Lögberg - 03.02.1955, Blaðsíða 1

Lögberg - 03.02.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 68. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 3. FEBRÚAR 1955 NÚMER 5 Davíð Stefánsson ákaft hylltur í Þjóðleikhúsinu I ræöu lýsti hann vaxandi samúð og batnandi kjörum íslenzkra skálda SÝNINGIN á Gullna hliðinu í gærkvöldi var hin glæsileg- asta að öllu leyti fyrir leikhús- gesti, en þar var hvert saeti skipað. Þjóðskáldið Davíð Stef- ánsson flutti prólóginn í upphafi leiks með sömu snilld og áður og jók það fögnuð leikhúsgesta að heyra hann og sjá. Davíð hylltur Að loknum leiknum steig þjóð leikhússtjóri upp á sviðið, en leikendur og hljómsveitarstjóri höfðu safnazt þar saman. Flutti þjóðleikhússtjóri ræðu þar sem hann ávarpaði Davíð Stefánsson og þakkaði honum fyrir Gullna hliðið og önnur skáldverk hans. Er hann hafði lokið máli sínu, flutti formaður Þjóðleikhúss- ráðs, Vilhjálmur Þ. Gíslason, snjalla ræðu þar sem hann lýsti skáldskap Davíðs Stefánssonar og gildi hans fyrir íslenzka þjóð í nútíð og framtíð. Bað hann leikhúsgesti að hylla Davíð Stefánsson með ferföldu húrra- hrópi og var svo gert, en á meðan á þessu stóð, voru leik- ararnir og Davíð á leiksviðinu. Ávarp Davíðs Skáldið tók nú til máls og flutti snjallt erindi, þar sem hann í mörgum hjartnæmum orðum lýsti því hve afmælis- dagur hans hefði orðið honum ánægjulegur. Vék hann síðan að því hve kjör íslenzkra lista- manna væru nú með öðru móti en fyrrum. Nú léti íslenzka þjóðin sér annt um skáld og rit- höfunda á margan hátt, en fyrir- rennarar hans höfðu margir lifað við bág kjör. Tveir brezkir togarar taldir af D a g b 1 ö ð Winnipegborgar fluttu þá frétt síðastliðinn fimtudag, að nóttina áður muni tveir brezkir togarar hafa farist í afspyrnu fárviðri við strendur íslands, sennilega undan Horni; annar togaranna, Roderigo, var 810 smálestir að stærð, en hinn, Larella, 559 smálestir; höfðu þeir, hvor um sig, útvarpað skeytum um að þeir væri í háska staddir, en veðurfar þannig, að ekki mun hafa verið unt að koma þeim til hjálpar; tuttugu manna áhöfn var á hvorum togaranna um sig. Ráðherrafundur Síðastliðinn mánudag hófst í London ráðherrafundur brezku sambandsþjóðanna, sem stendur yfir í tíu daga; sýnt þykir, að viðhorf Asíumálanna komi þar mjög við sögu vegna þess ástands, sem skapast hefir út af Formosa-deilunni og þeirri af- stöðu, sem Eisenhower forseti, með samþykki beggja þingdeilda þegar hefir tekið, sem að því lýtur, að verja Formosa með oddi og egg. Þá koma og við- skiptamálin vafalaust til alvar- legrar yfirvegunar. Auk forsætisráðherra situr utanríkisráðherrann, Mr. Pear- son áminstan fund fyrir Canada hönd. Einn þeirra hafði t. d. dáið fótbrotinn í fjarlægu landi, ann- ar svangur í beitar húsi, þriðji sálast vinum sviptur á pakkhús- lofti o. s. frv. Nú var öldin önn- ur, eins og hann sjálfur gæti bezt dæmt um. Blómakveðjur Að lokum voru skáldinu færð- ar fagrar blómakörfur og hann ákaft hylltur að nýju af hinum fjölmörgu leikhúsgestum. —Mbl., 22. janúar ----0---- 1 tilefni af sextugsafmæli skáldsins hafa nokkrir íslend- ingar í Winnipeg ákveðið að setja á svið þætti úr hinu vin- sæla leikriti, Gullna hliðinu. Því miður reyndist ókleyft að hafa leiksýningu þessa á afmælisdegi skáldsins, en hún mun verða í byrjun marz n.k. Forsætisráðherra láfrinn Síðastliðinn laugardag varð bráðkvaddur á Grand Hotel í Stokkhólmi Hans Hedtoft for- sætisráðherra Danmerkur, vin- sæll þegnskaparmaður og