Lögberg - 25.11.1954, Page 8

Lögberg - 25.11.1954, Page 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. NÓVEMBER 1954 Úr borg og bygð AÐALFUNDUR „FRÓNS" Eins og þegar hefir verið getið, verður aðalfundur Fróns hald- inn í G. T.-húsinu á mánudags- kvöldið kemur, kl. 8. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: 1. Forseti setur fund og býður gesti velkomna. 2. Ritari les fundargerð frá síðasta fundi. 3. Álit leiknefndar þeirrar, er kosin var á síðasta fundi. 4. Skýrsla ritara. 5. Skýrsla gjaldkera. 6. Leikin verða nokkur söng- lög af segulbandi undir um- sjón próf. Finnboga Guð- mundssonar (sum þeirra hafa ekki heyrzt hér áður). Þeir einir, sem greitt hafa árs- tillag sitt, hafa atkvæðisrétt. — Aðgangur ókeypis. —Fjölmennið! F. h. „Fróns“, THOR VIKING, ritari ☆ Hinn 20. þ. m. voru gefin sam- an í hjónaband að heimili brúð- arinnar, 590 Polson Ave., þau Miss Phyllis Farquhar og Mr. Fred Melsted sonur Mr. og Mrs. O. W. Melsted. Rev. R. E. Wilson gifti; að vígsluathöfn afstaðinni var setin vegleg og fjölmenn veizla í salarkynnum Valour Road Legion Hall. Heimili ungu hjónanna verður í Winnipeg. OILHIMlGHITE Try ELKHORN and OILNITE Stoker Coal Mix 50/50 $16.40 per Ton Our Most Popular Stoker Coal Oil Treated PHONE 3-7340 John Olafson, Representative. Munið Laugardagsskólann í Sambandskirkjunni hvern laugardag kl. 10.30 f. h. ☆ Mr. Sigurður Arason frá International Falls, Minn., var staddur í borginni í fyrri viku ásamt frú sinni, og héðan héldu þau í heimsókn suður til Morden, en þaðan er frú Arason ættuð. Sigurður hefir áratugum saman rekið bílaviðgerðarfyrir- tæki í Fort Frances, Ont., en er nú nýlega fluttur suður fyrir landamæri. „Ég á LÖgbergi það að þakka, að ég er búinn að steingleyma íslenzkunni“, sagði Sigurður um leið og hann kvaddi. ☆ Mr. og Mrs. John Steinthórs- son frá Vogar litu sem snöggvast inn á skrifstofu blaðsins í vik- unni, sem leið; aðspurður tíð- inda úr bygðarlaginu svaraðL Mr. Steinthórsson því einu til, að norður þar væri alt á kafi í vatni. ☆ Kvenfélag Fyrsta Sambands- safnaðar heldur sitt árlega “Silver Tea” 7. des. 1954 frá kl. 2 til 4.45 e. h. í The T. EATON Co. Assembly Hall. Einnig verður þar Bazar og söluborð með heimabökuðu brauði. í mótökunefnd eru: Mrs. O. Peturson, Mrs. S. Árnason, Mrs. J. B. Skaptason og Mrs. P. M. Peturson. Forstöðukonur við te-borðin: Mrs. S. E. Bjornson, Mrs. Farmer, Miss Elsie Peterson, Mrs. Danielson, Mrs. H. Gottfred og Mrs. W. Kristjanson. ■—Fjölmennið ☆ A meeting of the Jon Sigurd- son Chapter I O D E will be held at the home of Mrs. H. Baldwin, 474 Oxford St., on Fri- day December 3rd at 8 o’clock. ☆ The next meeting of The Ice- landic Canadian Club will be held in the Federated Church on Monday December 6, at 8:15 p.m. Dr. Thorvaldur Johnson, Ph. D., F. R. S. C., will give an address on rust and rust resist- ing grains. Further particulars next week. ☆ Doris Eleanor, dóttir Mr. og Mrs. Valdi Sveinson, Camp Morton, og Lorne Elert, sonur Mr. og Mrs. E. G.Anderson, Gimli, voru gefin saman í hjóna- band í lútersku kirkjunni á Gimli 20. nóvember. Séra Harold S. Sigmar gifti. Brúðkaupsveizla var haldin í samkomuhúsi Husa- víkur. Heimili ungu hjónanna verður á Gimli. ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will hold their annual Christmas Tea on Wednesday Dec. lst from 2.30 p.m. til 4.30 and 7.30 til 10 in the lower auditorium of the church. Receiving at the door will be the president Mrs. Paul Sigurd- son and the general convenors Mrs. A. Blondal and Mrs. S. Johnson. Table Captains are: Mrs. R. Frederickson, Mrs. O. Skaftfeld, Mrs. J. G. Johnson, Mrs. J. P. Sivertson. Home cooking: Mrs. H. Ben- son, Mrs. W. Crowe, Mrs. J. Thordarson. White Elephant: Mrs. G. Eby, Mrs. R. Armstrong. Fréttir frá Glenboro prestsins og Miss Lilja Eylands söng einsöng. Þessu var prýði- lega vel tekið. Séra Haraldur Sigmar, sóknarprestur á Gimli, frú hans og börn þeirra voru hér yfir helgi. Séra Haraldur hafði þrjár messur í skiptum við sóknarprestinn, sem fór til Gimli. Fólk æskir þess, að slíkum skiptum verði haldið áfram. Séra Virgil Anderson þjónaði Argyle-prestakalli í hálfan annan mánuð í sumar í fjarveru sóknarprestsins. Hann kynnti sig prýðilega vel. Bréf barst hingað í dag, þess efnis, að séra V. D. Anderson hafi fengið köllun og tekið til starfa í The Canada Synod í Lynwood, Ontario. Þetta er okkur öllum, sem þekkjum þennan unga prest, mikið gleðiefni. Við ósk- um honum Guðs blessunar. Þrjú silfurbrúðkaup voru haldin í bygðinni: Mr. og Mrs. Ben. Anderson að Brú, Mr. og Mrs. Thor Goodman að Grund, og Rev. og Mrs. J. Fredriksson í Glenboro. Hjónavígslur framkvæmdar á árinu: Thomas G. Wallis og Barabar D. Fredriksson að Glen- boro; Bruce G. Ball og Thora J. Davidson að Baldur; Lloyd Ducharme og Margaret E. Pennycook, Glenboro; Ellis E. Tufvander og Irene E. Johnson, Brú; Harold W. Taylor og Velma M. Bjarnason, Glenboro; Eric M. Gross og Laufey G. Björnsson, Baldur; og George C. Grant og Joyce G. Sigurdson, Brú. Ég nefndi við kunningja minn um daginn að fjöldi af íslend- ingum í bygðinni væru komnir yfir áttrætt. Við fórum að telja. Vel má vera, að við gleymum einhverjum, en nefna vil ég þá, sem ég man. Friðbjörn Frederiksson, að Glenboro, 95 ára. Guðrún Stephens, Glenboro, 94 ára. Tryggvi Sigvaldason, að Baldur, 92 ára. Ólafur Oliver, að Baldur, 88 ára. Kristján Guðnason, að Baldur, 87 ára. Sigríður Helgason, að Brú, 87 ára. Sigurður Guðbrandsson, að Brú, 86 ára. Björg Martin, Baldur, 86 ára. Marteinn Martin, Baldur, 81 árs. Magnús Skardal, Baldur, 84 ára. Kristinn Anderson, Baldur, 83 ára. Ég held, að þetta séu nokkur meðmæli þess, að hér sé gott að vera. Lýk ég svo þessu frétta- bréfi að sinni. Jóhann Fredriksson There is no gift problem when you give something electrical for Christmas. Your family and friends are sure to ap- preciate a gift chosen from the special display at the City Hydro Showrooms. • TOASTERS • IRONS • CLOCKS • COFFEE PERCOLATORS • EGG COOKERS • HEATING PADS • VACUUM