið tnngnmál) “Handbook for Newconiers.” Nnfn ......................................................... Heiniilisftmg ................................................ Bygðarlag ....................................................

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.