góður stjórnmálaleiðtogi; hann kom til Stokkhólms að þessu sinni til að sitja þar fund Norræna ráðsins; banamein hans var hjarta- bilun. Hans Hedtoft var formaður Sósíal-Demokrata um langt skeið og gegndi forsætisráðherra embætti oftar en einu sinni; myndaði síðasta ráðuneyti sitt að afstöðnum þingkosningum, sem haldnar voru í september 1953, er flokkur hans gekk sigr- andi af hólmi. Hinn nýlátni forsætisráðherra var einn þeirra norrænu forustu- manna, er þátt tóku í Scandi- navian Airlines pólarfluginu fræga frá Kaupmannahöfn til San Francisco með viðkomu í Winnipeg. Samriingar afgreiddir London-Parísar samningarnir um endurhervæðingu Þýzka- lands og aðild þjóðarinnar að Norður Atlantshafsbandalaginu, voru afgreiddir í sambandsþing- inu í Ottawa á miðvikudaginn í fyrri viku með 213 atkvæðum gegn 12. Allir viðstaddir þing- menn Liberala, Konservatíva og Social Credit-sinna og fimm úr C. C. F.-flokknum með Mr. Coldwell í forarbroddi greiddu atkvæði með samningunum, sjö C. C. F. þingmenn og þar á meðal Stanley Knowles, greiddu mótatkvæði, en fimm sátu hjá. Verkfalli lokið Síðastliðinn laugardag lauk verkfalli því hinu mikla, sem staðið hafði yfir í hundrað og níu daga hjá þremur verksmiðj- um Ford-bílafélagsins í Ontario og tóku verksmiðjurnar til starfa með fullum krafti á mánudag- inn; með hinum nýju samning- um unnu verkfallsmenn allmikið á varðandi tryggingar og frí- daga, auk nokkurrar launahækk- unar og tjást þeir nú ánægðir með sinn hlut. Þess er vænst að fyrstu 1955 Fordbílarnir verði fullgerðir í verksmiðjum þessum í viku- lokin. Fylkisþing kvafrfr fril funda D. L. Campbell jorsætisráðherra Á þriðjudaginn var fylkisþing- dð í Manitoba sett af fylkisstjór- anum Hon. J. S. McDiarmid, er las boðskap stjórnarinnar til þingsins; mannfjöldi mikill var viðstaddur þingsetninguna; helztu mál, sem koma fyrir þing, verða fjárlögin og málið um endurskipun kjördæma, sem víst má telja, að langar umræður snúist um, en í þeim lagabálki er ráðgert að afnema hlutfalls- kosningar, en í þess stað komi til framkvæmda gamla fyrir- komulagið þar sem einfaldur meirihluti atkvæða ráði kosn- ingu og aðeins fari fram ein talning. Virkjun Efra-Sogsins boðin úfr Viðtal við STEINGRÍM JÓNSSON rafmagnsstjóra Verkið gæti hafizi næsia sumar eða hausi Sfrórkosfrlegur eldsvoði Á föstudaginn í fyrri viku brann hin mikla kornsýningar- höll í höfuðborg Saskatchewan- fylkis, Regina; í byggingunni voru geymd kynstrin öll af landbúnaðarverkfærum og nýj- um bílum; eignatjón er metið á tvær miljónir dollara; brunabóta félög verða að borga brúsann, því alt, sem brann, var að fullu vátrygt. Manntjón varð ekkert. Hraðskreiðari járnbraufrarlesfrir Aðaljárnbrautarfélögin í þessu landi, Canadian Pacific og Canadian National Railways, hafa ákveðið að hafa til taks í aprílmánuði næstkomandi hrað- skreiðari farþegalestir milli Montreal og Vancouver, en áður hefir gengist við; áætlað er, að með þessum nýju farartækjum verði farartímiiua. milli áminstra borga styttur um hálfa þrett- ándu klukkustund; á ferðalaginu sparast farþegunum heil nótt. Hinar nýjú farþegalestir ganga fyrir dieselafli. PAMKVÆMT því, sem Stein- ^ grímur Jónsson rafmagns- stjóri skýrði Mbl. frá í gær, var á fundi Sogsvirkjunarstjórnarinn- ar, sem haldinn var s.l. þriðju- dag, tekin ákvörðun um að hafa útboð á framkvæmd byggingar- vinnu, vélum og Tafbúnaði til stöðvarinnar við Efra-Sog. — Út- boðinu verður hagað á sama hátt og gert var haustið 