CLEANERS • FLOOR POLISHERS • AUTOMATIC WASHERS • AUTOMATIC DRYERS • HEATERS • FLASHLIGHTS • ELECTRIC BLANKETS • SUNBEAM FRYING PANS • OSTERIZERS • XMAS TREE LIGHTS See These and Oiher Attraclive Gift Ilems at Poríage Avenue, east of Kennedy Phone 96-8201 Handicraft: Mrs. H. Olsen, Mrs. J. Ingimundson, Mrs. R. Broadfoot, Mrs. I. Gudmundson. ☆ — LEIÐRÉTTING — I tveim greinum í Lögbergi, dags. 11. nóv., eru tvær mjög skaðlegar prentvillur, sem hér með leiðréttast: í greininni um ATLANTIS stendur, að „Heródes“ hafi vitnað til þess týnda Atlantis, en á auðvitað að lesast HERÓ- DÓTUS (484—425 f. K.) stund- um kallaður Faðir sagnritunar — “The Father of History“. l.grein um UNDUR NÁTT- ÚRULÖGMÁLANNA, sem getur Gunnar Thoroddsen og Sig- urður Bjarnason hafa borið fram þingsályktunartillögu um að skora á ríkisstjórnina að undirbúa byggingu nýs gistihúss á Þingvöllum. Þessi forni þingstaður er einn fjölfarnasti ferðamanna staður á landinu. Skortir mjög á að aðbúnaður ferða- manna þar sé fullnægjandi. í tillögunni er lagt til að und- irbúið verði fyrst og fremst staðarval, stærð gistihússins og fyrirkomulag, áætlanir um byggingu og reksturskostnað, hvaða aðili eða aðiljar ættu að standa að stofnuninni og rekstri gistihússins og hvernig afla megi fjár til byggingarinnar. Þess er getið í greinargerð, að enginn staður annar á íslandi. hafi slíkt aðdráttarafl sem Þing- vellir. Sækir þangað á hverju sumri mikill fjöldi Islendinga og útlendra manna. Aðstaða öll til að taka á móti gestum, er skoða vilja staðinn og dveljast þar, er mjög erfið. Gistihúsið Valhöll, sem þar er rekið, er aðeins opið tvo til þrjá mánuði ársins um hásumarið. Það er gamalt timburhús, reist fyrir hálfri öld, en síðan flutt til og stækkað. Er það tekið fram, að hús þetta sé erfitt og dýrt í rekstri. Söngskemmtun Maríu Markan Östlund Óperusöngkonan María Mark- an östlund hélt söngskemmtun í Gamla Bíói s.l. föstudag. Langt er nú orðið síðan að aðdáendur hennar hér á landi hafa haft tækifæri til þess að hlýða á söng hennar og var þetta því óvenju- legt tækifæri. Enda mátti glögglega heyra á undirtektum áheyrenda og sjá á blómahafinu, sem söngkonunni barst, að þeir kunnu vel að meta þessa einstæðu söngskemmtun. Efnisskráin var fjölbreytt og vel valin og hófst hún með Adelaide eftir Beethoven. Hin þróttmikla, vel þjálfaða og fallega rödd söngkonunnar naut sín vel í þessu lagi, og meðferð hennar á því var góð. Dic Lotus blume og Der arme Peter eftir Schumann söng frúin mjög skemmtilega. íslenzku sönglögin eftir Árna Thorsteinsson, Pál ísólfsson, Þórarinn Jónsson, Þór- arinn Guðmundsson og Emil Thoroddsen sómdu sér mæta vel hjá hinum lögunum, einkum voru lögin eftir þá nafnana, Þórarinn Jónsson og Þórarinn Guðmundsson, minnisstæð og skemmtileg. í aríunum kom samt bezt fram styrkur og mikilhæfni óperu- söngkonunnar. Draum Elsu úr óperunni „Lohengren“ eftir Wagner var listavel sungið og virðist túlkun á Wagner vera henni hugleikin og tæknilega auðveld. Fagnaðarlæti áheyrendanna voru