1949, þegar útboð var gert um virkjun Ira- fossvirkjunarinnar, þannig að auglýst er almennt hér á landi, en gert er ráð fyrir að hafa tak- mörkuð útboð á byggingarvinnu innan Norðurlandanna, þannig að bjóða þeim firmum, sem við höfum verið í sambandi við og þekkjum, að taka þátt í sam- keppninni um byggingafram- kvæmdirnar. Út af vélunum er aðeins auglýst hérlendis en um- boðsmenn ýmsra erlendra fyrir- tækja munu vafalaust gera til- boð fyrir hönd aðila í ýmsum löndum í Evrópu og Ameríku. Lánsheimild jengin S t j ó r n Sogsvirkjunarinnar hefur fengið þingheimild til lán- töku með ríkisábyrgð, sem nem- ur allt að 100 millj. kr. Er búizt við að fjáröflun til virkjunar Efra-Sogsins verði reynd að út- ’oooi loknu og ef til vill í sam- bandi við bjóðendur sjálfa. Orka, sem nemur 27 þús. kw. Það sem virkja á er fallhæðin milli Þingvallavatns og Úlfljóts- vatns. Sjálft stöðvarhúsið mun standa á vatnsbakkanum við norðurenda Úlfljótsvatns en vatnið verður tekið úr Þingvalla- vatni um aðrennslisgöng til stöðvarinnar. Gert er ráð fyrir tveimur véla- samstæðum, hverri um sig 13,500 kw eða alls 27 þús. kw og er þá virkjunin fullkomin. Lág stífla verði í Þingvallavatni til vatns- miðlunar, þannig að fyrst um sinn haldist vatnsborðið milli 102—103 metra yfir sjó en það er það, sem mælingar hafa sýnt að vatnsborðið breytist, af náttúr- unnarvöldum, frá lægsta sumar- vatnsborði til hæsta vetrarvatns- borðs. Ekki er gert ráð fyrir, að hægt sé að hækka hæsta vatns- borð frá þessu vegna Þingvalla. Virkjun Efra-Sogs er töluvert minna mannvirki en írafoss- virkjunin og á því að verða all- miklu ódýrari. Nú eru virkjuð 31 þús. kw í írafossi og 15 þús. Til Gyðríðar Anderson við andlátsjregn sonar hennar, Valdimars Þinn harmur er mikill, þinn harmur er sár, þinn harmur er stærri en venjuleg tár þvo burt á þúsundum ára. En hetjurnar reiknuðu ei tárin í tug, og tugir áranna ei rændu þær dug, né sorgirnar ólífis-sára. kw í Ljósafossi eða 46 þús. kw en með Efra-Soginu, sem verður 27 þús. kw er virkjunin alls orðin 73 þús. kw. Síðan er gert ráð fyrir að bætt verði þriðju samstæðunni í Ljósafossstöðina en þá verður orka Sogsins alls orðin 96 þús. kw. Er þá vatns- rennsli Sogsins fullnotað. Stöðin fullbúin veturinn 1958—’59 Ef útboðið heppnast og fjár- öflun tekst á næsta vori, má búast við að verkið geti hafizt á næsta sumri eða hausti og fari svo getur stöðin tekið til starfa veturinn 1958—1959. —Mbl., 4. jan. Ráðinn úfrbreiðslusfrjóri Magnús Elíasson Sú frétt barst Lögbergi í byrjun yfirstandandi viku, að Magnús Elíasson frá Vancouver hefði verið ráðinn útbreiðslu- stjóri C. C. F.-samtakanna í Albertafylkinu, en í British Columbia hafði hann árum saman tekið veigamikinn þátt í málefnum flokks síns. Magnús er fæddur í Árnesbygðinni í Nýja-íslandi, sonur Guðmundar heitins Elíassonar, er þar bjó um langt skeið. Magnús var um eitt skeið formaður Blindravina- félagsins í þessu landi; hann er mælskumaður mikill og svo að segja jafnvígur á íslenzka sem enska tungu. Óhugnanlegur afrburður í fyrri viku, er flugvélamóður- skipið canadiska, The Magnifi- cent, kom til heimahafnar í Halifax, gerðist sá óhugnanlegi atburður, að margir hásetanna gerðust svo ölvaðir, að þeir vissu ekki sitt rjúkandi ráð; höfðu þeir, að sögn, eftir að algengar vínbirgðir þraut, þambað í sig ólyfjan, er gerði þá viti sínu fjær; voru fjörutíu og átta fluttir á sjúkrahús og ellefu af þeim liggja þar enn; sumir mistu sjónina um