mikil og varð söngkonan að endurtaka og syngja mörg aukalög. E. P. —TIMINN, 20. okt. um jarðstjörnuna Marz: „Séu skynigæddar verur á jarðstjörn- unni Marz (sem er alls ekki ólíklegt)“. Á að lesast: SEM ER ALLS EKKI LIKLEGT. Þetta eru lesendur beðnir að virða á betri veg. —L. F. ☆ Dr. Valdimar J. Eylands lagði af stað í gærkveldi vestur til Blaine, Wash., þar sem hann prédikar á sunnudaginn kemur við 40 ára afmælishátíð kirkju íslenzka lúterska safnaðarins þar í bænum. Dr. Valdimar þjónaði um hríð þeim söfnuði og er vinmargur þar um slóðir; hann ráðgerði að vera um viku- tíma að heiman. Þrátt fyrir áhuga eigendanna á því að hafa reksturinn í góðu lagi, skortir mjög á að vistar- verur og aðbúnaður sé full- nægjandi. í greinargerðinni segir og, að á Þingvöllum þurfi að vera gott gistihús, er hæfi helgi og fegurð staðarins, virðulegt, notalegt og hóflegt að stærð, gerð og bún- aði. Helzt þyrfti það að vera opið allan ársins hring. Þyrfti byggingin helzt að vera með þeim hætti, að unnt væri að taka nokkurn hluta hússins úr notkun á þeim árstímum, þegar aðsókn er lítil, til þess að draga úr reksturskostnaði. Að lokum er það nefnt, að nú- verandi eigendur Valhallar muni hafa hug á þátttöku í byggingu nýs gistihúss. E. t. v. vilja fleiri aðiljar, einstaklingar og félög leggja hönd að verki, en þó er trúlegt að það þurfi að einhverju leyti atbeina ríkis- sjóðs með fjárframlögum, á- byrgð, lántökum eða á annan hátt. Fyrir nokkru kom fram á þingi stjórnarfrumvarp um að afnema veitingaskatt. Er ekki ólíklegt að við það verði hrundið úr vegi ýmsum þeim öruðleik- um, sem gistihúsarekstur á við að búa í landinu. Það gæti með öðru stuðlað að því að fullkomn- ara gisti- og veitingahús yrði reist á Þingvöllum. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. He.mili 686 Banning Street Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Næstkomandi sunnudag, 28. nóv., prédikar séra Haraldur Sigmar frá Gimli í Fyrstu lútersku kirkju kl. 11 f. h., en séra Bragi Friðriksson frá Lundar messar að kvöldinu a íslenzku. —Allir velkomnir! ☆ Lúierska kirkjan í Selkirk Sunnud. 28. nóv.: (1. sunnud. í jólaföstu) Ensk messa kl. 11 árd., ásamt altarisgöngu. íslenzk messa kl. 7, ásamt altarisgöngu. Sunnudagaskóli kl. 12. Fól kboðið velkomið. S. ólafsson ☆ Bezta munntóbak Keimsins —Mbl., 19. okt. .; ý'; H'hlti J J,/ . \ / * \ J J ' * i *............ WM , Hvar, sem leið yðar liggur \ Canada Býður EATON'S yður þjónustu sína Með hliðsjón af því, að við hendi eru 56 búiðir að viðbættum 4 póstpantanamið- stöðvum og yfir 260 pantanaskrifstofum frá strönd til strandar, er EATON’S til taks varðandi leiðbeiningar um val fyrsta flokks vörutegunda, se mseljast við sann- gjörnu verði. Þér getið verzlað í fullu öryggi þar sem þér njótið trygginga vorra síðan 1869. "Vörur óaðfinnanlegar eða andvirði endurgreitt" ^T. EATON CS.,™ WINNIPEG CANADA Stærslu smásölusamtök í Canada Undirbúa þarf byggingu gistihúss á Þingvöllum

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.