stundarsakir, en aðrir ef til vill ævilangt. Flotamálaráðuneytið h e f i r rannsókn málsins með höndum. Sexfríu miljón dollara fjárlög Gert er ráð fyrir, að fylkis- féhirðir Manitobastjórnarinnar, Mr. Turner, leggi fram á þessu þingi fjárlög, er nemi sextíu miljónum dollara, og verða þetta hæztu fjárlögin, sem fram að þessu getur um í sögu fylkisins; tekjuafgangur yfir fjárhagsárið er áætlaður 218,728.29. Auk fjárframlaga til menta- málanna verða hæztu útgjalda- liðirnir í sambandi við útfærslu raforku og símakerfis Jylkisins. Læfrur engan bilbug á sér finna Landbúnaðarráðherra sam- bandsstjórnar, Mr. James Gardiner, var staddur hér í borg- inni í fyrri viku og flutti ræðu í Empire klúbbnum; var hann enn sem fyr bjarttrúaður á framtíð landbúnaðarins í Sléttufylkjim- um og ókvíðinn með öllu um markaðshorfur fyrir framleiðslu bænda vestanlands. — Mr. Gardiner er sjötíu og eins árs að aldri, stálhraustur og fullur af áhuga og starfsþreki; hann sagði að sér kæmi ekki til hugar að láta af embætti, enda hefðu árin ekki þreytt sig svo um munaði. Mr. Gardiner er einn þeirra áhrifamestu stjórnmálamanna, sem Vesturlandið hefir alið. Tíu miljón dollara fjárveifring Samkvæmt fjárhagsáætlun sambandsstjórnar, sem nýlega hefir verið lögð fram í þinginu, er tíu miljón dollara fjárveiting ráðgerð Manitobafylki til handa á yfirstandandi fjárhagsári; helmingur upphæðarinnar fellur Winnipegborg í skaut; fé þessu verður varið til ýmis konar mannvirkja, svo sem til stór- kostlegra umbóta við Stevenson- flugvöllinn og til stækkunar Osborne herbúðunum, sem nú eru að verða ófullnægjandi vegna þrengsla. Heimsækir Vesfrur-lndíur Margaret Bretaprinsessa lagði af stað loftleiðis frá London á mánudaginn var á leið til Vest- ur-Indía í fjögra mánaða heim- sókn. Ekkjudrottning móðir hennar, Elizabeth drottning og maður hennar, hertoginn af Edinburgh, fylgdu prinsessunni til flugvallar og kvöddu hana þar. Á þriðjudagsmorguninn lenti flugvélin á Goose Bay flugvelli og fylti geyma sína benzíni. Viðbúnaður mikill var þegar hafinn í Trinidad til að taka á móti prinsessunni. Hófra sfrríðssókn Þær snerust á móti þeim slagviðra-fans, sem steðja að fótum hvers einasta manns, er stórviðrin storkandi hóta. Og stormkastið þetta ei fellir þinn fót, sem fornaldar hetja þú stendur á mót, og missir ei margþreyttra fóta. Þú sigrar, því minningar sólgeislum slá á sál þína, strjúka þér vinhlýtt um brá, svo gleymist þér gleðistund engin. Því „Sonur þinn lifir“. Hann sagði oss það fyr, Hann sjálfur, er opnar þér himinsins dyr, þá gata þíns jarðlífs er gengin. 5. janúar, 1955. —PóII S. Pálsson Nýjusfru fréfrfrir frá íslandi Fréttir frá Reykjavík 22. janú- ar síðastliðinn láta þess getið, að hafís sé fyrir norður- og vestur- landi og frosthörkur miklar, 15 stiga frost í Reykjavík, en 20 stig norðan- og austanlands. Útvarpsfréttir, sem heyrðust dauflega í Winnipeg, hermdu að togarinn Egill rauði hefði í af- spyrnuroki strandað og 8 menn farist af áhöfn skipsins. Útvarpsstöðin í Peiping flutti þá fregn á laugardaginn, að í því falli að Bandaríkin reyndu að koma í veg fyrir sameiningu Formosa við hið kínverska alríki, myndi Kínastjórn sýna þeim í tvo heimana með stríðs--' sókn. Um sama leyti og frétt þessi barst út, var öryggisráð sameinuðu þjóðanna að undir- búa tilraunir um vopnahlé milli kínversku stjórnarinnar og Nationalistanna á Formosu hver svo sem árangurinn kann að verða.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.